PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,815 episodes — Page 36 of 57

Boltinn á Norðurlandi: Sama uppskrift hjá Þór og Íslandsmeistari kom í heimsókn

Í sjötta þætti Boltans á Norðurlandi er rætt um leiki síðustu helgar og frestanirnar á þeim leikjum sem ekki fóru fram. Þórsarar héldu áfram að harka inn sigra á meðan uppskeran var engin í 2. deild. Stólarnir létu vængina hrapa, eins og einn ágætur maður orðaði það, punktur hjá kvennaliðinu og þrjú stig af sex mögulegum hjá Hömrunum. Gestur þáttarins er Ólafur Jóhann Magnússon fyrrum Íslandsmeistari með Fram í handbolta og áður markvörður í fótbolta. Dagskráin: Þór mín: 0-23 (Þór/KA 24. mín) Magni: 24-42 (42-44 Fram) KA: 44-48 Tindastóll kk: 48-53 Völsungur vs Haukar: 53-56 Dallas: 56-60 KF: 60-67 Samherjar: 67-69 Hamrarnir, Tindastóll kvk, Óli gefur tákn og næstu leikir: 69-78

Jul 1, 2020

Enska Innkastið - Kampakátir Liverpool menn

Liverpool tryggði sér enska meistaratitilinn í fyrsta skipti í 30 ár í síðustu viku.

Jul 1, 2020

Fantabrögð - Hið villta spil

Strákarnir í Fantabrögðum fundu stund milli stríða og fóru yfir stöðuna í íslenska og enska boltanum. Fyrsta góða umferðin í Eyjabitanum leit dagsins ljós þar sem m.a. voru skoraðar tvær þrennur. Aron tók Wildcard, bæði í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50 skills, en þó með misgóðum árangri. Gylfi hélt tryggð við Fylkismenn sem gaf vel. Manchester United líta vel út og spurning hvort þetta sé ekki tíminn til að taka inn þrjá leikmenn frá þeim. FPL: 00:00 50skills: 25:35 Eyjabiti: 54:45

Jun 30, 2020

Innkastið - Óttar og vafasamur boltakrakki stálu senunni

Allir leikir 3. umferðar Pepsi Max-deildarinnar eru skoðaðir í Innkastinu... allir nema Stjarnan - KA. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson eru í þættinum að þessu sinni. Meðal efnis: Óttar maður umferðarinnar, boltakrakki í sviðsljósinu, FH fékk skell, Grótta vill ekki skora, ferli Helga Vals líklega lokið, Blikar á sigurbraut, Pepsi Max í skimun, Lalli ósáttur, Valur með yfirlýsingu, Palli Pedersen með þrennu, dómaraglens, Jói Kalli skýtur á KR.

Jun 29, 2020

Liverpool gleði - Kristján Atli gerir upp tímabilið

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, kom í heimsókn og gerði upp tímabilið hjá Liverpool. Hann valdi besta leikmanninn, besta leikinn, verstu stundina og skoðaði hvar liðið gæti bætt sig fyrir næsta tímabil. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.

Jun 27, 2020

Íslenski boltinn - Smit í Pepsi Max og Viktor Karl gestur

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um fréttir vikunnar í íslenska boltanum og dráttinn í Mjólkurbikarnum. Víðir Reynisson, öryggisfulltrúi íslensku þjóðarinnar, var á línunni í upphafi og ræddi um kórónaveirusmitin í Pepsi Max-deildunum. Hangir Íslandsmótið á bláþræði? 41:30 Viktor Karl Einarsson, leikmaður Breiðabliks, mætti svo í þáttinn í mjög skemmtilegt spjall en Blikar hafa unnið báða leiki sína í Pepsi Max-deildinni.

Jun 27, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Matareitrun og öflugir Magnamenn

Fimmti þáttur í hlaðvarpsþáttaröðinni Boltinn á Norðurlandi var tekinn upp á föstudag. Hver þáttur er sjálfstætt framhald af fyrri þáttum. Rætt um dómgæsluna á Norðurlandi, bikarvikuna, stórtap Þór/KA og matareitrun sem leikmenn KF fengu fyrir síðasta deildarleik. Dagskráin: Matareitrun og dómgæsla mín: 0-9 KA: 9-14 Stólar: 14-19 Þór/KA: 19-24 Magni: 24-42 Þór: 42-56 Næstu leikir og aðrar umræður: 56-67 Hljóðið er að mati þáttarstjórnenda talsvert betra en í síðustu þáttum.

Jun 26, 2020

Heimavöllurinn - Hlín machine, Þróttur þorir og KR í bullandi brasi

Nú hafa þrjár umferðir verið spilaðar í Pepsi Max deild kvenna og ýmislegt áhugavert átt sér stað. Deildin er til umræðu í nýjasta þætti Heimavallarins en Berglind Hrund Jónasdóttir, fyrrum markvörður Stjörnunnar, og Steinunn Sigurjónsdóttir knattspyrnuþjálfari mæta í stúdíó og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála.

Jun 25, 2020

Heimavöllurinn - Börnin á skotskónum og fjögur sáu rautt

Keppni er hafin í Lengju- og 2. deild og þær deildir verða í flóðljósunum á Heimavellinum í dag. Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir allt það helsta úr fyrstu umferðum Íslandsmótanna og rýna þar að auki í spá þjálfara og fyrirliða fyrir 2. deildina.

Jun 23, 2020

Enska Innkastið - Man Utd á uppleið og Íslandstenging Lloris

Enski boltinn er farinn aftur á fleygiferð eftir hlé vegna kórónaveiru faraldursins. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson eru gestir vikunnar í Innkastinu. Meðal efnis: Leiðinlegur Liverpool leikur, Man Utd á uppleið, staða Gylfa hjá Everton, óvænt Íslandstenging Lloris, Áhorfendahljóð, innistæðulaus Guendouzi, glórulaus borði Burnley stuðningsmanns, Alli og Son til Newcastle?, Úlfarnir komnir til að vera, sterkt Chelsea lið, West Ham í veseni og Guðni T(ottenham) H(otspur) Jóhannesson.

Jun 23, 2020

Ástríðan - Rýnt í það sem gerðist í fyrstu umferð í 2. og 3. deild

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þættinum er að þessu sinni farið yfir það sem gerðist í fyrstu umferð í 2. og 3. deild. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.

Jun 23, 2020

Fantabrögð - Enski fer aftur af stað - misjafnt gengi í íslenska

Enski boltinn fór aftur af stað 17 júní og fyrsta Fantasy umferðin í þessari endurkomu klárast með leik Manchester City og Burnley. Strákarnir í Fantabrögðum nenntu þó ekki að bíða eftir honum enda mikið að gerast í íslenska boltanum sem þurfti að ræða, bæði í draumaliðsdeildum 50 skills og Eyjabita. -Víkingar vörusvik? -Patrick Pedersen ekki skorað í 2 fyrstu leikjunum -Stjarnan skorar 4 en Hilmar Árni fær engin stig -Selfoss ekki skorað mark í Pepsi Max deild kvenna -Þór/KA komið skemmtilega á óvart og leikmenn slá í gegn í Fantasy. 00:00-31:50 Fantasy Premier League 31:50-1:05:05 Draumaliðsdeild 50 skills 1:05:05-1:35:12 Draumaliðsdeild Eyjabita

Jun 22, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Þrír sigrar á Þórsvelli og KA þéttir

Þrír heimasigrar unnust á Þórsvelli um helgina. Svekkjandi hjá Stólunum og rýr uppskera í 2. deild. KA fékk stig gegn Víkingi og brekka hjá Samherjum. Dagskráin: KA mín 1-16. Þór mín 16-33. Magni mín 33-38. Þór/KA mín 38-50. KF mín 50-59. Tindastóll mín 59-65. Völsungur mín 65-68. Hamrarnir mín 68-70. Dalvík/Reynir 70-73. Samherjar 73-75.

Jun 22, 2020

Innkastið - Hvað gerðist eiginlega á Meistaravöllum?

Í Innkastinu í er farið yfir alla leiki 2. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson stóðu vaktina um helgina. Meðal efnis: Vörusvik hjá Víkingum, sól á Akureyri, Engin vandræði hjá Valsmönnum, skýrsla eftir mögnuð úrslit í Vesturbænum, mikilvægi Finns, frábærir HK-ingar, hark hjá Blikum, Halldór Orri gengur í gegnum endurnýjun lífdaga, yfirburðir FH gegn ÍA, Lengjudeildarhornið og bikarleikir vikunnar.

Jun 21, 2020

Útvarpsþátturinn - Enski boltinn, Pepsi Max og Lengjudeildin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fótboltamálin og ræddu um enska boltann, Lengjudeildina og Pepsi Max-deild karla. Í upphafi: Enski boltinn 11:30 Tryggvi Páll Tryggvason, sérfræðingur um Manchester United. 29:00 Farið yfir upphaf Lengjudeildarinnar. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. 50:45 Pepsi Max-deildin: Hitað upp fyrir 2. umferð. 60:00 Sindri Snær Magnússon, leikmaður ÍA á línunni. 66:00 Siguróli í beinni útsendingu frá Akureyri.

Jun 20, 2020

Fantabrögð - Þjóðhátíð!

Fantabrögð taka sér ekki frí á 17. júní, enda er alltof margt sem þarf að fara yfir! Íslenski boltinn fór af stað um helgina og strákarnir stikluðu á því helsta sem gerðist í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50 skills. -Ofmátum við Ágúst Hlynsson? -Berglind Björg byrjaði fyrsta leik og skoraði -Þægilega fyrirsjáanlegt á Hlíðarenda -Geta Blikar haldið hreinu í sumar? Við byrjuðum hins vegar þáttinn á að skoða enska boltann, sem fer aftur af stað á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. -Hvernig er standið á leikmönnum? -Frjálsar skiptingar -Rashford, Kane og fleiri komnir aftur -4 lið eiga tvöfalda umferð -Á maður að selja Salah og nota peninginn í annað? 00:00-27:10 - Fantasy Premier League 27:10-1:01:40 - Draumaliðsdeild 50 skills 1:01:40-2:05:00 - Draumaliðsdeild Eyjabita

Jun 17, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Maraþonleikir og skellur á Skaganum

Farið yfir 2. umferðina í bikarnum, vítaspyrnukeppnir og Þór/KA byrjar á fljúgandi starti. Dagskráin: Mín 1-25: Völsungur - Þór Mín 25-54 KF - Magni Mín 54-64 Þór/KA - Stjarnan Mín 64-68 Krókurinn Mín 68-76 ÍA-KA Mín 76-80 Umræða um Dr. Petar og leikirnir framundan. PS. Músinni var hent eftir upptöku, amateur-hour hjá þeim þýska.

Jun 16, 2020

Ástríðan - Uppgjör eftir 2. umferð bikarsins

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Önnur umferð Mjólkurbikarsins fór fram um liðna helgi og í þættinum að þessu sinni er farið yfir það sem gekk á. Þáttarstjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum að þessu sinni er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.

Jun 16, 2020

Innkastið - Þjálfaraskúrkur og Víkingavonbrigði

Seinni hluti af uppgjöri 1. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Tómas Þór og Ingólfur Sigurðsson eru með Elvari að þessu sinni. Farið er yfir leikina tvo sem voru í kvöld. Stjarnan vann dramatískan sigur gegn Fylki og nýliðar Fjölnis náðu í stig á útivelli gegn Víkingi Reykjavík. Meðal efnis: Þjálfarinn sá rautt, sautján ára hetja Stjörnunnar, vonbrigðaframmistaða Víkinga, Fjölnir ekki fallbyssufóður, helstu umræðuefnin eftir helgina, leikmaður umferðarinnar, Gunni giskar og Lengjudeildin.

Jun 15, 2020

Innkastið - Mikill gæðamunur og meiðslahrina

Fyrri hluti af uppgjöri 1. umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoða fjóra fyrstu leiki sumarsins. Meðal efnis: KR vann opnunarleikinn, Óskar Örn heldur áfram að þagga niður efasemdarraddir, meiðslarugl KA, karakter á Skaganum, markvarðamistök í Kórnum, gæðamunur í Kópavoginum.

Jun 14, 2020

Upphitunarþáttur Lengjudeildar karla - Öll liðin skoðuð

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir Lengjudeild karla sem fer af stað næsta föstudag. Sérfræðingarnir Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon skoða öll liðin tólf og spá fyrir um lokastöðu.

Jun 13, 2020

Hitað upp fyrir fyrstu umferð Pepsi Max og bikarinn skoðaður

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar og skoða helstu fréttir úr deildinni. Einnig er rætt um Mjólkurbikarinn en 2. umferð er í fullum gangi.

Jun 13, 2020

Heimavöllurinn - Fyrirpartý fyrir Maxið

Keppni í Pepsi Max deildinni hefst annað kvöld og í dag höldum við fyrirpartý á Heimavellinum. Þau Baldvin Már Borgarsson og Halla Margrét Hinriksdóttir kíkja í heimsókn og fara yfir allt það helsta með Mist Rúnarsdóttur.

Jun 11, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Sokkur frá Samherjum og KF með tak

Sokkur til okkar í boði Samherja, KF með tak á Dalvík, Stólarnir í veseni í bikarnum og Guðmundur Steinn í KA. Smá bras á öðrum mic-num en það verður komið í lag fyrir næstu upptöku! 1. umferðin rædd og spáð í spilin fyrir þá næstu. Hvað gerir Guðmundur fyrir lið KA? Á KF séns í Magna? Á að sameina KA og Þór? Leikir helgarinnar: Föstudagur: Völsungur - Þór (19:15) . Laugardagur: Tindastóll - Völsungur (14:00) , Þór/KA - Stjarnan (15:00) og Tindastóll - Samherji (17:00). Sunnudagur:KF - Magni (15:00) og ÍA - KA (15:45).

Jun 11, 2020

Niðurtalningin - Valgeir Valgeirs í skemmtilegu spjalli

Valgeir Valgeirsson leikmaður HK er gestur þáttarins en þessi sautján ára unglingalandsliðsmaður skaust af krafti fram á sjónarsviðið síðasta sumar. Þrátt fyrir ungan aldur er Valgeir algjör lykilmaður hjá HK og á sér það markmið að ná langt í boltanum. Valgeir kom á skrifstofu Fótbolta.net og spjallaði við Elvar Geir og Magnús Má.

Jun 11, 2020

Heimavöllurinn - Jón Þór fer yfir málin

UEFA gaf á dögunum út nýja leikdaga fyrir A-landslið kvenna í undankeppni EM. Framundan er þéttur leikjapakki í haust og mikið í húfi. Landsliðsþjálfarinn Jón Þór Hauksson leit við á Heimavellinum í dag og fór með okkur yfir stöðuna hjá landsliðinu og komandi verkefni. Hann rýnir svo að sjálfsögðu einnig með okkur í fótboltasumarið og Pepsi Max deild kvenna sem er handan við hornið.

Jun 10, 2020

Fantabrögð - Veislan er að byrja!

00:00 Draumaliðsdeild Eyjabita 1:02:14 Draumaliðsdeild 50skills 1:33:20 Fantasy Premier League Fantabrögð tóku upp síðasta upphitunarþátt sinn áður en draumaliðsdeildir Eyjabita og 50 skills hefjast. Strákarnir fóru yfir nýjustu útgáfu af liðum sínum sem höfðu að sjálfsögðu breyst töluvert frá síðasta þætti. Kemst maður upp með að vera ekki með Hilmar Árna í liðinu sínu? Er Selfoss nógu gott lið til að veita Breiðabliki og Val keppni um toppsætið kvennamegin? Hver verður fyrirliði í fyrsta leik? Hlustaðu á þáttinn og vertu með allt á hreinu þegar Pepsi Max deildirnar byrja!

Jun 10, 2020

Ástríðan - Bikarhelgi að baki

Fyrsta umferð Mjólkurbikarsins er að baki. Í Ástríðu vikunnar er kafað ofan í leikina sem fram fóru. Ingólfur Sigurðsson og Óskar Smári Haraldsson ræddu um leikina og rýndu í úrslitin. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.

Jun 9, 2020

Niðurtalningin - Helgarsportið og bestu leikmenn í Pepsi Max

Í Niðurtalningunni er farið yfir leiki helgarinnar í íslenska boltanum, lokasprett undirbúningsins áður en alvaran fer af stað. Þátturinn er í raun og veru Innkastið að þessu sinni. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson fara yfir leikina og helstu fréttir. Þá velja Gunnar og Ingólfur bestu leikmenn Pepsi Max-deildarinnar. Ingólfur bætist við í Innkastið í sumar, hlaðvarpsþáttinn þar sem umferðirnar verða gerðar upp. Meðal umræðuefna: KR-ingar halda áfram að lyfta bikurum, hvað fáum við fá Víkingi í sumar, Blikar unnu Kópavogsslaginn, æfingaleikir helgarinnar, umdeild Twitter færsla, áhugaverðir bikarleikir og fleira.

Jun 8, 2020

Upphitunarþáttur Pepsi Max - Spá sumarsins

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Farið yfir spá Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og sérstakur gestur: Tómas Ingi Tómasson. Farið er yfir spá Fótbolta.net fyrir deildina og öll liðin skoðuð.

Jun 6, 2020

Boltinn á Norðurlandi: Upphitunarþáttur - Bikarhelgi og rýnt í öll liðin

Staðan skoðuð hjá öllum liðunum á Norðurlandi, karla og kvenna. Framundan er bikarhelgi þar sem Dalvík/Reynir og KF mætast í nágrannaslag. Á Nökkvi séns á að komast alla leið í 3. umferð? Staðan skoðuð á Króknum, Húsavík, Grenivík og hjá Samherjum. Akureyrarliðin eru til umræðu í seinni hlutanum og leikkerfi KA rætt. Lélegt gengi Þórsara gegn betri liðunum í fyrra og mikilvægi Alvaro. Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson sjá um þáttinn.

Jun 5, 2020

Fantabrögð - íslensku draumaliðsdeildirnar fara af stað

Þá eru einungis 8 dagar í að Íslandsmót í fótbolta hefjist! Fótbolti.net verður með draumaliðsdeildir fyrir Pepsi Max deildir karla og kvenna í samstarfi við Eyjabita og 50 skills. Mist Rúnarsdóttir hjá hlaðvarpinu Heimavellinum kíkti í heimsókn og hún, Aron og Gylfi fóru yfir allt það helsta fyrir draumaliðsdeild 50 skills og opinberuðu sín lið. Vertu með í 50 skills deild Fantabragða, með kóðanum uDBWQrBHsB Við ræddum svo aðeins hvað hefur gerst undanfarna daga hjá liðunum í Pepsi Max deild karla og hvaða innsýn æfingarleikirnir gefa okkur í draumaliðsleik Eyjabita. Vertu með í Eyjabita deild Fantabragða, með kóðanum 36rRP4tkhv Hlustaðu á þáttinn og stilltu upp þínu liði í íslensku fantasy deildunum!

Jun 4, 2020

Niðurtalningin - Reynsluboltar úr Garðabænum

Í Niðurtalningunni er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Guðjón Baldvinsson og Halldór Orri Björnsson, leikmenn Stjörnunnar, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Magnús Már Einarsson ræðir við þá um komandi tímabil. Þá fór Magnús yfir æfingaleikina í íslenska boltanum með Elvari Geir Magnússyni en níu dagar eru í að Pepsi Max-deild karla fer af stað.

Jun 4, 2020

Ástríðan - Fyrsta umferð í bikar og nýjustu fréttir

Í Ástríðu vikunnar var farið yfir fyrstu umferð í Mjólkurbikarnum en hún fer fram um helgina. Ingólfur Sigurðsson og Óskar Smári Haraldsson fóru yfir stöðuna. Rætt var um úrslit úr æfingaleikjum og félagaskipti en félagaskiptaglugginn opnar formlega á ný í dag. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.

Jun 3, 2020

Niðurtalningin - Spá fyrir Lengjudeildina og þjálfari Fram

Í Niðurtalningunni er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Í þættinum að þessu sinni er farið yfir spá fyrir Lengjudeild karla. Baldvin Már Borgarsson fer yfir málin. Þá kemur Jón Sveinsson, þjálfari Fram, í heimsókn og ræðir um komandi tímabil í deildinni og hvernig sumarið leggst í Framara. Umsjón: Elvar Geir Magnússon.

Jun 2, 2020

Heimavöllurinn - Lengjuspáin 2020

Það eru rúmar tvær vikur í að keppni í Lengjudeild kvenna hefjist og í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin fyrir tímabilið. Gestur þáttarins er knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og hún fer yfir málin með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Meðal efnis: -Spáin opinberuð: 1.sæti-10.sæti -Hverjar verða mikilvægastar í sínum liðum? -Hvaða efnilegu leikmönnum þurfum við að fylgjast með? -Hvaða lið fara upp í Pepsi Max? -Hvaða leikmenn verða bestar í Lengjudeildinni? -Hvaða lið falla? Meðal efnis í fréttapakkanum: -Undankeppni EM keyrð aftur í gang -Landsliðsfyrirliðinn orðuð við Barcelona - búin að ákveða sig? -Enska knattspyrnusambandið til skammar -Sif berst fyrir réttindum óléttra knattspyrnukvenna -Kona vikunnar - mögnuð endurkoma -Helena skiptir Fjölni út fyrir Pepsi Max mörkin -Heitustu félagaskiptin korter í mót -Loksins fótbolti og æfingaleikjahryna -Augnablik vinnur óþekktar Eyjakonur -Afhverju var KR með einn varamann í æfingaleik? -Er besti markmaðurinn kominn í Selfoss?

Jun 1, 2020

Enski boltinn snýr aftur - Verður skrítinn fögnuður í Liverpool

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu um endurkomu enska boltans en tímabilið fer aftur af stað 17. júní. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um Liverpool, var á línunni.

May 30, 2020

Pepsi Max hringborð - Umræður eftir æfingaleikjaviku

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas ræddu helstu tíðindi vikunnar úr íslenska fótboltanum. Þá er Hafliði Breiðfjörð í beinni frá Kaplakrika þar sem Emil Hallfreðsson skoraði í æfingaleik. Spá Fótbolta.net er byrjuð að opinberast og þeir félagar horfðu á fjölmarga æfingaleiki í vikunni. Meðal annars er rætt um Harley Willard málið, styrkingar FH og tilboð Vals í Tryggva Hrafn.

May 30, 2020

Niðurtalningin - Nýr fyrirliði Fylkis og endurkoma fótboltans

Ragnar Bragi Sveinsson, nýr fyrirliði Fylkis, er gestur vikunnar. Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Ragnar Bragi ræðir við Elvar Geir og Magnús Má um það sem er efst á baugi í fótboltanum og hvernig sumarið lítur út í Árbænum.

May 26, 2020

Ástríðan - Sérfræðingar spá í 3. deildina

Ástríðan fékk tvo sérfræðinga til að spá fyrir um 3. deildina í sumar. Farið var yfir liðin og lykilmenn þeirra. Atli Jónasson og Ingimar Finnsson voru gestir Óskars Smára Haraldsson. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.

May 26, 2020

Heimir Guðjóns í ítarlegu viðtali um fótboltasumarið

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Heimir Guðjónsson kom í hljóðver og ræddi um komandi tímabil í Pepsi Max-deildinni. Heimir er tekinn við Val og fær það verkefni að koma liðinu aftur á toppinn eftir vonbrigðin í fyrra. Í viðtalinu ræðir Heimir um tímabilið framundan og einnig um árin í Færeyjum.

May 24, 2020

Axlabandalið Pepsi Max og fyrirliðapælingar

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir Pepsi Max-deildina. Þeir skoða fyrirliðahræringar deildarinnar en þær hafa verið miklar í vetur. Þá opinberar Tómas 'axlarbandaliðið', úrvalslið leikmanna sem þurfa að stíga upp á komandi tímabili. Einnig er rætt við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóra ÍTF, um endurkomu fótboltans en á mánudag verður létt á takmörkunum og fótboltaleikir fullorðinna leyfðir á Íslandi.

May 24, 2020

Miðjan - Janus var landsliðsmaður í handbolta og fótbolta

Janus Guðlaugsson var á sama ári landsliðsmaður í handbolta og fótbolta, endaði í þriðja sæti í langstökki í bikarkeppni FRÍ og þjálfaði vonarstjörnur þjóðarinnar til Íslandsmeistaratitils í 2. flokki í handbolta. Seinni varð hann atvinnumaður í Þýskalandi í nokkur ár og fékk eftir ferilinn það verkefni að bjarga KR frá falli. Janus segir sögu sína í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Rekur eigið fyrirtæki í heilsueflingu í dag - Braut rúður í næsta húsi í fótbolta - Fór útaf í hálfleik til að spila handboltaleik - Hljóp hálfmaraþon, spilaði leik og hljóp sömu leið til baka - Bikarúrslitaleikurinn gegn ÍBV um miðjan nóvember - Keyrði traktor og tyrfði Kaplakrika í fyrsta sinn - Dúxaði á Laugavatni og tók útskriftina fram yfir leik - Þaggaði niður í tyrknesku áhorfendunum með draumamarki - Settu upp apagrímur þegar Ísland mætti - Sóttur á Laugavatn í alla handboltaleiki en æfði ekki með liðinu - Spilaði HM í handbolta 1978 - Gerði Kristján Arason og félaga að Íslandsmeisturum í 2. flokki - Þriðji í langstökki í bikarkeppni FRÍ - Hafnaði þremur tilboðum um atvinnumennsku útaf skólanum - Fékk símtöl frá fyrrverandi liðsfélögum í bankahruninu með boð um peningagjöf - Fetaði í fótspor liðsfélaganna með yfirvaraskeggi - Lærði að mála og portraitmynd af Tony Schumacher kom í Bild - Málaði 20 myndir fyrir opnun á tennishöll í Köln - Fór nýjar leiðir til að losna frá ofþjálfun - Spilaði sem sweeper en skoraði 15 hraðaupphlaupsmörk í fótbolta - Spilaði með George Best gegn Manchester United í tvígang - Fékk sig ekki lausan frá Fortuna Köln svo hann fór og þjálfaði FH - Bitinn af lögregluhundi í upphitun og missti af leiknum - Var kallaður bjargið í Sviss - Hundfúll eftir ómanneskjulega tæklingu Þorvalds Örlygssonar - Tók við þjálfun KR í fallbaráttu og lét þá fara í stórfiskaleik - Fékk Fálkaorðuna hjá Guðna forseta 17. júní í fyrra

May 22, 2020

Ástríðan - Markahrókurinn Alexander

Alexander Már Þorláksson, leikmaður Fram, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Alexander Már var markahæsti leikmaður 3. deildarinnar í fyrra þegar hann skoraði 28 mörk í 21 leik með KF, sem fór upp um deild. Alexander Már fór yfir ótrúlegt tímabil sitt í fyrra, skoðaði helstu fréttir undanfarna daga og ræddi getumuninn á milli deilda. Leikmannamarkaðurinn er farinn á fullt eftir Covid 19, en þar ber helst að nefna félagaskipti Viktors Segatta í Þrótt Vogum. Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Umsjón: Ingólfur Sigurðsson.

May 21, 2020

Heimavöllurinn - Spá fyrir Pepsi Max 2020

Í nýjasta þætti Heimavallarins er boðið upp á spá fyrir Pepsi Max deild kvenna sem hefst eftir 3 vikur. Gestur þáttarins er Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og hún ræðir komandi tímabil við þáttastýrurnar Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Verja Valskonur Íslandsmeistaratitilinn? Halda nýliðarnir sér uppi? Hvaða lið gerðu vel á félagaskiptamarkaðnum? Hvaða leikmenn verða mikilvægastar sínum liðum? Þetta og ýmislegt fleira í þætti dagsins.

May 20, 2020

Niðurtalningin - Gústi og Gróttusumarið

Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Í þessum öðrum þætti er byrjað á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, um komandi tímabil. Hann kemur meðal annars með sína spá um Íslandsmeistara í sumar. Umsjón: Elvar Geir og Magnús Már.

May 19, 2020

Bikarmeistararnir Ágúst Hlyns og Óttar Magnús

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Gestir þáttarins voru Ágúst Eðvald Hlynsson og Óttar Magnús Karlsson, ungir leikmenn bikarmeistara Víkings. Báðir fóru þeir mjög ungir erlendis í atvinnumennsku en eru í dag lykilmenn hjá Víkingum.

May 16, 2020

Boltahringborð - Sögulínur sumarsins í Pepsi Max

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson tóku fyrir nokkur umræðuefni fyrir Pepsi Max-deild karla í sumar. Hvernig verða sögulínur deildarinnar? Skemmtileg umræða um íslenska boltann. Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, var einnig á línunni.

May 16, 2020

Miðjan - Augnabliks fíflalæti og fyndnar sögur

Í lok ársins 1981 var knattspyrnufélagið Augnablik stofnað en lið þeirra vakti mikla athygli næstu árin fyrir almenn fíflalæti og uppákomur. Fræg er til dæmis sagan af því þegar reynt var að stofna félagið hjá ÍSÍ. Jón Orri Guðmundsson og Andrés Pétursson rifja upp gamla tíma í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag. Meðal efnis: - Stofnað í lok ársins 1981 - Ekki allir sáttir við stofnun félagsins - Gerðu í því að vera með fíflalæti - Vildi láta liðið heita Kakó fyrst - Fyndið símtal til ÍSÍ - Sendu vallarstjóranum póstkort í öllum ferðum - Leigðu flugvél í fyrsta leik á Hellissandi - Óvæntar bókagjafir til andstæðinganna - Dreifðu karamellum til áhorfenda fyrir leik - Mættu með lífverði á limósíum beint í leik gegn FH - Kölluðu gamla þjálfarann heim frá Danmörku til að tapa - Lögreglan handtók fyrirliðann á vellinum rétt fyrir leik - Gáfu andstæðingunum fisk fyrir leik - Dómarinn rak annan línuvörðinn af velli í miðjum leik - Spiluðu í sundbolum gegn Hildibröndum sem enduðu á pungbindum - Friðrik Þór hnýtti í þá í bók Einars Kárasonar - Komu ríðandi á völlinn og á Traböntum - Markahrókurinn skipti á treyju við tvíburabróður sinn - Gerðu menn brjálaða með því að sprengja upp ílu á árshátíð - Duttu í það milli leikja á vestfjörðum og skyrtan sem týndist - Uppljóstrað hver skrifaði 'Fíflalæti á knattspyrnuvelli' í velvakanda - Stöðvuðu tillögu um fjölgun liða með gríntillögu um Monrad kerfið - Fóru til Austurríkis og spiluðu upp á bjórkút - Þriðja liðið átti að heita Blix en var hafnað

May 13, 2020

Niðurtalningin - Maggi Bö og skemmtilegustu vellirnir

Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar. Þáttur dagsins hefst á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Magnús Val Böðvarsson, vallarstjóra KR, um vallarmálin á Íslandi. Hann velur skemmtilegustu velli landsins og er settur í létta spurningakeppni. Umsjón: Elvar Geir og Magnús Már.

May 12, 2020