PLAY PODCASTS
Skákað í skjóli myrkurs: Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson
Episode 53

Skákað í skjóli myrkurs: Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson

Við skákborðið · Útvarp Saga

January 31, 202458m 29s

Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.

Show Notes

CAD-bræðurnir (Chess After Dark) Birkir Karl Sigurðsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Heimkaupum og Leifur Þorsteinsson viðskiptastjóri hjá Creditinfo eru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar að þessu sinni. Þeir eru báðir skákmenn frá barnsaldri, skákþjálfarar og hafa verið öflugir mótshaldarar undanfarið eitt og hálft ár. Þeir hafa meðal annars skipulagt og stjórnað mótum eins og Bankinn Bistro mótaröðinni þar sem há peningaverðlaun voru í boði, Íslandsmótinu í Fischer-slembiskák, Íslandsmótinu í Atskák sem haldið var á Selfossi, Arena mótaröðinni, hraðskákmóti á Ölveri í Glæsibæi og Sykursalnum. Ekki má gleyma Blush mótinu skemmtilega þar sem vinningshafar voru leystir út með miklu magni af vörum þessarar verslunar hjálpartækja ástarlífsins. Mótið gekk "smurt" fyrir sig eins og Róbert Lagerman skákstjóri hafði lofað fyrir keppni og voru pokar verðlaunahafa í lok móts stútfullir af smokkum, titrurum og gjafabréfum í verslunina.

Hlaðvarpsþættir þeirra félaga, Chess After Dark, eru orðnir 153 að tölu og er hlaðvarpið orðið eitt stærsta og vinsælasta hlaðvarp landsins.

Topics

skákspjallviðtölskákfréttir