
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 35 of 57

Ástríðan - 2. og 3. deild komnar aftur á fleygiferð
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um 2. og 3. deild karla en þessar deildir eru aftur komnar á fulla ferð eftir hlé sem var gert vegna kórónaveirufaraldursins og nóg að ræða! Ingólfur Sigurðsson var með þeim í umræðunni um 3. deildina.

Boltinn á Norðurlandi: Gleði og samstaða í 603 - Brekkustrákar skora ekkert
Loksins loksins! Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke fóru yfir síðustu leikina fyrir hlé og þá leiki sem hafa farið fram á undanfarinni viku. Nóg var um að ræða: Engin markaskorun hjá KA, Þórsarar með endurkomu og öflugan sigur og sama gamla hjá Magna. KF getur ekkert gegn Víði, Völsungur vann sinn fyrsta leik en svo ekki söguna meir og 'same shit different day' hjá D/R. Þór/KA bjargaði stigi gegn Stjörnunni en mætti ofjörlum sínum í Breiðabliki. Tindastóll í góðri stöðu, Völsungur að falla úr Lengjunni en Hamrarnir gætu farið upp úr 2. deild. Þá var einnig rætt um 3. deild karla og C-riðil 4. deildar. Dagskráin KA (mín): 1-16, Þór: 16-27, Magni: 27-34 , 2. deild: 34-55 3. deild C-riðill: 55-61, Kvennaliðin 61-68 og framhaldið: 68-77 Ábendingar um umræðuefni: [email protected] eða Boltinn á Norðurlandi á Twitter.

Fantabrögð - FPL opnar aftur!
Það var nóg að ræða í Fantabrögðum - íslenski boltinn kominn aftur af stað og þá þarf að hressa uppá liðin sín. Strákarnir fóru yfir það helsta í draumaliðsdeildum Eyjabita og 50skills og aðallega þá hvað fór úrskeiðis.

Innkastið - Flautumörk, leiðindi í KA leikjum og formleysi í Grindavík
Innkastið snýr aftur eftir veiruhlé! Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis eru í þættinum í dag og fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Pepsi Max-deildin og Lengjudeildin eru til umræðu. Meðal efnis: Dramatískur Stjörnusigur, Brynjólfur kom sér á blað, Arnar Gunnlaugs sá rautt, Ingvar vonbrigði, Fjölnismenn eiga enga von, leiðindi á Hlíðarenda, flautuvíti á Skaganum, Gunni giskar og Lengjudeildarhornið.

Meistaradeildin - Barcelona í skelfilegum málum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Benediktsson hefur áhyggjur af málum hjá Barcelona. Hann lýsti ótrúlegum 8-2 sigurleik Bayern München gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Rætt var við Gumma Ben í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Íslenski boltinn - FH sendir skilaboð og áhugaverð ummæli Óla
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Úlfur Blandon ræða um íslenska boltann. Pepsi Max-deildin er í aðalhlutverki og leikir gærkvöldsins krufnir ásamt því að komandi leikir eru skoðaðir. Farið er yfir helstu tíðindi, áhugaverð ummæli Óla Stefáns Flóventssonar og Lengjudeildin skoðuð. Einnig er rætt við Daníel Hafsteinsson sem skoraði bæði mörk FH í 2-1 útisigri gegn KR í gær.

Ítalski boltinn - Björn Már gerir upp liðið tímabil í A-deildinni
Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslendinga um ítalska boltann, gerir upp tímabilið 2019-20 í ítölsku A-deildinni. Í þessum þætti ræðir Elvar Geir við Björn Má um þetta sérstaka tímabil þar sem heimsfaraldurinn hafði mikil áhrif. Það eru spennandi hreyfingar í gangi hjá liðunum. Hvar er mesta gleðin og hvar eru vonbrigðin? Liðin eru skoðuð og Björn Már velur úrvalsliðið.

Heimavöllurinn - Gunnhildur Yrsa er mætt aftur í íslenska boltann
Það ríkir gleði á Heimavellinum eftir að heilbrigðisráðherra og KSÍ gáfu grænt ljós á að Íslandsmótið í knattspyrnu gæti haldið áfram að rúlla. Framundan er því mikið líf og fjör.

Ungstirnin - Fyrsti þáttur: Andri Fannar gestur
Ungstirnin er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Þáttastjórnendur eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson. Í þessum þætti er fjallað um Ozan Kabak (Schalke), Ryan Gravenberch (Ajax) og Sebastiano Esposito (Inter) en talið er að þessir strákar eigi mjög bjarta framtíð. Þá kom Andri Fannar Baldursson, leikmaður Bologna, í heimsókn og var rætt um allt sem hefur verið í gangi hjá honum í atvinnumennskunni.

Útvarpsþátturinn - Óvissan hjá íslenskum félögum og landsliðinu
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 8. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um óvissuástandið í íslenska boltanum við Pál Kristjánsson, formann KR, og Frey Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfara. Einnig var rætt um Meistaradeild Evrópu. Dagskráin: 04:30 Meistaradeild Evrópu 18:45 Umræða um veiruástandið í íslenska boltanum 33:30 Viðtal við Pál Kristjánsson 59:30 Viðtal við Frey Alexandersson

Ástríðan - Þriðjungsuppgjör og hitamál
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þrátt fyrir að boltinn sé stopp um þessar mundir þá heldur Ástríðan áfram á fullri ferð. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um 2. og 3. deild karla og í þætti dagsins er sérstakt þriðjungsuppgjör í báðum deildum. Valdi eru fimm bestu leikmenn í hvorri deild það sem af er tímabili. Þá eru fréttapunktar og hitamál í brennidepli í þættinum.

Fantabrögð - Sá besti á landinu gerði upp enska tímabilið
Gunnar Björn Ólafsson, stigahæsti leikmaður Fantasy Premier League á Íslandi tímabilið 2019-2020, kom í heimsókn til Arons og Gylfa og fór yfir hvernig maður verður Íslandsmeistari í FPL. Hann deildi öllum sínum leyndarmálum, svo sem hvenær hann spilar hinu villta spili (e. wildcard), hvernig hann gerir skiptingar og hvaða tölfræði hann skoðar. Þessi þáttur er skylduhlustun fyrir alla þá sem deila þeim draumi með þáttastjórnendum að verða besti Fantasy spilari hinnar íslensku þjóðar.

Íslenski boltinn í limbói vegna veirunnar - Klárum þetta mót!
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Aftur er komið upp óvissuástand í íslenska fótboltanum vegna kórónaveirufaraldursins. Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins, fór yfir stöðu mála og rætt var um viðbrögð fótboltahreyfingarinnar við ástandinu. Hvað þurfum við að gera til að bjarga Íslandsmótinu? Þá var Guðni Bergsson, formaður KSÍ, á línunni og fór yfir hvað væri framundan. Umsjón: Elvar Geir, Benni Bóas og Gísli Þorkels.

Bikaryfirferð - ÍBV og Fram að gera gott mót
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir, Benni Bóas og Gísli Þorkels stýrðu skútunni. Ingólfur Sigurðsson mætti í heimsókn og fór yfir bikarleiki vikunnar, 16-liða úrslitin. Eftir dráttinn í 8-liða úrslt er ljóst að það verður Lengjudeildarlið í undanúrslitum. Opinberað var úrvalslið vikunnar í bikarnum. Þá var rætt við Daníel Geir Moritz, eiganda ÍBV, sem er staddur heima í Vestmannaeyjum. Spjallað var við Daníel um Þjóðhátíð, árangur ÍBV og bikarúrslitaleik Arsenal og Chelsea á Englandi.

Heimavöllurinn - Uppgjör á fyrsta þriðjungi Lengjudeildarinnar
Þáttur dagsins er tileinkaður fyrsta þriðjungi Lengjudeildarinnar. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Gylfi Tryggvason mæta í heimsókn og kryfja málin til mergjar ásamt Mist Rúnarsdóttur. Hvernig eru liðin að standast væntingar? Hvaða leikmenn og þjálfarar hafa skarað fram úr og hvaða lið hefur valdið mestum vonbrigðum?

Boltinn á Norðurlandi: Milo skákaði Deano, fyrsta stigið, múrað fyrir og sex á sig
Það var aldeilis nóg um að vera síðastliðinn sunnudag þegar leikið var í efstu fjórum deildum Íslandsmóts karla. KA gerði jafntefli gegn Íslandmeisturunum, Þór steinlá gegn Fram, Magni náði í sitt fyrsta stig og KF vann gegn Selfossi. Dagskrá í tímaröð: Pepsi Max, Lengjan, 2. deild, 3. deild 4. deild, tímabær sigur Þór/KA og óvænt tap Tindastóls Næstu leikir, skilaboð frá KSÍ. Umsjónarmenn: Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson.

Ástríðan - Allt það helsta í 2. og 3. deild með góðum gesti
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um liðnar umferðir í 2. og 3. deild karla en þar hefur verið mikið leikjaálag að undanförnu og nóg að ræða. Dómgæslan hefur verið í umræðunni. Með þeim í þættinum í dag er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson, fótboltaáhugamaður og fyrrum þjálfari Vængja Júpiters.

Sandra María: Þakklát fyrir að fá að upplifa drauminn
Sandra María Jessen skrifaði nýverið undir nýjan eins árs samning við Bayer Leverkusen og mun hún því leika með liðinu á komandi leiktíð í þýsku Bundesliga. Sandra gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra og hafði nokkrum árið áður verið að láni hjá félaginu.

Heimavöllurinn - Sif Atla, Svíþjóð og mikið Maxað
Sif Atladóttir, landsliðskona, mætir í boltaspjall á Heimavellinum í dag. Hún fer yfir gang mála í sænsku deildinni og pælir í Pepsi Max með þáttastýru. Það varð aldeilis sprenging í uppgjöri toppliðanna í síðustu viku og pakkinn frá miðri deild og niður er sögulega þéttur. Ný Hekla er valin og við opinberum hvaða leikmaður var kosin best eftir fyrsta þriðjung Íslandsmótsins.

Innkastið - Sóknarsýning Blika og sterk KA gleraugu
Fjallað um fjöruga níundu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson eru í Innkastinu að þessu sinni. Þátturinn er í boði White Fox, það besta í bransanum og vinsældirnar eru eftir því. Meðal efnis: Blikar með sýningu í fyrri hálfleik, KA gleraugun, Fylkismenn koma til baka, góð ferð Vals í Grafarvog, Lennon bjargar FH, Gunni giskar, bikarinn framundan, Lengjuhornið.

Fantabrögð - Uppgjör á enska tímabilinu
Þá er hinu langa og sögulega tímabili 2019/2020 lokið í enska boltanum og þar með einnig Fantasy Premier League. Aron kom endurnærður úr sumarfríi og gerði upp tímabilið með Gylfa sem var þó heldur svekktur eftir erfiðan vetur. Hvað gekk upp - og það sem meira máli skiptir - hvað fór úrskeiðis? Hvað ætlum við að reyna að gera betur á næsta tímabili? Kevin de Bryune endaði sem stigahæsti leikmaðurinn að þessu sinni með 251 stig og það var því vel við hæfi að hann kláraði tímabilið með alvöru 19 stiga frammistöðu. Það var Búlgarinn Aleksandar Antonov sem sigraði Fantasy Premier League að þessu sinni og endaði með 2575 stig. Gunnar Björn Ólafsson varð stigahæsti Íslendingurinn og sigraði auk þess Budweiser deildina. Hann verður leystur út með glæsilegum vinningum þegar hann mætir sem gestur í næsta þátt Fantabragða og fer yfir sitt frábæra tímabil.

Boltinn á Norðurlandi: Addi heldur hreinu, úttekt á Grillvelli og grannaslagir gerðir upp
Í þætti kvöldsins fengu þeir Aci og Sæbjörn fyrrum varamarkvörðinn, Egil Sigfússon, sem gest. Egill sagði frá sínum ferli og valdi meðal annars þrjá bestu varamannabekki landsins. Farið var ítarlega yfir nágrannaslagina tvo, heimaleik Samherja í dag, Þór/KA - Fylki og útileik KA í Kaplakrika. Dagskráin: Sögustund 1-7 (mín), KA 7-27, Þór - Magni 27-46, Völsungur - KF 46-60, Dalvík/Reynir 60-67. Tindastóll 68-73, Grillvöllurinn (Samherji) 73- 84, kvennaboltinn 84-91. Tákn, næstu leikir og smá gestaþraut 91-100. Umsjónarmenn Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson.

Enski boltinn - Lið ársins valið og lokaumferðin skoðuð
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing um enska boltann, í heimsókn. Kristján skoðaði lokaumferðina. Fer Manchester United í Meistaradeildina? Þá valdi Kristján lið ársins í deildinni.

Pepsi Max upphitun og uppgjör fyrsta þriðjungs Lengjudeildarinnar
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir 9. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Þá er lengjudeildarhringborðið dregið fram. Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon skoða fyrsta þriðjung Lengjudeildarinnar og velja besta leikmanninn og besta þjálfarann í þriðjungnum.

Innkastið - Titringur í Breiðabliki og Stjarnan getur unnið mótið
Elvar Geir, Tómas Þór og Ingó Sig eru með ykkur í Innkastinu eftir áttundu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Þátturinn er sendur út frá Meistaravöllum, heimavelli KR, og er í boði White Fox, það besta í bransanum og vinsældirnar eru eftir því. Meðal efnis: Pablo bestur í fyrsta þriðjungi, Breiðablik í vandræðum, baráttuandi HK, vonbrigðisjafntefli hjá KR og FH, flott byrjun Arnars Grétars, Stjarnan skín skært, Breiðholt á toppi Lengjudeildarinnar.

Fantabrögð - Enski að klárast og spenna á Íslandi
00:00 - Fantasy Premier League 32:22 - 50skills (Pepsi Max kvenna) 1:11:43 - Eyjabitinn (Pepsi Max karla) Eftir vasklega framgöngu í síðasta þætti sneru Arnór Gauti og Kristófer Máni aftur í hljóðverið og ræddu málin á meðan Aron er að klára lengstu hringferð sögunnar. Þess má geta að strákarnir keyrðu hringinn í kringum landið á tveimur dögum síðustu helgi og voru mættir ferskir í þátt. Hver verður stigahæstur í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar? Hverja á maður að kaupa ef maður er að nota wildcard í Eyjabitanum? Er hægt að líta fram hjá Sveindísi Jane eftir þessa frammistöðu?

Boltinn á Norðurlandi: Gary pirraður - Addi og dyravörðurinn unnu sigur
Leikir unfanfarna daga hjá liðunum á Norðurlandi skoðaðir. Leikir Þór, KA og KF skoðaðir vel og aðeins rætt um hina leikina og pælingar tengdar þeim. KA vann sinn fyrsta leik í deildinni, Þórsarar gerðu jafntefli og Magni missti niður forystu. Áfram er uppskeran lítil í 2. deild en Tindastóll náði í gott stig á útivelli og Samherjar halda áfram á góðu skriði. Kvennalið Tindastóls er á toppi Lengjudeildarinnar, Þór/KA er í smá brekku og fyrsta mark Völsungs kvenna. Dagskráin: KA: 1-21(mín), Þór 21-31, Magni 31-36, KF 36-44, 2. deild, 44-52, Tindastóll 52-55, Samherjar 55-58, kvennaboltinn 58-65, næstu leikir 65-68. Umsjónarmenn: Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson.

Heimavöllurinn: Dramatík í Pepsi Max og upphitun fyrir stórleik kvöldsins
Það er nóg að gera á Heimavellinum í dag. Gestir þáttarins eru fyrrum knattspyrnukonurnar Sóley Guðmundsdóttir og Berglind Hrund. Síðasta umferð Pepsi Max deildarinnar er gerð upp ásamt því að hita upp fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í kvöld. Meðal efnis: -Dramatísk Pepsí Max umferð -Maika'i leikmaður vikunnar - Reif sitt lið í gang -Bestu leikmenn 1.-6. umferða -Pottþétt Hekla -Upphitun fyrir stórleikinn á Kópavogsvelli -Besta byrjunarliðið hjá Val og Breiðablik

Enska Innkastið - Man Utd og Chelsea þema
Undanúrslitin í enska bikarnum fóru fram um liðna helgi og í þessari viku eru framundan lokaleikirnir í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Man Utd og útvarpsmaður á Rás 2, eru gestir vikunnar í enska Innkastinu. Meðal efnis: David De Gea, leikmannakaup sumarsins, varnarvandræði, einkunnagjöf stjóranna, niðursveifla Leicester, drauma byrjunarlið á næsta tímabili, Paul Pogba, Evrópudeildin, toppbaráttan næsta vetur, fallbaráttan, óvænt stjóraskipti Watford og Leeds.

Ástríðan - Pakkfullur þáttur eftir viðburðaríka helgi
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Þeir fjalla um liðnar umferðir í 2. og 3. deild karla en það er viðburðarík helgi að baki. Kórdrengir styrktu stöðu sína enn frekar á toppi 2. deildar og það eru Reynismenn sem eru áfram númer eitt í 3. deildinni.

Innkastið - Brynjólfur til Færeyja og KR best á Íslandi
Innkastið eftir 7. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina með Elvari Geir Magnússyni. Meðal efnis: Val á besta leikmanni fyrsta þriðjungs, Rýr uppskera Breiðabliks, mikilvægur sigur Vals, Víkingar rúlla yfir ÍA, KR-ingar miklu betri en Fylkismenn, Eiður Smári mættur, nýir þjálfarar byrja vel, skýrsla frá Akureyri, Lengjudeildarhornið.

Útvarpsþátturinn - Þjálfarahræringar og Guðlaugur Victor
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. júlí. Elvar Geir Magnússon, Baldvin Már Borgarsson og Magnús Már Einarsson fjölluðu um íslenska fótboltann. Í fyrri hlutanum var fjallað ítarlega um Pepsi Max-deildina og Lengjudeildina, einnig lítillega um 2. deildina. Rýnt var í þjálfarahræringarnar. Í seinni hlutanum er Guðlaugur Victor Pálsson landsliðsmaður í viðtali og einnig Valdimar Svavarsson formaður FH. Í byrjun þáttar: Pepsi Max-deildin 37:00 Lengjudeildin og 2. deildin 63:00 Guðlaugur Victor Pálsson 82:00 Valdimar Svavarsson

Boltinn á Norðurlandi: Sævar Péturs ræðir þjálfaraskipti KA og Greifavöllinn
Sæbjörn settist niður með Sævar Péturssyni, framkvæmdastjóri, og spurði hann út í þjálfaraskipti meistaraflokks KA en samstarfinu var slitið við Óla Stefán Flóventsson, nú fyrrum þjálfara liðsins, í vikunni. Við liði KA tók Arnar Grétarsson og stýrir hann liðinu í fyrsta sinn á morgun þegar KA mætir Gróttu á heimavelli. Sævar svaraði spurningum um þjálfaraskiptin og einnig spurningum um stefnu KA þegar horft er á meistaraflokk félagsins. Þá var hann spurður út í leikmannamál, Greifavöllinn og framtíðarsýn KA varðandi heimavöll. Að lokum var hann spurður út í við hverju KA menn og aðrir fótboltaáhugamenn mættu eiga von á gegn Gróttu. Umsjónarmaður: Sæbjörn Þór Þórbergsson. Tekið upp í aðstöðu KA við Greifavöllinn.

Boltinn á Norðurlandi: Fram á þriðjudagskvöld
Þeir Sæbjörn Þór og Aci fóru yfir leikina undanfarna daga. Þór/KA fór áfram í Mjólkurbikarnum en annars var uppskeran slöpp á Norðurlandi, einungis fimm stig af 27 mögulegum. Það var Tindastóll sem hélt upp í heiðrinum með sigri og Samherjar ásamt KA fengu stig á heimavelli. Dagskráin: KA 1-16 (mín), Þór 16-23, Magni 23-34, 2. deild 34-48 Tindastóll kk 48-51, Samherjar 51-55, Mjólkurbikar kvenna 55-60 Þór/KA vs. FH og næstu leikir 60-69. Umsjónarmenn Sæbjörn Þór Þórbergsson og Aksentije Milisic.

Fantabrögð - Hægðir og lægðir
00:00 - Eyjabitinn 45:14 - 50skills 1:07:30 - Premier League Það voru hægðir og lægðir í þessari viku hjá Fantasy leikmönnum. Lítið um hæðir. Kristófer Máni og Arnór Gauti, varamenn Fantabragða, mættu til Gylfa í stúdíóið á meðan Aron er í sumarfríi. Stigaleysið var algjört í Eyjabitanum. Meira var um að vera í 50skills þótt einungis tveir leikir hafi farið fram í síðustu umferð. Enska Fantasy er nánast búið. Þrátt fyrir erfiða tíma í Fantasy, eins og venjan hefur verið, voru strákarnir kátir enda Fylkir komnir á toppinn í Pepsi Max deild karla. Þeir reyna þó misvel að láta Fylkisgleraugun ekki blinda sig og fóru yfir næstu leiki. -Skiptir máli hvort leikmaður spili á gervigrasi eða grasi? -Munu Valsstelpur halda áfram að skila stigum þegar þær mæta Fylki? -Ertu spennandi Fantasy leikmaður ef þú spilar ekki fyrir Manchester? Þessu var svarað og ýmsu fleira.

Innkastið - Fylkir kemur öllum á óvart og óvæntur brottrekstur
Í þessu Innkasti er farið yfir sjöttu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson skoða leikina og helstu fréttapunktana. Lengjudeildin er einnig til umræðu. Meðal efnis: Skagamenn skora mörkin, dýrkeypt markvarðamistök, vonbrigði á Hlíðarenda, góðir KR-ingar, Fylkismenn koma öllum á óvart, andleysi í FH, KA í vandræðum, þjálfari Ólafsvíkur rekinn, efri hluti Lengjudeildarinnar þéttist.

Ástríðan - Fjörug fimmta umferð í 2. og 3. deild
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Kórdrengir tróna á toppi 2. deildar og það eru Reynismenn sem eru númer eitt í 3. deildinni. Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason. Í þætti vikunnar fara þeir yfir 5. umferðirnar í deildunum.

Stjarnan snýr aftur í Pepsi Max - Eyjó Héðins kominn úr sóttkví
Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Eyjólfur Héðinsson, leikmaður Stjörnunnar, mætti í heimsókn en hann er nýlaus úr sóttkví eins og stærsti hluti leikmannahóps Garðabæjarliðsins. Stjarnan mætir aftur til leiks í Pepsi Max-deildinni á mánudaginn þegar liðið mætir Val. Eyjólfur er styrktarþjálfari Stjörnunnar ásamt því að spila með liðinu.

Íslenski boltinn - Rasismi í 4. deild og Pepsi Max upphitun
Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um kynþáttafordóma í 4. deild og hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Boltinn á Norðurlandi: Afmælissigrar hjá Blö og yfirburðir KF - Dapurt hjá Þór, KA og Magna
Í þættinum fara þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson yfir leikina í miðri viku. Bæði lið Tindastóls sigruðu sína leiki, KF heldur sínu taki á Dalvík/Reyni og Völsungur fékk sitt fyrsta stig. Síðustu leikir voru ekki góðir fyrir Þór, KA og Magna og er staðan skoðuð. Skýrsla úr leikjunum hjá Þór og KA ásamt leiknum á Dalvík. Dagskráin Dalvíkurvöllur: (mín) 0-26, Völsungur: 26-28 Tindastóll kk: 28-31, Magni: 31-36, Þór: 36-49, KA: 49-57 Lengjudeild kvk og næstu leikir: 57-65 Hafa samband: [email protected]

Enska Innkastið - Bjartsýnir stuðningsmenn Arsenal
Það er Arsenal þema í enska innkastinu að þessu sinni en skytturnar hafa verið á góðu flugi að undanförnu. Gestir þáttarins eru Arsenal stuðningsmennirnir Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson.

Innkastið - KA í brekku og öftustu menn gefa mörk á silfurfati
Innkastið fjallar um leiki 5. umferðar Pepsi Max-deildar karla og einnig er farið yfir 4. umferðina í Lengjudeildinni. Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir málin í þætti dagsins. Meðal efnis: Óskar Hrafn pirraður eftir jafntefli gegn FH, stefnir í spennandi toppbaráttu, Vængbrotnir Víkingar í veseni gegn Val, Grótta opnar flóðgáttir, Valgeir sýndi gæði sín gegn ÍA, næstu tveir leikir KA ráða hitastiginu á sæti Óla Stefáns, Hemmi Hreiðars tekur við Þrótti Vogum, músagangur og Lengjudeildaryfirferð.

Ástríðan - Þétt spilað í 2. og 3. deild
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Þórarinn Jónas Ásgeirsson, aðstoðarþjálfari Hauka, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi. Þeir þrír fóru yfir síðustu tvær umferðir í 2. og 3. deild karla.

Heimavöllurinn - Hreint HK-lak, 14 ára Lengjuskorari og Maxarar losna úr kví
Boltinn rúllar í öllum deildum og knattspyrnuþjálfararnir Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Steinunn Sigurjónsdóttir mæta á Heimavöllinn í dag og fara yfir gang mál ásamt þáttastýrum. Þær renna yfir stöðuna í deildunum þremur, fara yfir helstu fréttir og kaffistofuspjallmola og benda hlustendum á leikmenn sem lofa góðu í Maxinu svo eitthvað sé nefnt.

Fantabrögð - Fastir liðir eins og venjulega
Fantasy Premier League heldur áfram og Manchester United leikmenn eru heldur betur að gera það gott. Bruno Fernandes, Martial, Rashford og Greenwood skipta stigunum á milli sín í að því er virðist hverjum leik og nú er þetta bara spurning um hvaða þrjá af þessum þú ætlar að hafa í þínu liði. Manchester City eiga frábæra leikjadagskrá framundan en fóru illa að ráði sínu gegn Southampton og töpuðu 1-0 þar sem þeirra helstu Fantasy karlar fengu 1 stig hver. Tottenham líta illa út og við ætlum ekki að líta fram hjá Wolves þrátt fyrir tap um helgina. Í íslenska boltanum er landslagið svolítið ófyrirsjáanlegra. Fjöldi leikja er óreglulegur meðan sum liðin sitja í sóttkví og því þurfum við enn frekar að treysta á stig frá þeim leikmönnum sem spila. ÍA stimpluðu sig heldur betur inn í leikinn aftur í draumaliðsdeild Eyjabita meðan Valskonur afhenda þægileg stig í hverri umferð í 50 skills deildinni. Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Fantabrögðum!

Boltinn á Norðurlandi: Ísinn brotinn í 2. deild en dimmt yfir austan Akureyrar
Í þættinum er farið yfir leikina átta hjá liðunum fyrir norðan sem leiknir voru fyrir helgi og um helgina. Fjórir sigrar unnust, eitt jafntefli og þrjú töp. Þórsarar eru með fullt hús, fyrstu sigrarnir í 2. deild og KA fékk stig á Greifavelli. Magni og Völsungur eru án stiga á meðan Samherjar rétta skútuna við. Dagskráin: KA: 0-23 (mín), Þór: 23-38, Magni: 38-45 KF: 45-60, Dalvík/Reynir: 60-64, Völsungur: 65-67 Tindastóll (Völsungur kvk): 67-71 Samherjar, hláturskast og næstu leikir: 71-77 Umsjónarmenn: Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson.

Innkastið - Vanstilltir dómarar og völlur sem ræður úrslitum
Það var líf og fjör í leikjum helgarinnar í Pepsi Max-deildinni. Elvar Geir, Ingólfur Sigurðsson og Gunnar Birgisson fara yfir alla leikina í Innkastinu. Meðal efnis: Víkingar sáu rautt, vanstilltir dómarar, Greifavöllurinn áfram í umræðunni, Lengjudeildarbragur yfir leik Gróttu og HK og Gunni giskar.

Lengjuhringborðið - Mjög áhugaverð byrjun á skemmtilegri deild
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu sérfræðinga þáttarins um Lengjudeildina í heimsókn þegar einum leik var ólokið í 3. umferð. Úlfur Blandon og Rafn Markús Vilbergsson mættu í hljóðver og fóru yfir gang mála og hvað við höfum lært í byrjun móts.

Íslenski boltinn - Valsskellur gegn ÍA, gluggavikan og nýtt útlit landsliðsins
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór gerðu upp óvæntan skell Vals gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni. Tómas var á vellinum. Fjallað var um gluggatíðindi vikunnar. Einnig var rætt um nýtt landsliðsmerki Íslands og treyjuna frá Puma. Stefán Gunnarsson. markaðsstjóri KSÍ, var á línunni.

Ástríðan - Leikir og gluggadagsskipti í 2. og 3. deild undir smásjánni
Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi. Í þættinum að þessu sinni er fjallað um það sem gerðist í 2. umferð og leikmannaskipti frá gluggadeginum í 2. og 3. deild skoðuð. Þáttastjórnandi er Óskar Smári Haraldsson og álitsgjafi með honum er Sverrir Mar Smárason, leikmaður Kára á Akranesi.