PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,831 episodes — Page 30 of 57

Ástríðan - Óskar Smári mætti og reif kjaft

Óskar Smári kom sem heiðursgestur á sinn gamla heimavöll og fór yfir stöðuna. Það var því ekki að spyrja að því - þessi þáttur fór langt yfir öll tímamörk. Þróttur Vogum og Njarðvík eru komin í toppsætin sem þeim var spáð á meðan fallbaráttuliðin fengu líflínu. Í 3. deild voru vægast sagt óvænt úrslit sem hleyptu mótinu í algjört rugl. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Jul 7, 2021

Innkastið - Úrvalslið 1-11 og einn af leikjum ársins

11. umferð Pepsi Max-deildarinnar og 10. umferð Lengjudeildarinnar eru gerðar upp í Innkastinu að þessu sinni. Gunnar Birgisson er mættur aftur eftir smá hlé. Elvar Geir spjallar við hann og Sæbjörn Steinke. Meðal annars er opinberað úrvalslið fyrri helmings Pepsi Max-deildarinnar og Gunni giskar snýr aftur.

Jul 6, 2021

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Ítalía á EM

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 3. júlí. Farið yfir síðustu umferð í Lengjudeildinni og tíðindi úr Pepsi Max-deildinni. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var á línunni frá Akureyri. Rætt var um sölu KA á Brynjari Inga, Dalvíkurvöll og fleira. Þá var Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, í beinni frá Danmörku. Umræðuefnið var að sjálfsögðu EM alls staðar.

Jul 3, 2021

Ástríðan - 2. deild special

Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Í þetta sinn var sérstaklega farið yfir 2. deildina þar sem engin umferð fór fram í 3. deild á milli þátta. Hins vegar ræddu þeir í lokin helstu fréttir úr 3. deild.

Jul 2, 2021

EM alls staðar - Fótboltinn gæti vel komið heim

Sextán liða úrslitum EM alls staðar er lokið og eftir standa átta þjóðir. England sló út Þýskaland, heimsmeistararnir eru úr leik og ríkjandi Evrópumeistarar sömuleiðis. Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum. Þeir Eiður Ben Eiríksson og Tómas Þór Þórðarson mættu og ræddu um EM en auk þess var í upphafi þáttar aðeins rýnt í nýja stjóra Everton og Tottenham.

Jul 1, 2021

Íslenski boltinn í faðmi Sambandsdeildarinnar

Sérstakur aukaþáttur þar sem fjallað er um fjármál og fótbolta. Rætt er um íslensk félagslið í Evrópukeppnum. Elvar Geir spjallar við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF og Björn Berg Gunnarsson deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka. Fjallað er um þessa nýju Sambandsdeild, C-deildar Evrópukeppnina, sem hefur verið sett á laggirnar og möguleika íslenskra félagsliða á tekjum með tilkomu hennar. Hvernig er fyrirkomulagið og hvað þarfað gera til að endurheimta Evrópusætið sem Ísland hefur misst? Einnig er rætt um peningamál tengd EM alls staðar og sölu á sjónvarpsréttindum á íslenska boltanum.

Jul 1, 2021

Ástríðan - Mörg lið að styrkja sig í glugganum

Sverrir og Gylfi fóru yfir málin eins og venjulega. Áfram halda nýliðarnir að stríða 2. deildinni og KV situr á toppi deildarinnar á meðan botnliðin tvö eru að falla dýpra og dýpra í mýrina. Í 3. deild voru óvæntustu úrslit Íslandsmótins í sumar þegar Augn... nei KFS vann Ægismenn. KFG fær styrk úr Pepsi-deildinni á meðan Ægir leitar út fyrir landssteinana. Félagaskiptaglugginn er galopinn og liðin eru öll farin að horfa í kringum sig. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Jun 30, 2021

Innkastið - Blikar berjast um titilinn og falldraugur fluttur í Kórinn

Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig fara yfir allt það helsta. Meðal efnis: Leiknir fyrsta liðið til að vinna Víking, Skagamenn missa niður forystu, Ungstirni með sigurmark á Meistaravöllum, Valur missti af stigum, dramatískur slagur um Kópavog, tíu leikmenn KA jöfnuðu gegn FH. Einnig er rætt um Lengjudeildina. Eru þjálfarasæti að hitna hratt þar?

Jun 29, 2021

Útvarpsþátturinn - Pepsi Max og Lengjan með Úlfi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Skoðuð er tíunda umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hvaða leikmenn hafa verið að valda vonbrigðum og hverjir hafa komið á óvart í sumar? Fjallað er vel um Lengjudeildina. Hverjir eru bestu miðjumenn deildarinnar og hverjir bestu sóknarmennirnir? Þá er opinberað hvaða leikmaður var valinn bestur í fyrsta þriðjungi. Í lokin er stutt EM horn þar sem Tómas velur úrvalslið riðlakeppninnar.

Jun 26, 2021

EM alls staðar - Nú hefst mótið fyrir alvöru

Riðlakeppni EM alls staðar er að baki og nú hefst mótið fyrir alvöru. Sextán liða úrslitin eru að fara af stað og mesta spennan er fyrir leik Englands og Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir um EM með tveimur góðum gestum, Valsararnir Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV og Jóhann Skúli Jónsson hlaðvarpsstjórnandi mæta í hljóðver.

Jun 25, 2021

Ungstirnin - Heimsókn frá Keflavík

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum nýjasta þætti fjölluðu drengirnir um Abdul Fatawu Issahaku sem hefur verið orðaður við Liverpool og Leverkusen. Drengirnir fjölluðu einnig um Riccardo Calafiori, ný vonarstjarna Róma á Ítalíu en Calafiori leikur stöðu vinstri bakvarðar. Hinir ungu og efnilegu Rúnar Sigurgeirsson og Davíð Snær Jóhannsson sem leika með Keflavík í Pepsi-Max deild karla komu í heimsókn í þáttinn. Drengirnir takast á í spurningakeppni og ræða um það sem hefur verið í gangi á ferli þeirra.

Jun 25, 2021

Ástríðan - Af hverju eru engin gæði í 3. deildinni!?

Sverrir og Gylfi hittust seint í þetta sinn en gæðin voru til staðar, annað en í 3. deildinni. Af hverju geta liðin ekkert? Spennan er að magnast upp í 2. deildinni þar sem nýliðarnir eru báðir komnir á toppinn og mætast í næstu umferð! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Jun 25, 2021

Innkastið - Logi látinn fjúka og víti fara forgörðum

Pepsi Max-deildin er loksins farin að finna taktinn aftur og Innkastið mætir eftir smá frí. Í þætti kvöldsins er farið yfir níundu umferð deildarinnar. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson skoða leiki umferðarinnar. Meðal efnis: Stórleikur kvöldsins, þjálfaraskiptin í Krikanum, embættisferð Hannesar norður, vítaklúður, skelfileg mistök Skagamarkvarðar, Stjarnan vaknar, Keflavík vann nýliðaslaginn gegn Leikni og næstu leikir í Pepsi Max og Lengjunni eru skoðaðir.

Jun 21, 2021

Patrik fór taplaus í gegnum tímabilið og upp með þremur liðum

Patrik Sigurður Gunnarsson er samningsbundinn Brentford á Englandi en lék á liðinni leiktíð með Viborg og Silkeborg á láni í Danmörku. Bæði Viborg og Silkeborg komust upp úr dönsku B-deildinni í vetur og leika því í efstu deild á komandi leiktíð. Patrik var hjá Viborg fyrir áramót og Silkeborg eftir áramót. Hann náði því merkilega afreki að fara taplaus í gegnum allt tímabilið. Brentford, liðið sem hann var á láni frá, fór þá einnig upp um deild, úr Championship og upp í úrvalsdeildina.

Jun 21, 2021

Útvarpsþátturinn - Pálmi Rafn, Stefán Pálsson og EM

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 19. júní. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas.

Jun 20, 2021

Ástríðan - Ekki lenda manni fleiri í Ástríðudeildunum!

Gylfi og Sverrir hittust á ný og fóru yfir eina umferð í 2. deild karla og tvær umferðir í 3. deild. Nýliðar sitja á toppi 2. deildar sem er jafn gufurugluð og áður. Hvorki Kári né Fjarðabyggð þorðu að vinna botnslaginn. Í 3. deildinni fékk toppliðið skell á meðan allt gengur á afturfótunum hjá ÍH og KFS sem mætast í næsta leik! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Jun 17, 2021

Heimavöllurinn: Írskir dagar og þriðjungsuppgjör á Maxinu

Ísland spilaði loksins heimaleiki undir stjórn Steina og sótti tvo sigra í vináttuleikjunum gegn Írum. Leikirnir eru til umræðu ásamt fyrsta þriðjungi Pepsi Max-deildarinnar en ótrúlegir hlutir hafa átt sér stað í umferðum 1-6. Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og íþróttafréttamaðurinn Sæbjörn Þór Steinke.

Jun 16, 2021

Útvarpsþátturinn - EM með Gumma Ben og íslenski boltinn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðmundur Benediktsson er gestur og rætt ítarlega um EM alls staðar. Einnig er fjallað er um Pepsi Max-deildina, Lengjudeildina og landsliðið. Meðal annars er opinberað hvaða leikmaður er besti leikmaður fyrsta þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar og hlýtur vegleg verðlaun frá Bose.

Jun 12, 2021

Ungstirnin - Framtíðarmenn á evrópskum stórmótum

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þættinum að þessu sinni velja þeir sérstakt úrvalslið Evrópumóts U21 landsliða en Þýskaland vann Portúgal í úrslitaleik á sunnudag. Þá skoða þeir efnilega leikmenn sem verða á EM alls staðar. Fjallað er um Kacper Kozlowski hjá Póllandi en hann er einn af þremur leikmönnum sem fæddir eru 2003 og eru með á EM alls staðar.

Jun 9, 2021

Ástríðan - Hvaða lið verða eiginlega í toppbaráttu?

Þáttastjórnandi Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason, fékk til sín Stefán Birgi Jóhannesson, fyrrum leikmann Njarðvíkur sem er í tímabundnu fríi frá æfingum. Saman fóru þeir yfir 5.umferð í 2. og 3. deild karla. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Jun 9, 2021

EM alls staðar - Upphitunarþáttur fyrir fótboltaveisluna

Evrópumót landsliða fer af stað á föstudaginn og lýkur með úrslitaleik á Wembley þann 11. júlí. Mótið átti upphaflega að fara fram í fyrra en var frestað vegna heimsfaraldursins. Í þessum sérstaka upphitunarþætti fer Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, yfir riðlana og rætt er um þá keppni sem framundan er. Sérfræðingar eru Eiður Ben Eiríksson, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Vals, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu.

Jun 7, 2021

Útvarpsþátturinn - Freysi og öll helstu fótboltamálin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 5. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins: Freyr Alexandersson. Í upphafi þáttar er fjallað um landsleikinn gegn Færeyjum, svo kemur Freyr Alexandersson og ræðir meðal annars um mánuði sína í Katar. Hvaða skref tekur Freyr næst á þjálfaraferlinum? Einnig er rætt um Pepsi Max-deildina, EM landsliða og fimmtu umferð Lengjudeildarinnar.

Jun 5, 2021

Heimavöllurinn: Írarnir koma, U19 í þjálfaraleit og bikarblaður

Sem fyrr er nóg að ræða á Heimavellinum. A-landsliðið okkar mætir Írum í tvígang á Laugardalsvelli og U19 landsliðið er að verða þjálfaralaust. Þá er bikarinn kominn á fleygiferð og eftir skemmtileg 16-liða úrslit er ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum. Gestir þáttarins eru þær Björk Björnsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir.

Jun 4, 2021

Ástríðan - Yfirferð yfir 4. umferð - Línur að skýrast?

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu 3. umferð í 2. og 3. deild karla. Í 2.deild tóku Njarðvík og Leiknir fásk sína fyrstu sigra, áfram tapa Kári og Fjarðabyggð, Völlarar kláruðu norðurlandsslaginn og hammer time í vogunum. Í 3.deild unnu Einherji sinn fyrsta sigur, KFG og ÍH voru undir í rokbaráttu, Sindri vinnur heima og Augnablik gerir jafntefli úti en í Eyjum töpuðu KFS fyrir Hetti/Huginn sem eru ekki í áttunda sætinu. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Jun 1, 2021

Innkastið - Heitt í hamsi í Pepsi Max og ljótt orð í landsleik

Fótboltahelgin er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fara yfir málin. Rætt er um leikina þrjá í Pepsi Max-deildinni í gær og einnig um þrjá leiki í Lengjudeildinni. Þá er fjallað um 2-1 tap Íslands gegn Mexíkó aðfaranótt sunnudags og í lokin um sigur Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

May 31, 2021

Ítalski boltinn - Uppgjörsþáttur tímabilsins

Lið ársins í Serie-A er valið og farið yfir flókinn þjálfarakapal sem verið er að leggja. Þá ætlar Björn Már líka að finna ný lið handa þeim Íslendingum sem eru ekki að spila nægilega mikið. Hvers vegna réðst faðir Gianluca Scamaccas inn á æfingasvæði Roma vopnaður járnröri? Leikstíl hvaða þjálfara má líka við Barolo rauðvín? Banter-era byrjunarlið Internazionale. Þetta og fleira í uppgjörsþætti ítalska boltans. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

May 31, 2021

Enski boltinn með Evrópuívafi - Lið ársins og Meistaradeildin

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 29. maí. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, gerir upp tímabilið í úrvalsdeildinni og velur lið ársins. Þá er rætt um tap Manchester United í Evrópudeildinni og hitað upp fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

May 29, 2021

Íslenski boltinn - Rok í Lengjudeildinni og þeir bestu aftast

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 29. maí. Elvar Geir Magnússon, Valur Gunnarsson markvarðaþjálfari og sérfræðingurinn Rafn Markús Vilbergsson ræða um íslenska boltann. Lengjudeildin er aðalumræðuefni þáttarins en þrír leikir fóru fram á föstudagskvöld. Þeir áttu upphaflega að vera fimm en tveimur var frestað vegna veðurs. Valur velur þrjá bestu markverði deildarinnar og Rabbi velur þrjá bestu varnarmennina. Þá eru komandi leikir í Pepsi Max-deildinni skoðaðir.

May 29, 2021

Heimavöllurinn: Stórslys á Hlíðarenda og toppliðið lætur verkin tala

Þetta sumar fer stórkostlega af stað og Heimavöllurinn fer yfir svakalega 5.umferð í Pepsi Max deildinni. Gestir þáttarins eru Rún Friðriksdóttir fyrrverandi leikmaður Hauka og Margrét Sveinsdóttir þjálfari ÍR.

May 28, 2021

Ástríðan - Uppbótartíminn reyndist mönnum erfiður

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu 3. umferð í 2. og 3. deild karla. Það er vellíðan í Vogunum en frústrasjón á Fáskrúðsfirði. Óvænt lið á toppnum í báðum deildum. Landsbyggðin gefur, landsbyggðin tekur. Varamenn komu inn á af krafti og uppbótartíminn reyndist mörgum liðum erfiður. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

May 26, 2021

Innkastið - Heitt sæti í Hafnarfirði og Toddi á röngum stað á röngum tíma

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Meðal efnis: Frækinn Leiknissigur, sæti Loga hitnar, KR misstígur sig, tíðindamikill leikur á Akranesi, Toddi í stöðu sem hann vildi aldrei vera í, frábær uppskera Vals, KA svaraði, Lengjudeildarhornið. Þátturinn er tekinn upp á Ölveri í Glæsibæ.

May 25, 2021

Ungstirnin - Kolbeinn Þórðarson gestur þáttarins

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Farið var yfir hvaða ungu leikmenn voru að standa sig í efstu fimm deildum Evrópu, hvaða ungstirni eru á leið á EM alls staðar sem og ýmislegt fleira. Kolbeinn Þórðarson leikmaður Lommel í Belgíu var gestur þáttarins að þessu sinni og var farið yfir það sem hefur verið í gangi á hans ferli hingað til.

May 25, 2021

Enski boltinn - Dramatík og uppgjör á tímabilinu

Það var dramatík í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar sem fór fram í gær. Jóhann Már Helagson, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, kíktu í heimsókn í dag og gerðu tímabilið upp í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn." Meðal efnis: Stress hjá Chelsea, Leicester getur kennt sjálfum sér um, Liverpool hrökk í gang, kveðjuleikur Mata?, mikilvægi Maguire, spennandi úrslitaleikir framundan, Mendy og Kante tæpir, lið ársins, Aguero kvaddi með stæl, hrun hjá Everton, engin þreyta hjá Leeds, Moyes finnur vegabréfið, stytta af Steve Bruce, Pepsi Max-deildin og margt fleira.

May 24, 2021

Útvarpsþátturinn - Íslenskt boltahlaðborð með Gulla Jóns

Það voru alls tíu leikir í Pepsi Max-deildinni og Lengjudeildinni á dagskrá í gær og útvarpsþátturinn Fótbolti.net gerir þá upp. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur þáttarins er Gunnlaugur Jónsson sem hefur verið á vellinum fyrir Stöð 2 Sport í Pepsi Max-deildinni. Leikir fimmtu umferðar eru skoðaðir með honum. Þá er farið yfir leiki Lengjudeildarinnar og einnig rætt um einn sérstakasta landsliðshóp Íslands í langan tíma!

May 22, 2021

Fantabrögð - Hitað upp fyrir lokaumferðina með Hemson

Það dugði ekkert minna fyrir lokaumferðina á þessu tímabili í Fantasy en að fá spilara sem á möguleika á toppsætinu til að koma og ræða málin. Heiðmar Eyjólfsson, með liðið Hemson, er sem stendur í 10. sæti, 22 stigum á eftir toppsætinu. Hann, Aron, Gylfi og Gunni skoðuðu síðustu leikina, hvaða lið hafa að einhverju að keppa og hvaða leikmenn gætu verið sniðugir til að græða nokkur sæti í þinni einkadeild í lokaumferðinni. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

May 20, 2021

Enski boltinn - Mun Man Utd klófesta Kane?

Enska úrvalsdeildin klárast um helgina en næstsíðasta umferðin fór fram í gæro g í fyrradag. Jóhann Skúli Jónsson og Gunnar Ormslev fóru yfir málin í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.

May 20, 2021

Ástríðan - Farið yfir 2. umferð - Sterku liðin tapa stigum

Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

May 18, 2021

Innkastið - Stóru málin í Pepsi Max með Gunna samloku

Elvar Geir og Gunni Birgis stýrðu Innkastinu eftir 4. umferð Pepsi Max-deildarinnar og fengu heiðursgest í þáttinn; Gunnar Sigurðarson. Rætt er við Gunna samloku um leiki umferðarinnar og upphaf mótsins. Meðal efnis: Augnablik ársins í deildinni hingað til, Valsmenn vinna, viðbúið jafntefli á Skaganum, Road runner í Krikanum, KA áfram á flugi, vonbrigðabyrjun grænna í Kópavogi, Víkingar léku á als oddi, nýliðarnir í Leikni unnu sinn fyrsta leik, Þátturinn í dag er í boði Ölvers og Domino's.

May 17, 2021

Fantabrögð - Guðmundur Felixson dömur okkar og herrar

Guðmundur Felixson mætti í stúdíóið sem gestur til Arons, Gunna og Gylfa. Það gerist ekki mikið stærra. Hann deildi frábærum ráðum og truflaði alla línulega dagskrá sem Fantabræður hafa getið sér gott orð fyrir. Tvær umferðir eru eftir, nú er það að príla eða hvíla. Hvern á að hafa fyrirliða í næstu umferð? Verður Chelesa - Leicester markalaust jafntefli eða þægilegur sigur Chelsea? Er Felix Bergsson með COVID-19? Þú færð svörin við þessu og fleiri spurningum í nýjasta þættinum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

May 17, 2021

Enski boltinn - Risasumar Arsenal og lygilegt mark Alisson

Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson, stuðningsmenn Arsenal, eru gestir vikunnar Bikarsigur Leicester, dramatískt sigurmark Alisson og margt fleira er einnig til umræðu. Meðal efnis: Öskubuskubragur Leicester, eigandi Leicester flottur, Tielamans gerði eins og á YouTube, Alisson eins og lax, Liverpool líklegir í Meistaradeildina, vonbrigði Everton, vonarstjörnur fá tækifæri, versta tímabil Arsenal, Arteta rekinn?, Villarreal einvígið hörmung, Spotify kóngurinn reynir að kaupa, ekki með mennina til að spila svona, væri til í að sjá Potter á Emirates, Smith Rowe framtíðar tía, Rúnar Alex á förum, uppstokkun í sumar, Saliba á skilið tækifæri og margt fleira.

May 17, 2021

Útvarpsþátturinn - Pepsi Max, Lengja og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og Hallgrímur Mar Steingrímsson, leikmaður KA, er á línunni. Kristján Atli Ragnarsson skoðar enska boltann og Rafn Markús Vilbergsson fer yfir 2. umferð Lengjudeildarinnar þar sem umræðupunktarnir eru fjölmargir.

May 15, 2021

BÁN: Sjö stig og sjö mörk skoruð - Aron og GÖ á línunni

Egill Sigfússon var sérstakur gestur í Boltanum á Norðurlandi á fimmtudagskvöld. Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke fóru yfir það helsta með Agli. KA og Þór unnu en Þór/KA og Tindastóll töpuðu. Farið var vel yfir sigur KA á Dalvíkurvelli, tveir vítadómar, glórulaus tækling og einkunnagjöf á leikmenn KA. Þórsarar unnu 4-1 í Boganum og strákarnir heyrðu í Ólafi Aroni sem þótti eiga góðan leik á miðjunni í liði Þórsara. KA er með sjö stig eftir þrjá leiki og Þór hefur skorað sjö mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum. Pape Mamadou Faye skoraði í fyrsta leik en það dugði skammt fyrir Stóla. Hringt var í GÖ vélina sem leikur með bláum Dallas í sumar og loks var spáð í spilin fyrir næstu leiki. Þátturinn er í boði PSA Studios, Kaffid.is og Vamos.

May 14, 2021

Innkastið - Stemningstækling sem fór úrskeiðis

Markaregn, rauð spjöld, skellir og ljót meiðsli. Innkastið er með ykkur eftir þriðju umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig fara yfir umferðina. Meðal efnis: Mikkelsen með þrennu, þungskýjað í Garðabæ, enn og aftur fá andstæðingar FH rautt í fyrri hálfleik, Almarr hetja á Hlíðarenda, KR fer hikstandi af stað, KA með yfirburði á Dalvík, gluggadagurinn og óvænt úrslit í Lengjudeildinni.

May 13, 2021

Fantabrögð - Gylfi gefur góð ráð

Fantabrögð fundi tíma til að taka upp þátt þegar 2 leikjum var ólokið í 35. umferð. Þrefalda umferðin hjá Manchester United fór ekki alveg eins og fantasy þjálfarar höfðu vonað. Ole róteraði liðinu nánast alveg milli leikja 1 og 2 og Greenwood var sá eini sem spilaði stærstan hluta beggja leikja og skoraði í báðum. Það var mikið um stig á bekkjunum hjá spilurum í þessari umferð og það birtist sannkallaður hausverkjarþráður á Facebook grúppunni Fantasy Bragðarefir þar sem menn eins og Stuart Dallas, Fraser Forster og Emile Smith-Rowe voru skellihlæjandi. En stærstu fréttirnar voru kannski þær að Gylfi sneri loksins aftur í stúdíóið og gaf hlustendum góð ráð, eins og hann gaf vini sínum Chris Wood um daginn. Gunni er eini spilarinn í heiminum sem átti Wildcardið eftir og opinberaði hann brakandi ferskt wildcard lið í þættinum. Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.

May 13, 2021

Ungstirnin - Ungir og efnilegir í Pepsi Max

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Aðal umræðuefnið í þessum þætti er Pepsi-Max deildin. Farið er yfir hvaða ungu leikmenn liðanna hafa verið að standa sig og jafnvel hverjir geta farið í atvinnumennsku eftir tímabilið.

May 12, 2021

Heimavöllurinn: Lygileg úrslit og 2. deild af stað

Það voru heldur betur óvænt úrslit í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar og nóg að ræða á kaffistofum landsins. Úrslitin í 1. umferð Lengjudeildarinnar voru ekki síður óvænt og nú bíðum við spennt eftir að keppni hefjist í 2. deild. Heimavöllurinn fær góðkunningjann Brynju Dögg Sigurpálsdóttur í heimsókn, fer yfir leiki liðinnar viku og tekur lokaupphitun fyrir 2. deildina sem fer af stað í kvöld.

May 12, 2021

Ástríðan - Fyrsta umferð gerð upp í 2. og 3. deild

Þáttastjórnendur Ástríðunnar, Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason komu saman og ræddu komandi sumar. Ástríðudeildirnar fóru af stað um helgina og var 1. umferð gerð upp. Meðal annars var rætt um leikstjóra á Kópavogsvelli, húsnæðismál á Austurlandi, 69. mínútu og leikmenn sem skilja ekki leikáætlun liðs síns í 3. deild. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna.

May 10, 2021

Enski boltinn - Stór sumargluggi hjá Liverpool

Það er Liverpool þema í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool sem og aðra leiki helgarinnar. Meðal efnis: Liverpool þarf mann í hverja línu, Firmino skorar ekki lengur, stórt sumar framundan á félagaskiptamarkaðinum, varnarmennirnir færast aftar í röðinni, Meistaradeildardraumurinn á lífi, aftur skjálfti hjá Leicester, vill fá Grealish til Liverpool, stórleikur á fimmtudag, aulalegt víti Aguero, West Ham ævintýrinu að ljúka og margt fleira.

May 10, 2021

Innkastið - Drama á lokamínútum og Toddi tapar

Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig gera upp 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ekkert lið er með fullt hús og allir eru komnir á blað! Meðal efnis: Rautt í stórleiknum, stórskemmtun í Breiðholti, hreinskilinn Arnar virðir stigið, stemning í Kórnum, KA vill flytja á Dalvík, hringt í vin í Keflavík, Stjarnan í limbói, Gunni giskar, hátt spennustig í Mosó og Vestri rúllar yfir Selfyssinga.

May 9, 2021

BÁN: Fyrsti útisigur á KR í 40 ár - Afi reiður og Bjössi sýslumannssonur

Boltinn á Norðurlandi er mjög þéttur þenann sunnudaginn, fimm símtöl, púlsinn tekinn á Húsavík og staðan á Króknum krufin. Þeir Egill Sigfússon, Anton Freyr Jónsson, Nikola Dejan Djuric, Jóhann Kristinn Gunnarsson og Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta í þessu öllu saman. Yfirvaraskegg og Bjössi sýslumannssonr komu við sögu. KA, KF, Völsungur, Dalvík/Reynir og Þór/KA unnu sigra, Tindastóll gerði jafntefli en Þór og Magni töpuðu í miklum markaleikjum. Það eru þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Steinke sem stýra þættinum og hann er í boði PSA Studios, Kaffið.is og Vamos sem opnar á miðvikudag!

May 9, 2021