PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,771 episodes — Page 22 of 56

Útvarpsþátturinn - Boltafréttir, Arsenal og Danni Hafsteins

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. nóvember. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir helstu fótboltafréttirnar. Sæbjörn Steinke er með þeim og sett saman líklegt byrjunarlið Íslands gegn Sádi-Arabíu. Þá er helgin í enska boltanum skoðuð. Arsenal er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og Daníel Geir Moritz velur fimm uppáhalds leikmenn sína í Arsenal frá upphafi. Einnig er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Daníel Hafsteinsson, miðjumann KA, í vikunni. Daníel er með landsliðinu í arabísku furstadæmunum en í viðtalinu gerir hann upp tímabil KA.

Nov 5, 2022

Siggi Höskulds gerir upp tíma sinn í Breiðholtinu

Sigurður Heiðar Höskuldsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari Vals og fyrrum aðalþjálfari Leiknis í Breiðholti, mætti á skrifstofu Fótbolta.net í dag í mjög gott spjall. Hann fór þar yfir árin hjá Leikni og þá sérstaklega tímabilið í sumar þar sem Leiknir þurfti að sætta sig við fall eftir erfiða úrslitakeppni. Hann fer yfir ýmis mál. Þá fer hann yfir framhaldið með Val og af hverju hann ákvað að taka það starf að sér. Hvað er langtímamarkmiðið hjá þessum efnilega þjálfara?

Nov 4, 2022

Valgeir Lunddal: Maður stefnir alltaf hátt en þetta toppar allt

Valgeir Lunddal Friðriksson varð sænskur meistari með Häcken á sunnudag þegar liðið vann 0-4 sigur á Gautaborg í næstsíðustu umferð Allsvenskan. Häcken endaði í 12. sæti deildarinnar í fyrra og stekkur því upp um ellefu sæti milli tímabila. Valgeir hefur átt gott tímabil, komið við sögu í langflestum leikja Häcken, lagt upp þrjú mörk og bæði spilað sem hægri og vinstri bakverði. Hálftíma viðtal við Valgeir um tímabilið og ýmislegt annað má nálgast í spilaranum að ofan sem og í öllum hlaðvarpsveitum.

Nov 1, 2022

Enski boltinn - Kaninn keypti sér tíma á Anfield

Það var nóg um að ræða í Enski boltinn þennan mánudaginn. Heil umferð var leikin í ensku úrvalsdeildinni á laugardag og sunnudag. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, kom í heimsókn og ræddi um vandræði Liverpool við Gumma og Steinke. Einnig var Mate Dalmay, þjálfari körfuboltaliðs Hauka, með fyrsta hálftímann í þættinum og lét ýmislegt flakka. Ásamt því að vandræði Liverpool voru rædd þá var farið yfir stórkostlegan sigur Brighton gegn Chelsea, endurkomu Tottenham, rúst Arsenal gegn Nottingham Forest, sigur Manchester United gegn West Ham og margt fleira.

Oct 31, 2022

Innkastið - Sá besti gestur í lokaþætti ársins

Lokaþáttur Innkastsins þetta árið. Gestur er Ísak Snær Þorvaldsson en Fotbolti.net valdi hann besta leikmann tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu við Ísak, gerðu upp tímabilið og horfðu fram veginn.

Oct 31, 2022

Útvarpsþátturinn - Íslenskar fréttir og enska hringborðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 29. október. Farið er yfir íslenskar fréttir og svo er enska hringborðið dregið fram og meðal annars opinberað val á liði tímabilsins hingað til. Elvar Geir, Tómas Þór og Kristján Atli í fiskabúrinu.

Oct 29, 2022

Enski boltinn - Getur ekki verið mikið verra en Gerrard

Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina og litu nokkur óvænt úrslit dagsins ljós. Stærst var það að nýliðar Nottingham Forest lögðu Liverpool. Það voru meiðslavandræði hjá Liverpool sem höfðu mikil áhrif. Gummi og Steinke fara vel yfir umferðina; rætt er um óvæntan sigur Forest, stórleik Chelsea og Manchester United, ferð á Tottenham Hotspur Stadium og margt fleira. Þá er rætt um Unai Emery sem er kominn aftur í enska boltann, tekinn við Aston Villa af Steven Gerrard.

Oct 25, 2022

Innkastið - Gummi girnist gullskóinn

Guðmundur Magnússon, sóknarmaður Fram, er sérstakur gestur Innkastsins þessa vikuna. Ef Gummi skorar gegn Keflavík í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardaginn verður gullskórinn hans. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Gummi Magg fara yfir 26. umferð Bestu deildarinnar og Sæbjörn velur einnig besta leikmann hvers liðs í sumar og einnig mestu vonbrigðin. Þá er auðvitað rætt við Gumma um árangur hans og Framliðsins í sumar og ýmislegt skemmtilegt.

Oct 25, 2022

Útvarpsþátturinn - Besta deildin innan og utan vallar

Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon gera upp Bestu deildina jafnt innan vallar sem utan í útvarpsþætti vikunnar. Lokahóf deildarinnar var haldið í hljóðverinu og opinberað val Fótbolta.net á liði ársins, leikmanni ársins, efnilegasta leikmanninum, besta þjálfaranum og besta dómaranum. Í seinni hlutanum ræðir Tómas við Birgi Jóhannsson og Björn Þór Ingason frá ÍTF um deildina. Meðal annars er rætt um fyrirkomulagið sem hefur verið mikið í umræðunni.

Oct 22, 2022

Enski boltinn - Að telja sig vera stærri en félagið

Það er svo mikið í gangi í ensku úrvalsdeildinni að ekki er annað hægt en að bjóða upp á annan þátt af Enska boltanum þessa vikuna. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir tíðindamikla viku þar sem Cristiano Ronaldo var settur í skammarkrókinn og Steven Gerrard var rekinn. Farið er yfir þessar risafréttir, úrslit helgarinnar og leikir helgarinnar skoðaðir.

Oct 21, 2022

Enski boltinn - Í draumalandi Laufdalsins

Það er frábær umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni þar sem stórleikur Liverpool og Manchester City stóð upp úr. Gummi og Steinke fóru yfir umferðina með Arnari Laufdal, þáttastjórnanda Ungstirnanna. Síðustu sjö dagar hafa verið ansi góðir hjá Laufdalnum; Breiðablik varð Íslandsmeistari, Liverpool vann Man City og hann fór á árshátíð. Eitt er víst eftir þennan leik Liverpool og Man City: Darwin Nunez er kóngurinn.

Oct 17, 2022

Innkastið - Leikurinn þar sem bæði liðin töpuðu

Allt stefnir í að Leiknir og ÍA leiðist hönd í hönd niður í Lengjudeildina eftir 2-2 jafntefli liðanna í Breiðholtinu á Laugardag. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Mar gera upp 25. umferð Bestu deildarinnar og ræða helstu fréttapunkta deildarinnar.

Oct 17, 2022

Útvarpsþátturinn - Ómar Ingi og helstu boltamálin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. október. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum og með þeim í þættinum er Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK. Rætt er um fréttir vikunnar; heimaleikjabann Víkings, þjálfarahræringar, Íslandsmeistaratitil Breiðabliks, tap kvennalandsliðsins og næstu leiki í Bestu deildinni. Þá gerir Ómar upp tímabil HK. Einnig koemur enski boltinn við sögu.

Oct 15, 2022

Enski boltinn - Víður völlur og sameiginlegt byrjunarlið

Það var farið um víðan völl þegar Gummi og Steinke settust niður á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Farið var yfir umferðina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fór um síðustu helgi og umferðina sem hefst í kvöld. Einnig var farið yfir Meistaradeildina, Evrópudeildina og Sambandsdeildina en það var spilað í öllum þessum keppnum núna í vikunni. Liverpool og Manchester City eigast við í stórleik helgarinnar. Hvernig lítur sameiginlegt byrjunarlið þeirra út?

Oct 14, 2022

Innkastið - Blikar krýndir bestir í sófanum og FH greip líflínu

Til hamingju Breiðablik! Kópavogsliðið er orðið Íslandsmeistari. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og heyra í góðum mönnum. Viktor Karl Einarsson, miðjumaður og Íslandsmeistari, er á línunni. Í seinni hlutanum er fjallað um neðri deildina og svakalega mikilvægan sigur FH gegn Leikni í fallbaráttuslagnum. Þá er Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, á línunni frá Vestmannaeyjum og í lok þáttarins er rætt um riðilinn sem íslenska landsliðið er í.

Oct 11, 2022

Útvarpsþátturinn - Harka og hræringar í fallbaráttunni í Bestu

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það eru sviptingar og spenna í harðri fallbaráttu Bestu deildarinnar. Eiður Smári steig til hliðar og Siggi Höskulds tekst á við nýjar áskorarnir eftir tímabilið. Sérfræðingur þáttarins, Rafn Markús Vilbergsson, spáir í spilin fyrir sex stiga fallbaráttuslag FH og Leiknis. Enski boltinn. Stórleikur helgarinnar er viðureign Arsenal og Liverpool. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um enska boltann, er á línunni. Hann ræðir meðal annars um Erling Haaland. Þá fer Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson yfir möguleika íslenska kvennalandsliðsins sem mætir Portúgal í úrslitaleik um sæti á HM næsta þriðjudag.

Oct 8, 2022

Kristján Guðmundsson - Hvernig náði Stjarnan Evrópusæti?

Stjarnan endaði í 2. sæti Bestu deildar kvenna á liðnu tímabili. Liðið verður því í forkeppni Meistaradeildarinnar á komandi tímabili. Liðið vann fimm af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni og gerði tvö jafntefli. Kristján Guðmundsson var að klára sitt fjórða tímabil sem þjálfari liðsins og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Kristján fór yfir markmiðasetninguna, tvískiptinguna á tímabilinu, breytingu í þjálfun hjá leikmönnum, stemninguna, næringarráðgjöf, markmannsmálin, öðruvísi nálgun gagnvart stelpum heldur en strákum, samskipti stúlkna og ýmislegt annað.

Oct 6, 2022

Innkastið - Læti í Laugardal og sparkað í liggjandi mann

Víkingur vann FH í framlengdum bikarúrslitaleik og fyrstu fjórir leikirnir eftir tvískiptingu Bestu deildarinnar eru að baki. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum í Innkasti vikunnar. Meðal efnis: Lætin í Laugardalnum, Haddi byrjar á sigri fyrir norðan, Blikar miklu betri en Stjörnumenn, sparkað í liggjandi Skagamenn og Fram tók fernuna gegn Leikni.

Oct 4, 2022

Ástríðan - Uppgjör í 3. deildinni - Fulltrúar toppliða og viðurkenningar

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu í heimsókn góða fulltrúa frá toppliðunum tveimur. Bjarki Flóvent frá Sindra og svo kom Balvin Borgarsson fyrir hönd Dalvíkur. Þeir mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Bjarki Flóvent fór yfir mikilvægi Óla Stefáns og hvernig framhaldið lítur út á Höfn, hvernig liðið fór á run þegar hann kom inn í liðið og breytingar á frammistöðum leikmanna á milli ára.Baldvin mætti vegna andúðar leikmanna Dalvíkur í garð Ástríðunnar. Hann fór yfir tímabil Dalvíkur/Reynis og afhverju liðið snéri taflinu við eftir vonbrigðaár í fyrra.Lið ársins, besti leikmaður, efnilegastur og þjálfari ársins allt tilkynnt og rætt vel í þættinum. Gestirnir voru að lokum leystir út með Bola.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Oct 4, 2022

Enski boltinn - Ótrúlegur viðsnúningur og sjokkerandi á Etihad

9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór að mestu fram á laugardag og sunnudag. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson og Keflvíkingurinn Kristinn Guðbrandsson fóru yfir það helsta með Sæbirni Steinke. Arsenal er áfram á toppnum og Manchester City fylgir í kjölfarið. Þeir Albert og Kiddi eru Arsenal menn og var vel farið yfir þeirra sigur á nágrönnunum. Er Arsenal eina liðið sem getur barist við City? Áfram vandræði hjá Liverpool, Chelsea harkaði út sigur, meira stál hjá Everton og Newcastle með öruggan sigur. Manchester City valtaði yfir granna sína í United sem löguðu stöðuna aðeins í lokin. Af hverju byrjaði Casemiro ekki? Hvað getur Haaland skorað mörg? Martial ákveðinn sigurvegari og ekki eitt orð um frábært mark Antony.

Oct 3, 2022

Heimavöllurinn: Besta eftirpartýið

Keppni í Bestu deildinni er lokið þetta tímabilið og því ekki um annað að ræða en að gera mótið almennilega upp í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar. Þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í gott spjall og fóru ítarlega yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Oct 3, 2022

Útvarpsþátturinn - Ísland, DKÓ, Besta og enski

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 1. október. Elvar Geir og Benedikt Bóas halda um stýrið og skoða allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Meðal annars er rýnt í landsleiki Íslands, jafnteflið í Tirana og þennan hörkuleik hjá U21 liðinu í Tékklandi. Landsliðsmaðurinn Davíð Kristján Ólafsson er á línunni. Farið er yfir fréttir og slúður, rætt um bikarúrslitaleikinn, spáð í spilin fyrir komandi leiki í Bestu deildinni og fjallað um enska boltann. Ingimar Helgi Finnsson gerir upp Norður-Lundúnaslag Arsenal og Tottenham.

Oct 1, 2022

Ástríðan - Uppgjör í 2. deildinni - Gestir frá toppliðum og lið ársins

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Óskar Smári fengu í heimsókn góða gesti frá toppliðunum tveimur. Guðmundur Axel frá Þrótti R. og Maggi Matt frá Njarðvík mættu í spjall þar sem farið var yfir tímabil liðanna í ár, framhaldið og fleira. Guðmundur Axel svaraði fyrir gagnrýni Ástríðunnar undanfarna mánuði auk þess sem hann fór vel yfir hvað er í vændum í Laugardalnum.Maggi Matt mætti með risa tilkynningu í þáttinn, fór yfir breytingar á liðinu á undurbúningstímabilinu, hvaða leikmenn verða áfram með nýjum þjálfara og hvað gerir Bjarna Jó að Bjarna Jó. Lið ársins, besti leikmaður, efnilegastur og þjálfari ársins allt tilkynnt og rætt vel í þættinum. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Sep 30, 2022

Heimavöllurinn: Fram flaug upp í fyrstu, hverjar fara í Evrópureisu?

Keppni í 2. deild kvenna er lokið og ljóst er að Fram stendur uppi sem sigurvegari. Þjálfarar liðsins, þau Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson eru gestir Heimavallarins að þessu sinni en þau ræða sumarið og deildina sem hefur aldrei verið betri. Þá rýna gestirnir einnig í Meistaradeildarbaráttuna sem er framundan. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Orku Náttúrunnar, Heklu og Dominos.

Sep 27, 2022

Útvarpsþátturinn - Stóru fréttirnar að norðan, landsliðin og bestir í Bestu

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Risafréttirnar frá Akureyri eru fyrst á dagskrá. Arnar Grétarsson er hættur sem þjálfari KA og Hallgrímur Jónasson gerði þriggja ára samning. Örvar Arnarsson ræðir um landsleikinn gegn Venesúla, U21 landsleikurinn er til umfjöllunar, farið yfir kosningu á bestu leikmönnunum í Bestu, leigubílasögur úr íslenska boltanum og England er fallið niður í B-deild Þjóðardeildarinnar.

Sep 24, 2022

Ástríðan - 22. umferð - Síðasta yfirferð sumarsins

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Trúðarnir þrír komu saman og fóru yfir síðustu umferðina auk þess sem að umræðan færðist yfir í tímabilið sem heild.Meðal umræðuefnis:- Haukar enda í 9.sæti, ekki 10.- Bikarinn á loft á Höfn- Jarðtenging Sverris fyrir Kormák/Hvöt- Markakóngarnir- Síðasti leikur nokkurra Ástríðugoðsagna- Nýjir þjálfarar óskast fyrir norðan- KFG í 3.sæti þriðja árið í röð, hvers vegna?Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Sep 21, 2022

Davíð Þór Ásbjörnsson - Fimmti heilahristingurinn fyllti mælinn

Davíð Þór Ásbjörnsson þurfti að leggja skóna á hilluna fyrir rúmlega ári síðan, þá 29 ára gamall. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag. Davíð fékk heilahristing í fimmta sinn á ferlinum í leik með Kórdrengjum gegn ÍBV og fann að það væri nóg komið.

Sep 20, 2022

Innkastið - Titillinn á hraðleið í Kópavog og FH í fallsæti

22. umferð Bestu deildarinnar fór fram um helgina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn ræða um leikina. Stjarnan batt enda á taphrinuna og sendi FH í fallsæti, Leiknir vann botnslaginn og það er uppgjafartónn á Akranesi, Íslandsmeistaratitillinn er á hraðleið í Kópavoginn, Kjartan Henry settur út úr hóp hjá KR, KA að gera frábæra hluti, Eyjamenn sogast aftur niður og það var handboltaleikur í Úlfarsárdal. Í þættinum er einnig rætt um leikjadagskrána í tvískiptingunni, Lengjudeildina og landsleikjagluggann.

Sep 19, 2022

Útvarpsþátturinn - Landsliðin, Jamaíka, Besta og enski

Útvarpsþátturinn 17. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Landsliðsverkefnin og hóparnir í brennidepli, U21 landsliðið á leið í umspil og A-landsliðið í mögulegan úrslitaleik í Albaníu. Heimir er kominn til Jamaíku, verið að tvískipta Bestu deildinn og Gunanr Ormslev ræðir um enska boltinn.

Sep 17, 2022

Enski boltinn - Norðrið gegn suðrinu í stjörnuleik

Gummi og Steinke settust niður í dag og tóku upp aukaþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu.Það hefur ekkert verið spilað í ensku úrvalsdeildinni upp á síðkastið út af virðingu við drottninguna. Það má samt deila um það hversu mikil virðing það sé að spila bara ekki og hvort hún hefði viljað það.Í þættinum var aðallega rætt um skemmtilega hugmynd sem Todd Boehly, eigandi Chelsea, henti fram í gær um stjörnuleik í enska boltanum. Gummi og Steinke settu upp sín stjörnulið: Norðrið gegn suðrinu.

Sep 14, 2022

Ástríðan - 21. umferð - Allt klárt í öllum deildum, afsökunarbeiðni og rýnt í gamla spá

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Skytturnar þrjár mættar til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 21.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Víðismenn tapa tveimur í röð á heimavelli- Dalvík og Sindri tryggja sér sæti í 2.deild- Þjálfarinn byrjaði fyrir Kormák/Hvöt- Maggi Matt átti að fá rautt en skoraði svo þrennu- Julio Cesar skoraði fjögur á Reynismenn sem mættu til að tapa- ÍH öruggir annað árið í röð eftir að allir spáðu þeim niðurHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Sep 14, 2022

Heimavöllurinn: Lifandi hliðarlína, lopapeysur og úrslitaleikur hjá topp 2

Þegar ein umferð er eftir af Lengjudeildinni er ljóst hvaða lið fara upp og hver fara niður. María Dögg Jóhannesdóttir og Telma Hjaltalín, fulltrúar Tindastóls og FH, sem hafa þegar tryggt sér sæti í efstu deild að ári mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið. Þær hita líka upp fyrir lokaumferðina en í henni mætast einmitt toppliðin tvö og berjast um sigur í deildinni. Þátturinn er sjálfsögðu í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar sem standa þétt við bakið á umfjöllun um knattspyrnu kvenna.

Sep 13, 2022

Innkastið - Draumaumferð KA, glataðir Valsarar og Stjarnan í frjálsu falli

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkastinu eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. KA nálgast Evrópu, Víkingar á flugi, tíu Leiknismenn unnu glataða Valsara, Gummi Magg með tvö í Eyjum, Stjarnan í frjálsu falli og Skagamenn leiddir til slátrunar í Krikanum. Næsta umferð er skoðuð, vangaveltur um þjálfaramál. Er Gamla bandið að mæta aftur? Sverrir Örn kemur með skýrslu úr Keflavík, við heyrum hljóðið í leikmönnum deildarinnar og í lokin er svo Nökkvi Þeyr Þórisson í viðtali frá Belgíu.

Sep 12, 2022

Útvarpsþátturinn - Bestir í Lengju, fréttir vikunnar og stjóraskipti Chelsea

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. september. Umsjón: Elvar Geir og Sæbjörn Steinke. Hjammi ræðir um frestunina á Englandi, opinberað er lið ársins í Lengjudeildinni, farið yfir fréttir vikunnar og næstu umferð í Bestu deildinni, kvennalandsleikurinn ber á góma, rætt um Evrópufótboltann og Stefán Marteinn skoðar stjóraskiptin óvæntu hjá Chelsea.

Sep 10, 2022

Innkastið - Níu eða tíu fingur og eitt stykki Beershot

S-in þrjú, Sæbjörn Steinke, Sigurður Orri og Sverrir Mar gerðu upp 20. umferðina í Bestu deildinni. Rætt var ítarlega um alla sex leikina og fréttir tengdar liðunum. Umferðin var mjög góð fyrir Breiðablik sem styrkti stöðu sína á toppnum. Næstu fimm lið í deildinni töpuðu öll stigum. Á Akranesi voru lagðir út þrír fjarkar og FH nýtti ekki víti sín. KA er á leið í sjö leikja úrslitakeppni og margt fleira er rætt í þættinum.

Sep 6, 2022

Ástríðan - 20. umferð - Dalvíkingur dæmir hjá Dalvík og Þróttur í Lengjudeildina

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Allir mættir til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 20.umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Víðismenn dottnir úr baráttunni í 3.deild- Tvo leiki í röð dæmir Dalvíkingur leik hjá Dalvík- Meintir fordómar á Höfn- Var Baddi Borgars fat shameaður?- Þróttur R. komnir upp og vel að því komnir- Spennan magnast á botni 3.deildar þar sem fleiri lið eru að dragast niður í baráttunaHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Sep 6, 2022

Enski boltinn - Velkomnir úr draumalandinu og flókið draumalið

Þeir Sæbjörn Steinke og Aksentije Milisic fara yfir sjöttu umferðina í ensku úrvalsdeildinni. Það urðu nokkur ansi athyglisverð úrslit um helgina og mörg vafaatriði sem hægt var að tala um. Man Utd vann sinn fjórða leik í röð þegar liðið lagði topplið Arsenal, Liverpool tapaði stigum í fjórða leiknum á tímabilinu, City náði ekki að leggja Villa og Chelsea var stálheppið að vinna. Brighton heldur svo áfram að heilla og Ivan Toney var maður helgarinnar. Í lok þáttar eru svo valin draumalið skipað leikmönnum deildarinnar. Reglurnar eru þrjár: 11 leikmenn, að hámarki einn úr hverju liði og að hámarki einn af hverju þjóðerni. Þátturinn er í boði White Fox, en það er bara fyrir 18 ára og eldri.

Sep 5, 2022

Útvarpsþátturinn - Gósentíð í íslenska og enska

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. september. Það er allt í gangi í boltanum og nóg að fara yfir við hringborðið. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Orri Freyr rýna í undanúrslitaleikina áhugaverðu i bikarnum sem fram fóru í vikunni. Víkingur og FH munu mætast í úrslitum. Hitað er upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni. Fjallað er um enska boltann, gluggakaupin og Kristján Atli gerir upp Everton - Liverpool. Þá ræðir Guðmundur Aðalsteinn um leið íslenska kvennalandsliðsins á HM.

Sep 3, 2022

Heimavöllurinn: Mætum og klárum dauðafærið!

FH-konur hafa verið á flugi og leika í Bestu deildinni að ári. Valskonur svífa vængjum þöndum og eru á leið til Prag. Eru stelpurnar okkar á leiðinni á HM? Það gæti skýrst á næstu dögum. Fyrrum landsliðskonurnar og legendin, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir, fara yfir allt saman á Heimavellinum. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Sep 1, 2022

Ástríðan - 19. umferð - Hart barist á báðum endum í 3.deild, fáum við fallbaráttu í 2.deild?

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 19.umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis: - Ofsaleg toppbarátta í 3.deild- ÍH og Vængir opnuðu fallbaráttuna- Kári Péturs og Andri Júl að lauma sér í markakónginn- Höttur/huginn er heitasta lið 2.deildar- Maggi Matt með pillu á Badda Borgars sem skipti svo sjálfum sér inná í næsta leik- Dómarar dæma hjá sínum liðumHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Aug 31, 2022

Innkastið - Uppgjör á slóðum séra Friðriks

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp 19. umferðina í Bestu deildinni og ræða helstu fréttir tengdar deildinni. Þátturinn var tekinn upp á Hlíðarenda, strax eftir 1-1 jafntefli Vals og Fram. Völsurum mistókst að henda sér í alvöru Evrópubaráttu, Víkingar unnu KA í leikjum sem var fullur af umdeildum atvikum, Atli Jónasson fékk á sig fjögur gegn Breiðabliki, ÍA elskar að spilar í Keflavík, hundleiðinlegur leikur á Meistaravöllum og ráðgjafinn fjarverandi þegar ÍBV vann Stjörnuna.

Aug 29, 2022

Enski boltinn - Salah pirrar marga, Nallarar missa sig og óvænt verkefni

Gummi og Steinke settust niður í dag og fóru yfir fjórðu umferðina í ensku úrvalsdeildinni í hlaðvarpinu Enski boltinn. Það var margt áhugavert sem átti sér stað í umferðinni sem var um helgina. Man Utd er hægt og rólega að hrökkva í gang, Liverpool svaraði með flugeldasýningu, Brighton er á flugi, Chelsea vann einum færri, Haaland í stuði, Nallarar í skýjunum, Tottenham er vél sem mallar og Gerrard verður fyrst rekinn. Þetta og margt fleira í þætti dagsins. Það var jafnframt boðið upp á óvænt verkefni sem þáttastjórnanda datt í hug rétt áður en farið var í upptöku.

Aug 29, 2022

Útvarpsþátturinn - Besta, Dagur Dan og enski

Útvarpsþátturinn laugardaginn 27. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um Bestu deildina og val á úrvalsliði umferða 10-18 opinberað. Guðmundur Steinarsson ræður um Vaduz í Sambandsdeildini. Dagur Dan Þórhallsson leikmaður Breiðabliks og U21 landsliðsins er gestur og Tryggvi Páll Tryggvason ræðir við Tom um Man Utd og enska boltann.

Aug 27, 2022

Heimavöllurinn: París kallar, bestar í 2/3 og bikartryllingur

Það er þéttsetið á Heimavellinum þessi misserin enda nóg um að vera. Landsliðskonurnar okkar eru að ganga til liðs við stórlið á meginlandinu, landsliðshópurinn er klár fyrir lokasprettinn á leiðinni á HM og bikarúrslitaleikurinn fer fram á laugardag. Þá er einnig nóg um að vera í öllum deildum hérlendis og komið að því að tilkynna um bestu leikmenn í öðrum þriðjungi Bestu deildarinnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og þátturinn er í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Aug 25, 2022

Ástríðan - 17. og 18. umferð í 3. deild - Nú byrjar ballið og megi besta liðið vinna

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar. Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spilaðar voru 17. og 18. umferð í 3. deildinni. Meðal umræðuefnis: - Ofsaleg toppbarátta- ÍH eru að bjarga sér annað árið í röð- KFG að kólna- Brotlentir Vængir- Stigasöfnun ElliðaHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Aug 25, 2022

Enski boltinn - Man Utd fyrir ofan Liverpool, bíddu ha?

Það var farið vel yfir stórleik gærdagsins í hlaðvarpinu um Enska boltann í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke settust niður með litlu flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir þriðju umferðina. Þá var hringt í Atla Má Steinarsson, einn harðasta stuðningsmann Liverpool, og fór hann yfir málin hjá sínu félagi sem hefur farið illa af stað. Þetta eru tæplega 100 mínútur af umræðu um enska boltann, það er ekki hægt að láta þetta fram hjá sér fara.

Aug 23, 2022

Innkastið - Upprisan á botninum og vígsla KA

Átjánda umferð Bestu deildarinnar var vægast sagt tíðindamikil. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Sverrir Mar gera umferðina upp. Öll þrjú neðstu lið deildarinnar unnu, jafnteflin reynast Víkingum dýr, Blikar sýndu fagmennsku í dal draumanna og KA heldur sér á sigurbraut. Tvö bestu lið Lengjudeildarinnar mætast í kvöld og Njarðvíkingar eru komnir upp úr 2. deildinni.

Aug 23, 2022

Ástríðan - 17. og 18. umferð í 2. deild - Njarðvík í Lengjuna og deildin er búin, eða hvað?

Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE, Preppbarsins og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í miðbænum Session Craft Bar.Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 17. og 18. umferð í 2. deildinni. Meðal umræðuefnis: - Njarðvík spiluðu í Valstreyjum og tryggðu sig upp- Ægismönnum fatast flugið- Magni eiga möguleika en samt ekki- Reynismenn fallnir- Þróttur R á leið upp með Hinrik Harðar í fararbroddiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Aug 23, 2022

Útvarpsþátturinn - Læti í Kórnum, enskur stórleikur og Danijel Djuric

Af nægu að taka í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á sínum stað. Farið er yfir íslensku fótboltavikuna og Mjólkurbikarinn; lætin í Kórnum og leikinn stórskemmtilega milli Víkings og KR, auk þess sem næsta umferð Bestu deildarinnar er skoðuð. Kristján Atli Ragnarsson rýnir í komandi stórleik Manchester United og Liverpool sem verður á mánudagskvöldið. Nýjasta stjarna Bestu deildarinnar, Danijel Djuric, er gestur þáttarins en hann fer svakalega líflega af stað í búningi Víkings.

Aug 20, 2022

Ungstirnin - Transfer Special

Í þessum þætti er fjallað um þau ungstirni sem hafa verið að byrja vel í ensku úrvalsdeildinni, ungstirnaliðið FC Nordsjælland situr á toppi dönsku úrvaldsdeildarinnar, ungstirni á ferð og flugi um alla Evrópu að skipta um félög, Football Manager og svo margt margt fleira. Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.

Aug 19, 2022