
Fotbolti.net
2,831 episodes — Page 39 of 57

Enska hringborðið - Spenna um alla deild nema á toppnum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín sérfræðinginn Kristján Atla Ragnarsson, stuðingsmann Liverpool. Rætt var um gang mála í enska boltanum. Meðal umrðuefna: Yfirburðir Liverpool, kröfur Pep Guardiola, þróun Manchester United, Mourinho aftur í sama farið, upprisa Southampton, bestu kaup áratugarins og fleira.

Fantabrögð - Jólaþáttur - Aron Þrándar ræðir Trent og bomburnar
Það kom að því. Liverpool bakvarðabomban sem allir höfðu beðið eftir mætti á svæðið. Trent Alexander-Arnold setti hvorki meira né minna en 24 stig í Fantasy á annan í jólum og bjargaði 19. umferðinni fyrir ansi mörgum leikmönnum. Einn af þeim var Aron Elís Þrándarson, nýr leikmaður OB í Danmörku og sigurvegari draumaliðsleiks Fótbolta.net og Eyjabita í Pepsi Max deild karla í sumar. Aron er með stigahæstu leikmönnum Íslands í Fantasy Premier League og var auk þess valinn í landsliðshóp Íslands í dag svo hann hefur yfir mörgu að gleðjast. Hann gaf sér tíma til að koma og gefa nafna sínum góð ráð í Fantasy fræðum og fóru þeir saman yfir umferðir 19 og 20 í FPL.

Innkastið - Jólatörn, öflug stjórateymi og handakrikarangstöður
Elvar og Daníel skoða jólatörnina í ensku úrvalsdeildinni í síðasta Evrópu-Innkasti ársins 2019. Meðal efnis: Handakrikarangstöður í VAR, De Bruyne leikmaður ársins?, enginn veikur blettur hjá Liverpool, þáttur Jody Morris í sigri Chelsea, handbragð Arteta, Andreas Pereira, breytt hlutverk Gylfa, Ancelotti og Ferguson, Haaland til Dortmund, Zlatan til AC Milan og bestu leikmenn áratugarins.

Áramótakæfan - Fótboltaárið 2019 gert upp
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson fóru yfir árið 2019 í Áramótakæfunni sem var nú smökkuð í sjöunda sinn. Hressir viðmælendur, gleði, bombur og góðir gestir. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum.

Fantabrögð - 18. umferð - Jólabann
18. umferðin í Fantasy Premier League reyndist alveg eins erfið og hún virkaði á pappír. Jamie Vardy og Danny Ings skoruðu en Manchester United og Tottenham fóru illa með fólk. Sérstaklega Heung Min Son sem skellti sér í 3 leikja jólabann með því að fá beint rautt. Hann var einn vinsælasti fyrirliðinn um helgina og því ansi margir spilarar sem enduðu með mínusstig fyrir fyrirliðann, enda virkar fyrirliða "bónusinn" í báðar áttir og því tvöfaldast mínusinn ef fyrirliðinn manns er í þeim pakka. Það er mikið af leikjum framundan og Aron fékk Baldvin Ingvar Tryggvason til að spá í næstu tvær umferðir, en næsti þáttur af Fantabrögðum verður 30. des þegar 19. og 20. umferð verða gerð upp. Gleðileg jól!

Heimavöllurinn - PepsiMax hátíð og risar snúa heim
Heimavöllurinn snýr aftur og þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir hafa um ýmislegt að ræða eftir huggulegt haustfrí. Goðsögnin Margrét Lára Viðarsdóttir hefur lagt skóna á hilluna og landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Rakel Hönnudóttir eru komnar heim úr atvinnumennskunni. Rakel kíkir einmitt í heimsókn á Heimavöllinn og ræðir tímann í Svíþjóð og Englandi og endurkomuna í íslenska boltann.

Höddi Magg kveður Pepsi Max mörkin og ræðir um Liverpool
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hörður Magnússon kom í heimsókn en hann er hættur störfum sem íþróttafréttamaður, í bili að minnsta kosti. Hann fór yfir viðburðarík ár sem stjórnandi Pepsi Max-markanna, ræddi um árangur Liverpool í vetur og fleira tengt boltanum.

Gróttuleiðin í Pepsi Max - Greiðslur, þjálfarabreytingar og væntingar
Grótta kom gríðarlega á óvart á liðnu sumri og vann 1. deildina. Liðið leikur í deild þeirra bestu á komandi ári. Birgir Tjörvi Pétursson, formaður knattspyrnudeildar Gróttu, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Í þættinum opinberaði hann að þó leikmenn liðsins séu ekki á föstum launagreiðslum þá sé búið að setja upp sérstakt kerfi bónusgreiðslna fyrir leikmenn og þá þurfa þeir ekki að greiða neitt fyrir æfingaferð liðsins. Hvernig mun Gróttuleiðin virka í Pepsi Max-deildinni? Fær Ágúst Gylfason að setja sitt handbragð á liðið? Hvernig er félagið tilbúið að vera þátttakandi í Pepsi Max? Verður stúkan stækkuð? Hlustaðu á áhugavert viðtal við formann Gróttu.

Fantabrögð - 17. umferð - Fantabrögð x Draumaliðið
Í fjarveru GT dugði ekkert minna en að fá alvöru fallbyssu í þáttinn og því mætti Jói Skúli, stjórnandi hlaðvarpsins Draumaliðið og ræddi um Fantasy gengi sitt. Hann gerði svo upp 17. umferðina með Aroni og spáði í spilin fyrir næstu umferð. Eðlilega snerist umræðan mikið um hvað ætti að gera við Liverpool menn þar sem þeir eiga ekki leik í 18. umferð vegna HM félagsliða. Jói lokaði síðan þættinum með því að velja drauma-fantasy lið sitt í gegnum tíðina. Þar komu heldur betur upp skemmtileg nöfn sem margir vanir Fantasy spilarar ættu að muna eftir.

Innkastið - Stórir stjórar og lið tímabilsins hingað til
Evrópu-Innkastið er sent út frá Ölveri í Glæsibæ þessa vikuna. Benedikt Bóas blaðamaður og Gunnar Ormslev kappleikjalýsandi voru með Elvari í Innkastinu að þessu sinni. Toppbaráttan var skoðuð og Gunnar fékk það heimaverkefni að velja úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar hingað til. HM félagsliða, El Clasico, Ancelotti eða Arteta og fleira í þætti vikunnar.

Mögnuð fótboltasaga Ejub Purisevic
Ejub Purisevic var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 og fór yfir fótboltasögu sína í viðtali við Elvar Geir og Tómas Þór. Ejub hefur markað djúp spor í íslenskan fótbolta en hann er þekktastur fyrir að ná ótrúlegum árangri sem þjálfari Víkings í Ólafsvík. Í viðtalinu segir Ejub frá því hvað leiddi hann til Íslands, ræðir um stríð í heimalandi sínu, ár sín sem spilandi þjálfari Sindra á Höfn í Hornafirði og opinberar í fyrsta sinn af hverju hann fór til Ólafsvíkur á sínum tíma. Áhugavert viðtal sem óhætt er að mæla með.

LiVARpool og Meistaradeildardrátturinn
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Er viðurefnið LiVARpool sanngjarnt? Er tilviljun að Steven Gerrard samdi til 2024? Hvernig verður drátturinn í Meistaradeildinni á mánudag? Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Evrópufótboltann.

Innkastið - Sleðaferð um Pepsi Max-deildina
Sérstök hátíðarútgáfa af Innkastinu! Teymið var kallað saman til að skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum Pepsi Max-deildar karla. Tómas Þór, Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már skoðuðu tíðindin sem hafa borist í haust og vetur. Hvernig eru leikmannahóparnir að líta út, hvaða leiðir er verið að fara í þjálfaramálum og hvaða vonir og væntingar er hægt að gera til liðanna?

Miðjan - Jói Kalli um stöðuna á Skaganum
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, er gestur í hlaðvarpsþættinum Miðjunni að þessu sinni. Meðal efnis: Draumabyrjun á síðasta tímabili, af hverju fjaraði undan liðinu?, leikmannamálin, breytingar á leikstíl ÍA, framhaldið á Akranesi, nýir aðstoðarþjálfarar, fjölgun leikja á Íslandsmótinu, ungur sonur í atvinnumennskunni, gervigras á Akranesvöll, ótrúlegt gengi Liverpool, ævintýri Leicester og jólahátíðin á Englandi.

Fantabrögð - 16. Umferð - Rauð viðvörun
Það skiptust á skin og skúrir þessa helgina hjá Aroni og Gylfa þegar kom að Fantasy. Þrefaldi Tottenham skammturinn hjá Aroni skilaði sér heldur betur þegar þeir unnu 5-0 sigur á Burnley. Á meðan unnu Liverpool 3-0 sigur og héldu hreinu en þar sem Trent spilaði aðeins 50 mín. fékk hann ekki stig fyrir að halda hreinu. Vardy hélt áfram að skora, Rashford er allt í einu orðinn einn heitasti leikmaðurinn í leiknum og Danny Ings heldur áfram að vinna í þakinu hjá sér. Á að kaupa Shelvey? Er Vardy áfram sjálfvalinn fyrirliði? Á að selja Lundstram? Er hægt að eiga fleiri en einn Son? Allt þetta og fleira til í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.

Innkastið - Óstöðvandi topplið og meira fjör hjá Tottenham
Það var líf og fjör í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en gestir voru Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson. Öllu léttara var yfir þeim en síðast þegar þeir kíktu í heimsókn í byrjun október. Síðan þá hefur Jose Mourinho tekið við Tottenham og liðið klifrað upp töfluna. Farið var yfir leiki helgarinnar á Englandi og helstu tíðindi á Spáni, Ítalíu og Þýskalandi. Hjálmar kom síðan með byltingarkennda tillögu í tengslum við fjölgun leikja á Íslandsmótinu!

Íslenski boltinn - Lenging mótsins og viðtal við Bjarna Ólaf
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór héldu áfram að ræða um mögulega lengingu á Íslandsmótinu. Þá var Bjarni Ólafur Eiríksson í viðtali en hann gekk nýlega í raðir ÍBV. Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, hefur blásið í herlúðra í Vestmannaeyjum.

Enski boltinn - Ferðalag Tom og desemberdagskrá Liverpool
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um enska boltann. Tómas Þór sagði frá vinnuferð sinni þar sem hann heimsótti Turf Mor og Anfield, sá Manchester City rúlla yfir Burnley og Everton tapa illa fyrir Liverpool. Þá var Magnús Þór Jónsson af kop.is á línunni og ræddi um Everton og desemberdagskrá Liverpool.

Ítalski boltinn - Spennandi titilbarátta Inter við Juventus
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið er yfir það helsta í ítalska boltanum. Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslands um ítalska boltann var í beinni frá Malmö. Hann ræddi við Elvar og Tómas um gang mála.

Enska Innkastið - Ljungberg breytir engu
Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni fer öll orkan í ensku úrvalsdeildina enda tvær umferðir að baki síðan þátturinn var síðast á dagskrá. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins. Daníel er lítill í sér vegna stöðu mála hjá Arsenal en liðið tapaði fyrir Brighton í gær. Meðal efnis: Hver á að taka við Arsenal? Getur Everton fallið? Á hvaða leið er Manchester United? Af hverju er Pellegrini enn í starfi? Hvernig er Liverpool tilbúið í desember?

Fantabrögð - 15. umferð - Sprengju varpað í lok þáttar!
Strákarnir hittust í GT studio og ræddu 15. umferðina. VAR-sóknarlínan sýndi, eins kaldhæðið og nafnið er, enn og aftur fram á mikilvægi sitt. Vardy, Abraham og Rashford skoruðu allir. Tammy lék marga þjálfara grátt og einhverjir söfnuðu stigum á bekknum. Mælt er með að hlustendur fái sér sæti áður en þeir hlusta á lok þáttarins því stærstu sprengju í sögu þáttanna var varpað. Ekki missa af því. Eða kannski væri annar þeirra alveg til í að hlustendur myndu einmitt missa af því.

Fantabrögð - 14. umferð - Að taka á sig mínus
14. umferðin fór ekki alveg eins vel og við höfðum vonað. Jamie Vardy skoraði, en ekki alveg eins mikið og við hefðum óskað okkur. Einungis eitt lið skoraði fleiri en tvö mörk og einungis tvö lið héldu hreinu. Willems lestin gefst ekki upp og Freddie Ljungberg blés lífi í Aubameyang. Fyrir utan að fara yfir mínusstigin sem við tókum á okkur fyrir umferðina fórum við yfir 3 hluti sem skemmdu þessa umferð fyrir okkur og kíktum á næstu umferð sem byrjar á þriðjudag. Fantabrögð elska umferð í miðri viku - munið að stilla upp liðunum ykkar og auðvitað að velja réttan fyrirliða!

Fótboltapólitíkin - Þreföld umferð á Íslandsmótinu 2021?
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net. Hann ræddi um fótboltapólitíkina og það sem félögin eru að ræða sín á milli þessa dagana, þar á meðal fjármálin. Þá ræddi hann um hugmyndir um að lengja Íslandsmótið en hann er stuðningsmaður þess að 2021 verði gerð tilraun með að spila þrefalda umferð í Pepsi Max-deildinni, áfram í tólf liða deild, og mótið hefjist þá í febrúar. Umræða er í gangi milli íslenskra félaga um þessa útfærslu og segir Þórir að mörgum lítist vel á þó engin fullkomin lausn sé í þessu. Hans vilji er að þetta verði prófað 2021 og svo verði fundað um framhaldið.

Enska hringborðið - Léttir að hafa losnað við Emery
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Kaldal, stuðningsmaður Arsenal, var á línunni og ræddi um stóru fréttirnar úr enska boltanum. Unai Emery var rekinn úr stjórastól Arsenal og félagið er nú í leit að næsta stjóra.

Jón Þór um Algarve höfnunina og magnaða MLV9
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari var á línunni og ræddi um ástæður þess að íslenska kvennalandsliðið fær ekki að vera með á Algarve æfingamótinu á komandi ári. Þá var einnig rætt um Margréti Láru Viðarsdóttur en þessi magnaða fótboltakona lagði skóna á hilluna í vikunni.

Fantabrögð - 13. umferð - Viva la Burnley
Þessi "tricky" umferð stóð kannski undir nafni. Man City og Liverpool unnu bæði 2-1, sem þýðir að enn er Liverpool að fá á sig mörk. Rashford og Lacazette skoruðu slatta af stigum sem skiluðu liðum þeirra þó einungis svekkjandi jafnteflum. Mál málanna er þó Burnley sem vann annan 3-0 sigur sinn í röð og aftur skoruðu báðir iðnaðarmennirnir, Wood og Barnes. Stigahæsti leikmaður umferðarinnar, aðra umferðina í röð, var svo einmitt liðsfélagi þeirra, James Tarkowski. En hvern á að kaupa? Á að selja Mason Mount? Hrúga inn Tottenham mönnum? Mun Liverpool einhvern tímann halda hreinu? Mun GT halda áfram sem lestarstjóri Willems lestarinnar? Allt þetta og meira til í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.

Enska hringborðið - Hitabylgja í enskum stjórasætum
Elvar og Daníel eru með Evrópu-Innkastið og fara yfir leiki liðinnar umferðar í ensku úrvalsdeildinni. Þrettán umferðum er lokið í deildinni. Það eru mörg stjórasæti sjóðheit í deildinni. Hver verður næsti stjóri sem fær sparkið? Grínkallinn Emery, VAR, stórfurðulegur leikur í Sheffield, Balotelli horn og ýmislegt fleira.

Landsliðsumræða - Verður Ísland á EM alls staðar?
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Ljóst er að Ísland þarf vinna Rúmeníu (vonandi á Laugardalsvelli) þann 26. mars og svo Ungverjaland eða Búlgaríu á útivelli nokkrum dögum síðar til að komast á EM alls staðar. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um möguleika Íslands og gerðu einnig upp frammistöðuna í undankeppninni. Farið var yfir einkunnir leikmanna íslenska liðsins í keppninni.

Enska hringborðið - Endurkoma Mourinho og rómantíkin hjá Chelsea
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru við enska hringborðið. Gestur var Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea. Rætt var um endurkomu Jose Mourinho í enska boltann en hann er tekinn við Tottenham. Þá fékk Chelsea að sjálfsögðu stórt pláss og sú rómantík sem er í gangi á Brúnni.

Fantabrögð - Aukaþáttur - Hlakkað til jóla
Nú er rétt rúmur mánuður í jólin sem margir telja besta tíma ársins og þá helst af Fantasy tengdum ástæðum. Við erum að fara að sigla inn í 9 umferðir á 40 dögum og þá er eins gott að vera með liðið sitt klárt og muna að breyta á milli leikja! Aron og Gylfi ræddu breytingar fyrir komandi umferð/ir, fyrirliðaval og margt fleira. Er of mikið að vera með þrjá Chelsea menn? Á að kaupa Tielemans eða Maddison? Hvað á að gera í 18. umferð þegar Liverpool á engan leik? Þetta, hitt og allt annað í nýjasta þætti Fantabragða.

Hvað er hægt að gera með Laugardalsvöll?
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er aðeins fyrr á ferðinni þessa vikuna en upptaka af honum verður einnig á sínum stað milli 12 og 14:00 á X-inu á morgun.

Landsliðsumræða í útvarpinu - Tyrkjaleikurinn og framtíðin
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er aðeins fyrr á ferðinni þessa vikuna en upptaka af honum verður einnig á sínum stað milli 12 og 14:00 á X-inu á morgun.

Fantabrögð - 12. umferð - FIFA-aðstoðardómarinn tæklaði loksins VAR umræðuna
Í fjarveru Arons var Gylfi settur í þá krefjandi stöðu að stýra þættinum og sjá um alla erfiðisvinnuna. Það gekk eins og það gekk. Gestur hans var enginn annar Davíð Regins, fyrrum Reykjavíkurmeistari frjálsra ungmenna í borðtennis og útvarpsmaður á Áttunni. Gylfi, sem er að öllum líkindum FIFA-aðstoðardómari ásamt því að vera leikmaður Elliða (sem leikur í 3. deild), ákvað að útskýra VAR fyrir þjóðinni í eitt skipti fyrir öll. Umferðin var nokkuð eftir bókinni, Tammy og Vardy minntu enn einu sinni á hversu lífsnauðsynlegir þeir eru í liði hvers landmanns. Eru City cancelled? Maddison, Martial eða Pulisic? Þurfum við að endurskoða tilvist Kevin De Bruyne í liðunum okkar?

Innkastið - Liverpool menn í skýjunum á toppnum
Liverpool er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Manchester City í toppbaráttuslag í gær.

Bjössi Hreiðars ræðir um Val og Grindavík
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Sigurbjörn Hreiðarsson kom í langt spjall við Tómas Þór Þórðarson um boltann. Bjössi var aðstoðarmaður Ólafs Jóhannessonar hjá Val en er nú tekinn við sem aðalþjálfari Grindavíkur.

Enska hringborðið - Krísufundur Norður-Lundúna
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson var einn í fiskabúrinu og tók á móti íþróttafréttamanninum Einari Erni Jónssyni, stuðningsmanni Arsenal, og Ingimar Helga Finnssyni, stuðningsmanni Tottenham. Haldinn var krísufundur um gang mála hjá þessum tveimur liðum. Hallgrímur Indriðason, formaður Liverpool-klúbbsins, ræddi svo um húllumhæ klúbbsins fyrir stórleikinn á Spot.

Fantabrögð - 11. umferð - Lengi lifi Lundstram!
Nú fer hver að verða síðastur að verða sér út um pláss á Lundstram vagninum. Þessi 4 milljóna demantur var maður umferðarinnar og er klárlega Fantasy leikmaður ársins hingað til. Manchester United náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Norwich, Mané heldur áfram að draga vagninn fyrir Liverpool og Tammy og Vardy sóknarlínan er málið. Við förum yfir Aguero málið, breytingar fyrir næstu umferð og fyrirliðaval í þessari erfiðu umferð þar sem toppliðin Liverpool og Manchester City eiga innbyrðis leik.

Innkastið - Brasilíubakverðir Liverpool og Emery grettur
Brjáluð boltahelgi að baki og Elvar og Daníel fara yfir gang mála í Evrópu-Innkastinu. Bayern er búið að sparka stjóranum og ýmis sæti í ensku deildinni eru farin að hitna enn frekar. Endalausar endurkomur Liverpool, City í kröppum dansi, magnaður Ben Foster, sagan endalausa hjá United, Xhaka vandamálið, Leiftrandi lið Leicester, Balotelli horn og ýmislegt fleira góðgæti.

Rúnar Páll á leið inn í sjöunda tímabilið sem aðalþjálfari Stjörnunnar
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var gestur og ræddi ítarlega við Elvar Geir og Tómas Þór. Rúnar er á leið í sitt áttunda tímabil í þjálfun meistaraflokks Stjörnunnar og í sjöunda árið sem aðalþjálfari. Í skemmtilegu og áhugaverðu viðtali ræðir Rúnar um starf sitt í Garðabænum. vonbrigðin að hafa ekki náð Evrópusæti, leikmannamál, ævintýrin í Evrópu og ýmislegt fleira. Rúnar talaði hreint út og var óhræddur við að koma með skot á hina og þessa.

Jón Páll fer kokhraustur til Ólafsvíkur
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jón Páll Pálmason, nýr þjálfari Víkings í Ólafsvík, var í viðtali frá Noregi. Jón Páll tekur við af Ejub Purisevic sem unnið hefur frábært starf hjá félaginu en hann fer fullur sjálfstrausts í nýtt starf. Jón Páll hefur undanfarin ár unnið í Noregi en í viðtalinu segir hann frá því að ætlunin hafi verið að flytja til Bandaríkjanna áður en tækifærið bauðst í Ólafsvík.

Fótboltafréttirnar - Kolbeinsmálið og Xhaka í veseni
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um helstu fótboltafréttirnar sem eru til umræðu á kaffistofum landsins. Elvar sagði frá því sem hann hafði heyrt varðandi mál Kolbeins Sigþórssonar en hann komst í fréttirnar eftir vandræði á skemmtistað í Svíþjóð. Rætt var um vandamál Granit Xhaka hjá Arsenal, fjörið í Færeyjum og fleira.

Innkastið - Furðuleg hegðun fyrirliða og vítavesen
Fjörug helgi er að baki í ensku úrvalsdeildinni og í Evrópu innkasti vikunnar ræddi Magnús Már Einarsson við Jóhann Skúla Jónsson stuðningsmann Manchester United og Jóhann Má Helgason stuðningsmann Chelsea.

Fantabrögð - 10. umferð - Leicester lestin farin af stað
LOKSINS, LOKSINS! Loksins, eftir 3 slæmar Fantasy umferðir í röð fengum við skemmtilega umferð! Leicester vann sögulegan 0-9 útisigur þar sem Vardy og Perez skoruðu þrennur. Góðkunningjar Fantasy, þeir Salah og Sterling, skoruðu báðir og sóknarleikur Man Utd lifnaði við. Á meðan er Aguero orðinn bekkjarmatur og Aubameyang klikkaði í þriðja leiknum í röð. Við fórum yfir allt það helsta og skoðuðum breytingar fyrir næstu umferð, sem lítur vel út.

Óli Kristjáns fer yfir stöðu FH og framtíð íslenska boltans
Ólafur Kristjánsson var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag. Þar var Ólafur í löngu spjalli við þá Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson. Ólafur fór yfir nýliðið tímabilið hjá FH og framhaldið hjá liðinu. Hann ræddi einnig hugmyndir um að lengja tímabilið á Íslandi og ræddi um að finna verkefni fyrir leikmenn sem eru ekki að fá nægilega mikinn spiltíma.

Arnór Ingvi ræðir sturlaða toppbaráttu og Counter-strike
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason var í spjalli hjá Tómasi Þór Þórðarsyni og Benedikt Bóas Hinrikssyni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í dag.

Sævar Péturs útskýrir lægðina á leikmannamarkaðinum
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.

Heimavöllurinn: Getum við gert fleiri stelpur óstöðvandi?
Það er rífandi stemmning á Heimavellinum í dag. Þær fréttist bárust í dag að jólabókin í ár er klár. Það er bókin Óstöðvandi sem þar landsliðsfyrirliðinn Sara Björk segir frá ferlinum innan sem utan vallar. Við fáum til okkar Magnús Örn Helgason sem skrifaði bókina og ræðum allt sem að henni kemur.

Fantabrögð - 9. umferð - Einu sinni VAR
Einu sinni var gaman í Fantasy. Einu sinni spiluðu leikmenn eins og Aguero og Salah og skoruðu jafnvel ef vel lá á þeim. En nú erum við að treysta á 4M varnarmenn til að bjarga umferðunum hjá okkur, viku eftir viku. Nú sitjum við heima hjá okkur undir sæng og biðjum þess að verða ekki fórnarlömb Pep roulette í enn eitt skiptið. Að Liverpool haldi hreinu. Að Pukki nái einu marki í viðbót áður en við seljum hann. En ekkert gerist. Fram að næstu umferð sitjum við og öskrum út í tómið. Biðjum um að leikmaður sem fleiri en 5% eiga skori... og að VAR dæmi það ekki af.

Innkastið - Stig á Old Trafford gull eða glapræði?
Nýtt Evrópu-Innkast þar sem farið er yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni og önnur tíðindi Evrópuboltans. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz tóku þáttinn upp eftir að Arsenal, lið Daníels, hafði tapað gegn nýliðum Sheffield United. Rætt var um stöðu Unai Emery og frammistaða Sheffield lofuð. Stórleikur helgarinnar á Old Trafford var að sjálfsögðu krufinn sem og VAR vesenið um helgina.

Enska hringborðið - Sóli Hólm formaður Liverpool samfélagsins
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er svo sannarlega tilefni til að rífa enska hringborðið fram á gólfið enda risaslagur í enska boltanum á sunnudag. Manchester United tekur á móti toppliði Liverpool en Sóli Hólm, skemmtikraftur og formaður Liverpool samfélagsins á Íslandi, mætti í útvarpsþáttinn. Elvar Geir og Magnús Már ræddu við Sóla um komandi leik og það helsta sem er í gangi í ensku úrvalsdeildinni.