PLAY PODCASTS
Við skákborðið

Við skákborðið

162 episodes — Page 3 of 4

Ep 63Róbert Lagerman - þáttur 2

Kristján Örn Elíasson og Róbert Lagerman - þáttur 2 - framhald af síðasta þætti

Apr 17, 202457 min

Ep 62Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari

Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari mætti í settið á Útvarpi Sögu en þetta var sextugasti þáttur Kristjáns Arnar Elíassonar Við skákborðið. Róbert lærði skák frekar seint miðað við marga aðra sem náð hafa langt en hann var orðinn 15 ára gamll þegar fósturfaðir hans Hörður Victorsson kenndi honum fyrst að tefla. Skákkennslan stóð stutt þar sem Hörður nennti ekki lengur að tefla við hann eftir að Róbert fór að vinna hann reglulega. Fljótlega kom í ljós að Róbert var einstaklega hæfileikaríkur við skákborðið og ári síðar var hann orðinn Íslandsmeistari undir 20 ára (U-20). Róbert er margfaldur Norðurlanda- og Íslandsmeistari með Menntaskólanum við Hamrahlíð en liðsfélagar hans á menntaskólaárunum voru stórmeistararnir Jón L. Árnason, Margeir Pétursson og Jóhann Hjartarson ásamt FIDE meistaranum Þorsteini Þorsteinssyni. Róbert ræddi um langan og vægast sagt skrautlegan skákferil sinn. Hann talaði um kynni sín og vináttu við Hrafn Jökulsson, gímuna við þunglyndi, Bakkus og eltingaleik sinn við konur. Róbert er rétt að byrja frásögn sína en hann kemur fljótlega aftur í annan þátt.

Apr 10, 202454 min

Ep 61Landsliðskonurnar Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir, landsliðskonur í skák, segjast afar ánægðar með Reykjavíkurskákmótið sem heppnaðist vel þrátt fyrir að þeim finnist að þeim hefði mátt ganga betur eins og gengur. Stemningin á slíkum mótum sé einstök og gaman að sjá hversu margir sæki mótið aftur ár eftir ár. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Við skákborðið en Kristján Örn Elíasson ræddi við þær Hallgerði og Veroniku.Þær segja ákveðinn kjarna fólks sem telji um 150 til 200 manns mæti á hverju ári á mótið og þær séu farnar að kynnast vel fólkinu innan þess hóps og það sé alltaf jafn gaman að taka þátt. Þá sé ekki síður gaman að taka þátt í þeim viðburðum sem fara fram til hliðar við mótið sjálft eins og pub-quiz, hraðskákmót og þá fari erlendir keppendur oft Gullna hringinn sem þeim finnist afar skemmtilegt. Þær segjast finna vel fyrir því að þátttakan á mótinu hafi aukist verulega undanfarin ár og það sé auðvitað jákvætt en það séu þó orðin svolítil þrengsli á svona fjölmennu Reykjavíkurskákmóti. Hallgerður og Veronika ræddu um konur í skák, sögðu skoðun sína á hvort munur væri á styrkleika kvenna og karla við skákborðið, samskipti kynjanna, ferðalög erlendis, Ólympíumót, landsliðsþjálfara, mikla samkeppni stúlkna um sæti í kvennalandsliðinu og margt fleira áhugavert og skemmtilegt.

Apr 4, 202456 min

Ep 60Héðinn Steingrímsson stórmeistari í skák

Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson er gestur Kristjáns Arnar í þættinum Við skákborðið á Útvarpi Sögu að þessu sinni. Héðinn varð strax ungur að árum mjög sterkur skákmaður. Hann varð margsinnis Norðurlandameistari barna- og unglinga, hann varð heimsmeistari barna undir 12 ára árið 1987 og var aðeins 15 ára gamall þegar hann varð í fyrsta skipti Íslandsmeistari í skák en það ár náði hann styrkleika upp á 2500 eló-skákstig. Í þættinum talar Héðinn meðal annars um rannsóknir sínar á skák og gervigreind, áform ríkisstjórnarinnar (Alþingis) um að leggja niður stórmeistaralaunin í núverandi mynd, góðan árangur sinn á nýafstöðnu Reykjavíkurskákmótinu en Héðinn hreppti skipt annað sæti ásamt sex öðrum skákmönnum.

Mar 27, 202456 min

Ep 59Gríðarleg spenna á Reykjavíkurskákmótinu: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands

Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands kom í settið til Kristjáns Arnar á Útvarpi Sögu. Umræðuefnið var Reykjavíkurskákmótið en gríðarleg spenna er hlaupin í mótið þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Áttunda umferð verður tefld í dag og lýkur mótinu á morgun þegar níunda umferð verður tefld kl. 11:00 um morguninn.Stórmeistarinn Alisher Suleymenov frá Kasakstan er einn efstur með sex vinninga þegar sjö umferðir hafa verið tefldar en alls sautján keppendur fylgja honum fast á eftir með fimm og hálfan vinning og þar af fjórir Íslendingar, stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson, Héðinn Steingrímsson, Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson!Í þættinum eru spilaðir hljóðbútar af stuttum viðtölum sem tekin voru við aðstoðarmótshaldara og keppendur seint í gærkvöldi þegar sjöundu umferð var að ljúka í Hörpunni.

Mar 20, 202448 min

Ep 58Íslandsmót skákfélaga og Reykjavíkurskákmótið: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson

Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru FIDE meistararnir Sigurbjörn Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks. Þeir ræddu um nýafstaðið Íslandsmót skákfélaga en lið þeirra urðu sigurvegarar úrvalsdeildar og 1. deildar. Firnasterk skákdeild Fjölnis varð Íslandsmeistari skákfélaga og skákdeild Breiðabliks varð efst í 1. deild og tekur því sæti í úrvalsdeildinni í haust.Þeir Halldór og Sigurbjörn ræddu einnig fyrirkomulag Íslandsmótsins en þeir vilja gera smávægilegar breytingar á úrvalsdeildinni. Frábær árangur Alexandr Domalchuk-Jónassonar kom til tals en hann náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli ásamt fyrst áfanga sínum að stórmeistartitli á Íslandsmótinu. Halldór greindi að hluta frá nýrri metnaðarfullri 5 ára áætlun skákdeildar Breiðabliks um að styðja við bakið á ungum og efnilegum liðsmönnum skákdeilarinnar, bæði fjárhagslega og félagslega. Hann tók skýrt fram að hluti áætlunarinnar væri "hernaðarleyndarmál" en stefnt væri meðal annars á að úr afrekshópi þeirra kæmu nokkrir titilhafar innan 5 ára.Reykjavíkurskákmótið kom einnig til tals en það hefst á föstudaginn kl. 15:00 og stendur yfir dagana 15. til 21. mars. Á meðal keppenda er Úkraínumaðurinn Vasyl Ivanchuk, fyrrum heimsmeistari í hraðskák og atskák. Hann var á sínum tíma annar stigahæsti skákmaður heims með 2787 eló-skákstig. Hann er talinn af mörgum kollegum sínum einn mesti snillingur skáklistarinnar. Heimasíða og dagskrá Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu tónlistarhúsi

Mar 13, 202459 min

Ep 57Tímaritið Skák hættir: Gauti Páll Jónsson ritstjóri

Gestur Kristjáns Arnar í dag er Gauti Páll Jónsson ritstjóri tímairtsins Skákar. Ræddu þeir ákvörðun stjórnar Skáksambands Íslands um að leggja niður útgáfu tímaritsins, viðbrögð við því og hvað sé hægt að gera til að snúa þeirri ákvörðun við. Fóru þeir um víðan völl í viðtalinu, ræddu ungmennastarfið, HM ungmenna á Ítalíu, starfið í Taflfélagi Reykjavíkur og spáðu í síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fer fram í Rimaskóla um helgina svo fátt eitt sé nefnt. En á endanum barst talið alltaf að tímaritinu Skák enda er það hinum unga ritstjóra kappsmál, og í raun allri skákhreyfingunni, að blaðið haldi áfram göngu sinni.Meðal efnis í blaðinu: Skákskýringar frá Íslandsmeistara kvenna.Skákskýringar frá Íslandsmeistara í atskák.Skákannáll haustið 2023.Bókarkafli úr sögulegri skáldsögu um einvígið 1972. Elostigatölfræði íslenskra skákmanna 2023. Rokkað og rólað gegn Nimzanum.“Kynni mín af skák” eftir rithöfund sem kann ekki mannganginn.… og margt fleira …Skilaboð frá ritstjóra: "Allir lausapennar blaðsins skrifa launalaust og flestar pizzur á matseðli Domino´s kosta meira en blaðið. Björgum blaðinu, kauptu blaðið!😊"Hér er hægt að kaupa nýjasta blaðið og um leið skora á SÍ að draga ákvörðun sína til baka.Tímariðtið Skák verður til sölu á Íslandsmóti skákfélaga í Rimaskóla um helgina. Aðrir sölustaðir eru Spilavinir, Bóksala stúdenta og Bókakaffið Ármúla.

Feb 29, 202452 min

Ep 56Metþátttaka á Reykjavíkurskákmótinu 2024: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari

Ritstjórar www.skak.is, þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhanesson FIDE meistari kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Tilgangurinn var að fara yfir Reykjavíkurskákmótið sem hefst 15. mars næstkomandi. Uppselt er á mótið en skráðir keppendur eru 429 frá 49 þjóðlöndum. Í ár eru 60 ár liðin frá því að fyrsta Reykjavíkurskákmótið fór fram í Lídó árið 1964. Þá var mótið lokað, eða svokallað boðsmót, og voru keppendur 14 talsins. Sigurvegari mótsins var fyrrverandi heimsmeistari í skák, sjálfur töframaðurinn frá Riga, Mikhail Tal en hann hlaut 12,5 vinning í 13 skákum. Þáverandi heimsmeistari kvenna, Nona Gaprindashvili, var einnig á meðal keppenda.Eins og áður hjá þeim félögum var farið um víðan völl í spjalli um skákina, sagðar skákfréttir frá viðburðum hér heima og erlendis, spáð í spilin um hver verður næsti heimsmeistari í skák, spilað hljóðbrot þar sem Magnus Carlsen syngur rapplag sem kallast Hvem Stjal Spenolen eða Hver stal andlitskreminu með rapparanum Mr. Pimp-Lotion og margt fleira. Sjá slóð: Magnus Carlsen is Singing His Rap Song!Stóra spurningin sem ekki náðist að svara í þættinum er: Verður Hans Moke Niemann umdeildasti skákmaður heims með á Reykjavíkurskákmótinu 2024? Það kemur í ljós í kvöld eða á morgun en á meðan við bíðum...Chess speaks for itself!

Feb 21, 202457 min

Ep 55Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar og Hilmir Freyr

Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, núverandi Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák og Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari og núverandi Íslandsmeistari í atskák kíktu aðra vikuna í röð í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir tóku upp þráðinn frá því sem frá var horfið í síðasta þætti og ræddu meðal annars mikla og góða samvinnu þeirra við stúderingar en einnig innbyrðis "stríð" þeirra við skákborðið. Það kom fram í máli þeirra að þeir þekktu hvorn annan svo vel að skákir þeirra væru farnar að þróast í eins konar jafnteflismaraþon þeirra á milli, þeir væru í raun bestu óvinir! Langar skákir, tvöfaldar umferðir í svokölluðum túrbómótum og þreyta kom til tals og hversu mikilvægt það væri að sofa vel, borða rétt og stunda líkamsrækt reglulega. Þeir segja að það sé mjög gaman að sjá, að það sé kominn svo mikill metnaður hjá ungu skákmönnunum í dag. Þessi metnaður hafi ekki verið til staðar fyrir nokkrum árum þegar þeir voru að alast upp en nú séu flest allir að stúdera margar klukkustundir á dag. Menn séu einbeittir, haldi sér við efnið, taki alvöru æfingarnar og engin tími gefist fyrir fíflalæti. Vignir og Heimir fóru yfir helstu mót sem þeir ætla að taka þátt í á árinu og markmið sem þeir hafa sett sér á næstu tveimur árum. Vignir sagði að hann hefði rætt við hinn umdeilda og nú heimsþekkta Hans Moke Niemann í vikunni og að Niemann væri að velta fyrir sér að taka þátt í Reykjavíkurskákmótinu sem hefst í Hörpu í næsta mánuði.

Feb 14, 202458 min

Ep 54Íslandsmeistarar og vinir: Vignir Vatnar og Hilmir Freyr

Landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, nýjasti og yngsti stórmeistari okkar Íslendinga og núverandi Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák og Hilmir Freyr Heimisson, alþjóðlegur meistari og núverandi Íslandsmeistari í atskák kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Vignir fagnar 21 árs afmælisdegi sínum í dag, 7. febrúar en Heimir verður 23 ára síðar á árinu. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson var í pólitísku viðtali á útvarpsstöðinni í þættinum á undan og því lá beinast við að fá hann til að segja nokkur orð í upphafi þáttar og spyrja hann hvaða ráðleggingar hann hefði fyrir ungu landsliðsmennina. Ekki stóð á svörum frá Helga: "Fimm ára planið!" Helgi segir að þeir séu báðir öflugir skákmenn. Vignir sé stórkostlega hæfileikaríkur skákmaður og það sé mjög erfitt að eiga við hann við skákborðið. Hilmir sé mjög hugmyndaríkur skákmaður og baráttumaður. Helgi segir það mjög jákvætt við þá báða að þeir séu að leggja á sig mikla vinnu til að ná árangri. Hann er bjartsýnn á að þeir muni verða atvinnumenn í skák og nái að finna leiðir til að lifa af skáklistinni og að þeirra sé framtíðin. Þeir Vignir Vatnar og Heimir Freyr fóru síðan um víðan völl í mjög skemmtilegu viðtali. Þeir hafa frá mörgu að segja og stefna á að mæta í framhaldsþátt í næstu viku.

Feb 8, 20241h 3m

Ep 53Skákað í skjóli myrkurs: Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson

CAD-bræðurnir (Chess After Dark) Birkir Karl Sigurðsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Heimkaupum og Leifur Þorsteinsson viðskiptastjóri hjá Creditinfo eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni. Þeir eru báðir skákmenn frá barnsaldri, skákþjálfarar og hafa verið öflugir mótshaldarar undanfarið eitt og hálft ár. Þeir hafa meðal annars skipulagt og stjórnað mótum eins og Bankinn Bistro mótaröðinni þar sem há peningaverðlaun voru í boði, Íslandsmótinu í Fischer-slembiskák, Íslandsmótinu í Atskák sem haldið var á Selfossi, Arena mótaröðinni, hraðskákmóti á Ölveri í Glæsibæi og Sykursalnum. Ekki má gleyma Blush mótinu skemmtilega þar sem vinningshafar voru leystir út með miklu magni af vörum þessarar verslunar hjálpartækja ástarlífsins. Mótið gekk "smurt" fyrir sig eins og Róbert Lagerman skákstjóri hafði lofað fyrir keppni og voru pokar verðlaunahafa í lok móts stútfullir af smokkum, titrurum og gjafabréfum í verslunina.Hlaðvarpsþættir þeirra félaga, Chess After Dark, eru orðnir 153 að tölu og er hlaðvarpið orðið eitt stærsta og vinsælasta hlaðvarp landsins.

Jan 31, 202458 min

Ep 52Upphaf og framtíð skákarinnar: Friðrik Ólafsson og Guðmundur G. Þórarinsson á spjalli

Þátturinn Við skákborðið er að þessu sinni tvöfalt lengri en vanalega. Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar eru báðir fyrir löngu orðnir þjóðþekktir menn. Friðrik Ólafsson er fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák og var einn allra sterkasti skákmaður heims á sínum tíma. Hann er fyrrverandi forseti Alþjóðaskáksambandsins FIDE og fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis og því æðsti embættismaður þess. Guðmundur G. Þórarinsson er verkfræðingur og fyrrverandi alþingismaður. Hann var forseti Skáksambands Íslands þegar skákeinvígi aldarinnar var haldið í Laugardalshöll árið 1972 á milli þeirra Spasskís og Fischers.Efni þessa þáttar er fyrst og fremst skákin, eðli hennar og uppruni. Þróun skáklistarinnar og byltingarkenndar breytingar og kannski síðast en ekki síst þróun mannlegrar hugsunar. En hvað er skák og hvar er hún upprunnin? Kristján Örn dró sig að mestu í hlé og bað þá Friðrik og Guðmund um að taka spjall og skyggnast inní þessa hulinsheima listagyðjunnar. Í lok þáttarins syngur 7. heimsmeistarinn í skák (1957-1958), Vasily Smyslov lagið Stenka Razin (Volga, Volga) ásamt karlakórnum í Tilburg ("La Renaissance"). Skákborðið, platan og Staunton taflmennirnir á myndinni á milli þeirra Guðmundar og Friðriks er gjöf til Friðriks frá kúbanska byltingarleiðtoganum Fidel Castro eftir Ólympíuskákmótið í Havana á Kúbu árið 1966.

Jan 27, 20241h 26m

Ep 50Skák, uppþvottavélar og fjallajafntefli: Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA

Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í skákþætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þeir félagarnir fóru um víðan völl í spjalli sínu. Nöfn eins og Katrín Jakobsdóttir, Ásgeir Jónsson, Donald Trump, Gunnar Nelson og Mugison koma við sögu og hugtök eins og vísindi, íþróttir og viðskipti.Þeir Magnús og Kristján fóru inn á "hættulegar brautir" þegar þeir fóru að ræða ágreiningsmál í hjónaböndum. Hvenær á til dæmis að setja uppþvottavél af stað? Er það þegar hún er hálffull eða full? Magnús hefur mjög sterkar skoðanir á því. Er hægt að semja jafntefli við fjall? Er réttlætanlegt að tefla blindskák í kennslustundum? Á þessu hefur Magnús Pálmi einnig svör á reiðum hödum.

Jan 17, 202454 min

Ep 49Skákárið 2023: Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari

Ritstjórar www.skak.is, þeir Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Ingvar Þór Jóhanesson FIDE meistari kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar Elíassonar í vikulegan þátt hans Við skákborðið. Tilgangurinn var að fara lauslega og á léttu nótunum yfir skákárið 2023, bæði hér heim og erlendis, og að reyna að skyggnast aðeins inn í framtíðina, þ.e. skákárið 2024."Hvar er Ding Liren ríkjandi heimsmeistari í skák? Hann hefur ekki snert viðartaflmenn í 236 daga! Þessari spurningu ásamt mörgum öðrum er svarað í þættinum.

Jan 10, 20241h 1m

Ep 48Í minningu um Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags Reykjavíkur: Endurfluttur þáttur frá því 15. nóvember 2023

Í dag var aftur á dagskrá viðtal sem Kristján Örn Elíasson átti við Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags Reykjavíkur 15. nóvember 2023. Ríkharður lést 20. desember s.l. eftir skammvinn veikindi aðeins 56 ára að aldri. Jarðarför hans fór fram frá Grafarvogskirkju í dag að viðstöddu fjölmenni. Til minningar um Rikka, eins og hann var gjarnan kallaður af vinum sínum, var viðtalið aftur flutt í skákþættinum á Útvarpi Sögu í dag.(Repost E44 from Nov 15, 2023)

Jan 3, 202458 min

Ep 47Skákævintýri Omars Salama alþjóðlegs skákdómara og skákkennara

Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag var Omar Salama alþjóðlegur skákdómari, skákkennari og eigandi ferðaskrifstofunnar Kleopatra Tours. Omar er frá Egyptalandi en hann fæddist í borginni Alexandríu árið 1980. Þegar hann var 24 ára gamall fluttist hann til Íslands. Hann var varaforseti Skáksambands Íslands um tíma, kosinn framkvæmdastjóri Skáksambands Norðurlanda árið 2021 og sat í skákdómaranefnd Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) í 8 ár. Hann hefur gegnt fjölda starfa fyrir íslenska skákhreyfingu og fyrir alheimsskákhreyfinguna, verið vinsæll og eftirsóttur, og ferðast út um allan heim í störfum sínum. Í þættinum talar Omar um unga syni sína, Adam og Jósef, sem eru efnilegir skákmeistarar og skákstarfið á leikskólanum Laufásborg sem hann hóf fyrir nokkrum árum og margt annað áhugavert og skemmtilegt svo sem ferðalög um heimaland sitt, Egyptaland.

Dec 13, 202356 min

Ep 46Slembiskák: Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson

Skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Björnsson voru gestir Kristjáns Arnar í skákþætti hans Við skákborðið. Umræðuefnið var Fischer Random eða chess 960 sem á íslensku hefur hlotið nafnið slembiskák. Opinberu Íslandsmóti í slembiskák lauk um helgina með sigri stórmeistarans og stigahæsta skákmanns Íslands Hjörvars Steins Grétarssonar. Sigurbjörn og Magnús Pálmi voru á meðal keppenda og stóðu sig frábærlega, komust í undanúrslit og enduðu í 3. og 4. sæti á eftir alþjóðlega meistaranum Birni Þorfinnssyni sem hafnaði í 2. sæti.Magnús og Sigurbjörn fóru yfir helstu reglurnar í slembiskák, töluðu um sterkasta slembiskákmót allra tíma sem haldið verður í Þýskalandi í febrúar á nýju ári. Þar munu etja kappi átta af sterkustu skákmönnum heims en þeir eru: Magnus Carlsen Noregi (2830), Fabiano Caruana Bandaríkjunum (2794), Ding Liren Kína (2780), Alireza Firouzja Frakklandi (2763), Vincent Keymer Þýskalandi (2738), Nodirbek Abdusattorov Úsbekistan (2727), Levon Aronian Bandaríkjunum (2723) og Gukesh Dommaraju Indlandi (2720). Aldeilis elo-skákstigin á ferð þarna! Athygli vekur þó að núverandi heimsmeistari i slembiskák, en mótið fór fram í Reykjavík 2022, Hikaru Nakamura (2788) og fyrrverandi heimsmeistari í slembiskák Wesley So (2752) eru ekki á meðal keppenda. Bandaríkjamennirnir Nakamura og So eru skráðir #3 og #8 á stigalista FIDE yfir sterkustu skákmenn heims.Sú nýbreyttni varð að þessu sinni að hlustendum gafst kostur á að hringja inn í þáttinn og svara nokkrum "laufléttum" skákspurningum. Í verðlaun var bókin "Einvígi allra tíma" eftir Guðmund G. Þórarinsson en hann var forseti Skáksambands Íslands þegar heimsmeistaraeinvígi Spassky og Fischer fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík árið 1972.

Dec 6, 202356 min

Ep 45Fischer: "Keyrðu mig heim til Eugene Torre": Þorvarður Fannar Ólafsson skákmeistari og sölumaður hjá Myllunni

Kristján Örn Elíasson ræðir við Þorvarð Fannar Ólafsson skákmeistara og sölumann hjá Myllunni. Þorvarður bjó í Grindavík og lærði þar mannganginn ungur að árum eða þegar hann var aðeins 5 ára gamall. Í fyrstu tefldi hann aðallega í heimahúsum við ættingja og vini. Blómlegt skáklíf var í Grunnskóla Grindavíkur á þessum tíma og fljótlega varð Þorvarður meðal sterkustu skákmanna skólans. Hann varð skólameistari í skák árin 1984, 1985 og 1986. Sigurinn gaf honum þátttökurétt í Gullbringu-sýslumótinu sem Þorvarður nýtti sér með góðum árangri. Þeir félagarnir fóru um víðan völl í spjalli sínu, m.a. yfir hálfan hnöttinn þar sem þeir lentu á Filippseyjum árið 2009. Þar tók Þorvarður þátt í að kaupa borð, stóla og töfl fyrir nokkra skákáhugamenn sem stofnuðu skákfélag sem hefur vaxið og dafnað allar götur síðan. Þorvarður hefur reglulega heimsótt klúbbinn, tekið þátt í skákmótum en hann segir að hann hafi aldrei teflt við jafn marga sterka stigalausa skákmenn.Slóð á skákfélagið á Filippseyjum San Carlos-Negros Chess Club

Nov 23, 20231h 0m

Ep 44Ríkharður Sveinsson formaður Taflfélags Reykjavíkur og alþjóðlegur skákdómari

Ríkharður Sveinsson formaður Taflfélags Reykjavíkur og alþjóðlegur skákdómari settist Við skákborðið að þessu sinni. Ríkharður sagði frá stofnun taflfélagsins og starfsemi þess en TR er elsta og eitt virkasta skákfélag landsins, stofnað laugardaginn 6. október 1900 og því 123 ára.Af vefsíðu Taflfélags Reykjavíkur:Upphafið að stofnun Taflfélags Reykjavíkur kom frá Danmörku eins og svo margt annað gott á þessum tíma. Þar hafði Pétur Zóphóníasson stundað nám og kynnst starfsemi danskra taflfélaga. Hann sneri nú heim sumarið 1900 og ákvað að láta á reyna hvort hægt væri að stofna taflfélag í Reykjavík. Pétur Zóphóníasson hóf nú að smala saman skákáhugamönnum í Reykjavík og leitað fyrst til móðurbróður síns, Sturlu Jónssonar kaupmanns, sem var ágætur skákmaður. Fleiri bættust í hópinn, m.a. Sigurður Jónsson fangavörður en skák var nokkuð tefld í fjölskyldu hans.Að lokum var ákveðið að láta „tafllista” liggja frammi á vel völdum stöðum í borginni. Nú skyldi reyna á hvort áhugi væri fyrir stofnun taflfélags í Reykjavík. Hinn 2. október 1900 rituðu forsvarsmennirnir þrír, Pétur, Sigurður og Sturla, auglýsingu og sendu í blöðin. Þar var stofnun T.R. auglýst og áhugasamir menn beðnir að mæta til skráningar.Stofnfundur T.R. fór fram 6. október 1900 í „húsi Jóns Sveinssonar” trésmiðs í Pósthússtræti 14b á horni Kirkjustrætis. Þar rak dóttir Sigurðar Jónssonar fangavarðar, sem varð fyrsti formaður félagsins, kaffiteríu og leyfði skákmönnum að nota aðstöðuna til skákiðkunar.Stofnfélagar Taflfélagsins voru 29 talsins, flestir úr „efri millistétt” en þeir voru:Sigurður Jónsson fangavörðurPétur Zóphóníansson gagnfræðingurSturla Jónsson kaupmaðurPétur Pétursson bæjargjaldkeriFriðrik Jónsson kaupmaðurEinar Benediktsson athafnamaður og skáldBjörn M. Ólsen rektorIndriði Einarsson assessor og skáldJakob Jónsson verslunarstjóriIngvar Pálsson kaupmaðurHelgi Helgason verslunarstjóriJúlíus Guðmundsson kaupmaðurPétur Bogason læknirSkúli Bogason læknirSturla Guðmundsson cand. phil.Sigurður Guðmundsson presturJens Waage bankastjóriÁgúst Sigurðsson prentariPétur G. Guðmundsson prentiðnmaðurÓlafur Björnsson ritstjóriSigurjón Jónsson framkvæmdastjóriÞórður Sveinsson læknirBaldur Sveinsson blaðamaðurMagnús Magnússon skipstjóriLudvig Andersen heildsaliog fjórir aðrirFyrsta stjórn félagsins var skipuð eftirfarandi:Sigurður Jónsson formaðurSturla Jónsson gjaldkeriPétur Zóphóníasson ritari

Nov 15, 202358 min

Ep 43Skákdeild Fjölnis: Helgi Árnason formaður og Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari

Að þessu sinni settist Við skákborðið hjá Kristjáni Erni Elíassyni Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla. Helgi segir að hann hafi fyrst og fremst tengst skákinni í gegnum skólastarf og þá mest eftir að hann tók við starfi skólastjóra við Rimaskóla sem hann gengdi í 26 ár en skólinn var stofnaður árið 1993. Á tíu ára afmæli skólans árið 2003 urðu skáksveitir skólans Íslandsmeistarar bæði í stúlknaflokki og opnum flokki en Helgi segir að skólinn hafi verið með skákstarf frá upphafi og þá aðallega í gegnum tómstundastarf hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur (ÍTR). Afraksturinn kom því fljótlega í ljós en á fyrsta borði tefldi Hjörvar Steinn Grétarsson, nú stigahæsti skákmaður landsins, þá aðeins 9 ára gamall. Sigurbjörn Björnsson FIDE meistari og liðsmaður skáksveitar Fjölnis í efstu deild á Íslandsmóti skákfélaga kom svo símleiðis inn í miðjan þáttinn og ræddi við þá Helga og Kristján Örn. Umræðuefnið var meða annars fjölmennt, skemmtilegt og sterkt tveggja daga atskákmót taflfélaga sem lauk í Taflfélagi Reykjavíkur í gærkvöldi með sigri Víkingaklúbbsins og Íslandsmót skákfélaga en skáksveit Fjölnis trjónir þar nú eitt liða á toppnum með fullt hús stiga eftir að fyrri hluta keppninnar hefur farið fram. Ljóst er að baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður á milli skákdeildar Fjölnis, Taflfélags Reykjavíur og Víkingaklúbbsins en síðari hluti keppninnar verður tefldur dagana 29. febrúar til 3. mars á næsta ári.

Nov 8, 202349 min

Ep 425 ára planið: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni. Margt hefur drifið á daga íslenskra skákmanna að undanförnu og margt spennandi er á dagskrá næstu vikurnar sem þeir Helgi og Kristján Örn fóru yfir í þættinum.Má þar nefna að í dag hefði Hrafn Jökulsson rithöfundur, blaðamaður og skákfrömuður orðið 58 ára gamall en hann lést á síðasta ári. Vinaskákfélagið heldur glæsilegt hraðskákmót að Aflagranda 40 í Reykjavík síðar í dag til minningar um Hrafn og hafa flestir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar sem eru á landinu boðað þátttöku sína. Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, mun leika fyrsta leikinn fyrir Hjörvar Stein Grétarsson stórmeistara á efsta borði.Helgi sagði frá athyglisverðri og stórskemmtilegri grein sem hann skrifaði í síðasta tölublað Tímaritsins Skák sem hann kallar "5 ára planið" með undirfyrirsögninni "Reynslusaga miðaldra stórmeistara af endurkomu í skákheiminn". Í lok greinarinnar segir hann að aðalatriðið sé að vinna í að bæta ákvarðanir sínar og finna leiðir til að skapa erfiðleika fyrir andstæðinginn, að taka skynsamlegar ákvarðanir. Á þann hátt sé líklegast að maður hámarki árangur sinn á hverjum tíma. Annað sem þeir félagar ræddu var staðan á Íslandsmóti skákfélaga 2023-2024 sem nú er hálfnað, frábæran árangur Birkis Hallmundarsonar á HM í flokki 10 ára barna og yngri, nýlokinni sterkri mótaröð Bistro-banka í Mosfellsbæ þar sem peningaverðlaun voru ein milljón króna á glæsilegu lokamóti, Uppsala unglingamótið, Hannes Hlífar á HM 50 ára og eldri, Ofurmótið á eyjunni Mön, EM landsliða sem er fram undan og margt fleira áhugavert og skemmtilegt.

Nov 1, 202359 min

Ep 41Áform um lagasetningu: Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands

Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Aðalumræðuefni þáttarins var áform Mennta- og barnamálaráðuneytisins um lagasetningu en frumvarp um ný heildarlög í skák hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðuneytið telur að gildandi lög hafi valdið vandkvæðum við túlkun í framkvæmd og að svo virðist sem lögin hafi ekki nægilega tryggt að íslenskir skákmenn nái árangri í greininni. Verði af samþykkt frumvarpsins verða tveir lagabálkar felldir á brott, þ.e. lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990 og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, og nýr lagabálkur kemur í þeirra stað. Í áformum ráðuneytisins um lagasetninguna er þess jafnframt getið að ákveðnir þættir í gildandi lögum falli ekki nægilega vel að nútíma stjórnsýsluuppbyggingu og að óvenjulegt sé að ítarleg sjálfstæð löggjöf fjalli um skóla sem rekin er af frjálsum félagasamtökum, þ.e. Skáksambandi Íslands.

Oct 25, 202359 min

Ep 40Birnukaffi: Ólafur Ásgrímsson alþjóðlegur skákdómari og Birna Halldórsdóttir

Gestir Kristjáns Arnar í skákþættinum Við skákborðið að þessu sinni voru hjónin Ólafur Ásgrímsson, alþjóðlegur skákdómari og fyrrverandi bankastarfsmaður og Birna Halldórsdóttir umsjónarmaður veitinga hjá Taflfélagi Reykjavíkur og fyrrverandi stuðningsfulltrúi hjá grunnskólum Reykjavíkur. Þau hafa bæði starfað í skákhreyfingunni í tugi ára, eru vinsæl og öllum þykir vænt um þau.

Oct 18, 202354 min

Ep 39Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson og Björn Ívar Karlsson

Gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni í þættinum Við skákborðið voru þeir Gauti Páll Jónsson og Björn Ívar Karlsson. Gauti Páll er ritstjóritímaritsins Skákar og varaformaður Taflfélags Reykjavíkur. Björn Ívar er skákkennari, fyrrum landsliðsþjálfari kvenna og með þjálfaragráðu frá Alþjóða skáksambandinu FIDE. Einnig situr Björn í ritnefnd tímaritsins Skákar. Aðalumræðuefni þáttarins var nýútkomið tölublað tímaritsins Skákar en um er að ræða þriðja blaðið í þeirri útgáfu sem hóf göngu sína árið 2022. Einnig var rætt um Íslandsmót skákfélaga sem hefst á morgun í Rimaskóla en keppt er í fimm deildum og eru keppendur á öllum aldri og allt frá byrjendum til stórmeistara. Í þættinum var víðar skotið niður fæti enda hefur margt verið í gangi hjá íslenskum skákmönnum að undanförnu, bæði hér heima og á erlendri grundu.

Oct 11, 202356 min

Ep 38Sigurbjörn J. Björnsson FIDE meistari segir frá Garry Kasparov - seinni hluti

Sigurbjörn J. Björnsson var gestur þáttarins að þessu sinni. Þátturinn er seinni þáttur í umfjöllun um Kasparov með áherslu á einvígin hans við Karpov en þeir tefldu 5 einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák á árunum 1984-1990. Sigurbjörn fór yfir einvígi númer þrjú, fjögur og fimm í þættinum. Einnig var komið inn á vináttu Karpovs og Kasparovs, seinni einvígi Kasparovs gegn þeim Short, Anand og Kramnik, tveggja einvígja við Deep Blue, aðskilnaðinn við FIDE, andstöðu Kasparovs við Pútin í gegnum árin og margt fleira.

Oct 4, 202356 min

Ep 37Víkingaklúbburinn - Gunnar Freyr og Björn Þorfinnsson

Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins, sjúkraliði og ráðgjafi og Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari í skák og ritstjóri DV voru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Gunnar sagði frá aðdraganda að stofnun Víkingaklúbbsins en upphafið var að nokkrir félagar ákváðu að hittust tvisvar á ári í heimahúsi og tefla svokallaða Víkingaskák en þetta var árið 2003. Hvatamaður þessarar hugmyndar var Magnús Ólafsson hugvitsmaður sem fann upp Víkingaskákina árið 1967. Margir höfuð teflt Víkingaskák áður og var meðal annars hópur manna á Ísafirði sem hittist einu sinni á ári og héldu svokallað alheimsmeistaramót. Gunnar nefndir nöfn þeirra Hrafns Jökulssonar og Gylfa Ólafssonar sem orðið hafa alheimsmeistarar en þeir hafi verið fleiri sem hampað hafa titlinum. Þeir félagarnir ræddu um Víkingaklúbbinn, góða félaga og sterka skákmenn klúbbsins og að skáksveit Víkingaklúbbsins hafi fimm sinnum orðið Íslandsmeistari félagsliða í skák. Þeir segja frá skákferðalögum en Víkingaklúbburinn hefur margoft tekið þátt í Evrópumóti taflfélaga. Björn segir skemmtilegar sögur, eins og honum er einum lagið, m.a. söguna frá Makedóníu þar sem honum var "hent" úr landi.

Sep 27, 202351 min

Ep 36Þorsteinn Þorsteinsson FIDE meistari - Sögur úr íslenskri skákhreyfingu fyrri hluti

Þorsteinn Þorsteinsson, FIDE meistari, ritstjóri Hagstofu Íslands og fyrrverandi markaðsstjóri RÚV var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þessi þáttur er sá fyrri af tveimur fyrirhuguðum en í þáttunum segir Þorsteinn frá sjálfum sér og samferðarmönnum sínum. Hann segir skemmtilegar sögur af Benóný Benediktssyni, sterkum karakter sem fæddist árið 1918, en hann var öflugur og mjög frumlegur skákmaður sem batt ekki bagga sína sömum hnútum og samferðarmenn hans. Benóný gladdi marga með skemmtilegum tilsvörum og hnyttnum vísum og hagyrðingur var hann góður og hafsjór fróðleiks. Þorsteinn nefnir fólk eins og Ríkharð Sveinsson, Ólaf Ásgrímsson og Birnu Halldórsdóttur og segir að þetta sé allt fólk sem hafi fórnað ótal stundum af lífi sínu fyrir skákina og að það sé einmitt svona fólk sem vinni verk sín á bak við tjöldin sem sé svo mikilvægt fyrir skákhreyfinguna. Þorsteinn talar um "mömmusyndrómið" og að það eigi einmitt við um þetta fólk. "Mamma eldar, mamma þrífur og heldur heimilinu gangandi án þess að nokkur taki sérstaklega eftir því. En ef mamma hættir að vinna þessi verk finna allir fyrir því og taka eftir því að hún er í raun ómissandi," segir Þorsteinn.

Sep 20, 202352 min

Ep 35Sigurbjörn J. Björnsson FIDE meistari segir frá Garry Kasparov - fyrri hluti

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þætti hans Við skákborðið á Útvarpi Sögu. Þessi þáttur er sá fyrri af tveimur fyrirhuguðum en í þáttunum fjallar Sigurbjörn um Garry Kasparov sem varð yngsti heimsmeistari sögunnar aðeins 22 ára gamall árið 1985 með sigri yfir þáverandi heimsmeistara Anatoly Karpov. Kasparov var heimsmeistari í 15 ár samfleytt eða þar til hann tapaði einvígi við Vladimir Kramnik árið 2000.

Sep 13, 202353 min

Ep 34Á meðal allra sterkustu skákmanna heims - Stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson

Gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið að þessu sinni eru tveir af okkar sterkustu og þekktustu skákmeisturum. Þeir voru á sínum tíma á meðal allra sterkustu skákmanna heims. Þetta eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson.Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Friðrik er eini íslenski skákmeistarinn sem lagt hefur Bobby Fischer að velli – ekki einu sinni heldur tvisvar! Árið 1980, þegar Friðrik var 45 ára gamall og var hálfnaður með kjörtímabil sitt sem forseti FIDE var honum boðið að taka þátt í afar sterku skákmóti í Buenos Aires í Argentínu. Meðal keppenda var þáverandi heimsmeistari Anatoly Karpov, Larsen, Timman, Ljubojevic, Najdorf og fleiri sterkir skákmenn. Friðrik var ekki að tvínóna við hlutina heldur sigraði heimsmeistarann, sjálfan Antoly Karpov. Slíkt hafði aldrei áður gerst í sögu FIDE, né hefur það gerst síðar, að forseti heimssambandsins hafi lagt ríkjandi heimsmeistara í kappskák. Í afmælisgrein á vefsíðu Alþjóða skáksambandsins árið 2020 þegar Friðrik varð 85 ára segir að þarna hafi Friðrik bætt enn einu glæsilega höfuðleðrinu í stórt safn sitt sem hann átti fyrir.Jóhann Hjartarson er sá íslenskra skákmanna sem mestum frama hefur náð í skákinni að Friðriki Ólafssyni frátöldum. Með sigri á millisvæðamóti árið 1987 komst hann áfram í undankeppni heimsmeistaramótsins sem haldin var í Kanada árið eftir. Þar tefldi hann einvígi við Viktor Kortsnoj, einn sterkasta skákmann heims á þeim tíma, en Kortsnoj var jafnan kallaður hinn grimmi af kollegum sínum enda tefldi hann ekki til þess að eignast vini. Kortsnoj beitti ýmsum brögðum til að koma ungum andstæðingi sínum úr jafnvægi en hafði ekki erindi sem erfiði - Jóhann sigraði! Jóhann er yfirlögfræðingur Íslenskrar erfðagreiningar.

Sep 6, 202354 min

Ep 33Hvað er að gerast í skákheiminum? - Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákfréttaritari

Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákfréttaritari kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um það helsta sem er að gerast í skákheiminum í dag, nýjustu fréttir, bæði hér heima og erlendis. Þeir fjölluðu um nýlokið heimsbikarmót þar sem fyrrverandi heimsmeistari stóð uppi sem sigurvegari, heimsmeistaramót liða í Þýskalandi, sátt í stóra svindlmálinu þar sem Magnus Carlsen ásakaði Hans Niemann um að hafa svindlað gegn sér á Sinquefield skákmótinu í fyrra, nýkjörna formenn hjá nokkrum íslenskum skákfélögum, félagaskipti nokkurra sterkra leikmanna til Taflfélags Vestmannaeyja, Áskorendaflokk sem nú stendur yfir í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeninu og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

Aug 30, 202357 min

Ep 32Áskell Örn Kárason formaður Skákfélags Akureyrar og alþjóðlegur meistari í skák

Áskell Örn Kárason, formaður Skákfélags Akureyrar og alþjóðlegur meistari í skák er á símalínunni og talar frá Akureyri við Kristján Örn Elíasson í þætti hans Við skákborðið. Þetta er virkilega skemmtilegt viðtal þar sem Áskell segir frá starfi Skákfélags Akureyrar, hvernig það gangi að halda uppi skáklífi á landsbyggðinni, kennslu í grunnskólum bæjarins síðustu árin, ferðum á Ólympíumót, hvernig hann varð alþjóðlegur meistari í skák og mörgu öðru sem gaman er að.

Aug 23, 20231h 0m

Ep 31Halldór Grétar Einarsson, Bolvíkingur, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks

Halldór Grétar Einarsson, Bolvíkingur, FIDE meistari og stofnandi skákdeildar Breiðabliks kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um skákuppeldi Halldórs í Bolungarvík, Daða Guðmundsson mentor skákarinnar í Bolungarvík, afmælismót Daða en hann varð áttræður í sumar, helstu þjálfara Íslands í skák að mati Halldórs, formúluna að ala upp unga skákmenn, stefnu í málefnum afreksfólks undir 25 ára (U25), skákstarfið í Breiðablik, skákgolf og margt fleira.

Aug 16, 20231h 1m

Ep 30Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák - Glæsileg mótahrina hjá Helga í sumar

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák og fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti. Helgi varð heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri aðeins 17 ára gamall árið 1994. Helgi Áss sagði frá magnaðri sigurgöngu sinni á sterku Czech Open skákmótinu í Pardubice sem lauk í lok júlí og einnig frá öðru móti á Leca Chess Open í Porto í Portúgal sem er nýlokið en þar stóð Helgi sig einnig mjög vel. Glæsileg mótahrina hjá Helga í sumar!

Aug 9, 202357 min

Ep 29Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og skákblaðamaður

Ingvar Þór Jóhannesson, FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu um skákmál líðandi stundar, s.s. taflmennsku Íslendinga erlendis í sumar, heimsbikarmótið í Bakú þar sem flestir sterkustu skákmenn heims sitja að tafli, nýjan stigalista frá Alþjóða skáksambandinu og margt fleira. Þeir minntust látins félaga en Alþjóðlegi skákmeistarinn Sævar Jóhann Bjarnason lést síðastliðinn laugardag eftir langvarandi veikindi. Sævar er líklega sá íslenski skákmaður sem hefur teflt flestar reiknaðar kappskákir.

Aug 2, 202352 min

Ep 28Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS ræðir um skákfjölskyldu sína

Kjartan Briem framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans ,,Við skákborðið". Kjartan á sæti í landsliðsnefnd Skáksambands Íslands og er faðir þriggja efnilegra skákungmenna, þeirra Stepans Briem, Benedikts Briem og Guðrúnar Fanneyjar Briem. Kjartan sagði frá íþróttaferli sínum en hann var Íslandsmeistari í borðtennis og keppti með tveimur kynslóðum í landsliði Íslands. Hann spilaði yfir 100 landsleiki á ferlinum. Kjartan talaði um föður sinn, Stefán Briem, sem var öflugur skákmaður og sagði frá börnunum sínum þremur sem öll eru mikið í þróttafólk bæði á sviði skáklistarinnar og knattspyrnunnar.

Jul 26, 202359 min

Ep 27Garðar Sverrisson rithöfundur og nánasti vinur Bobby Fischers - Seinni hluti

Annan miðvikudaginn í röð ræðir Kristján Örn Elíasson við Garðar Sverrisson, rithöfund og nánasta vin Bobby Fischer á Íslandi. Er þetta í fyrsta sinn sem Garðar ræðir opinberlega um Bobby og nána vináttu þeirra síðustu þrjú árin sem Bobby lifði. Í þáttunum koma fram nýjar upplýsingar um Bobby, æsku hans í New York, viðkvæm fjölskyldumál, sigra og mótlæti, allt frá njósnum til pólitískrar útlegðar. Í þessum viðtölum segir Garðar frá fjölmörgum skemmtilegum atvikum í bland við átakanlega reynslu Bobbys af útlegðinni frá Bandaríkjunum, alvarlegum veikindum og dauðastríði. Þá segir hann í fyrsta skipti frá því sem gerðist á bak við tjöldin þegar Ísland kom Bobby til bjargar og því fjarðrafoki sem varð í aðdraganda útfarar hans.

Jul 19, 202352 min

Ep 26Garðar Sverrisson rithöfundur og nánasti vinur Bobby Fischers - Fyrri hluti

Garðar Sverrisson rithöfundur var nánasti vinur Bobby Fischers síðustu árin sem hann lifði. Í þættinum ræðir Garðar við Kristján Örn um Bobby vin sinn og sýnir Fischer í alveg nýju ljósi: mannlegan, nærgætinn og vinalegan. Órafjarri ímyndinni um sturlaðan snillinginn eða heiftúðuga ofstækismanninn. Frásögn Garðars veitir nýja innsýn í þann flókna perónuleika sem duldist að baki goðsögninni. Garðar skrifaði bókina "Yfir farinn veg með Bobby Fischer" og segir Edward Winter, þekktur rithöfundur og skákblaðamaður, í umsögn sinni um bókina: "Óvenju upplýsandi og grípandi verk sem ber af öllum þeim fjölda bóka sem skrifaðar hafa verið um Fischer. Á meðan nafn hans lifir verður þessi bók lesin af brennandi áhuga og til hennar vitnað."

Jul 12, 202358 min

Ep 25Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra - Afmælishátíð Fischersetursins

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra kom í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Hann talaði um Bobby Fischer, Friðrik Ólafsson og fyrirhugaða skákhátið á Selfossi um næstu helgi í tengslum við 10 ára afmæli Fischersetursins. Guðni sagði frá hvenær og hvernig áhugi hans á skák hefði kviknað, kynni hans af skáklífinu á Suðurlandi, sterkum skákmönnum í Hraungerðishreppi, á Stokkseyri og á Alþingi. Einnig greindi Guðni frá að pólitísk andstaða hefði verið innan ríkisstjórnarinnar og á meðal æðstu embættismanna um að bjóða Bobby Fischer dvalarleyfi á Íslandi. Hann talaði um dramtíska eftirmála sem þeirri ákvörðun fylgdi en Fischer var veittur íslenskur ríkisborgararéttur þann 22. mars 2005. Guðni telur að sú ákvörðun Alþingis hafi m.a. stuðlað að fyrirvaralausu brotthvarfi varnarliðsins á Miðnesheiði þann 30. september 2006. Margt fleira áhugavert og skemmtilegt kom fram í tali þeirra Guðna og Kristjáns Arnar.

Jul 5, 202351 min

Ep 24Björn Ívar Karlsson FIDE meistari og skákþjálfari í skemmtilegu skákspjalli

Björn Ívar Karlsson, FIDE-meistari og skákþjálfari, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans ,,Við skákborðið". Hann sagði frá ýmsu eftirminnilegu á skákferli sínum og ferðalagi um heiminn, rottugangi í Moskvu, týndum farangri og strangri öryggisgæslu í Bakú, ráni í Búdapest, hnitmiðuðum undirbúningi á heimsmeistaramóti ásamt ýmsu öðru. Hann sagði frá kynnum sínum af þekktum skákmeisturum og kynlegum kvistum í gegnum tíðina og kom einnig inn á starf sitt við beinar útsendingar og tæknimál fyrir Skáksambandið.

Jun 28, 20231h 2m

Ep 23Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Björn Ívar Karlsson ræða stöðu stúlkna og kvenna í skák og skákþjálfun barna og unglinga

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, varaforseti Skáksambands Íslands og landsliðskona í skák og Björn Ívar Karlsson FIDE meistari, skákþjálfari og fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna í skák kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Þau ræddu stöðu stúlkna og kvenna í íslenskri skákhreyfingu, skákþjálfun barna og unglinga bæði í grunnskólum og hjá skákfélögunum sjálfum og fóru inn á mikilvægi þess að skapa aðstæður þar sem allir geti greint frá atburðum, myndað vinasambönd, og tjáð tilfinningar sínar og hugsanir - þannig yrði framtíðin ávallt björt í íslensku skáklífi.

Jun 21, 20231h 1m

Ep 22Valbjörn Jónsson og Björgvin Víglundsson - krafa um skýrari stefnu um ráðstöfun fjármuna í skákhreyfingunni

Valbjörn Jónsson, stöðvarstjóri heilsuræktarstöðvarinnar World Class í Árbæ, fyrrverandi bakari og fyrrverandi Íslandsmeistari í vaxtarrækt og Björgvin Víglundsson skákmeistari og byggingaverkfræðingur kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Þeir félagar og frændur töluðu um stórmeistarann Vignir Vatnar og trú þeirra á að hann hafi bæði vilja og getu til að ná langt í skákinni. Þeir segja að skákhreyfingin þurfi að standa betur við bakið á barna- og unglingastarfi en gert er. Þeir ræddu styrktarsjóð Sigtryggs Sigurðssonar glímukappa og að skoða þurfi betur hvernig fjármunum skákhreyfingarinnar sé ráðstafað. Val Skáksambands Íslands á landslið kom til tals, kallað var eftir skýringum sambandsins á fjarveru stórmeistarans Héðins Steingrímssonar í landsliðinu mörg undanfarin ár en hann hefur lengi verið á meðal sterkustu stórmeistara Íslendinga. Þeir ræddu um áherslubreytingar varðandi laun stórmeistara, öflugt starf eldri skákmanna, skákmót í Breiðfirðingabúð hér á árum áður og margt fleira.

Jun 14, 202356 min

Ep 21VignirVatnar.is - Benedikt Briem og Vignir Vatnar kíktu í skemmtilegt spjall

Ungu vinirnir Vignir Vatnar Stefánsson, nýjasti stórmeistari okkar Íslendinga og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák, og hinn efnilegi skákmaður og "tæknigúru" Benedikt Briem kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Félagarnir sögðu m.a. frá nýrri vefsíðu sem þeir eru að setja í loftið í næstu viku á léninu www.vignirvatnar.is. Á vefsíðunni verður boðið upp á nokkur hundruð kennslumyndbönd í skák og verða þau öll á íslensku. Einning ræddu þeir um Íslandsmótið í skák sem lauk fyrir hálfum mánuði, íþróttir, framgöngu ungra og efnilegar stúlkna í skák, framtíðarsýn þeirra félaga um skipan landsliðsmála, "Briem-vélina" og margt annað hresst og skemmtilegt.

Jun 7, 202353 min

Ep 20Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák - síðari hluti

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þessi þáttur er sá síðari af tveimur þáttum. Þeir félagarnir ræddu m.a. um Íslandsmótið í skák sem er nýlokið en sérstaka úrslitakeppni þriggja efstu manna þurfi til að skera úr um sigurvegara, ferðalag Sigurbjörns til Belgrad í Serbíu þar sem hann var liðsstjóri Íslendinga á sérstöku Ólympíumóti 16 ára og yngri, áhrif skákar á dægurmenningu á Íslandi, EM taflfélaga, einvígi Mikail Tals og Mikhail Botvinnik um heimsmeistaratitilinn í skák og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

May 31, 202355 min

Ep 19Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák - fyrri hluti

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu m.a. um þróun skákarinnar frá 1990 og til dagsins í dag, einvígi Jóhanns Hjartarsonar við Viktor Korchnoi árið 1988, Skákþing Reykjavíkur og umgjörð þess, skákferðalög Sigurbjörns um Evrópu og Asíu, mót í Pardubice og Olomouc í Tékklandi, knattspyrnuleiki skákmanna á skákmótunum erlendis og margt annað fróðlegt og skemmtilegt

May 23, 202353 min

Ep 18Bragi Halldórsson fyrrverandi kennari við Mennaskólann í Reykjavík, íslenskufræðingur, þýðandi og skákbókahöfundur

Kristján Örn Elíasson fær til sín Braga Halldórsson fyrrverandi kennara við Menntaskólann í Reykjavík, íslenskufræðing, þýðanda og skákbókahöfund. Þær félagarnir ræða skákferil Braga, störf hans fyrir skákhreyfinguna, samferðamenn og margt fleira.

May 17, 202354 min

Ep 17Tryggvi Leifur Óttarsson og Ingvar Þór Jóhannesson skákblaðamaður

Gestir skákþáttarins eru þeir Tryggvi Leifur Óttarsson formaður Taflfélags Snæfellsbæjar (og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskimarkaðar Íslands nú búsettur í Svíþjóð) og Ingvar Þór Jóhannesson og landsliðsþjálfari kvenna í skák. Farið verður yfir fjölmennt og vel skipað minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason sem fram fór í Ólafsvík um síðustu helgi. Einnig verður Íslandsmótinu í skák, sem hefst á mánudaginn næstkomandi, gerð góð skil en mótið í ár verður eitt það sterkasta í sögu Íslandsmótanna. Af tólf keppendum eru átta stórmeistarar en þeirra á meðal er Hannes Hlífar Stefánsson sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák.

May 10, 202356 min

Ep 16Oddgeir Ágúst Ottesen yfirþjálfari skákdeildar KR

Kristján Örn Elíasson fær til sín Oddgeir Ágúst Ottesen yfirþjálfara skákdeildar KR og ræða þeir m.a. um barna- og unglingastarfið hjá KR, skákhátíðina miklu á Selfossi 2019 þar sem 10 fyrrum heimsmeistarar teflu í lokuðum flokki, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem er nýlokið en því lauk laugardaginn 29. apríl sl. og fleira áhugavert.

May 3, 202356 min

Ep 15Magnús Pálmi Örnólfsson og Guðmundur Magnús Daðason

Bolvíkingarnir og skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson hagfræðingur MBA og Guðmundur Magnús Daðason sjávarútvegsfræðingur voru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið í dag

Apr 26, 202353 min

Ep 14Bræðurnir og skákmeistararnir Bragi og Björn Þorfinnssynir koma í heimsókn

Kristján Örn fær til sín bræðurna Braga og Björn Þorfinnssyni en þeir eru sterkustu skákbræður Íslands. Bragi er stórmeistari og Björn er alþjóðlegur meistari í skák. Þeir ræða um unglingsárin sín í skákinni, koma aðeins inn á Reykjavíkurskákmótið, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem er nýhafið í Astana Kasakstan, ferðir á Ólympíumót, fyrirkomulag landsliðsflokks í skák og fleira áhugavert.

Apr 19, 202359 min

Ep 13Reykjavíkurskákmótið og heimsmeistaraeinvígið - Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák

Kristján Örn fær til sín Ingvar Þór Jóhannesson aðstoðarmótsstjóra nýlokins Reykjavíkurskákmóts, FIDE meistara og landsliðsþjálfara kvenna í skák. Þeir ræða um Reykjavíkurskákmótið, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem nýhafið er í Astana Kasakstan, ferðir á Ólympíumót, kvennaskák á Íslandi og fleira.

Apr 12, 202353 min