PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,815 episodes — Page 33 of 57

Ítalski boltinn - Íslendingur til Napoli eftir 107 ára bið!

Í þætti vikunnar snýst allt um nágrannaslagi. Torino tapar sem fyrr gegn nágrönnum sínum í Juventus og þjálfari Birkis og Hólmberts í Brescia fékk stígvélið daginn fyrir nágrannaslaginn mikla sem kenndur er við strengjahljóðfæri - Derby del violino. AC Milan heldur sigurgöngu sinni áfram, í leik þar sem Norðurlandabúar voru í aðalhlutverkum og íslendingar eiga knattspyrnumann í Napoli, 107 árum eftir að það gerðist síðast. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".

Dec 9, 2020

Innkastið - Lokkandi riðill og óvissuástand í Laugardal

Fótbolti.net blæs í Innkast. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis ræddu málin. Farið var yfir riðil íslenska landsliðsins í undankeppni HM en dregið var í gær. Þýskaland, Rúmenía, Norður-Makedónía, Armenía og Liechtenstein eru í riðli Íslands. Þá var rætt um landsliðsþjálfaramálin og rennt yfir þá sem eru komnir og farnir í Pepsi Max-deild karla.

Dec 8, 2020

Enski boltinn - Fjögurra hesta kapphlaup um titilinn

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina að þessu sinni. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Son og Kane í banastuði, góð kaup hjá Spurs, Tottenham getur orðið meistari, Arteta eins og snákasölumaður, öruggur Curtis Jones, Klopp fær allt út úr hópnum, framlína Wolves floppaði, lúðalegur Kelleher geggjaður í markinu, munur á hálfleikjum hjá Man Utd, Bruno Fernandes gerir alla betra, fjögurra hesta barátta, Chelsea búið að finna varnarlínuna, Manchester City að komast í gang, leiðarlok hjá Aguero, vilja sjá Messi í Man City, Sheffield United ekki yfir 20 stig?, eins og önnur íþrótt með áhorfendum, Zaha í stuði og margt fleira.

Dec 7, 2020

Landsliðsumræða - Trúnaðarbrestur og þjálfaraleit

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um landsliðsþjálfaramálin og stóru fréttirnar af því að Jón Þór Hauksson hafi farið yfir strikið í ummælum sínum við leikmenn kvennalandsliðsins. Starf Jóns Þórs er í hættu. Rætt er um leitina að næsta þjálfara karlalandsliðsins en Tómas telur að Lars Lagerback sé líklegastur í stólinn. Rætt er við Víði Sigurðsson, yfirmann íþróttadeildar Morgunblaðsins, um þjálfaraleitina og einnig um bókina Íslensk knattspyrna 2020 sem er væntanleg í verslanir. Á mánudag verður dregið í undankeppni EM, hvernig er martraðariðill Íslands og hvernig er draumariðillinn? Þá er Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður á línunni og ræðir um Brexit áhrif á íslenskan fótbolta.

Dec 5, 2020

Enska hringborðið - Úrvalsliðið og ruslflokkurinn

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember. Fyrsta fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætir í hljóðverið. Hann ræðir við Elvar og Tómas um tímabilið hingað til og opinberar val sitt á úrvalsliðinu og vonbrigðaliðinu.

Dec 5, 2020

Heimavöllurinn: VIÐ ERUM Á LEIÐ TIL ENGLANDS!

Ísland er komið á EM! Það var ljóst í gærkvöldi að landsliðið okkar bjargaði fótboltaárinu 2020 með því að tryggja sér sæti beint á Evrópumótið á Englandi 2022. Það voru því kallaðir út sérfræðingar til að fara yfir málið en þær Aníta Lísa yfirþjálfari hjá KR og Bára Kristbjörg þjálfari Augnabliks mættu á Heimavöllinn.

Dec 2, 2020

Fantabrögð - Man City mættir aftur

Manchester City tóku Burnley 5-0 á heimavelli, í fjórða skiptið í röð. Þau sem tóku sénsinn á Mahrez uppskáru ríkulega í Fantasy Premier League en 2 þáttastjórnendur settu bandið hins vegar á De Bryune sem gekk sömuleiðis vel. Ollie Watkins sá til þess að Ollie-hornið var ríkulegt að þessu sinni, en það er búið að fresta næsta leik hjá honum vegna hópsmits hjá Newcastle. Hvaða leikmann hræðistu mest að vera án? Á að kaupa Cavani? Er einhver ennþá með Arsenal menn? Hvern á að kaupa fyrir Jimenez? Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland og Nemíu.

Dec 1, 2020

Enski boltinn - Mögnuð innkoma Cavani og reiður Klopp

Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni. Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Jóhann Skúli Jónsson, þáttastjórnandi í hlaðvarpinu Draumaliðið, fóru yfir umferðina. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Markaskorarinn Cavani, þreytt að ræða Pogba, miklar breytingar Solskjær, mistök De Gea líta aulalega út, VAR er drasl, fótbolti gæti breyst í handbolta, reiður Klopp, Minamino gerir lítið, aulalegt að vera ekki með fimm skiptingar, Mourinho skellihlægjandi, áhorfendleysi truflar, B-lið portúgalska landsliðsins stendur sig vel, Arteta leitar lausna, Aubameyang skorar ekkert, skelfilegt höfuðhögg, áhyggjur af Burnley, Mahrez í stuði, Gylfi fer ekki fet, Everton breytir um kerfi, covid bangsinn Lundstram.

Nov 30, 2020

Maradona í faðmi ljónsins

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember. Orri Páll Ormarsson blaðamaður og rithöfundur mætti í þáttinn. Rætt var um goðsögnina Diego Maradona sem lést á dögunum. Maradona er einn besti, ef ekki besti, fótboltamaður allra tíma og var ótrúlegur karakter. Þá er einnig rætt um áhuga Íslendinga á enska boltanum. Orri skrifaði ástarsögu um þjóðaríþrótt Íslendinga, Í faðmi ljónsins, sem er komin í jólabókaflóðið.

Nov 28, 2020

Þorvaldur Örlygs ræðir um stöðu íslenska boltans

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða við Þorvald Örlygsson um stöðu íslenska boltans og um framtíðarpælingar. Þorvaldur lét nýlega af störfum hjá KSÍ þar sem hann þjálfaði U19 og U17 landsliðin. Hann er nú kominn til Stjörnunnar þar sem hann starfar við hlið Rúnars Páls Sigmundssonar.

Nov 28, 2020

Ítalski boltinn - Táraflóð í Napolí og Inter berst við gamla djöfla

Eftir vel heppnað landsleikjahlé ítölsku liðanna er deildin farin aftur af stað. Stuðningsmenn Napolí kveðja hetjuna sína sem féll frá í vikunni og Antonio Conte hefur ekki tekist að særa út úr Inter liðinu gamla djöfla. Í höfuðborginni standa yfir upptökur á þriðju Airplane! grínmyndinni en í þetta sinn tekur Claudio Lotito forseti liðsins við hlutverki Leslie Nielsens . Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".

Nov 27, 2020

Ungstirnin - 2000 úrvalslið og Blikar koma í heimsókn

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum níunda þætti er fjallað um Yusuf Demir (Rapid Vienna), Marash Kumbulla (Roma) og Yunus Musah (Valencia). Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2000. Davíð Ingvarsson og Brynjólfur Andersen Willumsson leikmenn Breiðabliks voru gestir í þættinum og var rætt um Pepsi-Max tímabilið sem var að klárast sem og það sem hefur verið í gangi á ferli þeirra.

Nov 27, 2020

Miðjan - Siggi Bond var neyddur til að ræna apótek í Amsterdam

Sigurður Gísli Snorrason varð Íslandsmeistari með FH árið 2015 en lífernið fór illa með hann. Fimm árum síðar fann hann botn í lífinu þegar hann mætti vopnaður byssu í apótek í Amsterdam og var handtekinn. Hann sneri lífinu við, tók sig á og átti gott tímabil með Þrótti í Vogum í sumar og stefnir hátt í fótboltanum að nýju. Siggi Bond segir sögu sína í Miðjunni í dag. Meðal efnis: - Hvaðan kemur gælunafnið Siggi Bond? - Gekk illa að ráða við hann á mótum - Andrúmsloftið eftir úrslitaleikinn 2014 - Fyrstu leikir í meistaraflokki og titill með FH 2015 - Skemmtilegt sumar með Pétri Péturs hjá Fram - Er skemmmtilegra að klobba eða skora? - Mætti beint af djamminu á æfingar hjá ÍR - Hætti eftir uppákomu um verslunarmannahelgina í eyjum - Í dagneyslu á kókaíni - Hætti eftir einn leik með ÍR 2019 og fór enn dýpra í ruglið - Handtekinn í Amsterdam í febrúar - Frelsissviptur í 36 tíma - Neyddur til að ræna apótek - Beint í meðferð í Krísuvík - Stóð sig vel með Þrótti Vogum í sumar - ÍBV vildi fá hann eftir tímabilið - Stefnir á að spila með FH aftur

Nov 26, 2020

Fantabrögð - Lognið á undan storminum næstu helgi

Það var fullur bátur af föntum í þættinum í dag. Hlutirnir virðast loks vera að færast í eðlilegt horf. Fantasy-guðirnir sýndu spilurum vægð þegar þeir leyfðu Bruno að skora. Liverpool hélt hreinu. Dominic Calwert-Lewin skoraði. Kane lagði upp. Chris Wood svaraði kallinu. Ekkert nýtt undir sólinni. Sem þýðir að í rauninni var allt nýtt undir sólinni. Þrátt fyrir það eru ákveðnar leikjasveiflur í gangi og næstu vikur munu skipta sköpum fyrir stjóra sem eru að elta uppi forskot. Hvaða liðum á að fjárfesta í? Af hverju eru stjórar ekki að hoppa á KDB eða Salah? Hverjir eru svipustrákarnir í ár? Þessi þriðjudagsþáttur er að sjálfsögðu í boði Dominos, TeqIsland og Nemíu.

Nov 24, 2020

Enski boltinn - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor

Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson mættu skellhlæjandi á skrifstofu Fótbolta.net. Tottenham situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um sigur Spurs á Manchester City sem og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn. Meðal efnis: Taktík Mourinho, Kane kemur stanslaust á óvart, "stálu" Höjberg á þrjár milljónir punda, bóluefni fyrir bikaraafhendingu, aðrir stíga upp hjá Liverpool, brúðkaupið sem Salah fór í, styðja litlu liðin í skiptingunum, lélegt gengi Gautaborg í FM, engin flugeldasýning hjá Man Utd, breidd hjá Chelsea, leiðindi hjá Newcastle, breyta vítareglum, Parker og Bilic í stórhættu, hugmyndasnauðir, Arsenal menn, geðheilsa Arilíusar veltur á Arsenal, baráttuleysi Sheffield United og ótrúleg úrslit Aston Villa.

Nov 23, 2020

Útvarpsþátturinn - Arnar Viðars, Sindri Kristinn og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór ræða ítarlega við Arnar Þór Viðarsson, þjálfara U21 árs landsliðsins og yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ. Rætt er um frábæran árangur U21 landsliðsins og um leitina að næsta A-landsliðsþjálfara. Arnar hefur áhuga á stöðunni. Einnig heyrum við hljóðið í Sindra Kristni Ólafssyni, markverði Keflavíkur. Liðið vann Lengjudeildina í sumar. Þá var Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur í enska boltanum, einnig á línunni og athyglinni beint að viðureign Liverpool og Leicester.

Nov 21, 2020

Fantabrögð - Kaup og Salah

Fantasy liðin okkar halda áfram að verða fyrir áföllum í landsleikjahléum. Stærstu fréttirnar eru þær að Mohamed Salah sýktist af kórónaveirunni en spurningin er hvort hann verður frá í einn leik eða lengur. Ef maður selur hann, hvern á maður að kaupa í staðinn? Eru Everton að fara að snúa við blaðinu þegar þeir fá sína bestu menn til baka? Á að selja Kane og Son? Á að taka þrjá í Aston Villa? Hver er hinn nýi Trent? Allt þetta og meira til í nýjustu Fantabrögðum.

Nov 19, 2020

Heimavöllurinn - Íslandsmeistari best í 2. deild og ungfrú Hveragerði skuldar tattú

2. deildin á hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. HK-ingarnir Karen Sturludóttir og Lára Hallgrímsdóttir fara yfir sumarið en HK leikur í Lengjudeildinni að ári. Þá kemur Dagný Rún Gísladóttir, konan sem átti stóran þátt í að stofna nýjan meistaraflokks Hamars, í heimsókn og segir frá ævintýrinu í Hveragerði.

Nov 19, 2020

Innkastið - Íslenska blandan breytist en margt jákvætt í kortunum

Innkastið eftir tap Íslands gegn Englendingum á Wembley. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Magnús Már Einarsson fara yfir sviðið og ræða landsliðsmálin. Meðal umræðuefna: Frammistaðan gegn Englandi og einkunnir, Hamren og fleiri kveðja, hver verður næsti landsliðsþjálfari?, staða enska landsliðsins, U21 landsliðið á EM. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Nov 18, 2020

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti hjá Íslandi og Pepsi Max tíðindi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Örvar Arnarsson, fréttamaður Fótbolta.net, er á línunni en hann var í Búdapest á fimmtudaginn þegar Ísland tapaði úrslitaleiknum gegn Ungverjalandi. Sigurbjörn Hreiðarsson fer yfir leikinn og ræðir um framhaldið. Hver mun taka við landsliðinu af Erik Hamren sem tilkynnti að hann muni ekki halda áfram við stjórnvölinn. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræðir um peningana sem íslensk félagslið missa af fyrst landsliðið komst ekki á EM. Þá er fjallað um fréttir vikunnar í íslenska boltanum og spjallað við Davíð Þór Viðarsson, aðstoðarþjálfara FH.

Nov 14, 2020

Innkastið - Ólýsanlegt svekkelsi en hvað gerist næst?

Landsleikurinn gegn Ungverjum er gerður upp í boði White Fox, Viking og Domino's. Íslandi tókst ekki að koma sér á þriðja stórmótið í röð. Hrikalega svekkjandi tapleikur í Búdapest þar sem Ísland var yfir þar til á 88. mínútu. Hvað fór úrskeiðis og hvað tekur við? Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir leikinn í .Net hljóðverinu.

Nov 12, 2020

Ungstirnin - Mikilvægt verkefni U21 og Luigi gestur

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum áttunda þætti er fjallað um Becir Omeragic (FC Zurich), Leonidas Stergiou (St. Gallen) og Florian Wirtz (Bayer Leverkusen). Rætt er um mikilvæga leiki U21-landsliðsins sem spilar gegn Ítalíu á fimmtudag og Írlandi á sunnudag. Þessir leikir skipta miklu máli í baráttunni um að komast í lokakeppni EM U21 landsliða á næsta ári en Ísland er í hörkubaráttu um að komast á mótið. Logi Tómasson (Luigi), leikmaður Víkings og tónlistarmaður, er gestur þáttarins og er rætt um það sem hefur verið í gangi á hans fótboltaferli og tónlistarferli.

Nov 11, 2020

Ítalski boltinn - Kvensjúkdómalæknirinn Lotito og lið umferða 1-7

AC Milan trónir á toppnum þegar sjö umferðir eru liðnar af Serie-A. Lazio heldur áfram að safna stigum í uppbótartíma en utan vallar er liðið í vandræðum enda starfsmenn félagsins sakaðir um að svindla á Covid prófum. Eða hvað? Veit forseti liðsins betur en við öll hvernig veiran dreifir sér? Fiorentina nýtir landsleikjahléið til að ráða nýjan þjálfara sem þekkir Flórens betur en flestir og fyrstu leiðinlegu leikir ársins í Serie-A litu dagsins ljós um helgina. Í þættinum verður líka tekið saman úrvalslið umferða 1-7. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Þátturinn er í boði Origo.

Nov 10, 2020

Enski boltinn - Tom og Bjarni fóru yfir stóru málin

Tómas Þór Þórðarson og Bjarni Þór Viðarsson á Síminn Sport kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni. Þeir félagar ræddu um byrjun tímabils og einnig var rætt um stórleik Ungverjalands og Íslands. Meðal efnis: Firmino á að fara á bekkinn, þreyta í stórleiknum, fleiri skiptingar, Ole ennþá með klefann, Bruno Fernandes með heilt lið á bakinu, bakverðir Man Utd slakir, Aston Villa hljóp yfir Arsenal, geggjaður Grealish, lágt XG hjá Aubameyang, frískur Mourinho, Kane í bómul, dagarnir á toppnum hjá Southampton, gleðin búin hjá Everton, klókur Brendan, hrun Sheffield United, versta vítaspyrna sögunnar, þrír bestu á tímabilinu, bjartsýni fyrir leikinn í Ungverjalandi og margt fleira.

Nov 9, 2020

Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur landsliðsins og íslenskar fréttir

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 7. nóvember. Umsjón Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hitað upp fyrir Ungverjaland - Ísland, úrslitaleikinn um sæti á EM sem verður á fimmtudaginn. Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður er á línunni. Þá var einnig rætt við Sigurbjörn Hreiðarsson. Hann rýndi í stórleikinn í Búdapest og ræddi einnig aðeins um þá gulu og glöðu í Grindavík. Rætt var við Rúnar Pál Sigmundsson um endurnýjunina í Garðabæ en fréttatilkynningarnar hrannast inn frá Stjörnunni. Þá er farið yfir fréttirnar úr íslenska boltanum og slúðursögur fá að fljúga.

Nov 7, 2020

Ástríðan - Uppgjör 2. deildar með góðum gestum

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Nú er komið að því að gera tímabilið í 2. deild upp en fulltrúar þeirra liða sem komust upp úr deildinni mættu í hljóðver. Magnús Þórir Matthíasson, leikmaður Kórdrengja, og Arnar Logi Sveinsson, leikmaður Selfyssinga, eru gestir þáttarins. Umsjónarmenn eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason en þeir gera upp árið í 2. deild.

Nov 6, 2020

Ástríðan - Uppgjör ársins í 3. deildinni

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er tímabilið í 3. deildinni gert upp, opinberað val á liði ársins og þeim bestu í deildinni. Umsjónarmenn eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason.

Nov 5, 2020

Heimavöllurinn - Risa uppgjör á Maxinu, fimm vanmetnar og sú besta skeindi deildinni

Keppni á Íslandsmótunum var hætt og bikarkeppnin blásin af. Blikar standa uppi sem Íslandsmeistarar en FH og KR falla. Heimavöllurinn gerir upp Pepsi Max deildina með góðvini þáttarins, Gylfa Tryggvasyni. Við opinberum úrvalslið Heimavallarins og veljum besta og efnilegasta leikmann, besta þjálfara og ýmislegt fleira.

Nov 5, 2020

Ítalski boltinn - Forsetar harðir í horn að taka

Zlatan Ibrahimovic er kominn með sjö mörk í fjórum leikjum fyrir AC Milan sem trónir á toppi Serie-A eftir 6 umferðir. Bakfallsspyrnumarkið hans gegn Udinese var eitt af fjölmörgum stórkostlegum mörkum umferðarinnar. Varnarlína Inter bauð upp á hrekkjavökuþema gegn Parma og tveir þjálfarar eru á barmi þess að missa starfið. Þrír Íslendingar spiluðu stór hlutverk í bikarleikjum á meðan landsliðsmaður er kominn út í kuldann hjá einum harðasta forseta landsins. Um þetta allt og meira til er fjallað í þætti vikunnar af ítalska boltanum. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".

Nov 4, 2020

Fantabrögð - Tökum skrýtna sénsa

Fantabrögð fóru í saumana á því sem gerðist um helgina og spáðu í næstu umferð. Er Calwert-Lewin partýið búið? Er Jack Grealish orðinn skyldueign? Hvað með Jannick Vestergaard eða Diogo Jota? Er Chelsea að komast í gang? Á að selja Tottenham menn eftir næstu umferð?

Nov 3, 2020

Enski boltinn - Liverpool kreistir sigra og einbeitingarlaus Pogba

Það var Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolti.net í dag. Liverpool stuðningsmennirnir Hlynur Valsson og Hrafn Kristjánsson fóru yfir sviðið. Hlynur er lýsandi hjá Síminn Sport en Hrafn þjálfar körfuboltalið Álftnesinga. Meðal efnis: Liverpool kreistir sigra, Manchester City leikurinn gengur fyrir, Salah með miðverði eins og bakpoka, byrjun Jota ekki tilviljun, Mpabbe á óskalista City?, Partey frábær, Arteta byggir út frá vörninni, einbeitingarlaus Pogba, vondur árangur Man Utd á Old Trafford, Mendy hrúgar inn hreinum lökum, öflug sumarkaup Chelsea, Everton saknar James og Richarlison, Leicester refsar með hraðanum og líkindi með Bielsa og Óskari Hrafni.

Nov 3, 2020

Innkastið - Uppgjör Pepsi Max-deildarinnar 2020

Innkastið gerir upp Pepsi Max-deild karla 2020. Einnig er rætt um Lengjudeildina. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis eru í sérstökum uppgjörsþætti tímabilsins. Lið ársins er opinberað, þjálfari ársins, leikmaður ársins, besti ungi leikmaðurinn og White Fox ákvörðun ársins.

Nov 2, 2020

Útvarpsþátturinn - Fótboltinn blásinn af

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Íslandsmótinu í fótbolta 2020 er lokið. Elvar Geir og Tómas Þór skoða lokastöðuna í þættinum og ræða um þessa ákvörðun. Rætt er við Ólaf Inga Skúlason hjá Fylki og Bjarna Guðjónsson, aðstoðarþjálfara KR. Bæði þess lið voru í baráttu um Evrópusæti þegar mótinu var slaufað. Þá fer Úlfur Blandon, sérfræðingur þáttarins, yfir Lengjudeildina.

Oct 31, 2020

Ungstirnin - 98 úrvalslið og Ísak í sviðsljósinu

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sjöunda þætti setja þeir saman úrvalslið leikmanna sem fæddir eru 1998, fara yfir helstu tíðindi og ræða meðal annars um athyglina sem Ísak Bergmann Jóhannesson hefur verið að fá. Í þættinum er fjallað um Myron Boadu (AZ), Rayan Aït-Nouri (Wolves) og Mohamed Ihattaren (PSV).

Oct 29, 2020

Ítalski boltinn - Afskorið svínshöfuð og ljót skilaboð

Fimm umferðir eru nú liðnar af leiktíðinni á Ítalíu og sumir stuðningsmenn eru þegar farnir að hóta eigendum liðsins með afskornu svínshöfði og ljótum skilaboðum. Íslendingar eru farnir að byrja, koma inná og skora. Í þættinum verður líka farið yfir umferð þar sem Juventus missteig sig gegn Verona, AC Milan og Roma skildu jöfn í æsispennandi markaleik og haustþokan í Reggio Emilia gerði áhorfendum erfitt fyrir. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Þátturinn er í boði Origo.

Oct 27, 2020

Fantabrögð - Botnlaus Bamford Brunch

Mest óþolandi tímabil allra tíma heldur áfram í Fantasy Premier League. Mörkunum fækkaði heldur betur og stjórar sátu eftir með sárt ennið. Leeds var eina liðið sem skoraði meira en tvö mörk í umferðinni og það var Bamford brunchinn sem hélt áfram með þrennu. Manchester United og Chelsea stoppuðu í götin með því að stilla upp 5 manna vörn, á meðan Salah klikkaði sem vinsælasti fyrirliðinn. Wolves vill ekki skora fyrr en á 80. mínútu og Arsenal vill bara alls ekki skora mörk, allavega ekki lögleg. Þetta og allt hitt um vonbrigði helgarinnar í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.

Oct 27, 2020

Enski boltinn - Hægt spil Arsenal og líklegir Liverpool menn

Það var Arsenal þema í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" í þessari viku. Einar Guðnason og Jón Kaldal, stuðningsmenn Arsenal, fóru þar yfir leiki helgarinnar á Englandi. Meðal efnis: Hugmyndasnauðir Arsenal menn, vantar markaskorara, stjóraskipti hjá Man Utd og Chelsea, bæta við kílóum á Rúnar Alex, sorgarsaga Özil, vélmenni í VAR, Cavani, Liverpool langlíklegastir, óvissa með Guardiola, Kane skorar úr ekki færum, klikkaður Bielsa, öflugur Ward-Prowse, alls konar lið í toppbaráttu, sakna Wenger.

Oct 26, 2020

Heimavöllurinn: Treystir Jón Þór á ungar í stórleiknum við Svíþjóð?

Hulda Mýrdal og Mist sameinast loksins í stúdíóinu og fara yfir málin. Það á að klára Íslandsmótin en áður en það gerist er RISA leikur á dagskrá þegar Ísland mætir Svíþjóð ytra. Hvernig er staðan á leikmannahópnum og hvernig stillir Jón Þór upp? Hvað gera Pétur og Valskonur svo til að undirbúa sig fyrir Meistaradeildarslaginn sem má líklega ekki æfa saman fyrir? Og hvað gerist í Maxinu miðað við nýjustu fréttir?

Oct 25, 2020

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Logi Ólafs

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. október. Flaggskip X977 fullmannað. Elvar Geir og Tómas Þór halda um stjórnartaumana og ræða um teikningarnar að því hvernig klára skal Íslandsmótið. Logi Ólafsson, þjálfari FH, kom í viðtal. Rætt var um stöðu mála, endurkomu hans í fótboltann, sögusagnir um að hann hætti eftir tímabilið, landsliðið og fleira. Þá var rætt um enska boltann, Pele og Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtakana, svaraði fyrir umræðu í Pepsi Max-Stúkunni á Stöð 2 Sport.

Oct 24, 2020

Ítalski boltinn - Zlatan sýningin í Derby della Madonnina

Í þætti vikunnar verður farið yfir Zlatan showið í Derby della Madonnina, Juventus sem missteig sig djúpt í suðrinu og Napoli sem leit út eins og Atalanta gegn Atalanta. Þá verður líka fjallað um Fabio Quagliarella sem skoraði fyrir Sampdoria um helgina, og á að baki ótrúlegan feril bæði innan vallar sem utan. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Ef þú hefur ábendingar eða spurningar, hvort sem það snýr að ítölsku deildinni eða bara ferðalögum um Ítalíu almennt, endilega hafðu þá samband á Twitter við @bjornmaro

Oct 20, 2020

Fantabrögð - Hvað skal gera við Kevin?

Enski boltinn sneri aftur eftir landsleikjahlé með viðburðaríkri umferð. Rauð spjöld, vítaspyrnur, ótrúleg jafntefli og meiðsli lykilmanna. Á að losa sig við Trent? Hvað með Kevin De Bruyne og Van Dijk sem eru báðir meiddir? Á að kaupa Agüero? Þetta og margt fleira í nýjum þætti af Fantabrögðum. Fantabrögð eru í boði Dominos og Elko.

Oct 20, 2020

Enski boltinn - Ótrúleg úrslit og hrikalegar fréttir

Það er nóg að ræða í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" eftir liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Man Utd og útvarpsmaður á Rás 2, eru gestir vikunnar.

Oct 20, 2020

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, ástandið og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Kristján Guðmundsson fótboltaþjálfari er sérstakur gestur þáttarins og er hann við boltahringborðið í fyrri hlutanum. Rætt er um ástandið í íslenska boltanum en mótahald er aftur stopp og þá var landsleikjaglugginn gerður upp og þessir þrír leikir sem Ísland lék. Í þættinum er einnig rætt við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing þáttarins um enska boltann og Davíð Snorra Jónasson sem stökk óvænt í það hlutverk að vera við stjórnvölinn þegar Ísland mætti Belgíu í Þjóðadeildinni. Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson stýra þættinum að þessu sinni þar sem Elvar og Tómas voru báðir fjarri góðu gamni.

Oct 17, 2020

Ungstirnin - Mosfellingarnir Arnór Gauti og Róbert Orri

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sjötta þætti er fjallað um Exequiel Palacios (Bayer Leverkusen), Naci Ünüvar (Ajax) og Maarten Vandervoordt (Genk). Gestir þáttarins eru Mosfellingarnir Arnór Gauti Jónsson sem spilar með Fylki og Róbert Orri Þorkelsson hjá Breiðabliki.

Oct 15, 2020

Heimavöllurinn: Unfinished business hjá þeirri bestu og fyrirliðinn ætlar að byggja stúku

Heimavöllurinn beinir spjótum sínum norður á Sauðárkrók að þessu sinni en fyrir stuttu tryggði Tindastóll sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Magnaður árangur og við förum yfir ævintýrið frá A-Ö ásamt þjálfurum liðsins, þeim Guðna Þór Einarssyni og Jóni Stefáni Jónssyni og fyrirliðanum Bryndísi Rut Haraldsdóttur.

Oct 12, 2020

Útvarpsþátturinn - Gamla bandið, Arnar Grétars og leikmannakönnun

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Landsliðið var í brennidepli og fjallað vel um sigurinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM alls staðar. Í upphafi: Rætt um landsliðiðið. 20:00 Arnar Grétarsson um KA og landsliðið. 57:00 Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, ræðir um óvissuna sem er í gangi varðandi Íslandsmótið í fótbolta. Hversu margir leikmenn vilja að keppni sé hætt? 77:30 Freyr Alexandersson í beinni frá búbblu landsliðsins.

Oct 10, 2020

Ástríðan - Neyðarumræður á skrifstofunni

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í ljósi ástandsins var blásið í neyðarumræður á skrifstofu Fótbolta.net. Óskar Smári Haraldsson, Baldvin Már Borgarsson og Sverrir Mar Smárason fóru yfir málin. Rætt var um ýmis málefni tengd neðri deildunum og velt því fyrir sér hvort mótið yrði blásið af?

Oct 9, 2020

Ástríðan - Farið yfir 2. deild og gestir úr 3. deild

Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason ræða um 2. og 3. deildina. Í þáttinn mæta góðir gestir úr tveimur bestu liðum 3. deildarinnar sem hafa tryggt sér sæti í 2. deild á næsta tímabili. Það eru Ási Þórhallsson úr Reyni Sandgerði og Einar Már Þórisson, fyrirliði KV. Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á þriðjudagskvöld, þegar útlit var fyrir að fótboltinn væri að fara aftur í frestun.

Oct 7, 2020

Fantabrögð - Ollie-ðandi frammistaða

Ollie hornið var langt að þessu sinni, enda opnaði Ollie Watkins markareikning sinn með þrennu gegn Englandsmeisturum Liverpool. Ekkert við þetta gufuruglaða tímabil meikar sens og þessi umferð í enska boltanum og FPL staðfesti það endanlega. Son var ekki meiddur, heldur fullfrískur og refsaði grimmilega þeim sem seldu hann - aftur! Wolves líta ekki vel út og West Ham eru skyndilega eitt heitasta liðið í deildinni. Þetta og fleiri órökréttar ákvarðanir í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Þátturinn er í boði Dominos, ELKO, Teqisland og Nemíu.

Oct 6, 2020

Enski boltinn - Galin úrslit degi fyrir gluggadag

Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Í dag er síðan gluggadagurinn og mörg lið í leit að liðsstyrk. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru í skýjunum eftir 6-1 útisigur á Manchester United. Þeir félagar mættu í heimsókn og ræddu helgina í enska boltanum og gluggdaginn.

Oct 5, 2020