PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,831 episodes — Page 17 of 57

Útvarpsþátturinn - Heimir Hallgríms gestur

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. nóvember. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar, meðal annars rætt um landsliðið, fréttir úr Bestu deildinni og formannsslag KSÍ. Í þeim seinni kemur Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Jamaíku í heimsókn en hann fékk enn eina rósina í sitt hnappagat í vikunni þegar hann kom liðinu í undanúrslit Concacaf Þjóðadeildarinnar og í úrslitakeppni Copa America.

Nov 25, 2023

Enski boltinn - Gunnar í skýjunum með magnað gengi

Gummi og Steinke halda utan um stjórnartaumana í Enski boltinn hlaðvarpinu að venju en með þeim í dag er sannkallaður heiðursgestur, Gunnar Sigurðarson. Rætt er aðallega við Gunnar, sem er gallharður Ipswich maður, um hans heittelskaða félag. Ipswich hefur verið að gera frábæra hluti í Championship-deildinni og er liðið sem stendur í öðru sæti með gott forskot á liðin fyrir neðan. Ipswich komst upp úr C-deildinni á síðasta tímabili en Kieran McKenna, fyrrum aðstoðarmaður Jose Mourinho og Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United, hefur verið að vinna frábært starf hjá félaginu.

Nov 24, 2023

Mikael Nikulásson: Ætlum að keyra þetta í gang

Mikael Nikulásson framlengdi samning sinn við KFA á dögunum og stýrir því liðinu í annað tímabil næsta sumar. Mikael, eða Mike eins og hann er oftast kallaður, gerði flotta hluti með KFA síðasta sumar en liðið var taplaust lengi vel. Liðið rétt missti þó af því á endanum að komast upp í Lengjudeildina. Þessi skemmtilegi þjálfari ræddi við Fótbolta.net í dag um þá ákvörðun að framlengja við KFA, síðasta sumar og framhaldið hjá félaginu. Hann lofar því að KFA mæti með hörkulið á næstu leiktíð en það er góð stemning fyrir fótboltanum á Austurlandi.

Nov 20, 2023

Innkastið - Ómar Ingi um landsliðið og HK

Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, ræddi við þá Sæbjörn Steinke og Guðmund Aðalstein í fyrri hluta þáttarins um stöðu landsliðsins og leikinn gegn Slóvakíu í gær. Farið var yfir frammistöðu liðsins sem var ekki nógu góð en Ómar nefndi þó tvo leikmenn sem hann var ánægður með. Einnig var aðeins snert á U21 landsliðinu. Í seinni hluta þáttarins ræddi hann svo um HK; tímabilið 2023, leikmannamál og ýmislegt annað.

Nov 17, 2023

Tiltalið: Halldór Árnason

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs Breiðabliks, Halldór Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.Þessi þáttur er í boði Bjórland. Kynntu þér hágæða Íslenskt handverksöl á bjorland.is og ekki gleyma afláttarkóðanum "Tiltalid". 

Nov 17, 2023

Enski boltinn - Einhver veikasti leikur síðari ára

Leikur Chelsea og Manchester City er einhver skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum. Það var hrein unun að fylgjast með leiknum. Kári Snorrason, stuðningsmaður Chelsea, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag en hann ræddi mikið við Gumma og Steinke um stórleikinn í gær. Hann ræddi einnig um stöðuna hjá Chelsea og svo var farið yfir aðra leiki helgarinnar.

Nov 13, 2023

Útvarpsþátturinn - Biggi ÍTF og Arnar Grétars

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 11. nóvember. Í fyrri hluta þáttarins í dag er Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF gestur. Rætt er um hvað íslenski boltinn getur lært af þeim danska og hvað var jákvætt og hvað neikvætt í mótafyrirkomulagi Bestu deildarinnar á liðnu sumri. Í seinni hlutanum kemur Arnar Grétarsson þjálfari Vals í heimsókn. Fótboltasumarið á Hlíðarenda er gert upp og horft fram á veginn.

Nov 11, 2023

Enski boltinn - Kaos, hatur og fáránleg yfirlýsing

Tveir af áhugaverðari leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa fóru fram í elleftu umferðinni sem var leikin núna um helgina. Tottenham tapaði 1-4 gegn Chelsea í mögnuðum fótboltaleik í gærkvöldi og þá vann Newcastle 1-0 sigur gegn Arsenal. Síðarnefnda liðið sendi frá sér yfirlýsingu eftir leik út af ósætti með dómgæsluna. Er Mikel Arteta mesti vælukjói enska boltans? Gummi og Steinke fara yfir þessa umferð en á línunni er sjálf litla flugvélin, Ingimar Helgi Finnsson.

Nov 7, 2023

Ungstirnin - Við lifum í heimi Jude Bellingham

Assan Ouedraogo (2006) er mjög eftirsóttur af Liverpool skv Sky Sports en Barcelona, Real Madrid eru nokkur lið sem eru á eftir þessum efnilega miðjumanni sem spilar fyrir Schalke. Savio (2004) er tekknískur Brassi sem hefur verið í lykilhlutverki á kantinum hjá toppliði Girona á Spáni sem er undir smásjá hjá Barcelona líkt og Ouedraogo. Hversu rugl góður er Jude Bellingham, er hann betri en Musiala? Zaire-Emery að spila eins og fullorðinn maður hjá PSG og hversu nett er það að Sædís Rún fór til Englandsmeistara Chelsea á reynslu? Íslendingalið Elfsborg klikkaði fyrsta séns á sænska meistaratitlinum, stútfullt Skandinavíuhorn, Jeremy Doku á eldi, Kristian Hlyns orðinn byrjunarliðsmaður í stærsta liði Hollands og margt margt fleira.

Nov 6, 2023

Útvarpsþátturinn - Fréttir vikunnar, Lyngby og Kristján Atli gerir upp enska boltann

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. nóvember. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas. - Fótboltafréttir vikunnar. Meiri umræða um ráðningu KR á Gregg Ryder og sjö lið í Bestu-deildinni hafa ekki gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara. - Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net í símaspjalli frá Kaupmannahöfn á leið á leik hjá Lyngby. - Kristján Atli Ragnarsson mætti svo og gerði upp fyrsta fjórðung í enska boltanum.

Nov 5, 2023

Úlfur hefur ekki áhyggjur: Þarf ekki alltaf að sækja einhvern nýjan

Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason. Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur. Úlfur ræddi einnig um tímabil Fjölnis, tímann sem þjálfari hjá Fjölni, Extra völlinn og eftirminnilegt viðtal þar sem hann talaði um Aftureldingu.

Nov 3, 2023

Heimavöllurinn: Þýskur grikkur en margt gott

Ísland mátti sætta sig við tap gegn Þýskalandi og stigalaus landsliðsgluggi því niðurstaðan. Það mátti engu síður greina ýmis jákvæð teikn á lofti og þau Alexandra Bía og Guðmundur Aðalsteinn mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur - í boði Orku Náttúrunnar og Dominos. Þátturinn er sá síðasti fyrir vetrarfrí.

Nov 1, 2023

Enski boltinn - Agalegt ástand og grjóthörð fermingargjöf

Tíunda umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og til að gera hana upp kom Framherjinn Guðmundur Magnússon í heimsókn til þeira Guðmundar Aðalsteins og Steinke. Umdeildir vítaspyrnudómar voru til umræðu sem og sannfærandi sigur City á grönnunum í United. Liverpool og Arsenal unnu örugga sigra, Tottenham vélin mallar áfram en bakslag hjá Newcastle og Chelsea. Á Villa Park fékk ungur Íslendingur 3-1 sigur í fermingargjöf og treyju frá manni leiksins. Frábær dagur.

Oct 30, 2023

Ungstirnin - Heimsókn af Nesinu og golf með fyrrum leikmanni Liverpool

Eli Junior Kroupi (2006) er einn efnilegasti leikmaður Frakklands um þessar mundir og hefur verið líkt við engan annan en Kylian Mbappe. Hann hefur farið frábærlega af stað með aðalliði Lorient í Ligue 1 með frábærum mörkum. Sverre Halseth Nypan (2006) er lykilleikmaður á miðjunni í liði Rosenborg í Noregi. Manchester Utd, Manchester City, Barcelona og Real Madrid eru með augastað á þessum efnilega leikmanni. Góðir gestir koma í heimsókn en þeir Arnar Daníel og Tómas Johannessen leikmenn Gróttu komu í afar áhugavert og skemmtilegt spjall, tveir frábærir en afar ólíkir persónuleikar. Bjarni Co-host spilaði golf með fyrrum leikmanni Liverpool í Houston, þrumuræða um ömurlegt gervigras á Seltjarnarnesi, Tommi Jó á leið i Breiðablik? Kristian og Orri að gera vel og Skandinavíuhornið á sinum stað.

Oct 30, 2023

Páll Kristjánsson formaður KR ræðir nýjan þjálfara og gagnrýnar raddir

Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR ræðir við Fótbolta.net um ráðningu á Gregg Ryder sem nýjum þjálfara karlaliðs félagsins. KR tilkynnti ráðningu enska þjálfarans á fréttamannafundi í KR-heimilinu í vesturbænum í dag og eftir fundinn settumst við niður með Páli og fórum yfir málin. Til umræðu - Þrumuræðan í byrjun fréttamannafundar - Gagnrýnin á ferlið - Ógrynni starfsumsókna frá stórum nöfnum sem KR fékk - Formlegir fundir með sex aðilum - Svakalega flottur fyrsti fundur Gregg Ryder - Ráðning á Guðjóni Erni ein stærsta fjárfesting KR - Er peningakall mættur með fúlgur fjár í KR? - Fær Rúnar Kristinsson að taka Ole Martin í Fram? - Þykir umræðan skrítin - Var Óskar Hrafn eini kosturinn fyrst? - Hvenær breytist aðstaðan hjá KR? - Leikmannamál

Oct 28, 2023

Útvarpsþátturinn - Óvænt útspil KR og undirbúningur á Akranesi

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Gregg Ryder tekur við KR og Rúnar Kristinsson var kynntur í Ulfarsárdal. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA segir frá undirbúningi Skagamanna fyrir Bestu deildina. Baldvin Már Borgarsson fer yfir enska boltann.

Oct 28, 2023

Heimavöllurinn: Glittir í gömul gildi, nú þarf að þora gegn Þjóðverjum

Ísland mátti sætta sig við 0-1 tap gegn Danmörku í Þjóðadeildinni fyrr í kvöld. Fréttaritarar Fótbolta.net, þau Guðmundur Aðalsteinn, Mist Rúnarsdóttir, Stefán Marteinn og Sverrir Örn voru öll á vellinum og settust svo niður til að fara yfir málin á Heimavellinum. Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Oct 28, 2023

Bjarni Jó snýr aftur eftir lærdómsríka árspásu

Bjarni Jóhannsson er mættur aftur í þjálfun eftir að hafa tekið sér árspásu. Bjarni hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið. Bjarni hefur verið í þjálfun í meira en 30 ár og komið víða við á ferlinum. Næsta stopp er Selfoss þar sem hann stefnir að koma liðinu aftur upp í Lengjudeildina eftir vonbrigðarsumar. Selfoss er félag sem á ekki að vera í 2. deild í fótbolta. Í þættinum fer Bjarni yfir nýtt verkefni á Selfossi og hann fer vel yfir fríið sem hann tók frá þjálfun. Þessi mikli reynslubolti er gríðarlega spenntur að hefjast handa á nýjan leik.

Oct 26, 2023

Rúnar Kristins leyfir Frömurum að dreyma í Dal draumanna

Rúnar Kristinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram og tekur formlega til starfa sem þjálfari liðsins í Bestu deildinni um mánaðamótin. Eftir fréttamannafund í dag ræddi Elvar Geir Magnússon við Rúnar í fundarherbergi í Úlfarsárdalnum. Rætt er um nýtt verkefni Rúnars og ýmislegt fleira.

Oct 25, 2023

Enski boltinn - Ekki bara góður þjálfari, líka góð manneskja

Það var mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Það er alltaf gaman að fá enska boltann aftur að loknu landsleikjahléi. Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, er gestur í þætti dagsins en hann ræðir við Gumma og Steinke um fína byrjun sinna manna á tímabilinu. Eddie Howe hefur sannað sig sem magnaður stjóri. Þá er farið vel yfir umferðina sem er að baki og helstu fréttapunkta í kringum deildina.

Oct 24, 2023

Útvarpsþátturinn - Hræringar, Heimaleikurinn og Valgeir Lunddal

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 21. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, Andri Rúnar Bjarnason á línunni, Smári Gunnarsson leikstjóri Heimaleiksins og Valgeir Lunddal gestir.

Oct 21, 2023

Heimavöllurinn: Fjölhæfi fyrirliðinn og sú flugsynda fara yfir tímabilið

Valskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Málfríður Anna Eiríksdóttir áttu þrusugott og heillangt fótboltasumar þar sem þær urðu Íslandsmeistarar. Eftir gott gengi heimavið tóku þær þátt í Meistaradeildarævintýri og eru nýlentar aftur á klakanum. Klárar í gott spjall á Heimavellinum sem er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Oct 21, 2023

Enski boltinn - Hvað er að frétta hjá Leeds?

Enska úrvalsdeildin snýr aftur um helgina en aðalmálið í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag er Leeds og Championship-deildin. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er sérstakur gestur í þættinum en hann er grjótharður stuðningsmaður Leeds sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Farið var yfir tímabilið hingað til í Championship-deildinni og auðvitað var rætt eitthvað um ensku úrvalsdeildina líka.

Oct 20, 2023

Siggi Höskulds: Allir Þórsarar farnir að þrá að spila í efstu deild

Sigurður Heiðar Höskuldsson var í gær tilkynntur sem nýr þjálfari Þórs og samdi hann til þriggja ára. Þór var í þjálfaraleit eftir að ljóst varð að Þorlákur Árnason yrði ekki áfram þjálfari liðsins. Siggi var síðasta árið aðstoðarþjálfari Vals en þar áður var hann þjálfari Leiknis og gerði góða hluti þar. Hann er staddur í Belgíu og var því í símaviðtali. Hann ræðir áhuga Þórs á sér, tengingu fjölskyldunnar norður árið hjá Val, samanburður milli Þórs og Leiknis, aðkomu landsliðsfyrirliðans og ýmislegt annað.

Oct 18, 2023

Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson mætti aftur og fór yfir sumarið

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar er leikmaður Aftureldingar Arnór Gauti Ragnarsson en hann fer yfir tímabilið og við fáum stutt 'recap' á sumrinu frá honum.

Oct 17, 2023

Innkastið - Gylfasýning gladdi og Van Dijk lagði hönd á plóg

Ísland vann Liechtenstein 4-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Innkastið gerir upp Gylfasýninguna og býr sig undir umspilið í mars á næsta ári. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Örn í Thule stúdíóinu. Einnig er rætt um fréttir úr íslenska boltanum, meðal annars þjálfaramál Haugesund og KR.

Oct 16, 2023

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Hannes, Haugesund og slúður

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. október. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Hannes Þór Halldórsson fyrrum landsliðsmarkvörður. Landsleikur Íslands og Lúxemborgar er gerður upp, rætt um endurkomu Gylfa og einkunnagjöf leikmanna skoðuð. Hannes ræðir um landsliðið og nýja sjónvarpsþætti um ÍA sem fara af stað á mánudaginn. Rætt er um íslenskt slúður og þjálfarakapalinn. Jörgen Freyr Ólafsson er í beinni frá Haugesundi.

Oct 14, 2023

Tiltalið: Hallgrímur Jónasson

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs KA, Hallgrímur Jónasson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Oct 11, 2023

Júlli Magg: Símtal sem breytti golfhringnum

Norska félagið Fredrikstad verður með lið í efstu deild Noregs á næsta tímabili í fyrsta sinn síðan 2012. Liðið er í toppsæti norsku B-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og sex stigum frá því að tryggja efsta sætið. Með liðinu leikur Víkingurinn Júlíus Magnússon sem fenginn var fyrir tímabilið. Júlíus er í landsliðsverkefni þessa dagana og var hann fenginn í viðtal um landsliðið, tímabilið með Fredrikstad og Víking. Júlíus fór meðal annars yfir fjarveru sína frá landsliðsæfingu dagsins, landsliðskallið fyrir síðasta verkefni, velgengni Fredrikstad, hvernig það kom til að hann hefur borið fyrirliðabandið hjá liðinu í haust og hvernig það var að fylgjast með Víkingum í sumar.

Oct 10, 2023

Ástríðan - Uppgjör í 3. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild. Kristófer Páll (Reynir S) og Ingvi Rafn (Kormákur/Hvöt) voru gestir þáttarins. Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn. Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.

Oct 10, 2023

Enski boltinn - Fætur á jörðinni og McSósan til bjargar

Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Gummi og Steinke eru auðvitað á sínum stað. Hallur er mikill Arsenal maður og var að vonum ánægður með sigur sinna manna í stórleiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Einnig var rætt um aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og aðeins farið í Championship-deildina líka.

Oct 9, 2023

Innkastið - Jarðarför í kyrrþey og Óskar farinn

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 22. umferð Bestu deildarinnar. Eyjamenn eru fallnir niður í Lengjudeildina, Fylkir kláraði þetta með stæl, Fram fékk ljótan skell sem hjálpar ekki Ragga Sig, Kjartan Henry með hnífasettið og Víkingur og Stjarnan í stuði. 54:00 KAFLA SEM VAR BÆTT VIÐ! Strax eftir upptöku var tilkynnt að Óskar Hrafn væri hættur með Breiðablik. Það var ekki hægt að setja þáttinn í loftið án þess að ræða það! Hvernig verður byrjunarlið landsliðsins?

Oct 8, 2023

Útvarpsþátturinn - Besta lokahófið, lokaumferðin og Stefán Teitur

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 7. október. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Fotbolti.net heldur lokahóf Bestu deildarinnar. Val á liði ársins, þjálfara ársins, leikmanni ársins, besta unga leikmanninum og besta dómaranum opinberað. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir lokaleikina í Bestu deildinni, auk þess sem Stefán Teitur Þórðarson er á línunni. Stefán Teitur skoraði hina fullkomnu þrennu gegn Íslendingaliðinu Lyngby .

Oct 7, 2023

Heimavöllurinn: Besta lokapartýið!

Besta deildin 2023 kláraðist í gærkvöldi og nú er komið að því að gera sumarið upp. Elíza Gígja og Guðmundur Aðalsteinn mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur - Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Oct 7, 2023

Ástríðan - Uppgjör í 2. deild

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild.Bragi Karl (ÍR) og Tómas Þórðarson (Dalvík) gestir þáttarins.Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn.Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.

Oct 6, 2023

Tiltalið: Ívar Örn Árnason

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður KA - Ívar Örn Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Oct 5, 2023

Innkastið - Vesturbæjarvonir og Vestradraumar

Evrópubaráttunni í Bestu deildinni er lokið en lífsbaráttu laugardagur er framundan. Lið ársins í Lengjudeildinni er opinberað, Vestri vann 50 milljóna króna leikinn og þjálfaraskipti verða hjá KR. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds gera upp helgina og skoða öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum í Innkastinu.

Oct 2, 2023

Ungstirnin - Íslandsvinur og ungir Framarar bjarga hlutunum

Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Carlos Forbs (2004) sem seldur var til Ajax í sumar frá Man City eftir ótrúleg ár í akademíu þeirra bláklæddu. Fjallað er um Desire Doue (2005) en hann er næsta stórstjarna Rennes í frönsku úrvalsdeildinni líkt og Eduardo Camavinga var á sínum tíma. Viktor Djukanovic, Íslandsvinur (2004) er einnig kynntur til leiks en hann spilaði gegn Breiðabliki árið 2022 með Buducnost frá Svartfjallalandi, Óskar Hrafn þjálfari Blika minntist einmitt á að hann væri besti leikmaður liðsins fyrir einvígið en Djukanovic er að gera ótrúlega hluti fyrir Hammarby í Svíþjóð þessa dagana í sænsku úrvalsdeildinni. Mikið var um að ræða í Skandinavíuhorninu góða, ungir Framarar að gera geggjaða hluti, Benóný Breki með hnífana á lofti, Hákon Arnar mun fá tíma til að láta ljós sitt skína hjá Lille og hversu nettur er Bjarki Steinn í Venezia? Og svo margt margt fleira.

Oct 2, 2023

Enski boltinn - Toppuðu sig í fáránleikanum

Það átti sér stað ótrúlegur dómaraskandall í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi þegar Tottenham tók á móti Liverpool. Enn ein afsökunarbeiðnin fylgdi í kjölfarið. Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool, mætti í Thule-stúdíóið á skrifstofu Fótbolta.net og gerði málið vel upp ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni og Elvari Geir Magnússyni. Einnig var farið yfir aðra leiki í umferðinni en það litu dagsins ljós mjög óvænt úrslit.

Oct 2, 2023

Útvarpsþátturinn - La Masia í Garðabæ og norsk falleinkunn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke gera upp fimmtudagsumferðina í Bestu deildinni. Stjarnan er á barmi þess að ná Evrópusæti og útlitið er orðið svart í Vestmannaeyjum. Þá er rætt um 50 milljóna króna leikinn, landsliðið og fleira.

Sep 29, 2023

Heimavöllurinn: Þrjú stig og ljótur skellur

Landsliðið okkar sigraði Wales en fékk svo skell gegn Þýskalandi í fyrstu leikjum sínum í Þjóðadeildinni. Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson mæta á Heimavöllinn og gera leikina upp og spá í spilin. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Sep 27, 2023

Enski boltinn - Meintur fíll og of sniðugur Arteta

Þeir Jóhann Skúli Jónsson og Sverrir Mar Smárason eru þekktir þáttarstjórnendur, en þeir létu vel af stjórn í þætti dagsins. Sæbjörn Steinke fékk þáttarstjórnanda Draumaliðsins og Svona var sumarið annars vegar og þáttarstjórnanda Ástríðunnar hins vegar til að gera upp 6. umferðina í ensku úrvalsdeildinni. Jonny Evans henti upp sýningu á Turf Moor, jafntefli í Norður-Lundúna slagnum, meistararnir halda áfram að vinna, Liverpool heldur áfram að elta og hvenær mun Brighton fara hiksta? Er Mikel Arteta að reyna vera of sniðugur?

Sep 26, 2023

Innkastið - Sandkassaleikur og möguleika sturtað niður

Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og umspil Lengjudeildarinnar. Heiðursvörður, sandkassaleikur, dómaraskandall, ömurleg frammistaða liða í neðri hlutanum og spennandi úrslitaleikir.

Sep 25, 2023

Útvarpsþátturinn - Flottir Evrópu-Blikar og Herra Víkingur

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. september. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars fara yfir það helsta í íslenska boltanum og gera upp Evrópuleik Breiðabliks. Langleikjahæsti Víkingurinn, Halldór Smári Sigurðsson, er gestur og gefur skemmtilega innsýn inn í meistaralið Víkings. Þá er Kristján Atli sérfræðingur þáttarins um enska boltann á línunni. Vandræði Man Utd, byrjun Liverpool og Lundúnaslagurinn koma við sögu. Einnig er rætt um Íslendingaliðið Lyngby.

Sep 23, 2023

Leiðin á Laugardalsvöll - Hitað upp með þjálfurunum

Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Fjögur lið berjast þá um tvö pláss í úrslitaleiknum sjálfum sem fram fer á Laugardalsvellinum. Í undanúrslitunum mætast Víðir og KFG annars vegar og KFA og KFG hins vegar. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sæbjörn Þór Steinke heyrðu í dag í þjálfurunum fjórum sem stýra liðunum sem eftir eru í keppninni. Staðan var tekin fyrir morgundaginn.

Sep 22, 2023

Innkastið - Nýr Maggiball og mestu skemmtikraftar Bestu

Umspil Lengjudeildarinnar er fyrsta mál á dagskrá í Innkastinu. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds fara yfir fyrri undanúrslitaleikina. Þá er Besta deildin einnig tekin fyrir. Fram fékk stig í Kórnum og KR náði að fresta Íslandsmeistarafögnuði Víkings. Þá er rætt um mestu skemmtikrafta deildarinnar. Einnig kemur Fótbolti.net bikarinn og 2. deildin við sögu

Sep 21, 2023

Ástríðan 22. umferð - Lokaumferðin gerð upp

Gylfi Tryggva svaf yfir sig en galvaskir mættu Óskar Smári og Sverrir Mar fóru yfir lokaumferðina og allt þetta helsta.Ástríðan er í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Jakosport, Waterclouds, Bola Léttöl og ICE Nikótínlausra púða.

Sep 20, 2023

Enski boltinn - Farið að hitna undir Ten Hag?

Gummi og Steinke fengu góðan gest í Thule-stúdíóið á mánudagskvöldi því sjálfur Nablinn, Andri Már Eggertsson, mætti til þess að fara yfir enska boltann. Mikið er rætt um Manchester United en það er dökkt ský yfir Old Trafford þessa stundina. Er farið að hitna undir Erik ten Hag? Farið er yfir alla umferðina en það er ansi áhugaverð umferð að baki í enska.

Sep 18, 2023

Heimavöllurinn: Takk Sif, Blikar snúa aftur og erfitt í eyjum

Úrslitakeppni neðri hlutans í Bestu er lokið og það er ÍBV sem kveður deildina. Blikar rönkuðu við sér eftir dapurt gengi að undanförnu og eru aftur komnar í Evrópusæti. Framundan eru landsleikir og Meistaradeildarævintýri og það er margt að ræða. Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin með Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Sep 18, 2023

Innkastið - Markakóngurinn og bikarar á loft

Íslenska fótboltahelgin er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fengu til sín Viktor Jónsson, markakóng Lengjudeildarinnar, en hann hjálpaði ÍA að komast upp í Bestu deildina. Víkingur vann bikarmeistaratitilinn í vonskuveðri á laugardaginn og Breiðablik er í hættu á að komast ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Sep 18, 2023