
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 28 of 57

Davíð Snorri: Þegar dugnaðurinn er á hreinu þá koma gæðin líka
Davíð Snorri Jónasson þjálfari U21 landsliðsins valdi í síðustu viku hóp fyrir tvo leiki sem framundan eru. Ísland mætir Liectenstein næsta föstudag og Grikklandi þriðjudaginn 16. nóvember. Báðir leikirnir eru liður í undankeppni EM 2023. Davíð var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi um komandi leiki og riðil Íslands.

Fótboltafréttir vikunnar - Landsliðsval og leikmannaskipti
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Byrjað er að ræða landsliðsvalið og síðustu tvo leikina í undankeppni HM. Magnús Már velur byrjunarlið Íslands úr hópnum sem opinberaður var í vikunni. Annað til umræðu: Pétur Theodór slítur krossbandið í þriðja sinn, sóknarmannaleit Breiðabliks, Aron Jó í Val, staða Hannesar, óvæntustu skipti haustsins, Emil Pálsson fór í hjartastopp, Nuno út og Conte inn, Howe tekur við Newcastle og Xavi við Barcelona.

Ítalski boltinn - Juventus í æfingabúðum og Bjarki Steinn með nýjan samning
Í þætti vikunnar verður farið yfir vandræðaganginn í Juventus sem endaði á því að liðið var sent í æfingabúðir. Bjarki Steinn skrifaði undir nýjan samning hjá Venezia, hvernig lítur framhaldið út hjá honum? Sampdoria saknar Claudio Ranieri og toppbaráttan er hnífjöfn á milli Napoli og AC Milan. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Ungstirnin x Garðabær
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir fjalla um Luka Sucic (Salzburg) sem er enn einn spennandi leikmaðurinn í Salzburg og Kaiky Melo (Santos) sem hefur verið mikið líkt við varnarmanninn öfluga Thiago Silva. Þeir ungu og mjög efnilegu leikmenn Stjörnunnar Eggert Aron Guðmundsson og Óli Valur Ómarsson koma í heimsókn og takast drengirnir á í spurningakeppni. Þeir eru spurðir út í hvað hefur verið að gerast á þeirra ferli.

Fantabrögð - Salah slakar á og #SkáldaFPL
Það kom að því. Mo Salah skoraði ekki. En lagði þó upp mark svo það voru ekki 100% vonbrigði hjá þeim metfjölda sem setti bandið á hann í þessari umferð. Aron og Gunni mættu í stúdíóið yfir leik Wolves og Everton og fóru yfir það helsta sem hafði gerst í umferðinni: - Reece James með tvennu og 21 stig! - Brentford ekki að gefa - Hvernig munu Spurs verða undir Conte? - #SkáldaFPL Að auki drógum við út sigurvegara í gjafaleik Massabón 🤩

Enski boltinn - Nuno sparkað, Ramsdale lygasagan og kraftaverk Moyes
Tíundu umferðinni í enska boltanum lýkur í kvöld með viðureign Wolves og Everton. Þeir Andri Geir Gunnarsson úr hlaðvarpsþættinum Steve Dagskrá og Arnar Laufdal Arnarsson, annar af umsjónarmönnunum Ungstirnanna, ræddu um það helsta í umferðinni. Í upphafi þáttar var hringt í Ingimar Helga Finnsson, stuðningsmann Tottenham, og farið yfir tíðindi dagsins. Andri er stuðningsmaður Barcelona og var spænska félagið til umræðu í lok þáttar. Arnar er mikill Ajax maður og ræddi um stöðu Donny van de Beek og fleira. Enski boltinn er í boði Domino's.

Útvarpsþátturinn - Enska hringborðið og Aron Þrándar
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. október. Enska úrvalsdeildin er í aðalhlutverki í þætti vikunnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Kristján Atli og Tryggvi Páll ræða um gang mála og valið er úrvalslið fyrsta fjórðungs. Staða Ole Gunnar Solskjær og þjálfaraskipti Barcelona er meðal umræðuefna í þættinum. Þá er Aron Elís Þrándarson, leikmaður OB, í áhugaverðu viðtali.

Heimavöllurinn: Óvæntar frammistöður og sex blá stig í HM töskuna
Landsliðsveisla á Heimavellinum þegar Margrét Magnúsdóttir þjálfari og Sæbjörn Þór fréttamaður á Fótbolti.net mættu í hús í dag. Ísland vann tvo mikilvæga sigra í undankeppni HM á síðustu viku. Gríðarlega mikilvægur sigur gegn Tékkum og skyldusigur gegn Kýpur.

Fantabrögð - 9. umferð - Að gera sér dagamun
Aron og Ásgeir mættu glaðir í stúdíóið, enda voru þeir báðir með Salah sem fyrirliða í liðinni umferð. Einhverjir þáttastjórnendur forfölluðust í kjölfarið á ákvörðunum sínum, en bekkjabræður fóru yfir það helsta, eins og: - Munur á gengi milli daga - Hvernig fór Kai Havertz að því að blanka? - Á að kaupa Mason Mount? - Munum við einhverntímann velja annan fyrirliða en Salah? - Hver er pókerhöndin þín í Fantasy?

Enski boltinn - Íslandsmeistarar rýndu í stöðu Solskjær
Níundu umferðinni í enska boltanum lauk í gær með stórleik Manchester United og Liverpool. Íslandsmeistararnir Júlíus Magnússon og Eiður Ben Eiríksson fóru yfir umferðina og ræddu málin með Sæbirni Steinke. Eins og flestir vita lauk leiknum með risasigri Liverpool og var rýnt í leikinn og stöðu Ole Gunnar Solskjær hjá United. Júlli fór á Emirates og fór yfir málin hjá Arsenal og þá var aðeins skoðað hver gæti tekið við Newcastle. Í lok þáttar var farið yfir stuttlega yfir tímabilið hjá Víkingi með Júlla og Eiður rýndi aðeins í kvennalandsliðið. Enski boltinn er í boði Domino's.

Útvarpsþátturinn - Bak við tjöldin hjá meisturunum og enski
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur: Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings. Farið er yfir leiðina að tvennunni, stefnu félagsins, hæðir og lægðir meðan Heimir hefur starfað bak við tjöldin, ráðninguna á Arnari Gunnlaugs, leikmannamál og ýmislegt fleira. Einnig er farið yfir íslenskar fréttir og hitað upp fyrir Manchester United - Liverpool með Kristjáni Atla Ragnarssyni.

Fantabrögð - Uppgjör á 8. umferð
Þáttur vikunnar er mættur. Ásgeir og Heiðmar fóru yfir allt það helsta í umferðinni og spáðu í spilin fyrir komandi umferðir. Þurfa leikmenn á borð við Ronaldo, Benhrama og Jota að víkja fyrir Vardy, Son eða Toney? Er Lukaku að upplifa kulnun í starfi? Er Salah á móti Man Utd betri fyrirliðakostur en flestir aðrir? Alonso kominn í kælingu, af hverju spilar Tuchel ekki bara með tvo vinstri bakverði í kerfinu sínu? Þetta og margt fleira var rætt í þættinum! Ps minnum á föstudagsdeadline í vikunni.

Ungstirnin - Tchouameni, Babadi, FM og Wirtz
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Drengirnir fjalla um Aurélien Tchouaméni (Mónakó) sem hefur verið orðaður við Chelsea og Real Madrid og Isaac Babadi (PSV) sem er talinn vera mesta efnið úr PSV akademíunni síðan Memphis Depay. Meðal umræðuefnis er Football Manager 22, Florian Wirtz sem var nýlega valinn leikmaður mánaðarins í Bundesligunni, Evrópukeppni unglingaliða sem og margt fleira.

Enski boltinn - Salah, tap Man Utd og allt um eigendaskiptin
Áttunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram um helgina og er komið að því að gera upp umferðina. Sæbjörn Steinke fékk þá Jón Júlíus Karlsson og Jóhann Má Helgason til að fara yfir stóru málin. Jón Júlíus er mikill Newcastle maður og Jóhann er harður stuðningsmaður Chelsea. Farið var yfir eigendaskipti Newcastle, tap Manchester United gegn Leicester og annað markvert. Hlarðvarpsþátturinn Enski boltinn er í boði Domino's.

Útvarpsþátturinn - Barist um bikar og landsliðsuppgjör
Útvarpsþátturinn Fotbolti.net er í hlaðvarpsformi þessa vikuna þar sem umsjónarmenn hafa öðrum hnöppum að hneppa á hefðbundnum útsendingartíma. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Skagamaðurinn og íþróttafréttamaðurinn Sverrir Mar Smárason er með þeim í þættinum. Það er vel við hæfi enda er bikarúrslitaleikur Víkings og ÍA framundan á laugardaginn. Í þættinum er einnig rætt um íslenska landsliðið og tíðindi úr íslenska fótboltanum.

Glataður þjóðarleikvangur og yfirtaka Sádi-Arabíu á Newcastle
Seinni hluti útvarpsþáttarins 9. október. Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar Íslandsbanka, ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað um möguleika á því að fá nýjan þjóðarleikvang og einnig um stóru fréttirnar úr enska boltanum en Newcastle er nú með ríkustu eigendur í bransanum.

Landsliðsumræða - Tómlegur völlur og döpur úrslit
Fyrri hluti útvarpsþáttarins 9. október. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp 1-1 jafnteflisleikinn gegn Armeníu. HM-draumurinn er algjörlega dauður og sárafáir mættu á Laugardalsvöll. Slakt lið Armena fékk stig gegn Íslandi en Ísak Bergmann varð yngsti markaskorari landsliðsins frá upphafi. Farið er yfir frammistöðu leikmanna og framhaldið. Einnig er rætt um komandi bikarúrslitaleik Víkings og ÍA sem verður næsta laugardag.

Fantabrögð - Afsakið (landsleikja)hlé
Umferð 7 var versta umferðin í Fantasy það sem af er tímabili. Meðalskorið var einungis 38 stig og þó Fantabræður hafi flestir verið yfir því þá er ekki hægt að segja að þeir hafi riðið feitum hesti. Aron og Heiðmar gerðu upp umferðina og fóru yfir allt það helsta (og versta). - Spurningar hlustenda - Hvað þarf að hafa í huga þegar maður tekur Wildcard í landsleikjahléi? - Chelsea og City varnarmenn - Hver er þessi Haraldur?

Ítalski boltinn - Emil snýr aftur og fimm bestu í deildinni valdir
Emil Hallfreðsson er genginn til liðs við Virtus Verona, en hvaða lið er þetta eiginlega? Íslensku miðverðirnir eru farnir að byrja leiki, hinn tónelski Mourinho vill fá að stjórna tónlistinni og svo verða valdir í þættinum fimm bestu leikmenn deildarinnar í fyrstu sjö umferðunum. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Heimavöllurinn: PEPSI MAX UPPGJÖR 2021
Það er loksins komið að því. Pepsí Max uppgjörið 2021. Sæbjörn Þór og Helga Katrín fréttaritarar Fótbolta.net mættu í partýið og fara yfir allt það helsta í sumar.

Vanda Sig er sest í formannsstólinn - Ætlar að koma KSÍ úr krísunni
Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net heimsótti Vöndu Sigurgeirsdóttur á skrifstofu hennar í Laugardalnum. Vanda er tekin við sem formaður KSÍ og er fyrsta konan sem tekur við formennsku í aðildarfélagi hjá UEFA. Í viðtalinu ræðir hún um tiltektina sem framundan er, hvort hún sé komin til að vera, gagnrýni í Podcöstum, stuðningsyfirlýsingu við Arnar, traust framkvæmdastjórans, ímynd KSÍ, yfirmann fótboltamála, Laugardalsvöll, reynsluna frá ferli hennar og "Vanda Sig" brandarana.

Heimavöllurinn: Allt um Íslandsmeistaratitilinn með Mist Edvards og Ásdísi Karen
Valur er Íslandsmeistari árið 2021. Það var því kominn tími á að fá að vita allt um leiðina að titlinum og eru Íslandsmeistararnir Mist Edvarsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir gestir Heimavallarins. Hulda Mýrdal, Sæbjörn Þór og Helga Katrín fóru yfir málin með Íslandsmeisturunum.

Enski boltinn - Systurnar fóru yfir sviðið
Um helgina fór fram síðasta umferðin í ensku úrvalsdeildinni fyrir landsleikjahlé. Sæbjörn Steinke ræddi við systurnar Ástu Eir og Kristínu Dís Árnadætur um leiki umferðarinnar. Farið var yfir liðsvalið hjá Solskjær, viðbrögð Ronaldo, Werner kominn á blað og stórkostlegur lokaleikur í umferðinni. Watford rak þjálfarann, Brentford að byrja vel og hvort liðið er meira spennandi Brighton eða Arsenal.

Meistaradeildarupphitun: Leikur gegn PSG á morgun
Á morgun mætir Breiðablik franska stórliðinu PSG í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Af því tilefni ræddi Sæbjörn Steinke við systurnar Ástu Eir og Kristínu Dís Árnadætur en þær eru einmitt leikmenn Breiðabliks. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli annað kvöld. - Mættu PSG fyrir tveimur árum - Þakklæti til starfsfólks Breiðabliks - Nýju leikmennirnir - Þjálfarabreytingar - Hvernig er að vera með systur sinni í liði? - Endurkoma Ástu eftir barnsburð - Og svo margt fleira

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Arnar Grétars og Pepsi Max
Það var nóg að ræða í útvarpsþætti vikunnar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fótboltafréttirnar, rætt um landsliðið og Pepsi Max-deildina. Tómas Þór fer yfir laglausar hetjur íslenska boltans. Gestur þáttarins: Arnar Grétarsson, þjálfari KA.

Heimavöllurinn Extra: Margrét Lára velur topp 5 sem komu skemmtilega á óvart
Brakandi blíða á Heimavellinum í dag. Pepsí uppgjör nálgast óðfluga á Heimavellinum. Til að hita upp fyrir þá veislu fengum við Margréti Láru til að segja okkur betur frá Íslandsmeistaraliði Vals, spá í Bikarúrslitin og velja topp fimm leikmenn sem komu henni skemmtilega á óvart í deildinni í sumar.

Ástríðan - Uppgjörsþáttur 3. deildar
Sverrir Mar fékk til sín gesti úr liðunum sem enduðu í tveimur efstu sætum deildarinnar og fór yfir sumarið. Þorkell Þráinsson, fyrirliði Ægis, og Brynjar Þorri, leikmaður Hattar/Hugins mættu, fóru yfir deildina í heild, sín lið og eigin frammistöðu. Lið Ársins var sömuleiðis tilkynnt í boði Jako Sport auk bestu manna. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is.

Fantabrögð - Ronaldo út? Lukaku inn?
Ásgeir, Gunni og Snorri hittustu í stúdíóinu og gerðu upp 6. umferðina í FPL. Helstu umræðuefni: - Á að wildcarda núna? - Á maður að selja Ronaldo fyrir Lukaku? Er það jafn augljóst og allir vilja meina? - Triple Chelsea vörn? - Hvað gerum við við Luke Shaw og Jota? Fantabrögð eru í boði Massabón, Nemíu og hlustenda sem styrkja okkur á Patreon.

Ástríðan - Uppgjörsþáttur 2. deildar
Sverrir Mar fékk til sín gestir úr liðunum sem enduðu í 1. og 2.sæti deildarinnar og fór yfir sumarið. Samúel Már úr KV og Unnar Ari úr Þrótti Vogum, sem báðir voru valdir í lið ársins af fyrirliðum og þjálfurum, fóru yfir deildina í heild, sín lið og eigin frammistöðu. Lið Ársins var sömuleiðis tilkynnt í boði ICE nikótínpúða. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Innkastið - Lokahóf eftir magnað tímabil
Það er komið að síðasta Innkasti tímabilsins! Elvar Geir Magnússon, Íslandsmeistarinn Tómas Þór Þórðarson og Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason eru í hljóðverinu og halda sérstakt lokahóf. Víkingar eru Íslandsmeistarar og Tómas fagnaði rækilega á laugardagskvöldinu, HK féll úr deildinni á meðan ÍA bjargaði sér á ótrúlegan hátt. Farið er yfir alla leikina og þá er lið ársins opinberað, þjálfari ársins, leikmaður ársins í boði Bose og besti ungi leikmaðurinn.

Ungstirnin - Kristall á línunni og næstu Haaland og Neymar
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Kristall Máni Ingason leikmaður Víkinga var á línunni og ræddu drengirnir um tímabilið sem var að klárast en Kristall og Víkingar urðu Íslandsmeistarar á laugardaginn. Drengirnir fjölluðu um Benjamin Sesko (RB Salzburg) og Angelo Gabriel (Santos) en þessum leikmönnum hefur verið mikið líkt við Erling Haaland og Neymar. Rætt var um hvaða ungu leikmenn Lengjudeildarinnar væri gaman að sjá í Pepsi-Max deildinni næsta sumar. Meðal umræðuefnis voru yngri flokkarnir, besti ungi leikmaður Pepsi-Max, Elías Rafn í A-landsliðið, Florian Wirtz og Amine Gouri á eldi sem og margt margt fleira.

Fótboltapólitíkin - Aukaþing framundan
Aukaþing KSÍ fer fram laugardaginn 2. október næstkomandi en þar verður ný bráðabirgðastjórn og nýr bráðabirgðaformaður kosin. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica-hótelinu á Suðurlandsbraut. Frestur til að skila inn framboðum er til miðnættis í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Þóri Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóra KSÍ og sérfræðing útvarpsþáttarins í fótboltapólitíki, um komandi þing.

Elvar og Tom skoða lokaumferðina í Pepsi Max
Það er mikil spenna fyrir lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar. Víkingur eða Breiðablik verður Íslandsmeistari og hörð barátta er um að forðast það að falla með Fylki. Auk þess er spenna í baráttunni um þriðja sætið sem gæti gefið þátttökurétt í Evrópukeppni, ef Víkingur mun vinna bikarinn. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoða leikina í lokaumferðinni. Þetta er upptaka fyrir útvarpsþáttinn Fótbolti.net sem verður í loftinu á morgun.

Ítalski boltinn - Íslendingur á toppnum og fótbolti spilaður á Formúlu 1 braut
Íslendingur trónir á toppnum í Íslendingadeildinni Serie B með fullt hús stiga. Bandarískum eigendum fjölgar enn á Ítalíu. Hjátrú skilaði nýliðum sínum fyrstu stigum í efstu deild og Juventus er hægt og rólega að ná vopnum sínum á nýjan leik.

Heimavöllurinn: Sáttabolli í Wolfsburg, framtíðin og lið ársins í 2. deild
Landsleikurinn gegn Hollandi, framtíðin og 2. deild eiga hug og hjörtu Heimavallarins að þessu sinni. Knattspyrnuþjálfarinn Margrét Magnúsdóttir mætir og fer yfir allt það helsta ásamt þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Rýnt verður í landsleikinn og Margrét tippar á nokkrar framtíðartsjörnur. Þá verður farið yfir lið og leikmenn ársins í 2. deild en þjálfarar og fyrirliðar félaga í deildinni sjá um valið sem birtist á Fótbolta.net.

Fantabrögð - Chelsea mun aldrei aftur fá á sig mark
Aron, Ásgeir og Gylfi mættu í dag að henda boltum á milli. Að selja eða ekki selja? Það er efinn. Þrjár sterkustu varnir deildarinnar halda áfram að hala inn stigum. Salah er besti Fantasy leikmaðurinn um þessar mundir. Adama Traore er það ekki. Bara alls ekki. Meðal umræðuefnis í dag er hvaða Chelsea varnarmaður er bestur, hvaða leikkerfi er best, hvernig á maður að spila Ronaldo/Lukaku leikinn og samstilltur tíðahringur kvenna. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu hér til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7

Enski boltinn - Umferðin skoðuð og horft Fram á við
Enski boltinn er snúinn aftur eftir leyfi. Sæbjörn Steinke fékk til sín tvo Framara og var farið vel yfir umferðina um helgina og áhugaverðir leikmenn teknir fyrir. Spjallið er ítarlegt en fyrir þá sem vilja alls ekki hlusta á Indriða Áka Þorláksson og Gunnar Gunnarsson tala um gott tímabil með Fram geta spólað fram á 13. mínútu og hlustað á spjall um enska frá þeim tímapunkti.

Aðeins meiri ástríða - Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfara KFS, til sín í spjall. KFS fengu 4 stig úr fyrstu 8 leikjum sumarsins áður en allt snérist við og endaði liðið í 6. sæti deildarinnar með 34 stig, 7 stigum frá 2. sæti. Meðal annars ræða þeir við Gunnar Heiðar um leikstíl og uppbyggingu liðsins, hvernig gekk að halda trúnni á verkefnið, upphafið á þjálfaraferli Gunnars Heiðars og mögulega framtíð hans í fótboltanum. Einnig komu þeir inn á Dr. Hjalta, the BoomBoom room og fleira. Hlustaðu á þetta áhugaverða spjall í spilaranum hér fyrir ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Heimavöllurinn: Lokahóf Lengjunnar og appelsínugul viðvörun
Það er farið að hausta og komið að því að gera upp Lengjudeildina. Úrvalslið deildarinnar verður opinberað en það er valið af þjálfurum og fyrirliðum. Þá verður farið yfir ýmislegt eftirtektar- og eftirminnilegt frá fótboltasumrinu. Það verður gert ásamt sigurreifum gestum úr deildinni. Þeim Rebekku Sverrisdóttur sem vann deildina með KR og Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur sem gat ekki hætt að skora og skaut Aftureldingu upp í Pepsi Max.

Innkastið - Lokasprettur sem er bannaður börnum
Velkomin með okkur í Innkastið þegar aðeins sjö leikir eru eftir af Pepsi Max-deildinni. Um næstu helgi verður lokaumferðin og gera má ráð fyrir svakalegri spennu. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Sverrir Mar Smárason fara yfir allt það helsta á svakalegum sunnudegi í Pepsi Max-deildinni. Meðal efnis: Vítaklúðrin og dramatíkin, dómarar í sviðsljósinu, handrit Kára og Sölva, Fylkir fékk alvöru skell á Akranesi, KV komið upp í Lengjudeildina.

Ástríðan - Síðasta yfirferð sumarsins
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar sem jafnframt voru þeir síðustu í ár. KV og Völsungur unnu bæði sína leiki en KV fylgja Vogunum upp í Lengjudeild. Ægismenn fara upp úr 3.deild á fleiri skoruðum mörkum og ÍH heldur sér í deildinni á markatölu. Tindastóll og Einherji fallin niður í 4.deild. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Útvarpsþátturinn - Lengjudeildarverðlaun og íslenskt slúður
Útvarpsþátturinn 18. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Úlfur Blandon fara yfir íslenska boltann. Farið er yfir Lengjudeildarverðlaunin og rætt um slúðrið í íslenska boltanum, Mjólkurbikarinn og komandi umferð í Pepsi Max. Besti leikmaður Lengjudeildarinnar er á línunni.

Ítalski boltinn - Leigumorðinginn kann að rífa í gikkinn og Juventus enn í vandræðum
Szczesny kostar Juventus stig, leigumorðinginn Ballardini þorir að rífa í gikkinn og Serbarnir tveir gefa Fiorentina von um bjarta framtíð með blóm í haga. Pisa fer vel af stað í Íslendingadeildinni Serie B og Alberto Gilardino kennir Óttari Magnúsi markaskorun í einni af fallegustu borgum Ítalíu. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Fantabrögð - Rembingur í Ronaldo og sjóðandi Salah
Fyrir þá sem misstu af því er Ronaldo byrjaður aftur að leika knattspyrnu fyrir Manchester United. Hann er flottur strákur og skoraði tvö mörk. Salah og Mané eru smábörn en skoruðu báðir. Hvaða áhrif hefur Ronaldo á menn eins og Greenwood og Pogba? Hvað gerum við þegar bestu varnir deildarinnar eru jafnframt þær óútreiknanlegustu með tilliti til leikmannavals? Hið villta spil var virkjað af þátttakanda þáttarins og Arsenal eru óvænt aftur orðnir topplið. Þetta og margt fleira í þættinum í dag.

Ástríðan - Húsavík nötraði og Höttur/Huginn tryggði sig upp
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Húsavík nötraði úr spennu þegar Völsungur og KV skildu jöfn. Stressið tók yfir hjá Njarðvík. Spennan fyrir lokaumferðina er rosaleg. Höttur/Huginn tryggði sér toppsætið í 3. deild. Ægismenn réttu KFG keflið. Dalvíkingar urðu sér til skammar utan vallar. KFS tapaði leik! Augnablik tapaði ekki leik! Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Innkastið - Öll spjót beinast að Heimi og Skagamenn sleppa
Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig eru í Innkasti vikunnar. Leikir helgarinnar í Pepsi Max-deildinni eru gerðir upp og einnig er Lengjudeildin, 2. deild og Mjólkurbikarinn til umræðu. Breiðablik vann 3-0 sigur gegn Val og Víkingar unnu auðveldan sigur gegn HK. Tómas er búinn að reikna það út að HK og Fylkir falla úr deildinni.

Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar í Lengjudeildinni
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. september. Í þættinum: Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í boltanum. Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar í Vogum, er á línunni en liðið er komið upp í Lengjudeildina. Rafn Markús Vilbergsson og Sæbjörn Steinke fara yfir Lengjudeildina. Sverrir Örn Einarsson í beinni frá Vestmannaeyjum.

Heimavöllurinn: Blikar skrifa söguna og Lengjan réðist við lokaflaut
Það var aldeilis dramatískt fótboltakvöld í gær. Blikar skrifuðu söguna þegar þær skutu sér áfam í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, fyrstar íslenskra liða. Úrslitin réðust uppbótartíma Lengjudeildarinnar. Afturelding fylgir KR upp í efstu deild og hlutskipti Gróttu og ÍA varð að falla. Úrslitaleikur 2. deildar er framundan, sem og lokaumferð Pepsi Max-deilar. Heimavöllurinn fer yfir þetta allt saman með frábærum gestum en þær Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Sigríður Dröfn Auðunsdóttir og Helga Katrín Jónsdóttir mæta vel peppaðar, beint af vellinum.

Innkastið - Löng og ströng leið upp fjallið aftur
Eitt stig af níu mögulegum var niðurstaðan úr þungum landsleikjaglugga Íslands. Eftir 0-4 tap gegn Þýskalandi fóru Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Gunnar Birgisson yfir leikinn og landsleikjagluggann. Því miður var ekki nægilega mikið jákvætt hægt að taka úr þessum glugga. Einnig er rætt um U21 landsliðið og Gunni giskar á spennandi umferð í Pepsi Max-deildinni.

Ástríðan - Þróttur Vogum spilar í Lengjudeild 2022
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Kári og Fjarðabyggð eru staðfest fallin og Þróttur Vogum eru komnir upp úr 2. deild. Lokaumferðirnar í 3. deild verða MAGNAÐAR bæði á toppi og botni. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport, Sóma safanna, Nemíu og Tryggja.is. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.