PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,771 episodes — Page 21 of 56

Útvarpsþátturinn - Rúnar Kristins og áhugaverð leikmannakaup

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. nóvember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, enskar og íslenskar. Rætt um stóru fréttirnaf af Manchester City, tíðindi á íslenska leikmannamarkaðnum, undirbúningsleiki og Rafn Markús Vilbergsson segir okkur frá áhugaverðum leikmanni sem Njarðvík var að fá frá Malasíu. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rætt er um Bestu deildina, síðasta tímabil KR-inga og það sem hefur gerst hjá félaginu í vetur.

Feb 11, 2023

Enski boltinn - Eldræða frá Mána en áhyggjurnar litlar hjá City

Það er boðið upp á veisluþátt af Enski boltinn hlaðvarpinu á þessum ágæta föstudegi. Byrjað er á því að hringja í Þorkel Mána Pétursson, stuðningsmann Leeds. Hann fer vel yfir málin hjá sínum mönnum en hann er ekki sáttur með allt sem hefur verið í gangi þar. Leeds gerði 2-2 jafntefli gegn Manchester United í miðri viku og er farið vel yfir þann leik í þættinum. Svo er hringt í Magnús Ingvason, stuðningsmann Manchester City. Hann er rólegur yfir stöðu mála þó enska úrvalsdeildin hafi ákveðið að kæra City fyrir brot á fjármálareglum á dögunum. Getur Man City náð Arsenal í titilbaráttunni? Þá er farið yfir næstu umferð í deildinni sem hefst á morgun en það eru margir áhugaverðir leikir framundan.

Feb 10, 2023

Atli Hrafn: Stefnir alltaf hærra en þar sem þú ert

Atli Hrafn Andrason er uppalinn KR-ingur sem farið hefur víða á sínum ferli þrátt fyrir ungan aldur. Atli er 24 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem skrifaði undir hjá HK í desember. Hann varð Íslandsmeistari með 3. flokki KR árið 2014 og samdi við Fulham sumarið 2016. Hann var á Englandi í tvö og hálft ár. Næsta stopp var Víkingur, svo Breiðablik, næst ÍBV og loks HK. Atli lék á sínum tíma 25 leiki fyrir yngri landsliðin. Í spjallinu við Sæbjörn Steinke fór hann yfir ferilinn til þessa. Hann fer yfir tímann hjá Fulham, sumarið 2019 með Víkingi, þjálfarana Óskar Hrafn og Arnar Gunnlaugsson, tímann í Eyjum og ákvörðunina að fara í HK.

Feb 9, 2023

Enski boltinn - Staðan hjá Liverpool mikið áhyggjuefni

Það gengur hvorki né rekur hjá Liverpool þessa stundina. Liðið tapaði 3-0 gegn Úlfunum um helgina. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fengu Hallgrím Indriðason, fréttamann á RÚV, til að fara yfir stöðuna hjá félaginu en hún er áhyggjuefni. Einnig er rætt um aðra leiki helgarinnar en tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar töpuðu bæði um helgina. Þá er rætt um það að deildin saki Manchester City um að brjóta fjármálareglur.

Feb 6, 2023

Gunnhildur Yrsa er mætt heim - Kom ekkert annað til greina

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er komin aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í atvinnumennsku. Hún bjóst aldrei við því að verða atvinnukona í fótbolta eftir að hafa slitið krossband tvisvar. Það gerðist svo í þriðja sinn eftir að hún fór til Noregs frá Stjörnunni. En hún hélt alltaf áfram og endaði á því að leika í tíu ár erlendis, fyrst í Noregi og svo í Bandaríkjunum. Hún á þá að baki 96 A-landsleiki með Íslandi. Gunnhildur er núna komin heim í Stjörnuna en það kom ekki til greina að fara neitt annað hér heima. Í þessu hlaðvarpi ræðir hún um byrjunina í Stjörnunni, tímann í atvinnumennsku, erfið mál í Bandaríkjunum, landsliðið og nýtt líf á Íslandi. Hún hvetur fólk til að fylgjast með Stjörnunni næsta sumar.

Feb 5, 2023

Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin og Óli Kristjáns

Íslenski boltinn er í aðalhlutverki í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikunar. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson opinbera nýja ótímabæra spá fyrir Bestu deildina. Ólafur Kristjánsson, yfirmaður fótboltamála hjá Breiðabliki, mætir í þáttinn og ræðir um starf sitt í Kópavoginum, íslenska leikmannamarkaðinn og fleira.

Feb 4, 2023

Orri Steinn: Þá hefði ég hlegið í andlitið á þér

Orri Steinn Óskarsson er einn mest spennandi ungi framherji í Danmörku. Hann hefur verið á mála hjá FC Kaupmannahöfn frá því hann yfirgaf Gróttu eftir tímabilið 2019. Þegar Orri hugsar til baka til tímabilsins 2019 þá hugsar hann um lagið sem heyrist í byrjun klippunnar. Orri raðaði inn mörkum fyrir U17 og U19 ára lið FCK og steig sín fyrstu skref með aðalliðinu á síðasta ári. Hann kom inn á í lokaleik deildarinnar og kom við sögu í níu leikjum með aðalliðinu á fyrri hluta þessa tímabils. Á gluggadaginn var hann lánaður til SönderjyskE út tímabilið. Hann er fenginn til að hjálpa liðinu að fara upp í efstu deild. Hann er átján ára gamall og er einn allra efnilegasti leikmaður Íslands. Orri ræðir um tímann hjá FCK til þessa, lífið í Danmörku, ástæðuna fyrir skiptunum til SönderjyskE, hápunktana, lágpunktana og ýmislegt annað.

Feb 2, 2023

Enski boltinn - Boðið upp á bombu klukkutíma fyrir gluggalok

Tímabil Newcastle og janúarglugginn var það sem var helst til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn á þessum fimmtudegi. Félagaskiptaglugginn lokaði síðasta sunnudag og það er óhætt að segja að félög í ensku úrvalsdeildinni hafi misst sig í gleðinni þegar kom að því að kaupa leikmenn. Þá aðallega Todd Boehly, eigandi Chelsea. Hann ákvað að gera Enzo Fernandez að dýrasta leikmanni í sögu enska boltans rétt áður en glugginn lokaði. Gummi og Steinke fengu til sín góðan gest í dag því Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur, mætti á skrifstofuna. Jón Júlíus er mikill stuðningsmaður Newcastle sem hefur átt fantagott tímabil.

Feb 2, 2023

Enski boltinn - Óvænt skipti og slúðursögur fyrir gluggadag

Á morgun er gluggadagur og það er nóg af slúðursögum í gangi er viðkemur félögum í ensku úrvalsdeildinni. Fer Moises Caicedo til Arsenal? Fer Enzo Fernandez til Chelsea? Liverpool og Manchester United eru róleg og þá er Manchester City að selja Joao Cancelo. Nóg að gerast eins, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir allt það helsta í þessum þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu. Þá er einnig farið yfir helgina í enska FA-bikarnum þar sem 32-liða úrslitin voru spiluð.

Jan 30, 2023

Útvarpsþátturinn - Uppgjör með Kristjáni Atla á fyrri hluta ensku úrvalsdeildarinnar

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 28. janúar. Tómas Þór Þórðarson stýrir þættinum einn að þessu sinni en Elvar Geir er á Englandi. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um um enska boltann er með Tómasi í stúdíóinu og fer yfir fyrri hlutann í ensku úrvalsdeildinni sem er núna loksins hálfnuð.

Jan 28, 2023

Björn Már fer yfir Juventus málið

Á föstudag bárust þær risastóru fréttir að fimmtán stig voru dregin af ítalska stórliðinu Juventus. Félagið er undir rannsókn vegna alvarlegra fjársvika þar sem svindlað hefur verið í bókhaldi og leikmönnum greitt svart. Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann og einn af umsjónarmönnum hlaðvarpsþáttarins Punktur og Basta, ræddi við Sæbjörn Steinke um málið. Enn eru margir lausir endar en farið var yfir helstu vinkla málsins og velt vöngum um hvað gæti gerst á næstu vikum og jafnvel mánuðum. Ráðamenn fara í bann, hversu langt? Gætu leikmenn farið í bann? Hafa þeir fengið þessar svörtu greiðslur? Gæti Juventus misst enn fleiri stig?

Jan 25, 2023

Enski boltinn - Landsbyggðin talar um hugarfarsskrímsli

Mikið var rætt um sigur Arsenal á Manchester United í þætti dagsins og orðin mentality monsters notuð til að lýsa Arsenal liðinu. Ingimar Helgi Finnsson var á línunni og ræddi um Tottenham og Óskar Smári Haraldsson gasaði um sína menn í Liverpool. Arsenal er með fimm stiga forskot og á leik til góða, en tvær innbyrðisviðrueignir eru eftir við City. Hvort liðið verður meistari? Nær Tottenham Meistaradeildarsæti?

Jan 24, 2023

Útvarpsþátturinn - Adam Páls, íslensk tíðindi og Arsenal fær rödd

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. janúar. Elvar Geir, Benedikt Bóas, Kári Kongó og nýjasti leikmaður Vals, Adam Pálsson, í hljóðveri. Fréttir úr íslenska boltanum, Arsenal er á toppnum í enska, Newcastle í Meistaradeildarbaráttu og þá er Arnar Daði sérfræðingur í beinni frá Gautaborg í handboltahorninu.

Jan 21, 2023

Heimavöllurinn - Bleikir fílar, samstaða og Sara sigrar

Ár er síðan Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna voru endurvakin og þau hafa haft í nægu að snúast. Á Heimavöllinn eru mættar þær Anna Þorsteinsdóttir, forseti samtakanna, og Rebekka Sverrisdóttir, nýliði í stjórn. Þær fara yfir málin sem hafa verið veigamest á þessu fyrsta starfsári og rýna í það hvar gera má betur hvað varðar umgjörð um knattspyrnu kvenna. Þetta gera þær að sjálfsögðu í boði Dominos og Orku Náttúrunnar

Jan 20, 2023

Enski boltinn - London er rauð og það er Manchester líka

Það er nóg um að ræða í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Það voru tveir mjög svo áhugaverðir nágrannaslagir um helgina. Manchester United og Arsenal stóðu uppi sem sigurvegarar í þessum tveimur leikjum eru gestir dagsins Albert Hafsteinsson og Magnús Ingi Þórðarson, leikmenn Fram. Albert heldur með Arsenal og Magnús er stuðningsmaður United. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke fara yfir málin með þeim tveimur. Farið er yfir alla leiki helgarinnar og undir lokin á þættinum er uppgjör á deildinni hingað til, en hún er svo gott sem hálfnuð. Þá er rætt um Úkraínumanninn Mikhaylo Mudryk sem fór til Chelsea frekar en Arsenal.

Jan 16, 2023

Arnar gerir upp janúarverkefnið - „Viljum ekki vera lið sem er fyrirsjáanlegt"

Ísland lék tvo vináttuleiki í janúar, fyrri leikurinn var gegn Eistlandi og sá seinni var gegn Svíþjóð. Leikið var í Portúgal, fyrri leikurinn endaði með jafntefli en seinni leikurinn tapaðist. Landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson ræddi við Sæbjörn Steinke og voru leikirnir gerðir upp. Rætt var um leikkerfi, leikmenn sem heilluðu, seinni vítaspyrnuna gegn Eistlandi og ýmislegt annað. Arnar segir að það sé ekkert leyndarmál að einhverjir í þessum hópi komi til greina í næstu landsleiki. Þegar líður á viðtalið er Arnar spurður út í marsverkefnið þar sem alvaran hefst, fyrsti leikur í undankeppni EM er gegn Bosníu á útivelli. Gæti Albert Guðmundsson verið með í því verkefni?

Jan 16, 2023

Útvarpsþátturinn - Janúarverkefni Íslands og viðburðarík fréttavika í Bestu

Það er tíðindamikil vika að baki í boltanum, bæði hér heima og erlendis. Í útvarpsþættinum Fótbolti.net fara Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke yfir allt það helsta. Janúarverkefni íslenska landsliðsins, ótrúleg úrslit í Reykjavíkurmótinu, leikmannahræringar í Bestu deildinni og enski boltann koma við sögu. Í handboltahorninu er hringt til Svíþjóðar og púlsinn tekinn á Henry Birgi Gunnarssyni.

Jan 14, 2023

Enski boltinn - Krísuástandið hjá Chelsea krufið til mergjar

Í dag fá Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke góðan gest í hlaðvarpsþáttinn Enski boltinn. Stefán Marteinn Ólafsson mætti á skrifstofuna og fór yfir það hvað í ósköpunum væri í gangi hjá Chelsea þessa stundina. Chelsea tapaði fyrir Fulham í gær og það er krísuástand á Brunni um þessar mundir. Graham Potter, stjóri liðsins, virðist sigraður og staða hans er auðvitað rædd ásamt ýmsu öðru. Þá er einnig rætt um deildabikarinn og rosalega umferð sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Jan 13, 2023

Freysi um Söru Björk: Draumur fyrir alla þjálfara

Í morgun tilkynnti Sara Björk Gunnarsdóttir að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna eftir sextán ára feril. Hún fór á fjögur stórmót, lék 145 landsleiki og skoraði 24 landsliðsmörk á sínum ferli. Á árunum 2013-2018 lék hún undir stjórn Freys Alexanderssonar í landsliðinu. Freyr er í dag þjálfari Lyngby í Danmörku og ræddi við Fótbolta.net um Söru Björk í kjölfar tíðindanna í dag. Freyr gerði Söru að fyrirliða á sínum tíma þegar Margrét Lára Viðarsdóttir var með barni og leiddi hún liðið á EM í Hollandi þegar Freysi var þjálfari liðsins. Í seinni hluta viðtalsins ræddi svo Freysi um stöðuna hjá Lyngby sem hefur misst lykilmenn núna í glugganum og er í erfiðri stöðu í dönsku Superliga.

Jan 13, 2023

Heimavöllurinn: Lífstíðarbönn eftir að viðbjóðurinn vall upp úr skýrslunni

Heimavöllurinn er klár í nýtt fótboltaár og ýmsar vendingar hafa þegar orðið í boltanum á nýju ári. Stórtíðindi af lífstíðarbönnum fjögurra þjálfara úr Bandarísku úrvalsdeildinni hafa vakið mikla athygli en gríðarlega stór rannsókn var nýlega gerð á ofbeldi og ofbeldismenningu í deildinni. Daði Rafnsson þekkir vel til í bandaríska boltanum og mætir til að fara yfir málin. Auðvitað í boði Dominos, Heklu og Orku Náttúrunnar.

Jan 12, 2023

Enski boltinn - Hvað er að hjá Liverpool og hvað gerir Boehly?

Þeir Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke ræddu það helsta í enska boltanum í dag. Farið var yfir umferðina í síðustu viku og rætt um bikarhelgina.Það er bras á Liverpool, Chelsea og Everton þessa dagana og spilamennska liðanna voru til umræðu. Á Chelsea að láta Potter fara? Hvað er að hjá Liverpool og hefur Darwin Nunez valdið vonbrigðum? Er Rooney lausnin fyrir Everton?Þá var rætt um það helsta í slúðrinu: Hvaða sóknarmann tekur Man Utd? Nær Arsenal að landa Mudryk? Miðjumaður í Liverpool? Endar Enzo í Chelsea?

Jan 9, 2023

Útvarpsþátturinn - Flóttinn frá Keflavík og ótímabæra spáin

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 7. janúar. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Gestur er Sigurður Garðarsson, formaður Keflavíkur, sem svarar fyrir sögur um að fjárhagserfiðleikar herji á félagið. Lið Keflavíkur hefur misst marga lykilmenn frá síðasta tímabili og stuðningsmenn hafa áhyggjur. Þá er farið yfir fyrstu ótímabæru spá Bestu deildarinnar 2023. Farið er yfir hvað liðin hafa gert á félagaskiptamarkaðnum í vetur.

Jan 7, 2023

Enski boltinn - Er þetta í alvöru að fara að gerast?

Langt síðan síðast. Enski boltinn snýr aftur í dag úr HM-pásu og stuttu jólafríi. Enska úrvalsdeildin er komin aftur á fleygiferð og er spilað mjög þétt um þessar mundir. Tvær umferðir fóru fram á milli jóla og nýárs. Svo er leikur í kvöld þegar Liverpool og Brentford mætast. Er Arsenal í alvöru að fara að vinna þessa deild? Hringt var í Gunnar Birgisson, íþróttafréttamann og harðan stuðningsmann liðsins, til þess að ræða það. Þá var farið yfir stöðu mála og janúargluggann. Hvað eiga stóru félögin að gera í glugganum?

Jan 2, 2023

Útvarpsþátturinn - Áramótakæfan 2022

Elvar Geir, Tómas og Benedikt Bóas gera upp fótboltaárið 2022 og veita verðlaun í ýmsum flokkum. Hilmar Jökull á línunni, Bjarki Már Elísson handboltahetja er heiðursgestur og Röddin mætir í lokin. Flugeldasýning og stuð þar sem gleðin er í fararbroddi. Takk kærlega fyrir hlustunina á árinu!

Dec 31, 2022

Heimavöllurinn: Áramótabomban 2022

Heimavöllurinn snýr aftur eftir haustpásu og nú er komið að því að gera upp fótboltaárið sem er að líða. Reynsluboltarnir og kempurnar Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir og Kristrún Lilja Daðadóttir mæta í sett og fara yfir árið með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar, Dominos og Heklu.

Dec 29, 2022

Elísabet leyfir smábænum að dreyma - Hvað tekur svo næst við?

Elísabet Gunnarsdóttir er einn besti fótboltaþjálfari sem hefur komið frá Íslandi, það er óhætt að fullyrða það. Hún hefur frá því í janúar árið 2009 þjálfað Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur náð mjög svo eftirtektarverðum árangri. Þar áður gerði hún Val að besta liði landsins, mögulega var það besta lið Íslandssögunnar. Í þessum hlaðvarpsþætti fer Elísabet yfir byrjunina á þjálfaraferlinum, verkefnið í smábænum Kristianstad, framtíðina og margt fleira. Markmiðin eru skýr fyrir næstu leiktíð en hvað gerist næst eftir að þessum langa Kristianstad-kafla lýkur? Það verður fróðlegt að sjá en hún er með samning við félagið út næstu leiktíð.

Dec 29, 2022

HM hringborðið - Allt í efsta stigi á mótinu hans Messi

Síðasta HM hringborðið! Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Laufdal gera upp stórkostlegan úrslitaleik HM. Lionel Messi lyfti heimsmeistarabikarnum eftir sigur Argentínu í hreint rosalegum úrslitaleik, skemmtilegasta úrslitaleik sögunnar. Rætt er um leikinn, þetta svakalega argentínska lið, Guðmundur velur sitt úrvalslið mótsins og Arnar fimm bestu ungstirni mótsins.

Dec 18, 2022

Útvarpsþátturinn - Úrvalslið HM og Birkir Már um Messi og Mbappe

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 17. desember. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðveri X977 á Suðurlandsbraut og Tómas Þór beintengdur frá hljóðveri DR í Kóngsins Kaupmannahöfn. Hitað er upp fyrir úrslitaleik HM, úrvalslið mótsins valið, HM leikmenn sendir í ensku úrvalsdeildina og Birkir Már Sævarsson er á línunni. Birkir Már þekkir það að mæta bæði Argentínu og Frakklandi. Hvort er erfiðara að mæta Messi eða Mbappe? Síðasti þáttur fyrir jól. Gleðilega hátíð!

Dec 17, 2022

Arnar útskýrir landsliðsvalið - Einn í viðbót valinn

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í dag 22 leikmenn sem verða í landsliðshópnum í janúar þegar spilað verður við Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í Portúgal. Tveir nýliðar eru í hópnum, það eru þeir Aron Bjarnason og Nökkvi Þeyr Þórisson. Aron Sigurðarson er þá í hópnum í fyrsta sinn síðan í janúar 2018. Fótbolti.net ræddi við landsliðsþjálfarann í dag og spurði hann sérstaklega út í þessa þrjá leikmenn auk þess sem spurt var út í yngsta leikmann hópsins, Danijel Dejan Djuric. 23. leikmaðurinn verður svo tilkynntur síðar. „Við erum að bíða eftir svari frá nokkrum klúbbum," sagði Arnar um 23. manninn í viðtalinu. Arnar kom inn á að sum félög á Norðurlöndunum hefðu ekki hleypt leikmönnum sínum í verkefnið. Hann fór yfir janúarverkefnið, valið á hópnum, ræddi um landsliðsárið 2022 og ýmislegt annað í viðtalinu sem má nálgast í spilaranum hér að ofan, á Spotify og öllum hlaðvarpsveitum.

Dec 16, 2022

HM hringborðið - Þeir bestu leika til úrslita

Undanúrslitin á HM í Katar eru gerð upp við HM hringborðið. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu með tvo góða gesti: Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðs Íslands er HM sérfræðingur okkar og Óðinn Svan Óðinsson, frétta- og íþróttafréttamaður RÚV, er einnig við hringborðið. Heimsmeistararnir lögðu Marokkómenn sem geta þó borið höfuðið afskaplega hátt. Messi hefur verið besti maður mótsins og mun berjast við Mbappe í úrslitaleiknum á sunnudag.

Dec 14, 2022

HM hringborðið - Englendingar komnir heim og Ronaldo grét

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir allt það helsta frá HM í Katar. Lukkan var með Frökkum sem sendu Englendinga heim, Southgate íhugar að hætta, Ronaldo grét þegar draumurinn varð að engu, spænski dómarinn er líka farinn heim, Marokkó heillar heimsbyggðina, hverjir skipta um lið eftir HM?, þjálfarahræringarnar, spáð í undanúrslitin og fleira.

Dec 12, 2022

Útvarpsþátturinn - HM með smassbræðrum, Arnór og ÓMK

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 10. desember. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Gunni Birgis og Tommi Steindórs við HM hringborðið. Rætt er um sturlunina í fyrstu tveimur leikjum 8-liða úrslitanna og hitað upp fyrir framhaldið. Í seinni hluta þáttarins er rætt við Arnór Sigurðsson og Óttar Magnús Karlsson kemur í heimsókn.

Dec 10, 2022

HM hringborðið - Karnival í Katar og Spánn fær ekki að vera með

Það er ekki töluð vitleysan við HM hringborðið. Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar og Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins eru sérfræðingar Elvars Geirs. Portúgal fór á kostum með Ronaldo í kælinum, Marokkómenn sendu hugmyndasnauða Spánverja heim, Brasilía blæs í danssýningu og Króatar elska langa leiki. Rætt um alla leiki 16-liða úrslita HM og komandi leikir í 8-liða úrslitum skoðaðir.

Dec 6, 2022

HM hringborðið - Hey Jude og töframáttur Messi og Mbappe

Fjögur lið eru komin í 8-liða úrslitin. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn gera upp fyrstu fjóra leiki 16-liða úrslitanna. Vængbakverðir Hollands fóru illa með Bandaríkin, Messi leiddi Argentínu áfram en Ástralía getur borið höfuðið hátt, Mbappe var magnaður fyrir Frakka og Jude Bellingham heillaði í sigri Englands gegn Senegal.

Dec 4, 2022

Útvarpsþátturinn - Þeir bestu, verstu og skemmtilegustu á HM

Elvar Geir og Tómas Þór gera upp riðlakeppni HM í útvarpsþætti vikunnar, velja úrvalsliðið til þessa, mestu vonbrigðin og skemmtilegustu karakterana. Sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson, spáir í viðureignir 16-liða úrslitanna. Fjallað er um vonbrigði Þýskalands. Sæbjörn Steinke ræðir við Guðmund Hreiðarsson, markvarðaþjálfara Jamaíku og sérfræðing um þýska fótboltann. Í lok þáttarins er svo farið yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.

Dec 3, 2022

Svava kom djúpt úr frystinum og stóð uppi sem tvöfaldur meistari

Svava Rós Guðmundsdóttir hefur átt viðburðaríkt ár, hún skipti um félag í upphafi árs, vann tvo titla með Brann í Noregi og fór með landsliðinu á EM í sumar. Seinni hluta síðasta árs var Svava ekki á góðum stað, föst í liði þar sem þjálfarinn ætlaði sér ekki að spila henni. Svava ræðir tímann hjá Bordeaux; síðustu mánuðina, viðskilnaðinn og skiptin í Brann, tímann sinn í Noregi til þessa, fagnið sitt á móti Rosengård, titlana tvo, úrslitakeppnina í Noregi, Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur, Natöshu Anasi, EM í sumar, leikina gegn Hollandi og Portúgal og ýmislegt annað.

Dec 2, 2022

HM hringborðið - Danmörk heim með skottið á milli lappanna

Þá er fjórum riðlum á HM í Katar lokið. Tveir riðlar kláruðust í dag og vantaði ekki dramatíkina í þá fjóra leiki sem voru spilaðir. Danir eru farnir heim, Frakkar töpuðu óvænt, Messi og félagar kláruðu sitt og það gerðist næstum því að lið færi áfram á háttvísisstigum. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir leiki dagsins í HM hringborðinu ásamt því að ræða við góða gesti. Hringt er til Danmerkur þar sem er rætt við Frey Alexandersson, þjálfara Lyngby, um ófarir danska liðsins og svo var hringt til Katar þar sem spjallað er við fjölmiðlamanninn Kristin Pál Teitsson um það hvernig er að vera á mótinu sem áhorfandi.

Nov 30, 2022

HM hringborðið - Glæstar vonir og súr vonbrigði: Magnús Már kryfur það helsta

Tveimur riðlum á HM er lokið, hvað varðar leikjafjölda er mótið rúmlega hálfnað og það er margt í spilunum. Nýjar stjörnur verða til, glæstar vonir og súr vonbrigði. Elvar Geir og Guðmundur Aðalsteinn eru við HM hringborðið og sérstakur gestasérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri Fotbolti.net. Farið er yfir leiki síðustu tveggja daga og skoðað hvað er framundan. Englendingar mæta Senegal og Holland leikur við Bandaríkin í 16-liða úrslitum. Rætt er um Ronaldo, Luis Enrique, umfjöllunina á RÚV og horft til baka á HM 2018.

Nov 29, 2022

HM hringborðið - Betri er full krukka en tóm

Á morgun er lokadagurinn í 2. umferð riðlakeppninnar. Við hringborðið í dag var farið yfir leiki helgarinnar þar sem spilað var í C,D, E og F riðli. Það er mikil spenna í öllum riðlunum og einungis ein þjóð komin áfram í 16-liða úrslit. Sæbjörn Steinke fékk Framarana Guðmund Magnússon og Óskar Smára Haraldsson með sér í yfirferðina. Meðal efnis: Niclas Füllkrug, Belgar í brasi, Messi steig upp, Frakkar líklegir, Danir með örlögin í sínum höndum, kraftmiklir Króatar, massífir Marokkóar og svakaleg lokaumferð í C-riðli.

Nov 27, 2022

Útvarpsþátturinn - Mestu vonbrigði HM og fréttir vikunnar

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óvenjulegri útgáfu þessa vikuna. Hann er sendur út frá Mývatni. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir gang mála á HM í Katar og þá eru fótboltafréttir vikunnar á sínum stað. Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu að þessu sinni.

Nov 25, 2022

HM hringborðið - Yfirferð með Davíð Snorra: Stór lið strax undir pressu

HM er farið á fulla ferð og við hringborðið er farið yfir allt það helsta sem hefur gerst á mótinu til þessa. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða mótið með góðum gesti. Sérfræðingur þáttarins er Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins. Davíð starfaði sem leikgreinandi hjá íslenska landsliðinu á HM 2018. Meðal efnis: Heimsmeistararnir byrja á sigri, óvæntustu úrslit HM sögunnar, Danir ekkert spes, England byrjar á markaflóði, Ronaldo rifti við Man Utd og íslenska U21 liðið vann Skota.

Nov 22, 2022

Útvarpsþátturinn - Ronaldo, HM og Kaggi Más

Útvarpsþátturinn 19. nóvember 2022. Umsjón: Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór. Rætt um Ronaldo málið við Tryggva Pál Tryggvason, fréttamann og sérfræðing um Manchester United. Í kjölfarið er farið yfir helstu fréttir. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV ræðir um HM utan og innan vallar og Sævar Sævarsson kynnir bók sína um Kjartan Másson sem er nýkomin út.

Nov 19, 2022

HM hringborðið - Dauðariðlarnir þar sem allt getur gerst

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn skoða F, G og H riðla heimsmeistaramótsins og helstu fréttir. Arnar Þór Viðarsson gefur innsýn í belgíska liðið og Aksentije Milisic í það serbneska.

Nov 17, 2022

HM hringborðið - Innistæða fyrir danskri bjartsýni

Við höldum áfram að hita upp fyrir HM í Katar. Í þættinum að þessu sinni skoða Elvar Geir og Sæbjörn Steinke riðla C, D og E. Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby er á línunni og gefur innsýn í danska landsliðið.

Nov 16, 2022

Enski boltinn - Tekur upp hanskann fyrir Ronaldo

Cristiano Ronaldo er á allra vörum í dag eftir viðtal sem hann fór í hjá umdeilda fjölmiðlamanninum Piers Morgan. „99 prósent af stuðningsmönnum Man Utd munu standa með Erik Ten Hag, sem sýnir í raun hversu illa Ronaldo kom að málunum. Þetta eitt prósent mun styðja Ronaldo er Rio (Ferdinand), Roy (Keane) og Patrice (Evra)," sagði Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, í gær. Það má segja að Mate Dalmay, körfuboltaþjálfari Hauka, sé í þessu eina prósenti. Hann er mikill Ronaldo maður og er ekki sáttur við það hvernig Ten Hag hefur komið fram. Rætt er við Mate um stóra Ronaldo málið og stuttlega um leiki helgarinnar í Enski boltinn í dag.

Nov 14, 2022

Útvarpsþátturinn - Sævar Péturs, fréttir vikunnar og enski boltinn

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. nóvember.Tómas Þór og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni. Í fyrsta hlutanum kom Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í heimsókn en hann var í bænum að semja við leikmenn og segir frá því og uppgangi félagsins og vinnunni á bakvið hann.Um miðjan þátt var fari yfir helstu fótboltafréttirnar hér á landi og þar var af nægu að taka.Í síðasta hlutanum rætt um ensku úrvalsdeildina sem fer eftir helgina í frí vegna Heimsmeistaramótsins í Katar.

Nov 13, 2022

HM hringborðið - Innsýn í lið Katar og fer England áfram?

Það eru níu dagar í HM, þetta er að bresta á! Í dag fóru Gummi og Steinke yfir A- og B-riðla með Arnari Laufdal, fréttamanni. Hollendingar eru líklegastir til að vinna A-riðil en gætu heimamenn í Katar komið á óvart með því að fara áfram? Rætt var við Bjarka Má Ólafsson, fyrrum leikgreinanda Al Arabi í Katar, til að fá innsýn í lið heimamanna. Þá var einnig rætt um B-riðil og þá sérstaklega um England en margir skjóta á það að Englendingar muni floppa á mótinu.

Nov 11, 2022

HM hringborðið - Fyrsti Íslendingurinn sem komst á stærsta sviðið

Aron Jóhannsson varð fyrsti Íslendingurinn til að spila á HM þegar hann fór með Bandaríkjunum til Brasilíu árið 2014.Það eru núna tólf dagar í HM í Katar og fékk undirritaður því Aron í áhugavert spjall í dag.Hann ræðir ákvörðunina að spila fyrir bandaríska landsliðið frekar en það íslenska, upplifunina að spila á HM í Brasilíu og mótið sem framundan er.Bandaríkin eru með spennandi lið núna og stefna á það að fara upp úr riðli sínum sem inniheldur meðal annars England. En aðalmálið er HM 2026 þar sem það mót verður haldið í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

Nov 8, 2022

Adda fer yfir glæstan feril - Einn sigursælasti leikmaður sögunnar

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er einn sigursælasti leikmaður í sögu íslenska boltans. Hún ákvað að leggja skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hún endaði á því að verða bæði Íslands- og bikarmeistari með Val. Í þessu hlaðvarpi ræðir Adda við undirritaðan um stórkostlegan feril sinn þar sem hún vann fjölda titla með bæði Stjörnunni og Val. Þá lék hún einnig fyrir íslenska landsliðið. Adda ræðir einnig um næsta kafla í fótboltanum en hún er að byrja að þjálfa ásamt því að starfa sem sérfræðingur í sjónvarpi.

Nov 7, 2022

Enski boltinn - Hæhæ tvíeykið gerir upp stórleikinn

Það var skemmtileg helgi í ensku úrvalsdeildinni, og þá var sunnudagurinn sérstaklega áhugaverður. Hæhæ tvíeykið, Helgi Jean Claessen og Hjálmar Örn Jóhannsson, gera upp helgina og þá aðallega stórleik Liverpool og Tottenham en þeir eru stuðningsmenn þessara tveggja liða; Helgi heldur með Liverpool og Hjálmar með Tottenham. Skemmtileg saga af Grétari Rafni Steinssyni, sem er núna háttsettur hjá Tottenham, er á meðal þess sem kemur við sögu í þessum fjöruga þætti.

Nov 7, 2022