
Fotbolti.net
2,774 episodes — Page 37 of 56

Miðjan - Rauði Baróninn á mannamáli
Garðar Örn Hinriksson eða Rauði Baróninn eins og hann er oft kallaður er einn besti dómari sem hefur dæmt hér á landi. Hann hefur þó komið víða við, hefur gert það gott í tónlist, leikið í bíómynd og rekið slúðurvef. Hann glímir í dag við Parkinson sjúkdóminn og hefur vakið athygli fyrir pistlaskrif um fótbolta. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Dómarar aldrei heiðraðir fyrir sín störf - Leikmenn eltu hann inn í skóla eftir fyrsta leikinn - Gaf sex rauð spjöld og flautaði leikinn af - Viðurnefnið Rauði Baróninn - Skítaheimur og sleikjuháttur að vera FIFA dómari - Sagði eftirlitsmönnum á Íslandi að halda kjafti - Í stríði við Gilzenegger og sakaður um að hata Skagann - Baráttan við Guðjón Þórðarson - Rautt spjald fyrir að tala króatísku - Spjaldaði áhorfendur á Selfossi - Tvisvar næstum því búinn að berja leikmenn í leik - Hótanir stuðningsmanna - Dóttir hans lenti í einelti útaf dómgæslu hans - Tilbúinn að hlaupa nakinn með Gilzenegger í Kringlunni - Ásakanir um rasisma - Hætti að dæma eftir viðtal Kidda Jak um form dómara - Leið eins og 12 ára píu á Justin Bieber tónleikum - Sló í gegn sem söngvari um aldamótin - Lék straight eða gay fótboltamann í bíómynd - Glíman við Parkinson sjúkdóminn - Búinn að skrifa ævisöguna og stefnir á útgáfu

Fantabrögð - 28. Umferð - VAR Gylfi rangstæður?
Hörmung. Það er 28. umferðin í einu orði. Hörmung. Alltof margir góðkunningjar Fantabragða annað hvort spiluðu ekki eða byrjuðu á bekk og má þar nefna Jamie Vardy, Danny Ings og Joe Gomez. Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í vetur, fjögur lið áttu ekki leik og þetta gerði m.a. að verkum að þessi umferð var sú langlélegasta í vetur og var meðalskor spilara 26 stig. Liðsmenn Fantabragða áttu ólíku gengi að fagna og líkur eru á rage wildcardi. Við tókum VAR umræðuna í dómarahorninu og spáðum í spilin fyrir komandi umferðir.

Innkastið - Liverpool lendir á vegg og Pep lyftir bikar
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir með nýtt Evrópu-Innkast sent út beint frá höfuðborginni. Í þættinum er farið yfir El Clasico og úrslitaleik enska deildabikarsins. Óvænt úrslit í ensku úrvalsdeildinni, dónaskapur í Þýskalandi og veira herjar á Evrópuboltann.

Ótímabæra 1. deildarspáin og fréttir vikunnar
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas fengu Baldvin Már Borgarsson, sérfræðing um 1. deildina, til að setja saman ótímabæra spá fyrir keppni sumarsins. Þá var farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum, burst Breiðabliks gegn ÍA, tíðindalaust ársþing og fleira.

Helgi Sig og verkefnið í Vestmannaeyjum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Helgi Sigurðsson, þjálfari ÍBV, var gestur þáttarins og ræddi um verkefni hans framundan í Vestmannaeyjum. Leikmannamál, viðskilnaðurinn við Fylki, Gary Martin, blómvöndurinn, kórónaveiran og fleira kom við sögu í spjalli við Helga.

Helgin í Evrópuboltanum - Tómas heimsótti Everton
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir það sem er í boði um helgina í Evrópufótboltanum. Þá kom Tómas með ferðasögu en hann heimsótti Everton í vikunni og spjallaði við Gylfa Sigurðsson, Grétar Rafn Steinsson og fleiri.

Fantabrögð - 27. umferð - Bruno mætir á svæðið
27. umferðin í Fantasy Premier League var sannkölluð hauskúpuumferð framan af, en rættist úr eftir því sem á leið og flestir spilarar náðu að tína inn nokkur stig þegar Liverpool vann West Ham 3-2. Bruno Fernandes sýndi frammistöðu sem réttlætir kaup á honum, meðan Everton bræðurnir Calwert-Lewin og Richarlison skoruðu báðir. Framundan er 28. umferðin þar sem 4 lið "hvíla". Hvað gerir maður þá? Er í lagi að selja City menn - borgar sig kannski að bíða fram á föstudag? Er Aubameyang skyldueign eftir komandi umferð? Allt þetta í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.

Innkastið - Bruno slær í gegn og versta VAR helgin
Evrópu-Innkastið er mætt á svæðið eftir leiki helgarinnar en Magnús Már Einarsson var umsjónarmaður þáttarins að þessu sinni. Jóhann Skúli Jónsson, stuðnigsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, mættu og fóru yfir öll helstu tíðindin á Englandi og í stærstu deildum Evrópu. Meðal efnis: Ný hetja á Old Trafford, Evrópudeildin er leið Man Utd í Meistaradeild, frábær Giroud, fúll Mourinho, versta VAR helgin, fögn á Emirates, galin hárgreiðsla Mustafi, spennandi fallbarátta, kóróna veiran, 18 ára Íslendingur í Serie A, Haaland raðar áfram inn, óvænt tap Real Madrid, galin félagaskipti Barcelona, mögnuð Meistaradeildarvika og margt fleira.

Kári klár í slaginn - Gestur vikunnar í útvarpsþættinum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Gestur þáttarins er Kári Árnason, landsliðsmaður og leikmaður Víkings. Það er rúmlega mánuður í umspilsleikinn mikilvæga gegn Rúmeníu en sigurliðið mun leika gegn Ungverjalandi eða Búlgaríu ytra, hreinan úrslitaleik um sæti á EM 2020.

Útvarpsþátturinn í heild - 22. febrúar
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 22. febrúar 2020. Tómas Þór og Benedikt Bóas stóðu vaktina. Þeir ræddu um helstu fótboltafréttir vikunnar og spjölluðu við umboðsmanninn Cesare Marchetti um málefni Harðar Inga Gunnarssonar. Gestur þáttarins var Kári Árnason.

Heimavöllurinn - Íslenskur undirbúningsvetur hefst með látum
Heimavöllurinn er mættur aftur, öflugri sem aldrei fyrr. Í þætti dagsins er farið um víðan völl enda nóg um að vera í boltanum. Knattspyrnuþjálfarinn Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur að þessu sinni og fara þær saman yfir það sem af er undirbúningstímabilinu, ræða nýjasta landsliðsvalið og taka stöðuna á atvinnukonunum okkar svo fáeint sé nefnt.

Fantabrögð - 26. umferð - Frestun og frústrasjón
26. umferð einkenndist af óreiðu þar sem langt var á milli leikja vegna vetrarfrís. Það sauð á strákunum sem treystu Aguero fyrir fyrirliðabandinu. Enn einu sinni brást það. Nicolas Pepe minnti á sig með 17 stig. Styttist í takmarkaða umferð (blank gameweek) og nú þarf að fara að gera ráðstafanir. Hverju þarf að huga að? Hvað á að gera við Son? Er Man Utd vörnin vöknuð?

Miðjan - Atli Jónasson um áföll, agabrot og fleira
Það stefndi lengi í að Atli Jónasson yrði framtíðar markvörður KR en á leiðinni kom ýmislegt uppá sem varð á endanum til þess að hann spilaði bara einn leik í efstudeild. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunar á Fótbolta.net í dag.

Innkastið - VAR fellur með Man Utd og Arsenal fer með himinskautum
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru mættir með Evrópu-Innkastið þessa vikuna. Ýtt var á upptöku strax eftir leik Chelsea og Manchester United og leikurinn gerður upp. Lampard hættur að vera töff, Wan-Bissaka í Allir geta dansað, bannið hjá Manchester City, svakaleg frammistaða Arsenal, fallfnykur Villa, skemmtilegasta lið Championship, Immobile og gjörsamlega fáránleg undanþága í La Liga.

KSÍ merkið umdeilda og bestu og verstu vellirnir
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Í byrjun: Jón Kári Eldon fer yfir nýja KSÍ merkið sem hefur fengið mikla gagnrýni. 14:00 Elvar og Tómas opinbera niðurstöðu í vali áhorfenda á bestu og verstu völlum Pepsi Max-deildarinnar. 39:00 Viktor Bjarki, aðstoðarþjálfari HK, í viðtali.

Fótboltapólitíkin - Taprekstur KSÍ stórt áhyggjuefni
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, ræddi við Elvar og Tómas um komandi ársþing KSÍ og helstu málin sem þar verða rædd. Í gær var ársreikningur KSÍ opinberaður en 50 milljóna króna tap var á rekstrinum og gert er ráð fyrir áframhaldandi taprekstri.

Man City í tveggja ára bann - Hvað gerist næst?
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu um tveggja ára bannið sem Manchester City var dæmt í fyrir að brjóta fjárhagsreglur. Manchester City var í gær dæmt í bann frá Evrópukeppnum í fótbolta næstu tvö keppnistímabil, og sektað um 30 milljónir evra. Refsingin er fyrir brot á reglum um fjárhagslega háttvísi. Forráðamenn City eru vonsviknir yfir ákvörðun UEFA, þó hún komi þeim ekki á óvart, og ætla að áfrýja niðurstöðunni til alþjóða íþróttadómstólsins, CAS.

Miðjan - Jón Páll frá Pacman Pizza til Ólafsvíkur
Jón Páll Pálmason hefur þjálfað meistaraflokkslið í tíu ár þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall en hann tók við Víkingi Ólafsvík í vetur af Ejub Purisevic sem hafði stýrt liðinu síðan í upphafi aldarinnar. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunar á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Þjálfaði tónlistarmanninn Auður - Fannst hann hafa brugðist þegar Orri féll fyrir eigin hendi - Glímdi sjálfur við þunglyndi - 27 ára í fyrsta meistaraflokks starfinu - Bjargaði tveimur stigum með að hlaupa inn á völlinn og fá rautt - Fór í Mourinho leik og kallaði dómarann heigul - Missti starfið í kjölfar drykkju leikmanna á karlaleik - Þjálfaði Maríu Þórisdóttur í Klepp - Framkvæmdastjórinn var bleiki fíllinn hjá Stord - Fór til USA að leita að leikmönnum en fann konuna sína - Var að ná fyrstu æfingu Víkings Ó á fótboltavelli - Ólsarar fengu köttinn í sekknum frá Jórdaníu - Sagðist vera læknir og sjúkraþjálfari og sendi hann heim - Víkingur Ó ætlar að skora 50 mörk í sumar

Gummi Tóta og leiðin til New York
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Þórarinsson var búinn að pakka takkaskónum og kassagítarnum og var á leið til Tyrklands þegar málin tóku óvænta stefnu. Hann samdi nýlega við New York City. Gummi Tóta fór yfir aðdragandann að þessum félagaskiptum og sagði meðal annars frá áhuga liðs í ítölsku A-deildinni. Þá ræddi hann um efasemdarraddir þess efnis að hann sé í fótboltanum af heilum hug.

Siggi Raggi og líflegur tími með landslið Kína og Íslands
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur, kom í heimsókn og ræddi meðal annars um tíma sinn sem landsliðsþjálfari kvennaliða Kína og Íslands. Óhætt er að segja að Siggi Raggi hafi átt líflegan þjálfaraferil þar sem ýmislegt hefru gengið á og hann þurft að takast á við nýjar áskoranir.

Íslenski boltinn - Áhugaverður leikmaður fer norður
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir tíðindi vikunnar í íslenska boltanum og spjölluðu við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um aðstöðuleysi fyrir norðan og nýjan áhugaverðan leikmann.

Miðjan - Ragna Lóa: Vakna þú mín þyrnirós
Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur komið víða í fótboltaheiminum, var frábær fótboltakona og landsliðskona, lenti í hræðilegum meiðslum en varð síðar footballers wife í Englandi. Í dag er hún aðstoðarþjálfari KR. Hún er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjunni. Meðal efnis: - Engir yngri flokkar en var í hverfisliði með Óla Þórðar og Sigga Jóns - Tók við þjálfun meistaraflokks ÍA tvítug - Þjálfaði Laxdal bræður í Stjörnunni - Spilandi þjálfari í KR, í landsliðinu og að ala upp börn - Fótbrotið - Sofandi í öndunarvél þegar KR sem hún þjálfaði tryggði sér titilinn - Vaknaði með bikarinn og skilaboðin: „Vakna þú mín Þyrnirós" - Svangar með vændiskonum og glæpamönnum í Rússlandi - Vinsæl footballers wife í rútuferðum á Englandi - Hélt partý í húsi eiganda Crystal Palace meðan hann var úti að borða - Nennti ekki að spjalla við son Sir Alex Ferguson - Í slúðurblöðunum sem viðhald Sol Campbell - Vildi ekki verða aðalþjálfari KR í fyrra - Ein kona og 106 karlar að þjálfa meistaraflokkslið á Íslandi - Ída Marín valdi Val en stefnir til Englands

Fantabrögð - 25. umferð - Kaup og Salah
Skelfingarumferð dundi yfir þá sem höfðu bandið ekki á Salah. Agüero gat ekkert. Sterling getur ekkert. Dularfullt mannshvarf í Leicester. Eina sem er öruggt í þessum heimi er að Sheffield heldur hreinu. Stigahæstir í þessari umferð í Budweiser deildinni voru þeir Kristján Breiðfjörð með liðið FC Breiði Reiði og Bjarni Ben Kristjánsson með liðið Scholes scores goals. Hafið samband við [email protected] til að vitja vinninga.

Innkastið - Draumur að Liverpool tryggi titilinn á Goodison Park
Það var Liverpool þema í Evrópu Innkastinu að þessu sinni en þeir Sigursteinn Brynjólfsson, Einar Matthías Kristjánsson og Magnús Þór Jónsson frá kop.is kíktu í heimsókn og ræddu við Magnús Má Einarsson. Mikil umræða var um topplið Liverpool og aðra leiki helgarinnar á Englandi auk þess sem kíkt var á stærstu deildir Evrópu.

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Pepsi Max-deildina
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi Max-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma! Þá völdu þeir þá leikmenn sem þeir eru spenntastir fyrir að fylgjast með á þessu ári.

Í beinni frá Katar - Staða mála hjá Heimi og Aroni
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas ræddu stuttlega um gervigrasið í Egilshöll og félagaskipti Odion Ighalo til Manchester United. Svo var Mitch Freeley, íþróttafréttamaður beIN SPORTS í Katar á línunni. Illa hefur gengið hjá Al-Arabi, liði Heims Hallgrímssonar og Arons Einars Gunnarssonar, að undanförnu. Hverjar eru væntingarnar hjá Al-Arabi og hvernig er staða Heimis? Mitch svaraði því.

Innkastið - Menn í svörtu sem ofsækja Woodward
Elvar og Daníel tóku Evrópu-Innkast með frjálsri aðferð. Hverjir eru mennirnir sem réðust að heimili Ed Woodward? Elvar fór ofan í málið. Kobe Bryant minnst, Liverpool á leið í frí, bikardráttur, mestu vonbrigði tímabilsins, kaupin sem gætu átt sér stað og ýmislegt fleira í þættinum að þessu sinni.

Miðjan - Mikki um endurkomu í þjálfun með Njarðvík
Mikael Nikuláson hefur vakið athygli í podcastþættinum Dr. Football undanfarin misseri. Hann tók við þjálfun 2. deildar liðs Njarðvíkur í haust eftir 10 ára fjarveru úr þjálfun. Hann er gestur í podcastþættinum Miðjunni þessa vikuna. Meðal efnis: - Hætti í fótbolta í fjögur ár til að djamma og vinna í tískubransanum - Stoltur af endurkomu í frábært Fylkis lið - Útihlaupin hjá Óla Þórðar - Fyrstu árin í þjálfun með ÍH - Skilur ekki afhverju Brynjar markvörður yfirgaf félagið - Búið að semja við Rúnar um að verja mark Njarðvíkur - Er að semja við Sean De Silva sem lék með Haukum í fyrra - Ætlar upp í 1. deild og spila á sama hóp þar - Eins og David Beckham á djamminu eftir að Dr. Football hófst - Ræddi við Guðmann Þórisson um að koma í Njarðvík - Kemur Hjörvar Hafliðason í þjálfarteymið?

Útvarpsþátturinn - Tveir mánuðir í umspilsleikinn
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. janúar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um íslenska landsliðið, nú þegar tveir mánuðir eru í undanúrslitaleikinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM. Þeir ræddu ítarlega við Frey Alexandersson, aðstoðarþjálfara landsliðsins, sem var gestur þáttarins. Kiddi vallarstjóri var einnig á línunni og staðan tekin á Laugardalsvelli nú þegar stutt er í leikinn mikilvæga. Þýski og enski boltinn voru líka til umræðu í þættinum.

Fantabrögð - 24. umferð - Manísk umferð
Það var sannkölluð jarðarfararstemning í upptökuverinu í kvöld. Bragðarefirnir kröfðust þess að fá umfjöllun um umferðina STRAX. Fyrirliði þáttarins, Gylfi, ræsti Tind með sér sem gestastjórnanda um miðja nótt til að gera upp umferðina. Helst ber þar að nefna ákvörðun margra sem verður rifjuð upp næstu 10 árin, þ.e. að gefa Sadio Mané þrefalt fyrirliðaband. Mané. Vardy. GT. Allir þessir háklassa sóknarmenn meiddust í vikunni. Við óskum þeim góðs bata.

Miðjan - Davíð Smári um Kórdrengjaævintýrið
Davíð Smári Lamude, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Hann er þjálfari Kórdrengja sem hafa spilað 3 ár í deildarkeppni hér á landi og hafa farið upp um deild síðustu 2 ár. Þeir spila því í 2. deildinni í sumar. Meðal efnis: - Yfirlýsing um að vinna 2. deildina í haust - Afhverju hætti Ingvar Kale - Hver verður í markinu í sumar - Hvernig er félagið fjármagnað - Þurftu að neita auglýsendum - Draumur um að komast í Pepsi Max-deildina - Plön um yngri flokka starf - Aðstöðumál - Pælingar um að breyta nafni félagsins - Skapið - Kjaftasagan um Kenwyne Jones

Fantabrögð - 23. umferð - Upphitun fyrir tvöfalda umferð
Laugardagurinn í 23. umferð var ekkert minna en hræðilegur. Þrátt fyrir að átta leikir væru á dagskrá ströggluðu Fantasy spilarar við að ná tveggja stafa tölu - ekki fyrir einstaka leikmenn heldur fyrir allt liðið í heild. Liverpool bjargaði því sem bjargað varð en meira var það ekki. En við horfum björtum augum til framtíðar þar sem næsta umferð hefst strax á morgun! Næst á dagskrá er 24. umferðin og í henni á Liverpool tvo leiki. Margir spilarar munu því eflaust nota "triple captain" spilið og vera með þrefaldan fyrirliða með tilheyrandi taugatitringi. En á að kaupa Agüero? Á að selja Vardy? Hvað á að gera við Rashford? Allt þetta og meira til í Fantabrögðum.

Innkastið - Himinn og haf á milli á Anfield og stjórar á barnum
Strax eftir sigur Liverpool gegn Manchester United ýttu Daníel og Elvar á upptöku og fóru yfir leikinn. Daníel gaf leikmönnum Liverpool einkunn og Elvar sá um að dæma gestina. Farið var yfir aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og einnig var fjallað um Balotelli, Haaland og fleira. Í lokin var svo komið að því að velja þá stjóra í enska boltanum sem væru bestu kostirnir sem barfélagar.

Atli Sveinn tekinn við stýrinu í Árbænum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Atli Sveinn Þórarinsson var gestur hjá Elvari og Tómasi. Atli var ráðinn aðalþjálfari Fylkis eftir síðasta tímabils og starfar hann við hlið Ólafs Stígssonar. Í viðtalinu ræðir Atli um komandi tímabil í Árbænum, höfuðhögg sem gerðu að verkum að hann þurfti að hætta í fótbolta á sínum tíma og fleira tengt boltanum.

Íslenski boltinn - Stór yfirlýsing frá Víkingi
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar og Tómas fóru yfir allt það helsta sem er að frétta úr íslenska fótboltanum. Góðar fréttir fyrir Blika en vondar fyrir KR-inga sem misstu tvo leikmenn í langtímameiðsli. Þá var Hafliði Breiðfjörð í beinni útsendingu frá Fossvoginum þar sem Víkingar voru með fréttamannafund og kynntu tvo leikmenn. Rætt var við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkinga.

Enski boltinn - Liverpool 2020 gegn Man Utd 2008
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um helgina í enska boltanum og báru núverandi lið Liverpool saman við Manchester United 2008. Liverpool og Manchester United eigast við í stórleik helgarinnar.

Fantabrögð - 22. Umferð - Danny Kings!
Manchester City rifjuðu upp gamla takta og rassskelltu Aston Villa 6-1 þar sem Agüero fékk 20 stig, Mahrez 17 og KDB 9. Rashford var tekinn útaf eftir 58 mínútur gegn Norwich sem kom þó ekki að sök þar sem hann skoraði tvennu. Liverpool heldur áfram að sigra og Aubameyang kominn í 3 leikja bann. En hvaða breytingar á að gera? Á að selja Traore? Eða Vardy? Kaupa Firmino? Er hann þriðji Liverpool maðurinn fyrir umferð 24? Allt þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.

Innkastið - City á besta deginum betra en Liverpool?
Elvar Geir og Daníel fara yfir málin í fyrsta Evrópu-Innkasti ársins 2020. Farið er yfir leiki umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni og fréttir Evrópuboltans eru einnig skoðaðar. Meðal efnis: Bras á Mourinho, Liverpool setur met, City tekur annað sætið, sjálfstraust Rashford, Hudson-Odoi sýnir sínar réttu hliðar, rautt á besta leikmann Arsenal, markvarðamistök, vanmetinn stjóri Southampton, Xavi og Barcelona, Raggi Sig til Köben, Zlatan skorar og fleira.

Vandamál Everton - Er tíma Gylfa hjá félaginu að ljúka?
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Blaðamaðurinn Þórður Snær Júlíusson er stuðningsmaður Everton og er gríðarlega vel að sér í málefnum félagsins. Hann ræddi um Everton í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem meðal annars var farið yfir stöðu Gylfa.

Höskuldur um bróðurmissinn, Blika og landsliðið
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Höskuldur Gunnlaugsson kom í heimsókn rétt áður en hann þaut á Keflavíkurflugvöll þar sem hann er að fara í janúarverkefni landsliðsins. Hann ræddi meðal annars um mark sitt gegn ÍA á síðasta tímabili sem hann skoraði daginn eftir að hann missti bróður sinn. Einnig ræðir hann um Breiðablik og Halmstad en í viðtalinu staðfestir hann að allar líkur séu á því að hann spili með Blikum í sumar.

Íslenski boltinn - Staða FH, þjóðarleikvangurinn og leikmenn á flakki
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir úr íslenska boltanum, ræddu um íslenska leikmenn sem eru að skipta um lið, vondar fréttir af Laugardalsvelli og fleira. Valdimar Svavarsson, formaður FH, var í símaviðtali. Hann var spurður út í málefni félagsins, launamál og Steven Lennon svo eitthvað sé nefnt.

Fantabrögð - Fyrsta umferðin á nýju ári
GT er snúinn aftur úr Asíureisu og hann og Aron gerðu upp 21. umferðina í Fantasy, sem fór fram 1. og 2. janúar. Jamie Vardy var enn frá og fyrirliðaval tók óvænta stefnu hjá mörgum, en umferðinni lauk með góðri frammistöðu frá Liverpool gegn Sheffield United. David Moyes byrjaði frábærlega hjá West Ham og Arsenal sigraði Manchester United í stórleik umferðarinnar. Strákarnir spáðu í spilin fyrir næstu umferð sem hefst á föstudag með leik Sheffield United og West Ham og ræddu breytingar á sínum liðum sem og fyrirliðaval.

Íslenski boltinn - Fjör á Fásksrúðsfirði og leikmenn vilja lengja
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Brynjar Skúlason, þjálfari Leiknis á Fáskrúðsfirði, var á línunni. Brynjar ræddi um öflugan árangur Fáskrúðsfirðinga á liðnu ári en liðið komst óvænt upp í 1. deildina, þvert á allar spár. Þá voru aðstöðumál liðsins einnig til umræðu. Í upptökunni er einnig framhald á umræðu um mögulega lengingu Íslandsmótsins. Rætt var við Arnar Svein Geirsson, forseta leikmannasamtakana.

Enska hringborðið - Spenna um alla deild nema á toppnum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín sérfræðinginn Kristján Atla Ragnarsson, stuðingsmann Liverpool. Rætt var um gang mála í enska boltanum. Meðal umrðuefna: Yfirburðir Liverpool, kröfur Pep Guardiola, þróun Manchester United, Mourinho aftur í sama farið, upprisa Southampton, bestu kaup áratugarins og fleira.

Fantabrögð - Jólaþáttur - Aron Þrándar ræðir Trent og bomburnar
Það kom að því. Liverpool bakvarðabomban sem allir höfðu beðið eftir mætti á svæðið. Trent Alexander-Arnold setti hvorki meira né minna en 24 stig í Fantasy á annan í jólum og bjargaði 19. umferðinni fyrir ansi mörgum leikmönnum. Einn af þeim var Aron Elís Þrándarson, nýr leikmaður OB í Danmörku og sigurvegari draumaliðsleiks Fótbolta.net og Eyjabita í Pepsi Max deild karla í sumar. Aron er með stigahæstu leikmönnum Íslands í Fantasy Premier League og var auk þess valinn í landsliðshóp Íslands í dag svo hann hefur yfir mörgu að gleðjast. Hann gaf sér tíma til að koma og gefa nafna sínum góð ráð í Fantasy fræðum og fóru þeir saman yfir umferðir 19 og 20 í FPL.

Innkastið - Jólatörn, öflug stjórateymi og handakrikarangstöður
Elvar og Daníel skoða jólatörnina í ensku úrvalsdeildinni í síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2019. Meðal efnis: Handakrikarangstöður í VAR, De Bruyne leikmaður ársins?, enginn veikur blettur hjá Liverpool, þáttur Jody Morris í sigri Chelsea, handbragð Arteta, Andreas Pereira, breytt hlutverk Gylfa, Ancelotti og Ferguson, Haaland til Dortmund, Zlatan til AC Milan og bestu leikmenn áratugarins.

Áramótakæfan - Fótboltaárið 2019 gert upp
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson fóru yfir árið 2019 í Áramótakæfunni sem var nú smökkuð í sjöunda sinn. Hressir viðmælendur, gleði, bombur og góðir gestir. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum.

Fantabrögð - 18. umferð - Jólabann
18. umferðin í Fantasy Premier League reyndist alveg eins erfið og hún virkaði á pappír. Jamie Vardy og Danny Ings skoruðu en Manchester United og Tottenham fóru illa með fólk. Sérstaklega Heung Min Son sem skellti sér í 3 leikja jólabann með því að fá beint rautt. Hann var einn vinsælasti fyrirliðinn um helgina og því ansi margir spilarar sem enduðu með mínusstig fyrir fyrirliðann, enda virkar fyrirliða "bónusinn" í báðar áttir og því tvöfaldast mínusinn ef fyrirliðinn manns er í þeim pakka. Það er mikið af leikjum framundan og Aron fékk Baldvin Ingvar Tryggvason til að spá í næstu tvær umferðir, en næsti þáttur af Fantabrögðum verður 30. des þegar 19. og 20. umferð verða gerð upp. Gleðileg jól!

Heimavöllurinn - PepsiMax hátíð og risar snúa heim
Heimavöllurinn snýr aftur og þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir hafa um ýmislegt að ræða eftir huggulegt haustfrí. Goðsögnin Margrét Lára Viðarsdóttir hefur lagt skóna á hilluna og landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Rakel Hönnudóttir eru komnar heim úr atvinnumennskunni. Rakel kíkir einmitt í heimsókn á Heimavöllinn og ræðir tímann í Svíþjóð og Englandi og endurkomuna í íslenska boltann.

Höddi Magg kveður Pepsi Max mörkin og ræðir um Liverpool
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hörður Magnússon kom í heimsókn en hann er hættur störfum sem íþróttafréttamaður, í bili að minnsta kosti. Hann fór yfir viðburðarík ár sem stjórnandi Pepsi Max-markanna, ræddi um árangur Liverpool í vetur og fleira tengt boltanum.