
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 31 of 57

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Atli Viðar
Íslenski boltinn í tæplega tvo tíma. Atli Viðar Björnsson er sérstakur gestur þáttarins. Rætt er um Pepsi Max-deildina og farið ítarlega yfir sigur KA gegn KR og fréttir vikunnar. Guðmundur Andri gekk í raðir Vals og Finnur Tómas kom heim í KR. Rúnar Páll er hættur sem þjálfari Stjörnunnar. Hvað gerðist í Garðabænum? Skoðaðir eru næstu leikir í deildinni. Einnig er farið yfir fyrstu fjóra leiki Lengjudeildarinnar.

Heimavöllurinn: Power í Pepsi og Lengjudeildin byrjar!
Fótboltasumarið er byrjað og það með látum! Heimavöllurinn fylgist spenntur með og fer yfir fyrstu umferðina í Pepsi Max og hitar upp fyrir Lengjudeildina sem hefst á morgun. Gestir þáttarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfararnir Margrét Sveinsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir.

Fantabrögð - Þreföld þristamús!
Frestun á leik Manchester United og Liverpool gerði það að verkum að þessi umferð fór fyrir ofan garð og neðan. Harry Kane var langvinsælasti fyrirliðinn en honum tókst að safna heilum tveimur stigum gegn stálstrákunum frá Sheffield. Aron og Gunni mættu í stúdíóið til að tala um þreföldu umferðina sem blasir nú við Manchester United og þá tvöföldu sem blasir nú við mörgum öðrum liðum. Reiður hlustandi sendi svo inn lesendabréf og las einum þáttastjórnanda pistilinn. En við lifum og lærum.

Ástríðan - Premier League leikmaður í Vogana og upphitun fyrir 1. umferð
Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Farið var yfir 1. umferð í 2. og 3.deild. Helstu félagaskipti voru skoðuð og meðal annars sprengja úr Vogunum! Létt spá fyrir leikina og hvað verður um Einherja? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

Enski boltinn - Allt tryllt á Old Trafford
Lætin á Old Trafford og leikir helgarinnar í enska boltanum voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Haukur Harðarson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Bálreiðir stuðningsmenn, hliðin opnuðust, hvað gerist í sumar?, stjóraskipti Chelsea skipta sköpun, Tuchel notar hópinn vel, svalur Zidane, skjálfti í Leicester, Bale á eldi, City getur klárað dæmið um næstu helgi, Newcastle og XG kóngarnir öruggir, Meistaradeildarspá, KR-ingar í stuði og margt fleira.

BÁN: Addi með belti og axlabönd og Hanski hélt hreinu
Boltinn á Norðurlandi ræddi það helsta sem gerðist um helgina. KA byrjaði með flugeldasýningu, Þór lagði Magna og mikil dramatík á Dalvík. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir stóru málin og heyrðu í Egga Fúsa. Spáð í spilin og rýnt til gagns. Þátturinn er í boði Kaffid.is, PSA og Vamos.

Innkastið - Nýr leikur en sömu úrslit þegar Rúnar mætir Óskari
Uppgjör 1. umferðar Pepsi Max-deildar karla í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir leikina. Domino's Pizza býður upp á þáttinn. Meðal efnis: KR vinnur alltaf Blika, Sölvi langbestur í Víkinni, skýrsla úr leiðinlegum leik í Kórnum, magnaður markvörður Leiknis, rautt spjald í Árbænum, Gunni giskar og bikarhorn.

Heimavöllurinn: Lúxus fyrirpartý fyrir Pepsí Max
Fótboltasumarið 2021 er að hefjast og spennan er óbærileg. Aníta Lísa knattspyrnuþjálfari og Karólína Jack leikmaður Fylkis mæta á Heimavöllinn í lokaupphitun fyrir Pepsí Max deildina. Við heyrum einnig í Báru Kristbjörgu sem fer yfir draumaliðið sitt og rýnir í deildina.

Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin og opnunarleikurinn krufinn
Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins: Rafn Markús Vilbergsson. Opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar, leikur Vals og ÍA, er krufinn og farið yfir helstu fréttir varðandi deildina. Burðarefni þáttarins er þó spá Lengjudeildarinnar, fjallað er um öll liðin tólf.

Binni og Grímsi í KA-Special - „Sterkasta KA-liðið by a mile"
Sæbjörn Steinke ræddi við þá Brynjar Inga Bjarnason og Hallgrím Mar Steingrímsson leikmenn KA í sérstökum upphitunarþætti fyrir mót. KA mætir HK í fyrsta leik sínum á morgun og ljóst að KA vill vera í baráttunni um eitthvað stærra og meira en undanfarin ár. Þátturinn var tekinn upp í Podcast Stúdíói Akureyrar.

Fantabrögð - Fantabrögð x Hemson
Það vantaði bæði Gylfa og Gunna þessa vikuna og því brá Aron á það ráð að fá gest sem hefur gengið ansi vel á þessu tímabili í Fantasy, sjálfan Heiðmar Eyjólfsson sem er langefstur Íslendinga og númer 6 í heiminum. Þeir ræddu gengi Heiðmars á tímabilinu og hvað er á bakvið þennan rosalega árangur hans, en hann er einungis 27 stigum frá toppsætinu á heimsvísu. Strákarnir tóku spurningar hlustenda og fóru yfir hvaða breytingar gætu skilað lúmskum stigum á lokasprettinum. Að lokum fóru þeir svo stuttlega yfir draumaliðsdeild Eyjabita og gáfu upp lið Arons og Gylfa. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Innkastið - Púlsinn tekinn fyrir fyrstu umferð
Innkastið er með léttan upphitunarþátt fyrir 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem Elvar Geir og Magnús Már taka púlsinn á góðum mönnum. - Jóhannes Karl Guðjónsson ræðir um sumarið framundan hjá ÍA en liðið á opnunarleikinn gegn Val á föstudag. - Tryggvi Hrafn Haraldsson, sóknarmaður Vals, ræðir um meiðslin sem hann hlaut í æfingaleik nýlega. - Gunnar Birgisson ræðir um fréttir vikunnar og giskar á úrslitin í fyrstu umferð. - Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, ræðir stuttlega um áhorfendatakmarkanir. Það verður uppselt á alla leiki í 1. umferð!

Enski boltinn - Martraðarsumar framundan
Tottenham tapaði gegn Manchester City í enska deildabikarnum um helgina og bið félagsins eftir bikar lengist. Stjóraskipti Tottenham, úrslitaleikurinn og staðan almennt í enska boltanum var til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, voru gestir þáttarins í dag. Meðal efnis: Martraðarsumar framundan, Reykjalundur, spara pening með því að reka Mourinho, engin trú í úrslitaleiknum, flug á Chelsea, Ten Hag tekur við Tottenham, seivað í draft, ferðir til Englands, klúður hjá Liverpool, hvað gerir Kane?, framherjakapall í sumar, Pepsi Max-deildin, Árborg og margt fleira.

Innkastið x Ástríðan - Lögreglumál og Púskas verðlaunasjálfsmark
Mjólkurbikarinn er farinn af stað en aðeins einn leikur er eftir í 1. umferðinni. Í þessum sérstaka bikarþætti sameinast Innkastið og Ástríðan í yfirferð um bikarleiki helgarinnar. Elvar Geir, Sverrir Mar og Ingó Sig eru í hljóðveri. Meðal efnis: Lögreglan kölluð til, Púskas verðlaunasjálfsmark, Hjörtur á skotskónum, Svavar Elliði og félagar í Gullfálkanum brotlentu, Baldvin fékk rautt og vígsluleikur á Hellissandi. Einnig er aðeins litið á upphaf Pepsi Max-deildarinnar, opnunarleik Vals og ÍA sem verður á föstudaginn og spáð í aðra leiki umferðarinnar.

Útvarpsþátturinn - Stóri Pepsi Max þátturinn
Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar 2021. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Farið er yfir spá Fótbolta.net fyrir Pepsi Max-deildina 2021. Öll liðin eru skoðuð og menn setja ýmsar athugasemdir við spánna!

Heimavöllurinn - Of feimin til að mæta á æfingar, FH ætlar upp og Arna Sif dóminerar skosku háloftin
Sumarið er komið og það er þétt dagskrá á Heimavellinum að þessu sinni. Karitas Tómasdóttir, splunkuný landsliðskona úr Rangárvallasýslu mætir í heimsókn auk FH-inganna Ernu Guðrúnar Magnúsdóttur og Selmu Daggar Björgvinsdóttur sem geta ekki beðið eftir fótboltasumrinu. Þá slá þáttastýrur á þráðinn til Glasgow þar sem okkar kona, Arna Sif Ásgrímsdóttir, er að gera gott mót.

Ungstirnin - Pepsi Max upphitun með Rikka G
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þátturinn að þessu sinni er sérstakur upphitunarþáttur fyrir Pepsi-Max Deildina sem hefst 30. apríl nk. Útvarpsmaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason mætir sem gestur og spáir fyrir hvar öll tólf liðin munu enda í ár. Magnús Hólm annar þáttarstjórnandi þáttarins fór yfir hvaða ungu leikmönnum liðanna þjóðin ætti að fylgjast með í sumar.

Ofurdeildin fjarar út og Woodward stekkur frá borði
Annar aukaþáttur vegna Ofurdeildarinnar. Áætlanir um stofnun deildarinnar hafa runnið út í sandinn eftir að ensku félögin stukku frá borði. Elvar Geir og Magnús Már skoða málið með tveimur sérfræðingum. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir um hvað varð deildinni að falli. Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfréttar og sérfræðingur um Manchester United, fer yfir þau tíðindi að Ed Woodward sé hættur sem framkvæmdastjóri United og hvaða áhrif Ofurdeildin hefur á eigendur félaganna.

Ítalski boltinn - Lítill spiltími Andra vonbrigði
Hlaðvarpsþátturinn Ítalski boltinn er aftur mættur eftir smá hlé. Björn Már Ólafsson fer yfir allt það helsta sem er að gerast í ítalska boltanum og hvernig síðustu vikur hafa spilast. Skoðað er hvernig Íslendingarnir hafa verið að gera, rætt um stöðu mála í A-deildinni og allar helstu fréttir og sögusagnir skoðaðar. Zlatan, Ronaldo, Ofurdeildin og ýmislegt fleira.

Enski boltinn - Óvæntur brottrekstur Mourinho og Ofurdeildin
Brottrekstur Jose Mourinho, ný Ofurdeild og leikir helgarinnar voru til umræðu í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Meðal efnis: Sprengja milli Mourinho og Levy, óvæntur brottrekstur, hvað gerir ungur Mason við stýrir?, Mourinho gæti tekið við landsliði, peningagræðgi í Ofurdeildinni, stuðningsmenn mótmæla harðlega, mörg lið vilja ekki fara í Ofurdeildina, Tuchel tók Guardiola úr sambandi, Jorginho blómstrar, Greenwood í stuði á hægri kantinum, Man Utd þarf þrjá öfluga í sumar, frábær tenging hjá Gylfa og James, Ashley teiknar styttu af Bruce, óheppni Fulham og margt fleira.

Allt nötrar út af Ofurdeildinni - NBA deild í Evrópu
Stofnun nýju Ofurdeildarinnar kallar á sérstakan aukaþátt. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, fer yfir þessa nýju deild og peningana á bak við hana. Elvar Geir og Magnús Már ræða við Björn Berg um allt sem tengist þessum risastóru fréttunum.

Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, vetrarverðlaun og Spánarspark
Pepsi Max-deildin fær stórt pláss í þætti Elvars Geirs og Tómasar Þór þessa vikuna. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, er gestur þáttarins og þá eru Vetrarverðlaunin 2021 opinberuð þar sem bestu leikmenn undirbúningstímabilsins eru valdir. Einnig er rætt við Egil Arnar Sigurþórsson dómara og Magnús Val Böðarsson vallarstjóra. Þá er Spánarsparkið einnig til umfjöllunar en það er mikil spenna í La Liga. Mikael Marinó Rivera, stuðningsmaður Real Madrid, er á línunni.

Meistaradeildin - Enskur úrslitaleikur í kortunum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með sérstakan aukaþátt í hlaðvarpsformi þar sem fjallað er um 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir leikina, skoða undanúrslitin og spá í Evrópudeildarleikina framundan.

Fantabrögð - Messi KingGod dregur vagninn
Öllum að óvörum var Stuart Dallas stigahæsti leikmaður umferðarinnar í Fantasy Premier League, sem var óheppilegt því flestir sem áttu hann stilltu honum upp sem þriðja varamanni á bekk. Jesse Lingard a.k.a. Messi KingGod heldur áfram að vera ekkert eðlilega góður og er nú með tæp 13 stig að meðaltali síðustu 3 umferðir. Tottenham á tvöfalda umferð og við megum reikna með því að sjá svívirðilega tölu í fyrirliðavali á Harry Kane. Er kominn tími á að selja alla Manchester City leikmenn? Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Enski boltinn - West Ham bestir í London
Baráttan um Meistaradeildarsæti verður harðari og harðari og það voru dramatísk sigurmörk í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Tómas Steindórsson, stuðningsmaður West Ham, og Guðmundur Gunnar Guðmundsson, stuðningsmaður Arsenal, og Mate Dalmay, markaðsstjóri Fótbolta.net, fóru yfir stöðuna í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag. Meðal efnis: Meðal efnis: Moyes á Zoom, Nolan drillaði liðið, fyndið þegar Lingard kom, Noble lyftir Meistaradeildardeidlarbikarnum, dýrt partý hjá Leicester, öflug endurkoma Man Utd, vantar miðvörð fyrir Lindelöf, Butterfly effect hjá Dagnýju, Trent hetja Liverpool, mikið af pylsum í Chelsea, Rudiger í WBA, sigurmarkið eins og í FIFA, Arsenal hélt loksins hreinu, Arteta rekinn ef þetta lagast ekki, dýrkeypt mörk hjá Fulham, Parker eins og Jói Kalli, West Ham stærsta liðið í London.

Útvarpsþátturinn - Alfons, Rúnar Kristins og Meistaradeildin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Hringt er til Noregs þar sem Alfons Sampsted ræðir um stöðu mála. Alfons er ríkjandi Noregsmeistari með Bodö/Glimt en upphafi norsku deildarinnar var frestað vegna Covid-19 faraldursins. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins. Í ítarlegu spjalli ræðir um stöðu mála í Vesturbænum og Pepsi Max-deildina sem er framundan. Í lok þáttarins fer Kristján Atli Ragnarsson svo yfir Meistaradeildina og spáir í spilin fyrir seinni leikina í 8-liða úrslitum.

Fantabrögð - Whole Jota Love
A-príl mánuðurinn mikli byrjaði heldur hægt og var það einungis fyrirliðinn Harry Kane sem bjargaði umferðinni hjá mörgum. Liverpool unnu 3-0 sigur á Arsenal þar sem Diogo Jota skoraði tvö mörk. Hann er nú eftirsóttasta varan í Fantasy Premier League og þjálfarar keppast við að kaupa hann. Spurningar hlustenda í þessum þætti af Fantabrögðum snerust að stóru leyti um Wildcard, enda þáttastjórnendur búnir að tala mikið fyrir því að spila því á þessum tímapunkti og a.m.k. einn þeirra búinn að virka það. Menn eins og Nat Phillips, Mahrez og Lingard komu við sögu ásamt fleiri góðum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Enski boltinn - Liverpool vaknar og Barcelona í dulargervi
Boltinn byrjaði að rúlla á ný í ensku úrvalsdeildinni um helgina eftir landsleikjahlé. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Hlynur Valsson, lýsandi hjá Símanum, fóru yfir stöðu mála. Meðal efnis: Eins og í tölvuleik, WBA eins og Barcelona í dulargervi, reynir á andlegu hliðina hjá Chelsea, Jorginho markahæstur, Liverpool réttir úr kútnum, Trent brjálaður, Arsenal gátu ekkert, misheppnuð tilraun með Aubameyang, Liverpool á góðan séns gegn Real Madrid, Man City vel gíraðir, hvaða framherja kaupir City í sumar?, gott tímabil hjá Manchester United, Solskjær sannar sig, Harry Kane á gatnamótum, Tottenham tapar niður forystu, Lingard á eldi, Moyes stjóri ársins, skrýtið að hafa Gylfa á bekknum, lykill fyrir Leeds að halda Bielsa, rosalegir leikir í Meistardeildinni.

Ungstirnin - Uppgjör á riðlakeppni EM U21
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum átjánda þætti gera þeir upp riðlakeppni Evrópumóts U21 landsliða. Gleðilega páska!

Útvarpsþátturinn - Láki um landsliðið, Addi Grétars og Birkir Már
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hringdu til Hong Kong í Þorlák Árnason yfirmann knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong til að ræða framtíð íslenska landsliðsins, Arnar Grétarsson talaði um KA og fótboltann í Covid og Birkir Már Sævarsson fór yfir áhugaverða landsliðsviku.

Innkastið - Hverjir spila í september?
A landslið Íslands náði í fyrsta sigurinn í undankeppni HM í kvöld. Ísland vann Liechtenstein örugglega 4-1 á útivelli. Framundan eru fimm heimaleikir í röð í undankeppninni í haust og þar kemur betur í ljós hvort Ísland geti blandað sér í baráttuna um að komast á HM í Katar. U21 landslið Íslands tapaði 2-0 gegn Frökkum í dag og endaði án stiga á EM í Ungverajalandi. Tómas Þór Þórðarson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson fóru yfir þessa leiki og stöðuna.

Fantabrögð - Marserað inn í (a)prílmánuð
Aron, Gunni og Gylfi fóru yfir stöðu mála í Fantasy leiknum. Landsleikjahléð er að klárast og nú hefst lokaspretturinn í deildinni. Leikjaprógrammið sveiflast hjá nokkrum liðum. Hvernig kemur Liverpool undan pásunni? Og fyrir þá sem hafa upp á lítið að keppa, hvernig er best að mótívera sig þannig að maður geti prílað upp töfluna. Hvaða mánuður er betri til þess en apríl? Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Innkastið - Tankurinn að tæmast
Svartur sunnudagur í íslenska boltanum. U21 landsliðið og A-landsliðið eru samtals með 0 stig. Slæmt tap gegn Armeníu, áttum ekkert skilið, trúin ekki til staðar, kallað eftir kynslóðaskiptum. Er vonin úti? Getur gamla bandið komið okkur til Katar? Einnig er rætt um U21 landsliðið. Auglýsingaglugginn sem vonast var eftir er mölbrotinn. Elvar Geir, Magnús Már og Tómas Þór fóru yfir landsliðsdaginn.

Útvarpsþátturinn - Landsliðin beint í æð og staðan á íslenska boltanum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. mars. Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað og landsliðin voru í brennidepli. Tómas Ingi Tómasson var á línunni þegar farið var yfir síðustu leiki U21 landsliðins og A-landsliðsins. Rýnt var í næstu leiki. Hringt var til Armeníu þar sem Hafliði Breiðfjörð fylgir A-landsliðinu og til Ungverjalands þar sem Sæbjörn Steinke fylgist með U21-landsliðinu. Þá var Páll Kristjánsson, formaður KR, á línunni. Rætt var um íþróttastoppið og einnig mögulegar breytingar á Íslandsmótinu í fótbolta.

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir neðri deildirnar 2021
Í síðustu viku opinberaði Heimavöllurinn ótímabæra spá sína fyrir Pepsi Max-deildina og nú er komið að því að spá fyrir um neðri deildirnar. Sparkspekingurinn Baldvin Már Borgarson mætir í sett og spáir í Lengjudeildina og 2. deild ásamt Heimavallarstýrum, þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Fastir liðir eins og Dominos-spurningin, Hekla þáttarins og Símasnilldin eru að sjálfsögðu á sínum stað.

Innkastið - 1-7 tapdagur Íslands
Tvöfaldur tapdagur hjá íslenska landsliðinu í dag. U21 landsliðið tapaði sannfærandi fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM og A-landsliðið átti ekki möguleika gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni HM. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, fengu Harald Árna Hróðmarsson, þjálfara hjá Val, til að fara yfir landsleikjadaginn. Rætt er um frammistöðu leikmanna og allt tengt leikjunum og framhaldinu. Það eru White Foxog Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

Ungstirnin - EM U21 upphitunarþátturinn
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Þessi þáttur er upphitun fyrir EM U-21 árs. Í þessum sautjánda þætti er farið ítarlega yfir öll sextán liðin sem taka þátt í riðlakeppni EM U-21 árs sem fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu 24. mars - 31. mars. Drengirnir velja sitthverja 5 leikmenn til að sérstaklega fylgjast með á mótinu.

Enski boltinn - Spurs, landsleikir og draumalið
Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Þeir ræddu gengi Tottenham, leiki helgarinnar, landsleikina framundan og tóku þátt í leik þar sem þeir stilltu upp draumaliðum sínum í ensku úrvalsdeildinni með ákveðnum reglum. Meðal efnis: Ófyrirgefanlegt í Zagreb, endurnýjun hjá Tottenham, Mourinho endar ofar en Tuchel, Alli í fýlu, Kane fer ekki, Newcastle í brekku, hjólin á West Ham vagninum að detta af?, Ödegaard frábær, Football manager, Tottenham celeb á Ölver, hátt fjall hjá U21, A landsliðið þarf 6 stig, Viðar Örn Kjartansson og draumalið úr öllum liðum í ensku úrvalsdeildinni.

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks gestur. Rætt er við hann um þróun mála hjá Blikaliðinu síðan hann tók við stjórnartaumunum. Í seinni hlutanum er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara en hann er í Þýskalandi þar sem Ísland hefur leik í undankeppni HM á fimmtudag. Einnig er farið yfir fréttir vikunnar og Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, er í beinni frá Ungverjalandi þar sem U21 landsliðið verður í eldlínunni.

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 2021
Það er komið að ótímabærri spá fyrir Pepsi Max-deild kvenna 2021. Í þetta skiptið fengu þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir góða gesti til að fara yfir málin með sér enda ekki nema 47 dagar í fyrsta leik. Gestaspákonur þáttarins eru þær Aníta Lísa Svansdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir sem þekkja deildina út og inn. Auk spánnar verða að sjálfsögðu fastir liðir í boði Bílaumboðsins Heklu, Símans og Dominos. Þá erum við að tala um Símasnilldina, Dominos-spurningina og auðvitað Heklu þáttarins.

Fantabrögð - Fjögurra leikja fjör
28. umferðin var heldur döpur í Fantasy Premier League. 5 vinsælustu fyrirliðarnir klikkuðu allir og meðalstigafjöldinn var einungis 43 stig. Aron og Gunni mættu í stúdíóið aðallega til að skoða hina fátæklegu umferð 29 og hvað skal gera í henni. Á að wildcarda? Free Hita? Hvorugt? Verður Kane fyrirliði hjá öllum? Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

Innkastið - Landsliðsveisla framundan: Hverjir byrja?
Búið er að opinbera landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Vegna ástandsins er þó enn talsverð óvissa og lykilmenn gætu verið fjarri góðu gamni gegn Þýskalandi. Arnar Þór Viðarsson treystir á gamla bandið en U21 landsliðið leikur í lokakeppni EM í sama landsleikjaglugga. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um komandi landsleikjaglugga. Hvernig verður byrjunarliðið og hvaða væntingar gerum við til komandi landsleikja?

Ungstirnin - U21 hópurinn og heimsókn úr Garðabæ
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fotbolti.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sextánda þætti er fjallað um Pierre Kalulu (AC Milan), Jesper Lindstrom (Bröndby) og Matteo Lovato (Hellas Verona) Farið var yfir U-21 landsliðshópinn fyrir EM og var stillt upp sameiginlegu byrjunarliði fyrIr leikina þrjá. Einnig var lauslega farið yfir suma hópa hjá öðrum þjóðum en það verður ítarlega skoðað í þættinum eftir viku.

Enski boltinn - Bielsa er maður fólksins í Leeds
Það var sannkallað Leeds þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.

Útvarpsþátturinn - Gluggadómar og enskt hringborð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er félagaskiptaglugginn á Íslandi skoðaður. Hvaða einkunnir fá félögin í Pepsi Max-deildinni fyrir leikmannahræringar sínar? Í seinni hlutanum kemur Kristján Atli Ragnarsson og ræðir um ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Eru Haaland og Mbappe nýju Messi og Ronaldo? Þá opinberar hann val á úrvalsliði þriðja fjórðungs enska boltans.

Heimavöllurinn: Bríet Bragadóttir: Ekki hægt að skulda í dómgæslu
FIFA-dómarinn Bríet Bragadóttir er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Bríet ræðir um dómarastarfið við þær Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur en rödd dómara heyrist afar sjaldan í fjölmiðlum. Bríet gefur áhugaverða innsýn í þetta vanmetna en gríðarlega mikilvæga starf. Fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins eru svo að sjálfsögðu til staðar í boði bestu vina Heimavallarins. Símans, Dominos og bílaumboðsins Heklu.

Ítalski boltinn - Óásættanlegur Ronaldo, varnarmaður með óróapúls og Eurovision dramatík Zlatans
Juventus var hent öfugu út úr Meistaradeild Evrópu og mikil umræða er um framtíð Ronaldos hjá félaginu. Chris Smalldini var púslið sem varnarleikur Rómverja vantaði, ekkert fær stöðvað Internazionale og Patric varnarmaður Lazio mælist enn með óróapúls. Íslensku stelpurnar í Napoli leggja sitt af mörkum í hörku fallbaráttu en liðinu er fyrirmunað að skora og Birkir Bjarnason er í toppstandi fyrir landsleikina framundan. Þetta allt saman, ásamt dramatískri Eurovision yfirferð, í þætti vikunnar af ítalska boltanum.

Fantabrögð - Shaw's hunk redemption
Fantabrögð skelltu sér í stúíóið á þriðjudegi, þó að leikur Manchester City og Southampton væri enn eftir. Það var enginn glaðari með það en Aron, sem horfði fram hjá tvöfaldri umferð City og setti fyrirliðabandið á Harry Kane. Strákarnir svöruðu spurningum hlustenda, veltu upp spurningunni um Gareth Bale, tóku fyrir Chelsea og Manchester City og róteringar á þeim og völdu fyrirliða í snúinni umferð sem er framundan. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemía og GÓ Training.

Enski boltinn - Utanríkisráðherra ræðir vandræði Liverpool
Manchester United vann grannaslaginn gegn Manchester City á meðan Liverpool tapaði sjötta heimaleik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og stuðningsmaður Liverpool, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar og stuðningsmaður Chelsea, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Meðal efnis: Man Utd stöðvaði sigurgöngu City, Solskjær gerir gott mót, lygasaga Liverpool, karakterslaust lið, þunnur hópur, Klopp á erfitt í brekkum, passa að Man City verði ekki Bayern, fjárfestingar hjá Liverpool í sumar, Lampard fór of snemma ofan í laugina, áhorfendaleysið truflar, Tuchel gerir Chelsea þýskara, mörk hafsenta mikilvæg, stjóraskipti Chelsea, gott að eldast, Henderson ógnar De Gea, Tottenham skorar gegn óþekktum liðum, Bale á flugi, ótrúlegur David Luiz, hörð fallbarátta og margt fleira.

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Pepsi Max spá og boltapólitík
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. mars Í fyrri hlutanum er opinberuð ný ótímabær Pepsi Max-spá. Úlfur Blandon ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór um liðin tólf. Í seinni hlutanum kemur Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings og fyrrum formaður ÍTF, og ræðir um ólguna í fótboltapólitíkinni á Íslandi. Tillögur um fjölgun leikja í Pepsi Max-deildinni voru felldar á ársþinginu síðasta laugardag.