PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,831 episodes — Page 4 of 57

Útvarpsþátturinn - Nýjustu sambýlismennirnir

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. janúar. Gestir þáttarins eru Júlíus Mar Júlíusson og Hrannar Snær Magnússon sem eru farnir frá KR og Aftureldingu og gengnir til liðs við Kristiansund þar sem þeir verða sambýlismenn. Rætt er um þjálfaramál ÍBV, farið yfir lista yfir mest spennandi kaupin í Bestu deildinni og farið yfir fréttir vikunnar. Að auki er enski boltinn til umræðu en Manchester United er í stjóraleit eftir að Rúben Amorim var látinn taka pokann sinn.

Jan 10, 2026

Hugarburðarbolti GW 21 Var lesin eins og "Litla gula hænan"

Stórmeistara jafntefli 0-0 á Emirates hjá Arsenal og Liverpool í mígandi rigningu. Igor Thiago er ekkert að grínast með formið á sér. Fulham skellti Chelsea í kotinu. Man City og Aston Villa náðu ekki sigrum í sínum leikjum. Svakalegur leikur á St.James's Park þegar Newcastle lagði Leeds 4-3. Antoine Semenyo átti fallega kveðjustund fyrir Kirsuberin í 3-2 sigri gegn Tottenham. Degi seinna keypti Man City hann. Man Utd voru að spila gegn Burnley úti eftir að Ruben Amorim var rekinn.

Jan 9, 2026

Kjaftæðið - Arsenal er fancy Stoke

Baldvin Borgars, Alli hundur og Jeppakallinn fóru yfir vikuna í boltanum.

Jan 8, 2026

Tveggja Turna Tal - Aron Baldvin Þórðarson

Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni.Víkingar vildu ekki selja.Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði! Taktískar pælingar með Arnari Gunnlaugs, stóísk ró Sölva Geirs, afhverju töpuðu Víkingar fyrir Bröndby, Einar Guðna og hvernig teymir maður hafsent Blika til að pressa eins eins og hægri vængmaður! Skylduhlustun.

Jan 8, 2026

Kjaftæðið - Amorim rekinn!

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli möppudýr fóru vel yfir brottrekstur Amorim og enska boltann að þessu sinni.

Jan 5, 2026

Enski boltinn - Kaldar nýárskveðjur og er Amorim búinn?

Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur. Það hefur verið mikið um að vera í enska boltanum síðustu daga. Tvær umferðir voru spilaðar síðustu vikuna. Enzo Maresca og aðdáendur enska boltans fengu kaldar nýárskveðjur og allt gengur upp hjá Arsenal þessa dagana. Það er einhver hiti á bak við tjöldin hjá Manchester United og spurning hvort Rúben Amorim sé einfaldlega búinn hjá félaginu. Það var rætt um þetta og fleira í Pepsi Max stúdíóinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn stýrir en með honum eru Magnús Haukur Harðarson og Kári Kristjánsson, nýr leikmaður FH.

Jan 4, 2026

Fótbolta nördinn - Fótbolti.net vs Fylkir

Annar þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net og Guðmundur Tyrfingsson fyrir Fylki. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Jan 4, 2026

Leiðin úr Lengjunni: Ótímabæra spáin

Mjög snemmbúinn upphitunar þáttur fyrir Lengjudeildina þar sem við spáðum fyrir því hvernig deildin mun fara. Stefán Marteinn, Haraldur Örn og Sverrir Örn mættu til að fara yfir sviðið.

Jan 3, 2026

Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra spáin og stjóraskipti Chelsea

Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars ræða um Bestu deildina. Fyrsta ótímabæra spáin opinberuð. Haraldur Örn velur úrvalslið tímabilsins til þessa í ensku úrvalsdeildinni og spjallar um stjóraskipti Chelsea.

Jan 3, 2026

Hugarburðarbolti GW 19 Hirðfíflið mætti í studio 1

Arsenal á toppnum þegar árið 2026 er gengið í garð. Unnu Aston Villa 4-1 í toppslag umferðarinnar. Enso Maresca er hættur með Chelsea. Var þetta planað hjá honum? Liverpool kraftlitlir á nýársdag heima gegn Leeds í 0-0 jafntefli. Man City náði ekki að vinna á leikvangi ljóssins en munu engu að síður vera í toppbaráttunni.

Jan 2, 2026

Kjaftæðið - Stórkostleg áramót fyrir Arsenal

Baldvin Borgars, Frankarinn og Nonni Kristjáns fóru vel yfir áramótin í boltanum og helstu fréttir.

Jan 2, 2026

Kjaftæðið - Gummi Tóta í KR?

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur fóru yfir jóladagskánna.

Dec 31, 2025

Tveggja Turna Tal - Andri Freyr Hafsteinsson

Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni.

Dec 29, 2025

Enski boltinn - Himnasending, Wirtz skoraði og þrjú efstu stinga af

Gleðileg jól kæru hlustendur. Það var spiluð heil umferð í ensku úrvalsdeildinni eftir jólin og kláraðist hún í dag. Vængbrotið lið Manchester United vann Newcastle, Florian Wirtz komst á blað í ensku úrvalsdeildinni og efstu þrjú liðin eru stungin af, þau halda áfram að vinna. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóni Kaldal, stuðningsmanni Arsenal, í Pepsi Max stúdíóinu og fóru þau yfir málin.

Dec 28, 2025

Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR

Önnur sería Fótbolta Nördans er farin af stað, og í ár eru þættirnir í mynd. Í fyrsta þætti mætti Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og tókst á við Halldór Snær Georgsson frá KR.

Dec 28, 2025

Útvarpsþátturinn - Kæfan 2025

Haldið er í hefðina og Kæfan er á dagskrá í síðasta þætti ársins en þar er gleðin við völd þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestir þáttarins eru Stefán Pálsson og Orri á X-inu.

Dec 27, 2025

Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson

Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið.Unglingalandsliðsmaður í handbolta og líklegur til að verða atvinnumaður í íþróttinni. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í þessum hluta.

Dec 25, 2025

Hugarburðarbolti GW 17 Þegar Trölli stal jólunum!

Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!

Dec 23, 2025

Kjaftæðið - Sérstakir gestir í jólaþætti

Baldvin Borgars, Óskar Borgþórs, Aron Baldvin og Haraldur Örn settust í settið og ræddu boltann.

Dec 22, 2025

Enski boltinn - Slakt lið vann ömurlegt lið og Yoro horror show

Það er margt að ræða eftir síðustu leiki í enska boltanum. Guðmundur Aðalsteinn kom sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu ásamt bræðrunum Magnúsi Hauki og Hinriki Harðarsonum núna þegar þrír dagar eru til jóla. Hinrik er atvinnumaður í Noregi en er mættur heim í jólafrí og fékk að láta gamminn geysa um sína menn í Liverpool. Liverpool lagði Tottenham í tíðindamiklum leik og þrjú efstu lið deildarinnar unnu öll. Manchester City er farið að líta ógnvænlega út á meðan Arsenal er að harka út sigra. Leny Yoro átti þá erfiðan dag á skrifstofunni gegn Morgan Rogers. Snert er á öllum leikjum helgarinnar en við óskum ykkur, hlustendum góðir, gleðilegra jóla.

Dec 21, 2025

Útvarpsþátturinn - Ólafur Ingi, fréttir úr Bestu og Davíð Snorri á línunni

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er gestur þáttarins. Rætt er um Blikana og leikmannaferil Ólafs. Farið er yfir fréttir vikunnar, skúbb úr körfuboltanum og þá er Davíð Snorri Jónasson á línunni. Age Hareide er minnst og rætt um landsliðið. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gleðileg jól!

Dec 20, 2025

Kjaftæðið - Föstudagsgír og Tufa tekur við Varnamo

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur voru léttir á föstudegi.

Dec 19, 2025

Kjaftæðið - Alvöru hiti í Pepsi Max studio-inu!

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur settust í settið og fóru yfir stóru málin.

Dec 16, 2025

Hugarburðarbolti GW 16 Mr.Handsome

Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar.Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæstan 2-3 útisigur á West Ham. Chelsea unnu og Cole Palmer er mættur. Notthingham Forest vann Tottenham frekar þægilega 3-0 og Man Utd og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli í trylli á Old Trafford.

Dec 16, 2025

Enski boltinn - Hvað ertu eiginlega að tala um?

Farið er yfir leiki helgarinnar í enska boltanum og helstu sögulínur núna þegar jólin fara að detta í garð. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin í Pepsi Max stúdíóinu og svo átti Kári Snorrason sterka innáskiptingu. Kári var fenginn til að ræða vægast sagt athyglisverð ummæli Enzo Maresca, stjóra Chelsea. Svo sneri Mohamed Salah aftur hjá Liverpool en Hugo Ekitike er stjarnan á Anfield þessa dagana. Arsenal vann þá dramatískan sigur á Wolves þar sem leikmenn Úlfana skoruðu mörkin og svo hlýtur að fara að koma tilkynning með mynd af hornfána frá Tottenham.

Dec 15, 2025

Uppbótartíminn - Ein sú besta kveður sviðið, kraftröðun og slúður

Það er komið að sérstökum jólaþætti af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur komu sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu og ræddu við Fanndísi Friðriksdóttur, eina öflugustu fótboltakonu sem Ísland hefur átt, en hún lagði skóna á hilluna á dögunum. Fanndís fór yfir ferilinn og ákvörðun sína að hætta. Í lokin á þættinum var liðunum í Bestu deild kvenna kraftraðað eins og staðan er núna í desember og smá slúður tekið fyrir í kvennaboltanum.

Dec 15, 2025

Útvarpsþátturinn - Óli Jó og er hægt að bæta Bestu?

Útvarpsþáttur vikunnar. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum mætir Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensks toppfótbolta (ÍTF), og ræðir ýmis mál. Er hægt að bæta Bestu deildina? Í seinni hlutanum er það svo hinn sigursæli Ólafur Jóhannesson en nýlega kom út bókin Óli Jó – fótboltasaga, sem er rituð af Ingva Þór Sæmundssyni íþróttafréttamanni. Útvarpsþátturinn mælir með þessari bók í jólapakkann! Það var víða komið við í spjalli við Óla.

Dec 13, 2025

Kolbeinn Þórðar: Algjört heillaskref og nánast fullkomið fyrir mig

Kolbeinn Þórðarson átti mjög gott tímabil með Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni. Hann kom frá belgíska félaginu Lommel sumarið 2023 og hefur stimplað sig vel inn í sænska boltann. Miðjumaðurinn skoraði átta mörk og lagði upp þrjú á tímabilinu. Frammistaða hans skilaði því að hann var að banka á landsliðsdyrnar en kallið í hópinn þarf að bíða betri tíma.

Dec 11, 2025

Enski boltinn - Salah fór í viðtal og ótrúleg upprisa Aston Villa

Það var margt um að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóni Hauki Baldvinssyni, stuðningsmanni Aston Villa, í Pepsi Max stúdíóinu. Viðtal sem Mohamed Salah fór í um liðna helgi var auðvitað mikið til umræðu en einnig var talsvert rætt um ótrúlega upprisu Aston Villa eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Þá var snert á ýmsu öðru líka.

Dec 9, 2025

Hugarburðarbolti GW 15 Mo Salah fékk rauða spjaldið !

Fórum yfir 15 umferð deildarinnar og byrjuðum á að skauta yfir þá fjórtándu. Það var af nógu að taka þegar jólamánuðurinn er genginn í garð. Annar þáttastjórnenda fór og skellti sér á Emirates og sá sigurleik undir ljósunum 2-0 sigur Arsenal gegn Brentford.

Dec 9, 2025

Kjaftæðið - Salah má fara, Slot má fara en Jónatan fer ekkert!

Baldvin Borgars, Frankarinn og Jeppinn fóru yfir helgina.

Dec 9, 2025

Útvarpsþátturinn - Óvænt tíðindi úr Eyjum og Hlíðarendafundur

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. desember. Gestur þáttarins er Krisinn Ingi Lárusson, stjórnarmaður hjá Val. Valsmenn hafa heldur betur verið mikið í umræðunni og stjórnin verið gagnrýnd en þeir héldu félagsfund á dögunum og fóru yfir stefnu sína og áform. Sparkspekingurinn Baldur Sigurðsson ræðir stórtíðindin úr Vesmannaeyjum en Þorlákur Árnason sagði upp í vikunni. Þá er farið yfir fréttir vikunnar, félagaskiptin, Siggi Raggi samdi í Færeyjum, ný landsliðstreyja var kynnt og betur fór en á horfðist hjá Gísla Gotta. HM drátturinn og enski boltinn koma líka við sögu.

Dec 6, 2025

Kjaftæðið - Amorim veit ekkert hvað hann er að gera

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur.

Dec 5, 2025

Kjaftæðið - Slot henti Salah á bekkinn og Chelsea frábærir!

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur fóru yfir helgina.

Dec 2, 2025

Hugarburðarbolti GW 13 Norska stórslysið !

Hreimur Örn tónlistarmaður og harður Liverpool stuðningsmaður hefur ennþá trú á sínum mönnum. Við ræddum allt um GW13 í enska boltanum og það var jólastemmning í stúdíó 1.

Dec 1, 2025

Enski boltinn - Jafnt á Brúnni, ruglað rautt og yfirlýsing í fyrramálið?

Það var jafnt í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Chelsea og Arsenal áttust við. Arne Slot og Rúben Amorim tóku sigra en Thomas Frank er í miklu veseni þessa dagana. Mögulega fær hann bara sparkið. Svo fór eitt ruglaðasta rauða spjald í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á loft fyrr í dag. Það var rætt um þetta og margt fleira í þættinum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn stýrði en með honum í Pepsi Max stúdíóinu voru Magnús Haukur Harðarson og Haraldur Örn Haraldsson.

Nov 30, 2025

Útvarpsþátturinn - Væntingar í Krikanum og Rúnar Kristins

Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 29. nóvember. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og rætt um Blika í Sambandsdeildinni. Orri Freyr stuðningsmaður FH er á línunni og ræðir um vonir og væntingar í Kaplakrika eftir ráðningu Jóa Kalla. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, og þá er sérstakt fjármálahorn þar sem Sævar Þór Sveinsson í Utan vallar fjallar um breytingar bak við tjöldin í enska boltanum.

Nov 29, 2025

Kjaftæðið - Albert Hafsteins fékk að lofsama Arsenal

Baldvin Borgars, Albert Hafsteins og Alli Hundur fóru yfir vikuna í boltanum.

Nov 27, 2025

Hugarburðarbolti GW 12 47 ára bið lokið og versta free hit sögunnar!

Arsenal valtaði yfir Tottenham 4-1 í Norður Lundúna slagnum. Liverpool steinlá á heimavelli gegn Nottingham Forest 0-3. Newcastle vann Man City 2-1 í frábærum leik á St.James's Park. Chelsea sigraði Burnley 0-2 á útivelli. Brighton vann endurkomusigur gegn Brentford. Crystal Palace lagði Úlfana sannfærandi á útivelli og Everton lagði Man Utd 0-1 á Old Trafford.

Nov 25, 2025

Kjaftæðið - Amorim og Slot í alvöru brekku

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur.

Nov 25, 2025

Enski boltinn - Hrein hörmung hjá Liverpool, Man Utd og Tottenham

Umferðin var erfið fyrir Liverpool og Manchester United en þessi félög koma ekki vel undan landsleikjahléi. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Pepsi Max stúdíóinu með nöfnunum Magnúsi Hauki Harðarsyni og Magnúsi Þór Jónssyni. Farið var vel yfir Liverpool sérstaklega. Einnig var mikið rætt um stórleik umferðarinnar þar sem Arsenal valtaði yfir ömurlegt Tottenham lið og þá var snert á öllum öðrum leikjum í skemmtilegri umræðum.

Nov 24, 2025

Útvarpsþátturinn - Einkunnir Íslands og hringt út

Það er hátíðarstemning í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í hljóðverinu. Landsliðið er áberandi og undankeppnin gerð upp. Hvaða leikmenn voru bestir hjá Íslandi yfir undankeppnina í heild? Freyr Alexandersson er í beinni frá Molde og Magnús Már Einarsson frá London. Fréttir vikunnar í Bestu deildinni og enski boltinn rúllar af stað að nýju.

Nov 22, 2025

Kjaftæðið - Jason Daði á heimleið?

Baldvin Borgars, Alli hundur og Öddi fótboltanördi kom óvænt. El Jóhann, Jeppakallinn og Siggi Höskulds á línunni yfir Enska og svo tók Steinke tólið og fór yfir fréttir vikunnar.

Nov 21, 2025

Kjaftæðið - Viðbjóður í Varsjá

Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Nonni Kristjáns fóru yfir viðbjóðinn í Varsjá, landsliðsgluggann og fréttir vikunnar.

Nov 16, 2025

Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur í Varsjá og Heimir gegn Ronaldo

Íslenska landsliðið er að sjálfsögðu stórt umfjöllunarefni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Tómas Þór og Benedikt Bóas eru í hljóðveri. Hallgrímur Heimisson, yfirþjálfari hjá Val, er gestur þáttarins en hann er sonur Heimis Hallgrímssonar sem lenti upp á kant við Cristiano Ronaldo í vikunni. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hringt til Varsjár þar sem Úkraína og Ísland mætast.

Nov 15, 2025

Kjaftæðið - Ísland í lykilstöðu fyrir umspilssæti

Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Davors fóru yfir landsleikinn gegn Aserum!

Nov 14, 2025

Hugarburðarbolti GW 11 Úr skúrk, yfir í hetju á einni viku!

Man City kjöldrógu Liverpool í risaslag helgarinnar.Svörtu kettirnir náðu í stig gegn toppliði Arsenal. Tottenham og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli í London. Er orðið heitt undir Eddie Howe eftir 3-1 tap gegn Brentford? Aston Villa komust aftur á sigurbraut um helgina. Everton unnu sterkan heimasigur gegn Fulham. West Ham unnu lífsnauðsynlegan 3-2 sigur gegn Burnley og leikur Crystal Palace og Brighton stóð ekki alveg undir væntingum.

Nov 10, 2025

Enski boltinn - Var tímabilið að sveiflast þarna?

Manchester City vann sannfærandi sigur á Liverpool í stærsta leik tímabilsins til þessa. Mögulega var tímabilið að sveiflast þarna þar sem við sáum gamla góða Man City. Núna eru aðeins fjögur stig á milli Arsenal og City en fyrir viku síðan var orðið líklegt að Arsenal myndi stinga af. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Herði Ágústssyni í Pepsi Max stúdíóinu og fóru yfir leiki helgarinnar og helstu sögulínur.

Nov 9, 2025

Kjaftæðið - City valtaði yfir Liverpool og Amorim drullaði á sig

Baldvin Borgars, Alli Davors og Frankarinn hittust og gerðu upp helgina í Enska.

Nov 9, 2025

Útvarpsþátturinn - Davíð Smári, kapallinn og ensk verðlaun

Davíð Smári Lamude er sérstakur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Davíð, sem gerði Vestra að bikarmeisturum í ár, var á dögunum kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Farið er yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Benedikt Bóas er í beinni frá Glasgow og Daníel Geir Moritz velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hingað til.

Nov 8, 2025