PLAY PODCASTS
Skákævintýri Omars Salama alþjóðlegs skákdómara og skákkennara
Episode 47

Skákævintýri Omars Salama alþjóðlegs skákdómara og skákkennara

Við skákborðið · Útvarp Saga

December 13, 202356m 37s

Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.

Show Notes

Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag var Omar Salama alþjóðlegur skákdómari, skákkennari og eigandi ferðaskrifstofunnar Kleopatra Tours. Omar er frá Egyptalandi en hann fæddist í borginni Alexandríu árið 1980. Þegar hann var 24 ára gamall fluttist hann til Íslands. Hann var varaforseti Skáksambands Íslands um tíma, kosinn framkvæmdastjóri Skáksambands Norðurlanda árið 2021 og sat í skákdómaranefnd Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) í 8 ár. Hann hefur gegnt fjölda starfa fyrir íslenska skákhreyfingu og fyrir alheimsskákhreyfinguna, verið vinsæll og eftirsóttur, og ferðast út um allan heim í störfum sínum. Í þættinum talar Omar um unga syni sína, Adam og Jósef, sem eru efnilegir skákmeistarar og skákstarfið á leikskólanum Laufásborg sem hann hóf fyrir nokkrum árum og margt annað áhugavert og skemmtilegt svo sem ferðalög um heimaland sitt, Egyptaland. 

Topics

skákspjallviðtölskákfréttir