
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 16 of 57

Enski boltinn - Mjög spennandi barátta og sjóðheitur Höjlund
Það er skemmtileg umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni og er toppbaráttan gríðarlega spennandi þessa stundina. Manchester City tapaði stigum á meðan Arsenal og Liverpool unnu sína leiki sannfærandi. Manchester United er á fínu skriði og Rasmus Höjlund getur ekki hætt að skora, Gary O'Neil er aftur einn af stjórum tímabilsins og Mason Holgate er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni. Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari kvennaliðs Fjölnis, eru gestir í þættinum að þessu sinni.

Útvarpsþátturinn - Afmælisveisla og Jón Rúnar gestur
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á afmæli sitt laugardaginn 17. febrúar. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir íslenskar fótboltafréttir vikunnar og úrslitin úr Lengjubikarnum. Í seinni hluta þáttarins er Jón Rúnar Halldórsson gestur og ræðir um fótboltapólitíkina og komandi ársþing KSÍ.

Hugarburðarbolti Þáttur 3
Rice Rice Babe. Er Salah að snúa aftur? Er Haaland fullkominn Triple C í næstu umferð? Bruno G og Star Boy Saka ofl. í þætti dagsins.

Enski boltinn - Hvað er í gangi hjá Chelsea?
Chelsea er mikið til umræðu í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Liðið vann endurkomusigur gegn Crystal Palace í gær en tímabilið hefur verið afar dapur hjá Lundúnafélaginu. Chelsea endaði um miðja deild á síðasta tímabili og það er útlit fyrir að það gerist eftir. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og fær hann þá Harald Örn og Stefán Martein í heimsókn, en þeir eru báðir miklir stuðningsmenn Chelsea. Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar í enska boltanum í þættinum.

Steven Lennon gerir upp magnaðan feril - Skórnir upp á hillu
Steven Lennon hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril hér á Íslandi. Hann er einn besti leikmaður sem hefur spilað í efstu deild hér á landi og er hann í dag markahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar. Lennon ólst upp í akademíu Rangers í Skotlandi en kom hingað til lands árið 2011 til að spila með Fram. Hér festi hann rætur en hann spilaði lengst af með FH og varð algjör goðsögn hjá félaginu. Þessi skemmtilegi Skoti kom í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net þar sem hann fór yfir ferilinn og næstu skref.

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og formannsefnin fara yfir stóru málin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum: Baldvin Már Borgarsson kom með ótímabæra Lengjudeildarspá. 42:15 Í seinni hlutanum: Formannsefni KSÍ fóru yfir málin, rætt var við Guðna Bergsson, Vigni Má Þormóðsson og Þorvald Örlygsson en þeir eru í framboði til formanns KSÍ.

Var að plana að flytja upp á Skaga en svo breyttist allt snögglega
Gísli Eyjólfsson var í vikunni kynntur sem nýr leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Halmstad. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi. Gísli hefur undanfarin ár verið algjör lykilmaður í liði Breiðabliks. Hann skoraði þrjú mörk í 15 Evrópuleikjum og sjö mörk í Bestu deildinni á liðinni leiktíð. Hann lagði upp fjögur mörk í deildinni, eitt í Evrópu og eitt í Mjólkurbikarnum. Gísli ræddi í dag við Fótbolta.net um skiptin en hægt er að hlusta á spjallið í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.

Hugarburðarbolti - Geggjuð umferð að baki
Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net. Annar þáttur var að koma í loftið.

Tiltalið: Brynjar Björn Gunnarsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Grindavíkur, Brynjar Björn Gunnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Enski boltinn - Er bannað að fagna?
Arsenal stóð uppi sem sigurvegarinn í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Lundúnafélagið vann sannfærandi sigur gegn Liverpool á heimavelli sínum. Jón Kári Eldon var á vellinum en hann var á línunni í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag og ræddi þar um ferð sín á Emirates, og jú auðvitað um leikinn. Þá er auðvitað líka rætt um aðra leiki helgarinnar í þættinum en það var nóg um að vera í þessari stórskemmtilegu deild.

Útvarpsþátturinn - Máni í framboði og ótímabæra spáin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Máni Pétursson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport og fyrrum útvarpsmaður á X-inu. Hann fer yfir nýja ótímabæra spá þar sem öll liðin í Bestu deildinni eru skoðuð. Þá eru fréttir vikunnar að sjálfsögðu á sínum stað.

Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp
22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn. Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins.

Enski boltinn - Tveir hrikalega spennandi og allir elska Luton
Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku en það má með sanni segja að tveir efnilegir og spennandi leikmenn hafi stolið senunni. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag og fóru yfir leiki umferðarinnar með Óskari Smára Haraldssyni, þjálfara kvennaliðs Fram. Einnig var aðeins farið yfir gluggadaginn í gær en hann var fremur bragðdaufur.

Enski boltinn - Vandræðagemsar í sviðsljósinu
Það er bikarhelgi að baki í enska boltanum og er spilað í ensku úrvalsdeildinni núna í miðri viku. Það er nóg að ræða þar sem mikið er um fréttir í enska boltanum um þessar mundir af misgáfulegum mönnum og þá er gluggadagurinn á fimmtudag. Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule-stúdíóinu ásamt fréttaritaranum Sölva Haraldssyni í dag. Farið var yfir bikarinn, deildina, slúður og fréttir síðustu daga.

Tiltalið: Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Njarðvíkur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Útvarpsþátturinn - Kiddi Jóns og Gregg Ryder
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 27. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur fyrri hlutans er Kristinn Jónsson sem hefur yfirgefið KR og er kominn heim í Breiðablik. Gestur seinni hlutans er Gregg Ryder sem tók við þjálfun KR í vetur.

Enski boltinn - Klopp hættir með Liverpool
Þau risastóru tíðindi bárust í dag að Jurgen Klopp væri að hætta með Liverpool eftir yfirstandandi tímabil. Þessi tíðindi komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu með Kristjáni Atla Ragnarssyni, hörðum stuðningsmanni Liverpool, í dag og fóru yfir þessi rosalegu tíðindi.

Enski boltinn - Jóhann Birnir ræðir Watford, Man Utd og fleira
Jóhann Birnir Guðmundsson er sérstakur gestur í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Hann fór ungur að árum til Watford og spilaði í þremur deildum á Englandi, þar á meðal ensku úrvalsdeildinni. Í þessum þætti ræðir hann um tíma sinn hjá Watford sem var mjög áhugaverður. Jói er einnig stuðningsmaður Manchester United og er rætt um stöðu félagsins í þættinum. Þá er farið yfir síðustu leiki í ensku úrvalsdeildinni og stöðu mála í janúarglugganum.

Tiltalið: Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson sem var síðast við stjörn hjá Keflavík. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Útvarpsþátturinn - Fréttavikan og formannsslagur
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar heima og erlendis. Þórir Hákonar fer yfir formannsslag KSÍ, Kristján Atli er á línunni og svo er örstutt handboltahorn.

Enski boltinn - Helmingsuppgjör með Gumma Ben
Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson er gestur Enska boltans í þessari viku. Hann heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið og ræddi við Guðmund Aðalstein og Sæbjörn Steinke um síðustu leiki í enska boltanum. Þá var einnig snert aðeins á enska bikarnum. Gummi kastaði fram sínu liði ársins hingað til og þá var spáin - sem var birt fyrir tímabilið - skoðuð. Hvernig lítur hún út núna?

Tiltalið: Alex Freyr Elísson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðbliks í Bestu deild karla, Alex Freyr Elísson en hann var á láni seinnii part tímabilsins hjá KA en er núna mættur aftur í treyju Breiðabliks.

Útvarpsþátturinn - Herlúðrar óma í Vesturbænum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur: Aron Sigurðarson nýr leikmaður leikmaður KR. Rætt um tíðindamikla fréttaviku í íslenska boltanum. Það er blásið í herlúðra í Vesturbænum. Landsliðið, píla, handboltasérfræðingurinn Arnar Daði í beinni frá München, Guinness gangan og fleira.

Rússíbani hjá Aroni - „Fyrir tveimur dögum vissi ég það ekki"
Aron Bjarnason var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks. Hann er keyptur frá sænska félaginu Sirius þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú tímabil. Aron snýr aftur til Breiðabliks en þar lék hann síðast fyrri hluta tímabilsins 2019. Aron, sem er 28 ára kantmaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2027. Hann ræddi við Fótbolta.net og má nálgast viðtalið í spilaranum efst sem og á öllum hlaðvarpsveitum.

Enski boltinn - Besti mögulegi eigandinn fyrir Man Utd
Þau tíðindi bárust um jólin að Jim Ratcliffe, ríkasti maður Bretlandseyja, hefði keypt 25 prósenta hlut í Manchester United. Þetta eru stór tíðindi fyrir stuðningsmenn Man Utd en hvað þýðir þetta nákvæmlega? Guðmundur Aðalsteinn fékk Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa og fyrirlesara, í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til þess að kryfja þessi tíðindi.

Útvarpsþátturinn - Ótímabæra, Freysi og hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 6. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri helmingnum: Fyrsta tímabæra spáin fyrir Bestu deildina og Freyr Alexandersson, nýr þjálfari Kortrijk, er á línunni. Í seinni helmingnum: Enska hringborðið með Kristjáni Atla sem velur áhugavert úrvalslið.

Enski boltinn - Hversu spennandi verður kapphlaupið?
Gleðilegt nýtt ár hlustendur Enska boltans! Það er Ástríðuþema í þætti dagsins því þeir Ástríðubræður: Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fóru yfir síðustu umferð með Sæbirni Steinke. Farið var yfir leiki umferðarinnar og rýnt í toppbaráttuna. Verður Darwin Nunez markahærri 2024 en Erling Haaland? Hvað er að gerast hjá Arsenal? Er eitthvað ljós í enda ganganna hjá Man Utd? Er Man City líklegast til að vinna deildina og alls konar vangaveltur.

Útvarpsþátturinn - Kæfan 2023
Síðasti útvarpsþátturinn Fótbolti.net á árinu 2023 og þá er að sjálfsögðu Áramótakæfan 2023 á dagskrá. Fótboltaárið er gert upp á skemmtilegan hátt; maður ársins valinn og leynigestur kemur í heimsókn. Takk fyrir árið hlustendur kærir, heyrumst á því nýja!

Enski boltinn - Kraftaverkin gerast á jólunum
Enski boltinn hefur verið allsráðandi í kringum jólahátíðina og það var meira að segja spilað á aðfangadag. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag með Litlu Flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir það sem hefur skeð í ensku úrvalsdeildinni um jólin. Það er óhætt að segja að kraftaverkin gerist á jólunum. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, kæru hlustendur.

Útvarpsþátturinn - Litlu jólin með Magnúsi Má og Arnari Gunnlaugs
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 23. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar gestur og rætt um Lengjudeildina og Mosfellinga. Í seinni hlutanum er Arnar Gunnlaugsson þjálfari meistara Víkings gestur en það varð ljóst í gær að hann tekur ekki við Norrköping. Þá er rætt við Kára Árnason yfirmann fótboltamála hjá Víkingi.

Tiltalið: Fanney Inga Birkisdóttir
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og nýjasta landsliðskonan okkar Fanney Inga Birkisdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Enski boltinn - El Jóhann hitar upp fyrir Þorláksmessuveislu
Twitter-kóngurinn El Jóhann er gestur Enska boltans hlaðvarpsins á þessum ágæta föstudegi. Hann hitar upp fyrir Þorláksmessuveisluna sem er í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá og endar dagurinn með stórleik Liverpool og Arsenal. Arsenal er á toppnum sem stendur en El Jóhann er mikill Arsenal-maður. Hann spáir þeim auðvitað sigri í leiknum en í þættinum stillti hann upp sameiginlega byrjunarliði þessara tveggja liða. Gleðilega hátíð kæru hlustendur!

Viðar Ari - Ævintýraþrá og ótrúleg saga
Viðar Ari Jónsson gekk í raðir norska félagsins HamKam í lok sumargluggans eftir að hafa spilað í mánuð með FH. Hann kom í FH eftir að hafa leikið með Honved í Ungverjalandi. Viðar ræðir hvernig hann endaði í Búdapest eftir frábært tímabil með Sandefjord í Noregi 2021. Í aðdraganda skiptanna var hann mjög nálægt því að semja við ísraelsku meistarana og Viðar segir frá því hvernig þau skipti duttu upp fyrir sig. Í viðtalinu ræðir hann um mótlætið í Honved og langa leið inn á völlinn hjá HamKam.

Enski boltinn - Fljótur að yfirgefa hópspjallið
Jafntefli var niðurstaðan á Anfield í gær þegar Liverpool og Manchester United áttust við. Það var mikið að ræða eftir leikinn en Gummi og Steinke fengu Orra Frey Rúnarsson í heimsókn í Thule-stúdíóið til að fara yfir leikinn og allt sem gerðist í kringum hann. United-menn fagna stiginu á meðan Liverpool-stuðningsmenn eru pirraðir. Það var svo nóg annað að ræða eftir helgina en jólin eru besti tími ársins í enska boltanum.

Útvarpsþátturinn - Besta þarfagreiningin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. desember. Farið er í þarfagreiningu fyrir lið Bestu deildarinnar og skoðað hvar þau þurfa helst að styrkja sig fyrir tímabilið á næsta ári. Í leiðinni er farið yfir fréttir og slúður úr deildinni, rætt um skellinn sem Breiðablik fékk í Póllandi og janúarverkefni landsliðsins. Elvar Geir og Tómas Þór og Valur Gunnars. Málsmetandi aðili þáttarins er Sæbjörn Steinke.

Enski boltinn - Tryllt læti í Köben og United kveður
Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu. FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins. Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson. Spjallað er við hann um magnaðan árangur FCK, unglingaliðið sem er einnig er að ná frábærum árangri og svo auðvitað um Manchester United. Á United einhvern möguleika gegn Liverpool núna um helgina? Þá er auðvitað minnst á niðurstöðu í öðrum riðlum og dráttinn sem er framundan. Það er spilað í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í kvöld, og þá verður enski boltinn á sínum stað um helgina.

Tiltalið: Fanndís Friðriksdóttir
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Íslandsmeistara Vals og fyrrum landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Enski boltinn - Meistarasigur og tvö stórlið í brasi
Enska úrvalsdeildin heldur áfram að skemmta Íslendingum en þó mismikið eftir því hvaða liði fólk heldur með. Það var stórskemmtilegt að fylgjast með umferðinni um helgina en til þess að kryfja hana þá kom Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Síminn Sport, í heimsókn í Thule-stúdíóið í dag. Gummi og Steinke eru á sínum stað að venju en farið er yfir alla leiki helgarinnar í enska boltanum.

Ungstirnin - Frelsari Svíþjóðar og skærasta ungstirni Afríku
Í þessum 50. þætti Ungstirnanna fara þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein yfir víðan völl. Ibrahim Diarra (2006) ein skærasta stjarna Afríku. Hann skoraði 5 mörk og gerði 4 stoðsendingar á HM U-17 ára þegar að lið Malí lenti í 3.sæti og segir sagan að hann sé þegar búinn að skrifa undir samning hjá Barcelona. Lucas Bergvall (2006) er efnilegasti leikmaður Svíþjóðar um þessar mundir og einn sá efnilegasti í allri Evrópu. Lið eins og Manchester United, Barcelona, Inter Milan og RB Leipzig eru að fylgjast með kappanum. Endrick er búinn að sýna heiminum afhverju hann var keyptur til Real Madrid á 60 milljónir evra. Við erum að fá að kynnast svo mörgum stjörnum að verða til á HM U-17 ára eins og t.d. Ibrahim Diarra, Agustin Ruberto, Claudio Echeverri og Paris Brunner. Hvaða stórlið ætlar að kaupa Marcos Leonardo frá Santos eftir að þeir féllu úr brasilísku úrvalsdeildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins?

Útvarpsþátturinn - Góðir gestir á aðventunni
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. desember. Í fyrri hluta þáttarins mætir Axel Óskar Andrésson í hljóðver. Fjallað hefur verið um að þessi öflugi varnarmaður Örebro sé að hugsa um að færa sig um set. Þá mætir Aron Elís Þrándarson en hann kom heim til Víkings á liðnu sumri eftir atvinnumennsku og lét heldur betur að sér kveða áður en Víkingar lyftu bikurum tímabilsins.

Enski boltinn - Up the Villa!
Aston Villa hefur gert frábæra hluti á þessari leiktíð og er í baráttu um Meistaradeildarsæti, jafnvel um enska meistaratitilinn. Villa er sem stendur fjórum stigum frá toppnum þegar liðið mætir toppliði ensku deildarinnar, Arsenal, á heimavellii núna um helgina. Jón Haukur Baldvinsson, stuðningsmaður Aston Villa, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn en hann fer yfir velgengni Villa á þessari leiktíð og áhuga sinn á félaginu. Gummi og Steinke eru svo að venju í þættinum en farið er yfir leiki vikunnar í enska boltanum þar sem Villa vann meðal annars magnaðan sigur á Manchester City.

Gústi Gylfa um ellefu ár af Bose mótinu - Stórleikur framundan
Það eru núna ellefu ár síðan Bose-mótið var stofnað en mótið hefur verið fastur liður af undirbúningstímabilinu hér á Íslandi síðan. Fótboltaþjálfarinn Ágúst Gylfason á stóran þátt í mótinu en hann kom á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi um stofnun mótsins og þróun þess. Framundan er stórleikur þar sem erkifjendurnir Breiðablik og Víkingur eigast við í úrslitaleik. Leikurinn fer fram annað kvöld á Kópavogsvelli. Í seinni hluta þáttarins ræddi Gústi um viðskilnaðinn við Stjörnuna og sína framtíð. Umsjónarmaður þáttarins er Sæbjörn Steinke.

Á réttri leið eftir frækinn sigur í Danmörku
Ísland vann frækinn sigur gegn Danmörku í lokaleik sínum á árinu í gær. Þetta var síðasti leikur Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar en stelpurnar tóku níu stig í sex leikjum. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Magnús Hauk Harðarson, þjálfara Fjölnis, og Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Fram, í heimsókn í dag til að gera upp leik gær dagsins. Einnig var farið yfir árið í heild sinni og framhaldið. Er liðið á réttri leið eftir miklar breytingar?

Tiltalið: Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er goðsögn Fylkis sem lagði skónna á hilluna að loknu tímabilinu 2023, Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Við renndum yfir farinn veg og litum yfir ferils eins mesta harðhausar Íslenskrar knattspyrnu.

Enski boltinn - Endo-kallinn og skemmtileg heimska
Það var boðið upp á ruglaða skemmtun í ensku úrvalsdeildinni um helgina, frábæra fótboltaleiki. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Arnar Laufdal og Baldvin Már Borgarsson, erkifjendur úr 3. deild karla, í heimsókn í dag til þess að ræða um leiki helgarinnar. Farið var yfir ótrúlegan dóm í leik Manchester City og Tottenham, hugmyndafræði Ange og Kompany, magnaða endurkomu Liverpool, ömurlegt United og margt fleira.

Útvarpsþátturinn - Grindavík, Haukur Páll og samsæriskenningar
Fjölbreytt fótboltaumfjöllun í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 2. desember. Rætt er um fréttir vikunnar. Þorsteinn Halldórsson lét íþróttamálaráðherra heyra það og Blikar töpuðu á grátlegan hátt gegn Maccabi. Haukur Guðberg Einarsson formaður Grindavíkur ræðir um stöðu mála hjá fótboltanum á þessum miklu hamfara- og óvissutímum. Gestur þáttarins er Haukur Páll Sigurðsson sem ræðir um nýtt hlutverk sitt hjá Val. Þá er fjallað um enska boltann en Guðjón Heiðar Valgarðsson einn af umsjónarmönnum Álhattarins ræðir um samsæriskenningar varðandi Manchester City.

Enski boltinn - Vonin veik hjá Rauðu djöflunum
Manchester United er ekki í góðum málum í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera í slökum riðli. Einn leikur er eftir og það eru innan við tíu prósent líkur á því að United fari áfram. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn Enska boltans en í þættinum í dag er aðallega rætt um Man Utd og Meistaradeildina. Man Utd gerði 3-3 jafntefli gegn Galatasaray í mögnuðum leik á miðvikudag en úrslitin gefa United litla von í framhaldinu. Tryggvi Páll Tryggvason, stuðningsmaður Man Utd, var á línunni og ræddi um vonbrigðin í Meistaradeildinni. Hann fór einnig yfir tímabilið í heild sinni hjá United. Þá er aðeins rætt um Evrópudeildina og Sambandsdeildina ásamt því að hitað er upp fyrir komandi umferð í ensku úrvalsdeildinni.

Ungstirnin - Argentínskur efniviður
Matias Soule (2003) hefur verið að gera frábæra hluti með nýliðum Frosinone í Serie A á Ítalíu en þessum argentínska kantmanni hefur verið líkt við samlanda sinn Angel Di Maria. Soule er í eigu Juventus og er að færast nær því að spila fyrir ítalska landsliðið. Claudio Echeverri (2006) er eftirsóttur af stærstu liðum heims en þessi sóknarþengjandi miðjumaður sem spilar fyrir River Plate hefur verið að gera allt vitlaust á HM U17 sem er núna í gangi í Asíu en hann t.d. skoraði þrennu í 3-0 sigri Argentínu gegn erkifjendum sínum frá Brasilíu. Benoný Breki á leið erlendis, sextán leikmenn undir tvítugt spiluðu með meistaraflokki Stjörnunnar um helgina, Francesco Camarda næsta stórstjarna Ítala, markið fræga hjá Garnacho, og svo margt margt fleira í þætti dagsins.

Enski boltinn - Ungverjinn upplifði mikinn hita, mikla reiði og sturlað mark
Þrettánda umferðin í ensku úrvalsdeildinni lýkur í kvöld en tekið var forskot á gleðina og umferðin gerð upp í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn þáttarins. Manchester United vann útisigur á Everton og var Fótbolti.net með útsendara á vellinum. Mate Dalmay var á línunni og fór yfir stemninguna á Goodison Park. Í gær fór einnig fram stórskemmtilegur leikur á heimavelli Tottenham. Arsenal er eftir umferðina í efsta sæti deildarinnar, City og Liverpool gerðu jafntefli í stórleiknum og aftur olli Chelsea stuðningsmönnum sínum vonbrigðum.

Bjarni Mark: Hitafundir og mikil reiði
Um helgina var Start dæmt úr leik í umspilinu um að komast upp í efstu deild í Noregi. Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Bjarni fór yfir ástæðuna fyrir því af hverju Start var dæmt úr leik. Heimavöllur liðsins var frosinn og tekin var ákvörðun að kveikja ekki á hitanum undir vellinum til að spara pening. Völlurinn var ekki leikhæfur og liðið dæmt úr leik. Hann segir að hljóðið í mönnum hjá félaginu sé ekki gott, talar um mikla reiði og mikinn pirring.