PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,831 episodes — Page 27 of 57

Fantabrögð - Triple captain time

Aron, Heiðmar og Ásgeir hittust og ræddu umferð 25 í Fantasy sem "réðist" á síðustu sekúndu. Strákarnir skoðuðu risavaxna umferð 26 og ræddu möguleikana sem flestir velta fyrir sér eins og Triple captain á Salah, Bench boost, Free Hit og hvað þetta allt heitir nú. Þátturinn er í boði hlustenda sem styrkja okkur á Patreon, Nemíu og Massabón.

Feb 17, 2022

Útvarpsþátturinn - Íslensk lið styrkja sig og enski boltinn aftur á fulla ferð

Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþætti vikunnar. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og heyrt í Rúnari Kristinssyni þjálfara KR og Hólmari Erni Eyjólfssyni sem er kominn heim úr atvinnumennskunni og samdi við Val. Enski boltinn er einnig til umfjöllunar en Sæbjörn Steinke er nýkominn til landsins eftir rannsóknarleiðangur til Englands þar sem hann skellti sér á þrjá leiki.

Feb 12, 2022

Fantabrögð - Fantabrögð x Lélega Fantasy Podcastið

Fantabrögð og Lélega Fantasy podcastið tóku höndum saman þessa vikuna og voru með sameiginlegan þátt. Fjórmenningarnir fóru yfir stigin sín, planið framundan, möguleg Wildcard lið og fleira. Annað sem kom fram í þættinum: - Hver væri hvað í hinu podcastinu? - Á hvaða heimavist í Hogwarts væri Gummi Fel? - Hvað kom fyrir Pálma í dag? - Hver verður fyrirliði í umferð 25?

Feb 11, 2022

Ítalski boltinn - Aukaspyrnutvenna og titilbaráttan galopnast

AC Milan vann óvæntan sigur í Derby della Madonnina og galopnaði titilbaráttuna. Dusan Vlahovic skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Juventus. Simone Verdi stóð undir nafn sem aukaspyrnusérfræðingur deildarinnar og botnbaráttan harðnar enn. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Feb 10, 2022

Sævar fer gegn Vöndu: Sér fram á tvísýna baráttu

Það verður kosningabarátta um formannssæti KSÍ á ársþingi sambandsins þann 26. febrúar. Í dag tilkynnti Sævar Pétursson að hann hefði ákveðið að taka slaginn og bjóða sig fram gegn Vöndu Sigurgeirsdóttur. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke slógu á þráðinn norður til Akureyrar og heyrðu í Sævari. Hann býst við jafnri baráttu, telur sig hafa breiðari þekkingu úr hreyfingunni en segist verða fyrsti maðurinn til að óska Vöndu til hamingju ef hann ber ekki sigur úr býtum í kosningunni. Í viðtalinu ræðir hann um sína stefnu, staða yfirmanns fótboltamála og þjóðarleikvangurinn koma að sjálfsögðu við sögu.

Feb 7, 2022

Útvarpsþátturinn - Fótboltafréttir, Andri Rúnar og Vanda

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Formannsslagurinn, undirbúningstímabilið, þjálfaramál, enski boltinn og fleira koma við sögu. Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason kemur í þáttinn en hann er mættur aftur úr atvinnumennskunni erlendis og ætlar sér stóra hluti með ÍBV í sumar. Þá er Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ á línunni en hún býður sig áfram fram í formannsstólinn. Það eru þrjár vikur í ársþing.

Feb 5, 2022

Ítalski boltinn - Loftbrúin til Ítalíu stendur enn og glugginn gerður upp

Félagsskiptagluggi ítölsku liðanna gerður upp með einkunnagjöf. Albert Guðmundsson fetar í fótspor langafa síns í Serie A. Litríkur forseti Palermo fellur frá en skilur eftir sig ótrúlega sögu. Óttar Magnús yfirgefur Siena þar sem allt er í vafasamri upplausn og ungir Íslendingar vilja hvergi annars staðar spila enn á Ítalíu - eðli máls samkvæmt. talski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Feb 1, 2022

Fantabrögð - Tilfinningalegt uppgjör

Aron og Gunni hittust og reyndu að setja tilfinningar sínar í garð Watford leikmanna í orð. Það var erfitt, en einhver þarf að gera þetta. Strákarnir tóku fyrir spurningar hlustenda, veltu fyrir sér hverja þeir myndu kaupa á Wildcardi og hvernig næstu umferðir myndu spilast. Fantabrögð eru í boði hlustenda sinna sem styrkja okkur á Patreon, einnig í boði Nemíu og Massabón. Takk fyrir að hlusta.

Feb 1, 2022

Enski boltinn - Gluggayfirferð með BÁN-bræðrum

Félagaskiptaglugganum á Englandi var skellt í lás klukkan 23:00 í gærkvöldi og voru sum félög að græja síðustu skiptin í blálok gluggans. Pierre-Emerick Aubameyang, Aaron Ramsey, Dele All, Donny van de Beek og fleiri öflugir skiptu um félag í gær. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræða málin við Sæbjörn Steinke (BÁN-bræður). Farið er yfir félögin í ensku úrvalsdeildinni, rætt um skipti Alberts Guðmundssonar, stærstu skiptin á Ítalíu og aðeins spáð í spilin með sumargluggann. Þátturinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyrir 18 ára og eldri).

Feb 1, 2022

Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar, Damir og glugginn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. janúar. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Rætt er um fréttir vikunnar, þjálfaraleit ÍA, formannsslag KSÍ og fleira. Eggert Ingólfur Herbertsson, formaður ÍA, er á línunni og einnig Sæbjörn Steinke sem horfði á Stjörnuna vinna Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins. Gestur þáttarins er Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks. Einnig er fjallað um enska boltann og félagaskiptagluggann.

Jan 29, 2022

Enski boltinn - Átti markið að standa?

23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og loksins fóru allir leikir fram! Þeir Magnús Þór Jónsson (Liverpool) og Birgir Ólafsson (Tottenham) fara yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Tottenham þarf að bakka Conte upp, Liverpool þyrfti að fá miðjumann, West Ham olli vonbrigðum, City missteig sig, mark dæmt af Kane en ekki af Uxanum, sautján endursýningar, Hodgson kominn aftur, allt í rugli hjá Everton og margt fleira. Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyir 18 ára og eldri).

Jan 26, 2022

Heimavöllurinn: Atvinnukonurnar okkar, landsliðshópar og vetrarveisla í efstu deild

Bára Kristbjörg aðstoðarþjálfari Selfoss og Aníta Lísa þjálfari Fram eru gestir Heimavallarins. Við förum yfir U23 og U19 ára landsliðshópana sem voru tilkynntir í síðustu viku ásamt því að rýna í stöðu nýrra atvinnukvenna erlendis. Við fáum einnig innsýn inn í hugarheim og vinnu þjálfara hjá gestum þáttarins. Það eru einnig 3 mánuðir í að Íslandsmótið verði flautað í gang. Við gátum ekki sleppt gestunum án þess að fara yfir liðin tíu sem mæta til leiks í apríl. Við förum yfir leikmannamarkaðinn hjá liðunum ásamt því að skyggnast í vetrarmótin.

Jan 25, 2022

Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin 2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. janúar. Algjörlega ótímabær spá fyrir Íslandsmótið 2022. Elvar Geir, Tómas Þór og Sverrir Mar ræða um öll liðin tólf í Íslandsdeildinni, Hverjir eru komnir og farnir og hverjir verða bestir næsta sumar?

Jan 22, 2022

Fantabrögð - Bruno Fernandes Special

Ásgeir og Hemson tóku upp þátt yfir leik Brentford og Man Utd þar sem Hemson gat varla einbeitt sér, verandi með bandið á Bruno. - Á meðan Salah tekur frí frá Fantasy, þá stíga gömlu kanónurnar upp á móti. Bruno, Kane, De Bruyne mennirnir. - Er Aston Villa liðið til að horfa til núna? Gerrard að smíða stórvirki í Birmingham. - Er 7M€ fyrir Coutinho alltof lítið? - Er Fantasy orðið 50% heppni og 50% gæði? - Burnley á 5 leiki inni, hvort myndir þú velja Cancelo í einn leik eða Lowton með 5 leiki? - Hvernig á að plana fram í tímann við þessar aðstæður? - Hvenær við fáum fleiri tvöfaldar umferðir? Þetta og margt annað. Allt í boði Nemíu, Massabón en fyrst og fremst Patreon. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_blank">hér</a>.

Jan 20, 2022

Enski boltinn - Vantar nýjan þjálfara og drulla mönnum burt

Umferðinni í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær, átta leikir af tíu fóru fram - tveimur var frestað út af svolitlu. Sæbjörn Steinke fékk þá Arnór Gauta Ragnarsson og Sigurð Gísla Bond Snorrason til að gera upp helgina með sér og ræða stóru málin. Benítez var látinn fara frá Everton, Manchester United tapaði niður tveggja marka forskoti, Manchester City vann stórleikinn, Liverpool kláraði Brentford og Leeds lagði West Ham á útivelli. Arnór er stuðningsmaður Southampton og ræddi um hvers vegna. Bond er stuðningsmaður Man Utd og hann sagði hvern hann vill sjá taka við liðinu í sumar. Þátturinn er í boði White Fox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).

Jan 17, 2022

Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Pálmi Rafn

Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um útvarpsþátt vikunnar. Hringt er í Pálma Rafn Pálmason spilandi íþróttastjóra KR og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið í annað fjórðungsuppgjör. Allt það helsta úr enska boltanum. Einnig er rætt um íslenska fótboltalandsliðið og gerð heiðarleg en misheppnuð tilraun til að hafa handboltahorn.

Jan 15, 2022

Ungstirnin - Football Manager Special

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir eru ekki bara tveir í þættinum að þessu sinni en góðvinur þeirra Kristinn Helgi Jónsson er einnig. Aðalumræðuefnið í þessum þætti er fótboltaleikurinn vinsæli Football Manager og er rætt fram og til baka um hann. Mörg ungstirni sem koma við sögu í spjallinu.

Jan 14, 2022

Ítalski boltinn - Íslendingar á suðrænum slóðum

Íslendingar eignuðust nýjan leikmann í Serie A um nýliðna helgi þegar Bjarki Steinn Bjarkason kom inná fyrir Venezia gegn AC Milan. Nú er útlit fyrir að hann sé á leið á láni suður á bóginn til Catanzaro. Fiorentina er búið að finna arftaka Dusan Vlahovic sem er á útleið, en um er að ræða gamla hetju úr ítalska boltanum. Leik Internazionale og Juventus í ofurbikarnum lauk með hótunum um barsmíðar.

Jan 13, 2022

Fantabrögð - No Salah, Macintosh molar og klippikort

Aron og Gylfi stigu villtan dans í hljóðverinu þar sem þeir fóru óvenju langt út fyrir efnið. Það kom ekki að sök, einhvers staðar innan um þennan 65 mínútna hafsjó orða má heyra umræðu um Fantasy. Chelsea á skrítið prógram framundan. Baugarnir á Tsimikas. Hið stórkostlega AFCON er að hefjast. Tvöföld umferð er framundan hjá mörgum liðum og enn herjar á okkur veiran skæða. Þetta og margt annað. Allt í boði Nemíu, Massabón og fyrst og fremst Patreon. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_blank">hér</a>.

Jan 10, 2022

Útvarpsþátturinn - Boltafréttir og breytt Íslandsmót

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Farið er yfir innlendar og erlendar fréttir. Þórir Hákonarson fer yfir leikjafyrirkomulag Íslandsdeildarinnar og breytt umhverfi íslenska boltans.

Jan 8, 2022

Heimavöllurinn - NÝÁRSBOMBAN: Hápunktar ársins og góðir gestir

Nýtt fótboltaár er hafið og spennandi tímar framundan. Nú þegar árið 2021 er liðið og rúmlega það er við hæfi að líta aðeins til baka yfir það helsta sem gerðist á liðnu ári og auðvitað að velta fyrir sér hvað nýtt fótboltaár ber í skauti sér. Heimavöllurinn fær til sín geggjaða gesti. Landsliðskonurnar Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir mæta í sett ásamt hinni einu sönnu Helenu Ólafsdóttur sem fer yfir hápunkta síðasta árs.

Jan 7, 2022

Enski boltinn - 'Clear and obvious' Arsenal á uppleið

Enski boltinn snýr aftur á nýju ári og var umferðin um liðna helgi gerð upp í dag. Átta leikir fóru fram en tveimur leikjum var frestað vegna smita. Það var Fylkisþema í þættinum því þeir Egill Sigfússon og Kristján Gylfi Guðmundsson voru gestir Sæbjarnar Steinke - báðir gestirnir þjálfarar hjá Fylki. Farið var yfir vafaatriðin í leik Arsenal og Manchester City, önnur stór atvik umferðarinnar og rýnt í stórleik Chelsea og Liverpool. Þeir Egill og Krissi eru báðir Man Utd menn og var farið í leik liðsins gegn Wolves og hvað þarf að gera til að breyta gengi liðsins. Hvaða leikmenn á Newcastle að kaupa, David Moyes og margt fleira. Þátturinn er í boði Dominos.

Jan 4, 2022

Enski boltinn - Óskiljanleg úrslit í hátíðartörn

Hlaðvarpsþátturinn Enski boltinn og útvarpsþátturinn Fótbolti.net sameinast í þætti þar sem rætt er um hátíðartörnina í enska boltanum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir málin. Stuðningsfólk Liverpool og Manchester United er svekkt eftir úrslit vikunnar en Leicester kom gríðarlega á óvart með sigri í gær. United var heppið að ná stigi gegn Newcastle. Falla norðanmenn? Manchester City er að síga fram úr í titilbaráttunni og ungstirni Arsenal skína skært.

Dec 29, 2021

Heimavöllurinn: Rússíbanaár hjá Svíþjóðarmeistaranum

Guðrún Arnardóttir er gestur í jólaþætti Heimavallarins. Guðrún varð sænskur meistari með stjörnuprýddu liði Rosengård í haust eftir að hafa verið keypt til liðsins frá Djurgarden á miðju tímabili. Hún fer yfir frábært fótboltaár og rúmlega það með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Dec 28, 2021

Fantabrögð - Frestunarárátta

Gunni og Heiðmar gerðu upp "umferð" 18 í Fantasy Premier League. En enska úrvalsdeildin er haldin frestunaráráttu þessa dagana og það bitnar heldur betur á Fantasy liðunum okkar. Mjög erfitt er að reikna út hvaða leikir verða spilaðir og þ.a.l. hvar er möguleiki á stigum. Heiðmar og Gunni fóru yfir þessa fjögurra leikja umferð og reyndu að giska á hvað gerist næst. - 1,3 milljón spilarar keyptu Ollie þegar hann átti svo ekki leik - Hemson tók séns með fyrirliðavalið sem gekk svo upp - Einn úr Fantabrögðum tók Free Hit í umferðinni - Forráðamenn deildarinnar segja nei við hléi á deildinni

Dec 22, 2021

Ungstirnin - Tveir af okkar efnilegustu í hátíðarþætti

Ungstirnin eru í hátíðarskapi og fá til sín tvo af efnilegustu leikmönnum Íslands. Gestir þáttarins eru unglingalandsliðsmennirnir Kristian Hlynsson og Orri Steinn Óskarsson sem báðir eru sautján ára, fæddir 2004. Kristan er í herbúðum Ajax og skoraði á dögunum sitt fyrsta mark fyrir aðallið félagsins. Orri er hjá FCK í Danmörku þar sem hann hefur raðað inn mörkum fyrir unglingaliðið og verið orðaður við stórlið í Evrópu. Arnar Laufdal Arnarsson heldur um stjórnartaumana í þættinum og gestastjórnandi er Elvar Geir Magnússon. Þeir ræða við þá Kristian og Orra og er víða komið við. Í þættinum er einnig rætt um leikmenn sem voru stjörnur ungir að árum en náðu alls ekki að standa undir væntingum þegar á hólminn er komið og Arnar kynnir þjóðinni fyrir Julian Alvarez sem er orðaður við Manchester United.

Dec 22, 2021

Útvarpsþátturinn - Jóla- og áramótakæfan 2021

Hinn árlegi uppgjörsþáttur á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Benni Bóas gera upp fótboltaárið 2021, bæði hér heima og erlendis. Veitt eru verðlaun í fjölmörgum flokkum. Frekari orð eru óþörf! Gleðilega hátíð!

Dec 18, 2021

Enski boltinn - Máni og Steini Halldórs um Leeds og Man City

Sjö leikir fóru fram í liðinni umferð, þremur leikjum var frestað. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er mikill Leedsari og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson er stuðningsmaður City. Hluti þáttarins fór í að ræða þessi tvö lið og svo farið yfir þá leiki sem voru spilaðir. Það er Sæbjörn Steinke sem stýrir þættinum. Þátturinn er í boði Domino's.

Dec 17, 2021

Fantabrögð - Fantasy Pandemic League

Gylfi Tryggvason gaf sér tíma til að mæta í sitt eigið podcast eftir að hafa mátt þola háðsglósur á netinu í vikunni. Hann og Aron fóru yfir stóru málin í umferð 16 og það sem er framundan í Fantasy heimum. - Er Maddison í forgangi? - Hvernig er best að fá stig á bekkinn? - Á að nota triple captain í næstu umferð?

Dec 13, 2021

Enski boltinn - Víti eða ekki víti?

Vítaumferðin mikla fór fram um helgina og voru vítadómarnir fyrirferðamiklir í þætti dagsins. Þeir Eiður Ben Eiríksson, þjálfari Þróttar Vogum, og Gunnar Gunnarsson, leikmaður Fram, fóru yfir málin með Sæbirni Steinke. Eiður var með kenningu um drættina hjá UEFA og Gunnar þurfti að taka það á sig að hrósa leikmanni United. Eiður átti þá samlíkingu dagsins sem tengdist vítaspyrnu Liverpool. Þátturinn í dag var í boði Domino's, Fast próteinstykkjanna og Celsius orkudrykksins.

Dec 13, 2021

Útvarpsþátturinn - Freysi, Eyjar og Emil Páls

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir helstu fótboltafréttir vikunnar og hringt til Kóngsins Lyngby og spjallað við Frey Alexandersson en komið er vetrarhlé í dönsku deildinni. Rætt er við Daníel Geir Moritz, eiganda ÍBV. Vestmannaeyingar hafa verið að styrkja sig og þá stefna þeir á að leggja gervigras á heimavöll sinn. Gestur þáttarins er miðjumaðurinn Emil Pálsson sem fór í hjartastopp en var endurlífgaður í leik með Sogndal í Noregi á fyrsta degi nóvembermánaðar.

Dec 11, 2021

Ástríðan á aðventunni - Hvað er að frétta?

Strákarnir í Ástríðunni, Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári, hittust og spjölluðu um allt sem tengist 2. og 3. deild karla í fótbolta og það sem tengist þeim ekki neitt. Meðal umræðuefna voru öll helstu félagaskipti liða í deildunum, þjálfaramál, sameining Leiknis F. og Fjarðabyggðar, óeining í Kormáki/Hvöt og hvaða lið eru ný í deildunum. Einnig tilkynntu þeir Bola-Mann Ársins í ástríðunni og Sverrir Mar sagði skemmtilega frá frægðarför Óskars Smára í MK. Þátturinn er í boði Bola og Ölgerðarinnar og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Dec 11, 2021

Ítalski boltinn - Langi armur laganna og lið ársins hingað til

Lögreglan hefur á undanförnum dögum heimsótt bæði forseta Sampdoria og höfuðstöðvar Juventus. Hvers vegna? Roma tapar illa gegn Internazionale sem er allt í einu orðið líklegasta liðið til að vinna titilinn og Íslendingaliðið Venezia tapar illa í Veneto-nágrannaslagnu eftir að hafa komist 3-0 yfir. Þetta og fleira í ítalska boltanum, þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Dec 9, 2021

Fantabrögð - Þú sagðir ekki Ólsen!

Aron, Gunni og Heiðmar gerðu upp 15. umferðina í Fantasy Premier League. Aron var dapur, Gunni var með dólg og Heiðmar skipti einum Tottenham manni út fyrir annan. Strákarnir fengu flóð af spurningum, rýndu í lið Manchester United, reyndu að skera úr um besta kostinn á miðju Man. City og reyndu að velja annan fyrirliða en Salah.

Dec 8, 2021

Enski boltinn - Lundúnarþema og baráttan um fimmta sætið

Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina, umferðin kláraðist með leik Everton og Arsenal í gær. Guðmundur Gunnar Guðmundsson er stuðningsmaður Arsenal, Ingimar Helgi Finnsson er stuðningsmaður Tottenham og Tómas Steindórsson er stuðningsmaður West Ham. Farið var yfir umferðina, Antonio Conte og þurrkur Harry Kane komu við sögu, verðmiðinn á Jarrod Bowen og Declan Rice og loks Arsenal og Mikel Arteta. Þátturinn er í boði Domino's.

Dec 7, 2021

Útvarpsþátturinn - Ferðalag til Englands, Jón Daði og Víkingar

Útvarpsþátturinn 4. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fréttir vikunnar, ferðasaga úr enska boltanum, Jón Daði Böðvarsson í viðtali og Gunnlaugur Jónsson ræðir um sjónvarpsþættina Víkingar.

Dec 4, 2021

Heimavöllurinn: Bílstjórasætið í árslok, best í Barca og bolti til breytinga

Íslenska landsliðið er í bílstjórasætinu í undankeppni HM eftir stóran útisigur á Kýpur – en þjóðin vildi fleiri mörk. Gullknötturinn var afhentur í þriðja skipti í kvennaflokki og fór til Barcelona. Þá var haldið hér á landi alþjóðlegt fótboltamót sem snerist um svo margt annað en bara fótbolta, Global Goals World Cup. Gestir okkar í dag eru fyrrverandi og núverandi knattspyrnukonurnar Guðrún Valdís Jónsdóttir og Kristín Sverrisdóttir sem eru í hópi ungra athafnakvenna sem skipulögðu mótið.

Dec 1, 2021

Fantabrögð - Hvað á að gera í umferð 14?

Þáttur vikunnar af Fantabrögðum var eingöngu skipaður Íslandsmeisturum í Fantasy, því það voru Gunni og Heiðmar sem tækluðu umferð 13. Þeir áttu ekki góðar umferðir af ýmsum ástæðum en fóru yfir allt það helsta, m.a. Marcos Alonso, Diogo Jota, hvað á að vera með marga spilandi á bekknum um jólin? Fantabrögð eru í boði hlustenda sem styrkja Fantabrögð á patreon.com/fantabrogd. Einnig í boði Nemíu og Massabón.

Nov 30, 2021

Enski boltinn - Svefntruflanir og Ronaldo á bekknum

Níu leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Leik Burnley og Tottenham var frestað. Félagarnir Jóhann Már Helgason og Orri Freyr Rúnarsson fara yfir umferðina, Sæbjörn Steinke stýrir þættinum. Byrjað er á viðureign Arsenal og Newcastle og þaðan unnið sig í gegnum umferðina þar til kemur að lokaleiknum, stórleik Chelsea og Manchester United. Jói er Chelsea maður og Orri er United maður og eru málefni liðanna rædd. Hvernig mun Rangnick spila? Verður Ronaldo hafður á bekknum? Er Werner alveg búið spil? Þátturinn er í boði Domino's.

Nov 29, 2021

Útvarpsþátturinn - Rangnick og Peningar

Útvarpsþátturinn 27. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Tryggvi Páll Tryggvason, fréttamaður og sérfræðingur um Manchester United, ræðir um komu Ralf Rangnick á Old Trafford. Björn Berg Gunnarsson ræðir um Peninga. Hann var að gefa út bók fyrir jólabókaflóðið og í spjalli við hann er meðal annars talað um peningana í kringum boltann, Ronaldo, HM í Katar og fleira.

Nov 27, 2021

Ungstirnin x Róbert Orri

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Arnar Laufdal kemur með mjög spennandi slúðurpakka um unga og efnilega leikmenn á Íslandi þar sem stórar fréttir líta dagsins ljós. Drengirnir fjalla um Victor Kristiansen (FCK) sem er enn einn spennandi leiknaðurinn úr verksmiðju Kaupmannahafnar og Samuele Ricci (Empoli) sem hefur verið orðaður við Arsenal og Leicester Róbert Orri Þorkelsson leikmaður Montreal í MLS deildinni kemur í heimsókn þar sem mikið er rætt um dvölina í Kanada og Róbert fékk einnig sendar spurningar frá hlustendum.

Nov 27, 2021

Fantabrögð - Bakvarðasveitin og vinnueftirlitið

Fantasy snýst um bakverði. Bakverði og aftur bakverði. Ásgeir og Aron mættu í stúdíóið og ræddu það sem skiptir máli í Fantasy í dag - varnarmenn. Ásgeir viðurkenndi að hafa brotið vinnureglur og Aron tók hálfan þáttinn í að þylja upp stig af bekknum. Ekkert nýtt undir sólinni þar. - Af hverju keyptum við Bryan Mbeumo? - Hvað er Jota búinn að fá í bónus á leiktíðinni? - Af hverju er Benteke besti framherjinn í dag? - Raphinha hringir sig inn veikan

Nov 23, 2021

Enski boltinn - Keflvískt bakvarðauppgjör

Tólfta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina. Sæbjörn Steinke fékk Keflvíkingana Ástbjörn Þórðason og Rúnar Þór Sigurgeirsson með sér til að fara yfir umferðina. Ástbjörn er stuðningsmaður Liverpool og Rúnar er stuðningsmaður Arsenal. Hvaða lið endar í topp fjórum? Getur Norwich haldið sér uppi? Reece James eða Trent Alexander-Arnold og margt fleira. Í gær kom út aukaþáttur þar sem eingöngu var rætt um Manchester United og er hægt að nálgast þann þátt í hlaðvarspforritum og á Fótbolta.net. Þátturinn er í boði Domino's.

Nov 22, 2021

Enski extra - Ole ekki lengur við stýrið

Ole Gunnar Solskjær var látinn taka pokann sinn í morgun eftir tæp þrjú ár í starfi hjá Manchester United. Fótbolti.net ákvað að taka aukaþátt þar sem rætt var um Manchester United. BÁN teymið; þeir Sæbjörn Steinke, Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræddu um United. Hver tekur við? Af hverju var Ole einn látinn fara? Af hverju ekki fyrr? Hver á að taka við? Síðasti naglinn í kistuna og margt fleira á rúmlega 40 mínútum.

Nov 21, 2021

Útvarpsþátturinn - Stóru málin í íslenska og enska boltanum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 20. nóvember. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara yfir það helsta í boltanum. Leikmannaskipti, íslenska landsliðið, undankeppni HM, stjóramálin í enska og fleira til umfjöllunar. Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ er í viðtali, Kristján Atli ræðir um enska boltann, Þóroddur Hjaltalín um dómaramál og Sævar Pétursson um afreksþjálfun á Íslandi.

Nov 20, 2021

Birkir Már - Farið yfir ferilinn með Vindinum

Birkir Már Sævarsson lagði landsliðsskóna á hilluna á sunnudag. Birkir Már lék 103 landsleiki og fór með íslenska liðinu á tvö stórmót. Hann var fastamaður í liðinu um árabil. Birkir fer yfir ferilinn með landsliðinu, aðallega gullaldarárin, og ferilinn til þessa með landsliðinu. Það var Sæbjörn Steinke sem ræddi við Birki.

Nov 17, 2021

Heimavöllurinn: Skólapúsl, framfarir og ævintýri í Meistaradeild

Landsliðskonurnar Agla María Albertsdóttir og Telma Ívarsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni. Þær standa í ströngu með Breiðabliki í Meistaradeild Evrópu og A-landsliðinu okkar sem ætlar sér á HM. Knattspyrnukonurnar öflugu fara yfir allt það helsta í haustprógramminu og margt fleira.

Nov 15, 2021

Fantabrögð - Megi landsliðin öll rotna

Eftir áralanga dvöl í óbyggðunum mættust stálin stinn í dag þegar Gunni og Gylfi, umdeilanlega þeir bestu í bransanum, fóru yfir 11. umferð og margt annað. Lífið er lag sem þeir sungu saman tveir. Eins og alltaf. Dýrir varnarmenn eru betri en dýrir miðjumenn. Arsenal eru bestir. Antonio er ekki allur þar sem hann er séður. Salah rýfur 400 stiga múrinn og Reece James skorar 29,8 mörk í vetur. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_blank">hér</a>. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu <a href="https://fantasy.premierleague.com/leagues/auto-join/0dmju7" target="_blank">hér</a> til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7

Nov 13, 2021

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Jón Rúnar og fótboltafréttir

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. nóvember. Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs og fyrrum starfsmaður KSÍ, gerir upp landsleikinn gegn Rúmenum og horfir til framtíðar. Jón Rúnar Halldórsson, stjórnarmaður í ÍTF, er gestur þáttarins. Rætt er við hann um breytingar á íslensku deildinni, sjónvarpssamninga og fleira tengt íslenska boltanum. Þá fara Elvar Geir og Tómas Þór yfir fótboltafréttir vikunnar, bæði innlendar og erlendar.

Nov 13, 2021

Enski boltinn - Talandi um endastöð og stefnuleysi

Það er komið landsleikjafrí í ensku úrvalsdeildinni. Tólfta umferðin fór fram um helgina og var farið yfir það helsta. Manchester City rústaði grönnum sínum í United, en þó einungis með tveimur mörkum. Liverpool lá gegn West Ham og tveir stjórar voru reknir. Hverjir taka við Norwich og Aston Villa? Þeir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Enski boltinn er í boði Dominos.

Nov 9, 2021