
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 29 of 57

Fantabrögð - Þeir bestu halda ekki með Arsenal
Þeir bestu, Dr. Gunni og Hemson, mættu í hljóðverið. Þeir fóru yfir góð ráð sem hjálpa Fantasy stjórum að verða bestir. Öll bestu hlaðvörpin einkennast af góðu jafnvægi. Þess vegna ræstum við Aron úr fæðingarorlofi. Hann mætti í gífurlegu hormónaójafnvægi sem nýbakaður faðir en fyrst og fremst sem stuðningsmaður Arsenal. Fór þar yfir marga leikmenn Arsenal sem hlustendur geta sleppt því að kaupa. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu hér til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7

Ungstirnin - U21 landsliðið í eldlínunni
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Gavi (Barcelona) og Lucas Gourna-Douath (Saint Etienne). Fjallað var um íslenska U-21 landsliðið sem og undankeppni EM U-21, hver hefur verið besti ungi leikmaður Pepsi-Max og margt fleira.

Útvarpsþátturinn - Landsliðsumræða með Bjarna Guðjóns
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 4. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Bjarni Guðjónsson, framkvæmdastjóri KR, er gestur. Rætt er um landsleikinn gegn Rúmeníu og komandi leiki. Fréttamannafundur Arnars Þórs Viðarssonar var í beinni. Þá er rætt um íslenska boltann og Magnús Valur Böðvarsson var á línunni.

Heimavöllurinn: Dauðafæri á Kópavogsvelli, Miedema mætir og miðvarðamergð
Það er nóg um að vera í boltanum núna þegar deildarkeppnirnar hér heima eru að klárast, Blikar eru í dauðafæri í Meistaradeildinni og það er landsleikur framundan. Heimavöllurinn fær til sín góða gesti til að fara yfir þetta allt saman en það eru knattspyrnuþjálfarinn Aníta Lísa Svansdóttir og íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.

Ástríðan - Stefnir allt í svakalegar lokaumferðir
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu í hljóðverið og fóru yfir leiki liðinnar helgar. Augnablik tapar og tapar á meðan allt er grænt hjá KFS. Völsungur gerir sig meira og meira gildandi í toppbaráttunni í 2.deild. Hvaða lið fara upp? Hvaða lið fara niður? Þetta og margt fleira var rætt í stútfullum þætti Ástríðunnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Enski boltinn - Utanríkisráðherra í fótboltaspjalli
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum Enski Boltinn. Guðlaugur Þór er stuðningsmaður Liverpool og Ágúst heldur með Chelsea. Þessi lið áttust við í stórleik helgarinnar og enduðu leikar með jafntefli. Þátturinn er langt boltaspjalli þar sem er rætt um stórleikinn og aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Innkastið - Kraumar í Laugardal, Fylkiskrísa og Blikar óstöðvandi
Innkast vikunnar. Fjallað er um hreinsunina hjá KSÍ, 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar og einnig litið í Lengjudeildina og 2. deildina. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson eru í þætti dagsins. Meðal efnis: Kallað eftir stjórnarskiptum hjá KSÍ, þjálfaraskipti í Árbænum?, Blikar í sjöunda himni, Valsmenn að stimpla sig út, FH fær mikið hrós eftir tap gegn Víkingi, skemmtun í Vesturbæ, glórulaus dómur í Kórnum, pirraðir Skagamenn, Lengjudeildarhornið og svakaleg spenna í 2. deild.

Útvarpsþátturinn - Spjótin beinast að KSÍ og Ronaldo rauður á ný
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. ágúst. Íþróttafréttamenn fara yfir fótboltafréttir vikunnar og af nægu er að taka. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Henry Birgir Gunnarsson í þætti vikunnar. Spjótin beinast að forystu KSÍ sem verst alvarlegum ásökunum, áhugaverður landsliðshópur var kynntur í vikunni og andrúmsloftið á fréttamannafundinum var óhefðbundið, framundan eru þrír landsleikir á Laugardalsvelli í undankeppni HM. Þá er rætt um endurkomu Cristiano Ronaldo til Manchester United og íslenska boltann.

Ítalski boltinn - Ljótur skilnaður Juventus og Ronaldos og upphitun fyrir kvennaboltann
Farið er yfir yfirvofandi ljótan skilnað Juventus og Ronaldo, fyrsta umferðin í Serie A er gerð upp og hitað er upp fyrir ítalska kvennaboltann þar sem við Íslendingar munum eiga að minnsta kosti tvo fulltrúa í vetur. Ítalski boltinn - þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson er umsjónarmaður.

Ástríðan x Óskar Smári - Lítið eftir, mikil spenna
Óskar Smári mætti í hljóðverið þar sem farið var yfir málin. Lokaspretturinn er framundan í 2. og 3. deild. Farið var yfir ýmsar ráðgátur, eins og Hauka og Tindastól. Hvers vegna er allt í rugli hjá þeim? Hvað ætla þau að gera til að laga þetta? Hvaða lið fara upp? Hvaða lið fara niður? Þetta og margt fleira var rætt í stútfullum þætti Ástríðunnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Fantabrögð - 2. umferð gerð upp - Antonio á þessa deild
Antonio er kóngurinn og það er ekkert meira um það að segja. Ódýrir miðjumenn gera Lukaku að freistingu sem erfitt verður að standast. Sætasta stelpan á ballinu mætir alltaf seint á ballið. Hið villta spil á ekki að virkja núna. Hlutirnir eru ekki allir eins og þeir sýnast. Allt þetta var rætt í þættinum og meira til. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_blank">hér</a>. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu <a href="https://fantasy.premierleague.com/leagues/auto-join/0dmju7" target="_blank">hér</a> til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7

Kafað dýpra í landsliðsvalið með þjálfaranum
A-landsliðshópurinn fyrir komandi í verkefni var tilkynntur í dag. Karlalandsliðið er á leið í þrjá leiki í undankeppni HM. Allir verða þeir leiknir á heimavelli. Eftir að hópurinn var tilkynntur og eftir fréttamannafund gaf landsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðarsson sér tíma í að ræða við Fótbolta.net um valið og verkefnið. Arnar var spurður út í einstaka leikmenn og hvernig honum líst á komandi verkefni.

Enski boltinn - Chelsea á siglingu en Arsenal ekki
Það var stórleikur í ensku úrvalsdeildinni síðasta sunnudag. Chelsea fór með sigur af hólmi gegn Arsenal. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, og Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, eru gestir þáttarins að þessu sinni. Þeir köfuðu djúpt í stórleikinn og ræddu einnig um aðra leiki í annarri umferð deildarinnar.

Innkastið - Albert Brynjar og brjáluð barátta um þann stóra
18. umferð Pepsi Max-deildarinnar gerð upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Sérstakur gestur þáttarins er Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður Kórdrengja. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Albert Brynjar fara yfir leikina og fréttir sem eru tengdar þeim. Víkingar sýndu magnaða frammistöðu gegn Val og opnuðu titilbaráttuna í Pepsi Max-deildinni upp á gátt. Breiðablik vann KA og getur farið á toppinn á morgun. Stjarnan vann fallbaráttuslag gegn Fylki á meðan HK gerði markalaust jafntefli í Breiðholti og Keflavík fékk skell gegn FH.

Útvarpsþátturinn - Boltinn með Blandon og Fram fögnuður
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir sviðið en eins og oft áður er íslenski boltinn í forgrunni. Úlfur Blandon, sérfræðingur þáttarins, ræðir um það helsta sem er í gangi í Lengjudeildinni. Í Lengjudeildinni er Fram komið upp og úrslitin í deildinni svo gott sem ráðin. Í Pepsi Max-deildinni eru stórleikir framundan. Í þættinum er einnig rætt við Jón Sveinsson, þjálfara Fram.

Ítalski boltinn - Þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila
Aldrei áður hafa eins margir Íslendingar spilað fótbolta á Ítalíu og þeim fjölgar með hverri vikunni. Í þessum upphitunarþætti verður farið yfir stöðu Íslensku strákanna og hitað upp fyrir Serie A sem hefst um helgina. Tekst Internazionale að verja titilinn? Verður endurkoma Allegris eins og endurkoma Marcellos Lippis? Hvernig mun Jose Mourinho ganga í borginni eilífu? Ítalski boltinn - Þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að spila.

Ástríðan - Tvö lið að falla úr 2.deild og loksins heil umferð kláruð í 3.deild
Sverrir Mar mætti að vanda í stúdíóið en Gylfi Tryggva tók sér frí. Með Sverri Mar var kominn Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Víðis frá Garði, annan þáttinn í röð. Þeir fóru yfir 17.umferð í 2.deild og úrskurðuðu Kára og Fjarðabyggð fallin úr deildinni. Þá tóku þeir einnig fyrir 5 leiki í 3.deild og þar sem loksins kláraðist umferð og hægt var að velja leikmann umferðarinnar. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Ástríðan - Gestur í stúdíóinu og farið yfir helgina
Sverrir Mar mætti að vanda í stúdíóið en Gylfi tók sér frí. Með Sverri Mar var kominn Stefán Birgir Jóhannesson, leikmaður Víðis frá Garði. Þeir fóru yfir 16.umferð í 2.deild þar sem stutt er í að fallbaráttunni ljúki en nóg eftir á toppnum. Þá tóku þeir einnig fyrir 5 leiki í 3.deild þar sem enn er leikið í mismunandi umferðum. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Enski boltinn - Veislan er hafin!
Kjartan Henry Finnbogason, sóknarmaður KR, og Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, eru gestir í fyrstu útgáfu tímabilsins af hlaðvarpinu Enski boltinn á Fótbolta.net.

Innkastið - Reiði, rauð spjöld og TikTok skot úr stúkunni
Elvar Geir og Tómas Þór eru í Innkasti vikunnar. Með þeim að þessu sinni er Sverrir Mar Smárason sem kom á lánssamningi frá Ástríðunni. Sex efstu lið Pepsi Max-deildarinnar unnu í 17. umferðinni en sex neðstu liðin töpuðu. Hverjir verða Íslandsmeistarar? Meðal efnis: Kristall þaggaði niður í stuðningsmönnum Fylkis, Kórinn breyttist í suðupott, Skagamenn reiðir eftir vítaspyrnudóm, markaflóð FH gegn Leikni, Íslandsmeistararnir aftur á sigurbraut, ekkert fellur með Stjörnunni og stórleikurinn í Lengjudeildinni.

Fantabrögð - BruYES Fernandes og breiddin er mikilvæg
Enski boltinn var mættur aftur fullur af fjöri. Stóru strákarnir Salah og Bruno sýndu hvers þeir eru megnugir. Lukaku er stór strákur. Hann er kominn í deildina. Á að velja hann strax? Er Benrahma alvöru gæi? Hvað á að gera við alla þessa 4.0 gæja í vörninni sem fengu að spila? Þetta var rætt ásamt ýmsu öðru í nýjasta þætti Fantabragða. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella <a href="http://www.patreon.com/fantabrogd" target="_blank">hér</a>. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu <a href="https://fantasy.premierleague.com/leagues/auto-join/0dmju7" target="_blank">hér</a> til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7

Útvarpsþátturinn - Boltahlaðborð og góðir gestir
Elvar Geir og Benedikt Bóas bjóða upp á boltahlaðborð í útvarpsþætinum. Það er nóg að ræða enda íslenski boltinn í fullum gangi og boltinn byrjaður að rúlla á Englandi. Gunnar Ormslev lýsandi á Síminn Sport kemur í heimsókn og skoðar boltafréttir vikunnar. Gunnar lýsti opnunarleik Brentford og Arsenal sem heimamenn unnu 2-0. Gunnar Birgisson segir ferðasögu frá Skotlandi en hann var í stúkunni á leik Aberdeen og Breiðabliks. Fylgst var með gangi mála í leik Manchester United og Leeds United en eftir leikinn gerði Halldór Marteinsson á raududjoflarnir.is leikinn upp.

Ungstirnin - Ungir og spennandi í enska
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti fjalla drengirnir um hvaða ungu leikmönnum í hverju liði ensku úrvalsdeildarinnar skal fylgjast með í vetur. Drengirnir ræða einnig um hvaða ungstirni hafa verið að færa sig um sess í sumar sem og margt fleira.

Enski boltinn - Risa þáttur um tvö vinsælustu félögin
Magnús Þór Jónsson, stuðningsmaður Liverpool, og Þorsteinn Hjálmsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið.

Fantabrögð - Er liðið þitt tilbúið?
Fantabrögð eru mættir aftur og komu með sjóðandi heit ráð fyrir komandi tímabil sem hefst á föstudaginn. Farið var yfir liðin, þeirra helstu leikmenn, strategíur og leikjadagskrá. Gylfi, Gunni, Hemson og Ásgeir voru við hljóðnemann. Ef þú, hlustandi góður, kannt að meta Fantabrögð máttu endilega styðja við hlaðvarpið með því að smella hér. Þannig gerir þú strákunum kleift að leggja þá vinnu sem þeir vilja í hlaðvarpið. Smelltu hér til að ganga í Fantasy-deild Fantabragða. Kóðinn á deildina er 0dmju7

Enski boltinn - Rosaleg gæði í Chelsea og Man City
Enska úrvalsdeildin, uppáhalds deild flestra Íslendinga, hefst á föstudaginn.

Ástríðan - Sérstakur 3. deildar þáttur
Sverrir og Gylfi fóru yfir málin í 3. deildinni og það sem hefur gerst undanfarna daga. Leikjadagskráin þar er óregluleg vegna smita í herbúðum KFG og Ægis en fjórum leikjum hefur verið frestað. Höttur/Huginn eru svo gott sem komnir upp, Augnablik eru farnir að einbeita sér að næsta tímabili, mikil spenna á toppi og botni og allt að gerast.

Ástríðan - Sérstakur 2. deildar þáttur
Sverrir og Gylfi hittust og gerðu upp það sem gerðist í kringum verslunarmannahelgina. Bjarni Jó hættur með Njarðvík. Peningar ráða ekki öllu. Af hverju eru bara til ungir Haukamenn? Hver er munurinn á Kára og Fjarðabyggð? Þetta var til umræðu og margt fleira.

Innkastið - Valur býður í meistaradans og Blikar kunna sporin
Við spilum Maggi-ball með Ólympíuandann að vopni í Innkastinu að þessu sinni. Elvar Geir, Gunni Birgis og sérstakur gestur er Magnús Már Einarsson, fyrrum ritstjóri Fótbolta.net og þjálfari Aftureldingar. 16. umferð Pepsi Max-deildarinnar er í brennidepli en einnig er rætt um Sambandsdeildina og smá um Lengjudeildina. Meðal efnis: Meistarabragur á Blikum, Escobar kláraði Íslandsmeistarana, Víkingar misnotuðu tækifærið, bull um breiddarleysi KR, Raggi Sig frumsýndur í Keflavík, HK magalenti á Skaganum, Gunni giskar og ýmislegt fleira.

Heimavöllurinn - Hverjar standast storminn þegar spennan eykst?
Það er langt liðið á sumarið og línur aldeilis að skýrast í öllum deildum. Heimavöllurinn fer yfir allt það helsta með góðum gestum, þeim Alexöndru Bíu Sumarliðadóttur og Sigríði Dröfn Auðunsdóttur, sem hafa fjallað vel um boltann á Fótbolta.net í sumar.

Enski boltinn - Erkifjendurnir Arsenal og Tottenham
Það er minna en vika í upphafsflaut ensku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2021-22. Arsenal tekur á móti Brentford í opnunarleiknum á föstudag.

Enski boltinn - Upphitun fyrir úrvalsdeildina og Messi umræða
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 7. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Kristján Atla Ragnarsson um enska boltann. Kristján kemur með sína spá fyrir tímabilið en enska úrvalsdeildin fer af stað á föstudag. Einnig er rætt um Lionel Messi sem er á leið til PSG.

Íslenski boltinn - Sambandsdeildin, Lengjan og Pepsi Max með Rabba
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 7. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór ræða við Rafn Markús Vilbergsson um íslenska boltann. - Einvígi Breiðabliks og Aberdeen í Sambandsdeildinni. - Besti leikmaður annars þriðjungs í Pepsi Max-deildinni. - 15. umferð Lengjudeildarinnar skoðuð. - Besti leikmaður annars þriðjungs í Lengjudeildinni. - Komandi umferð í Pepsi Max.

Innkastið - Sjokkerandi FH-ingar og Hlíðarendahlátur
Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas eru í Innkastinu eftir 15. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Benedikt brunaði (á löglegum hraða) á skrifstofu Fótbolta.net eftir stórleik Vals og KR. Í þættinum er einnig fjallað um Breiðablik í Sambandsdeildinni, Lengjudeildina og tilnefningar í kosningu á besta leikmanni annars þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar. Meðal efnis: Sigur Vals í toppslagnum gegn KR, Stjarnan rúllaði yfir ÍA í botnslagnum, FH fékk skell gegn HK, Smit í aðalhlutverki í Árbænum, Haxgrímur nýtur sín á Greifavellinum, Jason á eldi gegn Víkingum.

Útvarpsþátturinn - Blikar í banastuði og peningarnir í íslenska boltanum
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Árni Vilhjálmsson á línunni og Þórir Hákonarson gestur. Í fyrri hlutanum: Boltafréttir vikunnar, Lengjudeildin, Pepsi Max slúður og Sambandsdeildin. Í seinni hlutanum er rætt um peningana í íslenska boltanum, Evrópupeninga og nýja sjónvarpssamninga.

Ástríðan - Markalaus jafntefli í 2. deild - stuð í 3. deild
Sverrir og Gylfi voru mættir á sinn heimavöll í Krókhálsi að ræða málin. Þar fóru einstaklega tíðindalitlir leikir fram í 2. deildinni á meðan 3. deildin hélt áfram að gefa og taka. Sum lið einfaldlega neita að vera í toppbaráttu á meðan sum lið einfaldlega neita að koma sér úr fallbaráttunni. Niðurstaðan er því ógnvænlega spennandi deild sem verður bara meira og meira spennandi. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Innkastið - KR lék sér að bráðinni og ótrúleg úrslit suður með sjó
Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis í Innkastinu þessa vikuna. Gönguferð á Meistaravöllum, Keflavík vann Breiðablik (aftur) í ótrúlegum fótboltaleik, Lennon elskar að skora þrennu á Skaganum, Pedersen elskar að skora gegn HK, Stubbur í stuði á Domusnova, Smit í Breiðholti, Víkingar hóta einvígi gegn Val, Stjörnubíóið heldur áfram, Gunni giskar, Sambandsdeildin og Lengjudeildarhornið.

Ungstirnin - Heimsókn frá Hlíðarenda
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Khvicha Kvaratskhelia (Rubin Kazan) og Odilon Kossounou (Leverkusen). Gestir þáttarins að þessu sinni eru Valsmennirnir, Sverrir Páll Hjaltested og Birkir Heimisson. Drengirnir takast á í spurningakeppni og ræða um það sem hefur verið í gangi á ferli þeirra.

Útvarpsþátturinn - Hugaðir Blikar og ÍBV gleður Eyjamenn eftir áfallið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 24. júlí. Rætt um Sambandsdeildarleiki FH, Vals og Breiðablik. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, segir frá ferðinni til Vínarborgar og leiknum sjálfum á fimmtudaginn. Farið er yfir gang mála í Lengjudeildinni og Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, er á línunni. Eyjamenn fá ekki þjóðhátíð þetta árið, allavega ekki á hefðbundnum tíma, en leikmenn ÍBV ætla að sjá um að gleðja heimamenn. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og rætt um tíðindin frá Old Trafford. Við hverju má búast frá Jadon Sancho?

Ástríðan - Úrvalslið fyrri umferða deildanna tilkynnt
Farið var yfir 12. umferð í 2. og 3. deild ásamt því sem úrvalslið úr umferð 1-11 voru tilkynnt úr hvorri deild fyrir sig. Sverrir og Gylfi voru mættir í stúdíóið eins og venjulega og fóru yfir stöðutöflurnar. Þvílíkt toppbarátta í báðum deildum. Hvaða lið á að stöðva Þróttarana? Er Völsungi og KF alvara með að ætla að taka þátt í toppbaráttunni? Eru allir á Dalvík að hlusta? Hversu stór er sokkaskúffa Gunnars Heiðars? Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Heimavöllurinn - Boltaspjall með Báru
Heimavöllurinn fær til sín gamlan og góðan gest. Knattspyrnuþjálfarinn og boltaspekúlantinn Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir mætir til okkar eftir útlegð í Svíþjóð þar sem hún hefur þjálfað unglingalið Kristianstad undanfarið tæpt ár. Bára fer yfir þjálfaralífið og sænska boltann áður en hún segir sínar skoðanir á íslenska boltanum sem hefur verið aldeilis fjörugur þetta sumarið.

Innkastið - Raggi lokar hringnum og Stjörnuhrap í Breiðholti
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson í Innkasti vikunnar. Fjallað er um 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar og ýmislegt fleira. Meðal efnis: Endurkoma Ragga Sig í Árbæinn, Leiknir slær stigamet sitt, þungt yfir Stjörnumönnum, frábær innkoma Kwame Quee, dauðafæri fóru forgörðum í Hafnarfirði, jafntefli á Meistaravöllum, slakir HK-ingar, óvænt úrslit á Skaganum, leikmaður umferðarinnar, Evrópustuð og Lengjudeildarhornið.

Gummi Ben um EM og spennandi Pepsi Max umferð
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Guðmundur Benediktsson mætti og ræddi um Evrópumótið og komandi umferð í Pepsi Max-deildinni þar sem áhugaverðir leikir eru framundan. Stórleikur umferðarinnar er viðureign KR og Breiðabliks. Áhugaverðar umræður.

Boltavikan - Evrópa, Lengjudeildin og Davíð Smári á línunni
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. júlí. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræða um Evrópuleikina hjá íslensku liðunum og einnig um 12. umferð Lengjudeildarinnar. Baldvin Már Borgarsson var á leik Grindavíkur og Þórs og þá er Davíð Smári Lamude, þjálfari Kórdrengja, í viðtali. Kórdrengir eru aðeins stigi frá öðru sæti.

Innkastið - Skelfilegir Skagamenn og FH daðrar við fallsæti
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson í Innkasti vikunnar. Það er af nægu að taka enda fullt í gangi í íslenska boltanum. Meðal efnis: Leikir vikunnar í Pepsi Max-deildinni, nauðsynlegur sigur Fylkis, KA fatast flugið, leiðinlegur leikur í Kórnum, Víkingur misstígur sig gegn liðum í neðri hlutanum, Skelfilegir Skagamenn, heimavöllur Leiknis heldur áfram að gefa, FH daðrar við fallsæti, Þórir Jóhann á leið til Ítalíu, Sambandsdeildin, Heiðar Birnir missti klefann, úrvalslið umferða 1-11 í Lengjudeildinni opinberað.

Ástríðan - Fyrri hluta deildanna lokið
Þá er fyrri hluta 2. og 3. deildar lokið og spennan er gífurleg á mörgum vígstöðvum. Toppliðin voru mörg hver að missa óvænt stig um helgina, liðin halda áfram að styrkja sig og jafnvel skipta um þjálfara á misumdeildan hátt. Ástríðan er í boði Bola, Ice-nikótínpúða, JAKO sport og Sóma safanna. Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

EM alls staðar - Ítalía tók fótboltann með sér
EM lauk í gær þegar Ítalía vann sigur á Englandi í úrslitaleik eftir vítaspyrnukeppni. Sæbjörn Steinke fékk þá Benedikt Bóas Hinriksson og Tómas Þór Þórðarson með sér og var farið yfir það helsta í leiknum. Hvers vegna var Saka látinn taka fimmta vítið? Þá var einnig horft í keppnina í heild, samanburður á Júmbó og Sóma og annað sniðugt.

Útvarpsþátturinn - EM Hjammi, Theodór Elmar og Kjartan Henry
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. júlí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, mætir og ræðir um úrslitaleik EM alls staðar, leik Englands og Ítalíu sem fram fer á sunnudagskvöld. Hjammi er sannfærður um að fótboltinn sé á leið heim. KR-ingarnir Kjartan Henry Finnbogason og Theodór Elmar Bjarnason mæta í þáttinn en þeir eru sameinaðir á ný í Vesturbænum eftir viðburðarík ár í atvinnumennskunni. Þá var rætt um Pepsi Max-deildina, Lengjudeildina, Sambandsdeildina og fleira.

Ungstirnin - Spennandi leikmenn, EM og íslenska U19 deildin
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti fjölluðu drengirnir um Illya Zabarnyi (2002 / Dinamo Kíev) sem hefur mikið verið orðaður við Chelsea og Michael Olise (2001 / Crystal Palace) en hann gekk til liðs við Crystal Palace á dögunum og er hann dýrasta sala í sögu Reading. Meðal umræðuefnis var EM alls staðar, U-19 ára deildin á Íslandi, Pepsi-Max og margt fleira.

Heimavöllurinn: Leið Karólínu og Alexöndru frá Hafnarfirði til Þýskalands
Landsliðskonurnar Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru aðeins tvítugar en eru báðar komnar í stórlið í þýsku úrvalsdeildinni. Þær ólust upp í FH og Haukum og voru báðar komnar snemma í stór hlutverk í sínum liðum. Árið 2018 tóku þær báðar stökkið yfir í Breiðablik, slógu í gegn og æfa núna á hverjum degi með þýskum landsliðsvélum í einni bestu deild heims. Við fórum meðal annars yfir fyrstu árin í meistaraflokki með FH og Haukum, yngri landsliðin, markmiðin, félagaskiptin yfir í Breiðablik og fyrsta árið í atvinnumennsku.