
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 44 of 57

Innkastið - Ótrúleg umferð að baki!
Dramatíkin var allsráðandi í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og fóru þeir Daníel Geir og Elvar Geir yfir úrslitin og umdeild atvik. Þá spáðu þeir félagar því hvaða lið kæmust í Meistaradeildina.

Miðjan - Guðni vs Geir
Tíu dagar eru í ársþing KSÍ þar sem kosið verður um formann til næstu tveggja ára. Geir Þorsteinsson, heiðursformaður, ákvað á dögunum að bjóða sig fram gegn Guðna Bergssyni sem er núverandi formaður. Guðni og Geir eru í formannsslag þessa dagana en þeir mættu í dag í spjall hjá Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni ritstjórum Fótbolta.net. Rætt var um helstu málefni fyrir ársþingið og á köflum var heitt í kolunum!

Innkastið - Lúxus útgáfa með góðum gestum
Daníel Geir Moritz fór í bæjarferð en hann og Elvar Geir fengu til sín góða gesti í höfuðstöðvar Fótbolta.net að þessu sinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Martin Sindri, stuðningsmaður Liverpool, voru með þeim í Innkastinu. Rætt var um toppliðin og farið í tvo skemmtilega samkvæmisleiki. Meðal annars voru valdir bestu leikmenn Arsenal, Manchester United, Chelsea og Liverpool frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar. Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ.

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Pepsi-deildina
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma!

Ole Gunnar er meira en skemmtanastjóri
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór spjölluðu við Manchester United sérfræðinginn og fréttamanninn Tryggva Pál Tryggvason. Rætt var um gengi United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.

Miðjan - Bransasögur úr litríkum ferli Gary Martin
Enski framherjinn Gary Martin skrifaði á dögunum undir samning hjá Íslandsmeisturum Vals. Gary er mættur aftur í Pepsi-deildina eftir dvöl hjá Lokeren og Lilleström. Gary vakti mikla athygli í íslenska boltanum á árunum 2010 til 2016 þegar hann skoraði mikið með ÍA, KR og Víkingi. Í Miðju vikunnar tók Magnús Már Einarsson langt viðtal við Gary þar sem farið var yfir feril hans, allt frá barnæsku í Darlington þar til dagsins í dag.

Innkastið - Dýfur og besta vörnin í sögunni
23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni kláraðist rétt áðan og hlóðu Elvar Geir og Daníel Geir Moritz í nýtt Innkast að því tilefni. Rétt áður en hætt var að taka upp sá Elvar frétt um að Hannes Þór Halldórsson væri á leið í Val og kom það sem þruma úr heiðskýru lofti í þáttinn. Þá var einnig farið í samkvæmisleik og völdu þeir bestu vörnina í sögu deildarinnar, fjagra manna varnarlínu, og er góð vörn ekki neitt án góðs markvarðar. Meðal efni þáttarins: Dýfa Salah, sterkur sigur Liverpool, Speroni grínkarl, glæsilegt sjálfsmark Digne, Arsenal mikið betra en Chelsea, slakasti leikur United undir stjórn Solskjær en öllum sama, Gylfi jafnar met Eiðs Smára, liðin í fallsætunum falla og gríðarleg barátta um Meistaradeildarsæti.

Útvarpsþátturinn 19. janúar - Orri gestur
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 19. janúar. Elvar Geir Magnússon var einn í hljóðverinu að þessu sinni en hann hringdi í Tómas Þór Þórðarson sem er í Þýskalandi að fylgjast með strákunum okkar í handboltalandsliðinu. Enski boltinn var til umfjöllunar og valdir voru fimm bestu markverðir heims í dag. Gestur þáttarins var Orri Sigurður Ómarsson sem er kominn aftur í herbúðir Vals.

Heimavöllurinn: Óvænt U-beygja eftir sjö stóra titla í Garðabæ
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur verið áberandi í íslenskum fótbolta í rúman áratug. Hún ólst upp hjá Breiðablik en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2005. Þar tók hún þátt í ótrúlegum uppgangi félagsins. Spilaði 271 meistaraflokksleiki, flesta með fyrirliðabandið, og vann fjóra Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Á þeim tíma spilaði Adda einnig 10 A-landsleiki og fór á láni til Kristianstad í Svíþjóð. Í haust bárust svo óvænt tíðindi úr Garðabænum þegar tilkynnt var um að fyrirliðinn myndi róa á önnur mið. Stuttu síðar var penninn á lofti á Hlíðarenda og Adda er í dag leikmaður Vals.

Miðjan - Öskubuskusaga Andra Rúnars
Andri Rúnar Bjarnason, framherji Helsingborg, hefur klifið metorðastigann hratt undanfarin ár. Hinn 28 ára gamli Andri jafnaði markametið í Pepsi-deildinni 2017 og í fyrra varð hann markakóngur í sænsku B-deildinni með Helsingborg. Þá hefur hann einnig leikið sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd.

Innkastið - Arsenal þema og sól hjá Solskjær
Evrópu-Innkastið var eingöngu innan ensku úrvalsdeildarinnar að þessu sinni þegar 22. umferðin var gerð upp.

Innkast frá Katar - Steikt upplifun
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, hafa undanfarna viku dvalið í Katar.

Útvarpsþátturinn með Benna og Mána
Þrátt fyrir að Elvar Geir Magnússon sé í Katar og Tómas Þór Þórðarson í Þýskalandi þá var útvarpsþátturinn Fótbolti.net á sínum stað á X977. Benedikt Bóas Hinriksson og Þorkell Máni Pétursson leystu af í laugardagsþættinum.

Miðjan - Heimir Hallgríms fer yfir málin í Katar
Mánuður er síðan Heimir Hallgrímsson var ráðinn sem þjálfari Al Arabi í Katar. Heimir hefur verið að taka til í leikmannahópnum að undanförnu og koma sínum hugmyndum að.

Miðjan - Guðni Bergs ræðir mótframboð og fleira
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku mætti Guðni Bergsson formaður KSÍ í ítarlegt spjall. Guðni er að ljúka tveggja ára kjörtímabili sínu og þarf að sækja nýtt umboð á ársþingi í febrúar þar sem honum mætir mótframboð frá Geir Þorsteinssyni forvera hans í embætti. Hafliði Breiðfjörð ræddi við Guðna á mánudaginn og spjallið má heyra í spilaranum að ofan og öllum helstu Podcast þjónustum.

Innkastið - Inn og út um gluggann
Janúarglugginn er fyrirferðarmikill í fyrsta Evrópu-Innkastinu á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoðuðu hvað efstu sex liðin ættu að gera í vetrarglugganum. Bikarkeppnin, eigendur í enska boltanum, komandi leikir í úrvalsdeildinni, bestu mennirnir á almanaksárinu 2018 og titilmöguleikarnir koma einnig við sögu í spjalli þeirra. Evrópu-Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ þar sem hægt er að sjá alla helstu boltaleikina í Evrópu!

Enska hringborðið - Uppgjör númer tvö
oppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Alisson; Aspilucueta, Van Dijk, Maguire, Robertson, Torreira, Son, Shaqiri, Aubameyang, Kane, Salah. Besti leikmaður: Van Dijk.

Hlustaðu á viðtalið við Geir Þorsteins
Geir Þorsteinsson, heiðursformaður KSÍ, tilkynnti í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann býður sig fram sem formaður KSÍ en ársþing KSÍ fer fram 9. febrúar. Geir býður sig því fram gegn sitjandi formanni, Guðna Bergssyni, sem tók við af Geir fyrir tveimur árum eftir spennandi formannsslag við Björn Einarsson. Geir ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas um framboð sitt í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Áramótakæfan - Fótboltaárið 2018 gert upp
Veglegur áramótaþáttur þar sem fótboltaárið 2017 var gert upp á X977. Umsjónarmenn: Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum og gleðin var við völd.

Heimavöllurinn - Áramótauppgjör
Í síðasta þætti ársins af Heimavellinum stikla þáttastýrur á stóru og renna yfir fótboltaárið sem er að líða. Farið verður yfir hvað gerðist í deildum og bikar hér heima og eftirminnileg atvik rifjuð upp. Þá er litið yfir árangur landsliðanna okkar á árinu auk þess sem fjallað verður um atvinnukonurnar okkar.

Innkastið: Rauð jól og bestu í enska
Það var nóg um að vera í þætti dagsins í Innkastinu hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Báðir voru í jólastuði og fóru um víðan völl.

Heimavöllurinn - Ingibjörg Sigurðardóttir í ítarlegu spjalli
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins.

Hvað kemur Solskjær með til Man Utd?
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Manchester United var til umræðu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Tryggva Pál Tryggvason, blaðamann og sérfræðing um Manchester United. Ráðning Ole Gunnar Solskjær var helsta umræðuefnið.

Miðjan - Lífleg Leeds umræða með Mána og Árna
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er lífleg umræða um Leeds United sem er á toppnum í ensku Championship deildinni. Magnús Már Einarsson ræddi við Árna Þór Birgisson formann Leeds klúbbsins á Íslandi og útvarpsmanninn Mána Pétursson.

Óli Kristjáns heimsótti útvarpsþáttinn
Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi um gang mála hjá Hafnarfjarðarliðinu, síðasta tímabil og fleira. Einnig var rætt um stöðu íslenska boltans og málefni tengd honum.

Innkastið: Risaslagurinn gerður upp og Balotelli horn
Innkastsbræðurnir Elvar Geir og Daníel Geir ýttu á upptöku strax eftir leik Liverpool og Man Utd. Hafa þeir félagar oft mætt keikari í þáttinn og fór Elvar mikinn í greiningu sinni á liðinu sem hann heldur með.

Miðjan - Draumabyrjun Liverpool og vikur sem ráða úrslitum
Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er Liverpool til umfjöllunar. Félagarnir Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson af kop.is mættu í spjall og ræddu allt sem tengist Liverpool.

Innkastið - Ensk sveifla í Meistaradeildinni
Liverpool og Tottenham verða bæði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar næsta mánudag. Eftir spennandi Evrópukvöld tóku Elvar og Daníel upp Evrópu-Innkast vikunnar. Riðlar Meistaradeildarinnar voru skoðaðir, rætt um síðustu helgi í ensku deildinni og Katar-ævintýri Heimis. Einnig var hitað upp fyrir Liverpool - Manchester United og reynt að stilla upp sameiginlegu liði úr hópum þessara félaga.

Stóru fótboltamálin með Gumma Ben
Guðmundur Benediktsson kom í stórskemmtilega heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Stóru fótboltamálin voru tekin fyrir og var víða komið við í spjalli hans við Elvar Geir og Tómas Þór. Enski og íslenski boltinn, landsliðið og fleira var í umræðunni og þá valdi Gummi úrvalslið samherja sinna á ferlinum. Gummi er búinn að gefa út bók sem kallast Stóra fótboltabókin.

Gísli Eyjólfs, Tommadagurinn og VAR
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór heyrðu hljóðið í Gísla Eyjólfssyni sem er genginn í raðir Mjällby. Hitað var upp fyrir Tommadaginn sem er á morgun og haldinn til styrktar Tómasi Inga Tómassyni. Spilað var viðtal sem Gaupi tók við Tómas Inga en hann hefur verið að ganga í gegnum erfiða tíma. Þá var Kristinn Jakobsson á línunni og spjallaði meðal annars um VAR myndbandsdómgæsluna.

Innkastið - Besta byrjun Liverpool og sumarkaupin dæmd
Evrópu-Innkastið er í boði Ölvers. Elvar og Daníel tóku upp nýtt Innkast eftir 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Leikur hinna lélegu varna, Manchester United - Arsenal, var fyrstur á málefnaskrá. Byrjun Liverpool á tímabilinu kom svo til umræðu og aðrir leikir vikunnar. Einnig voru sumarkaup sex stærstu félaga Englands dæmd og Daníel valdi þrjú bestu kaup sumarsins í deildinni.

Heimavöllurinn - Félagaskiptin í Pepsi-deildinni
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir félaggskipti sem hafa átt sér stað eftir að tímabilinu lauk með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR.

Innkastið - Senur á grannadegi og dráttur metinn
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoða líflega helgi í enska boltanum! Arsenal fær verðskuldað lof eftir sigur gegn Tottenham, dramatískur sigur Liverpool og enn eitt svekkelsið hjá Manchester United. Farið er yfir úrvalslið ensku úrvalsdeildarinnar, skipað leikmönnum sem ekki spila fyrir eitthvað af þessum sex stóru! Þá er farið yfir dráttinn í undankeppni EM. Magnús Már Einarsson er búinn að melta riðil Íslands.

Íslenski boltinn - Penni KA á lofti og HK býr sig undir Pepsi
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fjölluðu um Pepsi-deildina og Tómas sagði frá heimsókn sinni á Akureyri. Hann var viðstaddur þegar KA samdi við öfluga leikmenn í gær. Einn af þeim leikmönnum, Haukur Heiðar Hauksson, var á línunni. Einnig var rætt um helstu fréttir vikunnar í Pepsi-deildinni og spjallað við Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfara HK. Kópavogsliðið býr sig undir Pepsi-deildina á næsta ári.

EM drátturinn - Fyrirkomulag og óskamótherjar
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Á morgun, sunnudaginn 2. desember, verður dregið í riðla fyrir undankeppni EM. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu möguleikana og fóru yfir fyrirkomulagið í drættinum. Á línunni var Gunnar Gylfason, starfsmaður KSÍ. í klippunni er einnig rætt um River Plate og Boca Juniors!

Enski boltinn - Grannaslagur Liverpool og Everton framundan
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Hitað upp fyrir grannaslags-sunnudaginn og þá sérstaklega viðureign Liverpool og Everton. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing um enska boltann, og þá sérstaklega Liverpool.

Miðjan - Gummi og Ingó með bolta og tónlistarpælingar
Bræðurnir Ingólfur og Guðmundur Þórarinssynir hafa vakið athygli á fótboltavellinum í gegnum tíðina sem og fyrir hæfileika á tónlistarsviðinu. Í Miðju dagsins eru þeir í löngu og stórskemmtilegu spjalli um fótboltann og tónlistina. Farið er yfir víðan völl og margar áhugaverðar og fyndnar sögur koma upp úr pokahorninu.

Heimavöllurinn - Landsliðið okkar
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir leikmenn landsliðsins með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR. Í þættinum ræða þær meðal annars fyrsta æfingahóp Jón Þórs en æfingar fóru fram í byrjun nóvember. Þær fara einnig yfir bestu leikmenn landsliðsins og spennandi leikmenn sem eru að banka á dyrnar sem og fleiri mikilvæg málefni. Þá má benda á að hægt er að fylgja þættinum á Instagram undir nafninu „Heimavöllurinn“. Þar má meðal annars álgast nýjustu fréttir af leikmönnum ásamt því að Heimavöllurinn velur leikmann vikunnar og fær til sín gesti í hraðaspurningar.

Innkastið - Grasið er ekki grænna á Old Trafford
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz snúa aftur með Evrópu-Innkast og nóg var að ræða! Í þættinum: Hitað upp fyrir Pub Quiz, áfall fyrir Suður-Amerískan fótbolta, Pochettino og Manchester Untied, Aron frakki á Gylfa, bakverðirnir vopn Liverpool, Özil og Emery, rautt fyrir dýfu, ánægja þegar Ranieri vinnur, Meistaradeildin, stór lið í vandræðum, leikmenn sem við viljum fá aftur. Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ

Útvarpsþátturinn - Landsliðsárið 2018 gert upp
Landsliðsárið 2018 var gert upp í útvarpsþættinum á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir hæðir og of margar lægðir. Fer Hamren inn í undankeppni EM í heitu sæti? Hver er landsliðsmaður ársins 2018? Hverjir þurfa að girða sig í brók? Gæti fótboltamaður orðið íþróttamaður ársins? Hvernig er draumariðill okkar fyrir undankeppni EM? Þessar spurningar og fleiri koma við sögu í þættinum.

Miðjan: Siggi Hlö og Jói Skúli ræða allt tengt Manchester United
Það hefur ýmislegt gengið á hjá Manchester United á þessu tímabili en gengi liðsins hefur verið undir væntingum. <a href="https://twitter.com/SiggiHlo" target="_blank">Siggi Hlö</a> og <a href="https://twitter.com/joiskuli10" target="_blank">Jóhann Skúli Jónsson</a> kíktu á Magnús Má Einarsson í Miðjuna í dag og ræddu ítarlega um Manchester United. <b>Meðal efnis:</b> Gengi Manchester United í vetur, Jose Mourinho og stælarnir í honum, vandræðin í vörninni, frammistaða Paul Pogba, vakning hjá Martial, markaþurrð Lukaku, hreinsun næsta sumar, sigurinn á Juventus, fyrirliðamálin, söngvarnir á Old Trafford og margt fleira.

Innkast frá Belgíu - Freysi fer yfir strembið landsliðshaust
Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari notaði 45 mínútur af afmælisdeginum sínum í að fara yfir landslðsmálin með Elvari Geir Magnússyni. Það hefur verið í nægu að snúast síðan Freyr og Erik Hamren tóku við. Úrslitin hafa ekki verið að óskum en Freyr segir að Ísland megi ekki hætta að hugsa stórt og markmiðið sé að komast á EM 2020. Innkastið að þessu sinni var tekið upp á hóteli landsliðsins í Spa í Belgíu en þar fer Freyr yfir fyrstu mánuði hans og Hamren í starfi. Meðal efnis: Ástæða meiðslahrinunnar, nýtt leikkerfi, ungu leikmennirnir, umdeilt val á Kolbeini, áhrif Arons, það jákvæða og neikvæða við landsliðshaustuð, gagnrýni á samfélagsmiðlum, samvinnan við Hamren, áhrif lykilmanna og fleira.

Guðjón Lýðs heimsótti útvarpsþáttinn
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðjón Pétur Lýðsson, nýjasti leikmaður KA, var gestur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson ræddi við hann. Guðjón yfirgaf Valsmenn eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Hlíðarendaliðinu síðustu tvö ár og bindur hann miklar vonir við skipti sín norður yfir heiðar.

Landsliðsumræða - Tómas Þór ræddi við Kristján Guðmunds
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Tómas Þór Þórðarson stýrði þættinum og spjallaði við Kristján Guðmundsson um landsleikinn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni sem tapaðist 2-0. Farið var yfir helstu umræðupunkta leiksins og hringt til Belgíu, þar sem Elvar Geir Magnússon fylgist með undirbúningi íslenska liðsins fyrir vináttulandsleik gegn Katar.

Innkast frá Belgíu - Á vængbrotið lið Íslands möguleika?
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Brussel þar sem íslenska landsliðið mætir efsta liði heimslistans, Belgíu, í Þjóðadeildinni. Í Innkasti frá Belgíu ræða þeir um líklegt byrjunarlið Íslands, ótrúlega langan meiðslalista, verkefni Hamren, ljótan heimavöll Belgíu, umdeilda Twitter færslu, lukkudýr landsliðsins, ofmetna hluti og fleira.

Innkastið: Spjallað um stórliðin í enska
Evrópu-Innkastið gerði upp helgina í ensku deildinni og kom svo við í Þýskalandi og á Ítalíu. Daníel Geir og Elvar Geir fóru yfir hlutina eins og þeim er lagið og var farið með Elvar í Ander Herrera leikinn.

Útvarpsþátturinn: Arnar Grétars gestur - Landsliðið og fleira
Hér má nálgast upptöku af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 10. nóvember. Arnar Grétarsson var gestur í þættinum og var aðalumræðuefnið íslenska landsliðið, hópurinn sem opinberaður var á föstudaginn og komandi leikir gegn Belgíu og Katar. Félagaskipti í íslenska boltanum koma einnig við sögu í upptökunni og þá var Arnar spurður að því af hverju hann væri ekki að þjálfa í dag. Þá var rætt um stöðu yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ en Arnar hefur ekki áhuga á þeirri stöðu.

Binni Hlö um ævintýralegt ár í Færeyjum
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Breiðhyltingurinn Brynjar Hlöðversson varð Færeyjarmeistari undir stjórn Heimis Guðjónssonar í sumar. Hann var einn af þremur sem tilnefndir voru sem leikmaður ársins í deildinni. Brynjar spjallaði við Elvar og Tómas um ævintýralegt ár í færeyska boltanum, um lífið utan vallar og fleira. Óvíst er hvort Brynjar verði áfram hjá HB en í viðtalinu metur hann líkurnar á því 60%.

Heimavöllurinn - Landsliðsmálin í brennidepli
Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. Í fyrsta þætti var farið yfir keppni í Pepsi-deild kvenna í sumar en í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir landsliðsmál með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur og Lilju Dögg Valþórsdóttur.

Miðjan - Túfa ræðir heraga í Serbíu, bróðurmissi, KA og Grindavík
Gestur vikunnar í Miðjunni er Srdjan Tufegdzic sem tók á dögunum við liði Grindavíkur eftir þrettán ár hjá KA á Akureyri. Túfa fór yfir víðan völl í spjalli sínu við Magnús Má Einarsson.