
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 7 of 57

Uppbótartíminn - Lygilegt hjá Ljónynjum, Blikar í toppmálum og fallbaráttan harðnar
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum í dag þar sem Besta deild kvenna sneri aftur eftir langa EM pásu. Í þættinum í dag ræddu þeir Magnús Haukur og Guðmundur Aðalsteinn um sigur Englands á Evrópumótinu og árangur Íslands í Sviss, sigur Breiðabliks á Þrótti í toppslag, framtíðarlandsliðskonur á Sauðárkróki og margt fleira. Einnig var snert á Lengjudeildinni og 2. deild kvenna í lok þáttar.

Lokakaflinn nálgast í neðri deildum
- Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferða - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Enski boltinn - Chelsea eina liðið með allt galleríið
Chelsea varð á dögunum heimsmeistari félagsliða og fyrir komandi tímabil eru væntingarnar þær að liðið verði í titilbaráttu. Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn og þeir komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið í dag til að fara yfir stöðuna hjá Lundúnafélaginu. Ræddu þeir meðal annars um HM félagsliða, nýja leikmenn, sambandið við Arsenal og margt fleira.

Tveggja Turna Tal - Jónas Grani Garðarsson
Jónas Grani á ótrúlega áhugaverða sögu að baki! Hann er sá elsti til að þreyta frumraun sína í efstu deild og er líka sá elsti til að vinna sér inn gullskó. Ferillinn hófst á Húsavík en við fórum líka yfir árin í Kaplakrika, hvernig var að vera þjálfaður af Ásgeiri El áður en við brugðum okkur til Katar, Belgíu og AC Milan! Sögur Jónasar Grana frá þessum stöðum eru stórmerkilegar. Allegri stakk hann í bakið en hvar ætli hann endi næst! Ég er allavega búinn að bóka mig í heimsókn... Njótið!

Leiðin úr Lengjunni: Völsungur með stórsigur á mærudögum og HK færist nær toppnum
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Útvarpsþátturinn - Niko, glugginn opinn og umdeilt VAR
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 26. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og með þeim er Valur Gunnarsson. Gestur þáttarins er Nikolaj Hansen, sóknarmaður Víkings, en Víkingar eru nýkomnir frá Albaníu þar sem þeir töpuðu 2-1 í fyrri leik sínum gegn Vllaznia í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Farið er yfir Evrópuleiki vikunnar, fréttir og slúður úr íslenska boltanum, Bestu deildina og Lengjudeildina. Sæbjörn Steinke er á línunni. Einnig er rætt um VAR en Þóroddur Hjaltalín og Gunnar Jarl mæta.

Enski boltinn - Staðan tekin þegar stutt er í veisluna
Það styttist í að nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni fari af stað. Það eru aðeins tæpar þrjár vikur í að Liverpool mæti Bournemouth í upphafsleik deildarinnar. Guðmundur Aðalsteinn settist í Pepsi Max stúdíóið í dag með Sölva Haraldssyni og Kára Snorrasyni og tóku þeir stöðuna þegar stutt er í mót. Rætt var um félagaskipti sumarsins, hvaða lið séu líklegust til að taka titilinn og hvaða lið séu líklegust til að falla. Og margt fleira.

Grasrótin - 13. Umferð, "Þrotur" Vogum sofna í gasmengun
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 13. umferð í 2. og 3. deild karla, 11. umferð í 4. deild og 9. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 11:25, 3. deild, 35:20, 4. deild, 1:06:15, 5.deild, 1:28:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Leiðin úr Lengjunni: Amin Cosic kveður með stæl og deildin tekur á sig mynd
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Turnar Segja Sögur: Dómari, skipting
Varamaður eða leikbreytir? Það er ekki öllum í lófa lagt að koma inn af bekknum og breyta gangi knattspyrnuleikja en það eru þó til mörg dæmi um slíkt. Við settumst niður og fórum yfir reglur knattspyrnusögunnar er varðar varamenn og fundum til sögur hérlendis og erlendis af mönnum sem skrifuðu nöfn sín í sögubækurnar af bekknum!

Innkastið - Valur fékk toppsætið á silfurfati
Innkastið heldur áfram að ferðast um landið og er sent út frá Akureyri að þessu sinni! Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs. Í raun var hann reyndar gestgjafi þáttarins frekar en gestur en það er önnur saga. Farið var yfir stórleik Víkings og Vals og aðra leiki Bestu deildarinnar síðustu daga, Evrópuleiki, gluggann og Lengjudeildina.

Útvarpsþátturinn - Bent nálgast og fyrstur í sjö gul svarar fyrir sig
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 19. júlí. Elvar Geir og Benedikt Bóas skoða allar helstu fréttirnar úr íslenska boltanum; Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin og félagaskipti. Tómas Bent Magnússon, Eyjamaðurinn á miðju Vals, er gestur þáttarins og Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, er á línunni.

Leiðin úr Lengjunni: Fylkir reif í gikkinn og það er víst hægt að vinna ÍR
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Grasrótin - 12. Umferð, Hellaðir Haukamenn og klikkaðir KÁ menn
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 12. umferð í 2. og 3. deild karla, 10. umferð í 4. deild og 9. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 2:50, 3. deild, 34:10, 4. deild, 1:00:20, 5.deild, 1:20:30.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Uppbótartíminn - Lífið heldur áfram
Í Uppbótartímanum að þessu sinni var farið yfir árangur Íslands á Evrópumótinu í Sviss. Gylfi Tryggvason og Elíza Gígja Ómarsdóttir komu í heimsókn í Pepsi Max stúdíóið og fóru yfir þetta vonbrigðamót. Ísland tapaði öllum leikjum sínum og var úr leik áður en kom að síðasta leiknum á mótinu.

Innkastið - Fúlir KR-ingar keyra Hvalfjörðinn
Innkastið þessa vikuna er tekið upp á Akranesi, beint eftir 1-0 sigur ÍA gegn KR í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson. Það er allt í keng í neðri hlutanum, Vestri er einum leik frá Evrópu og Árni Guðna var látinn taka pokann sinn í Árbænum.

Turnar segja sögur: The Crazy Gang
Wimbledon FC á einhverja merkilegustu "öskubuskuævintýr" í sögu ensku fótboltans. Við fórum yfir sögu the Crazy Gang, þar sem eigandinn, þjálfararnir, leikmennirnir og meira að segja búningastjórinn voru allir kolruglaðir !

Betkastið: Leikmenn neðri deilda mæta í sett
Bjarki Sigurjónsson úr KÁ (4.deild), Eysteinn Þorri Björgvinsson úr Augnablik (3.deild) og Ingólfur Sigurðsson úr Víking Ó (2.deild) mættu í settið! - Farið yfir úrslit síðustu umferðar í öllum neðri deildunum - Hvernig er tímabilið búið að vera hjá þeim og þeirra liðum - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Útvarpsþátturinn - Úrvalslið Lengjudeildar og vonbrigði Íslands
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. júlí Umsjón: Elvar Geir. Farið er yfir Evrópuleiki vikunnar, tíðindi úr Bestu deildinni og næstu leikir skoðaðir. Baldvin Már Borgarsson er í fiskabúrinu og Sæbjörn Steinke í beinni frá Akureyri. Baldvin skoðar Lengjudeildina og opinberar val á liði umferða 1-11. Þá er Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson á línunni og ræðir um kvennalandsliðið.

Grasrótin - 11. Umferð, Fyrri umferðin gerð upp. Bestir, verstir og fleira
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 11. umferð í 2. og 3. deild karla, 9. umferð í 4. deild og 8. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.Fylgið okkur á Instagram, @grasrotin. Við setjum inn mörk, félagaskipti og margt fleira.2. deild, 3:05, 3. deild, 36:40, 4. deild, 1:10:20, 5.deild, 1:39:30.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Leiðin úr Lengjunni: Verðlaunum fyrri hlutann og línur aðeins að skýrast
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.

Draumalið fyrri umferð í hverri deild (2-5. deild)
- Farið yfir úrslit síðustu umferðar í öllum neðri deildunum - Lið fyrri hluta tímabils í öllum deildum - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Innkastið - Verður Valur Íslandsmeistari?
Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári fara yfir allt það helsta. Þetta var góð umferð fyrir Val á meðan Breiðablik og Víkingur gerðu jafntefli í sínum leikjum. Vont tap hjá KR gegn KA í fallbaráttunni. Auk Bestu deildarinnar er rætt um Evrópuleikina, Lengjudeildina og EM kvenna.

EMvarpið - Tómleikatilfinning í Thun
Ísland er úr leik á Evrópumótinu eftir tvö töp í tveimur leikjum. Við eigum ekki lengur möguleika á því að komast áfram sem er gífurlega sárt. Vonbrigðin leyndu sér ekki hjá leikmönnum, starfsfólki og stuðningsmönnum Íslands í gær enda voru markmiðin stærri en þetta. Ísland er úr leik þegar einn leikur er eftir í riðlinum og er hægt að segja að maður finni fyrir ákveðinni tómleikatilfinningu út af þessum vonbrigðum. Undirritaður, Guðmundur Aðalsteinn, settist niður með Eddu Sif og Einari Erni frá RÚV í Thun í dag og gerði upp vonbrigðin.

Turnar segja sögur: Gullmörk, bikarævintýri og fallslagur í Noregi!
Við Turnarnir bjóðum upp á pálínuboð í þætti dagsins. Fannar Freyr Guðmundsson, einn af bestu sonum Hafnarfjarðar, FH-ingur, Liverpoolmaður og þjálfarari Hrottanna á Litla Hrauni kom til okkar. Fáranleg saga af gullmarkinu, bikarævintýri á Íslandi og einkennileg fallbarátta í Noregi koma við sögu!Turnarnir eru í boði Lengjunnar, World Class og okkar besta Budvar!

Útvarpsþátturinn - Fjör í Mosó og markaðurinn kominn í gang
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Afturelding og Breiðablik gerðu jafntefli í fjörugum leik, Valsmenn fara á Laugardalsvöll, áhugaverð félagaskipti í íslenska boltanum, viðtal við Jón Daða Böðvarsson, Diogo Jota lést í bílslysi og stelpurnar okkar áttu mjög slakan leik gegn Finnlandi.

EMvarpið - Grautfúlt að byrja mótið með þessum hætti
Ísland fékk ekkert úr úr leiknum sínum gegn Finnlandi í fyrsta leik Evrópumótsins í gær. Niðurstaðan var 1-0 sigur Finnland. Frammistaða Íslands var ekki góð í leiknum og sérstaklega var það raunin í fyrri hálfleik. Það virtist vera mikið stress í liðinu. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Aroni Guðmundssyni hjá Sýn og Helga Fannari Sigurðssyni, fréttamanni 433, í dag og var leikurinn gerður upp.

Leiðin úr Lengjunni - Njarðvíkingar brjóta blað og Árbæingar að vakna?
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Grasrótin - 10. umferð, Mosóbrósar jarðtengdir af mögnuðum Magnamönnum
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 10. umferð í 2. og 3. deild karla, 8. umferð í 4. deild og 7. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 6:05, 3. deild, 35:05, 4. deild, 1:02:20, 5.deild, 1:28:05, Utandeild, 1:36:20.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

EMvarpið - Fylgdarmaður, fallegur bær og fyrsti leikur
Íslenska kvennalandsliðið hefur á morgun leik á Evrópumótinu er þær spila við Finnland í fyrsta leik. Guðmundur Aðalsteinn er staddur í Thun í Sviss þar sem hann er að fjalla um liðið. Hann settist niður í kvöld með þeim Bjarna Helgasyni og Ágústi Beinteini, betur þekktum sem Gústa B, af Morgunblaðinu. Ræddu þeir um fyrstu dagana í Thun, leikinn á morgun og möguleika Íslands.

Tímabilið nánast hálfnað í neðri deildunum!
- Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferðar - Fyrsta umferð Fótbolta.net bikarsins - Spurningar frá fans - Tippeikur næstu umferðar!

Innkastið - Mótlæti og mætir ekki í viðtöl
Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke. KR með nauðsynlegan sigur, Víkingur vann Aftureldingu naumlega, það hallar undan fæti hjá Vestra og ÍBV og Lárus Orri átti óskabyrjun sem þjálfari ÍA.

Útvarpsþátturinn - Besta deildin, TG9 og EM
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. júní. Umsjón: Elvar Geir og Valur Gunnars. Besta deildin er í aðalhlutverki og leikir gærdagsins gerðir upp. Lárus Orri Sigurðsson, nýr þjálfari ÍA, er á línunni og Tryggvi Guðmunds skoðar komandi leiki. Lengjudeildin er á sínum stað og Guðmundur Aðalsteinn er í beinni frá Sviss þar sem EM kvenna fer í gang á miðvikudag.

Tveggja barna móðirin sem leikur á sínu fjórða stórmóti fyrir Ísland
Dagný Brynjarsdóttir er ein besta fótboltakona sem Ísland hefur átt. Á því liggur enginn vafi. Hún er núna á leiðinni á sitt fjórða stórmót eftir að hafa eignast sitt annað barn. Dagný er elsti leikmaður íslenska liðsins og mesti reynsluboltinn en hún hefur spilað 118 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 38 mörk. Dagný settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu og ræddi um ferilinn, móðurhlutverkið, Evrópumótið sem er framundan og sitthvað fleira.

Diljá og Karólína: Úr Krikanum á Evrópumótið með Íslandi
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Diljá Ýr Zomers eru tvær af þeim 23 sem valdar voru í EM-hóp Íslands. Þær eru á leið til Sviss um helgina og mótið hefst í næstu viku. Þær eru jafnaldrar og léku upp alla yngri flokkana saman með FH. Báðar stigu þær sín fyrstu skref í meistaraflokki með Fimleikafélaginu áður en þær fóru mismunandi leið. Núna eru þær saman í landsliðinu sem er á leið á stórmót; Karólína er að fara á sitt annað mót og Diljá sitt fyrsta. Þær settust niður með fréttamanni Fótbolta.net í Serbíu í dag og ræddu um ýmislegt; Yngri flokkana í FH, Evrópumótið og framtíðina meðal annars. Auðvitað ræddu þær líka um mynd sem þær settu á samfélagsmiðla á dögunum sem sýnir hvað þær eru komnar langt.

Turnar segja sögur: Ísland og Júgóslavía
Á níunda áratug síðustu aldar voru erlendir leikmenn enn fáir í íslenskum fótbolta. Með átökunum á Balkanskaganum fylgdi þó mikil breyting, þegar fjölmargir leikmenn og þjálfarar frá fyrrum Júgóslavíu leituðu hingað og hófu að leggja sitt af mörkum. Þeir færðu með sér djúpa þekkingu, fagmennsku og ástríðu sem hafði djúpstæð áhrif á íslenskan fótbolta. Margir þeirra áttu glæsilegan feril hér á landi og enn í dag má sjá áhrif þeirra bæði inni á vellinum og í þjálfun. Við rifjuðum upp þessa mikilvægu sögu og ræddum um nokkra af þeim einstöku leikmönnum og þjálfurum sem hafa markað spor sín á íslenskri knattspyrnusögu.

Grasrótin - 9. umferð, línurnar farnar að skýrast í neðri deildum
Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 9. umferð í 2. og 3. deild karla, 7. umferð í 4. deild og 6. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi og tölum um það.2. deild, 12:00, 3. deild, 40:20, 4. deild, 1:05:35, 5.deild, 1:23:50, Utandeild, 1:34:25.Þátturinn er í boði Asachat.is. Kíktu á Ásu til þess að vera viss sem fyrst.

Leiðin úr Lengjunni - Fjölnismenn sóttu langþráðan sigur
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Innkastið - Stuðningsmenn KR bauluðu á Hlíðarenda
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Haraldur Örn í Innkastinu eftir 12. umferð Bestu deildarinnar. KR fékk skell gegn Val og stuðningsmenn KR létu óánægju sína í ljós, það voru læti í Kópavogi, Afturelding skoraði og vann á útivelli, Stjarnan á flugi, ekkert virðist geta bjargað ÍA og Gylfi átti góðan leik fyrir norðan.

Uppbótartíminn - Núna fer hausinn á EM
Það eru níu dagar í fyrsta leik Íslands á Evrópumótinu í Sviss. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson hita vel upp fyrir Evrópumótið í þætti dagsins af Uppbótartímanum. Hvernig eru andstæðingar Íslands og hverjar eiga vonir okkar og væntingar að vera? Einnig er aðeins talað um Bestu deildina fyrir langa EM-pásu sem er framundan.

Tveggja Turna Tal - Ásmundur Guðni Haraldsson
Ásmundur Guðni Haraldsson er maður margra hatta. Hann er aðstoðarskólameistari í Brekkubæjarskóla á Akranesi, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu og landsliðsþjálfari Reitaboltalandsliðsins.Við Ási settumst niður og spjölluðum um væntanlegt Evrópumót, hvers vegna honum finnst svo gefandi að starfa með kvennalandsliðinu, liði sem hann hefur unnið með í yfir 100 landsleikjum og fórum yfir ferilinn frá því Guðjón Þórðar og Luka Luka Kostic gáfu honum sénsinn í KR.Ási sagði mér hvernig hann starfaði sem yfirþjálfari yngri flokka Gróttu og Stjörnunnar og við ræddum að sjálfsögðu það afrek sem hann náði er hann fór með Gróttu úr neðstu deild í þá næst efstu. Auðvitað fórum við svo yfir tímann hjá FH!Síðast, en alls ekki síst, fórum við djúpt ofan í reitaboltafræðin. Hvað gerist til dæmis ef þú klobbar tvo leikmenn í einni snertingu? Það er e.t.v. kominn tími til að gefa út nýtt myndband frá reitaboltasambandinu.Njótið

Þjálfarar sem vita nákvæmlega hvað Ástríðan snýst um!
Óskar Smári Haraldsson og Kristinn Hjartarsson mættu í settið! - Förum yfir allar neðri deildirnar - Úrslit síðustu umferðar - Spurningar frá fans - Fótbolti.net bikarinn tippleikur!

Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Lárus Orri Sigurðsson er tekinn við ÍA en Jón Þór Hauksson, sem var látinn taka pokann sinn eftir síðustu umferð, er á línunni í þættinum. Fjallað er um Mjólkurbikarinn, Bestu deildina, Lengjudeildina og ýmislegt fleira.

Turnar Segja Sögur - Kamerún 1990
Grænu ljónin frá Kamerún breyttu knattspyrnuheiminum varanlega á HM á Ítalíu árið 1990. Roger Milla og félagar mættu, sáu og sigruðu en saga liðsins er um margt ótrúleg. Paul Biya, sem hefur verið við völd í Kamerún síðan 1982, fyrirskipaði að Roger Milla skyldi taka þátt í mótinu og þar með var það mál útrættMilla hafði þá þegar lagt skóna á hilluna, en ákvörðun forsetans reyndist snilldarleg. Við fórum yfir þessa mögnuðu sögu og rýndum í hvernig framganga ljónanna breytti fótboltaheiminum – bæði í Afríku og fyrir ungan miðjumann Parma á Ítalíu!Njótið!

Uppbótartíminn - EM hópurinn og þrjú lið jöfn á toppnum
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann á Íslandi, í dag. EM hópurinn var valinn síðasta föstudag og ljóst er hvaða 23 leikmenn verða fulltrúar Íslands á EM í Sviss. Hvaða leikmenn eru svekktastir með valið? Þá hefur Besta deildin ekki verið eins skemmtileg í mörg ár. Þrjú lið eru jöfn á toppnum og risi er í veseni. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir sviðið en einnig var aðeins snert á Lengjudeildinni og 2. deild í þættinum.

Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn
Innkastið eftir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Sæbjörn Steinke. Jón Þór Hauksson var látinn fara eftir tap ÍA gegn Aftureldingu, Karl Friðleifur átti að fá rautt spjald í sigri Víkings gegn KR, Blikar stukku yfir einnota grill og aðrar hindranir í Eyjum, Vestri vann KA, Vuk heldur áfram á flugi og Valsmenn bregðast enn og aftur þegar þeir fá tækifærið.

Tveggja Turna Tal - Úlfur Ágúst Björnsson
Úlfur Ágúst er einn af helstu sóknarmönnum FH auk þess að vera einn af fjölmörgum fyrirliðum Duke háskólans í norður Karólínu í Bandaríkjunum.Við ræddum saman um líf fótboltamannsins í Bandaríkjunum, möguleikann á að spila í MLS, Coach K og marg fleira. Eðaldrengur.Njótið vel!

Betkastið - Eru öll lið svona jöfn í neðri deildunum?
Hvað er eiginlega málið með að allir geta unnið alla og eru deildirnar að styrkjast? - Förum yfir allar neðri deildirnar - Nýjustu úrslit og umferðir - Hvað er að frétta í Utandeildinni? - Spurningar frá fans

Leiðin úr Lengjunni: Áhyggjur aukast í Árbænum og ÍR tók Breiðholtsslaginn
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Anton Freyr Jónsson.

Útvarpsþátturinn - Í návígi við Gulla Jóns og Bestu
Besta deildin fer aftur af stað. Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 Gunnlaugur Jónsson, einn besti vinur þáttarins, kemur í heimsókn og skoðar komandi umferð í Bestu og ræðir meðal um hlaðvarpsþættina Návígi þar sem hann fylgir eftir sjónvarpsþáttunum A&B. Þá kemur landsliðið og HM félagsliða einnig til umræðu og Baldvin Borgarsson skoðar gang mála í Lengjudeildinni.