
Fotbolti.net
2,771 episodes — Page 3 of 56

Kjaftæðið - Stórkostleg áramót fyrir Arsenal
Baldvin Borgars, Frankarinn og Nonni Kristjáns fóru vel yfir áramótin í boltanum og helstu fréttir.

Kjaftæðið - Gummi Tóta í KR?
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur fóru yfir jóladagskánna.

Tveggja Turna Tal - Andri Freyr Hafsteinsson
Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni.

Enski boltinn - Himnasending, Wirtz skoraði og þrjú efstu stinga af
Gleðileg jól kæru hlustendur. Það var spiluð heil umferð í ensku úrvalsdeildinni eftir jólin og kláraðist hún í dag. Vængbrotið lið Manchester United vann Newcastle, Florian Wirtz komst á blað í ensku úrvalsdeildinni og efstu þrjú liðin eru stungin af, þau halda áfram að vinna. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóni Kaldal, stuðningsmanni Arsenal, í Pepsi Max stúdíóinu og fóru þau yfir málin.

Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Önnur sería Fótbolta Nördans er farin af stað, og í ár eru þættirnir í mynd. Í fyrsta þætti mætti Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og tókst á við Halldór Snær Georgsson frá KR.

Útvarpsþátturinn - Kæfan 2025
Haldið er í hefðina og Kæfan er á dagskrá í síðasta þætti ársins en þar er gleðin við völd þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestir þáttarins eru Stefán Pálsson og Orri á X-inu.

Tveggja Turna Tal - Björn Daníel Sverrisson
Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið.Unglingalandsliðsmaður í handbolta og líklegur til að verða atvinnumaður í íþróttinni. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í þessum hluta.

Hugarburðarbolti GW 17 Þegar Trölli stal jólunum!
Fórum yfir GW17 í aðdraganda jóla og spáðum í leikina sem fóru fram. Í fyrsta skipti í sögu Hugarburðarbolta krýndum við Drottningu umferðarinnar. Gleðileg jól!

Kjaftæðið - Sérstakir gestir í jólaþætti
Baldvin Borgars, Óskar Borgþórs, Aron Baldvin og Haraldur Örn settust í settið og ræddu boltann.

Enski boltinn - Slakt lið vann ömurlegt lið og Yoro horror show
Það er margt að ræða eftir síðustu leiki í enska boltanum. Guðmundur Aðalsteinn kom sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu ásamt bræðrunum Magnúsi Hauki og Hinriki Harðarsonum núna þegar þrír dagar eru til jóla. Hinrik er atvinnumaður í Noregi en er mættur heim í jólafrí og fékk að láta gamminn geysa um sína menn í Liverpool. Liverpool lagði Tottenham í tíðindamiklum leik og þrjú efstu lið deildarinnar unnu öll. Manchester City er farið að líta ógnvænlega út á meðan Arsenal er að harka út sigra. Leny Yoro átti þá erfiðan dag á skrifstofunni gegn Morgan Rogers. Snert er á öllum leikjum helgarinnar en við óskum ykkur, hlustendum góðir, gleðilegra jóla.

Útvarpsþátturinn - Ólafur Ingi, fréttir úr Bestu og Davíð Snorri á línunni
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, er gestur þáttarins. Rætt er um Blikana og leikmannaferil Ólafs. Farið er yfir fréttir vikunnar, skúbb úr körfuboltanum og þá er Davíð Snorri Jónasson á línunni. Age Hareide er minnst og rætt um landsliðið. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gleðileg jól!

Kjaftæðið - Föstudagsgír og Tufa tekur við Varnamo
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur voru léttir á föstudegi.

Kjaftæðið - Alvöru hiti í Pepsi Max studio-inu!
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur settust í settið og fóru yfir stóru málin.

Hugarburðarbolti GW 16 Mr.Handsome
Fengum góða gesti í stúdíóið til að fara yfir leiki umferðarinnar.Úlfarnir skoruðu öll þrjú mörk leiksins á Emirates en töpuðu samt gegn Arsenal. Man City eru komnir í gang og setja pressu á Arsenal með 0-3 sigri á Crystal Palace. Liverpool sigraði Brighton 2-0 þar sem Mo Salah kom inn á strax í fyrri hálfleik við mikinn fögnuð stuðningsmanna. Aston Villa heldur áfram frábæru gengi og unnu glæstan 2-3 útisigur á West Ham. Chelsea unnu og Cole Palmer er mættur. Notthingham Forest vann Tottenham frekar þægilega 3-0 og Man Utd og Bournemouth gerðu 4-4 jafntefli í trylli á Old Trafford.

Enski boltinn - Hvað ertu eiginlega að tala um?
Farið er yfir leiki helgarinnar í enska boltanum og helstu sögulínur núna þegar jólin fara að detta í garð. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson fóru yfir málin í Pepsi Max stúdíóinu og svo átti Kári Snorrason sterka innáskiptingu. Kári var fenginn til að ræða vægast sagt athyglisverð ummæli Enzo Maresca, stjóra Chelsea. Svo sneri Mohamed Salah aftur hjá Liverpool en Hugo Ekitike er stjarnan á Anfield þessa dagana. Arsenal vann þá dramatískan sigur á Wolves þar sem leikmenn Úlfana skoruðu mörkin og svo hlýtur að fara að koma tilkynning með mynd af hornfána frá Tottenham.

Uppbótartíminn - Ein sú besta kveður sviðið, kraftröðun og slúður
Það er komið að sérstökum jólaþætti af Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur komu sér vel fyrir í Pepsi Max stúdíóinu og ræddu við Fanndísi Friðriksdóttur, eina öflugustu fótboltakonu sem Ísland hefur átt, en hún lagði skóna á hilluna á dögunum. Fanndís fór yfir ferilinn og ákvörðun sína að hætta. Í lokin á þættinum var liðunum í Bestu deild kvenna kraftraðað eins og staðan er núna í desember og smá slúður tekið fyrir í kvennaboltanum.

Útvarpsþátturinn - Óli Jó og er hægt að bæta Bestu?
Útvarpsþáttur vikunnar. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum mætir Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri Íslensks toppfótbolta (ÍTF), og ræðir ýmis mál. Er hægt að bæta Bestu deildina? Í seinni hlutanum er það svo hinn sigursæli Ólafur Jóhannesson en nýlega kom út bókin Óli Jó – fótboltasaga, sem er rituð af Ingva Þór Sæmundssyni íþróttafréttamanni. Útvarpsþátturinn mælir með þessari bók í jólapakkann! Það var víða komið við í spjalli við Óla.

Kolbeinn Þórðar: Algjört heillaskref og nánast fullkomið fyrir mig
Kolbeinn Þórðarson átti mjög gott tímabil með Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni. Hann kom frá belgíska félaginu Lommel sumarið 2023 og hefur stimplað sig vel inn í sænska boltann. Miðjumaðurinn skoraði átta mörk og lagði upp þrjú á tímabilinu. Frammistaða hans skilaði því að hann var að banka á landsliðsdyrnar en kallið í hópinn þarf að bíða betri tíma.

Enski boltinn - Salah fór í viðtal og ótrúleg upprisa Aston Villa
Það var margt um að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Jóni Hauki Baldvinssyni, stuðningsmanni Aston Villa, í Pepsi Max stúdíóinu. Viðtal sem Mohamed Salah fór í um liðna helgi var auðvitað mikið til umræðu en einnig var talsvert rætt um ótrúlega upprisu Aston Villa eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Þá var snert á ýmsu öðru líka.

Hugarburðarbolti GW 15 Mo Salah fékk rauða spjaldið !
Fórum yfir 15 umferð deildarinnar og byrjuðum á að skauta yfir þá fjórtándu. Það var af nógu að taka þegar jólamánuðurinn er genginn í garð. Annar þáttastjórnenda fór og skellti sér á Emirates og sá sigurleik undir ljósunum 2-0 sigur Arsenal gegn Brentford.

Kjaftæðið - Salah má fara, Slot má fara en Jónatan fer ekkert!
Baldvin Borgars, Frankarinn og Jeppinn fóru yfir helgina.

Útvarpsþátturinn - Óvænt tíðindi úr Eyjum og Hlíðarendafundur
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. desember. Gestur þáttarins er Krisinn Ingi Lárusson, stjórnarmaður hjá Val. Valsmenn hafa heldur betur verið mikið í umræðunni og stjórnin verið gagnrýnd en þeir héldu félagsfund á dögunum og fóru yfir stefnu sína og áform. Sparkspekingurinn Baldur Sigurðsson ræðir stórtíðindin úr Vesmannaeyjum en Þorlákur Árnason sagði upp í vikunni. Þá er farið yfir fréttir vikunnar, félagaskiptin, Siggi Raggi samdi í Færeyjum, ný landsliðstreyja var kynnt og betur fór en á horfðist hjá Gísla Gotta. HM drátturinn og enski boltinn koma líka við sögu.

Kjaftæðið - Amorim veit ekkert hvað hann er að gera
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur.

Kjaftæðið - Slot henti Salah á bekkinn og Chelsea frábærir!
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur fóru yfir helgina.

Hugarburðarbolti GW 13 Norska stórslysið !
Hreimur Örn tónlistarmaður og harður Liverpool stuðningsmaður hefur ennþá trú á sínum mönnum. Við ræddum allt um GW13 í enska boltanum og það var jólastemmning í stúdíó 1.

Enski boltinn - Jafnt á Brúnni, ruglað rautt og yfirlýsing í fyrramálið?
Það var jafnt í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar Chelsea og Arsenal áttust við. Arne Slot og Rúben Amorim tóku sigra en Thomas Frank er í miklu veseni þessa dagana. Mögulega fær hann bara sparkið. Svo fór eitt ruglaðasta rauða spjald í sögu ensku úrvalsdeildarinnar á loft fyrr í dag. Það var rætt um þetta og margt fleira í þættinum í kvöld. Guðmundur Aðalsteinn stýrði en með honum í Pepsi Max stúdíóinu voru Magnús Haukur Harðarson og Haraldur Örn Haraldsson.

Útvarpsþátturinn - Væntingar í Krikanum og Rúnar Kristins
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 29. nóvember. Farið er yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum og rætt um Blika í Sambandsdeildinni. Orri Freyr stuðningsmaður FH er á línunni og ræðir um vonir og væntingar í Kaplakrika eftir ráðningu Jóa Kalla. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, og þá er sérstakt fjármálahorn þar sem Sævar Þór Sveinsson í Utan vallar fjallar um breytingar bak við tjöldin í enska boltanum.

Kjaftæðið - Albert Hafsteins fékk að lofsama Arsenal
Baldvin Borgars, Albert Hafsteins og Alli Hundur fóru yfir vikuna í boltanum.

Hugarburðarbolti GW 12 47 ára bið lokið og versta free hit sögunnar!
Arsenal valtaði yfir Tottenham 4-1 í Norður Lundúna slagnum. Liverpool steinlá á heimavelli gegn Nottingham Forest 0-3. Newcastle vann Man City 2-1 í frábærum leik á St.James's Park. Chelsea sigraði Burnley 0-2 á útivelli. Brighton vann endurkomusigur gegn Brentford. Crystal Palace lagði Úlfana sannfærandi á útivelli og Everton lagði Man Utd 0-1 á Old Trafford.

Kjaftæðið - Amorim og Slot í alvöru brekku
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli hundur.

Enski boltinn - Hrein hörmung hjá Liverpool, Man Utd og Tottenham
Umferðin var erfið fyrir Liverpool og Manchester United en þessi félög koma ekki vel undan landsleikjahléi. Guðmundur Aðalsteinn settist niður í Pepsi Max stúdíóinu með nöfnunum Magnúsi Hauki Harðarsyni og Magnúsi Þór Jónssyni. Farið var vel yfir Liverpool sérstaklega. Einnig var mikið rætt um stórleik umferðarinnar þar sem Arsenal valtaði yfir ömurlegt Tottenham lið og þá var snert á öllum öðrum leikjum í skemmtilegri umræðum.

Útvarpsþátturinn - Einkunnir Íslands og hringt út
Það er hátíðarstemning í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars í hljóðverinu. Landsliðið er áberandi og undankeppnin gerð upp. Hvaða leikmenn voru bestir hjá Íslandi yfir undankeppnina í heild? Freyr Alexandersson er í beinni frá Molde og Magnús Már Einarsson frá London. Fréttir vikunnar í Bestu deildinni og enski boltinn rúllar af stað að nýju.

Kjaftæðið - Jason Daði á heimleið?
Baldvin Borgars, Alli hundur og Öddi fótboltanördi kom óvænt. El Jóhann, Jeppakallinn og Siggi Höskulds á línunni yfir Enska og svo tók Steinke tólið og fór yfir fréttir vikunnar.

Kjaftæðið - Viðbjóður í Varsjá
Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Nonni Kristjáns fóru yfir viðbjóðinn í Varsjá, landsliðsgluggann og fréttir vikunnar.

Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur í Varsjá og Heimir gegn Ronaldo
Íslenska landsliðið er að sjálfsögðu stórt umfjöllunarefni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Tómas Þór og Benedikt Bóas eru í hljóðveri. Hallgrímur Heimisson, yfirþjálfari hjá Val, er gestur þáttarins en hann er sonur Heimis Hallgrímssonar sem lenti upp á kant við Cristiano Ronaldo í vikunni. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hringt til Varsjár þar sem Úkraína og Ísland mætast.

Kjaftæðið - Ísland í lykilstöðu fyrir umspilssæti
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Davors fóru yfir landsleikinn gegn Aserum!

Hugarburðarbolti GW 11 Úr skúrk, yfir í hetju á einni viku!
Man City kjöldrógu Liverpool í risaslag helgarinnar.Svörtu kettirnir náðu í stig gegn toppliði Arsenal. Tottenham og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli í London. Er orðið heitt undir Eddie Howe eftir 3-1 tap gegn Brentford? Aston Villa komust aftur á sigurbraut um helgina. Everton unnu sterkan heimasigur gegn Fulham. West Ham unnu lífsnauðsynlegan 3-2 sigur gegn Burnley og leikur Crystal Palace og Brighton stóð ekki alveg undir væntingum.

Enski boltinn - Var tímabilið að sveiflast þarna?
Manchester City vann sannfærandi sigur á Liverpool í stærsta leik tímabilsins til þessa. Mögulega var tímabilið að sveiflast þarna þar sem við sáum gamla góða Man City. Núna eru aðeins fjögur stig á milli Arsenal og City en fyrir viku síðan var orðið líklegt að Arsenal myndi stinga af. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Herði Ágústssyni í Pepsi Max stúdíóinu og fóru yfir leiki helgarinnar og helstu sögulínur.

Kjaftæðið - City valtaði yfir Liverpool og Amorim drullaði á sig
Baldvin Borgars, Alli Davors og Frankarinn hittust og gerðu upp helgina í Enska.

Útvarpsþátturinn - Davíð Smári, kapallinn og ensk verðlaun
Davíð Smári Lamude er sérstakur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þessa vikuna. Umsjónarmenn eru Elvar Geir og Tómas Þór. Davíð, sem gerði Vestra að bikarmeisturum í ár, var á dögunum kynntur sem nýr þjálfari Njarðvíkur. Farið er yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Benedikt Bóas er í beinni frá Glasgow og Daníel Geir Moritz velur úrvalslið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni hingað til.

Kjaftæðið - Frankarinn kominn heim og lét til sín taka!
Baldvin Borgars, Frankarinn og Alli Hundur fóru yfir Meistaradeildina, landsliðsvalið og slúðrið í Íslenska boltanum.

Hugarburðarbolti GW 10 Hver er hinn fullkomni fantasy leikmaður?
Arsenal með 6 stiga forskot á Man City á toppnum eftir 0-2 sigur gegn nýliðum Burnley. Loksins vann Liverpool sigur þegar Aston Villa kom í heimsókn. Chelsea lagði Tottenham á útivelli þar sem að Joaõ Pedro skoraði sigurmarkið. West Ham með langþráðan sigur á Newcastle. Man Utd tókst ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í Skírisskógi. Brighton og Crystal Palace með góða sigra og Erling Haaland heldur áfram að vera heitur þegar City lögðu Bournemouth.

Enski boltinn - Klippingin bíður betri tíma
Stuðningsmaður Manchester United kemst ekki alveg strax í klippingu, Liverpool vann leik og Arsenal er að hóta því sterklega að stinga af. Þá var stjóri rekinn, Tottenham skeit upp á bak gegn Chelsea og West Ham tókst að vinna óvæntan sigur. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum en með honum eru ÍR-ingarnir Ágúst Unnar Kristinsson og Sölvi Haraldsson.

Kjaftæðið - Aron Sig og Matti Villa ræddu Enska, sumarið og ferilinn!
Baldvin Borgars, Aron Sigurðarson leikmaður KR og Matthías Vilhjálmsson sem var að leggja skóna á hilluna settust saman og ræddu ýmislegt áhugavert.

Útvarpsþátturinn - KR, Liverpool og Kjærnested
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. nóvember. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Farið er yfir helstu fréttir og slúður úr íslenska boltanum og val á bestu leikmönnum. Svo mætir Kristinn Kjærnested í heimsókn og ræðir um KR, stöðu mála hjá Liverpool og fleira.

Kjaftæðið - Stóra uppgjörið úr Bestu með Viktori Unnari
Baldvin Borgars, Alli Davors og Viktor Unnar tóku stóra Bestu-deildar uppgjörið og hituðu svo aðeins upp fyrir Enska um helgina.

Hugarburðarbolti GW 9 Er orðið heitt undir Arne Slot ?
Englandsmeistararnir töpuðu sínum fjórða leik í röð í deildinni. Arsenal með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar. Man City og Chelsea töpuðu bæði sínum leikjum um helgina. Man Utd spiluðu sinn besta leik á tímabilinu. Nýliðarnir unnu sína leiki og Bournemouth eru í 2.sæti deildarinnar eftir 9.umferðir.

Uppbótartíminn - Nik kveður og félög skera niður
Það er alvöru þáttur af Uppbótartímanum í dag þegar tímabilið er gert upp. Nik Chamberlain, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Breiðabliks, mætir í þáttinn og ræðir stórkostlegan árangur og næsta skref sem er í Svíþjóð. Hann er að kveðja íslenskan fótbolta eftir mörg ár hér á landi. Þá mætir Adda Baldursdóttir í seinni hlutann og gerir upp tímabilið með Guðmundi Aðalsteini og Magnúsi Hauki. Einnig er snert á landsliðinu.

Enski boltinn - Man Utd stakk sér fram úr Liverpool
Hlutirnir eru fljótir að breytast í fótboltanum en Manchester United er komið fram úr Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. United vann sinn þriðja sigur í röð um helgina á meðan Liverpool tapaði sínum fjórða deildarleik í röð. Arsenal er með fjögurra stiga forskot á toppnum en Einar Guðnason mætti í Pepsi Max stúdíóið í dag og fór yfir gott gengi sinna manna. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson eru einnig í þættinum, misglaðir eftir helgina.

Kjaftæðið - KR ætlar að taka yfir Bestu deildina
Baldvin Borgars, Alli Davors og Nonni Kristjáns mættu í settið og fóru yfir sviðið.