
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 15 of 57

Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana
Það er núna akkúrat vika í það að Besta deild kvenna fari af stað en sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Keflavík muni enda í tíunda sæti deildarinnar. Við á Fótbolti.net munum hita upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Viðtölin eru gefin út á hlaðvarpsformi en fyrir hönd Keflavíkur mættu Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, aðstoðarþjálfari, og Kristrún Ýr Holm, fyrirliði.

Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað um sigur KR í Garðabænum og hitað upp fyrir aðra leiki umferðarinnar. Gestur þáttarins er Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari og nú meðlimur dómaranefndar KSÍ. Dómgæslan hefur verið mikið í umræðunni og ýmislegt að fara yfir.

Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla
El Jóhann, sem fer oft hamförum á X, var gestur þeirra Sæbjörns og Guðmunds í þætti dagsins. Í fyrri hluta þáttarins var áherslan á leikjunum í Meistaradeildinni í liðinni viku og svo var rætt um titilbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni í seinni hlutanum. Tvær vítaspyrnur á Emirates? Rautt á Kane? Veislan á Bernabeu og getur Mbappe komið til baka?

Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur
Innkastið eftir 1. umferð Bestu deildarinnar 2024. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp alla leiki umferðarinnar. FH átti að fá víti í Kópavogi, Gylfi geggjaður, markaregn í Árbæ, Fram vann nýliðana, KA óð í færum og Víkingar öruggir gegn Stjörnunni.

Hugarburðarbolti Þáttur 11
Kevin De Bruyne með sýningu á Selhurst Park. Kai Haverts er búinn að troða sokk ofan í gagnrýnisraddir. Ollie Watkins mættur aftur og setti tvö. Luton með gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Mögnuð saga Diljár - Næstum hætt en ætlar nú á EM með Íslandi
Diljá Ýr Zomers átti sinn besta landsleik til þessa þegar Ísland vann 3-0 sigur gegn Póllandi síðasta föstudag. Hún var frábær á kantinum og skoraði annað mark íslenska liðsins í leiknum. Um var að ræða annað markið sem Diljá gerir í ellefu A-landsleikjum, en hún spilaði sinn fyrsta landsleik á síðasta ári og hefur síðan þá unnið sér sæti í byrjunarliðinu. Diljá, sem hefur átt magnað tímabil með Leuven í Belgíu, hefur ekki alltaf fengið traustið á ferli sínum og fyrir ekki svo mörgum árum síðan var hún nálægt því að hætta í fótbolta. En í staðinn breyttist ferill hennar til hins betra á augabragði. Diljá settist niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Hollandi í dag og fór þar aðeins yfir ferilinn til þessa, og sína frekar óhefðbundnu leið í landsliðið.

Útvarpsþátturinn - Besti upphitunarþátturinn
Hitað er rækilega upp fyrir Bestu deild karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoða alla leiki fyrstu umferðar og spá í spilin fyrir deildina. Með þeim er Ingólfur Sigurðsson sérstakur sérfræðingur. Farið er yfir helstu fréttirnar í aðdraganda mótsins og heyrt í þjálfurum úr deildinni.

Niðurtalningin - Gylfi Sig mættur á Hlíðarenda
Í dag er komið að þessu. Besta deildin er að fara af stað. Í efsta sæti í spá okkar Fótbolta.net fyrir tímabilið eru Valsmenn. Jóhann Skúli Jónsson og Jóhann Alfreð Kristinsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að fara yfir stöðuna hjá Val fyrir tímabiliið sem framundan er. Þá er sjálfur Adam Ægir Pálsson á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Bara ein leið til að toppa síðasta tímabil
Þetta er að byrja! Á morgun hefst Besta deildin 2024 þegar Víkingur og Stjarnan eigast við í opnunarleiknum. Víkingum er spáð öðru sæti deildarinnar en liðið er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Símanum, og Þórður Ingason, fyrrum markvörður Víkinga, mættu í heimsókn á skrifstofu .net og fóru þar yfir stöðuna hjá Víkingum. Þá er Halldór Smári Sigurðsson á línunni í seinni hluta þáttarins en hann er orðinn titlaóður.

Hugarburðarbolti Þáttur 10
Tryllt þrenna hjá Foden og ekki sú fyrsta á tímabilinu. Cole Palmer er kóngurinn á brúnni. Alexis McAllister með einn eitt gullmarkið fyrir Liverpool. Fantasy spilarar grátt leiknir þessa umferðina. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Enski boltinn - Ekki bara bestu kaup tímabilsins
Það var spilað í miðri viku í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist í gær með tveimur leikjum. Körfuboltaþjálfarinn Hrafn Kristjánsson mætti á skrifstofu .net í dag og fór yfir umferðina ásamt Gumma og Steinke. Núna erum við að fara inn í lokasprettinn og titilbaráttan hefur sjaldan verið eins spennandi.

Niðurtalningin - Ungu strákarnir þekkja ekkert annað
Besta deildin hefst á morgun! Í þriðja sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið er Stjarnan. Hinn skemmtilegi Þorkell Máni Pétursson mætti í heimsókn á skrifstofu .net og ræddi um Stjörnuna en hann er mikill stuðningsmaður félagsins. Þá er Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Höfðinginn og Sörens hlæja að spánni
Besta deildin hefst eftir tvo daga en í fjórða sæti spá Fótbolta.net fyrir mótið er Breiðablik. Kristján Óli Sigurðsson, betur þekktur sem Höfðinginn, og Sigurjón Jónsson, Sörens, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu stöðuna hjá Blikum. Þá er Damir Muminovic, varnarmaður Blika, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Tími breytinga á Meistaravöllum
Áfram höldum við að telja niður fyrir Bestu deildina en mótið hefst á laugardaginn. Núna er komið að KR sem er spáð fimmta sæti. Sindri Snær Jensson, fyrrum markvörður KR, og íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru þar yfir stöðuna hjá Vesturbæjarstórveldinu. Þá er Elmar Bjarnason, leikmaður liðsins, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - F er fyrir fótbolta og H er fyrir Hödda Magg
Áfram höldum við að telja niður fyrir Bestu deildina en mótið hefst á laugardaginn. Í sjötta sæti í spánni er FH en feðgarnir Hörður Magnússon og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða Fimleikafélagið. Þá er markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson á línunni í seinni hluta þáttarins.

Enski boltinn - Óhefðbundið topplið
Þeir Elvar Geir og Tómas Þór, þáttarstjórnendur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, gerðu upp umferðina í ensku úrvalsdeildinni með Sæbirni Steinke. Tómas var á Etihad á sunnudeginum og sagði frá skemmtilegu atviki sem tengist Robert Pires sem einnig var á leiknum. Liverpool gat heldur betur fagnað því sigur vannst gegn Brighton og á sama tíma gerðu samkeppnisaðilarnir jafntefli í stórleiknum. Man Utd fékk á sig endalaust af skotum gegn Brentford og Chelsea gat ekki klárað tíu leikmenn Burnley. Newcastle náði ótrúlegri endurkomu gegn Hömrunum og Meistaradeildarbaráttunni er svo gott sem lokið. Þetta og miklu meira í þættinum.

Niðurtalningin - Stór prófíll norður eftir heldur rólegan vetur
Við á .net höldum áfram að opinbera hvar liðin eru í spá okkar fyrir Bestu deild karla. Það eru aðeins fimm dagar í fyrsta leik en KA er í sjöunda sæti. Haraldur Örn Haraldsson og Skúli Bragi Geirdal, stuðningsmenn KA, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna hjá Akureyrarfélaginu. Það skal tekið fram að þeirra partur var tekinn upp áður en Viðar Örn Kjartansson gengur í raðir. Svo er rætt við Ívar Örn Árnason, fyrirliða KA í seinni hlutanum.

Niðurtalningin - Þungamiðja menningar í hverfinu
Við á .net höldum áfram að opinbera hvar liðin eru í spá okkar fyrir Bestu deildar karla eftir stutt páskafrí. Það eru núna aðeins fimm dagar í að deildin fari af stað. Í áttunda sæti í spánni er Fram en Stefán Pálsson, sagnfræðingur, mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í síðustu viku og ræddi þar um sitt uppáhalds félag, ásamt Luton á Englandi. Þá er markahrókurinn Guðmundur Magnússon á línunni í seinni hluta þáttarins þar sem hann fer yfir síðasta tímabil og komandi sumar.

Hugarburðarbolti þáttur 9
Liverpool aftur á toppinn. Stórmeistarajafntefli á Etihad. Newcastle með magnaðan endurkomusigur. Spurs og Villa bæði með sigra og spennan magnast líka í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Útvarpsþátturinn - Vetrarverðlaunin og enska hringborðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. - Rætt um Bestu deildina og Vetrarverðlaunin veitt, hverjir sköruðu fram úr á undirbúningstímabilinu? - Tómas Þór segir skoðun sína á landsleiknum gegn Úkraínu. - Viðar Örn Kjartansson í símaviðtali en risastórar fréttir bárust frá Akureyri þegar hann var kynntur sem nýr leikmaður KA. - Kristján Atli mætir með enska hringborðið, þriðja fjórðungsuppgjörið og Benedikt Bóas er í beinni frá St James' Park.

Niðurtalningin - Tveir vendipunktar síðasta sumar
Það eru níu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir ÍA í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Frændurnir Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og greindu Skagamenn. Arnór Smárason, bróðir Sverris og fyrirliði ÍA, er þá á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Eitthvað nýtt og miklu stærra
Það eru tíu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir Vestra í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Fréttamaðurinn Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, goðsögn hjá félaginu, mættu til að fara yfir málin. Þá er Benedikt Warén á línunni í seinni hlutanum en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vestra fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp.

Aldrei heim - Horfum ekki á E-riðilinn á EM
Lokaþáttur Aldrei heim, markmiðið að komast á EM náðist því miður ekki. Daginn eftir tapið gegn Úkraínu fara Elvar Geir og Sæbjörn Steinke yfir leikinn og niðurstöðuna. Farið er yfir einkunnir íslenskra leikmanna, helstu umræðupunkta og framhaldið hjá liðinu. Við þökkum fyrir hlustunina á hlaðvarpsþætti okkar frá Ungverjalandi og Póllandi. Áfram Ísland!

Niðurtalningin - Hverfisstrákarnir úr Árbænum
Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Fylki fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Kristján Gylfi Guðmundsson og Þorsteinn Lár Ragnarsson, stuðningsmenn Fylkis, mættu í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru um víðan völl. Þá er Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Aldrei heim - Kjartan Henry fékk góða gjöf frá Úkraínumanni
Það er úrslitastund, leikdagur. Úkraína og Ísland mætast í Wroclaw í kvöld og stemningin í borginni eykst. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða við góða menn á leikdegi. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og Kjartan Henry Finnbogason sérfræðingur kíktu á hótelbarinn. Rætt er um stemninguna og spennuna í aðraganda leiksins, líklegt byrjunarlið, kynni Kjartans af landsliðsþjálfara Úkraínu og geðþekkan og gjafmildan Úkraínumann.

Aldrei heim - Formaðurinn í takkaskónum
Þeir Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke ræddu um atburði dagsins í hlaðvarpsþættinum Aldrei heim. Á morgun fer fram úrslitaleikur milli Íslands og Úkraínu um sæti á EM. Í dag voru fréttamannafundir liðanna og lokaæfingarnar fyrir leikinn. Farið er yfir líklegt byrjunarlið Íslands og það helsta sem kom fram á fréttamannafundunum, Í þættinum er rætt við Þorvald Örlygsson formann KSÍ um landsliðið og fyrstu vikurnar í starfi formanns.

Niðurtalningin - Sama uppskrift og í fyrra
Það er heldur betur farið að styttast í Bestu deildina en í dag eru aðeins tólf dagar í fyrstu leiki mótsins. Við á Fótbolta.net byrjuðum með spá okkar fyrir mótið í dag en þar er HK á botninum. Meðfram spánni munum við birta hlaðvörp þar sem rætt er við stuðningsmenn liða og leikmann úr hverju liði. Fyrir hönd HK mættu fjölmiðlamennirnir Ingvi Þór Sæmundsson og Andri Már Eggertsson. Svo var hringt í Leif Andra Leifsson, fyrirliða HK, og staðan tekin fyrir tímabilið sem framundan er.

Aldrei heim - Landsliðið komið til Póllands
Íslenska landsliðið flaug í dag yfir til Wroclaw í Póllandi en þar verður leikurinn gegn Úkraínu á þriðjudag, úrslitaleikurinn um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru einnig komnir yfir til Póllands og ræddu helstu umræðumálin í aðdraganda leiksins. Ferðalagið til Póllands, íslensku stuðningsmennirnir, styrkleikar úkraínska liðsins, tvífari Trossard, spurningamerki á miðsvæði Íslands, mögulegt byrjunarlið og fleira.

Útvarpsþátturinn - Jói Kalli, Bjarki Már og Elvar Geir um landsliðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er á hlaðvarpsformi þessa vikuna og var tekinn upp í dag, föstudaginn 22. mars. Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp sigur Íslands á Ísrael í gær. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari Íslands er á línunni og fer yfir leikinn með þeim. Þá er hringt í Bjarka Má Elísson landsliðsmann Íslands í handbolta sem var á leiknum í gær ásamt heimsþekktum handboltastjörnum. Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net var á leiknum og hann var einnig á línunni í símatímanum og fór yfir sína upplifun í Búdapest.

Beint frá Búdapest - Hetjan sem mátti ekki tala
Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi. Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal fyrirsögnunum en mætti ekki í viðtöl.

Beint frá Búdapest - Áfall að morgni leikdags
Það er leikdagur í Búdapest. Ísland og Ísrael mætast í kvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke spjalla um komandi leik við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann á Stöð 2 Sport og Vísi.

Viktor Unnar: Fann strax að þetta er eitthvað sem á við mig
Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins. Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum. Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir leik Vals gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær þar sem hann spjallaði um leikinn og sinn metnað í þjálfun.

Aron Jó: Cole Campbell tekur sínar eigin ákvarðanir
Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir tap Valsmanna gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Í spjallinu fór Aron aðeins yfir leikinn, komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins, nýjan samning sinn á Hlíðarenda og Cole Campbell sem ákvað nýverið að spila fyrir bandaríska landsliðið.

Hugarburðarbolti Þáttur 8
Fantasy spilarar slógu öll met um helgina. Fulham unnu Lundúnaslaginn. Burnley náðu í kærkomin og gríðarlega mikilvæg 3 stig. Man Utd unnu Liverpool eftir framlengingu í FA bikarnum í rosalegum leik. Bestu 3 í umferðinni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Beint frá Búdapest - Skiptar skoðanir á ákvörðuninni um Albert
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru staddir í Búdapest og fá Helga Sigurðsson fréttamann 433.is í spjall þar sem komandi landsleikur er skoðaður. Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Rætt er um undirbúning íslenska liðsins, æfingarnar sem búnar eru, tignarlegt hótel liðsins, Albert Guðmundsson og ýmislegt fleira.

Hákon Rafn - Umspilið og leiðin til Brentford
Sæbjörn Steinke spjallar við Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörð á hóteli íslenska liðsins í Búdapest. Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Hákon ræðir um umspilið og einnig um Brentford en hann var keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins í janúarglugganum.

Enski boltinn - Töfrar í bikarnum
Einn besti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var í gær þegar erkifjendurnir Manchester United og Liverpool áttust við í FA-bikarnum. Leikurinn var magnaður og má svo sannarlega tala um rússíbanareið. Jóhann Páll Ástvaldsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Thule-stúdíóið í dag og fóru yfir stórleikinn, sem og aðra leiki helgarinnar.

Útvarpsþátturinn - Landsliðsvalið fyrir bardagann í Búdapest
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. mars. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Sæbjörn Steinke fréttamaður Fotbolti.net er með þeim í þættinum. Landsliðsvalið er krufið og sigurmöguleikar okkar í umspilsleiknum gegn Ísrael eru skoðaðir. Einnig er rætt um komu Gylfa í Bestu deildina og aðrar fréttir íslenska boltans skoðaðar. Að auki er horft út í heim, Meistaradeildin og enski boltann. Þá er Logi Bergmann á línunni og segir frá nýrri heimildarmynd um Ásgeir Elíasson.

Hugarburðarbolti Þáttur 7
Son sá um Villa á Villa park. Tvær gullsendingar bakvarðarins Ben skiluðu þremur stigum. Man Utd með sigur og jafntefli í stórleiknum á Anfield. Semenyo frábær á Vitality vellinum. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og Hirðfíflið á sínum stað.

Gylfi mættur í Val - Lyftir deildinni upp um nokkrar hæðir
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val og ætlar sér að verða Íslandsmeistari með liðinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða þessar fréttir í sérstökum hlaðvarpsþætti sem tekinn var upp í ljósi þessara risatíðinda. Þá ræðir Sæbjörn við Börk Edvardsson formann Vals um komu Gylfa.

Enski boltinn - Yfirburðir Liverpool og ómögulegt að spá
Það var svo sannarlega um nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu eftir stórleik Liverpool og Manchester City á Anfield í gær. Leikurinn endaði með jafntefli og titilbaráttan er gífurlega spennandi. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum, er gestur þáttarins í dag. Og þá eru stór tíðindi því Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur eftir gott frí í Víetnam.

Útvarpsþátturinn - Dóri Árna og enduskoðuð Lengjuspá
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. mars. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Í fyrri hluta þáttarins: Fótboltafréttir vikunnar og Baldvin Borgars mætir með endurnýjaða ótímabæra Lengjudeildarspá. Í seinni hlutanum: Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks er gestur þáttarins og Kristján Atli hitar upp fyrir stórleikinn á Anfield.

Hugarburðarbolti Þáttur 6
Phil Foden gulls ígildi á Etihad. Það er einn krónprins í Birmingham sem heitir Ollie Watkins. Arsenal áfram á eldi og Liverpool tóku 3 stig á elleftu stundu í Nottingham eins og Hrói Höttur sjálfur. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Enski boltinn - Martraðartitilbarátta fyrir Man Utd menn
Stórleikur Manchester City og Manchester United er mikið til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Andri Már Eggertsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson eru gestir í þættinum en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir umræðunni. Yfirburðir City voru miklir í leiknum, 27 marktilraunir gegn þremur. Er það boðlegt fyrir Man Utd? Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og rætt um toppbaráttuna sem er martröð fyrir Man Utd stuðningsmenn. Að lokum var aðeins rætt um íslenska boltann en það er aðeins mánuður í að Besta deildin fari af stað.

Útvarpsþátturinn - Síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deild karla. Það er um mánuður í mót! Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingar: Baldur Sigurðsson og Valur Gunnarsson. Í þættinum fræðir Baldur okkur einnig um þætti sína, Lengsta undirbúningstímabil í heimi, og rætt er um formannskosningu KSÍ.

Einvígið gegn Serbíu: Sveindís tók yfir og Ísland áfram á meðal 16 bestu
Íslenska kvennalandsliðið vann sigur gegn Serbíu í umspili Þjóðadeildarinnar fyrr í þessari viku. Stelpurnar verða því áfram í A-deild sem skiptir máli fyrir undankeppni Evrópumótsins. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Guðna Þór Einarsson og Gylfa Tryggvason, þjálfara kvennaliðs HK, í heimsókn í dag til að fara yfir leikina tvo. Rætt var um þróun liðsins og margt fleira en Ísland er áfram á meðal 16 bestu þjóða Evrópu í kvennaboltanu.

Hugarburðarbolti Þáttur 5
Liverpool vann deildarbikarinn í spennuleik.Bowen sökkti býflugunum. Bitlausir Man Utd menn án Højlund. Arsenal menn áfram á flugi. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Útvarpsþátturinn - Henry Birgir gestur og farið yfir málin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frá laugardeginum 24. febrúar. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Henry Birgir fara yfir fótboltafréttirnar.

Enski boltinn - Allt í lagi með krakkana og lúserinn Pochettino
Liverpool vann deildabikarinn í gær eftir frábæran úrslitaleik gegn Chelsea á Wembley. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Jón Aðalsteinn Kristjánsson, þjálfari 2. flokks karla hjá Haukum, fóru yfir leikinn ásamt undirrituðum. Óskar er stuðningsmaður Liverpool og Nonni er stuðningsmaður Chelsea. Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar á Englandi en lengst af var rætt um úrslitaleikinn frá því í gær.

Hugarburðarbolti Þáttur 4
Sjóðandi heitur Hojlund. Eygypski töframaðurinn birtist þegar engin/n átti von á honum og stimplaði sig inn tímabundið. Skytturnar halda áfram að skjóta lið í kaf. Vonir margra fantasy spilara brotnuðu. Rauða spjaldið, kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.