PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,771 episodes — Page 10 of 56

Tveggja Turna Tal - Kári Ársælsson

Kári Ársælsson er fyrsti fyrirliði Breiðabliks til að lyfta Íslands og Bikarmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í fótbolta. Það gerði hann á lágmarkslaunum!Kári var 16 ára keyptur af Ásgeiri Elíassyni í Þrótt þar sem hann sat stundum á bekknum þegar Þróttarar féllu úr efstu deild eftir að hafa verið efstir eftir fyrri umferðina. Hann stundaði nám í Alabama í Bandaríkjunum og er þekktur "trash talker" meðal fótboltamanna.Við ræddum þetta allt og miklu fleira þegar við fórum yfir feril Kára - sem er áhugaverður.

Dec 23, 2024

Enski boltinn - Björn Bragi gestur og svört jól í Manchester

Síðustu leikirnir fyrir jól í ensku úrvalsdeildinni voru leiknir núna um helgina. Síðasti leikurinn var stórslagur Tottenham og Liverpool sem endaði með mikilli markasúpu. Það verða svört jól í Manchester þar sem bæði City og United eru í slæmum málum. Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Björn Bragi Arnarsson er sérstakur gestur þáttarins en hann hefur verið að gera virkilega skemmtilega hluti að undanförnu; í spurningaþáttunum Kviss og í uppistandssýningunum Meiri Púðursykur. Hann var þá að gefa út ný spil fyrir jólin, Pöbbkviss 4 og Krakkakviss 4. Björn Bragi er stuðningsmaður Tottenham en hann fer yfir leikina helgarinnar ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni og Magnúsi Hauki Harðarsyni.

Dec 22, 2024

Hugarburðarbolti GW 17 Liverpool á toppnum um jólin! Er Pep ráðalaus?

Össi Árna mætti sem gestur í þáttinn. Manchester liðin halda áfram að tapa leikjum. Allt galopið á Tottenham Hotspur Stadium. Liverpool á toppnum yfir jólin. Nottingham Forest liðar áfram á góðu róli í 4.sæti deildarinnar. Sigur í fyrsta leik Vitor Perreira með Úlfana á King Power. Og Alexander Isak sökkti nýliðum Ipswich með snyrtilegri þrennu á Portman Road.

Dec 22, 2024

Útvarpsþátturinn - Ari Sigurpáls, Gísli Gotti og landsliðsþjálfaraleit

Jólaþáttur Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. desember. Gestir eru svo Ari Sigurpálsson og Gísli Gottskálk Þórðarson, hinir ungu leikmenn Víkings. Fjallað er um Evrópuævintýri Víkinga sem ætlar engan enda að taka og rætt við þá um tímabilið, framtíðina, lífið utan vallar, enska boltann og fleira. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal landsliðsþjálfaraleitina. Hver er núna líklegastur til að taka við landsliðinu og hvaða þrjú eru það sem sjá um leitina?

Dec 21, 2024

Tveggja Turna Tal - Grétar Sigfinnur Sigurðarson

Grétar Sigfinnur Sigurðarson er margfaldur Íslands og bikarmeistari í fótbolta. Vinir hans nefna hann þann vanmetna því hann er raðsigurvegari sem þó hefur ekki alltaf fengið það hrós sem hann á skilið. Við fórum yfir ferilinn, Grétar sagði sögur af mönnum og málefnum auk þess sem hann lýsir einstöku hugarfariþGrétar þurfti að fara krókaleið til að komast í KR-liðið, upplifði mikla höfnum þar en endaði alltaf uppi sem sigurvegari. Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Budvar, Visitor og Lengjunni fyrir samstarfið og hlökkum mikið til að gefa ykkur jólagjöf ársins!Njótið vel!

Dec 19, 2024

Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Fylkir vs Fótbolti.net

8 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fylki og Fótbolti.net. Fyrir Fylki keppti Ragnar Bragi Sveinsson en fyrir Fótbolti.net keppti Stefán Marteinn Ólafsson.

Dec 18, 2024

Hugarburðarbolti GW 16 Er Amad Diallo næsta ofurstjarna Man Utd?

Amad Diallo kláraði Man City í borgarslagnum á Etihad. Chelsea setur pressu á Liverpool þar sem Fulham náði í sterkt stig á Anfield. Arsenal ráðalausir gegn Everton á heimavelli. Crystal Palace fyrstir til að leggja Brighton í Brighton. Bæði Gary O'neil og Russel Martin voru reknir um helgina.

Dec 17, 2024

Enski boltinn - Ótrúlegt hrun Man City, óskarsverðlaunadýfa og tveir reknir

Það var nóg um að ræða eftir leiki helgarinnar í enska boltanum. Ótrúlegt hrun Manchester City hélt áfram er þeir töpuðu gegn nágrönnunum í United í gær, Arsenal og Liverpool töpuðu stigum á meðan Chelsea heldur áfram að vinna. Þá voru tveir stjórar reknir. Jón Kaldal og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin ásamt Guðmundi Aðalsteini.

Dec 16, 2024

Tveggja Turna Tal - Helgi Jónas Guðfinnsson

Helgi Jónas Guðfinnsson á um margt áhugaverðan feril. Hann varð Íslandsmeistari í körfubolta með Grindavík bæði sem leikmaður og þjálfari og varð svo í haust Íslandsmeistari í fótbolta sem lykilmaður í þjálfarateymi Breiðabliks. Hann var atvinnumaður í körfubolta, spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild í knattspyrnu 26 ára, hannaði Metabolic æfingakerfið og hefur skrifað bækur! Það er augljóst að Helgi Jónas er djúpur í þekkingu sinni á styrktarþjálfun, við ræddum þesskonar þjálfun og margt fleira. Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Budvar, Visitor og Lengjunni fyrir frábært samstarf á árinu. Ykkur kæru vinir fyrir hlustunina og skilaboðið. Áfram veginn. Njótið

Dec 16, 2024

Útvarpsþátturinn - Arnór Smára, Júlli Magg og fréttir vikunnar

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. desember. Tómas Þór og Benedikt Bóas stýrðu þættinum í dag en Elvar Geir er í fótboltaferð í Þýskalandi. Arnór Smárason sem spilaði með ÍA í sumar en lagði svo skóna á hilluna var í vikunni ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Val. Hann kíkti í heimsókn og spjallaði við þá Tómas og Benedik Bóas. Landsliðsmaðurinn Júlíus Magnússon sem spilar með Fredrikstad í Svíþjóð og er nýkrýndur bikarmeistari kom líka í heimsókn en norska deildin er í komin í frí. Einnig var farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum að venju.

Dec 14, 2024

Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Stöð 2 vs Þungavigtin

8 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Stöð 2 og Þungavigtinni. Fyrir Stöð 2 keppti Valur Páll Eiríksson en fyrir Þungavigrtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.

Dec 11, 2024

Hugarburðarbolti GW 15 Cole Palmer bætti met!

Cole Palmer sýning á Tottenham Hotspur Stadium. Bætti met Yaya Toure með því að skora úr 12 vítum í röð. Það er farið að hitna sætið hjá Big Ange hjá Spurs. Flottur Mbeumo gegn Newcastle í 4-2 sigri. Bæði Man City og Arsenal misstigu sig um helgina. Man Utd töpuðu á heimavelli gegn Forest. Og Everton - Liverpool var frestað vegna óveðurs.

Dec 10, 2024

Enski boltinn - Óreiða á Old Trafford og stærstu mistök Guardiola

Óreiðan á bak við tjöldin hjá Manchester United er augljós en Dan Ashworth, sem hafði starfað sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, var rekinn eftir tap gegn Nottingham Forest um síðastliðna helgi. Menn virðast ekki vera að ganga í sama takt á Old Trafford en hjá Chelsea er allt í blóma þessa stundina. Er ekki hægt að fullyrða að Cole Palmer sé næst besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar? Frestað var hjá Liverpool og Everton, City og Arsenal missteigu sig og það eru nokkrir stjórar í heitu starfi. Orri Fannar Þórisson og Magnús Haukur Harðarson gerðu upp helgina í enska boltanum ásamt Guðmuni Aðalsteini.

Dec 10, 2024

Tveggja Turna Tal - Teitur Þórðarson

Gestur vikunnar er Teitur Þórðarson. Teitur breytti þjálfunaraðferðum í knattspyrnu í Noregi, á Íslandi og í Eistlandi. Hann þjálfaði líka í Kanada og spilaði í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Teitur hefur flutt 27 sinnum! Teitur var frábær leikmaður. Stór, sterkur og fljótur með ríkt dugnaðargen í skrokknum. Við fórum yfir fullt af hlutum. Árin í Noregi, hvernig það var að spila undir Arsene Wenger og hvað skiptir máli til að ná árangri og margt fleira. Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitnessport, Visitor og Budvar fyrir að vera með okkur í liði. Njótið!

Dec 9, 2024

Útvarpsþátturinn - Stjörnumaðurinn Andri og Elías um brjálæðið á Skaganum

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. desember. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar og fá svo tvo góða gesti í heimsókn. Andri Rúnar Bjarnason kvaddi Vestra og gekk í raðir Stjörnunnar nýlega. Elías Ingi Árnason dómari ræðir um dómgæsluna og mistökin sín sem gerðu Skagamenn bálreiða.

Dec 7, 2024

Hugarburðarbolti Þáttur 15 GW14 Er Mo Salah besti knattspyrnumaður heims?

Þvílík skemmtun á St.Jamse's Park í 3-3 trylli. Fyrsta tap Ruben Amorim kom á Emirates gegn Arsenal. Ollie Watkins var sterkur gegn Brentford. Lopetegui verður að vinna næsta leik annars missir hann starfið hjá West Ham. Bournemouth lagði Tottenham á suður ströndinni 1-0 og Fulham sigraði Brighton.

Dec 6, 2024

Enski boltinn - Er Ödegaard þá Charlie Adam?

Arsenal fór með sigur af hólmi gegn Manchester United í gær og var það fyrsta tap Rúben Amorim sem stjóra United. Hornspyrnurnar fóru illa með Man Utd. Arsenal hefur verið kallað hið „nýja Stoke City" eftir sigurinn en það er fyndinn samanburður. Liverpool gerði þá 3-3 jafntefli við Newcastle í ótrúlegum leik, Chelsea spilaði blússandi sóknarbolta og Manchester City komst aftur á sigurbraut. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Haraldur Örn fóru yfir síðustu leiki og sögulínur í enska boltanum.

Dec 5, 2024

Tveggja Turna Tal - Kristján Ómar Björnsson

Gestur dagsins er Kristján Ómar Björnsson. Kristján Ómar er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu með skráða 531 mótsleiki hjá KSI auk þess sem hann spilaði í Svíþjóð, geri aðrir betur! Kristján Ómar stofnaði Nú skólann í Hafnarfirði þar sem hann er Heilsustjóri. Við fórum yfir víðan völl! Kristján valdi bestu leikmenn sem hann hefur spilaði með, besta þjálfarann, fór yfir um 30 ára meistaraflokksferil og kynnti mig fyrir stefnu skólans sem hann stofnaði.Við þökkum Nettó, Hafinu fiskverslun, Netgíró, Visitor, Fitness sport, Netgíró og Budvar fyrir samstarfið góða og vonum að þið hafið jafn gaman að og ég við hlustunina. Njótið!

Dec 5, 2024

Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Afturelding vs RÚV

8 liða úrslitin eru hafin og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Aftureldingu og RÚV. Fyrir Aftureldingu keppti Arnór Gauti Ragnarsson en fyrir RÚV keppti Jóhann Páll Ástvaldsson

Dec 4, 2024

Tveggja Turna Tal - Ívar Ingimarsson

Fyrri gestur vikunnar er Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson. Ívar var farinn að spila með meistaraflokki fyrir fermingu á Stöðvarfirði þar sem hann náði í menn í frystihúsið til að spila við sig sem krakki. Við fórum yfir feril Ívars á hundavaði. Þar segir frá dagbókarskrifum, seiglu ungs drengs og ákveðni. Einnig ræddum við lausagöngu sauðfjár og nú er þáttastjórnandi kominn í spjallhóp á facebook um efnið.. Þessi þáttur er fyrir ungt íþróttafólk, fullorðið fólk og allt þar á milli. Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitness sport , Visitor og Budvar fyrir að vera með okkur í liði. Þið hafið fengið viku til að hlusta á hvern þátt. Nú mælum við með að stilla á hraða 1.5 því því þættirnir verða tveir í viku í þessum mánuði - svo tökum við stöðuna. Njótið!

Dec 2, 2024

Hugarburðarbolti Þáttur 14 Liverpool óstöðvandi!

Liverpool í gírnum gegn City! City í dýpstu lægð í stjóra tíð Guirdiola. Óvænt hetja Brentford manna gegn Leicester. Vítaþrenna Justin Kluivert gegn Wolves á útivelli! Marka veisla í fyrri hálfleik hjá West Ham og Arsenal. Góðir heimasigrar hjá Man Utd og Chelsea.

Dec 1, 2024

Enski boltinn - Hvers konar vél er hann eiginlega búinn að smíða?

Arne Slot er búinn að búa til hreint út sagt ótrúlega vel á mettíma hjá Liverpool. Liverpool vann 2-0 sigur gegn Manchester City í dag og það er erfitt að sjá annað en að þeir verði Englandsmeistarar. Allavega eins og staðan er núna. Davíð Eldur, stuðningsmaður Manchester City, kom í heimsókn í kvöld og fór yfir vandamálin hjá City en hans menn eru í dimmum dal þessa stundina. Hann fór yfir stórleikinn og aðra leiki helgarinnar með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki.

Dec 1, 2024

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn Þorvaldsson

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, er sérstakur gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net þessa vikuna. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Óskar um verkefnið hjá KR og ýmislegt fleira. Í seinni hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar.

Nov 29, 2024

Hugarburðarbolti Þáttur 13 GW12 Man City tapaði fimmta leiknum í röð!

Liverpool á siglingu og eru með 8 stiga forskot í deildinni. Versti kafli Man City í 18 ár þegar þeir töpuðu fimmta leik sínum í röð! Áhyggjuefni fyrir nýjan stjóra Man Utd Ruben Amorim. Tottenham yrðu meistarar ef þeir myndu bara spila 38 leiki gegn Man City. Brighton með jafn mörg stig og Arsenal og Chelsea eftir 12.umferðir.

Nov 26, 2024

Enski boltinn - Stór frumraun, Púlarar í skýjunum og meistarar í dimmum dal

Það var mikil eftirvænting fyrir frumraun Rúben Amorim hjá Manchester United. En honum er eflaust ljóst núna að hann á langan veg framundan. Man Utd gerði 1-1 jafntefli við Ipswich í fyrsta leik Portúgalans en fyrr í dag jók Liverpool forskot sitt á toppnum í átta stig. Það er orðið kalt á toppnum. Og svo er það Manchester City. Hvað er í gangi þar? Guðmundur Aðalsteinn, Hilmar Jökull og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin á sunnudagskvöldi.

Nov 24, 2024

Útvarpsþátturinn - Ísland, fréttaflóð úr Bestu og Viktor Örn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir landsliðið og fréttaflóðið úr Bestu deildinni þar sem félögin keppast um að styrkja sig. Gestur þáttarins er Íslandsmeistarinn Viktor Örn Margeirsson sem átti frábært tímabil með Breiðabliki og var valinn í lið ársins.

Nov 23, 2024

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Fylkir vs MBL

Þetta er síðasti þátturinn í 16-liða úrslitum og eftir þennan þátt er það ljóst hverjir munu taka þátt í 8-liða úrslitunum. Í þessum þætti tekur Haraldur Örn á móti Ragnari Braga Sveinssyni sem keppir fyrir Fylki og Jóhanni Inga Hafþórssyni sem keppir fyrir MBL.

Nov 21, 2024

Innkastið - Eigum að gera okkur vonir um HM 2026

Ísland endaði í þriðja sæti í riðli sínum í Þjóðadeildinni eftir 1 - 4 tap gegn Wales í gær. Sjö stig en þau hefðu átt að vera miklu fleiri miðað við frammistöðuna. Baldvin Már Borgarsson og Haraldur Örn Haraldsson settust niður með Guðmundi Aðalsteini og fóru yfir landsleikjagluggann. Einnig rætt lengi um Age Hareide og hans framtíð sem landsliðsþjálfara. Næst er það undankeppni HM 2026 og þó það sé ekki búið að draga, þá megum við leyfa okkur að vona. Liðið er spennandi, en þá aðallega framarlega á vellinum.

Nov 20, 2024

Tveggja Turna Tal - Nik Chamberlain

Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar! Nik kom til Íslands og spilaði á Álftanesi og ÍH áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF. Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvennaliði Þróttar og var á haustmánuðum Íslandsmeistari með Breiðabliki. Við fórum yfir margt. Meðal annars það að Breiðablik á að hafa sent Big Sexy í klippingu, hræðilegan tónlistarsmekk og tígulmiðjuna góðu ásamt því sem Nik valdi bestu leikmenn í sögu þjóðar kvennamegin! Við í Turnunum þökkum okkar traustu bakhjörlum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fiskversluninni Hafið, Fitness Sport og Tékkanum Budvar ásamt Visitor ferðaskrifstofu. Njótið!

Nov 18, 2024

Útvarpsþátturinn - Máni fer um víðan völl

Það er landsleikjagluggi og þáttur vikunnar litast að sjálfsögðu af honum. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stjórnartaumana og með þeim er Máni Pétursson sérstakur gestur og fer yfir helstu mál.

Nov 16, 2024

Frá Akranesi til Gana: Fer aftur með fótboltabúnað fyrir jólin

Hin ganverska Samira Suleman safnar nú fótbolta- og íþróttabúnaði sem hún fer með til Gana um jólin. Samira gerði þetta líka um síðustu jól en hún fór þá með mikið magn af treyjum, skóm og öðrum búnaði í heimabæ sinn og gladdi þar mörg börn sem eiga ekki fyrir slíkan búnað. Fyrir börnin skiptir þetta gríðarlega miklu máli en í Gana er ekki sjálfsagt mál að eiga fótboltaskó og aðra hluti til fótboltaiðkunnar. Samira sjálf spilaði fótbolta í skólaskónum sínum þegar hún var yngri en hún er mikil fyrirmynd fyrir unga krakka í heimalandi sínu. Hún varð atvinnukona á Íslandi og er núna að stíga sín fyrstu skref í þjálfun á Akranesi. Hún ætlar sér langt í þeim bransa og ætlar þannig að brjóta fleiri múra. Hún vonast til þess að fá hjálp við að láta drauma rætast hjá börnum í Gana um jólin. Fólk getur haft samband við hana eða knattspyrnufélagið ÍA til að leggja sitt af mörkum með því að gefa fótboltadót eða með því að styrkja ferðalag hennar heim með allt dótið fyrir börnin í heimabæ sínum.

Nov 14, 2024

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Víkingur vs Íþróttavikan

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Víking og Íþróttavikunni. Fyrir Víkinga keppti Davíð Örn Atlason en fyrir Íþróttavikuna keppti Hrafnkell Freyr Ágústsson.

Nov 13, 2024

Hugarburðarbolti GW12 Man City tapaði fjórða leiknum í röð!

Man City tapaði fjórða leiknum í röð í öllum keppnum! Liverpool eru í góðum gír með 5 stiga forskot á City. Yoane Wissa drjúgur fyrir Brentford eftir meiðslin. Joao Pedro með alvöru innkomu hjá Brighton! Bruno Fernandes kom loksins með frammistöðu og Sammie Szmodics afgreiddi Tottenham í London.

Nov 12, 2024

Enski boltinn - Liverpool er bara besta lið Evrópu

Liverpool stuðningsmenn eru í skýjunum þessa dagana en það er óhætt að fullyrða að liðið þeirra sé það besta í Evrópu um þessar mundir. Hvern hefði grunað það fyrir tímabilið? Útvarpsmennirnir Bolli Már Bjarnason og Heiðar Austmann komu í heimsókn í dag og fóru yfir tímabilið hjá Liverpool til þessa en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot. Þá var einnig farið yfir aðra leiki helgarinnar; tíma Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United, vandræði Manchester City og margt fleira.

Nov 11, 2024

Tveggja Turna Tal - Jóhann Birnir Guðmundsson

Gestur vikunnar er Jóhann Birnir Guðmundsson, eðalnáungi. Jói æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem  kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíkur, yfirþjálfari Keflavíkur, afreksþjálfari hjá FH og er nú þjálfari ÍR í Lengjudeildinni.Jói er næst ruglaðisti aðdáandi Man United á Íslandi, rétt á eftir mömmu sinni og er Cristiano Ronaldo kallaður Krissi bróðir í daglegu tali í Garðinum.

Nov 11, 2024

Útvarpsþátturinn - Kári Árna, Evrópuvelgengni Víkings og landsliðið

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Fjallað er um helstu fréttir úr íslenska boltanum, Evrópuvelgengni Víkings og íslenska landsliðið sem býr sig undir leiki gegn Svartfjallalandi og Wales í Þjóðadeildinni.

Nov 8, 2024

Fékk traustið áfram og gerði KA að bikarmeisturum

Sæbjörn Steinke ræddi í vikunni við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, og gerði upp nýliðið tímabil með honum. KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins og endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar. Stigasöfnunin var lítil í byrjun móts og hugsuðu einhverjir hvort KA þyrfti hreinlega að skipta um þjálfara. Það var ekki gert og gengi liðsins batnaði til muna, við tók kafli þar sem KA tapaði ekki í ellefu leikjum í röð og var nálægt því að ná sæti í efri hluta deildarinnar.

Nov 8, 2024

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Breiðablik vs Þungavigtin

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Breiðablik og Þungavigtinni. Fyrir Breiðablik keppti Höskuldur Gunnlaugsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.

Nov 6, 2024

Hugarburðarbolti - Liverpool aftur á toppinn!

Liverpool aftur á toppinn eftir magnaðan leik á Anfield Road gegn Brighton. Man City og Arsenal töpuðu bæði. Dominic Solanke skein skært hjá Spurs gegn Aston Villa. Viðurinn heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. Dýrlingarnir með sinn fyrsta sigur í deildinni og Harry Wilson hetjan á Craven Cottage.

Nov 5, 2024

Enski boltinn - Liverpool á toppnum og velkominn Amorim

Það eru viðburðarríkir dagar að baki í enska boltanum og nóg um að ræða að venju. Liverpool er á toppnum eftir frábæra byrjun og Manchester United var að ráða nýjan stjóra. Svo er Nottingham Forest heitasta lið deildarinnar. Magnús Haukur Harðarson og Gylfi Tryggvason settust niður og ræddu málin í dag ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni.

Nov 4, 2024

Rólegi stríðsmaðurinn sem aldrei vék frá Stjörnunni

Daníel Laxdal lagði skóna á hilluna á dögunum eftir stórkostlegan feril með Stjörnunni. Daníel lék allan sinn feril í Garðabænum og skilur eftir sig mikla arfleifð hjá félaginu. Mikill stríðsmaður innan vallar en afar rólegur samt sem áður. Þessi mikli Stjörnumaður mætti í hlaðvarp á Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi aðeins um ferilinn, ákvörðunina um að hætta og hvað sé næst.

Nov 4, 2024

Tveggja Turna Tal - Haraldur Árni Hróðmarsson

Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Haraldur Árni Hróðmarsson þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður.Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tufa og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna.Kvikmyndaunnendur landsins munu líka njóta þessa þáttar enda er Halli kvikmyndafræðingur eftir að hafa gert lokaverkefni um sjálfan Jón Pál Sigmarsson !Við Turnarnir bjóðum Visitor velkomin í hópinn sem stuðningsaðilar. Þau bætast í hópinn með okkar hundtryggu aðdáendum í Nettó, Lengjunni, Netgíró, Hafinu fiskverslun, Fitness sport og Tékkanum Budvar!Turnarnir eru í útrás - fylgist með :)

Nov 4, 2024

Útvarpsþátturinn - Besta, Valur og Amorim tekur við

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir helstu tíðindi Bestu deildarinnar eftir að tímabilinu lauk, og nýr formaður fótboltadeildar Vals, Björn Steinar Jónsson er á línunni. Í seinni hlutanum mætir Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins, og gerir upp fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar. Ráðning Manchester United á Rúben Amorim er sérstaklega skoðuð.

Nov 2, 2024

Halldór Árnason - Íslandsmeistari í fyrstu tilraun

Halldór Árnason gerði Breiðablik að Íslandsmeisturum síðasta sunnudag eftir úrslitaleik gegn Víkingi í Fossvogi. Halldór var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Breiðabliks en hann hafði áður verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar með liðið. Halldór mætti í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir frábært tímabil Blika, sem og sína leið í þjálfun.

Oct 31, 2024

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: Afturelding vs Dr. Football

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Aftureldingu og Dr. Football. Fyrir Aftureldingu keppti Arnór Gauti Ragnarsson en fyrir Dr. Football keppti Sigurður Gísli Bond Snorrason.

Oct 30, 2024

Hugarburðarbolti GW9 Erik ten Hag rekinn!

Chris Wood heldur áfram að skora mörkin fyrir Forest. 2-2 sanngjarnt jafntefli í stórleiknum á Emirates. Jarrod Bowen setti síðasta naglann í kistu Erik ten Hag. Haaland skoraði eina markið gegn dýrlingunum. Cole Palmer átti enn einn góða leikinn fyrir Chelsea og Welbeck skoraði auðvitað fyrir Brighton í hörku 2-2 jafntefli gegn Úlfunum.

Oct 29, 2024

Enski boltinn - Ten Hag rekinn og dramatík á Emirates

9. umferð í ensku úrvalsdeildinni kláraðist um helgina. Það var jafntefli í stórleik umferðarinnar og Erik Ten Hag var rekinn sem stjóri Manchester United.

Oct 28, 2024

Innkastið - Grimmir Blikar verðskuldaðir meistarar

Síðasta Innkast tímabilsins. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke ræða um síðustu umferðina og gera upp tímabilið. Lið ársins og verðlaunaafhending. Opinberað er val .Net á leikmanni ársins, þeim efnilegasta, dómara ársins og þjálfara ársins. Til hamingju Íslandsmeistarar Breiðabliks! HK-ingar féllu með hvelli og Valur tryggði sér Evrópusæti.

Oct 27, 2024

Útvarpsþátturinn - Láki og leikurinn stóri

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað vel upp fyrir úrslitaleik Víkings og Breiðabliks. Gestur er Þorlákur Árnason nýr þjálfari ÍBV, Hilmar Jökull stuðningsmaður Breiðabliks kemur í heimsókn og Haraldur framkvæmdastjóri Víkings er á línunni. Hitað er upp fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, rætt um Evrópusigur Víkings og farið yfir fréttir vikunnar.

Oct 26, 2024

Fótbolta nördinn - 16 liða úrslit: ÍA vs Stöð 2

16 liða úrslitin halda áfram og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti ÍA og Stöð 2. Fyrir ÍA keppti Arnór Smárason en fyrir Stöð 2 keppti Valur Páll Eiríksson.

Oct 23, 2024