
Fotbolti.net
2,771 episodes — Page 23 of 56

Heimavöllurinn: Sokkuðu spánna og eru efstar, ráðgátur og 3x ON í 2. deild
Það er stútfullur Heimavöllur í dag. Línur eru aldeilis að skýrast í efstu deild og nú liggur fyrir að Meistaradeildarliðin Breiðablik og Valur mætast í bikarúrslitum. Það er ein umferð eftir af fyrri hluta 2. deildar og gríðarleg spenna framundan þar. Arnar Páll Garðarsson, þjálfari KR, er gestur þáttarins og rýnir með þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur í 2. deildina og allt hitt sem um er að vera. Sem fyrr eru það Orka Náttúrunnar, Hekla og Dominos sem bjóða upp á þáttinn.

Ungstirnin - ÍAS & GBN úr Garðabæ
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson. Eftir langt sumarfrí þáttarins fjalla drengirnir um Mathys Tel (2005 / Bayern Munchen) sem var nýlega keyptur frá Rennes á 20 milljónir evra, sem og Charlie McNiell (2003 / Man Utd) sem á yfir 600 mörk fyrir yngri lið Man City og Man United. Ísak Andri Sigurgeirsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason tveir af mörgum Ungstirnum í Garðabæ eru gestir að þessu sinni en þar er talað um áhuga erlendis, hvernig tímabilið hefur verið að ganga, Gústi Gylfa alltaf léttur og spurningar frá hlustendum sem og margt fleira.

Enski boltinn - Sumir gengu of langt
Annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar er lokið og er það ljóst að Íslendingar eru svo sannarlega blóðheitir þegar kemur að enska boltanum. Það var mikill hiti í mönnum og sumir fóru yfir strikið. Bæði er hægt að tala um leikmenn og stuðningsmenn í samhengi við það. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, settust niður í dag með Stefáni Marteini Ólafssyni, stuðningsmanni Chelsea, og ræddu um aðra umferðina sem er að baki. Farið var yfir allt það helsta; stórt tap Manchester United gegn Brentford, umdeild atvik og stjóralæti á Brúnni, rauða spjaldið á Nunez og margt, margt fleira.

Innkastið - Hnífjafn toppslagur og ójafnt stríð
17. umferð Bestu deildarinnar gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðveri. Þreytt topplið gerðu jafntefli, vígið ógurlega í Úlfarsárdal, trúleysi hjá Breiðhyltingum, varabakvörðurinn í KR, mögnuð sóknarsýning Vals, handbragð Hemma Hreiðars er komið á ÍBV, þrotið hjá FH og Nökkvi er heitasti leikmaður deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhorn.

Ástríðan - 16. umferð - 3. deildin er ótrúleg en allt að skýrast í 2. deild
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn. Tveggja manna teymi sem enginn getur skaðað mætti til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 16. umferð í báðum deildum. Meðal umræðuefnis: - Loksins eitthvað jákvætt úr Breiðholtinu- KFS á besta runninu síðustu 7 leiki- Njarðvík jafnar sig- Kormákur/hvöt öruggir og skila mögulega leikmönnum núna- Vængirnir dæmdir niður- ÍH með næst óvæntasta sigur sumarsins í ÁstríðunniHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Útvarpsþátturinn - Liðin sem hafa breytt leiknum
Elvar Geir og Benedikt Bóas stýra þætti vikunnar. Aðalumræðuefnið eru lið Víkings og Breiðabliks sem staðið hafa í ströngu á öllum vígstöðvum. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, ræðir um árangur þeirra í Evrópu frá sjónarhorni þjálfarans. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, þar á meðal bannið á Arnar Grétarsson, og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings spjallar um viðureignina gegn Lech Poznan. Einnig er dómarinn Tómas Meyer í viðtali en hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi eftir óhugnalegt atvik í leik í 3. deildinni fyrir rúmri viku.

Heimavöllurinn: Svakalegur seinni á Samsung, ótrúlegt XG á Akureyri og línulaust í Dalnum
Fréttararitar Fótbolta.net, þau Alexandra Bía, Guðmundur Aðalsteinn og Sigríður Dröfn mæta til leiks á vel mönnuðum Heimavelli dagsins og fara yfir síðustu umferð í Bestu-deildinni og skoða stöðu mála í neðri deildunum. Að sjálfsögðu í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Ástríðan - 15. umferð - Njarðvík tapar, botnliðin vinna og Virðing í Vestmannaeyjum
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport, ICE og svo er nýjasti vinur Ástríðunnar í átakinu Preppbarinn.Bræðurnir þrír, Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva mættu til þess að fara yfir liðna helgi þegar spiluð var 15. umferð í báðum deildum.Meðal umræðuefnis:- Viðtalið við Arnar Halls og svör við því.- Virðing í Vestmannaeyjum- Úlfur fer og Njarðvík tapar- Blönduósvígið er fallið- Kári Péturs er góður með vinstri- ÍH þurfa margt til að halda sér uppiHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Innkastið - Bestu liðin hiksta og FHallbaráttan harðnar
Elvar Geir heldur um stýrið í Innkastinu eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Með honum í þættinum eru Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason og FH-ingurinn og fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson. Topplið Breiðabliks fékk óvænta útreið í Garðabæ, Fram skoraði umdeilt jöfnunarmark gegn Víkingi, Fallfnykurinn eykst í Hafnarfirði, Nökkvi heldur áfram á flugi, Atli Sigurjóns fór illa með Eyjamenn, Skagamaður kláraði Skagamenn og Leiknir gaf Keflavík sigur á silfurfati. Einnig er rætt um Sambandsdeildarleikina, Mjólkurbikarinn og Lengjudeildina.

Enski boltinn - Nýtt mót en sama gamla Man Utd
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi og var svo sannarlega fjör í fyrstu umferð. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke, fréttamenn á Fótbolta.net, setjast niður í stúdíó og ræða um fyrstu umferðina sem er að baki. Þá er hringt í Halldór Marteinsson, sem er mikill stuðningsmaður Manchester United. Rætt er við hann um tapið gegn Brighton í gær og nýjar vendingar á leikmannamarkaðnum en talað er um að United sé að sækja tvo áhugaverða leikmenn.

Útvarpsþátturinn - Íslenska fótboltavikan og enskt hringborð
Elvar Geir, Sverrir Mar og Kristján Atli í útvarpsþætti vikunnar. Fyrri klukkutíminn fer í íslenska boltann og umræðu um leiki vikunnar en sá seinni í enska hringborðið þar sem nýtt tímabil er skoðað.

Enski boltinn - Löngu kominn tími á málm hjá Tottenham
Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld með leik Crystal Palace og Arsenal á Selhurst Park. Síðustu daga höfum við verið að hita upp fyrir þessa frábæru skemmtun sem er framundan. Í dag mættu tveir grjótharðir Tottenham menn á skrifstofu Fótbolta.net, Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson (litla flugvélin). Það ríkir bjartsýni fyrir tímbilinu hjá Spurs og núna er kominn tími á að taka málm. Rætt var um ýmislegt í þættinum; síðasta tímabil, Antonio Conte, leikmannagluggann í sumar og væntingar fyrir komandi leiktíð. Þetta er síðasti upphitunarþátturinn fyrir tímabilið en síðustu daga höfum við rætt við stuðningsmen allra liða sem enduðu í topp sex á síðustu leiktíð.

Enski boltinn - Bergmann bræður rýna í Man Utd
Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um helgina. Þátturinn er tekinn upp á Akureyri. nánar tiltekið í KA heimilinu. Sæbjörn ræðir við þá bræður Hallgrím Mar og Hrannar Björn sem eru miklir Man Utd stuðningsmenn. Rætt er um nýja stjórann Erik ten Hag, leikmannamál og almennt spáð í spilin.

Enski boltinn - Chelsea aldrei neðar en í þriðja sæti
Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst núna á föstudaginn. Í dag er sérstakur Chelsea þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Stefáni Marteini Ólafssyni og Damir Muminovic, sem eru báðir grjótharðir Chelsea menn. Rætt er um síðustu tímabil, sumargluggann, undirbúningstímabilið og tímabilið sem er framundan. Hver á að skora mörkin fyrir Chelsea á þessari leiktíð?

Barcelona á gjörgæslu en hættir ekki að kaupa - Hvað er í gangi?
Barcelona er með skuldir upp á 1,3 milljarð evra en hefur samt einhvern veginn tekist að kaupa leikmenn fyrir mikið meira en 100 milljónir evra í sumar. Þetta sögufræga félag hefur tekið vafasamar ákvarðanir á síðustu árum og kórónuveirufaraldurinn lék þá grátt. Þrátt fyrir þessa slæma stöðu á ekki að leggjast niður, það á að spýta í lófana. En hvernig hefur félagið tök á því? Og er það virkilega góð ákvörðun? Við fengum Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra greiningar hjá Íslandsbanka, til þess að fara yfir málin hjá Barcelona í sérstökum hlaðvarpsþætti í dag.

Enski boltinn - Tekur City þann þriðja í röð?
Enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudaginn. Fótbolti.net hefur síðustu daga verið að hita upp fyrir deildina og mun halda því áfram fram að fyrsta leik. Við spáum í deildina og heyrum í stuðningsmönnum. Þá mæta stuðningsmenn liðanna í topp sex í hlaðvarpsþætti þar sem þeir ræða um sitt lið og tímabilið sem er framundan. Í dag - í þriðju útgáfunni fyrir komandi leiktíð - er sérstakur Manchester City þáttur, Englandsmeistararnir eru teknir fyrir. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Ingvasyni, sem er einhver harðasti City maður landsins. Farið var yfir síðasta tímabil, ótrúlegan lokadag, áhugaverðan leikmannaglugga í sumar, Erling Braut Haaland, samkeppnina við Liverpool og ferð Englandsmeistarabikarsins til Íslands.

Útvarpsþátturinn - Íslensk yfirferð og enski nálgast
Útvarpsþátturinn í verslunarmannahelgargír laugardaginn 30. júli. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik og Víkingur í Sambandsdeildinni og félagaskiptaglugginn eru til umræðu. Enska úrvalsdeildin er handan við hornið. Við hverju má búast? Tryggvi Páll ræðir um Man Utd. Arnar Daði í beinni frá Eyjum og Þórir Hákonar fer yfir peningamál og fleira.

Ástríðan - 2. deildar special - 13. og 14. umferð
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE. Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 2. deild karla. Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast. Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Ástríðan - 3. deildar special - 13. og 14. umferð
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE. Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust og ræddu stóru málin í 3. deild karla.  Farið yfir tvær umferðir, félagaskipti og hvaða lið eru að snúa genginu við í báðar áttir. Top3 og bottom3 spá með Acan.is. Línur eru við það að skýrast og spennan að magnast.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Enski boltinn - Liverpool samfélagið aldrei verið veikara
Enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi, veislan er að fara að byrja aftur. Fótbolti.net mun næstu daga hita upp fyrir deildina, til að mynda með sérstökum hlaðvörpum þar stuðningsmenn liðanna í topp sex fá að láta ljós sitt skína. Í dag er sérstakur Liverpool þáttur. Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Sóla Hólm, formanni samfélagsins, og fjölmiðlamanninum Atla Má Steinarssyni. Rætt var um hið stóra Liverpool samfélag sem hefur aldrei verið veikara en núna, síðasta tímabil og tímabilið sem er framundan. Þeir hafa báðir mikla trú á sóknarmanninum Darwin Nunez sem er kominn til félagsins.

Enski boltinn - Arsenal upphitun með Skagafrændum
Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað og í tilefni af því er Fótbolti.net byrjaður að hita upp fyrir komandi tímabil. Í dag var sérstakur Arsenal þáttur. Sæbjörn Steinke ræddi við þá Albert Hafsteinsson og Lúðvík Gunnarsson og var farið yfir sumargluggann hjá Arsenal. Spáð var í spilin fyrir komandi tímabil, hvar þyrfti helst að styrkja liðið, hver eru markmiðin og ýmislegt fleira.

Innkastið - Niðurlægingar á heimavöllum, rauð spjöld og formannspistill
Innkastið þegar aðeins einum leik er ólokið í 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir heldur um stjórnartaumana að nýju, Sæbjörn Steinke er nýkominn af Meistaravöllum og hinn ástríðufulli Óskar Smári Haraldsson er með þeim í þættinum. ÍA og Leiknir töpuðu á niðurlægjandi hátt á heimavöllum, Fram er í gírnum, ÍBV komið með tvo sigra í röð en geymir stjörnur á bekknum, rauð spjöld fór á loft, Breiðablik missti af stigum, Óli Jó mættur aftur, formaður KR tók upp pennann, KA gerði góða ferð suður, Lengjudeildarhorn, gluggadagurinn og fleira.

Heimavöllurinn á EM: Fjögur fræknu berjast um titilinn
Það er örstutt eftir af stórskemmtilegu EM í Englandi og spennan er óbærileg. Þær Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir litu við á Heimavellinum og fóru yfir mótið til þessa og spáðu fyrir um framhaldið. Það er einnig nóg um að vera í neðri deildunum hér heima og Besta deildin fer aftur af stað í vikunni. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Útvarpsþátturinn - Öflug Evrópuúrslit, Besta deildin og Lengjan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 23. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin til umfjöllunar. Ennig er rætt við Jón Sveinsson, þjálfara Fram. Farið er yfir öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum, ýmsar vangaveltur og einhverjir slúðurmolar fá að fjúka.

Innkastið - Miklar hræringar og vesen í Vesturbæ
Ungstirni fótboltafréttamennskunnar, Arnar Laufdal, stýrir Innkastinu að þessu sinni. Með honum í þættinum er Eysteinn Þorri Björgvinsson og Andri Már 'Nablinn' Eggertsson, íþróttafréttamaður á Sýn. Aðalumræðuefnið er Besta deildin og 13. umferð hennar. Farið er yfir hræringarnar hjá Val og FH, vesenið í Vesturbænum, Evrópuleikina, Lengjudeildina og fleira. Þátturinn er í boði White Fox, refurinn maður lifandi.

Á kaffihúsi í Svíþjóð með Brynjari Birni - Frá Lengjudeildinni í Superettan
Brynjar Björn Gunnarsson tók við liði Örgryte í Svíþjóð í maí. Hann hafði þess áður verið aðalþjálfari HK en skipti um lið þegar bara 2 leikir voru búnir af mótinu hér heima. Þetta hefur verið erfitt tímabil hjá Örgryte þar sem þeim var spáð góðu gengi fyrir mót en sitja nú í fallsæti. Haraldur Örn Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, settist niður með Brynjari á kaffihúsi í Gautaborg og spjallaði við hann. Það var farið yfir feril hans sem leikmaður, tími hans sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, þjálfaratímann hjá HK og að lokum allt á bak við ráðnigu hans til Örgryte og hvernig hefur gengið síðan.

Ástríðan - 12. umferð - Ólsarar vakna en þungt ský yfir Grafarvogi
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir 12. umferð í báðum deildum. - Ólafsvík með sigur en Ægismenn sleppa með skrekkinn- Líf í Magnamönnum en Njarðvík hangir á lyginni- Munu Haukar blanda sér í toppinn?- Talið upp hvaða Káramenn vantaði- Mörg töp í röð hjá Vængjum og ÍH- Víðismönnum fannst létt að spila á HöfnHlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

EM Innkastið - Markmiðið náðist ekki en þjóðin er stolt
Sjötta og síðasta EM Innkastið þetta sumarið. Ísland er úr leik og komið að kveðjustund á hótelbarnum í Crewe. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn eru komnir "heim" til Crewe eftir tveggja daga sólarlandaferð til Rotherham. Leikurinn við Frakkland er gerður upp, farið yfir leikdaginn, byrjunarliðið óvænta, einkunnir Íslands, alla 1-1 leiki ferðarinnar og það áhugaverðasta úr viðtölum eftir leik. Þá er valinn besti leikmaður Íslands á mótinu.

EM Innkastið - Eyjastemning í Rotherham
EM Innkastið er sent út frá sveitinni að þessu sinni, rétt fyrir utan Rotherham. Elvar, Steinke og Gummi (stundum kallaður Gvendur) eru á sínum stað en sérstakur heiðursgestur er Svava Kristín Grétarsdóttir, íþróttafréttakona á Stöð 2. Það er Eyjaþema í þættinum þar sem hitað er upp fyrir lokaleik riðilsins, leikinn erfiða gegn Frakklandi. Í þættinum er rætt um Rotherham, New York völlinn, einræðisherrann við stjórnvölinn og svör Steina á fréttamannafundinum í dag.

EM Innkastið - Færi í súginn og þörf á Krísuvíkurleið
Aftur varð niðurstaðan 1-1 jafntefli, núna gegn Ítalíu. Ísland þarf að komast Krísuvíkurleiðina ef sæti í úrslitakeppninni á að nást. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbarnum fræga í Crewe og gera upp leikinn og skoða möguleika Íslands. Í lok þáttarins er svo farið yfir víðan völl og rætt um Evópuleiki og Lengjudeildina.

EM Innkastið - Að duga eða drepast í Manchester
Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, er heiðursgestur EM Innkastsins að þessu sinni. Hann ræðir við Elvar, Steinke og Gumma um komandi leik gegn Ítalíu, sífelldar ferðir hans og Eggerts ljósmyndara til Manchester og hverju má búast við í leiknum á morgun. Hver fer á vítapunktinn ef við fáum víti? Í lok þáttar er farið um víðan völl og meðal rætt um skoðunarferð til Liverpool, Kristal Mána og Víking og fleira.

Heimavöllurinn: Klúður gegn Belgíu, næst eru rassskelltir Ítalar og 100 leikja Fanndís Friðriksdóttir
Í boði Landsbankans, Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu er fyrsti leikur Íslands á EM gerður upp með Báru Kristbjörgu knattspyrnusérfræðing ásamt því að fara yfir einstaklingsframmistöður og möguleika Íslands í riðlinum. Við heyrðum einnig í Fanndísi Friðriksdóttir sem hefur farið á öll stórmót Íslands hingað til og er einn af þeim Íslendingum sem hefur tekist að skora mark á stórmóti í knattspyrnu

Ástríðan - 11. umferð - Tímabilið hálfnað en engar línur að skýrast
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Gylfi Tryggva og Óskar Smári hittust síðla kvölds og ræddu stóru málin í 2. og 3. deild karla. Tímabilið er hálfnað og margt í gangi. Þjálfaraskipti, félagaskipti, lið að snúa genginu við í báðar áttir og spennan magnast upp!-Njarðvík óstöðvandi.-Ægir með yfirburði í toppslagnum.-Fjarðabyggðarhöllin er ekkert til að grínast með.-Hvaða annað lið ætti að falla úr 2. deild?-Dalvík/Reynir blésu lífi í sínar vonir.-Kári að koma bakdyramegin í toppbaráttuna í 3. deild?-Elliðamenn vanstilltir þegar allt var undir.-KFS með magnaða endurkomu.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

EM Innkastið - Leikur sem átti að vinnast
EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins. Í þessum öðrum þætti er 1-1 jafnteflisleikurinn gegn Belgíu gerður upp. Ísland fékk heldur betur tækifæri á að taka öll stigin en það gekk ekki upp. Hvernig líta möguleikarnir út núna? Í þættinum er einnig rætt um skrautlega stuðningsmenn, kynninguna á Haaland, maður dagsins er valinn og ýmislegt fleira.

Heimavöllurinn á EM: Troðfullt í leikhúsi draumanna og veislan loks hafin
Það er enskt þema á Heimavellinum í dag. EM í Englandi er hafið og leitað var til tveggja enskra sérfræðinga til að fara yfir málin. Þeir Nik Chamberlain og Jamie Brassington, aðal- og markmannsþjálfari Þróttar, mættu og ræddu EM, England, Ísland og í raun allt milli himins og jarðar. Gáfu meðal annars nokkur góð ferðaráð enda fjölmargir stuðningsmenn íslenska landsliðsins á leið til Englands að styðja við stelpurnar okkar. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos, Heklu, Orku Náttúrunnar og Landsbankans og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir að styðja við umfjöllun um knattspyrnu kvenna.

EM Innkastið - McLeigubíll, lífið í Crewe og byrjunarlið Íslands
EM Innkastið er sent út beint frá Englandi þar sem Evrópumót kvennalandsliða fer fram. Fréttamenn Fótbolta.net ræða málin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fá sér sæti á hótelbar íslenska fjölmiðlahótelsins. Í þessum fyrsta þætti ræða þeir um lífið í Crewe þar sem bækistöðvar íslenska liðsins eru, stóru fréttirnar í breskum stjórnmálum, velja leigubílstjóra sem mann dagsins, fara yfir líklegt byrjunarlið Íslands og ýmislegt tengt stelpunum okkar.

Ástríðan - 9. og 10. umferð - Tvöföld yfirferð í báðum deildum
Ástríðan er í boði Bola, Acan.is, JakoSport og ICE.Óskar Smári og Sverrir Mar mættu og fóru yfir tvöfalda umferð í báðum deildum. Toppbarátta og fallbarátta báðum megin og spenna að færast í leikana.Hlustaðu í spilaranum hér, í Podcast appinu eða á Spotify.

Heimavöllurinn á EM: D fyrir drama, dauðariðil, dreka eða drauma?
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM sem hefst í dag! Nú er komið að því að skoða D-riðilinn en það er riðillinn sem að stelpurnar okkar leika í ásamt Belgíu, Ítalíu og Frakklandi. Þær Lilja Dögg Valþórsdóttir og Ingunn Haraldsdóttir mættu í stúdíóið og fóru yfir málin.

Heimavöllurinn á EM: Ver Wiegman titilinn? Öll augu á Hegerberg í endurkomunni
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Knattspyrnukonurnar Ingunn Haraldsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mættu og fóru yfir A-riðil mótsins. Í honum leika gestgjafarnir í Englandi, Austurríki, Noregur og nýliðar Norður-Írlands.

Innkastið - Dómarinn kann ekki reglurnar og KR fjarlægist bestu liðin
Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke eru í Innkasti vikunnar. Með þeim er Runólfur Trausti Þórhallsson, KR-ingur og íþróttafréttamaður á Vísi. Rætt er um hörmulega dómgæslu en frábæra frammistöðu Víkings í Malmö og svo farið yfir elleftu umferð Bestu deildarinnar. Einnig er Lengjudeildarhornið á sínum stað.

Sara er komin aftur - Fyrirliðinn fer yfir síðastliðin tvö ár
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, setti sér það markmið þegar hún var barnshafandi á síðasta ári að spila fyrir Ísland á Evrópumótinu. Hún er núna mætt ári síðar til Þýskalands þar sem hún hefur tekið þátt í undirbúningi fyrir mótið. Það eru núna fimm dagar í fyrsta leik Íslands á mótinu og settist fyrirliðinn niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskalandi núna rétt áðan. Sara, sem er einhver mesti sigurvegari sem Ísland hefur átt, ræddi um ýmislegt - meðal annars hvernig sonur hennar hefur breytt lífinu - í góðu spjalli.

Miðverðirnir fá sviðsljósið - Glódís og Guðrún í spjalli fyrir EM
Miðverðir fá ekki alltaf þá athygli sem þeir eiga skilið, en að þessu sinni fá þeir sviðsljósið hjá okkur. Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir, tveir af miðvörðum íslenska landsliðsins, settust niður með fréttamanni Fótbolta.net á hóteli landsliðsins í Þýskaland og fóru um víðan völl á tæpum hálftíma. Glódís og Guðrún hafa leikið afskaplega vel saman í hjarta varnarinnar hjá landsliðinu og framundan er Evrópumót. Þetta spjall er góð upphitun fyrir EM núna þegar innan við vika er í fyrsta leik Íslands.

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn, Bjarki Már og DSJ
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um Bestu deildina, leik KR og Víkings og pælingar um félagaskiptagluggann. Einnig er farið yfir Lengjudeildina, dráttinn í Mjólkurbikarnum og Evrópuleikina framundan. Í seinni hlutanum er rætt við leikgreinandann Bjarka Má Ólafsson sem er kominn í nýtt starf og Davíð Snorra Jónasson þjálfara U21 landsliðsins.

Saga aðstoðarþjálfarans - Frá KF Nörd á Evrópumótið í Englandi
Viltu kynnast aðstoðarþjálfara landsliðsins betur? Þá er óhætt að mæla með hlustun á þessum þætti. Ásmundur Haraldsson var svokölluð barnastjarna í KR en fór svo í háskólanám til Bandaríkjanna þar sem hann varð mikill Kani. Hann bjóst ekki við því að koma aftur heim en endaði nú á því að gera það. Ásmundur var senter á sínum leikmannaferli og var einu sinni markakóngur 3. deildar. Fljótlega beindist hugurinn að þjálfun þó skórnir hafi seint farið upp á hillu. Flestir landsmenn kynntust Ása fyrst þegar hann var þjálfari í þáttunum KF Nörd sem fóru sigurför um Ísland, en í dag er hann aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins sem tekur þátt á EM seinna í þessum mánuði. Þetta er annað Evrópumótið sem Ási er að fara á í þessu hlutverki. Ásmundur, sem er mikilvægur hlekkur í þessu frábæra landsliði, settist niður með undirrituðum á hóteli landsliðsins í Herzogenaurach þar sem liðið er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.

Heimavöllurinn á EM: Kempur og töfrakonur í C-riðli
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos, Landsbankans og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! "Svíarnir" Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Björn Sigurbjörnsson tóku vel á móti Mist Rúnarsdóttur á Selfossi og fóru yfir C-riðil mótsins. Þar munu mætast Holland, Svíþjóð, Sviss og Portúgal.

Innkastið - Bikarspjall á bílaplani
Sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins eru að baki og Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke skella sér út í sólina á bílaplaninu á Krókhálsi, gera upp leikina og skoða helstu tíðindin í íslenska fótboltanum. Fernukóngur kom inn af bekknum í Kórnum, vítahlaðborð á Akureyri, Eiður Smári vann fyrsta sigurinn, Cupset í Þorlákshöfn, KR lenti í kröppum dansi, framlengt á Framvelli, Gísli Eyjólfs skoraði sparimark og Víkingar léku sér að Selfyssingum.

Ástríðan - 8. umferð - Luka rekinn eftir sigurleik, þrennur og misjafnt gengi
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir áttundu umferðina í 2. og 3. deild karla.Meðal umræðuefnis:Reynir S. vinnur sinn fyrsta leik, sækja þrjá spánverja en reka svo þjálfarann. Njarðvík með gamla og góða pökkun. Þróttur R að koma bakdyramegin í baráttuna. Völsungur fékk sitt víti.ÍH með 3 í röð eftir að Arnar Sigþórs fór að brosa. Augnablik virðir stigið á Humarhátíðinni. Káramenn styttra komnir en búist var við. Dalvík tapað 3 af síðustu 4. Sverrir hefur hafið þá vegferð að jarðtengja sig aftur eftir að hafa spáð Kormáki/Hvöt falli mánuði fyrir mót.Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice og Acan.is.Hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Heimavöllurinn: Flikk flakk og hreint lak í Eistlandi
Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á landsliðssamba á Heimavellinum. Þær Auður Scheving og Sólveig Larsen eru nýmættar til landsins eftir ferð með U23 landsliðinu til Eistlands þar sem þær sóttu góðan sigur ásamt liðsfélögunum. Þær mættu í gott spjall um landsliðsverkefnið, EM á Englandi, ævintýrin í yngri flokkunum, lánið í Mosó og margt fleira.

Útvarpsþátturinn - Euro-Vikes, Besta liðið og Lengjudeildin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 25. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað er um Víking í Meistaradeildinni og Haraldur Haraldsson framkvæmdastjóri félagsins fer yfir möguleika Íslands á að endurheimta fjórða Evrópusætið. Sérstakt Bestu deildar uppgjör þar sem valið er úrvalslið deildarinnar hingað til, besti leikmaðurinn og besti þjálfarinn. Hvaða leikmenn hafa verið mestu vonbrigðin? Einnig er fjallað um Lengjudeildina og besti leikmaður deildarinnar hingað til valinn. Rafn Markús Vilbergsson er á línunni. Þá er rætt um Breiðablik - KR, spáð í spilin fyrir Mjólkurbikarinn og rýnt í helstu fréttir, þar á meðal skipti Frederik Schram í Val.

Heimavöllurinn á EM: B&B fara yfir rosalegan B-riðil
Í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og bílaumboðsins Heklu hitar Heimavöllurinn upp fyrir EM á Englandi! Mist rúllaði á Selfoss og hitti þar fyrir þjálfarana Björn Sigurbjörnsson og Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttir og saman fóru þau yfir B-riðil mótsins þar sem Danmörk, Finnland, Spánn og Þýskaland munu takast á.