
Enski boltinn - Alvöru gæði í Enzo og Onana slapp með skrekkinn
Fotbolti.net · [email protected]
August 15, 2023
Show Notes
Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar er að baki og því tilvalið að gera hana upp.
Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule stúdíóinu í morgun ásamt Tómasi Þór Þórðarsyni, ritstjóra enska boltans á Síminn Sport. Tómas er nýkominn frá London þar sem hann var á stórleik fyrstu umferðar, Chelsea gegn Liverpool.
Farið var vel yfir stórleik umferðarinnar, kaupin Chelsea á Caicedo og Lavia, skiptinguna á Salah, hörmulega frammistöðu Man Utd, komandi titilbaráttu hjá Arsenal, ómannlegan Erling Haaland og margt fleira.