
Útvarpsþátturinn - Boltavikan, bensín fyrir KA og gluggi Man Utd
Fotbolti.net · [email protected]
July 8, 2023
Show Notes
Fótboltavikan er gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir leiki síðustu daga með Sverri Erni Einarssyni fréttamanni .Net. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er á línunni en Akureyrarliðið vann sigur gegn Breiðabliki í rosalegum undanúrslitaleik í bikarnum og er að fara í Evrópuverkefni.
Skoðuð eru stærstu tíðindi félagaskiptagluggans í Evrópu og Tryggvi Páll Tryggvason fréttamaður skoðar stöðu mála hjá Manchester United.