
Íslandsmót skákfélaga og Reykjavíkurskákmótið: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson
Við skákborðið · Útvarp Saga
Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru FIDE meistararnir Sigurbjörn Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks. Þeir ræddu um nýafstaðið Íslandsmót skákfélaga en lið þeirra urðu sigurvegarar úrvalsdeildar og 1. deildar. Firnasterk skákdeild Fjölnis varð Íslandsmeistari skákfélaga og skákdeild Breiðabliks varð efst í 1. deild og tekur því sæti í úrvalsdeildinni í haust.
Þeir Halldór og Sigurbjörn ræddu einnig fyrirkomulag Íslandsmótsins en þeir vilja gera smávægilegar breytingar á úrvalsdeildinni. Frábær árangur Alexandr Domalchuk-Jónassonar kom til tals en hann náði lokaáfanga að alþjóðlegum meistaratitli ásamt fyrst áfanga sínum að stórmeistartitli á Íslandsmótinu. Halldór greindi að hluta frá nýrri metnaðarfullri 5 ára áætlun skákdeildar Breiðabliks um að styðja við bakið á ungum og efnilegum liðsmönnum skákdeilarinnar, bæði fjárhagslega og félagslega. Hann tók skýrt fram að hluti áætlunarinnar væri "hernaðarleyndarmál" en stefnt væri meðal annars á að úr afrekshópi þeirra kæmu nokkrir titilhafar innan 5 ára.
Reykjavíkurskákmótið kom einnig til tals en það hefst á föstudaginn kl. 15:00 og stendur yfir dagana 15. til 21. mars. Á meðal keppenda er Úkraínumaðurinn Vasyl Ivanchuk, fyrrum heimsmeistari í hraðskák og atskák. Hann var á sínum tíma annar stigahæsti skákmaður heims með 2787 eló-skákstig. Hann er talinn af mörgum kollegum sínum einn mesti snillingur skáklistarinnar.
Heimasíða og dagskrá Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu tónlistarhúsi