
Áform um lagasetningu: Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands
Við skákborðið · Útvarp Saga
Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Aðalumræðuefni þáttarins var áform Mennta- og barnamálaráðuneytisins um lagasetningu en frumvarp um ný heildarlög í skák hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðuneytið telur að gildandi lög hafi valdið vandkvæðum við túlkun í framkvæmd og að svo virðist sem lögin hafi ekki nægilega tryggt að íslenskir skákmenn nái árangri í greininni. Verði af samþykkt frumvarpsins verða tveir lagabálkar felldir á brott, þ.e. lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990 og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, og nýr lagabálkur kemur í þeirra stað. Í áformum ráðuneytisins um lagasetninguna er þess jafnframt getið að ákveðnir þættir í gildandi lögum falli ekki nægilega vel að nútíma stjórnsýsluuppbyggingu og að óvenjulegt sé að ítarleg sjálfstæð löggjöf fjalli um skóla sem rekin er af frjálsum félagasamtökum, þ.e. Skáksambandi Íslands.