
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 19 of 57

Enski boltinn - Hrein norðlenska Vol. 2
Þeir eru mættir aftur! Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn hita upp með Sæbirni Steinke fyrir komandi tímabil hjá Manchester United. Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um næstu helgi og fer fyrsti leikur Man Utd fram næsta mánudagskvöld. Rætt var um fyrsta tímabil hjá United undir stjórn Ten Hag, nýju leikmennina, snert á flestum leikmönnum og ýmsar vangaveltur. Í lok þáttar var aðeins farið yfir komandi verkefni hjá KA en liðið mætir Club Brugge í Sambandsdeildinni á fimmutdagskvöld.

Útvarpsþátturinn - Á ferð og flugi um verslunarmannahelgina
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í verslunarmannahelgargírnum laugardaginn 5. ágúst. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas taka púlsinn á fólki um allt land og erlendis líka, skoða umferðina með Palla og ræða um fótbolta. Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin, Fótbolti.net bikarinn, enski boltinn og fleira. Arnar Laufdal gefur skýrslu úr brekkunni. Hvaða leikmenn eru í Eyjum? Unnar Ari Hansson, fyrirliði KFA, er á línunni frá Akureyri og Birgir Baldvinsson, leikmaður KA, í beinni frá Belfast.

Enski boltinn - Gunni Birgis og Jón Kári ganga um í draumalandi Arteta
Við á Fótbolti.net höldum áfram með upphitun okkar fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst um þarnæstu helgi. Í dag er komið að því að ræða Arsenal og fengum við því tvo af þeirra ástríðufyllstu stuðningsmönnum til þess að ræða málin, þá Gunnar Birgisson og Jón Kára Eldon. Farið er yfir síðasta tímabil þar sem liðið endaði í öðru sæti, leikmannagluggann áhugaverða í sumar og væntingarnar fyrir tímabilið sem er framundan er. Það er óhætt að mæla með þessu spjalli fyrir Arsenal stuðningsmenn, sem og aðra.

Innkastið - Valur rústaði KR aftur og Hemmi fer stoltur á Þjóðhátíð
Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, eru saman í Innkasti vikunnar. Valur er hefur unnið KR samanlagt 9-0 í tveimur leikjum á þessu tímabili, FH fékk þrjá nýja leikmenn, þjálfari ÍBV var stoltur þrátt fyrir stórt tap og Breiðablik missir af titilbaráttunni. Þá var rætt um þjálfaraleitir hjá Fram og Grindavík, og aðeins um síðustu umferð í Lengjudeildinni.

Ástríðan 14. umferð - KFA eina taplausa liðið og Eldur í Húnaþingi
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust til þess að ræða það sem fram fór í 14. umferð. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.

Enski boltinn - Aldrei venjuleg vika hjá Tottenham
Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað en hún hefst ekki um næstu helgi, heldur þar næstu. Við á Fótbolti.net erum byrjuð að hita upp fyrir tímabilið sem er framundan. Spáin hófst fyrr í dag en við ætlum líka að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í Thule stúdíóið til að fara yfir málin. Við byrjum á Tottenham en Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, lita flugvélin, komu við á skrifstofunni í dag til þess að ræða um Spurs. Síðasta tímabil var ansi litríkt hjá Tottenham og það verður fróðlegt að fylgjast með liðinu á næsta tímabili. Það eru góðar líkur á því að Harry Kane sé búinn að spila sinn síðasta leik og það eru alls konar fréttir í gangi tengdar félaginu.

Útvarpsþátturinn - Lausir úr banni og brottrekstur í Úlfarsárdal
Útvarpsþátturinn 29. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Bestu deildina og Davíð Þór Viðarsson er á línunni en búið er að aflétta félagaskiptabanni FH. Stefán Pálsson ræðir um þjálfaraskiptin hjá Fram og Kristján Atli ræðir um Liverpool gluggann og nýja tíma í Sádi-Arabíu.

Hlynur Atli: Þungbært, maður vill ekki upplifa svona
Fótbolti.net ræddi við Hlyn Atla Magnússon, fyrirliða Fram, og spurði hann út í tíðindi gærdagsins þegar tilkynnt var að Jón Sveinsson hefði verið látinn fara sem þjálfari liðsins. Hlynur ræddi tíðindin og gengi Fram í síðustu leikjum. Tekur maður það mikið inn á sig að þjálfari sé látinn fara? Fram er í næstneðsta sæti Bestu deildarinnar eftir sautján spilaða leiki. Næsti leikur Fram er eftir tæpar tvær vikur gegn Fylki sem er í 10. sæti með tveggja stiga forskot á Fram. Hlynur var staddur á Rey Cup þegar fréttamaður náði tali af honum sem útskýrir umhverfishljóðin sem gætu heyrst í bakgrunninum.

Tiltalið: Sindri Kristinn Ólafsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er markvörður FH í Bestu deild karla Sindri Kristinn Ólafsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Innkastið - Dýrkeypt mistök og sjóðheitt sæti
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkasti vikunnar. Valur horfði á FCK spila gegn Lyngby um helgina og fylgdi liðinu svo til landsins þar sem dönsku meistararnir unnu Breiðablik 2-0 á Kópavogsvelli. Sá leikur er gerður upp, 16. umferð Bestu deildarinnar að auki og þá hitnaði þjálfarasæti Grindavíkur í Lengjudeildinni umtalsvert í kvöld.

Heimavöllurinn: Landi og þjóð til sóma í Belgíu
Stelpurnar okkar í U19 voru landi og þjóð til sóma í lokakeppni EM en þær eru því miður úr leik. HM hinum megin á hnettinum er farið af stað og ýmis áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós. Þá er Besta deildin farin að banka á nýjan leik og framundan gríðarlega spenna. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin.

Ástríðan 12. og 13. umferð - Sérstakur þáttur, afsakið fríið
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu aftur eftir frí og fóru yfir liðna leiki.Allt í boði Bola Léttöl, Jako Sport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.

Enski boltinn - Félagaskipti og undirbúningstímabilið
Það eru rétt tæplega þrjár vikur í að enska úrvalsdeildin fari af stað á nýjan leik. Það er margt búið að gerast í sumar á félagaskiptamarkaðnum. Því ákváðu Gummi og Steinke að setjast niður í Thule hljóðverinu og fara yfir það sem hefur skeð síðustu vikurnar. Declan Rice er dýrasti leikmaður sem enskt félag hefur keypt, Mason Mount er farinn til Manchester United frá Chelsea og Liverpoool keypti argentínskan heimsmeistara. Þetta og margt fleira rætt í þætti dagsins.

Útvarpsþátturinn - Evrópudraumar deyja og lifa, stuð í Lyngby og nýjasti bikarinn
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna, Evrópuleikina, Bestu deildina og Lengjudeildina. Valur Gunnars í beinni frá Kóngsins Lyngby og Baldvin Borgars gerir upp leiki Fótbolti.net bikarsins.

Heimavöllurinn: Áfram Ísland og HM að hefjast
HM hefst í fyrramálið og Adda Baldursdóttir mætir á Heimavöllinn og hitar upp fyrir mótið. Þá er auðvitað einnig rætt um vináttuleikina tvo sem landsliðið okkar var að spila sem og leik U19 ára landsliðsins okkar í lokakeppni EM. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Innkastið - Setið í súpunni, Parken bíður og bestir í Lengjudeildinni
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkasti vikunnar í Thule stúdíóinu. Þorsteinn Haukur kemur með skýrslu úr Vesturbænum. Evrópuleikirnir, 15. umferðin í Bestu og úrvalslið tímabilsins til þessa í Lengjudeildinni. Parken bíður eftir Blikum, KR-ingar sátu í súpunni en unnu samt mikilvægan sigur gegn FH, Kjartan Henry vildi ekki viðurkenningu, gæðaleysi í Árbænum og Eyjum, Stjarnan var miklu betri en Valur, heil umferð í Lengjudeildinni, þjálfaraskipti í Njarðvík og læti í göngunum á Seltjarnarnesi.

Skagamenn gríðarlega stoltir af Hákoni - Hvað verður um peninginn?
Formaður ÍA, Eggert Hjelm Herbertsson, ræddi við Fótbolta.net í dag. Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í gær seldur frá FC Kaupmannahöfn til Lille í Frakklandi. Fjallað hefur verið um það í fjölmiðlum að ÍA fái um 20% af söluverðinu og að söluverðið hafi verið 17 milljónir evra þegar allar árangurstengdar greiðslur eru reiknaðar með. Ef það er rétt kaupverð er Hákon bæði næstdýrasti leikmaður sem FCK hefur selt og næstdýrasti íslenski leikmaðurinn í sögunni. Ef það er rétt á ÍA von á tæplega hálfum milljarði eftir söluna á Hákoni. Hvað ætlar ÍA að gera við peninginn? Eggert ræddi um söluna, hvað ÍA vill gera við þær upphæðir sem félagið fær, skrefið hjá Hákoni og ýmislegt annað í þessu tæplega stundarfjórðungs spjalli.

Leiðin á Laugardalsvöll - Spjaldaregn í kortunum
Á miðvikudag verða 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda. Í þættinum er hitað upp fyrir leikina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Arnar Laufdal spá í spilin í Thule stúdíónu og þá er Brynjar Kristmundsson, þjálfari Víkings Ólafsvík, á línunni en Ólsarar tróna á toppi 2. deildarinnar.

Tiltalið: Eggert Aron Guðmundsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Stjörnunnar og U-19 landsliðs Íslands, Eggert Aron Guðmundsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Útvarpsþátturinn - Spennuleikir, heit sæti, slúður og félagaskiptabann
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 15. júlí. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars sitja við hringborðið og gera upp fótboltavikuna. Íslensk lið í Evrópu, Besta deildin, Lengjudeildin og U19 á EM. Fréttir vikunnar og nóg af slúðri nú þegar félagaskiptaglugginn fer að opna. Einn með öllu.

Heimavöllurinn: Sólstingur og sumarfrí?
13. umferð Bestu deildarinnar er lokið og við tekur pása frá deildinni. Knattspyrnuáhugafólk þarf þó ekki að örvænta því framundan eru meðal annars spennandi landsliðsverkefni. Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir málin í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Ástríðan 11. umferð - Lið fyrri umferðar og stóru spurningarnar
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir 11. umferð, völdu lið fyrri umferðar og svöruðu stóru spurningunum í 2. og 3. deild karla.Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Jakosport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.

Innkastið - Dýfuæði og hrikaleg mörk að fá á sig
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke gera upp leiki helgarinnar og skoða hvað er framundan í vikunni. Með þeim er Runólfur Trausti, fréttamaður á Vísi og markvarðaþjálfari yngri flokka FC Kaupmannahafnar. Farið er yfir Bestu deildina, Lengjudeildina og Evrópuleikina. Þá er hringt í Guðmund Aðalstein Ásgeirsson, fréttamann Fótbolta.net, sem er á Möltu að fylgast með íslenska U19 liðinu á EM.

Útvarpsþátturinn - Boltavikan, bensín fyrir KA og gluggi Man Utd
Fótboltavikan er gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir leiki síðustu daga með Sverri Erni Einarssyni fréttamanni .Net. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er á línunni en Akureyrarliðið vann sigur gegn Breiðabliki í rosalegum undanúrslitaleik í bikarnum og er að fara í Evrópuverkefni. Skoðuð eru stærstu tíðindi félagaskiptagluggans í Evrópu og Tryggvi Páll Tryggvason fréttamaður skoðar stöðu mála hjá Manchester United.

Ástríðan 10. umferð - Írskir dagar og Ólafsvaka
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu og fóru yfir leikinn sem þeir mættust í ásamt öllum hinum leikjunum í 2. og 3.deild.Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Unbroken, JakoSport og ICE nikótínlausra púða.

Tiltalið: Arnór Ingvi Traustason
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður IFK Norrköping og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Heimavöllurinn: Davíð, Golíat og stöppuð stúka
Eftir dramatíska undanúrslitaleiki er ljóst að Breiðablik og Víkingur munu leika til úrslita í Mjólkurbikarnum þetta árið. Þá eru óvæntar fréttir úr Lengjudeildinni og toppbaráttan í 2. deild rosaleg. Þær Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir málin í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Útvarpsþátturinn - Tíðindamikil vika í íslenska boltanum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum. Leikir vikunnar í Bestu deildinni og Lengjudeildinni eru gerðir upp og rætt um Evrópuverkefni Breiðabliks. Stefán Ingi er búinn að kveðja Bestu deildina en Aron Elís Þrándarson er er mættur.

U19 á EM - Tveir lykilmenn í spjalli áður en haldið er til Möltu
Ísland er ein af átta þjóðum sem tekur þátt á Evrópumóti U19 landsliða karla í sumar. Það styttist heldur betur í mótið, sem fer fram á Möltu. Strákarnir halda út á föstudaginn og leika sinn fyrsta leik - gegn Spáni - næsta þriðjudag. Fyrst það er svona stutt í mótið þá fengum við Hlyn Frey Karlsson, leikmann Vals, og Loga Hrafn Róbertsson, leikmann FH, í spjall um vegferð liðsins að lokakeppni Evrópumótsins. Það styttist í stóru stundina og spennan er farin að magnast.

Heimavöllurinn: Magga Magg og U19 á EM
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 ára landslið Íslands, kíkti við á Heimavellinum og tók gott spjall um EM ævintýrið sem er framundan. Margrét tilkynnti leikmannahóp U19 sl. föstudag og það styttist heldur betur í mótið sem fer fram í Belgíu dagana 18.-30. júlí nk.

Ástríðan 9. umferð - Suðurnesjabær í blóma og KFA enn taplaust
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva komu saman eftir langa fjarveru og fóru yfir alla leikina í 9.umferðinni.Allt í boði Bola Léttöl, Unbroken, JakoSport og Ice Nikótínlausra púða.

Heimavöllurinn: Stutt á milli í spennandi 2. deild og Blikar á toppinn í Bestu
2. deild kvenna hefur farið skemmtilega af stað og það er ansi stutt á milli liðanna sem ætla sér upp um deild. Þeir Arnar Páll Garðarsson og Óskar Smári Haraldsson sem hafa báðir þjálfað í deildinni mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin með Mist Rúnarsdóttur - Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Innkastið - Valur eini keppinautur Víkings um titilinn
Innkastið á mánudegi eftir að 12. umferð Bestu deildarinnar kláraðist um helgina. Farið yfir leikina og Lengjudeildin einnig skoðuð. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Thule stúdíóinu og Hafliði Breiðfjörð kemur með ferðasögu frá Vestmannaeyjum þar sem hann sá Val vinna 3-0 sigur um helgina. KR vann KA og Víkingur er enn í góðum málum á toppnum eftir sigur gegn Stjörnunni.

Tiltalið: Alex Bergmann Arnarsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Njarðvíkur, Alex Bergmann Arnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Útvarpsþátturinn - Hörður Björgvin, Besta deildin og Burghausen
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 24. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hörður Björgvin Magnússon landsliðsmaður og leikmaður Panathinaikos er gestur þáttarins. Svo er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar í íslenska fótboltanum. Stefán Marteinn kemur með skýrslu úr Kórnum þar sem HK vann Breiðablik öðru sinni og Sverrir Örn segir frá leik Keflavíkur og Fylkis. Þá er Hannes Þ. Sigurðsson, þjálfari þýska liðsins Wacker Burghausen, á línunni og segir frá lífinu í Bæjaralandi.

Heimavöllurinn: Uppgjör á fyrri hálfleik Bestu
Níundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þar með fyrri helmingi fyrri hluta mótsins. Í nýjasta þætti Heimavallarins er fjörið til þessa gert upp - í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir.

Ástríðan X Innkastið: 8. umferð og Fótbolti.net bikarinn
Ástríðan og Innkastið sameinuðu krafta sína í dag til þess að blanda saman umfjöllun um 8. umferð í ástríðudeildinum og fotbolti.net bikarinn sem fór fram í vikunni. Sverrir Mar, Baldvin Már, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke á hringborðinu.Allt í samstarfi við Bola léttöl, Unbroken, Jakosport og ICE nikotínlausra púða.

Innkastið - Lélegur CR7 getur samt ráðið úrslitum
Landsliðs-Innkast eftir óþolandi tap gegn Portúgal á Laugardalsvelli. Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið í lok leiksins en Ísland hafði þá misst Willum Þór Willumsson af velli með rautt spjald. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og nýjasti besti vinur Ronaldo, Sæbjörn Steinke, gerðu upp leikinn og rýndu í stöðuna.

Tiltalið: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er Þýskalandsmeistarinn og landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Innkastið - Færin fóru forgörðum og EM vonin fjarlægist
Ísland tapaði fyrir Slóvakíu á Laugardalsvelli, slök færanýting varð Íslandi hvað helst að falli í leiknum og draumurinn um að komast á EM í Þýskalandi er orðinn afskaplega fjarlægur. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gerðu leikinn upp í Innkastinu og rýndu í framhaldið.

Útvarpsþátturinn - Leikdagur í Laugardal
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á þjóðhátíðardeginum, 17. júní. Elvar Geir og Benedikt Bóas hita upp fyrir landsleik Íslands og Slóvakíu með góðum gestum. Tómas Þór er í beinni frá Spáni. Svenni, Friðgeir og Joey Drummer úr Tólfunni kíkja í heimsókn og einnig Palli vallarþulur, Röddin sjálf. Þó landsliðið eigi sviðið gefst einnig tími til að renna yfir leiki vikunnar í Lengjudeildinni og opinbera val á besta leikmanni Bestu deildarinnar hingað til.

Leiðin á Laugardalsvöll - KFG verkefnið og Mike í blíðunni
Á mánudag fer Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, af stað. Keppnin er haldin í fyrsta skipti en lið í 2., 3. og 4. deild taka þátt. 31 félag er skráð í keppnina í ár, en úrslitaleikur hennar fer fram á Laugardalsvelli. Fjallað verður vel um keppnina á Fótbolta.net og er hluti af því sérstakt hlaðvarp í kringum keppnina, en þetta er fyrsti þátturinn. Í þættinum ræddu Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke við Arnar Laufdal, leikmann Augnabliks og fréttaritara á Fótbolta.net, um fyrstu umferðina í keppninni. Einnig hringdi Gummi í Kristján Másson, þjálfara KFG, og Mikael Nikulásson, þjálfara KFA, og fékk að heyra þeirra sýn á sumrinu hingað til. Þessi lið eru í toppbaráttunni í 2. deild og mætast í Garðabænum á morgun.

Enski boltinn - Annað þrennulið sögunnar
Manchester City tryggði sér þrennuna síðastliðið laugardagskvöld með því að leggja Inter frá Ítalíu að velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. City er núna handhafi ensku úrvalsdeildarinnar, enska bikarsins og Meistaradeildar Evrópu. Magnús Ingvason og Tómas Hallgrímsson, stuðningsmenn Manchester City, komu við í Thule stúdíóinu í dag og fóru yfir úrslitaleikinn gegn Inter og tímabilið í heild sinni. City er annað enska liðið í sögunni sem vinnur þrennuna en nágrannar þeirra í Manchester United unnu hans fyrst árið 1999. Þetta er lokaþáttur tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu en við stefnum á að byrja aftur stuttu áður en næsta tímabil hefst.

Ástríðan 7. umferð - 30 mínútur um bitið og allt gert upp
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust til þess að fara yfir 7. umferð í 2. og 3. deild karla í fótbolta. Aðal mál þáttarins var bitið í Akraneshöllinni og fór mikill tími í það enda Sverrir Mar inná vellinum þegar það átti sér stað. Þjálfara og fyrirliða Kormáks/Hvatar var boðið að segja sína hlið í þættinum en báðust undan því.

Innkastið - Fær eitthvað stöðvað Víking?
Síðasta umferðin fyrir landsleikjaglugga er að baki, ellefu umferðir búnar og allir hafa prófað að spila gegn öllum. Það er því boðið upp á heljarinnar hringborð að þessu sinni. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Sverrir Mar og Valur Gunnars fara yfir 11. umferðina í Thule stúdíónu og opinbera val á úrvalsliði Bestu deildarinnar hingað til. Lengjudeildarhornið, landsliðið, bit í 3. deildinni og Fótbolti.net bikarinn koma einnig við sögu.

Tiltalið: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og er Íslands-og Bikarmeistari með þeim, Arna Sif Ásgrímsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Útvarpsþátturinn - Age Hareide í hljóðveri
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. júní. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar; landsliðsvalið, Lengjudeildina, Mjólkurbikarinn og Bestu deildina. Í seinni hlutanum er Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands í ítarlegu viðtali. Viðtalið við Hareide hefst á 54:30

Enski boltinn - Úrslitastund með litla og stóra
Það var líf og fjör á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem litla flugvélin Ingimar Helgi Finnsson og fagmaðurinn Tómas Steindórsson mættu í heimsókn til að fara yfir stöðuna. Þeir mynda teymið 'litli og stóri' en þeir eru með útvarpsþátt saman á X-inu 977 á föstudögum milli 9 og 12. Tómas er stuðningsmaður West Ham sem var að tryggja sér sigur í Sambandsdeildinni og Ingimar er stuðningsmaður Tottenham sem var að ráða nýjan stjóra, Ange Postecoglou. Í þættinum var farið yfir úrslitaleikjatörnina sem er í gangi núna; sigur West Ham, úrslitaleik FA-bikarsins og úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem er á morgun. Einnig var rætt um stjóraleit Tottenham og sitthvað fleira.

Ástríðan 6. umferð - Clutch genes og dramatík
Sverrir og Gylfi settust fyrir framan míkrafóna og ræddu umferð vikunnar þar sem 12 leikir fóru fram á miðvikudagskvöldið. Sex umferðum lokið, mikið um dramatík og margt að ræða.Ástríðan er í boði Bola léttöl, Unbroken, Ice nikótínlausra púða og Jako Sport.

Heimavöllurinn: Það þarf að þora til að skora
Sjöundu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka. Vissulega ekki fjörugasta umferð mótsins til þessa en engu síður nóg að ræða. Elíza Gígja Ómarsdóttir og Jón Stefán Jónsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.