PLAY PODCASTS
Vinaskákfélagið: Hörður Jónasson forseti og Róbert Lagerman gjaldkeri
Episode 78

Vinaskákfélagið: Hörður Jónasson forseti og Róbert Lagerman gjaldkeri

Við skákborðið · Útvarp Saga

August 7, 202458m 3s

Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.

Show Notes

Gestur Kristjáns Arnar í skákþættinum í dag er Hörður Jónasson, forseti Vinaskákfélagsins en Vinaskákfélagið hlúir að skáklífinu í Vin jafnframt því að efna til viðburða í þágu fólks með geðraskanir í samvinnu við athvörf, búsetukjarna, geðdeildir, félagsamtök og einstaklinga. Í síðari hluta þáttarins spjalla þeir einnig símleiðis við Róbert Lagerman gjaldkera Vinaskákfélagsins og fyrrverandi forseta þess en hann er nýkominn heim úr enn einni skákferðinni til Grænlands. Í þættinum segir Hörður frá hvernig hann kynntist skákinni fyrst, hvernig hann hóf að vinna fyrir Vinaskákfélagið, var kosinn í stjórn þess og tók loks við embætti forseta félagsins árið 2022. Hörður fór yfir tilgang, stefnu og markmið Vinaskákfélagsins og segir það öðruvísi en flest önnur skákfélög. Hann talaði um alþjóðlega geðheilbrigðismótið, jólaskákmótið á Kleppi, heimsóknir í athvörf og  búsetukjarna til að gefa skáksett og klukkur, Hrafn Jökulsson og fleira gott fólk sem kom að stofnun Vinaskákfélagsins árið 2003 og hefur starfaði og keppt fyrir félagið.

Topics

skákspjallviðtölskákfréttir