PLAY PODCASTS
Við skákborðið

Við skákborðið

182 episodes — Page 2 of 4

Ep 138Íslenskar og erlendar skákfréttir: Ingvar Þór Jóhannesson, annar ritstjóra Skák.is og formaður TR

Ingvar Þór Jóhannesson, formaður Taflfélags Reykjavíkur og annar ritstjóra skákfréttavefjarins Skák.is er gestur Kristjáns Arnar. Þeir segja bæði íslenskar og erlendar skákfréttir og ræða það helsta sem er að gerast í skákinni um þessar mundir.

Sep 10, 202555 min

Ep 136Framtíðarsýn og stefna: Vignir Vatnar Stefánsson, Íslandsmeistari í skák

Kristján Örn fær til sín Vigni Vatnar Stefánsson Íslandsmeistara í skák og stigahæsta skákmann landsins. Vignir segir frá mikilli ævintýraferð sinni til nokkurra landa í Asíu en hann og félagi hans í landsliðinu, Aleksandr Domalchuk-Jonasson, tefldu m.a. á athyglisverðu skákmóti í Kína þar sem þeir mættu grjóthörðum ungum og efnilegum Kínverjunum við í skákborðið. Vignir Vatnar tapaði ekki skák, gerði þrjú jafntefli og lagði sex andstæðinga sína. Vignir sigraði á mótinu og varð einn í efsta sæti með sjö og hálfan vinning í níu skákum. Ekki amalegt að vinna skákmóti í Kína og vel gert hjá Vigni. Vignir ræðir framtíð sína í skákinni en hann er að leita sér að góðum skákþjálfara sem getur aðstoðað hann að ná enn lengra. Hann telur sig geta náð styrkleika vel yfir 2600 elo-skákstig með rétta fólkið í kringum sig og góðan og stöðugan stuðning frá styrktaraðilum. Vignir er staðráðinn í að taka þátt í næstu heimsmeistaramótum í hraðskák og atskák sem haldin verða í lok árs í Doha, Qatar eða dagana 25.-31. desember. Heildarverðlaunafé á mótinu nemur um 150 milljónum íslenskra króna og munu flestir af sterkustu skákmönnum heims verða á meðal þátttakenda.

Sep 4, 202553 min

Ep 135Vetrarstarf taflfélaganna í landinu að hefjast: Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR

Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR og framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Þeir fara yfir mótaáætlun Skáksambands Íslands fyrir starfsárið 2025-26 og segja nýjustu fréttir af skákfréttavefnum skak.is en vetrarstarf talfélaganna í landinu er að hefjast núna í byrjun september. Má þar nefna undanrásir Íslandsmótsins í netskák í kvöld, Haustmót Taflfélags Reykjavíkur sem hefst 3. september og Skákþing Norðlendinga sem haldið verður um næstu helgi, 5.-7. september. Oddgeir ræðir barnastarfið hjá KR, segir frá þjálfurum félagsins og svo taka þeir félagar umræðu um Íslandsmót skákfélaga en fyrri hluti Íslandsmótsins hefur verið staðfestur dagana 13.-16. nóvember nk.

Aug 27, 20251h 0m

Ep 134Skákstarfið hjá TR: Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson skákþjálfarar

Daði Ómarsson og Gauti Páll Jónsson frá Taflfélagi Reykjavíkur eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir félagar fara yfir mótaáætlun TR og ræða starfið hjá félaginu í vetur en það byrjar með Borgarskákmótinu í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, 20. ágúst. Árbæjarskákmótið er á dagskrá 31. ágúst og Haustmót TR hefst miðvikudaginn 3. september en stefnt er að teflt verði í tveimur lokuðum flokkum og einum opnum flokki. Einnig ræddu þeir önnur mót, eins og EM landsliða sem fram fer fram dagana 4.-15. október, EM taflfélaga sem haldið verður 18.-26. október og EM ungmenna haldið 28. október til 10. nóvember. Af þessum sökum hefst Íslandsmót skákfélaga óvenju seint í ár en fyrri hlutinn verður tefldur dagana 13.-16. nóvember. Daði, sem einnig er æskulýðsfulltrúi í stjórn Skáksambands Íslands, sagði að vinna væri á frumstigi hjá sambandinu að halda minningarmót um Friðrik Ólafsson á næsta ári. Hann talar um nýtt fangelsisverkefni hjá FIDE þar sem hann og Björn Ívar Karlsson, skólastóri Skákskóla Íslands, munu taka að sér að aðstoða hugsanlega þátttakendur hér á landi. Daði sagði stuttlega frá skákferli sínum, þjálfun barna og unglinga og mörgu öðru.

Aug 20, 202559 min

Ep 133ChatGPT-5 metur íslenska skákmenn: Björgvin Víglundsson þaulreyndur skákmeistari

Björgvin Víglundsson þaulreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti. Þeir félagar ræða sterkustu skákmeistara Íslands frá miðri síðustu öld og til dagsins í dag. Gervigreindarforritið ChatGPT-5 kemur mikið við sögu en til gamans, og með fyrirvara um staðreyndarvillur, ólíkar forsendur og aðgengi að upplýsingum, var það fengið til að meta 30 sterkustu skákmenn Íslands frá upphafi, sterkustu virku skákmenn landsins fyrir 1975, skákstíla og persónueiginleika þeirra bestu og margt fleira sem ekki náðist að fara yfir í þessum þætti (framhald síðar). Loks var gervigreindin beðin um að velja sér lag til að spila í lok þáttarins og komu nokkur lög til greina út frá þema þáttarins. Gervigreindin valdi lög eins og "One Night in Bangkok" með Murray Head og "The Queen´s Gambit" úr samnefndri kvikmynd með tónlist eftir Carlos Rafael Rivera. Síðarnefnda lagið er stefið sem spilað er í upphafi skákþáttanna og hið fyrra hefur verið spilað líklega tvisar eða þrisvar sinnum í þættinum áður. Lagið sem gervigreindin valdi að lokum var "Smooth Operator" með hinni seiðmögnuðu SADE en forritið telur lagið tilvalið til hlustunar fyrir þá skákmenn sem vilja ná yfirvegun og rökréttri hugsun!Top Icelandic Players (Pre-1975)Eggert Gilfer (1892–1960)Seven-time Icelandic Champion (1918–1942) and stalwart first-board Olympiad participant.Ásmundur Ásgeirsson (1906–1986)Six-time Icelandic Champion between 1931 and 1946; Olympiad competitor.Jón Guðmundsson (1904–1980)Three-time national champion (1932, 1936–37), earned an individual gold medal in the 1939 Olympiad.Baldur Möller (1914–1999)Multiple Icelandic Champion (1938–1950) and two-time Nordic Champion (1948, 1950); played in Olympiads.Ásmundur Ásgeirsson (listed above).Guðmundur Guðmundsson (1918–1974)Won the Icelandic Championship in 1954; represented Iceland in the 1954 Olympiad.Freysteinn Þorbergsson (1931–1974)1960 Icelandic Champion, 1965 Nordic Champion, and key Olympiad team member until the early 1970s.Friðrik Ólafsson (b. 1935)Became Iceland’s first Grandmaster in 1958, later served as FIDE President (1978–1982). While more active after 1975, his rise began in the late 1950s and 1960s.Bobby Fischer (1943–2008)Though American by birth, Fischer’s 1972 World Championship win was held in Reykjavík, and he later settled in Iceland. His peak and influence overlap with the pre-1975 era of Icelandic chess history.Expanding the List (9 More Notable Players)While records are sparse, the following figures also contributed to Icelandic chess up to 1975:Daniel Willard Fiske (1831–1904)American ‘father of Icelandic chess’, founded Reykjavík Chess Club and promoted chess in early 1900s Iceland.Top 30 Icelandic Chess Players – All Time (Best to Least)With 5–15 sentence bios each for historical context.1. Friðrik Ólafsson (1935–2025)Iceland’s first Grandmaster (1958) and one of the top 15 players in the world at his peak. Won the Icelandic Championship six times, the Nordic Championship twice, and tied or won major international tournaments like Hastings 1955–56 and Wijk aan Zee 1976. Qualified for the 1959 Candidates Tournament, finishing 7th against the world’s best. Served as FIDE President (1978–82), the only president to beat a reigning World Champion (Karpov) in official play. His legacy is both competitive and diplomatic — he transformed Iceland’s chess profile from obscure to world-known.2. Jóhann Hjartarson (b. 1963)Six-time Icelandic Champion and two-time Nordic Champion. Reached the Candidates quarterfinal in 1988, beating Viktor Korchnoi before losing to Karpov. Peak FIDE rank No. 11 in January 1989 — the highest ever for an Icelander in the Elo era. Consistent Olympiad leader for Iceland from 1984 to the mid-2000s. One of only two Icelanders to have played in a Candidates knockout phase.3. Jón Loftur Árnason (b. 1960)World U-17 Champion (1977), GM since 1986, Icelandic Champion three times. Defeated Short, Korchnoi, Shirov, Adams, Vaganian, and Larsen, and drew with Tal, Petrosian, Smyslov, and Karpov. Instrumental in Iceland’s 5th-place Olympiad finish in 1986 and 6th in 1992. Known for deep positional understanding and resilience against elite opposition.4. Guðmundur Sigurjónsson (b. 1947)Second Icelandic GM (1975), three-time national champion, regular Olympiad top board. Tournament wins include Reykjavík 1970 and Brighton 1982, plus shared titles at Sant Feliu 1974 and Hastings 1974–75. Helped cement Iceland’s place as a serious chess nation in the 1970s.5. Helgi Ólafsson (b. 1956)GM (1985), six-time Icelandic Champion. Played more Olympiads than any other Icelander, often on Board 1. Ranked among the world’s top 50 in the late 1980s, with notable tournament wins in the Nordic circuit and strong results in Dortmund and Copenhagen. Prolific author and long-time director of the Icelandic Chess School, mentoring generations of players.6. Héðinn Steingrímsson (b. 1975)World U-12 Champion (1987), youngest Icelandic Champion at

Aug 13, 202557 min

Ep 132Skákkennsla fyrir stjórnmálamenn: Sigurður Þórðarson og Gunnar Freyr Rúnarsson

Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru þeir Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Sigurður Þórðarson, áhugamaður um skák. Sigurður er fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni í síðustu tveimur Þorskastríðum Íslendinga en í fjóra áratug hefur hann flutt inn náttúrulyfið Rautt-eðalginseng. Rautt-eðalginseng er vinsælt hjá skákmönnum en það er talið skerpa athygli og auka þol. Þeir félagar ræða skák; Evrópukeppni félagsliða, árangur Víkingaklúbbsins á Íslandsmóti skákfélaga frá stofnun hans árið 2007, Vestfirði og sjarma þeirra, pólitík hér heima og erlendis og margt fleira. Sigurður segir að stjórnmálamenn nútímans skorti þekkingu á Íslandssögunni og nefndir að hann og þeir sem tóku þátt í Þorskastríðunum hafi gert það í góðri trú fyrir framtíðarkynslóðir Íslendinga. Það sé því grátlegt að illa upplýstir stjórnmálamenn vilji gefa fiskveiðiauðlind þóðarinnar til Evrópusambandsins. Sigurður telur að skákiðkunn sé þroskandi fyrir börn enda hafi rannsóknir sýnt að börnum og ungmennum sem iðka skák vegni betur í námi og starfi. Ástæðan kunni að vera sú að í skákinni læri maður að temja sér rökhugsun og öguð vinnubrögð.

Aug 6, 202556 min

Ep 131Skák og píanóleikur - hugur og hönd: Þorsteinn Gauti Sigurðsson og Gunnar Freyr Rúnarsson

Þorsteinn Gauti Sigurðsson, píanóleikari og skákmaður og Gunnar Freyr Rúnarsson, sagnfræðingur og formaður Víkingaklúbbsins eru gestir Kristjáns Arnar. Þema þáttarins snýst að einhverju leyti um New York en Þorsteinn bjó þar í 4 ár þegar hann stundaði nám við einn virtasta tónlistarháskóla heims, Juilliard School of Music. Gunnar Freyr hefur einnig mikið dálæti af borginni en hann hefur margoft heimsótt "borgina sem aldrei sefur" meðal annars teflt þar með íslenska unglingalandsliðinu í skák. Þeir félagar ræða götuskákmenningu í stórborgum, heimsókn í Hvíta húsið þegar Jimmy Carter var forseti Bandaríkjanna, hver sé sterkasti píanóleikri allra tíma í skák og aðra skemmtilega viðburði.

Jul 30, 202556 min

Ep 130Skák á Íslandi og í Austur-Evrópu: FIDE-meistararnir Símon Þórhallsson og Sigurbjörn J. Björnsson

FIDE-meistararnir Símon Þórhallsson og Sigurbjörn J. Björnsson fara um víðan völl í spjalli sínu við Kristján Örn í þættinum. Rætt er um skák á Íslandi fyrr og nú, nýskipuð keppnislið Íslands sem fara í haust til Batumi í Gerorgíu á Evrópumóti landsliða í skák, heimsbikarmót kvenna sem nú stendur yfir einnig í Batumi í Georgíu, Viðeyjarhraðskákmótið sem haldið var í Viðey um helgina, ferðalög þeirra félaga til Austur-Evrópu og margt fleira skemmtilegt og fróðlegt.

Jul 23, 202552 min

Ep 129"Óli, leggðu á": Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks

Í þættinum ræðir Kristján Örn Elíasson við Halldór Grétar Einarsson FIDE-meistara og formann meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða afreksskák á Íslandi og styrki til afreksmanna í skák og þróun alþjóðlegra skákstiga síðustu árin. Þeir bera saman aldur og styrkleika sterkustu skákmanna Norðurlandanna og einnig koma þeir inn á hversu skákin er orðin vinsæl á netinu en um það bil þriðjungur íslensku þjóðarinnar hefur stofnað reikning á vefnum Chess.com þar sem hægt er að tefla, leysa þrautir, lesa fréttir og gera ýmislegt annað.

Jul 16, 202556 min

Ep 128Íslenskir titilhafar í frjálsu falli á stigalista FIDE: Björn Víglundsson og Halldór Grétar Einarsson

Skákmeistarinn Björn Víglundsson byggingaverkfræðingur og fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák og FIDE-meistarinn Halldór Grétar Einarsson, formaður meistararáðs Breiðabliks eru gestir Kristjáns Arnar í þættinum. Björn er í þættinum allan tímann en Halldór Grétar kemur símleiðis inn í síðari hluta þáttarins frá Hveragerði. Björn segir frá sterkum frönskum stórmeisturum sem uppi voru á átjándu og nítjándu öldinni og ólíkum skákstílum en einnig ræðir hann sterkustu skákmenn heims í dag. Hann spyr sig hvað íslenskir skákmenn geti lært af þessum snillingum skákborðsins bæði fyrr og nú. Halldór Grétar rekur tölfræði yfir stigabreytingar hjá íslenskum titilhöfum og öðrum afreksskákmönnum en þar má sjá að margir þessara aðila eru í frjálsu falli niður stigalista FIDE. Við það má ekki una og hvað er til bragðs að taka? Því er reynt að svar í þættinum.

Jul 9, 20251h 0m

Ep 127Skák, Þorskastríð, Rússar, Fischer og Rautt-eðalginseng: Sigurður Þórðar og Gunnar Freyr

Gestir Kristjáns Arnar í þessum þætti eru þeir Gunnar Freyr Rúnarsson formaður Víkingaklúbbsins og Sigurður Þórðarson, áhugamaður um skák og fyrrverandi stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni í síðustu tveimur Þorskastríðum Íslendinga við Breta. Sigurður er kaupmaður og hefur síðustu fjóra áratugina flutt inn náttúrulyfið "Rautt-eðalginseng" sem er ræktað í 800-1000 metra hæð í Suður-Kóreu. Þeir félagar ræða skák, Þorskastríðin, kynni Sigurðar við Bobby Fischer en Fischer var mikill aðdáandi og reglulegur notandi "Rauðs-eðalginsengs," hvernig Sovétmenn/Rússar hjálpuðu Íslendingum að vinna öll Þorskastríðin, sérstaklega það fyrsta og síðasta (hótunin er sterkari en leikurinn) með því að láta í veðri vaka að þeir myndu taka vel í óskir Íslendinga um hernaðaraðstoð. Einnig segir Sigurður frá þegar LLoydsman, stærsti dráttarbátur Breta, sem var 2.400 tonn að stærð elti Albert, minnsta varðskip Íslendinga (201 tonn), inn í Berufjörð og keyrði stöðugt á varðskipið með þeim afleiðingum að skipið stórskemmdist.

Jul 2, 202551 min

Ep 126Yfirsetur á Íslandsmóti í skák og afreksmál: Gauti Páll Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar

Gestur þáttarins er Gauti Páll Jónsson, ritstjóri tímaritsins Skákar. Rætt er um nýlokin Íslandsmót í skák á Blönduósi en þar voru krýndir fjórir Íslandsmeistarar. Rætt er um fyrirkomulag mótsins og hvort rétt sé að leyfa yfirsetur á Íslandsmótum í skák. Í síðari hluta þáttarins er rætt um afreksmálin í skákinni og hvað hægt sé að gera til að standa betur við bakið á okkar efnilegasta fólki. Gauti segir frá nýjungum í mótahaldi og nefnir til dæmis Pressukeppnina þar sem ungir skákmenn fá tækifæri til að tefla gegn reynslumeiri skákmönnum.

Jun 25, 202555 min

Ep 125Ýmsar hugleiðingar og aðalfundur SÍ: Björgvin Víglundsson skákmeistari

Björgvin Víglundsson, fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Þeir ræða um Magnus Carlsen og Hikaru Nakamura og gamla meistara skákborðsins. Í síðari hluta þáttarins ræða þeir skákhátíðina á Blönduósi og aðalfund Skáksamband Íslands sem haldinn var á Blönduósi sl. laugardag þrátt fyrir að skoðunarmenn reikninga sambandsins hafi talið tilefni til þess að hafin yrði rannsókn á rekstri og bókhaldi Skáksambandsins og að formenn nokkurra aðildarfélaga hafi farið fram á að fundinum yrði frestað.

Jun 18, 20251h 4m

Ep 124Gerir kröfu um breytingar: Arnar Erwin Gunnarsson alþjóðlegur meistari í skák

Arnar Erwin Gunnarsson alþjóðlegur meistari í skák ræðir feril sinn og hugleiðingar um framtíð skákar á Íslandi. Hann talar um erfiðar krossgötur sem hreyfingin stendur frammi fyrir um þessar mundir. Arnar telur að Ísland sé að tapa sérstöðu sinni sem mikil skákþjóð og hafi dregist langt aftur úr öðrum þjóðum síðastliðin 10 til 15 ár. Hann segir að fjármunum hafi verið mjög illa varið sem hafi bitnað gríðarlega á öllu afreksstarfi með þeim afleiðinum að hann og aðrir sterkir skákmeistarar hafi misst áhugann og hætt að tefla. Viðtalið við Arnar Erwin má hlusta í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Jun 11, 202558 min

Ep 123Skákferill og stúderingar: Sigurbjörn J. Björnsson FIDE meistari

Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalíf er gestur Kristjáns Arnar í þættinum. Sigurbjörn er FIDE meistari og Íslandsmeistari í skák með félagsliði sínu, Skákdeild Fjölnis. Sigurbjörn ræðir skákferil sinn og segir frá hvernig hann stúderar skák og undirbýr sig gegn andstæðingum sínum. Hann nefnir ýmis skákforrit og skákgagnagrunna og lýsir hvernig undirbúningur skákmanna hefur þróast í gegnum tíðina með tilkomu tölva, snjallsíma og skákforrita. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu en hlusta má á þáttinn í spilaranum.

Jun 5, 202554 min

Ep 122Sterkurstu heimsmeistarar sögunnar: Björgvin Víglundsson skákmeistari og byggingaverkfræðingur

Björgvin Víglundsson, þrautreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Umræðuefnið er að mestu heimsmeistaraeinvígi Mikhail Botvinnik og David Bronstein árið 1951 og sterkustu heimsmeistarar sögunnar. Björgvin þakkar Útvarpi Sögu og Kristjáni Erni fyrir þeirra framlag til skákhreyfingarinnar með því að halda úti vikulegum útvarpsþætti um skák. Hann ræðir einnig framboð Kristjáns til embættis forseta Skáksambands Íslands. Kristján leggur mjög mikla áherslu á að ný stjórn Sambandsins verði samhent og að hana skipi fulltrúar frá félögum sem hafa verið virk í starfi. Hann telur að með þessum hætti verði teknar ákvarðanir sem verði farsælar fyrir skákhreyfinguna í heild sinni og lyftistöng fyrir skáklífið í landinu. Kristján leggur áherslu á að forseti Skáksambandsins eigi ekki að vera framkvæmdastjóri þess líka. Hann segir að það sé meginregla hjá öðrum íþróttasamböndum að aðgreining sé milli forseta og stjórnar annars vegar og framkvæmdastjóra hins vegar.

May 28, 202548 min

Ep 121Minningarmót Gunna Gunn og Ottó: Helgi Árnason og Tryggvi Leifur Óttarsson

Kristján Örn ræðir við Helga Árnason, formann Skákdeildar Fjölnis og Tryggva Leif Óskarsson, formann Taflfélags Snæfellsbæjar um stórglæsilegt og fjölmennt minningarmót um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason sem haldið var í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík um síðustu helgi. Báðir voru þessir frumkvöðlar miklir áhugamenn um skák og merkir menn í sögu Ólafsvíkur.

May 21, 20251h 0m

Ep 119Skákþjálfaraspjall: Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson

Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson eru gestir þáttarins að þessu sinni. Báðir eru þeir fyrrum formenn Taflfélags Reykjavíkur og núverandi þjálfarar félagsins. Í þættinum fara þeir yfir hvernig skákumhverfið hefur breyst á undanförnum áratugum og hvernig ný tækni og aukin samkeppni hefur haft áhrif á þjálfun og styrkleika skákmanna. Með tilkomu rafrænna kennslutækja og skákforrita hefur orðið bylting í skákþjálfun. Þeir segja að íslenskir skákmenn verði að fylgjast vel með ætli þeir sér að vera samkeppnishæfir á alþjóðavettvangi.

May 16, 202548 min

Ep 120Við skákborðið - Gauti Páll Jónsson og Torfi Leósson

May 14, 202548 min

Ep 117Norðurlandameistarar stúlkna í skák: Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem

Gestir Kristjáns Arnar eru nýkrýndir Norðurlandameistarar í skák. Þetta eru ungu landsliðskonurnar Iðunn Helgadóttir 17 ára og Guðrún Fanney Briem 15 ára sem báðar urðu Norðurlandameistarar í sínum flokkum eftir sigur á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fram fór í Fredericia í Danmörku um þar síðustu helgi. FIDE meistarinn Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands og einn af þjálfurum stúlknanna og fararstjóri í ferðinni er einnig gestur þáttarins.

May 7, 202553 min

Ep 118Iðunn og Guðrún Norðurlandameistarar í skák

May 7, 202553 min

Ep 116Hvað er að frétta? - Ingvar Þór Jóhannesson annar ritstjóra vefmiðilsins Skák.is

Ingvar Þór Jóhannesson, skákfréttaritari og annar ritstjóra vefmiðilisins Skák.is er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Þeir félagar ræða nýafstaðið Reykjavíkurskákmót, skipulagningu mótsins, val þátttakenda, gengi íslensku keppendanna og ýmislegt fleira varðandi umgjörð mótsins og annað. Frábær árangur íslensku landsliðsstúlknanna barst í tal en þær Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem urðu báðar Norðurlandameistarar stúlkna í skák, hvor í sínum aldursflokki, en mótið fór fram í Fredericia í Danmörku um síðustu helgi. Taflfélag Snæfellsbæjar blæs til glæsilegs minningarmóts 17. maí næstkomandi en mótið er minningarmót um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason sem báðir eru merkir menn í sögu Ólafsvíkur. Þeir Ingvar Þór og Kristján Örn komu inn á aðrar skákfréttir í spjalli sínu en hlusta má á þáttinn í spilaranum.

Apr 30, 202557 min

Ep 115Vignir Vatnar Stefánsson sigrar Magnus Carlsen á skákmótaröðinni Titled Tuesday

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, stigahæsti skákmaður landsins er mættur í stúdíóið til Kristjáns Arnar. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu í þessum skemmtilega þætti. Í gærkvöldi, á hinu ofursterka vikulega Titled Tuesday hraðskákmóti á Chess.com, gerði Vignir sér lítið fyrir og lagði sjálfan Magnus Carlsen að velli - með svörtu! Líklegast hefur enginn Íslendingur unnið Carlsen eftir að hann varð fyrst heimsmeistari árið 2013. Vignir minnist Friðriks Ólafssonar, talar um Reykjavíkurskákmótið, nýja skákmótaröð sem hann stendur fyrir og ber nafnið Le Cock mótaröðin eftir samnefndum veitingastað, Grenke Freestyle mótið í Þýskalandi sem lauk sl. mánudag með glæsilegum sigri Carlsen þar sem hann sigraði alla andstæðinga sína , ræðir styrktarmál, segir frá venjulegum degi í lifi stórmeistarans og margt fleira.

Apr 23, 202554 min

Ep 114Geir Hilmar Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum

Geir Hilmar Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum er gestur Kristjáns Arnar. Geir segir frá hvenær hann fékk fyrst áhuga á skák og skákmótum sem hann hefur tekið þátt í. Hann telur upp góða skákmenn sem sátu á Alþingi með honum og talar um Friðrik Ólafsson og aðra sterka skákmeistara sem hann hefur mætt á skákborðinu. Barnabörn Geirs, Inga Jóna 12 ára og Hafþór 9 ára, æfa bæði skák og hafa farið á skákmót til útlanda með leikskólanum Laufásborg undir styrkri handleiðslu Omar Salama skákkennara. Sjá Skákbörn Laufásborgar. Geir hefur ekki aðeins gaman af að tefla og mæta á skákæfingar hjá KR heldur syngur hann með tveimur kórum; Karlakór Kópavogs og Harmoníukórnum. Þeir Kristján Örn og Geir fara um víðan völl í þættinum, tala m.a. um Reykjavíkurskákmótið, stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum og margt fleira.

Apr 16, 202556 min

Ep 113Dr. Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR

Oddgeir Ágúst Ottesen, formaður skákdeildar KR er gestur þáttarins. Oddgeir er með doktorsgráðu í hagfræði og starfar sem framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Í þættinum minnast þeir Kristján Örn Friðriks Ólafssonar, fyrsta, sterkasta og þekktasta stórmeistara Íslendinga í skák, sem andaðist föstudaginn 4. apríl síðastliðinn eftir skammvin veikindi. Oddgeir segir frá barnastarfinu hjá skákdeild KR, segir frá góðum árangri barna og unglinga á Íslandsmóti barna- og grunnskóla og á Reykjavíkurmótinu í skólaskák en fjölmörg barnaskákmót hafa verið haldin að undanförnu. Oddgeir talar um Reykjavíkurskákmótið sem nú stendur yfir og margt fleira en hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.

Apr 9, 202551 min

Ep 111Björn Þorfinnsson ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák

Björn Þorfinnsson, ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Björn segir frá ferðum sínum á skákmót í Túnis í Afríku og norður í land á 20 ára afmælismót Goðans þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari. Björn stefnir á að bæta sig í skák á gamalsaldri eins og hann orðar það en hann hefur hækkað um tæplega 40 elo-skákstig á nokkrum mánuðum. Kristján Örn fór inn á Facebooksíðu Björns og spyr hvort hann kannist við setninguna: "Rosalega verður maður kærulaus í þessum hita". Björn hlær og rifjar upp skemmtilegar sögur af sjálfum sér og fölskyldu sinni þegar þau ferðuðust til Ítalíu í fyrra. Björn segir: "þrjóturinn hún systir mín hefur nú deilt sinni reynslu af fjölskyldufríi stjórfjölskyldunnar [...]. Í myndböndum hennar mátti sjá fjölskylduna að mestu leyti í sínu rétta ljósi enda erum við allt annað en eðlilegur hópur. Rúmlega helmingurinn sennilega með einhverjar greiningar og hinn helmingurinn í afneitun," segir Björn og skellihlær. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum.

Apr 3, 202556 min

Ep 112Björn Þorfinnsson

Kristján Örn ræðir við Björn Þorfinnsson, alþjóðlegan meistara í skák og ritstjóra DV.

Apr 3, 202556 min

Ep 110Stöðnun og óvirkir afreksmenn: Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og formaður meistararáðs Breiðabliks

Kristján Örn tekur á móti FIDE meistaranum Halldóri Grétari Einarssyni, formanni meistaraflokksráðs Breiðabliks. Þeir ræða tölfræði eða árangur þeirra keppenda sem stóðu sig hvað best á nýafstöðnu Íslandsmóti skákfélaga. Einnig velta þeir vöngum yfir þeirri kyrrstöðu sem ríkir hjá mörgum af bestu afreksmönnum okkar Íslendinga í skák en þessir skákmenn eru þá ýmist óvirkir eða tefla lítið. Þeir Halldór og Kristján lýsa yfir áhyggjum sínum vegna þróunar mála og kalla eftir stefnumótunarvinnu hjá íslenskri skákhreyfingu.

Mar 27, 202555 min

Ep 109Út um allar trissur með Gunnari Frey Rúnarssyni og Róberti Lagerman

Gunnar Freyr Rúnarsson, formaður Víkingaklúbbsins og FIDE meistarinn Róbert Lagerman, aðalritari Vinaskákfélagsins og alþjóðlegur skákdómari heimsækja Kristján Örn í stúdíóið á Útvarpi Sögu. Þeir fara út um víðan völl og ræða meðal annars um fyrirkomulag Íslandsmóts skákfélaga, Víkingaskák, bréfskák, landsliðsmál Grænlands, Reykjavíkurskákmótið, skák úti á landsbyggðinni, Æsi skákfélagið og vel heppnað 20 ára afmælismót Goðans sem fram fór í Skjólbrekku í Mývatnssveit um síðustu helgi.

Mar 19, 202558 min

Ep 107Vestfirðingarnir Guðmundur Gíslason og Magnús Pálmi Örnólfsson

Kristján Örn tekur á móti Vestfirðingunum Guðmundi Gíslasyni, FIDE meistara og verkstjóra hjá hraðfrystihúsinu Gunnvör í Hnífsdal og Magnúsi Pálma Örnólfssyni, skákmeistara og hagfræðingi MBA.

Mar 12, 202551 min

Ep 108Íslandsmót skákfélaga og Boris Spassky: Sigurbjörn J. Björnsson og Halldór Grétar Einarsson

FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson frá skákdeild Fjölnis og Halldór Grétar Einarsson frá skákdeild Breiðabliks ræða um Íslandsmót skákfélaga sem lauk um síðustu helgi. Sigurbjörn minnist Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistari í skák og eins af fremstu skákmönnum sögunnar, sem lést á fimmtudaginn í síðustu viku áttatíu og átta ára að aldri. Árið 1969 náði Spassky hápunkti ferils síns þegar hann varð heimsmeistari í skák eftir sigur á Tigran Petrosjan. Þremur árum síðar eða árið 1972 háði hann eitt frægasta einvígi skáksögunnar við bandaríska skákmeistarann Bobby Fischer í Laugardalshöllinni sem kallað hefur verið „einvígi aldarinnar“. Einvígið vakti heimsathygli og var táknrænt fyrir spennuna milli austurs og vesturs á tímum kalda stríðsins.

Mar 5, 202553 min

Ep 106Tímaritið Skák og Íslandsmót skákfélaga: Gauti Páll Jónsson, ritstjóri og Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands

Í þessum eitthundraðasta frumflutta þætti Við skákborðið tekur Kristján Örn á móti þeim Gauta Páli Jónssyni, ritstjóra tímaritsins Skákar og Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Umræðuefnið er tímaritið Skák sem kemur út lok vikunnar eða við upphaf síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga, Íslandsmótið, Skákskólann, Norðurlandamót ungmenna í Borgarnesi og margt fleira skemmtilegt.

Feb 26, 20251h 0m

Ep 105Karl Gauti Hjaltason, alþingismaður og formaður Taflfélags Vestmannaeyja

Kristján Örn fær til sín Karl Gauta Hjaltason, alþingismann og formann Taflfélags Vestmannaeyja. Þeir ræddu sterka stöðu skákíþróttarinnar á Íslandi, þingsályktunartillögu Karls Gauta frá því árið 2020 um skákkennslu í grunnskólum, öflugt skákstarf í Vestmannaeyjum, Íslandsmót skákfélaga en félagið stefnir á að landa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli 2026 á 100 ára afmælisári félagsins. Þá talaði Karl Gauti um Björn Kalman lögfræðing, sem tefldi með félaginu um árabil, og sagði að ýmsir teldu að Björn væri fyrirmynd aðalpersónunnar í hinni heimskunnu skáldsögu Manntafl eftir Stefan Zweig. Margt annað áhugavert bar á góma eins og að Karl Gauti ber svarta beltið í karate en þáttinn í heild sinni má hlusta í spilaranum.

Feb 19, 202557 min

Ep 104Skák og sundsmokkar: Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur

Gestur skákþáttarins í dag er Magnús Pálmi Örnólfsson, skákmeistari og hagfræðingur MBA. Þeir Kristján Örn og Magnús Pálmi fóru um víðan völl í spjalli sínu eins og svo oft áður. Af erlendum vettvangi ræddu þeir Titled Tuesday netskákmótin, Tata Steel ofurmótið sem haldið er árlega í Wijk aan Zee í Hollandi, Free Style Chess Grand Slam Tour 2025 mótaröðina en fyrsta slembiskákmótið í mótaröðinni stendur nú yfir í Weissenhaus í Þýskalandi. Af innlendum vettvangi töluðu þeir um nýja skákbók, Sikileyjarvörn, eftir Jón Viktor Gunnarsson alþjóðlegan skákmeistara en þetta er önnur skákbókin sem hann lætur frá sér, nýlokið Skákþing Reykjavíkur og Hraðskákmót Reykjavíkur, Símamótið og Febrúarmótaröðina sem er samstarfsverkefni Taflfélags Reykjavíkur og Taflfélags Garðabæjar. Þess á milli sagði Magnús Pálmi skemmtilegar sögur og brandara eins og honum er einum lagið.

Feb 12, 202550 min

Ep 103Afreksstefna Breiðabliks: Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs

Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks er gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag. Halldór ræðir afreksstefnu skákdeildar Breiðabliks og segir að ýmsum markmiðum deildarinnar hafi þegar verið náð. Máli sínu til stuðnings bendir hann meðal annars á árangur Blika í Skákþingi Reykjavíkur sem nú stendur yfir en 7. umferð þingsins verður tefld í kvöld. Þeir félagarnir ræða Title Tuesday netskákmótin á skákvefþjóninum Chess.com en nokkrir Íslendingar tefla þar reglulega eða á hverjum þriðjudegi eins og nafnið ber með sér. Þeir einir hafa þátttökurétt sem hafa fengið úthlutaðri nafnbót hjá FIDE, allt frá stórmeistaratitli (GM) og niður í kandídatatitil (CM). Þeir Halldór og Kristján tala um fjölsótta afmælisveislu Friðriks Ólafssonar sem haldin var í Hörðunni sl. sunnudag en þá fagnaði fyrsti og sterkasti stórmeistari Íslendinga fyrr og síðar 90 ára stórafmæli sínu. Fleira kemur til tals í þættinum eins og ágreiningur FIDE og nýs sambands eða félagsskapar sem heitir Free Style Chess, pólitísk afskipti eða umdeilt bann skáksambanda Norðurlandaþjóðanna á þátttöku skákmanna frá Rússlandi á mótum á Norðurlöndum vegna stríðsins í Úkraínu og margt fleira.

Jan 29, 20251h 4m

Ep 102Friðrik Ólafsson 90 ára goðsögn

Friðrik Ólafsson er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Friðrik varð fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák árið 1958. Hann er þekktasti og sterkasti skákmeistari sem Íslendingar hafa eignast og var á meðal sterkustu skákmanna heims á sínum tíma. Friðrik var forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) frá 1978 til 1982. Hann á glæsilegan starfsferil að baki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga. Á sunnudaginn kemur eða þann 26. janúar fagnar Friðrik 90 ára stórafmæli sínu. Af því tilefni verður opið hús í Hörpu. Samkoman hefst kl. 16:00 og þætti meistaranum vænt um að sjá sem flesta. Hlusta má á viðtalið í spilaranum.Friðrik Ólafsson: Af vef Skáksögufélagsins.Menntun: Stúdentspróf frá MR 1955. Lögfræðipróf frá HÍ 1968.Starfsferill: Fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu 1968-1974. Forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) 1978-1982. Ritstjóri Lagasafns Íslands 1982-1983. Skrifstofustjóri Alþingis frá 1984. Varð sex sinnum Íslandsmeistari í skák, fyrst 1952, og Norðurlandameistari í skák 1953 og 1971. Alþjóðlegur skákmeistari 1956 og fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák 1958. Varð sigurvegari á skákmótinu í Hastings 1955-1956, í Beverwijk í Hollandi 1959, Í Marianske Kasne í Tékkóslóvakíu 1961, á alþjóðlegum skákmótum í Reykjavík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975. Veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar 1982-1984. Sat í nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins 1989 sem vann að undirbúningi frumvarps til laga um Skákskóla Íslands og stórmeistaralaun.Ritstörf: Lærið að tefla, kennslubók í skák, ásamt Ingvari Ásmundssyni, 1958. Heimsmeistaraeinvígið í skák 1972, ásamt Freysteini Jóhannssyni, 1972. Við skákborðið í aldarfjórðung, 1976. Auk þess fjöldi greina um skák í tímaritum og dagblöðum.Viðurkenningar: Sæmdur titlinum alþjóðlegur stórmeistari í skák 1958, fyrstur Íslendinga. Riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1972 og stórriddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1980. Gerður að heiðursborgara Reykjavíkur og aðalheiðursfélaga FIDE, 2015.

Jan 22, 202555 min

Ep 101Skákspjall: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari

Gestir þáttarins í dag eru Helgi Áss Grétarsson stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák og Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA. Þeir félagar fara um víðan völl í spjalli sínu, segja skemmtilegar sögur, tala um stefnu eða framtíð skákarinnar, hvernig menn takast ólíkt á við mótlæti eins og tap og hvernig og hversu fljótir menn eru að "núllstilla" sig, eins og Helgi orðar það. Hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.

Jan 16, 202556 min

Ep 100Óvæntar uppákomur á heimsmeistaramótunum í New York: Róbert Lagerman, Magnús Pálmi og Helgi Áss

Gestir þáttarins í dag eru Róbert Lagerman FIDE meistari og alþjóðlegur skákdómari, Magnús Pálmi Örnólfsson skákmeistari og hagfræðingur MBA og stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson núverandi Íslandsmeistari í skák. Umræðuefnið er óvæntu uppákomurnar sem áttu sér stað á heimsmeistaramótunum í atskák og hraðskák sem fram fóru í New York á milli jóla og áramóta. Annars vegar er um að ræða "Stóra gallabuxnamálið" sem upp kom eftir áttundu umferð í atskákinni og hins vegar að heimsmeistaratigninni í hraðskák var skipt á milli Magnúsar Carlsen og Ian Nepomniachtchi að ósk þeirra beggja þrátt fyrir að reglur mótsins segðu að tefla skyldi þar til annar stæði uppi sem sigurvegari. Það var forseti FIDE, Arkady Dvorkovich, sem tók þessa ákvörðun þvert að reglur mótsins. Meira um þessar óvæntu og umdeildu uppákomur í spilaranum.

Jan 8, 202559 min

Ep 99Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands

FIDE meistararnir Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalíf og Björn Ívar Karlsson skólastjóri Skákskóla Íslands eru gestir Kristjáns Arnar að þessu sinni. Meginefni þáttarins er umfjöllun eða hugvekja um nýafstaðið heimsmeistaraeinvígi indverska áskorandans Gukesh Dommaraju og heimsmeistarans Ding Liren frá Kína. Einvíginu lauk með sigri Gukesh 7,5-6,5. Gukesh er þar með nýr heimsmeistari og langyngsti heimsmeistari skáksögunnar. Hann er aðeins 18 ára gamall og svo skemmtilega vill til að hann er einnig átjándi maðurinn til að hljóta þennan eftirsótta titil. Þeir félagar ræddu nýja bók eftir Sigurbjörn sem kom út í sumar. Hve þung er þín krúna er söguleg skáldsaga sem segir frá heimsmeistaraeinvíginu í skák á Íslandi á nýstárlegan hátt. Hún greinir frá því hvernig íslensku skipuleggjendurnir tókust á við margvísleg vandamál sem komu upp við skipulagningu einvígisins og það hvernig þeir Spasskí og Fischer tókust á við álagið og sundrungina sem kom upp i herbúðum beggja aðila sumarið 1972 þegar skák varð miðdepill heimsfréttanna. Einnig ræddu þeir starf Skákskóla Íslands, helstu áherslur og framtíðarplön.

Dec 18, 20241h 0m

Ep 98Heimsmeistaraeinvígið 2024 - 3. hluti: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák

Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í kappskák og hraðskák, er gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í þriðja skiptið í röð. Umræðuefnið er eins og áður heimsmeistaraeinvígið í Singapúr þar sem heimsmeistarinn Ding Liren frá Kína leitast við að verja heimsmeistaratitilinn gegn áskorandanum Gukesh Dommaraju frá Indlandi. Einvígið hófst 25. nóvember og stendur til 13. desember eða þar til annar hefur náð 7.5 vinningi en tefldar verða 14 kappskákir. Staðan í einvíginu er jöfn 6.5-6.5 eftir að tefldar hafa verið þrettán skákir. Ding vann fyrstu skákina og þá tólftu og Gukesh vann þriðju skákina og þá elleftu en öðrum skákum hefur lokið með jafntefli. Á morgun verður síðasta kappskákin tefld og ljúki henni með jafnteli verða tefldar 4 atskákir á föstudaginn með tímamörkunum 15 mínútur að viðbættum 10 sekúndum á hvern leik frá upphafi skákar til að fá úr því skorið hvor þeirra vinnur einvígið og hlýtur heimsmeistaratitilinn. Þeir Kristján og Helgi fóru einnig yfir helstu skákfréttir líðandi stundar.

Dec 11, 202457 min

Ep 97Heimsmeistaraeinvígið 2024 - 2. hluti: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák

Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar í annað skiptið í röð. Umræðuefnið er, eins og í síðasta þætti, heimsmeistaraeinvígið í Singapúr þar sem heimsmeistarinn Ding Liren frá Kína leitast við að verja heimsmeistaratitilinn gegn áskorandanum Gukesh Dommaraju frá Indlandi. Einvígið hófst 25. nóvember og stendur til 13. desember eða þar til annar hefur náð 7.5 vinningi en tefldar verða 14 kappskákir. Staðan í einvíginu er jöfn 4-4 eftir að tefldar hafa verið átta umferðir. Ding vann fyrstu skákina, næsta fór jafntefli og þriðju skákina vann Gukesh. Helgi verður einnig með Kristjáni í næsta þætti eftir viku en þeir ætla að fylgjast vel með öllu einvíginu og fara yfir sögu heimsmeistaraeinvígjanna og segja skákfréttir líðandi stundar.

Dec 4, 202452 min

Ep 96Heimsmeistaraeinvígið 2024 - 1. hluti: Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák

Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari og núverandi Íslandsmeistari í skák er gestur Kristjáns Arnar að þessu sinni. Umræðuefnið er heimsmeistaraeinvígið í Singapúr þar sem heimsmeistarinn Ding Liren frá Kína leitast við að verja heimsmeistaratitilinn gegn áskorandanum Gukesh Dommaraju frá Indlandi. Einvígið hófst 25. nóvember og stendur til 13. desember eða þar til annar hefur náð 7.5 vinningi en tefldar verða 14 kappskákir. Staðan í einvíginu er jöfn eftir að tefldar hafa verið þrjár umferðir. Ding vann fyrstu skákina, næsta fór jafntefli og í dag vann Gukesh og jafnaði þannig stöðuna í einvíginu fyrir fyrsta hvíldardaginn en frídagur er á morgun. Helgi verður einnig með Kristjáni í næsta þætti eftir viku en þeir ætla að fylgjast vel með einvíginu og fara yfir sögu heimsmeistaraeinvígjanna og segja skákfréttir líðandi stundar.

Nov 27, 202444 min

Ep 95Gamlir skákmeistarar og nýir: Björn Víglundsson skákmeistari og byggingarverkfræðingur

Björgvin Víglundsson, margreyndur skákmeistari og byggingaverkfræðingur, er gestur Kristjáns Arnar í þessum þætti. Umræðuefnið er að mestu gamlir erlendir skákmeistarar og heimsmeistaraeinvígið í skák 2024 sem fara mun fram í Singapúr dagana 25. nóvember til 13. desember nk. Það verða Kínverjinn Ding Liren (32 ára) ríkjandi heimsmeistari og áskorandinn Gukesh Dommaraju (18 ára) frá Indlandi sem takast munu á um heimsmeistaratignina. Heildarverðlaunafé verður tvær og hálf milljón dollara eða um 350 milljónir íslenskra króna.

Nov 13, 202455 min

Ep 94Björn Þorfinnsson ritstjóri DV.is og alþjóðlegur meistari í skák

Gestur Kristjáns Arnar í þættinum í dag er Björn Þorfinnsson ritstjóri DV.is. Hann var útnefndur alþjóðlegur meistari í skák árið 2009 og hefur náð tveimur áföngum að stórmeistaratitli. Það er því engu logið þegar fullyrt er að hann sé í hópi sterkustu skákmanna landsins. Þeir félagar, Björn og Kristján, fóru um víðan völl og ræddu meðal annars um atskákkeppni taflfélaga sem lauk í gær, liðsgöngu Björns í Taflfélag Vestmanneyja, Íslandsmótið í netskák sem er rúmlega hálfnað, EM félagsliða í haust, EM einstaklinga sem er framundan, Arsenal-mótið í London í byrjun desember, skemmtileg kráarmót á Bretlandseyjum, heimsmeistaraeinvígið í skák sem hefst í Singapúr 25. nóvember nk. á milli Kínverjans Ding Liren (32 ára) ríkjandi heimsmeistara og áskorandans Gukesh Dommaraju (18 ára) frá Indlandi og margt fleira sem hlusta má í spilaranum.

Nov 6, 20241h 0m

Ep 93Heimsmeistareinvígið í skák 1972 og 100 ára afmæli FIDE: Guðmundur G. Þórarinsson, Einar S. Einarsson og Hilmar Viggósson

Gestir þáttarins að þessu sinnu eru þeir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og fyrrverandi alþingismaður, Einar S. Einarsson fyrrverandi forstjóri VISA á Íslandi og Hilmar Viggósson fyrrverandi bankaútibússtjóri. Guðmundur og Einar eru báðir fyrrverandi forsetar Skáksambands Íslands og Hilmar er fyrrverandi gjaldkeri sambandsins en þeir Guðmundur og Hilmar voru við stjórnvölinn þegar „Einvígi aldarinnar“ fór fram í Laugardalshöll árið 1972 á milli þáverandi heimsmeistara í skák, Sovétsmannsins Boris Spasskys og Bandaríkjamannsins Roberts Fischers. Eins og flestir vita sem fylgjast með skák veitti Alþingi Fischer íslenskan ríkisborgararétt þann 21. mars árið 2005. Hann lést í Reykjavík 17. janúar 2008 eftir baráttu við alvarleg nýrnaveikindi. Hann var jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk í kirkjugarði Laugardæla í Flóa.Í þættinum rifja þeir upp „gömlu góðu dagana“ en einnig segja þeir frá, að á 100 ára afmæli FIDE sem haldið var í Búdapest fyrir stuttu hafi heimsmeistaraeinvígið í skák 1972 verið valið "Minnisstæðasti skákviðburður allra tíma" í sögu FIDE. Auk þess var Friðriki Ólafssyni, fyrrverandi forseta FIDE veitt þakkarviðurkenning fyrir störf hans í þágu Alþjóðaskáksambandsins (FIDE).

Oct 30, 202453 min

Ep 92Kjartan Briem formaður skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdastjóri Isavia ANS

Kristján Örn tekur á móti Kjartani Briem formanni skákdeildar Breiðabliks og framkvæmdarstjóra Isavia ANS en félagið er dótturfélag Isavia sem annast flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu. Í upphafi þáttar segir Kjartan aðeins frá starfi eða hlutverki Isavia ANS en svo snúa þeir sér að starfinu hjá Skákdeild Breiðabliks. U-25 hópur Breiðabliks tekur nú í fyrsta skipti þátt í Evrópumóti félagsliða sem fer fram í Serbíu dagana 20. til 26. október. Þrjár umferðir hafa verið tefldar og hefur liðið staðið sig ágætlega og er í 38 sæti af 84 liðum sem taka þátt í keppninni. Í síðustu umferð gerði Vignir Vatnar jafntefli við Boris Gelfand sem á sínum tíma var einn allra sterkasti skákmaður heims (2.777 elo-skákstig árið 2013) og keppti m.a. einvígi við Vishy Anand um heimsmeistaratitilinn í skák árið 2012. Einvígið endaði með jafntefli 6-6 en Anand hélt titlinum á oddastigum, þ.e. þeir tefldu fjórar atskákir sem enduðu með sigri Anand 2,5 - 1,5. Kjartan talar um ungu og efnilegu krakkana í skákdeildinn og vill hann sjá átak í að fjölga stúlkum í skák og að skákhreyfingin setji sér mælanlega markmið. Hann segir fákeppni á milli þeirra helst há framförum hjá þeim. Sé horft fram um nokkur ár sér hann jafnvel fyrir sér sérstaka kvennadeild í skák sem yrði þá háð á öðrum tíma en hið hefðbundna Íslandsmót skákfélaga. Margt annað kom fram í spjalli þeirra Kristjáns og Kjartans en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.

Oct 23, 20241h 0m

Ep 91Spilling og svindl í skák: Þorvaldur Logason skákmeistari, heimspekingur og félagsfræðingur

Gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum að þessu sinni er skákmeistarinn, heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Þorvaldur Logason en hann er höfundur hinnar umdeildu bókar Eimreiðarelítan - Spillingarsaga sem kom út í lok síðasta árs. Megin þema eða inntak þáttarins er spilling og svindl í skák, þ.e. misnotkun valds. Í þættinum skilgreinir Þorvaldur þessi hugtök, hann kemur inn á elítur og valdaelítur, beitingu valdsins, s.s. úthlutun embætta, segir skemmtilegar sögur af fyrrum heimsmeisturum og forsetum FIDE. Margt annað athyglisvert barst í tal sem hlusta má á í spilara þáttarins.

Oct 16, 202455 min

Ep 90Stigahæsti skákmaður landsins: Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari

Gestur þáttarins er Vignir Vatnar Stefánsson stórmeistari og langstigahæsti skákmaður landsins. Vignir er 21 árs gamall, hann er atvinnumaður í skák og er stofnandi og eigandi vefsíðunar http://www.vignirvatnar.is en þar er að finna mikið og gott kennsluefni í skák fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Kjartan Briem formaður skákdeildar Breiðabliks kíkti einnig í heimsókn í byrjun þáttarins en hann kemur svo aftur sem gestur þann 23. október nk. Vignir Vatnar fór yfir skákárið hjá sér en hann hefur teflt yfir 100 kappskákir í sumar, nefndi mótin, sagði frá sterkum mótherjum sem hann mætti, markmiðunum sem hann hefur sett sér og sagði frá vefsíðu sinni og mörgu fleira.

Oct 9, 202457 min

Ep 89Ólympíumótið og Íslandsmót skákfélaga: Þorsteinn Þorsteinsson liðsstjóri Taflfélags Vestmannaeyja

Gestur Kristjáns Arnar er Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs hjá RÚV og núverandi ritstjóri Hagstofu Íslands. Þorsteinn er liðsstjóri Taflfélags Vestmannaeyja; hann er FIDE meistari og einn af betri skákmönnum landsins.Í þættinum fer Þorsteinn yfir Ólympíumótið í skák og einstaka árangur hvers liðsmanns íslensku liðanna. Mótinu lauk fyrir nokkrum dögum en teflt var í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Þorsteinn segir að bjóða þurfi upp á sterk lokuð alþjóðleg skákmót hér á Íslandi fyrir okkar bestu skákmenn, að þeir þurfi að fá tækifæri til að tefla vel upp fyrir sig. Hann segir að fyrirkomulagið á opna Reykjavíkurskákmótinu henti þeim ekki og vill gera breytingar á mótinu á þann hátt að einnig sé keppt í lokuðum sterkum flokkum samhliða mótinu. Síðar í þættinum er fjallað um Íslandsmót skákfélaga sem hefst á morgun, fimmtudag. Það verða um 400 manns sem sitja munu að tafli í 5 deildum yfir helgina en keppt verður í Rimaskóla í Grafarvogi. Í lok þáttar minnist Þorsteinn vinar síns, FIDE meistarans Elvars Guðmundssonar sem lést 14. september sl. og tileinkar honum lagið The Rain Song með Led Zeppelin en þeir félagarnir héldu mikið upp á hljómsveitina Led Zeppelin.

Oct 2, 202453 min

Ep 88Tímaritið Skák: Gauti Páll Jónsson sagnfræðingur og ritstjóri

Gauti Páll Jónsson er gestur Kristjáns í þessum þætti. Tímaritið Skák kemur út í næstu viku eða á sama tíma og fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga hefst í Rimaskóla. Þeir félagar fara inn á efnistök nýjasta blaðsins og annað skáktengt efni en ritstjórinn vildi þó ekki greina frá öllu efni tímaritsins og segir að það sé fyrir kaupendur blaðsins að lesa og skoða. Blaðið verður til sölu í Rimaskóla um næstu helgi eða á meðan Íslandsmótið fer þar fram.

Sep 25, 202451 min