
Nýr formaður Taflfélags Reykjavíkur: Ingvar Þór Jóhannesson og Gauti Páll Jónsson
Við skákborðið · Útvarp Saga
Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Nýr formaður Taflfélags Reykjavíkur, Ingvar Þór Jóhannesson og fráfarandi formaður félagsins, Gauti Páll Jónsson eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum.
Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur var haldinn í síðustu viku en þá voru m.a. gerðar þær breytingar á stjórn félagsins að Gauti Páll Jónsson, fráfarandi formaður, vék úr aðalstjórn í varastjórn og Ingvar Þór tók við formennsku. Gauti Páll hafði áður tekið við formennsku í desember 2023 þegar Ríkharður Sveinsson þáverandi formaður féll frá. Á fundinum var Hermann Ragnarsson gerður að heiðursfélaga Taflfélags Reykjavíkur fyrir störf sín í þágu félagsins. Þeir Ingvar Þór og Gauti Páll ræddu um starfsemi félagsins í vetur og mótahald sem er fram undan. Myndarlega verður staðið að Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2024 en það verður tileinkað minningu Ríkharðs. Eins og svo oft áður í þessum skákþáttum var farið um víðan völl í spjalli um íslenskt skáklíf, talað um skákviðburði og sagðar skákfréttir.