
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 34 of 57

Ítalski boltinn - Afskorið svínshöfuð og ljót skilaboð
Fimm umferðir eru nú liðnar af leiktíðinni á Ítalíu og sumir stuðningsmenn eru þegar farnir að hóta eigendum liðsins með afskornu svínshöfði og ljótum skilaboðum. Íslendingar eru farnir að byrja, koma inná og skora. Í þættinum verður líka farið yfir umferð þar sem Juventus missteig sig gegn Verona, AC Milan og Roma skildu jöfn í æsispennandi markaleik og haustþokan í Reggio Emilia gerði áhorfendum erfitt fyrir. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Þátturinn er í boði Origo.

Fantabrögð - Botnlaus Bamford Brunch
Mest óþolandi tímabil allra tíma heldur áfram í Fantasy Premier League. Mörkunum fækkaði heldur betur og stjórar sátu eftir með sárt ennið. Leeds var eina liðið sem skoraði meira en tvö mörk í umferðinni og það var Bamford brunchinn sem hélt áfram með þrennu. Manchester United og Chelsea stoppuðu í götin með því að stilla upp 5 manna vörn, á meðan Salah klikkaði sem vinsælasti fyrirliðinn. Wolves vill ekki skora fyrr en á 80. mínútu og Arsenal vill bara alls ekki skora mörk, allavega ekki lögleg. Þetta og allt hitt um vonbrigði helgarinnar í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.

Enski boltinn - Hægt spil Arsenal og líklegir Liverpool menn
Það var Arsenal þema í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" í þessari viku. Einar Guðnason og Jón Kaldal, stuðningsmenn Arsenal, fóru þar yfir leiki helgarinnar á Englandi. Meðal efnis: Hugmyndasnauðir Arsenal menn, vantar markaskorara, stjóraskipti hjá Man Utd og Chelsea, bæta við kílóum á Rúnar Alex, sorgarsaga Özil, vélmenni í VAR, Cavani, Liverpool langlíklegastir, óvissa með Guardiola, Kane skorar úr ekki færum, klikkaður Bielsa, öflugur Ward-Prowse, alls konar lið í toppbaráttu, sakna Wenger.

Heimavöllurinn: Treystir Jón Þór á ungar í stórleiknum við Svíþjóð?
Hulda Mýrdal og Mist sameinast loksins í stúdíóinu og fara yfir málin. Það á að klára Íslandsmótin en áður en það gerist er RISA leikur á dagskrá þegar Ísland mætir Svíþjóð ytra. Hvernig er staðan á leikmannahópnum og hvernig stillir Jón Þór upp? Hvað gera Pétur og Valskonur svo til að undirbúa sig fyrir Meistaradeildarslaginn sem má líklega ekki æfa saman fyrir? Og hvað gerist í Maxinu miðað við nýjustu fréttir?

Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Logi Ólafs
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. október. Flaggskip X977 fullmannað. Elvar Geir og Tómas Þór halda um stjórnartaumana og ræða um teikningarnar að því hvernig klára skal Íslandsmótið. Logi Ólafsson, þjálfari FH, kom í viðtal. Rætt var um stöðu mála, endurkomu hans í fótboltann, sögusagnir um að hann hætti eftir tímabilið, landsliðið og fleira. Þá var rætt um enska boltann, Pele og Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtakana, svaraði fyrir umræðu í Pepsi Max-Stúkunni á Stöð 2 Sport.

Ítalski boltinn - Zlatan sýningin í Derby della Madonnina
Í þætti vikunnar verður farið yfir Zlatan showið í Derby della Madonnina, Juventus sem missteig sig djúpt í suðrinu og Napoli sem leit út eins og Atalanta gegn Atalanta. Þá verður líka fjallað um Fabio Quagliarella sem skoraði fyrir Sampdoria um helgina, og á að baki ótrúlegan feril bæði innan vallar sem utan. Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Ef þú hefur ábendingar eða spurningar, hvort sem það snýr að ítölsku deildinni eða bara ferðalögum um Ítalíu almennt, endilega hafðu þá samband á Twitter við @bjornmaro

Fantabrögð - Hvað skal gera við Kevin?
Enski boltinn sneri aftur eftir landsleikjahlé með viðburðaríkri umferð. Rauð spjöld, vítaspyrnur, ótrúleg jafntefli og meiðsli lykilmanna. Á að losa sig við Trent? Hvað með Kevin De Bruyne og Van Dijk sem eru báðir meiddir? Á að kaupa Agüero? Þetta og margt fleira í nýjum þætti af Fantabrögðum. Fantabrögð eru í boði Dominos og Elko.

Enski boltinn - Ótrúleg úrslit og hrikalegar fréttir
Það er nóg að ræða í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" eftir liðna helgi í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Man Utd og útvarpsmaður á Rás 2, eru gestir vikunnar.

Útvarpsþátturinn - Landsliðið, ástandið og enski
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október. Kristján Guðmundsson fótboltaþjálfari er sérstakur gestur þáttarins og er hann við boltahringborðið í fyrri hlutanum. Rætt er um ástandið í íslenska boltanum en mótahald er aftur stopp og þá var landsleikjaglugginn gerður upp og þessir þrír leikir sem Ísland lék. Í þættinum er einnig rætt við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing þáttarins um enska boltann og Davíð Snorra Jónasson sem stökk óvænt í það hlutverk að vera við stjórnvölinn þegar Ísland mætti Belgíu í Þjóðadeildinni. Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson stýra þættinum að þessu sinni þar sem Elvar og Tómas voru báðir fjarri góðu gamni.

Ungstirnin - Mosfellingarnir Arnór Gauti og Róbert Orri
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum sjötta þætti er fjallað um Exequiel Palacios (Bayer Leverkusen), Naci Ünüvar (Ajax) og Maarten Vandervoordt (Genk). Gestir þáttarins eru Mosfellingarnir Arnór Gauti Jónsson sem spilar með Fylki og Róbert Orri Þorkelsson hjá Breiðabliki.

Heimavöllurinn: Unfinished business hjá þeirri bestu og fyrirliðinn ætlar að byggja stúku
Heimavöllurinn beinir spjótum sínum norður á Sauðárkrók að þessu sinni en fyrir stuttu tryggði Tindastóll sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Magnaður árangur og við förum yfir ævintýrið frá A-Ö ásamt þjálfurum liðsins, þeim Guðna Þór Einarssyni og Jóni Stefáni Jónssyni og fyrirliðanum Bryndísi Rut Haraldsdóttur.

Útvarpsþátturinn - Gamla bandið, Arnar Grétars og leikmannakönnun
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Landsliðið var í brennidepli og fjallað vel um sigurinn gegn Rúmeníu í umspilinu fyrir EM alls staðar. Í upphafi: Rætt um landsliðiðið. 20:00 Arnar Grétarsson um KA og landsliðið. 57:00 Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, ræðir um óvissuna sem er í gangi varðandi Íslandsmótið í fótbolta. Hversu margir leikmenn vilja að keppni sé hætt? 77:30 Freyr Alexandersson í beinni frá búbblu landsliðsins.

Ástríðan - Neyðarumræður á skrifstofunni
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í ljósi ástandsins var blásið í neyðarumræður á skrifstofu Fótbolta.net. Óskar Smári Haraldsson, Baldvin Már Borgarsson og Sverrir Mar Smárason fóru yfir málin. Rætt var um ýmis málefni tengd neðri deildunum og velt því fyrir sér hvort mótið yrði blásið af?

Ástríðan - Farið yfir 2. deild og gestir úr 3. deild
Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason ræða um 2. og 3. deildina. Í þáttinn mæta góðir gestir úr tveimur bestu liðum 3. deildarinnar sem hafa tryggt sér sæti í 2. deild á næsta tímabili. Það eru Ási Þórhallsson úr Reyni Sandgerði og Einar Már Þórisson, fyrirliði KV. Þess má geta að þátturinn var tekinn upp á þriðjudagskvöld, þegar útlit var fyrir að fótboltinn væri að fara aftur í frestun.

Fantabrögð - Ollie-ðandi frammistaða
Ollie hornið var langt að þessu sinni, enda opnaði Ollie Watkins markareikning sinn með þrennu gegn Englandsmeisturum Liverpool. Ekkert við þetta gufuruglaða tímabil meikar sens og þessi umferð í enska boltanum og FPL staðfesti það endanlega. Son var ekki meiddur, heldur fullfrískur og refsaði grimmilega þeim sem seldu hann - aftur! Wolves líta ekki vel út og West Ham eru skyndilega eitt heitasta liðið í deildinni. Þetta og fleiri órökréttar ákvarðanir í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Þátturinn er í boði Dominos, ELKO, Teqisland og Nemíu.

Enski boltinn - Galin úrslit degi fyrir gluggadag
Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Í dag er síðan gluggadagurinn og mörg lið í leit að liðsstyrk. Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru í skýjunum eftir 6-1 útisigur á Manchester United. Þeir félagar mættu í heimsókn og ræddu helgina í enska boltanum og gluggdaginn.

Innkastið - Mátti ekki mæta í viðtal og allt í hnút í Evrópubaráttu
Í Innkastinu er fjallað um sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni, spennuna fyrir lokaumferðir Lengjudeildarinnar og einnig um komandi landsleik Íslands og Rúmeníu. Elvar Geir Magnússon, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir málin. Allt í boði White Fox! Meðal efnis: Andlit White Fox í deildinni, Brynjólfur blómstar í fjarveru Mikkelsen, Valur lék sér að Gróttu, KR aftur í vandræðum með HK, torsóttur sigur Stjörnunnar, Skagamenn hafa pakkað saman, KA setur jafnteflismet, Lennon nálægt markametinu, spámennirnir með á nótunum, spenna og dramatík í Lengjudeildinni, byrjunarliði Íslands stillt upp og gluggadagsfréttir.

Ítalski boltinn - Sérstakur upphitunarþáttur
Loksins er kominn hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro". Fyrsti þátturinn er upphitunarþáttur þar sem við fáum að kynnast öllum liðunum í deildinni áður en leiktíðin fer almennilega af stað. Prófasvindlarinn Suarez er til umræðu, hamfarirnar í Rómarborg og svo verða sagðar stórar fréttir af rúmenskum landsliðsmanni, sem gæti mætt okkur Íslendingum á Laugardalsvelli um næstu helgi. Eða hvað?

Útvarpsþátturinn - Boltahringborð, VAR og xG
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. október. Sérfræðingarnir Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon ræða um allt það helsta í íslenska boltanum, leiki og fréttir tengdar Pepsi Max-deild karla og Lengjudeildinni. Tómas Þór og Elvar Geir ræða um landsliðshópinn og komandi leik gegn Rúmeníu. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari var á línunni en VAR verður notað í fyrsta sinn formlega í keppnisleik hér á landi á fimmtudag. Þá var fótboltaþjálfarinn Bjarki Már Ólafsson í beinni frá Katar og ræddi um xG.

Heimavöllurinn: Lengjufjör - Sögulegt á Króknum og Kef stoppar stutt
Það er allt á suðupunkti í boltanum en í dag fær Lengjudeildin sviðsljósið á Heimavellinum. Nú er ljóst að Tindastóll og Keflavík fara upp um deild á meðan það fellur í hlut Fjölnis og Völsungs að falla. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson mæta í sett og skoða Lengjusumarið til þessa.

Fantabrögð - Ólýsanleg martröð
Einhverntímann var manni kennt að það væri bannað að sparka í liggjandi mann. En Fantasy Premier League virðist ekki hafa kynnt sér þá reglu og lætur mann nú hafa það óþvegið viku eftir viku. Eins og kom fram í síðasta þætti þá tóku allir 3 stjórnendur Fantabragða Wildcard fyrir umferðina og það má segja að það hefði getað gengið betur. En við tjöldum ekki til einnar nætur í þessum bransa, heldur setjum hausinn upp og bíðum spenntir eftir næstu umferð.

Ástríðan - Yfirferð vikunnar í 2. og 3. deild
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Farið er yfir allt það helsta í 2. og 3. deild karla. Leikirnir skoðaðir og fréttir sagðar.

Ungstirnin - Alex Þór og nýtt ungstirni Juventus
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum fimmta þætti er fjallað um Sergino Dest (Barcelona), Dejan Kulusevski (Juventus) og Michaël Cuisance (Bayern). Þá kemur Alex Þór Hauksson, fyrirliði Stjörnunnar, í heimsókn og er rætt um allt sem hefur verið í gangi hjá honum hingað til á ferlinum.

Boltinn á Norðurlandi: Æðri máttarvöld aðstoðuðu Magnamenn - Dramatík á Húsavík
Farið yfir úrslit helgarinnar og kvöldins í kvöld. Einnig var aðeins rýnt í næstu leiki. Magni, Völsungur og Þór/KA með frábæra sigra. Stutt í titilinn hjá Tindastóli og óvænt markaflóð hjá KA. Víti eða ekki víti á Þórsvelli? Kormákur/Hvöt leikur úrslitaleik á morgun gegn ÍH. Rætt var við þá Anton Frey Jónsson um Magna og Egil Sigfússon um KA.

Innkastið - Mörg risastór atvik og rauð spjöld
Innkastið fer yfir sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni og fer einnig yfir Lengjudeildina. Allt í boði White Fox! Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis höfðu um nóg að ræða. Það er grimm Evrópubarátta, nóg af rauðum spjöldum og stórum atvikum. Haustlægðirnar herja á mótið og veðurguðirnir hafa sín áhrif.

Útvarpsþátturinn - Leikstílar í Pepsi Max og óverðskuldaður sigur Man Utd
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. september. Elvar Geir og Tómas Þór gera upp síðustu umferð í Pepsi Max, ræða helstu fréttapunktana og opinbera úrvalslið og besta leikmann umferðarinnar. Þá er farið yfir niðurstöðuna í vali á besta leikmanni annars þriðjungs. Breki Logason, fyrrum fréttastjóri, er harður stuðningsmaður Vals og er á línunni en Valsmenn eru búnir að stinga af í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Arnar Hallsson, þjálfari og leikgreinandi, kemur í heimsókn og ræður um leikstíla Breiðabliks og Víkings sem hafa verið í umræðunni. Þá er í lok þáttar fjallað um enska boltann og niðurstöðuna í leik Brighton og Manchester United. Friðrik Már Ævarsson á raududjoflarnir.is kom með skýrslu.

Ástríðan - Umdeilt bann og umtalað viðtal
Loksins er kominn nýr þáttur af Ástríðunni! Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason en þeir skoða baráttuna í 2. og 3. deild karla. Það hefur nóg gengið á síðan síðasti þáttur var tekinn upp og boðið upp á þéttan pakka. Meðal efnis: Sewa farinn frá Tindastóli, umdeilt leikbann McAusland, stuðningsmenn á Dalvík, skandall ef Höttur/Huginn fer niður og umræðan um viðtalið við þjálfara Kórdrengja.

Boltinn á Norðurlandi: Til hamingju Tindastóll - Endurtekið efni og Völsungsvon
Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir síðustu tvær vikurnar í boltanum á Norðurlandi. Endurtekið efni hjá KA - stefnir í met. Frægi lygni sjórinn hjá Þór, KF og Tindastóli, lífróður hjá Magna, D/R og Völsungi. Fjórir úrslitaleikir framundan hjá Þór/KA og Tindastóll í fyrsta sinn komið með lið í efstu deild. Hafa samband: [email protected]

Fantabrögð - Wild(card) boys
2. umferðin í Fantasy Premier League þetta tímabilið sýndi okkur heldur betur hvað þessi leikur getur verið grimmur. Hún kenndi okkur hvað þolinmæði getur verið mikilvæg í þessum leik og spilarar sem héldu tryggð við leikmenn eins og Kane, Son og Mane eftir 1. umferð uppskáru nú ríkulega. En það var ekki staðan hjá Fantabrögðum. Þáttastjórnendurnir þrír áttu allir lélega umferð og sáu ekki annan valkost í stöðunni en að leggja í borðið hið villta spil. Aron, Gylfi og Gunni fóru yfir stöðuna á "nýju" liðunum sínum og reyndu að færa rök fyrir því að hoppa á þetta svo snemma.

Heimavöllurinn: Sara jafnar leikjametið og ungar gripu gæsina
Það var mikið um dýrðir í Laugardalnum í vikunni. Landsliðið okkar bætti 4 mikilvægum stigum í safnið og stefnir ótrautt til Englands. Ungu stelpurnar gripu gæsina og landsliðsfyrirliðinn jafnaði leikjametið.

Ungstirnin - Efnilegir í þýska og Adam Páls gestur
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur í þessum fjórða þætti eru Arnar Laufdal Arnarsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson. Í þættinum er fjallað um Jamal Musiala (Bayern Munchen), Youssoufa Moukoko (Dortmund) og Giovanni Reyna (Dortmund). Drengirnir ræddu um 12 unga leikmenn í Pepsi-Max deildinni og það sem hefur verið að gerast í enska boltanum. Þá kom Adam Ægir Pálsson, leikmaður Víking Reykjavíkur í heimsókn og var rætt um allt sem hefur verið í gangi hjá honum hingað til á ferlinum.

Enski boltinn - Markaregn og Liverpool á flugi
44 mörk voru skoruð í 2. umferðinni í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Gunnar Ormslev og Hlynur Valsson, lýsendur hjá Síminn Sport, kíktu í heimsókn í höfuðstöðvar Fótbolta.net í dag. og fóru yfir leiki helgarinnar.

Innkastið - Vonbrigðin eru víða
Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fjalla um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina. Það var hellingur af leikjum á dagskrá þennan mánudaginn og voru þeir til umfjöllunar í þættinum. Einnig var opinberað val á bestu mönnum annars þriðjungs Lengjudeildarinnar og fjórir leikmenn tilnefndir sem besti leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max-deildarinnar.

Útvarpsþátturinn - Þjálfarar Pepsi Max fá einkunnir og vandræði íslenskra liða í Evrópu
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 19. september 2020. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingur: Úlfur Blandon. Í upphafi: Rætt var um Pepsi Max-deildina og þjálfara fengu einkunnir. 59:00 Þorlákur Árnason ræddi um erfiðleika íslenskra liða í Evrópu og hvað er til ráða. 80:00 Enski boltinn. Jón Kaldal var á línunni um Arsenal.

Enski boltinn - Mun Manchester City ná titlinum aftur?
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi en Manchester City hefur leik á mánudaginn þegar liðið mætir Wolves á útivelli. Þórgnýr Einar Albertsson og Starri Reynisson stuðningsmenn Manchester City, kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um komandi tímabil hjá City. <b>Meðal efnis:</b> Lionel Messi, vonbrigði í fyrra, Guardiola. bras á Foden, brotthvarf David Silva, besti Torres í sögu deildarinnar, vandræði í vinstri bak, framtíðarfyrirliðinn Rodri, besta byrjunarlið Manchester City, breyttur leikstíll Aguero, Sancho, saddir Liverpool menn og margt fleira.

Fantabrögð - Salibagate og Salah = Geit
Fantabrögð gerðu upp fyrstu umferðina á nýju tímabili í Fantasy. Þáttastjórnendur áttu ágætis umferðir en einn þó alveg sérstaklega góða. Chelsea sigraði Brighton þrátt fyrir ósannfærandi frammistöðu og Jimenez er stöðugasti fantasy leikmaðurinn. Aron þurfti að senda frá sér formlega yfirlýsingu í stóra Saliba-málinu og rýnt var í liðið hans og reynt að laga vandamálin. Vertu með í head-to-head deild Fantabragða. Kóðinn er smi0nx. Fylgstu með í vetur og mundu að stilla upp liði fyrir kl. 10 á laugardaginn!

Passion league - Úrslitakeppnin framundan í 4. deildinni
Riðlakeppni 4. deildarinnar lauk um helgina og framundan er sjálf úrslitakeppnin. Fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum eru á dagskrá á laugardaginn. Magnús Valur Böðvarsson, sérfræðingur um 4. deildina, og Axel Örn Sæmundsson, þjálfari Bjarnarins, kíktu í hljóðver Fótbolta.net í dag og ræddu komandi úrslitakeppni.

Enski boltinn - Heldur uppgangur Manchester United áfram?
Enska úrvalsdeildin hófst um liðna helgi en Manchester United hefur leik næstkomandi laugardag gegn Crystal Palace. Andri Geir Gunnarsson og Jóhann Skúli Jónsson, stuðningsmenn Manchester United, kíktu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um komandi tímabil hjá United sem og helstu tíðindi helgarinnar í enska boltanum. Meðal efnis: Meiri bjartsýni fyrir stórleiki, síðasti séns hjá formlausum Shaw, störukeppni við önnur félög, Sancho, leita annað í glugganum, of dýrir enskir leikmenn, Jack Grealish, Lingard, Pereira fæst gefins, Donny van de Beek, viðsnúningur Matic, markmannsstaðan, topp fjórir, Leeds, Gylfi Þór Sigurðsson og risaskipti Rúnar Alex til Arsenal.

Ástríðan - 2. og 3. deild með góðum gesti að austan
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Með þeim að þessu sinni er góður gestur, Helgi Steinar Jónsson sem þekkir fótboltann á austurlandi út í gegn. Farið er yfir allt það helsta í 2. og 3. deild karla.

Innkastið - Yfirferð að loknum Ofursunnudegi
Það var tíðindamikill Ofursunnudagur í Pepsi Max-deildinni. Elvar Geir, Gunni Birgis og Ingó Sig fara yfir leiki dagsins og helstu umræðuefnin. Einnig er Lengjudeildin skoðuð. Meðal umræðuefna: Gjafmildir Blikar, gaman í Krikanum, alvöru lokasprettur Stjörnumanna, Valur 2020 eins og KR 2019 og augljósasta bakhrinding í heimi.

Útvarpsþátturinn - Íslenski, landsliðið og Eggert Gunnþór
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 12. september. Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað. Í upphafi: Íslenski boltinn. Mjólkurbikarleikir vikunnar og ofursunnudagur framundan í Pepsi Max. 32:00 Landsliðsuppgjör. Freyr Alexandersson aðstoðarlandslandsliðsþjálfari á línunni. 67:30 Gestur þáttarins. Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH.

Boltinn á Norðurlandi: Leikur sumarsins, útstimplun og óskráður samningur
Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir þá leiki sem fram hafa farið síðan þeir ræddu málin síðast. 2. deild karla var í sviðsljósinu og sérstaklega stórskemmtilegur leikur D/R gegn Völsungi í gær. KF er í öruggum málum og vann granna sína í enn eitt skiptið. Baráttan er hins vegar blóðug á botninum. Þórsarar stimpluðu sig rækilega úr toppbaráttunni í Lengjunni og Magni á gífurlega mikilvægan leik framundan. Þór/KA mætir KR í undanúrslitum bikarsins en ekkert gengur í deildinni á meðan Tindastóll stefnir hraðbyri upp í Pepsi. Þá var einnig rætt um félagaskiptagluggann í upphafi þáttar.

Heimavöllurinn: Sjóðheitir nýliðar og allt í steik í neðri hlutanum
Landsliðið okkar fær loksins að spreyta sig eftir alltof langa covid pásu. Framundan eru risa leikir gegn Lettlandi og Svíþjóð og leikmannahópurinn sem tekur þátt í þeim verkefnum var kynntur í dag.

Enski boltinn - Nær Liverpool að verja titilinn?
Enska úrvalsdeildin hefst á laugardaginn og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson, stuðningsmenn Liverpool af kop.is, kíktu í spjall fyrir tímabilið. Meðal efnis: Thiago Alcantara, fá leikmannakaup, æfingaóður Klopp, nýr vara vinstri bakvörður, nýtt leikkerfi?, Keita gæti komið inn í liðið, of lítil samkeppni, risa leikir í byrjun, Minamino á uppleið, færri stig til að landa titlinum, annað einvígi við Manchester City.

Fantabrögð - Stund sannleikans
Gylfi Tryggvason sneri aftur í byrjunarliðið hjá Fantabrögðum og gaf upp sitt lið fyrir fyrstu umferð í Fantasy Premier League. Strákarnir ræddu allt sem þú þarft að vita fyrir nýtt tímabil í enska boltanum, m.a. nýja leikmenn Chelsea og mikilvægustu breytinguna á Fantasy leiknum í ár. Kóðinn í head-to-head deild Fantabragða er smi0nx. Fylgstu með í vetur og mundu að stilla upp liði fyrir kl. 10 á laugardaginn!

Enski boltinn - Breytt staða hjá Arsenal
Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari Víkings R, og Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, komu og ræddu um lið Arsenal.

Ástríðan - Agaleysi og lið forðast toppbaráttu
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Boðið er upp á langan og veglegan þátt að þessu sinni þar sem málin eru skoðuð í 2. og 3. deild.

Ungstirnin - Óþekk ungstirni og fleiri efnilegir í enska
Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þriðja þætti er fjallað um Alessandro Bastoni (Inter), Romario Baró (Porto) og Filip Stevanovic (Partizan). Rætt er um ævintýri Mason Greenwood og Phil Foden hér á Íslandi. Þá er haldið áfram að skoða hvaða efnilegu leikmenn gætu brotist inn í aðallið sinna félaga og látið að sér kveða í ensku úrvalsdeildinni.

Enski boltinn - Tottenham menn hafa trú á Mourinho
Enska úrvalsdeildin hefst um næstu helgi og Fótbolti.net heldur áfram upphitun sinni fyrir mótið. Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson kíktu í spjall og ræddu komandi tímabil. Meðal efnis: Amazon þættirnir, bjartsýni eftir erfiða tíma, trú á Mourinho, lítið til í buddunni, vesen í vinstri bakverði, sókndjarfur Doherty, Fantasy, Alli vantar pláss, gríðarlegt leikjaálag, tengsl Parrott við mafíuna, spútniklið vetrarins, fósturmamma Lloris og síðasta tímabil Kane?

Innkastið - Tapað fyrir Englandi á vítapunktinum
Eftir landsleik Íslands og Englands í Þjóðadeildinni, 0-1 tapið svekkjandi, fóru Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson yfir leikinn. Rætt var um allt það helsta og farið yfir frammistöðu einstakra leikmanna. Einnig var rýnt í framhaldið og hvernig mögulegt byrjunarlið gegn Belgum gæti litið út. Landsliðs-Innkastið er í boði White Fox.