PLAY PODCASTS
Enski boltinn - Hemúllinn fer yfir ruglið og upprisuna hjá Coventry

Enski boltinn - Hemúllinn fer yfir ruglið og upprisuna hjá Coventry

Fotbolti.net · [email protected]

May 26, 2023

Show Notes

Coventry City, líkt og Luton Town, er einum leik frá því að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Gummi og Steinke fengu Arnar Sæberg Jónsson, sem sumir þekkja sem Hemúlinn, í spjall um Coventry í dag. Hann hefur lengi verið stuðningsmaður liðsins. Í þættinum ræðir hann um það hvernig áhugi sinn á Coventry kviknaði og sorglega tíma hjá félaginu síðustu árin. Þetta hefur verið skrautlegt lengi vel en núna er sólin farin að skína. Á morgun gæti liðið svo tryggt sér sæti í deild þeirra bestu, en Arnar verður auðvitað á leiknum gegn Luton.