PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,831 episodes — Page 20 of 57

Sævar Atli: Mesta afrek á mínum fótboltaferli

„Bara gjörsamlega sturlað," sagði Sævar Atli Magnússon um endann á tímabilinu hjá Lyngby. Liðið hélt sér uppi með frábærri endurkomu, voru á tímapunkti sextán stigum frá öruggu sæti en þegar lokaflautið gall í lokaumferðinni var liðið í öruggu sæti. Liðið hafði verið í fallsæti síðan í ágúst en að lokum var það markatalan sem gerði gæfumuninn því Horsens endaði með jafnmörg stig en verri markatölu og féll. Sæbjörn Steinke fór yfir tímabilið hjá Lyngby með Sævari, fagnaðarlætin, trúna á verkefnið, efasemdirnar og ræddi einnig sérstaklega um íslensku liðsfélaga sína og þjálfarann Frey Alexandersson. Sævar segir frá áfalli sem hann varð fyrir í vetur, erfiða tíma sem hann upplifði og stoltið sem fylgdi því að koma til baka. Hann er núna hluti af íslenska landsliðinu sem býr sig undir leiki gegn Slóvakíu og Portúgal á Laugardalsvelli.

Jun 6, 2023

Ástríðan 5. umferð - Árbær stoppaði Víði og Þróttur vann toppslaginn

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva eru orðnir vinir aftur og mættu saman í heimahaga á .net til þess að fara yfir 5. umferð í deildunum tveimur.Allt í boði Unbroken, Jako Sport, ICE nikótínlausra púða og Bola léttöl.

Jun 5, 2023

Leið næstum yfir Freysa - „Ótrúlega stoltur að hafa staðið með sjálfum mér"

Lyngby hélt sér uppi í Superliga á laugardaginn með því að fá stig gegn Horsens í lokaumferðinni. Stigið dugði þar sem Álaborg tapaði gegn Silkeborg. Niðurstaðan varð sú að Lyngby og Horsens enduðu með jafnmörg stig en Lyngby var með betri markatölu. Álaborg var svo með stigi minna. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og þeir Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Birgir Finnsson og Sævar Atli Magnússon eru leikmenn liðsins. Lyngby var í neðsta sæti deildarinnar frá því í ágúst og þar til Silkeborg komst yfir gegn Álaborg á laugardag. Á tímapunkti var Lyngby sextán stigum frá öruggu sæti en þjálfaranum og liðinu tókst kraftaverkið og Lyngby verður áfram í deild þeirra bestu í Danmörku. Sæbjörn Steinke ræddi við Frey í dag og fór yfir lokaflautið, afrekið, Silkeborg, trúna, íslensku leikmennina, þjálfarastarfið og álagið sem því fylgir og ýmislegt fleira.

Jun 5, 2023

Tiltalið: Guðjón Pétur Lýðsson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Lengjudeildarliðs Grindavíkur Guðjón Pétur Lýðsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Jun 5, 2023

Stefán Teitur - Reyksprengjum kastað og stemningin þung

Stefán Teitur Þórðarson var í stúkunni þegar Álaborg féll í fyrsta skipti úr dönsku Superliga í gær. Silkeborg, lið Stefáns Teits, vann leikinn 0-1 sem varð til þess að Álaborg endaði í neðsta sæti deildarinnar. Á sama tíma gerði Lyngby markalaust jafntefli við Horsens og dugði það stig til þess að Lyngby hélt sæti sínu í deildinni. Stefán var fjarri góðu gamni í leiknum vegna meiðsla og var því ekki á grasinu á meðan leik stóð. Eftir að leik lauk fór hann í klefann til liðsfélaga sinna og var þeim ráðlagt að vera þar lengur en venjulega. Það var vegna óánægju stuðningsmanna Álaborgar sem voru mjög svo svekktir með niðurstöðu tímabilsins. Ósáttir stuðningsmenn lokuðu leiðinni út af vellinum og þurftu leikmenn Silkeborg að fara krókaleið til að komast í sína rútu. Mikið var fjallað um málið í dönskum miðlum í gær og greint frá því að lögregla hefði þurft að grípa inn í. Sæbjörn Steinke ræddi við Stefán sem fór yfir leikinn í gær og atburðina. Hann fór einnig yfir tímabilið í heild hjá Silkeborg, sína persónulega frammistöðu, meiðslin og Evrópukeppnina þar sem Silkeborg vakti verðskuldaða athygli.

Jun 4, 2023

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og toppslagurinn þar sem allt sauð upp úr

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í boltanum. Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks er gestur eftir þennan rosalega toppslag Breiðabliks og Víkings sem endaði á óhemju dramatískan hátt. Þá mætir Sæbjörn Steinke og farið er yfir aðra leiki, bæði í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.

Jun 3, 2023

Innkastið - Lögregluvarðstjórinn og margt býr í þokunni

Innkastið í 10. umferð Bestu deildarinnar er með öðruvísi sniði. Í fyrri hluta þáttarins er talað við einn besta dómara deildarinnar, Pétur Guðmundsson lögregluvarðstjóra. Rætt er um líf og störf dómara Bestu deildarinnar, framkomuna gagnvart þeim og fleira. Seinni hlutinn hefst á 43:30 en þar skoða Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn leiki í Bestu deildinni og Lengjudeildinni.

Jun 2, 2023

Heimavöllurinn: Línudans, eldræður og skjálfti á Suðurlandi

Sjöttu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og enn fáum við óvænt úrslit og ýmislegt að ræða. Þau Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Jun 2, 2023

Ástríðan 4. umferð - Víðir með fullt hús og KF enn án stiga

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu til sín góðan gest í Halla Óla sem kom og fór yfir 4. umferð í 2. og 3. deild með þeim.Ástríðan er í boði Bola léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.

May 30, 2023

Innkastið - Veðravíti og Víkingstap

Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Dauðafæri fór forgörðum hjá Breiðabliki, Tryggvi Hrafn sá til þess að Víkingur tapaði sínum fyrsta leik, Akureyringum létt eftir sigur gegn Fram, Fylkismenn safna stigum á meðan Eyjamenn eru í frjálsu falli, KR vann heimasigur og FH vann HK í stórskemmtilegum leik.

May 29, 2023

Enski boltinn - Verðlaun veitt eftir að veislan kláraðist

Ensku úrvalsdeildinni 2022/23 er lokið. Því ákváðu Gummi og Steinke að koma sér vel fyrir í Thule hljóðverinu í dag og gera upp skemmtilegt tímabil. Með þeim í dag er Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur og stuðningsmaður Newcastle. Farið var yfir lokaumferðina og verðlaun veitt fyrir tímabilið. Meðal annars var lið ársins valið, leikmaður ársins, ummæli ársins og margt fleira. Þá var farið létt yfir úrslitaleik umspilsins í Championship-deildinni og ótrúlega lokaumferð í Þýskalandi.

May 29, 2023

Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.

May 29, 2023

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og enska hringborðið

Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Kristján Atli. Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um Bestu deildina og Lengjudeildina. Í seinni hlutanum er enska hringborðið dregið fram, úrvalsdeildin gerð upp og hitað upp fyrir fallbaráttuna.

May 27, 2023

Enski boltinn - Hemúllinn fer yfir ruglið og upprisuna hjá Coventry

Coventry City, líkt og Luton Town, er einum leik frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Gummi og Steinke fengu Arnar Sæberg Jónsson, sem sumir þekkja sem Hemúlinn, í spjall um Coventry í dag. Hann hefur lengi verið stuðningsmaður liðsins. Í þættinum ræðir hann um það hvernig áhugi sinn á Coventry kviknaði og sorglega tíma hjá félaginu síðustu árin. Þetta hefur verið skrautlegt lengi vel en núna er sólin farin að skína. Á morgun gæti liðið svo tryggt sér sæti í deild þeirra bestu, en Arnar verður auðvitað á leiknum gegn Luton.

May 26, 2023

Enski boltinn - Stefán Páls fer yfir ævintýri Luton Town

Það eru tíu ár síðan Luton Town lék í ensku fimmtu deildinni, en á laugardaginn getur liðið tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Gummi og Steinke fengu sagnfræðinginn Stefán Pálsson til að ræða Luton í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Stefán hefur verið stuðningsmaður Luton í að verða 40 ár. Þetta er mikil öskubuskusaga en liðið frá flugvallarborginni gæti leikið í deild þeirra bestu á næsta tímabili ef liðið leggur Coventry að velli á laugardaginn. Hvað hefur valdið þessum mikla uppgangi? Við fengum Stefán til að segja okkur frá því.

May 23, 2023

Innkastið - Yfirlýsingagleði og vonbrigði norðan heiða

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Lengjudeildin er einnig skoðuð en þar er dómgæslan áberandi í umræðunni. Víkingar áfram með fullt hús, menn ráða ekki við Gísla Eyjólfs, Valsmönnum tókst ekki að skora gegn Keflavík, yfirlýsingagleðin mikla í Hafnarfirðinum, laskað lið FH vann mikilvægan sigur og fleira.

May 23, 2023

Ástríðan - 3. umferð - Vesen á mörgum stöðum og nokkrar viðvaranir gefnar út

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu á heimahaga, í .net stúdíóið, og fóru yfir 3.umferð í ástríðudeildunum. Félagarnir voru mjög ósammála um margt, báðir fóru í fýlu en samt vinir að lokum.Ástríðan er í samstarfi við Jako Sport, Bola léttöl, Unbroken og ICE nikotínlausa púða.

May 23, 2023

Tiltalið: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðabliks og landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

May 22, 2023

Útvarpsþátturinn - Fyrirliði Íslands

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fréttir vikunnar, bikarleikina og næstu umferð Bestu deildarinnar skoðuð. Gestur þáttarins er Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði. Rætt er við hann um lífið í Katar, landsliðið og fleira.

May 20, 2023

Enski boltinn - Þjálfaraaugað sá fegurðina í sigri City

Gummi og Steinke komu sér vel fyrir Thule stúdíóinu til þess aðallega að ræða leik Manchester City og Real Madrid í Meistaradeildinni. Frammistaðan hjá City í leiknum var hreint út sagt mögnuð. Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, var á línunni og fór yfir leikinn frá sjónarhorni þjálfarans. Pep Guardiola er búinn að smíða magnað fótboltalið, það verður að segjast. Þá ræddu Gummi og Steinke einnig undanúrslitin í öðrum Evrópukeppnum og fóru yfir komandi umferð í ensku úrvalsdeildinni. Einnig var farið yfir nokkrar fréttir. Gleðilega helgi!

May 19, 2023

Tiltalið: Höskuldur Gunnlaugsson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

May 18, 2023

Heimavöllurinn: Stuð, stemmning og rafmagnaður Húsvíkingur

Fjórðu umferð fjörugrar Bestu deildar var að ljúka og þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir hentu sér beint í upptöku á Heimavellinum ásamt Mist Rúnarsdóttur eftir að leikir kvöldsins voru flautaðir af.

May 16, 2023

Enski boltinn - Blessun í dulargervi

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er búin þó að staðfest sviginn sé ekki mættur. Gummi, Steinke og Hlynur Valsson fóru yfir leiki helgarinnar í Enski boltinn hlaðvarpinu. Arsenal tapaði stórt gegn Brighton á heimavelli um helgina á meðan Manchester City fór illa með Everton. City hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og eru að sanna sig sem eitt besta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Á meðan er Brighton eitt skemmtilegasta lið deildarinnar. Kannski var það blessun í dulargervi fyrir félagið að Graham Potter tók við Chelsea því Roberto De Zerbi hefur lyft liðinu upp á nýtt plan. Rætt var um leiki helgarinnar og ýmislegt annað í hlaðvarpinu. Meðal annars var rætt um þær fréttir að Mauricio Pochettino sé að taka við Chelsea og að Julian Nagelsmann sé ekki að taka við Tottenham.

May 16, 2023

Ástríðan - 2. umferð - Jafnt í Vogunum og Augnablik sterkir

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fara yfir 2. umferð í ástríðudeildunum.Allt saman í boði Bola, Jakosport og Unbroken.

May 16, 2023

Tiltalið: Guðmundur Magnússon

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var Guðmundur Magnússon leikmaður Fram og jafnmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2022. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

May 15, 2023

Innkastið - KR á botninum og hiti í Hamingjunni

Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Víkingar áfram með fullt hús, Kjartan Henry stálheppinn, Fylkismenn með gríðarlega mikilvægan sigur, Eiður Aron missti hausinn, útlitið dökkt hjá Keflavík, Valur lék sér að KA, draumabyrjun Jökuls og Lengjudeildarhornið.

May 14, 2023

Útvarpsþátturinn - Það tjáir að deila við dómarann

Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir málin. Lengjudeildin er til umfjöllunar og umtalað atvik þegar dómari dæmdi vítaspyrnu en hætti við eftir mótmæli. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og rætt um þjálfaraskiptin í Garðabænum. Þá er Adam Ægir Pálsson á línunni.

May 13, 2023

Jökull Elísabetarson: Á erfitt með að dæma hver á að taka ábyrgðina

Ágúst Gylfason var í gær látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar, aðstoðarmaður hans, Jökull Elísabetarson, var á sama tilkynntur sem aðalþjálfari. Ágúst fékk Jökul með sér í Stjörnuna þegar hann sjálfur var ráðinn til félagsins eftir tímabilið 2021. Jökull ræddi um breytinguna í viðtali í dag. Hvað hefur vantað upp á hjá Stjörnunni? Hversu miklu hefur Jökull fengið að ráða til þessa?

May 11, 2023

Tiltalið: Jasmín Erla Ingadóttir

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður Stjörnunnar úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

May 11, 2023

Heimavöllurinn: 5 spor, olnbogar og Ziemer screamer

Þriðju umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða á Heimavellinum. Orka Náttúrunnar og Dominos bjóða upp á þáttinn en gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þeir Jón Stefán Jónsson og Stefán Marteinn Ólafsson. Þáttastýra er Mist Rúnarsdóttir.

May 11, 2023

Innkastið - Haltrandi í humátt

Elvar, Gummi og Steinke í Innkastinu eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Nóg að ræða. Draumurinn um fjögurra liða titilbaráttu, Óskar Hrafn ósáttur við spilamennskuna, dómarinn bað Eyjamenn afsökunar, Valsmenn vængjum þöndum, staða Rúnars Kristins, Maradona mark Ásgeirs, Soft Stjörnumenn, Framarar mættir á ballið, Keflavík gaf FH leik og í Lengjudeildarhorninu förum við í Bogann.

May 9, 2023

Ástríðan - 1. umferð - Augnablik og Reynir unnu toppslagi, KFA með statement

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir fyrstu umferðina í 2.- og 3.deild karla í fótbolta.Ástríðan er í boði Bola, Jakosport og Unbroken.

May 9, 2023

Enski boltinn - Allt í einu bullandi pressa frá Liverpool

Gummi og Steinke fengu góðan gest í Enska boltann þennan mánudaginn því fjölmiðlamaðurinn Atli Már Steinarsson ákvað að kíkja í heimsókn. Atli er mikill Liverpool-maður en hans lið er á mikilli siglingu þessa stundina. Liverpool er búið að vinna sex leiki í röð og er komið í bullandi Meistaradeildarbaráttu. Ná þeir að skáka erkifjendum sínum í Manchester United í þeirri baráttu? Hvernig endar þetta eiginlega? Það er gríðarlega mikil spenna framundan í ensku úrvalsdeildinni en það var mikið rætt um Liverpool í þessum þætti.

May 8, 2023

Tiltalið: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, leikmaður Þróttara úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

May 8, 2023

Útvarpsþátturinn - Lengjudeildin hafin og spenna í Bestu

Það er ekki verið að flækja hlutina í þætti vikunnar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Byrjað er á því að fara yfir fyrstu umferð Lengjudeildarinnar en deildin fer af stað með dramatík og spennu. Þá er hitað upp fyrir áhugaverða 6. umferð Bestu deildarinnar. Enski boltinn, ferðasaga frá Þýskalandi og smá körfubolti koma líka við sögu.

May 6, 2023

Innkastið - Ferskir vindar verða fárviðri og Lengjuspáin

Í þessum þætti Innkastsins er 5. umferð Bestu deildarinnar gerð upp og hitað upp fyrir Lengjudeildina með því að skoða spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar. Upphitun fyrir Lengjudeildina hefst á 58:00 Elvar Geir og Sæbjörn Steinke sjá um þáttinn og með þeim er Valur Gunnarsson, fyrrum markvörður og markvarðaþjálfari Leiknis.

May 4, 2023

Ástríðan - Spá í 3. deild 2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu? Þátturinn er í boði Bola og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

May 4, 2023

Ástríðan - Spá í 2. deild 2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu? Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

May 4, 2023

Enski boltinn - Nær Stóri Sam að bjarga málunum?

Það voru stór tíðindi í morgunsárið því Sam Allardyce er mættur aftur í enska boltann. Hann er tekinn við Leeds og fær erfitt verkefni að bjarga liðinu frá falli. Gummi og Steinke fengu Jóhann Inga Hafþórsson, blaðamann Morgunblaðsins og stuðningsmann Leeds, til að ræða fréttirnar og tímabilið hjá Leeds. Nær Stóri Sam að bjarga Leeds frá falli? Einnig var rætt um aðra leiki síðustu umferðar. Meðal annars var athyglisverð hegðun Jurgen Klopp til umræðu.

May 3, 2023

Tiltalið: Birnir Snær Ingason

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann bikarmeistara Víkings í tiltal, Birnir Snær Ingason og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.

May 2, 2023

Innkastið - Svartur blettur á trylltri umferð

Gummi, Steinke og Sverrir Mar fara yfir fjórðu umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu. Breiðablik og Valur unnu sigra í algjörum veisluleikjum, HK hafði betur í nýliðaslagnum, ÍBV gerði kaup tímabilsins og fór í góða ferð til Keflavíkur, Víkingar eru meistaralegir á meðan KA er það ekki og Kjartan Henry var í hefndarhug. Þetta var svo sannarlega frábær umferð en miðgrasið í Kaplakrika og allt leikritið í kringum það setti svartan blett á hana.

Apr 30, 2023

Útvarpsþátturinn - Ruglið í kringum FH - KR, Biggi Jó og Gaui Lýðs

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. apríl. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu þættinum í dag en Elvar Geir er í pílagrímaferð til fótboltaborgarinnar Munchen í Þýskalandi. Þeir fóru yfir fréttir vikunnar í fótboltanum, ræddu við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF um dramað í kringum leik FH og KR auk útsendinga frá Lengjudeild karla. Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Grindavíkur var á línunni en liðið hefur leik í Lengjudeildinni á Akranesi næstkomandi föstudag. Þá var rætt um FIFA móti í Arena í Kópavoginum.

Apr 30, 2023

Enski boltinn - Ekkert lið í heiminum hefði ráðið við City þarna

Gummi og Steinke hringdu til Svíþjóðar og heyrðu í Einari Guðnasyni, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings og miklum Arsenal stuðningsmanni. Hann gerði upp stórleikinn gegn Manchester City sem fór fram á miðvikudagskvöld. Einar segir að City sé best þjálfaða lið sem hann hefur séð en það er óhætt að segja að lærisveinar Pep Guardiola hafi farið allverulega í bílstjórasætið um enska meistaratitilinn með sigrinum gegn Arsenal í stórleiknum. Yfirburðir Man City voru gríðarlegir í leiknum en þeir eru ansi líklegir til að taka þrennuna. Einnig var farið aðra leiki vikunnar í enska boltanum.

Apr 28, 2023

Tiltalið: Adam Ægir Pálsson

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa.Í fyrsta þættinum fengum við til okkar Adam Ægi Pálsson, leikmann Vals í „tiltal".

Apr 27, 2023

Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitunarfjör fyrir Lengjudeildina!

Lengjudeildin hefst þann 1. maí næstkomandi og komið að því að Heimavöllurinn opinberi lokaspá sína og hiti upp fyrir fjörið sem er framundan. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson eru gestir þáttarins en besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, Sísí Lára Garðarsdóttir, var veðurteppt í íslenska vorveðrinu, og var á línunni. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Apr 27, 2023

Heimavöllurinn: Besta deildin og versta veðrið

Fyrstu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða. Á Heimavöllinn mæta þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Apr 26, 2023

Innkastið - Víkingur bauð KR upp á raunveruleikatékk

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Óskar Smári í Innkastinu eftir 3. umferð Bestu deildarinnar.Víkingur svo miklu betri en KR, Breiðablik tapaði óvænt í Vestmannaeyjum, Fylkir skellti FH, Stjarnan vann handboltaleikinn gegn HK, Valur vann Fram og markalaust var fyrir norðan.

Apr 24, 2023

Enski boltinn - Sálfræðihernaður, titilbaráttan og bless Stellini

Útvarpsmaðurinn Orri Freyr Rúnarsson er gestur í Enski boltinn í dag en það er nóg að ræða að venju. Manchester United og Manchester City mætast í úrslitum enska bikarsins en undanúrslitin voru spiluð í gær. United hafði betur gegn Brighton í gær þar sem David de Gea og Wout Weghorst spiluðu stórt hlutverk í vítaspyrnukeppninni. Þá var einnig leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem mikla athygli vakti að Newcastle vann 6-1 sigur á Tottenham. Búið er að reka Christian Stellini sem stýrði Spurs í þeim leik. Arsenal gerði þá óvænt jafntefli við Southampton en liðið er enn með þetta í sínum höndum í baráttunni við Manchester City. Bæði lið eru í raun með þetta í sínum höndum en þau eigast við á miðvikudag í stærsta leik tímabilsins til þessa. Þá er einnig aðeins rætt um Meistaradeildina og Hollywood-ævintrýri Wrexham.

Apr 24, 2023

Heimavöllurinn: U19 á EM - Metnaður, liðsheild og óbilandi trú

U19 ára landsliðskonurnar Katla Tryggvadóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru hluti af mögnuðu U19 ára landsliði sem nýverið tryggði sér sæti í lokakeppni EM. Þær eru líka tvær af okkar allra efnilegustu leikmönnum og ætla sér stóra hluti í Bestu deildinni sem hefst á morgun.

Apr 24, 2023

Heimavöllurinn: Upphitunarpartý og spá fyrir 2. deild

Það er rúm vika í að keppni í 2. deild hefjist og Heimavöllurinn hitar upp fyrir fjörið. Til leiks mæta þjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Pétur Rögnvaldsson en þau fóru upp úr 2. deild með sín lið, Fram og Gróttu í fyrra, og þekkja því vel til. Þau spá í spilin ásamt Mist Rúnarsdóttur, fara yfir liðin og leikmenn sem gætu gert það gott í sumar.

Apr 22, 2023