PLAY PODCASTS
Við skákborðið

Við skákborðið

175 episodes — Page 4 of 4

Ep 25Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra - Afmælishátíð Fischersetursins

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra kom í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Hann talaði um Bobby Fischer, Friðrik Ólafsson og fyrirhugaða skákhátið á Selfossi um næstu helgi í tengslum við 10 ára afmæli Fischersetursins. Guðni sagði frá hvenær og hvernig áhugi hans á skák hefði kviknað, kynni hans af skáklífinu á Suðurlandi, sterkum skákmönnum í Hraungerðishreppi, á Stokkseyri og á Alþingi. Einnig greindi Guðni frá að pólitísk andstaða hefði verið innan ríkisstjórnarinnar og á meðal æðstu embættismanna um að bjóða Bobby Fischer dvalarleyfi á Íslandi. Hann talaði um dramtíska eftirmála sem þeirri ákvörðun fylgdi en Fischer var veittur íslenskur ríkisborgararéttur þann 22. mars 2005. Guðni telur að sú ákvörðun Alþingis hafi m.a. stuðlað að fyrirvaralausu brotthvarfi varnarliðsins á Miðnesheiði þann 30. september 2006. Margt fleira áhugavert og skemmtilegt kom fram í tali þeirra Guðna og Kristjáns Arnar.

Jul 5, 202351 min

Ep 24Björn Ívar Karlsson FIDE meistari og skákþjálfari í skemmtilegu skákspjalli

Björn Ívar Karlsson, FIDE-meistari og skákþjálfari, kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans ,,Við skákborðið". Hann sagði frá ýmsu eftirminnilegu á skákferli sínum og ferðalagi um heiminn, rottugangi í Moskvu, týndum farangri og strangri öryggisgæslu í Bakú, ráni í Búdapest, hnitmiðuðum undirbúningi á heimsmeistaramóti ásamt ýmsu öðru. Hann sagði frá kynnum sínum af þekktum skákmeisturum og kynlegum kvistum í gegnum tíðina og kom einnig inn á starf sitt við beinar útsendingar og tæknimál fyrir Skáksambandið.

Jun 28, 20231h 2m

Ep 23Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Björn Ívar Karlsson ræða stöðu stúlkna og kvenna í skák og skákþjálfun barna og unglinga

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, varaforseti Skáksambands Íslands og landsliðskona í skák og Björn Ívar Karlsson FIDE meistari, skákþjálfari og fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna í skák kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Þau ræddu stöðu stúlkna og kvenna í íslenskri skákhreyfingu, skákþjálfun barna og unglinga bæði í grunnskólum og hjá skákfélögunum sjálfum og fóru inn á mikilvægi þess að skapa aðstæður þar sem allir geti greint frá atburðum, myndað vinasambönd, og tjáð tilfinningar sínar og hugsanir - þannig yrði framtíðin ávallt björt í íslensku skáklífi.

Jun 21, 20231h 1m

Ep 22Valbjörn Jónsson og Björgvin Víglundsson - krafa um skýrari stefnu um ráðstöfun fjármuna í skákhreyfingunni

Valbjörn Jónsson, stöðvarstjóri heilsuræktarstöðvarinnar World Class í Árbæ, fyrrverandi bakari og fyrrverandi Íslandsmeistari í vaxtarrækt og Björgvin Víglundsson skákmeistari og byggingaverkfræðingur kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Þeir félagar og frændur töluðu um stórmeistarann Vignir Vatnar og trú þeirra á að hann hafi bæði vilja og getu til að ná langt í skákinni. Þeir segja að skákhreyfingin þurfi að standa betur við bakið á barna- og unglingastarfi en gert er. Þeir ræddu styrktarsjóð Sigtryggs Sigurðssonar glímukappa og að skoða þurfi betur hvernig fjármunum skákhreyfingarinnar sé ráðstafað. Val Skáksambands Íslands á landslið kom til tals, kallað var eftir skýringum sambandsins á fjarveru stórmeistarans Héðins Steingrímssonar í landsliðinu mörg undanfarin ár en hann hefur lengi verið á meðal sterkustu stórmeistara Íslendinga. Þeir ræddu um áherslubreytingar varðandi laun stórmeistara, öflugt starf eldri skákmanna, skákmót í Breiðfirðingabúð hér á árum áður og margt fleira.

Jun 14, 202356 min

Ep 21VignirVatnar.is - Benedikt Briem og Vignir Vatnar kíktu í skemmtilegt spjall

Ungu vinirnir Vignir Vatnar Stefánsson, nýjasti stórmeistari okkar Íslendinga og nýkrýndur Íslandsmeistari í skák, og hinn efnilegi skákmaður og "tæknigúru" Benedikt Briem kíktu í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans "Við skákborðið". Félagarnir sögðu m.a. frá nýrri vefsíðu sem þeir eru að setja í loftið í næstu viku á léninu www.vignirvatnar.is. Á vefsíðunni verður boðið upp á nokkur hundruð kennslumyndbönd í skák og verða þau öll á íslensku. Einning ræddu þeir um Íslandsmótið í skák sem lauk fyrir hálfum mánuði, íþróttir, framgöngu ungra og efnilegar stúlkna í skák, framtíðarsýn þeirra félaga um skipan landsliðsmála, "Briem-vélina" og margt annað hresst og skemmtilegt.

Jun 7, 202353 min

Ep 20Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák - síðari hluti

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þessi þáttur er sá síðari af tveimur þáttum. Þeir félagarnir ræddu m.a. um Íslandsmótið í skák sem er nýlokið en sérstaka úrslitakeppni þriggja efstu manna þurfi til að skera úr um sigurvegara, ferðalag Sigurbjörns til Belgrad í Serbíu þar sem hann var liðsstjóri Íslendinga á sérstöku Ólympíumóti 16 ára og yngri, áhrif skákar á dægurmenningu á Íslandi, EM taflfélaga, einvígi Mikail Tals og Mikhail Botvinnik um heimsmeistaratitilinn í skák og margt annað fróðlegt og skemmtilegt.

May 31, 202355 min

Ep 19Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák - fyrri hluti

Sigurbjörn J. Björnsson FIDE-meistari, fyrrverandi skákbókasali og þaulreyndur keppnismaður í skák heimsótti Kristján Örn Elíasson í stúdíóið á Útvarpi Sögu í þátt hans Við skákborðið. Þeir félagarnir ræddu m.a. um þróun skákarinnar frá 1990 og til dagsins í dag, einvígi Jóhanns Hjartarsonar við Viktor Korchnoi árið 1988, Skákþing Reykjavíkur og umgjörð þess, skákferðalög Sigurbjörns um Evrópu og Asíu, mót í Pardubice og Olomouc í Tékklandi, knattspyrnuleiki skákmanna á skákmótunum erlendis og margt annað fróðlegt og skemmtilegt

May 23, 202353 min

Ep 18Bragi Halldórsson fyrrverandi kennari við Mennaskólann í Reykjavík, íslenskufræðingur, þýðandi og skákbókahöfundur

Kristján Örn Elíasson fær til sín Braga Halldórsson fyrrverandi kennara við Menntaskólann í Reykjavík, íslenskufræðing, þýðanda og skákbókahöfund. Þær félagarnir ræða skákferil Braga, störf hans fyrir skákhreyfinguna, samferðamenn og margt fleira.

May 17, 202354 min

Ep 17Tryggvi Leifur Óttarsson og Ingvar Þór Jóhannesson skákblaðamaður

Gestir skákþáttarins eru þeir Tryggvi Leifur Óttarsson formaður Taflfélags Snæfellsbæjar (og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fiskimarkaðar Íslands nú búsettur í Svíþjóð) og Ingvar Þór Jóhannesson og landsliðsþjálfari kvenna í skák. Farið verður yfir fjölmennt og vel skipað minningarmót um Hrafn Jökulsson og Ottó Árnason sem fram fór í Ólafsvík um síðustu helgi. Einnig verður Íslandsmótinu í skák, sem hefst á mánudaginn næstkomandi, gerð góð skil en mótið í ár verður eitt það sterkasta í sögu Íslandsmótanna. Af tólf keppendum eru átta stórmeistarar en þeirra á meðal er Hannes Hlífar Stefánsson sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák.

May 10, 202356 min

Ep 16Oddgeir Ágúst Ottesen yfirþjálfari skákdeildar KR

Kristján Örn Elíasson fær til sín Oddgeir Ágúst Ottesen yfirþjálfara skákdeildar KR og ræða þeir m.a. um barna- og unglingastarfið hjá KR, skákhátíðina miklu á Selfossi 2019 þar sem 10 fyrrum heimsmeistarar teflu í lokuðum flokki, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem er nýlokið en því lauk laugardaginn 29. apríl sl. og fleira áhugavert.

May 3, 202356 min

Ep 15Magnús Pálmi Örnólfsson og Guðmundur Magnús Daðason

Bolvíkingarnir og skákmeistararnir Magnús Pálmi Örnólfsson hagfræðingur MBA og Guðmundur Magnús Daðason sjávarútvegsfræðingur voru gestir Kristjáns Arnar Elíassonar í þættinum Við skákborðið í dag

Apr 26, 202353 min

Ep 14Bræðurnir og skákmeistararnir Bragi og Björn Þorfinnssynir koma í heimsókn

Kristján Örn fær til sín bræðurna Braga og Björn Þorfinnssyni en þeir eru sterkustu skákbræður Íslands. Bragi er stórmeistari og Björn er alþjóðlegur meistari í skák. Þeir ræða um unglingsárin sín í skákinni, koma aðeins inn á Reykjavíkurskákmótið, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem er nýhafið í Astana Kasakstan, ferðir á Ólympíumót, fyrirkomulag landsliðsflokks í skák og fleira áhugavert.

Apr 19, 202359 min

Ep 13Reykjavíkurskákmótið og heimsmeistaraeinvígið - Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák

Kristján Örn fær til sín Ingvar Þór Jóhannesson aðstoðarmótsstjóra nýlokins Reykjavíkurskákmóts, FIDE meistara og landsliðsþjálfara kvenna í skák. Þeir ræða um Reykjavíkurskákmótið, heimsmeistaraeinvígi Ding Liren og Ian Nepomniachtchi sem nýhafið er í Astana Kasakstan, ferðir á Ólympíumót, kvennaskák á Íslandi og fleira.

Apr 12, 202353 min

Ep 12Einar S. Einarsson fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands og fyrrverandi forstjóri VISA Íslands

Kristján Örn fær til sín Einar S. Einarsson fyrrverandi forseta Skáksambands Íslands og fyrrverandi forstjóra VISA Íslands. Þeir ræða m.a. um "gömlu góðu dagana" í skákinni, taflmennsku hjá eldri borgurum, samstarf Einars við Hrafn Jökulsson og frelsun Bobby Fischer fyrrverandi heimsmeistara í skák úr japönsku fangelsi.

Apr 5, 20231h 0m

Ep 11Reykjavíkurmótið - Ríkharður Sveinsson og Eiríkur Björnsson

Kristján Örn fær til sín Ríkharð Sveinsson formann Taflfélags reykjavíkur og Eirík Björnsson framhaldsskólakennara og stjórnarmann Taflfélags Reykjavíkur. 29. mars 2023

Mar 29, 202354 min

Ep 10Gunnar Björnsson forseti Skáksambands Íslands og Halldór Grétarsson FIDE meistari og stofnandi Skákdeildar Breiðabliks

Í fyrri hluta þáttarins ræðir Kristján Örn Elíasson við Gunnar Björnsson forseta Skáksambands Íslands um starf Sambandsins, hann sjálfan og Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið 2023. Í síðari hluta þáttarins ræðir Kristján Örn við Halldór Grétar Einarsson FIDE meistara og stofnanda Skákdeildar Breiðabliks um alþjóðlega skákmeistarann Vignir Vatnar Stefánsson en Vignir, sem er félagsmaður í Skákdeild Breiðbliks, náði sínum síðasta áfanga að stórmeistaratitli í morgun er hann sigraði á opnu skákmóti í Serbíu. Vignir Vatnar verður því útnefndur stórmeistari af FIDE í lok apríl eða byrjun maí.

Mar 22, 202356 min

Ep 9Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák og Dagur Ragnarsson nýbakaður alþjóðlegur meistari

Í þessum þætti koma þeir Ingvar Þór Jóhannesson FIDE meistari og landsliðsþjálfari kvenna í skák og Dagur Ragnarsson nýbakaður Alþjóðlegur meistari. Rætt verður m.a. um síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem fer fram í höfuðstöðvum Fjölnis í Egilshöll um næstu helgi.Einnig verður komið inn á stóra "svindlmálið" sem kom upp í fyrra en ríkjandi heimsmeistari Magnus Carlsen sakaði þá Bandaríkjamanninn Hans Niemann um að hafa svindlað gegn sér í afar sterku skákmóti. Þá segir Carlsen að Niemann hafi gjörsamlega pakkað honum saman í skákinni á Sinquefield-mótinu þar sem málið hófst en eins og frægt er hætti Carlsen í fyrsta sinn á ferlinum í skákmóti eftir að hafa tapað skákinni.

Mar 15, 202354 min

Ep 8Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands #2

Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands #2

Mar 8, 202348 min

Ep 7Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands #1

Helgi er einn sigursælasti skákmaður íslands og hefur orðið Íslandsmeistari sex sinnum í kappskák, fimm sinnum í hraðskák og fjórum sinnum í atskák! Helgi varð alþjóðlegur meistari FIDE 1978 og alþjóðlegur stórmeistari 1985. Árið 2009 var Helgi útnefndur FIDE senior trainer sem er æðsti þjálfaratitill Alþjóðaskáksambandsins. Helgi er skólastjóri Skákskóla Íslands.

Mar 1, 202353 min

Ep 6Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák

Helgi Áss Grétarsson stórmeistari í skák, fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri aðeins 17 ára gamall árið 1994 er gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum þætti.

Feb 22, 20231h 1m

Ep 5Gauti Páll Jónsson ritstjóri tímaritsins Skákar

Viðtal við Gauta Pál Jónsson varaformanns elsta og stærsta skákfélags landsins, Taflfélags Reykjavíkur og ritstjóri tímaritsins Skákar. Gauti Páll sem er annálaður skákáhugamaður segir frá sjálfum sér, starfinu í Taflfélagi Reykjavíkur og ræðir um tímaritið Skák sem hann ritstýrir.

Feb 15, 202353 min

Ep 4Guðmundur G. Þórarinsson - einvígi aldarinnar

Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur og fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands segir frá uppvaxtarárum sínum, ræðir um skák og segir frá "einvígi aldarinnar" sem háð var í Laugardalshöll árið 1972 á milli þáverandi heimsmeistara í skák, Boris Spassky og Robert Fischer.

Feb 8, 20231h 0m

Ep 3Næsti stórmeistari - Vignir Vatnar og Halldór Grétar

Kristján Örn Elíasson fær til sín í stúdíóðið þá Vigni Vatnar Stefánsson alþjóðlegan meistara í skák og Halldór Grétar FIDE meistara en þeir ræða m.a. stefnu Vignis á að verða næsti stórmeistari Íslendinga í skák - strax á þessu ári!

Feb 1, 20231h 1m

Ep 2Helgi Árnason fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla

Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla ræðir við Kristján Örn Elíasson stjórnanda þáttarins Við skákborðið um markvissa þjálfun Rimaskóla og skákdeildar Fjölnis en margar rannsóknir hafa sýnt að skákin er ekki bara skemmtileg heldur hefur margvísleg bætandi áhrif á námsárangur og félagsfærni.

Jan 25, 202354 min

Ep 1Björn Þorfinnsson alþjóðlegur skákmeistari

Björn Þorfinnsson alþjóðlegur meistari í skák í skemmtilegu viðtali.

Jan 18, 202357 min