Fotbolti.net
2,771 episodes — Page 25 of 56

Enski boltinn - Úrslitin sem þeir hlutlausu vildu
Það var heil umferð spiluð um liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni og hápunkturinn var stórleikur Man City og Liverpool á sunnudag. Það er orðið þannig að liðin vilja ekki ná fjórða sætinu og var Tottenham eina liðið sem vann af liðunum í 4.-8. sæti. Þeir Ingimar Helgi Finnsson og Sigurður Orri Kristjánsson fóru yfir helgina með Sæbirni Steinke. Þátturinn er í boði WhiteFox (18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).

„Erum hungraðir eftir vonbrigða tímabil í fyrra"
„Mér líst allt í lagi á þessa spá, þetta er kannski eðlilegt miðað við gengi okkar í fyrra en við ætlum okkur stærri hluti - það er ekkert flóknara en það. Ég held að það sé alveg klárt að við ætlum að berjast um þá titla sem eru í boði," sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, í viðtali við Fótbolta.net. Tilefnið var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en FH er spáð fjórða sæti í sumar.

BÁN - Upphitunarþáttur: Jói og Donni á línunni
Það er farið að vora, bikarinn er farinn af stað og liðin að klára sinn undirbúning fyrir Íslandsmót. Það er því ekki seinna vænna að hita upp fyrir boltann á Norðurlandi í sumar og nákvæmlega það gerðu þeir Egill Sigfússon og Sæbjörn Steinke. Rætt var við Völsunginn Jóhann Kristinn og Sauðkrækinginn Donna. Þá var rætt um hin liðin á Norðurlandi og rýnt í stöðu þeirra. Fyrsti leikur KA fer fram á Dalvík eftir rúma viku, Þórsarar komnir með nýjan þjálfara í brúna og Þór/KA fengið stórar og þekktar stærðir aftur heim.

Ástríðan - Spá fyrir 3. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?

Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Ástríðan - Spá fyrir 2. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu?

Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

„Sýnir hvað Stjarnan er að vinna gott starf"
„Þetta er bara fínt, þetta er betra en í fyrra minnir mig og ef þetta gengur eftir þá erum við í þessum efri hluta þegar deildinni verður skipt upp. Þar vilja öll lið vera," sagði Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, í viðtali við Fótbolta.net í dag. Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en Stjörnunni er spáð 6. sætinu í ár.

Útvarpsþátturinn - Besta yfirferðin með Tom og Atla Viðari
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net þessa vikuna er frumfluttur í hlaðvarpi. Tómas Þór Þórðarson sér um þáttinn. Atli Viðar Björnsson, markahrókur og margfaldur Íslandsmeistari, mætir og tekur yfirferð með Tómasi um um öll liðin í Bestu deildinni. Elvar Páll Sigurðsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks og Leiknis, sem er í dag markaðssérfræðingur og markaðsstjóri alþjóðlega fyrirtækisins Men and Mice fer yfir samfélagsmiðlana hjá félögunum og hvernig hægt sé að gera betur þar.

Vilt ekki keppast um eitthvað neðar þegar þú ert búinn að vera þarna uppi
„Nei, ég get nú ekki sagt að ég sé sáttur við þessa spá. Við sýndum í fyrra að við erum með sterkt lið. Ég er allavega ekki sammála þessu orðum það þannig," sagði Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA, í viðtali við Fótbolta.net í dag. Tilefni viðtalsins var spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina en KA er spáð 7. sætinu í sumar.

Fantabrögð - Lokaspretturinn

"Eftir" umferð 31 (stórleikur Everton og Burnley var eftir) fékk Aron góðvin þáttarins, Snorra Heiðar Andrésson til að fara yfir síðustu umferðir í Fantasy Premier League og spá í spilin fram að lokum leiktíðar.

Meðal annars:

- Hvenær er best að nota Free Hit?
- Hvenær er best að bench boosta ef maður á það eftir?
- Á að selja Kane til að kaupa Son eða öfugt?
- Hvað gerðist hjá Arsenal og Chelsea?
- Hvaða lið á að targeta fyrir lokaumferðirnar?

Enski boltinn - Áfram þrot hjá United og Everton gæti fallið
Sæbjörn Steinke ræddi við þá Gunnar Gunnarsson og Ingimar Helga Finnsson. Rætt var um liðna umferði í enska boltanum og einnig um leikina í Meistaradeildinni. Getur Everton í alvöru fallið? Þeirri spurningu er svarað og þá er baráttan um efsta sætið og Meistaradeildarsætið mjög hörð. Paul Pogba er gagnslaus, Daniel Amartey er einn af grínköllunum, Harry Kane fer hvergi og Oliver Skipp hornið er á sínum stað. Menn hallast að sigri Liverpool á Etihad - allt undir á sunnudag! Enski boltinn er í boði WhiteFox (18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla)

Veit ekki hvort Guðjón Orri Carragher Sigurjónsson gefi kost á sér
„Nei, það væri ekki ásættanlega niðurstaða. Við ætlum hærra en það. Við erum nýliðar í deildinni og kemur ekki á óvart að okkur sé spáð 9. sæti." „Við erum alveg með okkar markmið um hvað við ætlum að gera og það er eitthvað ofar en 9. sætið, við förum hærra en það og verðum helvíti fúlir með sjálfa okkur ef sú spá rætist." Þetta sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, við Fótbolta.net í gær. Rætt var við hann í tilefni af því að ÍBV er spáð 9. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina. Sjá einnig: Spá Fótbolta.net - 9. sæti: ÍBV

Útvarpsþátturinn - Styttist í Bestu deildina og enski farinn aftur af stað
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 4. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Íslenski boltinn er aðalmálið í fyrri hlutanum og farið yfir fréttir vikunnar. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA og Baldur Sigurðsson eru á línunni.Í seinni hlutanum fer Kristján Atli yfir enska boltann og gefur skýrslu úr leik Liverpool og Watford sem Liverpool vann 2-0.

Ungstirnin - MLS og NxGn topp 50 listinn
Við kíkjum til Bandaríkjanna og kynnum hlustendum fyrir Gabriel Slonina (2004 / Chicago Fire) sem er einn mest spennandi markmaður heims og var nánast kominn til Chelsea þangað til allt vesenið í kringum Roman Abramovich byrjaði. Einnig kynnum við Caden Clark (2003 / NY Red Bulls) sem er búinn að skrifa undir hjá RB Leipzig og lítur virkilega vel út. Boðið er upp á stutta kynningu á Tobias Gulliksen (2003 / Stromsgodset) sem gæti orðið næsti Martin Ödegaard en þeir eru báðir uppaldir hjá Strömsgodset. NxGn listi Goal kom út á dögunum sem fjallar um 50 bestu Ungstirni heims 2003 og yngri. Einnig er rætt um yngri landslið Íslands.

Innkastið - Leitin erfiða að jákvæðum punkti
Það var urmull landsleikja á dagskrá í dag og þeir Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fylgdust með öllu því sem átti sér stað. Athygli þeirra beindist helst að vináttulandsleik Spánar og Íslands sem var leikur kattarins að músinni. Einnig er rætt um baráttuna um HM sæti, yngri landsliðin, nýjan þjóðarleikvang og fréttir úr Bestu deildinni.

Útvarpsþátturinn - Vetrarverðlaun og Óli Jó
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir Bestu deildina og bestu menn undirbúningstímabilsins valdir, úrvalslið, besti leikmaðurinn og besti þjálfurinn. Hver er líklegastur til að verða besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar? Þá mætir sjálfur Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, í þáttinn og rætt er um komandi tímabil og fleira.

Hannes og hans magnaði fótboltaferill
Hannes Þór Halldórsson lagði hanskana á hilluna á dögunum. Hannes átti magnaðan fótboltaferil og leið hans á stærsta svið fótboltans er uppfull af sögum. Hannes mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net í drottningarviðtal.

Enska hringborðið - Háspenna um alla deild
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 19. mars. Enska hringborðið var dregið fram og Kristján Atli Ragnarsson ræddi um ensku úrvalsdeildina við þá Elvar og Tómas. Titilbarattan, fallbaráttan, baráttan um fjórða sætið, úrvalslið þriðja fjórðungs. Þetta er allt á sínum stað.

Aukaþáttur - Fótboltafréttir vikunnar og landsliðsval
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á sínum stað á morgun laugardag þar sem boðið verður upp á pakkfulla dagskrá. Boðið er upp á sérstakan aukaþátt á föstudegi þar sem Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Þá er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara. Landsliðsval fyrir vináttuleiki gegn Finnum og Spánverjum, Lengjubikarinn, Meistaradeildardráttur og enski boltinn koma við sögu í yfirferðinni.

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir neðri deildir 2022
Í boði Dominos og Heklu Bílaumboðs halda ótímabærar spár Heimavallarins áfram og nú er komið að því að skoða 2. og Lengjudeild. Knattspyrnuþjálfararnir Margrét Magnúsdóttir og Ruth Þórðardóttir mæta og fara yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Enski boltinn - Ástríða, Meistaradeild og saxað á City
Farið var um víðan völl í Enska boltanum þessa vikuna. Farið var yfir síðustu umferð og tengt það við leiki ensku liðanna í Meistaradeildinni. Þeir Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason ræddu málin með Sæbirni Steinke. Manchester United er úr leik í Meistaradeildinni og átti ekkert skilið í gær, City getur ekki skorað gegn Palace og Liverpool vélin mallar og mallar. Arsenal er líklegast í 4. sætið en liðið á erfiða leiki eftir. Hvað gera liðin sem eru örugg um að falla ekki en eiga ekki möguleika á Evrópusæti? Chelsea harkar út sigra í mótlætinu en Gylfi gefur lítið fyrir að menn séu tilbúnir að keyra rútur og greiða ferðakostnað úr eigin vasa. Þetta og margt fleira í þætti kvöldsins. Enski boltinn er í boði Domino's (fyrir alla - allir að fá sér Góðgerðarpizzuna) og WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri).

Ungstirnin - Prófessorinn og Thor
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Alejandro Garnacho (Man Utd) og Arda Guler (Fenerbahce) eru til umfjöllunar í þættinum að þessu sinni. Þá eru tvö viðtöl, við Ólaf Kristjánsson sem tók nýlega við sem yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki og Þorleif Úlfarsson, Thor, leikmann Houston Dynamo í MLS-deildinni bandarísku.

Útvarpsþátturinn - Siggi Höskulds, Gústi Gylfa og fótboltafréttir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. mars. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Gestir: Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis og Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar. Rætt um Bestu deildina og fótboltafréttir vikunnar, bæði hér heima og erlendis.

Fantabrögð - Frekjuköst og forföll

Strákarnir í Fantabrögðum tóku upp þátt um leið og umferð 28 kláraðist í Fantasy Premier League. Þeir fóru stuttlega yfir síðustu umferð en einbeittu sér fyrst og fremst að komandi umferðum, 29 og 30.  Strákarnir tóku spurningar hlustenda, m.a.

- Á að selja Reece James?

- Á að kaupa Doherty og Kulusevski?

- Hvenær er rétti tíminn til að nota Wildcard ef maður á það eftir?

- Hvað er að gerast hjá Chelsea og hvernig hefur það áhrif á Fantasy?

Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Bestu deildina 2022
Það er komið að því! Heimavöllurinn hendir í ótímabæra spá fyrir Bestu deildina 2022. Knattspyrnuþjálfarinn Guðni Þór Einarsson mætir og fer yfir spánna ásamt þáttastýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Enski boltinn - Chelsea í fordæmalausri stöðu
Sérstakur aukaþáttur vegna stórfrétta dagsins af málum Chelsea. Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar. Chelsea hefur notið mikillar velgengni í eignartíð Abramovich en nú eru framundan nýir og breyttir tímar. Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke fara yfir tíðindin og með þeim er stuðningsmaður Chelsea, Ágúst Reynir Þorsteinsson.

Enski boltinn - Stöðnun hjá United og ömurleg líðan gegn West Ham
Umferðinni í enska boltanum lauk með stórsigri Tottenham gegn Everton. Risaleikur umferðarinnar var á Etihad á sunnudag, City liðið sýndi mikla yfirburði og þá sérstaklega í seinni hálfleik! Þátturinn í dag var smá litaður af því að Blikinn Andri Rafn Yeoman ræddi um sína menn í Brighton og fá hlustendur innsýn inn í hlutina á Amex. Það var Blikaþema því Adam Örn Arnarson var hinn gesturinn. Adam er stuðningsmaður Liverpool og fóru Blikarnir yfir umferðina með Sæbirni Steinke. Coutinho, Dan Burn, Kiddi Jóns eða Reece James, Martin Ödegaard, posession og xG hjá Brighton, Harry Maguire og margt fleira til umræðu í þættinum. Síðustu mínúturnar er aðeins spáð í spilin fyrir risaleik Real Madrid og PSG og í blálokin er smá Blikatal.

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og boltafréttir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 5. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Íslenskar fótboltafréttir vikunnar, ótímabær spá fyrir Lengjudeildina og Ívar Ingimarsson, nýr stjórnarmaður KSÍ, á línunni.

Heimavöllurinn: Ævintýri á framandi slóðum og stóra málið í nefnd
Viðburðarrík fótboltavika var að líða. Stelpurnar okkar tóku 2. sætið á She Believes Cup og U16 spreytti sig í Miðgarði. Vanda Sigursteinsdóttir var endurkjörin sem formaður KSÍ og ýmisleg mál voru rædd á nýafstöðnu ársþingi. Knattspyrnuspekúlantinn Daði Rafnsson mætti á Heimavöllinn og fór yfir allt það helsta ásamt þáttastýrunum þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.

Enski boltinn - 22 vítaspyrnur og Bielsa farinn
Enski boltinn er gerður upp með tveimur leikmönnum Stjörnunnar. Þeir Eggert Aron Guðmundsson, stuðningsmaður Chelsea, og Ísak Andri Sigurgeirsson, stuðningsmaður Liverpool, fara yfir úrslitaleik Liverpool og Chelsea í enska deildabikarnum. Í tilefni af því að tveir Stjörnumenn voru mættir var einnig talsvert rætt um Stjörnuna. Þá er hringt í Mána Pétursson og farið yfir stjórabreytingu Leeds. Máni hafði eðlilega mikið um það að segja. Manchester United náði ekki að leggja Watford og City var stálheppið gegn Everton. Í lok þáttar er svo hringt í Þorvald Ingimundarson, stuðningsmann Derby, sem fer yfir stöðu mála hjá liðinu. Þátturinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).

Útvarpsþátturinn - Ótímabær spá fyrir Bestu og Heimir Guðjóns
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977, 26. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór opinbera uppfærða spá fyrir Bestu deildina 2022. Það eru nokkrar áhugaverðar breytingar frá síðustu spá! Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals. Í þættinum er einnig rætt um enska boltann og ársþing KSÍ.

Ungstirnin - Nýr meðlimur og verðandi stórstjörnur
34. þátturinn af Ungstirnunum er mættur. Kristinn Helgi Jónsson er nýjr meðlimur í tveggja manna teymi þáttarins en hann og Arnar Laufdal eru nú umsjónarmenn. Í þessum þætti er Savio sem er að ganga til liðs við Manchester City kynntur. Einnig er fjallað um Gabriel Carvalho nýjasta leikmann Atletico Madrid og svo Brenden Aaronson hjá RB Salzburgs sem mun 100% taka næsta skref í sumar og ganga til liðs við stærra félag. Rætt er um félagaskipti ungstirna í janúarglugganum og þá sérstaklega um Dusan Vlahovic sem fór til Juventus. Öll Ungstirni eiga að taka sér Ryan Gravenberch til fyrirmyndar. Svo er einnig rætt um UEFA Youth League en 16-liða úrslitin hefjast í byrjun mars.

Fantabrögð - Þreföld ánægja og spilataktík

Aron og Gunni gerðu upp umferð 26 fyrir leik Arsenal og Wolves. Salah skilaði heldur betur sem þrefaldur fyrirliði hjá þorra þjóðarinnar í Fantasy samfélaginu með þá 84 stig. Burnley vann tvo leiki og hélt hreinu.

Aðallega ræddu þeir samt hvað á að gera í umferðum 27-30, en þær eru allar með óhefðbundinn leikjafjölda.

- Eiga allir að taka Free Hit í umferð 27?

- Að hverju þarf að huga fyrir umferð 30?

- Úr hvaða liðum á að kaupa menn þess á milli?

- Hvaða leikmenn ættu að vera í öllum Free Hit liðum í umferð 27?

Þetta og allt annað í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Takk fyrir að hlusta og styrkja okkur á Patreon

Ítalski boltinn - Meistaratitill fæst gefins
Toppliðin halda áfram að misstíga sig í hnífjafnri toppbaráttu. Mourinho lætur dómara finna fyrir syndum feðranna og er kominn í bann. Bandaríska innrásin heldur áfram og stuðningsmenn Cagliari og Napoli hata hvora aðra af undarlegum ástæðum. Silvio Berlusconi fagnar marki í Íslendingaslag með því að fara í sleik. Allt er eins og það á að vera í ítalska boltanum - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.

Besta deildin - En er þetta Besta nafnið?
Efstu deildir karla og kvenna hafa fengið nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks Toppfótbolta í Bæjarbíói í dag. Í tilefni fundarins er hér aukaþáttur í hlaðvarpsformi af útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um kynningarfundinn, útlitið og nafnið á deildinni og sigurskjöldinn. Þá er rætt við Björn Þór Ingason, markaðsstjóra ÍTF, um þá undirbúningsvinnu sem ráðist var í og tilurð vörumerkisins.

Lesendur spyrja - Vanda og Sævar í formannsbaráttu
Á laugardaginn verður ársþing KSÍ haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það verður kosið kosið til formanns en Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ákvað að taka slaginn og bjóða sig fram á móti Vöndu Sigurgeirsdóttur. Fótbolti.net gaf lesendum kost á því að senda inn spurningar á Sævar og Vöndu og setti svo saman lista með tólf spurningum. Við þökkum öllum þeim sem sendu inn spurningar og þó einhverjar hafi ekki komist á þennan spurningalista er ekki ólíklegt að þær verði notaðar síðar til umfjöllunar þegar formaður hefur verið kjörinn. Sævar og Vanda mættu á skrifstofu Fótbolta.net í sitthvoru lagi og svöruðu spurningalistanum.

Enski boltinn - Tveir af skemmtilegri leikjum vetrarins
Það var létt yfir mönnum í þætti dagsins. Þeir Ísak Máni Wium og Tómas Steindórsson sátu með Sæbirni Steinke og þá var Ingimar Helgi Finnsson á línunni, reif upp tólið á Tenerife. Ísak er stuðningsmaður Manchester United, Tómas heldur með West Ham og Ingimar er Tottenham-megin í lífinu. Rætt var um leiki umferðarinnar og aðeins spáð í leiki Liverpool, Man Utd og Chelsea í miðri viku. Hversu góður er Harry Kane? - Skiptingin á Paul Pogba - Kaupstefna West Ham - Wout Weghorst - Roy Hodgson og svo margt fleira. Enski boltinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).

Útvarpsþátturinn - Nýir tímar í íslenska boltanum
Útvarpsþátturinn 19. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í upphafi þáttar er yfirferð yfir Lengjubikarinn og fréttir úr íslenska boltanum. Gestir þáttarins eru Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF og Þórir Hákonarson íþróttastjóri og sérfræðingur þáttarins. Rætt er um nýja samninga í íslenska boltanum, peningastreymi og komandi ársþing. Þeir spá jöfnum og spennandi formannskosningum. Í lok þáttar er síðan skoðað hvað er í gangi í enska boltanum.

Heimavöllurinn: Kemur alltaf einhver kona til að hleypa vindlareyknum út
Gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þær Ingunn Haraldsdóttir og Katrín Ómarsdóttir. Ingunn er nýkomin heim úr atvinnumennsku í Grikklandi og Katrín er orðin aðstoðarþjálfari Hauka. Stelpurnar okkar byrja á sigri í fyrsta leik á She Believes Cup og Dagný setti þar hraðamarkamet. Árið 2022 erum við enn að verða vitni að ótrúlegum atvikum en Þróttarar fengu engan bikar afhentan kvöldið sem þær urðu Reykjavíkurmeistarar. Slíkar uppákomur og ýmislegt annað hefur orðið til þess að Ingunn, Katrín og vaskur hópur fólk eru að endurvekja Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna og gestirnir segja frá þeim.

Ítalski boltinn - Íslenskt vor í lofti og ljótir söngvar í Bergamo
AC Milan fór á toppinn og miðað við leikjaprógramið framundan fara þeir ekki þaðan í bráð. Nýr Íslendingur var í hóp hjá Venezia og Björn Már skoðar hvaða ungu Íslendingar eru líklegastir til að fá tækifærið í Serie A næst. Stuðningsmenn Atalanta verða sér til skammar með söngva um Dusan Vlahovic og Albert Guðmundsson þreytir frumraun sína í deildinni þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.

Enski boltinn - Tvær umferðir og Meistaradeild
Það er loksins komið að því, tvær síðustu umferðir í ensku úrvalsdeildinni gerðar upp og leikir vikunnar í Meistaradeildinni. Þeir Arnar Laufdal Arnarsson og Egill Sigfússon ræddu málin með Sæbirni Steinke. Þrír sigrar hjá Liverpool, þrír sigrar hjá Man City en ekki gekk eins vel hjá Man Utd og Tottenham. Þá var hringt í Þórodd Hjaltalín Jr. og hann spurður út í tvöfalda gula spjaldið á Gabriel Martinelli í leik Arsenal og Wolves. Laufið segir frá því þegar hann hitti Steve Sidwell, Vicente Guaita, Pedro Leon. Egill mætti þá á sínum tíma Mohamed Elyounoussi í Futsal - eðlilega. Þátturinn er í boði WhiteFox (fyrir 18 ára og eldri) og Domino's (fyrir alla).

Fantabrögð - Triple captain time
Aron, Heiðmar og Ásgeir hittust og ræddu umferð 25 í Fantasy sem "réðist" á síðustu sekúndu. Strákarnir skoðuðu risavaxna umferð 26 og ræddu möguleikana sem flestir velta fyrir sér eins og Triple captain á Salah, Bench boost, Free Hit og hvað þetta allt heitir nú. Þátturinn er í boði hlustenda sem styrkja okkur á Patreon, Nemíu og Massabón.

Útvarpsþátturinn - Íslensk lið styrkja sig og enski boltinn aftur á fulla ferð
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþætti vikunnar. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og heyrt í Rúnari Kristinssyni þjálfara KR og Hólmari Erni Eyjólfssyni sem er kominn heim úr atvinnumennskunni og samdi við Val. Enski boltinn er einnig til umfjöllunar en Sæbjörn Steinke er nýkominn til landsins eftir rannsóknarleiðangur til Englands þar sem hann skellti sér á þrjá leiki.

Fantabrögð - Fantabrögð x Lélega Fantasy Podcastið
Fantabrögð og Lélega Fantasy podcastið tóku höndum saman þessa vikuna og voru með sameiginlegan þátt. Fjórmenningarnir fóru yfir stigin sín, planið framundan, möguleg Wildcard lið og fleira. Annað sem kom fram í þættinum: - Hver væri hvað í hinu podcastinu? - Á hvaða heimavist í Hogwarts væri Gummi Fel? - Hvað kom fyrir Pálma í dag? - Hver verður fyrirliði í umferð 25?

Ítalski boltinn - Aukaspyrnutvenna og titilbaráttan galopnast
AC Milan vann óvæntan sigur í Derby della Madonnina og galopnaði titilbaráttuna. Dusan Vlahovic skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Juventus. Simone Verdi stóð undir nafn sem aukaspyrnusérfræðingur deildarinnar og botnbaráttan harðnar enn. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Sævar fer gegn Vöndu: Sér fram á tvísýna baráttu
Það verður kosningabarátta um formannssæti KSÍ á ársþingi sambandsins þann 26. febrúar. Í dag tilkynnti Sævar Pétursson að hann hefði ákveðið að taka slaginn og bjóða sig fram gegn Vöndu Sigurgeirsdóttur. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke slógu á þráðinn norður til Akureyrar og heyrðu í Sævari. Hann býst við jafnri baráttu, telur sig hafa breiðari þekkingu úr hreyfingunni en segist verða fyrsti maðurinn til að óska Vöndu til hamingju ef hann ber ekki sigur úr býtum í kosningunni. Í viðtalinu ræðir hann um sína stefnu, staða yfirmanns fótboltamála og þjóðarleikvangurinn koma að sjálfsögðu við sögu.

Útvarpsþátturinn - Fótboltafréttir, Andri Rúnar og Vanda
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. febrúar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Formannsslagurinn, undirbúningstímabilið, þjálfaramál, enski boltinn og fleira koma við sögu. Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason kemur í þáttinn en hann er mættur aftur úr atvinnumennskunni erlendis og ætlar sér stóra hluti með ÍBV í sumar. Þá er Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ á línunni en hún býður sig áfram fram í formannsstólinn. Það eru þrjár vikur í ársþing.

Ítalski boltinn - Loftbrúin til Ítalíu stendur enn og glugginn gerður upp
Félagsskiptagluggi ítölsku liðanna gerður upp með einkunnagjöf. Albert Guðmundsson fetar í fótspor langafa síns í Serie A. Litríkur forseti Palermo fellur frá en skilur eftir sig ótrúlega sögu. Óttar Magnús yfirgefur Siena þar sem allt er í vafasamri upplausn og ungir Íslendingar vilja hvergi annars staðar spila enn á Ítalíu - eðli máls samkvæmt. talski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Fantabrögð - Tilfinningalegt uppgjör
Aron og Gunni hittust og reyndu að setja tilfinningar sínar í garð Watford leikmanna í orð. Það var erfitt, en einhver þarf að gera þetta. Strákarnir tóku fyrir spurningar hlustenda, veltu fyrir sér hverja þeir myndu kaupa á Wildcardi og hvernig næstu umferðir myndu spilast. Fantabrögð eru í boði hlustenda sinna sem styrkja okkur á Patreon, einnig í boði Nemíu og Massabón. Takk fyrir að hlusta.

Enski boltinn - Gluggayfirferð með BÁN-bræðrum
Félagaskiptaglugganum á Englandi var skellt í lás klukkan 23:00 í gærkvöldi og voru sum félög að græja síðustu skiptin í blálok gluggans. Pierre-Emerick Aubameyang, Aaron Ramsey, Dele All, Donny van de Beek og fleiri öflugir skiptu um félag í gær. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon ræða málin við Sæbjörn Steinke (BÁN-bræður). Farið er yfir félögin í ensku úrvalsdeildinni, rætt um skipti Alberts Guðmundssonar, stærstu skiptin á Ítalíu og aðeins spáð í spilin með sumargluggann. Þátturinn er í boði Domino's (fyrir alla) og White Fox (fyrir 18 ára og eldri).

Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar, Damir og glugginn
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. janúar. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Rætt er um fréttir vikunnar, þjálfaraleit ÍA, formannsslag KSÍ og fleira. Eggert Ingólfur Herbertsson, formaður ÍA, er á línunni og einnig Sæbjörn Steinke sem horfði á Stjörnuna vinna Breiðablik í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins. Gestur þáttarins er Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks. Einnig er fjallað um enska boltann og félagaskiptagluggann.