PLAY PODCASTS
Filippseyjar og Íslandsmótið í netskák: Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson
Episode 79

Filippseyjar og Íslandsmótið í netskák: Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson

Við skákborðið · Útvarp Saga

August 14, 202456m 5s

Audio is streamed directly from the publisher (media.transistor.fm) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.

Show Notes

Gestir þáttarins eru skákmeistararnir Þorvarður Fannar Ólafsson og Birkir Karl Sigurðsson. Þorvarður hefur margoft heimsótt Filippseyjar en eiginkona hans er ættuð frá borginni San Carlos sem er á eyju sem heitir Negros. Hann segir sögu af ferðalagi sínu á fjölmennt helgarskákmót sem haldið var í borginni Bacolod og  kynnum sínum af grjóthörðum filippseyskum skákmönnum. Þorvarður segir það algengt að teflt sé upp á peninga í verslunarmiðstöðvum og því oft viðhöfð ýmis brögð í tafli eins og að hagræða úrslitum á efstu borðum í lokaumferðum skákmóta. Í síðari hluta þáttarins var slegið á línuna til Birkis Karls Sigurðssonar þáttastjórnanda hjá Chess After Dark en hann hefur komið að skipulagningu á Íslandsmótinu í netskák sem hefst 25. ágúst nk. Óánægju hefur orðið vart hjá einhverjum skákmönnum þar sem 13 keppendur af 16 fá boðsæti beint í útsláttarkeppnina og þurfa því ekki að tefla í sjálfri undankeppninni eins og aðrir skákmenn til að tryggja sér sæti í mótinu. Þrír af sterkustu netskákmönnum landsins fengu ekki boð en það eru alþjóðlegu meistararnir Arnar Gunnarsson, Jón Viktor Gunnarsson og Davíð Kjartansson en þeir hafa margoft orðið Íslandsmeistarar í netskák og staðið uppi sem sigurvegarar á sterkum netskákmótum undanfarin ár. Einnig hefur það vakið athygli að Rafíþróttasamband Íslands heldur mótið en ekki Skáksamband Íslands. Há peningaverðlaun eru í boði en verðlaunafé er ein milljón króna og verður sýnt beint frá mótinu í Sjónvarpi Símans. Heyra má svar Birkis Karls við ofangreindum athugasemdum í þættinum.

Topics

skákspjallviðtölskákfréttir