
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 41 of 57

Enska upphitunin - Gluggafjör og uppeldi hjá Tottenham
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Tottenham. Tottenham hefur verið mikið í umræðunni við gluggalok og þeir Hjálmar Örn Jóhannsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Ingimar Helgi Finnsson fóru yfir stöðuna hjá Spurs.

Enska upphitunin - Ungviði og engin kaup hjá Chelsea
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Chelsea. Í þættinum komu þeir Jóhann Már Helgason og Snorri Clinton frá cfc.is í spjall.

Enska upphitunin - Breyttur leikstíll Manchester United
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester United. Í þættinum komu þeir Halldór Marteinsson og Björn Friðgeir Björnsson frá raududjoflarnir.is í spjall.

Þórir Hákonar um könnunina hjá Leikmannasamtökunum
Fótboltapólitík úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þórir Hákonarson mætti í þáttinn og ræddi við Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas um könnun sem gerð var meðal leikmanna Pepsi Max-deildarinnar. Launamál, hagræðing úrslita, áhorfendamæting, sannleiksgildi könnunarinnar, nýr framkvæmdastjóri ÍTF og fleira kom til tals.

Gluggadómar og Eyjafjör í Maxaranum
Sumarglugganum var lokað núna um mánaðamótin en Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas skoðuðuð þær hræringar sem urðu á leikmannamálum í Pepsi Max-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Skemmtanastjórinn Arnar Daði var einnig í beinni frá Vestmannaeyjum og kom með nýjustu tíðindi úr brekkunni.

Heimir Guðjóns í beinni frá Færeyjum
Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum, var á línunni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. HB er eitt af fimm liðum sem eru í harðri toppbaráttu í færeysku Betri-deildinni og er auk þess komið í úrslitaleik bikarsins. Samningur Heimis við HB rennur út eftir tímabilið og segir hann óvíst hvort hann verði áfram að tímabilinu loknu.

Inkasso-hornið - Farið yfir bæði topp- og botnbaráttuna
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna í deildinni og bæði topp og botnbaráttan skoðuð og spáð í framhaldið. Línur eru farnar að skýrast í deildinni. Fimm lið eru í baráttu um sæti í Pepsi Max-deildinni og fjögur lið í harðri fallbaráttu. Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fréttaritari Fótbolta.net og Úlfur Blandon þjálfari Þróttar Vogum í 2. deildinni.

Heimavöllurinn - Úrvalslið Inkasso og súpersystur
Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir opinbera úrvalslið fyrri hluta Inkasso-deildarinnar, velja besta leikmanninn og heyra í henni hljóðið. Þá fara þær yfir helstu fréttir vikunnar og taka púlsinn á félagaskiptum rétt fyrir gluggalok. Heimavöllurinn fékk svo hjálp á samfélagsmiðlum við að velja eftirlætissystur efstu deildar undanfarinn áratug.

Innkastið - Samstillt átak um að KR verði meistari
Elvar Geir, Tómas Þór, Gunni Birgis og Magnús Már gera upp 14. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Ljóst er að KR verður meistari en í þætti dagsins er farið yfir alla leikina, rætt um slúðursögur, vandræðagang FH, slæmt gengi Breiðabliks, markasúpuna í Grindavík, Evrópukeppnina, Inkasso-hornið, Gunni giskar og fleira og fleira.

Magnús Agnar: Hroki í garð íslensku deildarinnar
Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net þar sem hann ræddi aðeins um bransann og leikmannamarkaðinn á Íslandi. Hann segir að árangur íslenska landsliðsins hafi ekki haft þau áhrif á áhuga erlendra félaga á íslenskum leikmönnum sem spáð var.

Lið fólksins á flugi - Leifur og Arnar í viðtali
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Leifur Andri Leifsson fyrirliði HK og markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson voru gestir þáttarins. Nýliðar HK hafa verið á flugi í Pepsi Max-deildinni og eru búnir að vinna þrjá sigra í röð.

Inkasso, ÞÞÞ og komandi umferð í Pepsi Max
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um Inkasso-deildina og fóru yfir komandi umferð í Pepsi Max-deildinni. Þórður Þorsteinn Þórðarson, leikmaður FH, var á línunni en hann gekk í raðir Fimleikafélagsins frá ÍA í vikunni.

Heimavöllurinn - Bikardrama og markaregn eftir markaþurrð
Knattspyrnuþjálfararnir Baldvin Már Borgarsson og Steinunn Sigurjónsdóttir eru gestir Heimavallarins að þessu sinni og ræða við Mist Rúnarsdóttur um gang mála í Pepsi Max-deildinni og helstu boltafréttir nýliðinnar viku.

Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi barátta í 2. deild
Keppni í 2. deild karla er æsispennandi en þegar tólf umferðir eru búnar eru einungis sex stig sem skilja að topplið Selfyssinga og Völsung í 9. sætinu. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni en þeir eiga báðir mörg tímabil að baki í deildinni. Þeir kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru vel yfir hvert einasta lið í deildinni og völdu einnig lið fyrri umferðar. Spennand heldur áfram annað kvöld en þá hefst 13. umferðin. Í þeirri umferð heimsækir topplið Selfyssinga lið Vestra sem er í 3. sæti.

Innkastið - Topp táningar og volæði í FH
Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunni Birgis fara yfir 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Hverjir eru bestu táningarnir í deildinni? Tom valdi topp fimm! Meðal efnis í þættinum: Brynjar Björn með frábæra uppskeru, volæði hjá FH, Björn Daníel mestu vonbrigðin, formaðurinn á lyklaborðinu, allt í núlli hjá Grindavík, Big Bó skorar, Kristján Flóki á leiðinni, Glenn ömurlegur á vinstri kantinum, Inkasso-hornið, Kenwyne Jones í Kórdrengi, Gunni giskar.

Útvarpsþátturinn - Aron Jó og boltaspjall
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu skútunni og tóku meðal annars mjög áhugavert viðtal við Aron Jóhannsson. Aron gekk í raðir Hammarby frá Werder Bremen fyrr í þessum mánuði en hann hefur gengið í gegnum erfiða tíma á ferlinum vegna meiðsla. Annars ræddu þeir Tómas og Benni um boltann og heyrðu meðal annars í Elvari sem var á leið til Grenivíkur.

Innkastið - Basl hjá KA og breytt staða FH
9. umferðinni í Pepsi Max-deild karla lauk loksins í gærkvöldi, tæpum mánuði eftir að hún byrjaði. Liðin í Evrópukeppni spiluðu í þessari umferð fyrir tæpum mánuði en nú eru öll lið með jafnmarga leiki í deildinni. KR er áfram með þægilegt forskot á toppnum en fallbaráttan harðnar og KA er komið í fallsæti. Arnar Daði Arnarsson, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson skoðuðu stöðuna í Innkastinu. Meðal efnis: Slagsmál í Kórnum, KA í fallsæti, HK á flugi, vantar mörk hjá Víkingi, breytt staða FH, Grindavík stefnir á jafnteflismet, brött brekka Eyjamanna, erfið staða ungra markvarða, Evrópuleikir vikunnar og Gunni giskar.

Heimavöllurinn - Inkasso og 2. deildar veisla
Það er komið að því að skoða hvað hefur verið í gangi í neðri deildunum það sem af er sumri. Inkasso-deildin er í aðalhlutverki í nýjasta þætti Heimavallarins en einnig er farið yfir gang mála í 2. deild. Gestur þáttarins að þessu sinni er knattspyrnuþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson.

Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 13. júlí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Gestur: Óskar Hrafn Þorvaldsson. Aðrir viðmælendur: Arnar Þór Viðarsson og Daníel Geir Moritz.

Inkasso-hornið - Farið yfir fyrri umferðina og úrvalslið valið
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir fyrri hluta Inkasso-deildarinnar en 11. umferðin lauk í gær. Sérfræðingarnir fara yfir stöðuna á hverju liði, ræða spútnik lið umferðarinnar, fallbaráttuna og toppbaráttuna. Í seinni hluta þáttar velja sérfræðingarnir síðan úrvalslið fyrri umferðarinnar, besta leikmann og besta þjálfarann. Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fréttaritari Fótbolta.net og Úlfur Blandon þjálfari Þróttar Vogum í 2. deildinni.

Heimavöllurinn: Lokahóf fyrri hluta Pepsi Max
Nú er keppni í Pepsi Max deildinni hálfnuð og í þætti dagsins á Heimavellinum gera þáttastýrurnar, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, upp fyrri hluta mótsins með gestasérfræðingnum Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur.

Innkastið - Stigamet við botninn og vonbrigðaval
Nýtt Innkast eftir 12. umferð Pepsi Max-deildarinnar sem var heldur betur dreifð! Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis eru allir á sínum stað. Þeir völdu meðal annars einn leikmann úr hverju liði sem kallað er eftir að skili meiru en þeir hafa gert í sumar. Vonbrigðaval. Meðal efnis: Nauðsynlegur sigur fyrir Óla Kristjáns, Víkingar fá hrós en eru í fallsæti, Blikar í brekku, HK-ingar með tröllasigur, dómgæsludrull, kraftmiklir KR-ingar í Eyjum, klásúla í KSÍ-samningi Jeffs, Stefán Logi þarf að svara efasemdarröddum.

Pepsi Max hringborð - Eyjafréttir, Valur á flugi og umdeildir dómar
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fjölluðu ítarlega um Pepsi Max-deildina. - Daníel Geir Moritz var í beinni frá Vestmannaeyjum en það er nóg í gangi í fótboltamálunum þar. Þjálfaraskipti og leikmannabreytingar. - Rætt var um endurkomu Patrick Pedersen og Andri Adolphsson, leikmaður Vals, var á línunni. - Umdeildur dómur í Garðabæ, markaleysi Grindvíkinga, staðan á KA, stuðningsmannalög og fleira til umræðu.

Gísli Eyjólfs klár í leikinn gegn HK - Grasið ekki grænna hinum megin
Það verður stórleikur í Pepsi Max-deildinni á sunnudagskvöld þegar Breiðablik tekur á móti HK í Kópavogsslag. Gísli Eyjólfsson er kominn aftur heim í deildina eftir stutt stopp hjá Mjallby í Svíþjóð og er klár í slaginn fyrir leikinn. Gísli var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Inkasso-hornið og Tom á Pollamótinu
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir ræddi við Úlf Blandon, sérfræðing um Inkasso-deildina, og var farið yfir 10. umferðina sem nú er í gangi. Mörg áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós og ungir leikmenn látið að sér kveða. Í klippunni má líka heyra spjall Elvars við Tómas Þór Þórðarson sem er staddur á Pollamótinu á Akureyri.

Ástríðan í neðri deildunum - Staðan skoðuð í 3 og 4. deildinni
Níu umferðum er lokið í 3. deild karla í sumar og riðlakeppni er hálfnuð í 4. deildinni. Magnús Már Einarsson fékk þá Magnús Val Böðvarsson og Ingimar Helga Finnsson til að fara yfir gang mála í þessum deildum. Magnús Valur er harðasti aðdáandi 4. deildarinnar og heldur úti aðganginum "passionleague" á Snapchat. Ingimar Helgi er leikmaður Árborgar í 4. deildinni.

Heimavöllurinn: Frá framherja í 1. deild að besta varnarmanni Íslands
Sif Atladóttir hefur verið ein fremsta knattspyrnukona Íslands síðustu ár. Hún byrjaði ekki að æfa af krafti fyrr en hún var orðin 15 ára og þá voru allir landsliðsdraumar víðsfjarri.

Innkastið - KR stuð og verðlaun umferða 1-11
Brottrekstur, risakaup og toppslagur. Í Innkastinu í kvöld var meðal annars opinberað úrvalslið og bestu menn umferða 1-11 í Pepsi Max-deildinni. Fullmannað Innkast að þessu sinni. Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór. Farið var yfir 11. umferðina, sigur KR gegn Breiðabliki í stórleiknum, bikardráttinn, Inkaso-hornið, Gunni giskar og allt eins og það á að vera.

Pepsi Max hringborð - Hitað upp með Henry Birgi
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hitað var upp fyrir áhugaverða 11. umferð Pepsi Max-deildarinnar þar sem meðal annars má finna stórleik milli toppliðanna, KR og Breiðabliks. Henry Birgir Gunnarsson ræddi við Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson. Farið var yfir helstu fréttamola deildarinnar, spáð í spilin og rýnt í mögulegar gluggahræringar.

Vill að VAR verði tekið upp í Pepsi Max-deildinni
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, vill að Ísland taki upp VAR myndbandsdómgæsluna eins fljótt og mögulegt er. UEFA hefur þróað VAR-tækni þar sem lágmark þarf fjórar myndavélar en í stórum útsendingum á Stöð 2 Sport eru vanalega fimm myndavélar. Þóroddur ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas.

Heimavöllurinn: Cloé í bláa liðið og útlendingarúta úr landi
Gestir dagsins á Heimavellinum eru Bára Kristbjörg og Aníta Lísa. Það eru 7 umferðir búnar í Pepsi Max deildinni. Við förum yfir leiki umferðarinnar og stórleikinn sem nálgast.

Inkasso-hornið - Ási Arnars um Fjölni, brottreksturinn frá Fram og Gústa Gylfa
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við Ásmund Arnarsson þjálfara Fjölnis sem situr í 2. sæti deildarinnar með jafn mörg stig og topplið Þórs. Liðið mætast í toppbaráttuslag á laugardaginn. Í þættinum ræddi hann til að mynda brottrekstur sinn frá Fram, tímabundið starf sitt hjá ÍBV og þá var einnig rætt um Ágúst Gylfason þjálfara Breiðabliks í Pepsi Max-deild karla en þeir félagar þjálfuðu Fjölnisliðið saman

Innkastið - Einvígi um titilinn, bras FH og krakkamiðja Víkings
Innkastið eftir 10. umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gera upp umferðina. Deildin er að þróast í tveggja hesta einvígi KR og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn. Í þætti kvöldsins: Einvígi FH og Breiðabliks um titilinn, er Gísli Eyjólfs að koma heim?, Andri bjargaði Val, ekkert getur bjargað ÍBV, HK-ingar fá hrós, gleðin farin hjá Skagamönnum, gleðin komin hjá Stjörnumönnum, magalending Fylkis, krakkamiðja Víkings, bikarinn og Gunni giskar.

Beitir Ólafs og ótrúleg leið hans til KR
Beitir Ólafsson, markvörður KR, mætti sem gestur í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Beitur hefur verið virkilega öflugur það sem af er tímabili en áður en hann gekk í raðir KR 2017 voru hanskarnir komnir á hilluna og hugurinn farinn frá fótboltanum. Hlustaðu á viðtalið við þennan skemmtilega karakter í spilaranum hér að ofan.

Copa America og Inkasso-hornið
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu aðeins um Copa America áður en þeir tóku snúning og fjölluðu um Inkasso-deildina. Úlfur Blandon, sérfræðingur um Inkasso-deildina, var á línunni.

Pepsi Max umræða - Hvað eiga félögin að gera í glugganum?
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um Pepsi Max-deildina. Tíunda umferðin var skoðuð en Leifur Garðarsson, lýsandi á Stöð 2 Sport, skoðaði liðin og leikina. Þá var fjallað um komandi félagaskiptaglugga en glugginn opnar 1. júlí. Hvað eiga félögin í Pepsi Max-deildinni að gera?

Heimavöllurinn - Óvænt ráðning og ætlar til Englands
Gestur dagsins á Heimavellinum er landsliðsþjálfarinn Jón Þór Hauksson. Nú eru rúmir tveir mánuðir þar til landsliðið okkar hefur leik í undankeppni Evrópumótsins og því við hæfi að ræða við Jón Þór um hans fyrstu mánuði í starfi og verkefnið stóra sem framundan er.

Innkastið - Viðtal ársins og vandræði Vals og Stjörnunnar
Í ljósi þess hve mikið er í gangi í Pepsi Max-deildinni var ekki annað hægt en að hlaða í nýtt Innkast. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis ræddu helstu umræðuefnin á kaffistofum fótboltaáhugamanna. Meðal efnis: Magnþrungið viðtal við Hannes og meintar verkfallsaðgerðir FH-inga. Sigur Breiðabliks gegn Stjörnunni, endurkoma KR-inga og áframhaldandi vandræðagangur Valsmanna. Evrópumöguleikar íslensku liðanna.

Innkastið - Sturluð mörk og nýjar sögulínur
Pepsi-Max deildin hófst aftur með látum eftir landsleikjahlé. 27 mörk voru skoruð í leikjunum sex, KR hirti toppsætið og Íslandmeistarar Vals lyftu sér af botninum.

Útvarpsþátturinn - Brúðkaup ársins, Pepsi Max og landsliðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu helstu fótboltamálin. Í byrjun: Brúðkaup Gylfa 13:30 Pepsi Max-deildin 50:00 Ólafur Ingi Skúlason í viðtali 1:02:55 Landsliðið og Laugardalsvöllur 1:21:00 Inkasso-deildin

Inkasso-hornið - Farið yfir stöðuna í deildinni og spáð í spilin
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti ræðir hann við tvo sérfræðinga um stöðuna í deildinni, fer yfir hvaða lið eru líklegust til að fara upp og falla niður um deild. Í lokþáttar velja sérfræðingarnir síðan það lið sem hefur valdið hvað mestu vonbrigðum og hvaða lið hefur komið mest á óvart í deildinni það sem af er. Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fréttaritari Fótbolta.net og Úlfur Blandon þjálfari Þróttar Vogum í 2. deildinni.

Ástríðan í neðri deildunum - Farið yfir gang mála í 2. deildinni
Það eru sex umferðir búnar í 2. deildinni og línur farnar að skýrast. Selfoss og Víðir eru á toppi deildarinnar með 13 stig á meðan Tindastóll er á botni deildarinnar ennþá án stig. Atli Jónasson og Óskar Smári Haraldsson eru sérfræðingar í 2. deildinni og settust niður með Arnari Daða Arnarssyni og fóru yfir öll liðin og stöðuna í 2. deildinni. Auk þess var farið yfir næstu umferð í deildinni sem fram fer um helgina.

Miðjan - Böddi löpp um erfiða tíma hjá fjölskyldunni, sigrana og vonbrigðin
Böðvar Böðvarsson ólst upp í Hafnarfirði, nánar tiltekið í Kinnunum og lék upp yngri flokkana með FH. Hann er fæddur árið 1995 og lék sinn fyrsta leik í efstu deild sumarið 2013 með uppeldisfélagi sínu FH. Í dag leikur hann með pólska úrvalsdeildarfélaginu, Jagiellonia Bialystok. Böddi löpp, eins og hann er kallaður er gestur Miðjunnar að þessu sinni. Þar fer hann yfir unglingsárin í FH, fyrstu leikina með meistaraflokki, Íslandsmeistaratitlana tvö sem hann hefur unnið, vonbrigðin á ferlinum, tímann í Danmörku þar sem hann fór á lán til Midtjylland og að sjálfsögðu fyrsta árið í Póllandi.

Innkastið - Þvottaburst gegn bálreiðum Tyrkjum
Það er komið nýtt landsliðs-Innkast! Beint frá Laugardalsvelli. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már horfðu á Ísland vinna gríðarlega mikilvægan sigur gegn Tyrklandi. Rætt er um stórfurðulegan aðdraganda að leiknum, pirringinn í gestum okkar, frammistöðu liðsins, hvaða þýðingu þetta hefur fyrir Erik Hamren og íslensku þjóðina!

Ítalski boltinn - Uppgjör tímabilsins
Björn Már Ólafsson, helsti sérfræðingur Íslendinga um ítalska boltann, gerir upp tímabilið í ítölsku A-deildinni. Í þessum þætti ræðir Elvar Geir við Björn Má um tímabilið og þjálfarakapalinn sem er í gangi. Hvar er mesta gleðin og hvar eru vonbrigðin? Liðin eru skoðuð og úrvalslið tímabilsins valið.

Innkastið - Íslenski neistinn lifir enn
Sérstakur landsliðsþáttur af Innkastinu var tekinn upp á Laugardalsvelli beint eftir 1-0 sigurinn gegn Albaníu. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir leikinn og fengu til sín góðan gest, Frey Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfara.

Útvarpsþátturinn - Að duga eða drepast fyrir landsliðið
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er með öðruvísi sniði þessa vikuna og er frumfluttur í hlaðvarpsformi. Ástæðan er sú að leikur Íslands og Albaníu í undankeppni EM verður flautaður á meðan þátturinn er í gangi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir landsleikina og skoða það sem framundan er í íslenska boltanum.

Heimavöllurinn - Heimsmeistaramótið er að hefjast
Það er komið að því. Flautað verður til leiks á Heimsmeistaramótinu á föstudagskvöld. Það er því við hæfi að þáttur vikunnar á Heimavellinum sé tileinkaður stórmótinu.

Miðjan - Emil ræðir erfitt tímabil á Ítalíu, landsliðið og framtíðina
Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn leik gegn Albaníu í undankeppni EM 2020. Hafnfirðingurinn, Emil Hallfreðsson leikmaður Udinese í Serie A á Ítalíu er í hópnum en hann er kominn til baka eftir erfið meiðsli. Emil settist niður með Arnari Daða Arnarssyni og fór yfir landsleikinn á laugardaginn og síðustu mánuði með landsliðinu. Auk þess fóru þeir yfir nýafstaðið tímabil Emils á Ítalíu þar sem hann gekk undir aðgerð í desember og skipti um félag í miðri endurhæfingu. Einnig var rætt um uppeldisfélag Emils, næstu skref á ferlinum og hvað Emil ætlar að gera að ferlinum loknum.

Innkastið - Íslandsmeistarar í botnsæti
Sögulínurnar verða bara stærri og merkilegri í Pepsi Max-deildinni! Valsmenn eru í neðsta sæti þegar sjö umferðir eru búnar. ÍBV kom öllum á óvart með því að vinna ÍA og Breiðablik var í miklum ham gegn FH. Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fóru yfir 7. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Innkastinu.