
Fotbolti.net
2,771 episodes — Page 12 of 56

Arnar Gunnlaugsson fer vel yfir málin
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga tók símtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli Víkinga gegn Santa Coloma í Andorra í viðureign liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu. Eftir 5-0 sigur í heimaleiknum var nokkuð ljóst að leið Víkinga í deildarkeppnina væri nokkuð greið.

Tveggja Turna Tal - Fjalar Þorgeirsson
Fjalar Þorgeirs settist niður með mér og fór yfir sviðið. Hvernig var að vera leikmaður undir Ásgeiri El, Willum og Atla Eðvalds? Fjalar byrjaði þjálfaraferilinn í kampavínspartýinu í Garðabæ og upplifði drauga fortíðar bíta menn í FH. Fjalar er í dag markmannsþjálfari Íslenska karlalandsliðsins og við veltum fyrir okkur markmannsþjálfun í fortíð, nútíð og framtíð! Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á greinar, og ræðir þjálfun með gestum sýnum. Þættirnir eru á öllum helstu hlaðvarpsveitum og er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar. Njótið!

Tveggja Turna Tal - Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson settist niður með mér og fór yfir knattspyrnuferlinn og þjálfun. Sigga Ragga þykir vænt um landsliðsstelpurnar gömlu þó honum hafi sárnað viðskilnaðinn. Siggi Raggi er klár í að byrja þjálfa á nýjan leik og hjálpa KSI að bæta fótboltann á Íslandi með ýmsum hætti. Þátturinn er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.

Hugarburðarbolti GW2 Tvær þrennur og aftur -8 stig!
Cole Palmer og Nonni með sýningu gegn Úlfunum. Haaland kominn með 4 mörk í 2 leikjum. Það ættu öll að eiga einn Son. David Raya þyngdar sinnar virði í gulli og Liverpool byrja mótið mjög sannfærandi. Man Utd að gefa ódýr mörk.

Innkastið - Blikar mættir á toppinn og spenna á öllum vígstöðvum
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Breiðablik er komið á toppinn, Jón Þór fær sjaldséða gagnrýni, KA með mikilvægan sigur, Valur ekki sannfærandi en vann tíu Vestramenn, Björn Daníel funheitur og Stjarnan ekki í miklum vandræðum með HK.

Enski boltinn - Ten Hag tíminn, Noni í stuði og Guardiolabolti í Liverpool
Önnur umferðin í ensku úrvalsdeildinni var skemmtileg en hún kláraðist í gær. Orri Fannar Þórisson, þjálfari KV, og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina ásamt öllu því helsta. Manchester United tapaði enn og aftur í uppbótartíma undir stjórn Erik ten Hag, Noni Madueke talaði illa um Wolverhampton og skoraði svo þrennu og Arne Slot boltinn minnir meira á Pep Guardiola en Jurgen Klopp. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Útvarpsþátturinn - Brotnir KR-ingar, Euro-Vikes og enskt hringborð
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar; Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin eru til umræðu. Í seinni hlutanum er fjallað um upphaf ensku úrvalsdeildarinnar og sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli, kemur með sína spá um það hvernig þetta mun enda.

Hugarburðarbolti GW1 Flottir vinningar og frítt inn!
Erling Braut Haaland og Mo Salah samir við sig í fyrstu umferð. Sigurvegari umferðarinnar með 99 stiga byrjun! Kai Havertz með draumabyrjun fyrir Arsenal. Zirkzee með sigurmarkið á Old Trafford í fyrsta leiknum sínum.

Innkastið - Blikar gripu loks gæsina og vond ára yfir Val
Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Þvílík umferð að baki! Breiðablik hefur jafnað Víking að stigum á toppi deildarinnar og spennan eykst líka á öðrum vígstöðum! Lengjudeildarhornið er á sínum stað.

Enski boltinn - Nýju gæjarnir flottir og Slot grjótharður
Enska úrvalsdeildin er hafin að nýju! Nýju gæjarnir hjá Manchester United voru flottir, Slot var grjótharður í fyrsta leiknum hjá Liverpool, Arsenal byrjaði á sigri, Brighton skellti sér á toppinn og hafnaboltapælingin hjá Chelsea virkar ekki í fótbolta. Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru yfir leiki helgarinnar og helstu sögulínur. Enski boltinn er í boði Nova.

Útvarpsþátturinn - Gulli Jóns og tvíburarnir
Útvarpsþátturinn 17. ágúst. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Með þeim er Gunnlaugur Jónsson fjölmiðlamaður og fyrrum fótboltamaður. Sjónvarpsþættir um tvíburana Arnar og Bjarka, sviptingar hjá KR, sigur Breiðabliks gegn Vals, enski boltinnn og fleira til umfjöllunar.

Enski boltinn - Sá fimmti í röð hjá City?
Manchester City er að fara inn í komandi tímabil til að vinna ensku úrvalsdeildina fimmta árið í röð. Eiríkur Þorvarðarson og Magnús Ingvason mættu í heimsókn í dag til að fara yfir síðasta tímabil og komandi leiktíð hjá Englandsmeisturunum. Pep Guardiola stýrir skútunni áfram hjá City og sá maður elskar að vinna titla. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Hugarburðarbolti GW1 Pakkaferð á leik í vinning!
Enska deildin fer af stað á morgun og fórum við yfir liðin sem við ætlum að stilla upp í byrjun tímabils. Gunni og Dóri eru með nánast alveg eins lið en Vignir er með allt aðrar pælingar en þeir. Svo eru risa fréttir! TA-Sport eru gengnir til liðs með okkur og ætla að gefa sigurverara deildarinnar pakkaferð á leik í ensku úrvalsdeildinni! Við munum að sjálfsögðu halda áfram með vikulega vinninga og fullt af flottum vinningum í allan vetur svo endilega skráið ykkur í deildina það kostar ekkert og kóðinn í deildina er: zmgv1y https://tasport.is/premierferdir/

Enski boltinn - „Fagleg" umræða um Arsenal
Arsenal ætlar sér að vinna ensku úrvalsdeildina á komandi tímabili. Þetta er árið. Gunnar Birgisson og Jón Kári Eldon, tveir veikustu Arsenal stuðningsmenn landsins, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir sviðið. Umræðan var „fagleg" að þeirra mati. Arsenal hefur lent í öðru sæti síðustu tvö tímabil en ætla sér að taka gullið í ár. Jón Kári og Gunnar sætta sig við tvo titla, en vilja helst fá þrjá titla á komandi leiktíð. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Enski boltinn - Nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool
Það verður nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool á komandi tímabili; Jurgen Klopp er farinn eftir níu ára veru hjá félaginu. Í staðinn er Hollendingurinn Arne Slot tekinn við stjórnartaumunum. Atli Már Steinarsson og Magnús Haukur Harðarson, tveir grjótharðir Liverpool stuðningsmenn, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðuna eftir breytingarnar. Mun Liverpool kaupa leikmann áður en glugginn lokar? Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Innkastið - Bölvun aflétt með nýjum þjálfara og glórunni tapað
Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári. Óskar Hrafn byrjar aðstoðarþjálfaraferilinn á sigri, Skagamenn náðu aftur í sigur, Arnar Gunnlaugs urðaði yfir dómarastéttina, allir brjálaðir í Garðabæ, mistök að fara á Hlíðarenda, Lengjudeildarhornið og fleira.

Enski boltinn - Ætla aftur í hópferð til Tottenham
Tottenham er að fara inn í sitt annað tímabil með Ange Postecoglou við stjórnvölinn og menn eru bara nokkuð brattir. Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, og Ingimar Helgi Finnsson, litla flugvélin, mættu í heimsókn á skrifstofu í dag og fóru yfir stöðuna fyrir tímabilið sem er framundan. Dominic Solanke, Mikey Moore, Oliver Skipp koma við sögu í þættinum og þá ræða þeir um mögulega hópferð til Tottenham í vetur. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.

Útvarpsþátturinn - Fjósamennska í íslenska boltanum
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. ágúst. Lengjudeildin skoðuð, Kristinn Kjærnested fer yfir Bestu deildina og helstu fréttamál þaðan og Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA er á línunni frá Akranesi. Í lok þáttarins er rætt um enska boltann.

Enski boltinn - Furðulegur heimur Chelsea
Það hefur mikið gengið á hjá Chelsea í sumar, alveg eins og búist var við. Leikmenn hafa komið og farið, og það er kominn nýr stjóri. Ekkert óvænt þar. Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn. Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru aðeins yfir stöðuna hjá sínu félagi; fóru yfir furðulegan heim Chelsea.

Innkastið - Brotið mark og óútreiknanlegt liðsval
Innkastið fer yfir leiki vikunnar í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA. Brotið mark í Kórnum, tap í fyrsta leik Túfa, fjör í markalausu jafntefli, áhugamennskulegt hjá Fylki, óútreiknanlegt liðsval Jökuls og Víkingssigur í Krikanum. Einnig er rætt um Evrópuleik Víkings og Lengjudeildina.

Tiltalið: Hallbera Guðný Gísladóttir
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar áhugaverða einstaklinga úr knattspyrnunni á Íslandi bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrrum landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Leiðin á Laugardalsvöll - Einn leikur í viðbót og töfrar á Króknum
Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. Liðin sem eru komin í undanúrslit: Selfoss (2. deild) KFA (2. deild) Árbær (3. deild) Tindastóll (4. deild) Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, og Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, mættu í stúdíó í dag og fóru aðeins yfir málin. Arnar Ólafsson, hetja Tindastóls, er einnig á línunni og fer yfir ævintýrið á Sauðárkróki.

Hugarburðarbolti Upphitun
Hugarburðarbolti fór aftur á stað í kvöld með upphitun fyrir komandi tímabil. Farið var yfir breytingar á reglum í fantasy leiknum og breytingar á þættinum þar sem nýr sérfræðingur gekk til liðs við félaganna. Sérfræðingarnir fóru yfir nokkur ráð fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Palmer fékk mestu hækkun sem leikmaður hefur fengið á milli tímabila og er fyrsta pikkið hans Vignirs. Vignir hlær að því að Gunni og Dóri séu ekki með neina Arsenal menn í sínum liðum eins og er og þeir reyna að færa rök fyrir afhverju.

Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi á færibandi
Þetta var ótrúleg fréttavika í íslenska fótboltanum. Elvar Geir og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Risafréttir í þjálfaramálunum á Íslandi, Evrópuleikir, heimkoma Arons Einars, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira. Þátturinn er auðvitað í verslunarmannahelgargírnum og heyrt er í Tom í Herjólfi, Steinke á Akureyri, Páli Sævari um KR og Kela í París.

Enski boltinn - Man Utd aftur í Meistaradeildina
Manchester United endaði síðasta tímabil vel og nokkur ánægja er með félagaskiptagluggann til þessa og frekari liðsstyrkur er orðaður við félagið. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon eru djúpir í United fræðunum og fóru yfir hópinn, sumarið og spáðu í spilin með Sæbirni Steinke. Hvar þarf að styrkja hópinn frekar? Hverjir geta komið inn? Hverjir eru á förum? Ungir leikmenn sem gætu komið inn í hlutverk og fleira skemmtilegt til umræðu. Þá er einnig horft í hin toppliðin og félagaskiptagluggann almennt.

Túfa tekur aftur til starfa á Hlíðarenda: Þetta gerðist allt mjög hratt
Það var tilkynnt seint í gærkvöldi að Arnar Grétarsson hefði verið látinn taka pokann sinn hjá Val. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa. Tíðindin komu nokkrum klukkutímum eftir að Valur hafði tapað gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Túfa hefur síðustu árin þjálfað Öster og Skövde í B-deild Svíþjóðar. Áður en hann hélt út, þá var hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val og aðalþjálfari KA og Grindavíkur. Túfa ræddi við Fótbolta.net í dag um nýja starfið sitt. „Ég er bara góður og mjög spenntur fyrir verkefninu. Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið. Ég er byrjaður að vinna. Ég mætti á Hlíðarenda snemma í dag og byrjaði vinnuna mína," sagði hann.

Innkastið - VÖK opnar reikninginn og Valur hræðist toppinn
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sverrir Örn. VÖK opnaði markareikninginn, KR bjargaði stigi, Framarar komu úr fríi og skelltu Valsmönnum, slæmt tap ÍA og FH heldur áfram að gera góða hluti. Lengjudeildarhornið, Evrópa og fleira.

Útvarpsþátturinn - Gluggaslúður, Evrópa og þeir bestu í 2. deild
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. júlí. Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Sæbjörn Steinke er á línunni frá Akureyri. Misjafnt gengi íslensku liðanna í Evrópu, gluggaslúður, Óskarlistinn, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira. Í seinni hlutanum er rætt um 2. deild karla og hverjir hafa verið bestu leikmenn deildarinnar í sumar? Brynjar Kristmundsson þjálfari Víkings í Ólafsvík kemur í heimsókn.

Enski boltinn - Nýir vindar og erfitt að spá í spilin
Sumarglugginn er galopinn í enska boltanum og nokkuð áhugavert í gangi þó þetta hafi nú verið frekar rólegt lengi vel. Man Utd farið að haga sér eins og fótboltafélag, læti og nýr stjóri hjá Chelsea, Arne Slot tekinn við af kóngnum hjá Liverpool, City ætlar að vinna fimmta árið í röð, Arsenal sækir hinn sjóðheita Calafiori, Tottenham fær tvo bráðefnilega og Aston Villa að gera mjög skemmtilega hluti. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Harald Örn Haraldsson og Sölva Haraldsson í heimsókn í dag til að taka aðeins stöðuna þegar það eru akkúrat þrjár vikur í fyrsta leik í deildinni.

Innkastið - Falldraugurinn færist nær KR og Víkingar eru valtir
Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar (sem er þó ekki alveg búin vegna kerfisvillunnar). Fjör í Kópavoginum þar sem Breiðablik vann fallbaráttulið KR og Víkingur tapaði gegn funheitum KA-mönnum. Lengjudeildarhornið en það er líka farið niður í 2. og 3. deild. Svo er það blessuð Sambandsdeildin. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Baldvin Borgars.

Útvarpsþátturinn - Ferðasögur og fótboltafréttir
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar. Íslensku liðin í Evrópu, Besta deildin, félagaskipti og Lengjudeildin. Börkur formaður Vals er í beinni frá Albaníu, Tom segir ferðasögu frá Dublin og Jökull þjálfari Stjörnunnar er á línunni. Þá er einnig farið yfir erlendar fréttir.

Einn stærsti sigur í fótboltasögu Íslands og leiðin liggur til Sviss
Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM eftir frábæran landsliðsglugga. Stelpurnar unnu magnaðan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og unnu í kjölfarið 0-1 sigur gegn Póllandi. Þær lentu í öðru sæti sínum og fara beint á EM. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, komu við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um stöðu kvennalandsliðsins og Evrópumótið sem er framundan.

Innkastið - Vítavert klúður Víkings
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Þórir Matthíasson. Rætt er um dramatíkina í Dublin þar sem Shamrock Rovers vann Víking í forkeppni Meistaradeildarinnar. Frammistaða Víkings í einvíginu voru gríðarleg vonbrigði. Farið er yfir síðustu leiki Bestu deildarinnar og einnig er rætt um Evrópuleikina framundan og Lengjudeildina.

Leiðin á Laugardalsvöll - Baddi um Árbæ og markamaskína í spjalli
Leiðin á Laugardalsvöll heldur áfram á miðvikudaginn þegar 16-liða úrslitin í Fótbolta.net bikarnum verða leikin í heild sinni. Það eru nokkrir mjög svo áhugaverðir leikir framundan en við hitum upp í dag með því að spjalla við Baldvin Má Borgarsson, þjálfara Árbæjar. Hans menn hafa verið að gera flotta hluti í 3. deildinni en þeir mæta Víkingi Ólafsvík, sem er í þriðja sæti í 2. deild, á miðvikudag. Svo hringjum við til Húsavíkur þar sem markamaskínan Jakob Gunnar Sigurðsson er á línunni. Jakob Gunnar er aðeins 17 ára gamall en hann hefur farið á kostum í sumar. Völsungur mætir Haukum, en Jakob gerði þrennu í síðasta leik á Ásvöllum.

EM hringborðið - Fótboltinn sigraði þó hann hafi ekki komið heim
Spánverjar eru Evrópumeistarar eftir skemmtilegan úrslitaleik gegn Englandi. Fótboltinn kom ekki heim að þessu sinni. En það má klárlega segja að fótboltinn hafi sigrað því besta lið mótsins vann. Axel Óskar Andrésson og Eyþór Aron Wöhler, leikmenn KR, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða úrslitaleikinn og gera upp mótið á léttum nótum.

Útvarpsþátturinn - Boltinn með Binna Gests og FIFPro
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Brynjar Gestsson fótboltaþjálfari og er víða komið við í spjalli við hann. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Evrópuleiki íslensku liðanna, Bestu deildina og fleira. Þá koma formenn frá FIFPro alþjóðlegu leikmannasamtökunum í spjall seinni hluta þáttarins.

EM hringborðið - Efnilegar stórstjörnur og spennandi úrslitaleikur
Úrslitaleikurinn á Evrópumótinu fer fram á sunnudaaginn en undanúrslitin kláruðust í gær. Það eru England og Spánn sem munu mætast í úrslitaleiknum. Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnarsson fóru yfir undanúrslitin og úrslitaleikinn í EM hringborðinu í dag. Lionel Messi baðaði nýju stórstjörnu heimsfótboltans, Kylian Mbappe átti hauskúpumót og Southgate fer aftur í úrslitaleikinn með Englandi en nær hann að taka gullið núna? Kobbie Mainoo er með eitursvalt höfuð og Ollie Watkins sigurmarkið var magnað augnablik.

EM hringborðið - Undanúrslitin hefjast í kvöld
Komið er að undanúrslitunum á EM. Fyrri viðureignin fer fram í kvöld, þriðjudagskvöld, þegar Spánn mætir Frakklandi og annað kvöld mætast England og Holland. Til þess að gera upp mótið til þessa, og aðallega 8-liða úrslitin, komu þeir Birkir Björnsson og El Jóhann í stúdíó Fótbolta.net og ræddu við Sæbjörn Steinke. Hvernig gengu taktísku breytingar Southgate upp? Toni Kroos kvaddi og Ronaldo lék sinn síðasta leik á EM. Víti eða ekki víti á Cucurella og einn skemmtilegasti leikur mótsins þegar Holland kom til baka gegn Tyrkjum. Þetta og margt fleira var rætt í þættinum.

Innkastið - Skagahátíð og Lengjuuppgjör 1-11
Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Í seinni hluta þáttarins er uppgjör á umferðum 1-11 í Lengjudeildinni; úrvalslið og ýmis verðlaun. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir leikina og helstu fréttir úr íslenska boltanum.

Tiltalið: Úlfur Ágúst Björnsson
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður FH og Duke Blue Devils Úlfur Ágúst Björnsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Útvarpsþátturinn - Kjartan Henry, EM og íslenski
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Rætt er um EM og íslenska boltann en gestur er Kjartan Henry Finnbogason aðstoðarþjálfari FH og EM sérfræðingur. Einnig er Ögmundur Kristinsson nýr markvörður Vals á línunni frá Aþenu og Anton Freyr fréttamaður Fótbolta.net er á írskum dögum á Akranesi.

EM hringborðið - Systurnar fara yfir 16-liða úrslitin
Í gær kláruðust 16-liða úrslitin á Evrópumótinu og er það ljóst núna hvernig átta-liða úrslitin verða. Það var margt áhugavert sem gerðist í 16-liða úrslitunum: Bellingham var ótrúlega lélegur en var samt hetja leiðinlegra Englendinga, Ronaldo grét þegar mikið var eftir, Þjóðverjar fóru áfram eftir VAR-leikinn mikla, Spánverjar eru ofboðslega skemmtilegir og Frakkar eru þéttir til baka. Systurnar Ásta Eir og Kristín Dís Árnadætur komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir 16-liða úrslitin og framhaldið.

Útvarpsþátturinn - Innkastið í beinni á X977
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní. Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking. Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.

EM hringborðið - Riðlunum lokið og útsláttarkeppni framundan
Riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi er lokið og framundan eru 16-liða úrslitin. Almarr Ormarsson og Adda Baldursdóttir, sem eru bæði að vinna í kringum mótið fyrir RÚV, komu í heimsókn í dag og ræddu um riðlakeppnina og 16-liða úrslitin sem eru framundan. Það verður áhugavert að sjá hvernig mótið þróast en 16-liða úrslitin hefjast á laugardaginn.

Innkastið - Blikar brugðust og lið umferða 1-11
Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp 11. umferð Bestu deildarinnar. Blikum tókst ekki að fara á toppinn, KR mætti með varnarleikinn að vopni og náði í stig gegn Víkingi og markvörður Vestra var í vandræðum gegn Val. Í þættinum er opinberað val á liði umferða 1-11, besta leikmanninum, besta þjálfaranum, besta unga leikmanninum og besta dómaranum.

Útvarpsþátturinn - Freysi og kraftaverkið í Kortrijk
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Freyr Alexandersson þjálfari Kortrijk er gestur þáttarins. Víða er komið við í spjalli við Frey en hann náði á magnaðan hátt að halda liðinu uppi í belgísku úrvalsdeildinni þegar nær allir voru búnir að útiloka það. Hvernig fór hann að því? Einnig er rætt um landsliðið, Bestu deildina, EM og fleira.

EM hringborðið - Lárus Orri og Óðinn Svan ræða fyrstu vikuna
Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti. Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni. Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þá tók Lárus Orri góða ræðu um VAR en hann vill fá myndbandstæknina til Íslands sem allra fyrst. Þátturinn var tekinn upp fyrir leik Spánar og Ítalíu

Innkastið - Gregg rekinn og deildin opnast upp á gátt
Innkastið eftir 10. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og markvarðasérfræðingurinn Runólfur Trausti. Runólfur er stuðningsmaður KR en í morgun var staðfest að Gregg Ryder hefði verið rekinn. Það er fyrsta mál á dagskrá þáttarins. Þá er farið yfir alla leiki umferðarinnar, þar á meðal stórskemmtilegan toppslag Vals og Víkings. Deildin er galopin á toppi og botni.

Útvarpsþátturinn - Bestu og verstu kaupin í Bestu, bikarinn og EM
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní. Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira. Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint að EM. Björn Már Ólafsson sérfræðingur í ítalska boltanum rýnir í liðið sem ríkjandi Evrópumeistarar senda á mótið.

Leiðin á Laugardalsvöll - Ástríðan í Fífunni og Bjarni Jó í viðtali
Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn. Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar. Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum. Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka þátt í þessu móti í fyrsta sinn.