
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 47 of 57

HM Innkastið - Gylfi í garðinum og gamli skólinn á Instagram
HM innkast dagsins var tekið upp á flugvellinum í Gelendzhik rétt fyrir flug til Volgograd þar sem Ísland mætir Nígeríu á föstudaginn. Magnús Már Einarsson og Arnar Daði Arnarsson fóru yfir málin ásamt Guðmundi Hilmarssyni íþróttafréttamanni á Morgunblaðinu. Gummi kom með góðar sögur af því þegar Gylfi Þór Sigurðsson var að sparka í bolta í garðinum hjá honum á yngri árum. Gylfi og Viktor Örn, sonur Gumma, hafa verið bestu vinir síðan í æsku og Gummi fór yfir spyrnutæknina með þeim í Hafnarfirðinum í gamla daga. Farið var vel yfir Nígeríu leikinn og stöðuna í riðlinum. Byrjunarliðið gegn Nígeríu var skoðað og Gummi boðar komu gamla skólans á Instagram í umræðu um vinsældir Rúriks Gíslasonar þar.

HM Innkastið - Foringinn, fluguhræðsla og félagaskipti
Henry Birgir Gunnarsson, eða Foringinn eins og hann er kallaður á hótelinu í Rússlandi, var með í Innkastinu að þessu sinni. Komið var víða við í skemmtilegu spjalli við Elvar og Magga. Moskítófaraldur í Stalíngrad, heimsókn frá Mið-Íslandi, rússneskar styttur, félagaskiptatíðindi af Kára og Rúnari, Rúrik á Instagram, hornspyrnur Harry Kane, umræðan í Nígeríu og rússneskt sjónvarp koma við sögu ásamt mörgu fleiri.

HM Innkastið - Spjallað við Tómas Þór um landsliðið og lífið í Rússlandi
Hvað gerði gæfumuninn gegn Argentínu? Hvernig byrjar Ísland gegn Nígeríu án Jóa Berg? Hvað gerðu strákarnir okkar á æfingu dagsins? Verður karókí-keppni annað kvöld? Þessar spurningar og fleiri í HM-Innkastinu þar sem Tómas Þór Þórðarson var með Elvari og Magnúsi í þráðbeinni frá Rússlandi. Áttunda daginn í röð er HM-Innkastið sent út frá Rússlandi. Þátturinn tekur sér frí á morgun en mætir svo endurnærður á þriðjudaginn!

HM Innkastið - Lokað á hrokafulla Argentínumenn
Innkastið þennan daginn var sent út frá rútunni sem flutti íslenska fjölmiðlamenn frá Spartak vellinum eftir 1-1 jafntefli Íslands og Argentínu. Einn allra besti vinur Innkastsins, Haukur Harðarson á RÚV, spjallaði við Elvar og Magga. Fyrsti leikur Íslands á HM var krufinn. Maradona og Messi komu við sögu, hrokinn í Argentínumönnunum og frammistaða okkar manna var skoðuð. Hver ætlar að skrifa kvikmyndahandritið að myndinni um Hannes?

HM Innkastið - Mállítill Messi og síðustu vangaveltur fyrir stærsta leikinn
Stærsti leikur Íslandssögunnar verður á morgun þegar leikið verður gegn Argentínu í Moskvu. Innkastið að þessu sinni var tekið upp þegar stund gafst milli stríða í fréttamannaherberginu, rétt fyrir fréttamannafund Argentínu. Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, spjallað við Elvar og Magga.

HM Innkastið - Flugferð og framtíð Heimis
Innkastið er útvarpsþátturinn Fótbolti.net þennan fimmtudaginn! Tómas Þór Þórðarson spjallaði við Elvar Geir Magnússon og Magnús Má Einarsson á flugvellinum í Gelendzhik áður en flogið var yfir til Moskvu. Argentínuleikurinn er handan við hornið og spennan eykst!

HM Innkastið - Svaðilför í Svartahaf og tími til að tengja
Elvar Geir og Magnús Már fengu ansi góðan gest í HM Innkastið að þessu sinni. Reynsluboltinn Arnar Björnsson spjallaði við þá félaga og var víða komið við. Arnar hefur upplifað margt á löngum ferli en bjóst aldrei við því að fjalla um íslenska fótboltalandsliðið á stórmóti. Sundferðir í Svartahaf, rússneskir hermenn, líklegt byrjunarlið Argentínu, þjálfarabrottrekstur Spánar, gamlar og góðar sögur og ýmislegt fleira í öflugum þætti.

HM innkastið - Sturlaður ferill Hannesar og fyrstu varamenn
Hörður Snævar Jónsson var gestur HM-Innkastsins að þessu sinni. Hann spjallaði við Magnús Má og Arnar Daða Arnarsson frá Fótbolta.net. Rætt var um ótrúlegan feril markmannsins Hannesar Þórs Halldórssonar og sögurnar í kringum hann. Skoðað var hvaða varamenn eru líklegastir til að koma fyrst inn af bekknum hjá Íslandi í mótinu og rætt var um fyrstu dagana í Rússlandi.

HM Innkastið - Pælingar við sundlaugarbakkann
Haukur Harðarson er gestur HM-Innkastsins að þessu sinni. Hann spjallaði við Magnús Má og Elvar Geir við sundlaugarbakkann á fjölmiðlahótelinu. Umfjöllun RÚV, lífið í Rússlandi, heimsmeistaramótið framundan, svakaleg sóknarlína Argentínu, hugsanlegt byrjunarlið Íslands í fyrri leiknum, Pepsi hornið og dómaraferill Hauks koma við sögu!

HM Innkastið - Edda uppljóstrar leyndarmálum í Rússlandi
2. þáttur HM-Innkastsins er sendur út beint frá Rússlandi. Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV, fékk sér sæti með Elvari og Magga í stúkunni við æfingasvæði íslenska landsliðsins. Rætt var um ferðalagið til Rússlands og aðstöðu íslenska liðsins, veisluna sem er framundan á RÚV og Edda uppljóstraði leyndarmálum enda er allt látið flakka í Innkastinu.

Útvarpsþátturinn - Rýnt í alla riðla HM í Rússlandi
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þann 9. júní. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már skoðuðu alla riðla HM í Rússlandi og spáðu fyrir um hvaða lið munu komast upp úr þeim. Riðill Íslands fékk að sjálfsögðu gott pláss í þættinum!

HM innkastið - Mismikil bjartsýni eftir Ganaleik
Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana í vináttuleik á Laugardalsvelli í kvöld. Um var að ræða síðasta leik Íslands fyrir HM í Rússlandi. Eftir leikinn fóru Magnús Már Einarsson, Gunnar Birgisson og Tryggvi Guðmundsson yfir málin í HM Innkastinu. Leikurinn í kvöld var skoðaður sem og HM sem er framundan.

Innkastið - Landsliðið og sturlaður fyrsti þriðjungur Pepsi-deildarinnar
Innkastið er sent út frá Laugardalsvelli þessa vikuna. 7. umferð Pepsi-deildarinnar lauk í gær og deildin verður sífellt áhugaverðari.

Gísli Eyjólfs og Davíð Kristján gera upp byrjun Blika á Íslandsmótinu
Pepsi-deildin fer stórskemmtilega af stað og útlit fyrir hörkuspennandi mót. Í þessari jöfnu deild er Breiðablik á toppnum eftir sex umferðir. Fótbolti.net fékk Gísla Eyjólfsson og Davíð Kristján Ólafsson, leikmenn Blika, til að fara yfir byrjunina í útvarpsþættinum. Rætt var um hvern leik fyrir sig. Báðir hafa spilað gríðarlega vel í upphafi tímabils en Gísli er vafalaust einn af allra bestu leikmönnum deildarinnar. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Tryggvi Guðmunds spjölluðu við þá Gísla og Davíð.

Útvarpsþátturinn - Landsliðið og komandi leikir í Pepsi
Hér má nálgast fyrri helming útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. júní. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Tryggvi Guðmunds ræddu um landsliðið, leikinn gegn Noregi og skoðuðu næstu leiki Pepsi-deildarinnar. Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, gaf okkur innsýn inn í næstu daga landsliðsins og áhuga erlendra fjölmiðla á strákunum okkar. Rætt var við sænska dómarann Jonas Eriksson sem verður með flautuna á Laugardalsvelli í kvöld.

Innkastið - Síðasta Evrópu-Innkast tímabilsins
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz gerðu upp Evróputímabilið í boltanum í síðasta Evrópu-Innkasti tímabilsins. Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu, þjálfara- og leikmannamálin og ýmislegt fleira. Balotelli hornið, draumalið úr fall-liðunum og ég veit ekki hvað og hvað.

Innkastið - Heitasta sætið er á Akureyri
6. umferð Pepsi-deildarinnar lýkur í kvöld með leik FH og Fylkis í Kaplakrika. Innkastið gerir upp hina fimm leiki umferðarinnar.

Inkasso-hringborðið - Rýnt í öll liðin og byrjun deildarinnar
Inkasso-deildin er farin af stað og útlit fyrir skemmtilega og spennandi deild. Menn eru þó sammála um að færri gæðalið séu í deildinni en oft áður og ljóst að þau lið sem fara upp þurfa að styrkja sig verulega. Öll lið deildarinnar voru skoðuð og spáð í spilin í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru á sínum stað en með þeim voru Þorlákur Árnason og Magnús Már Einarsson.

Pepsi yfirferð - Elvar, Tómas og Maggi spáðu í komandi umferð
Sjötta umferð Pepsi-deildarinnar er framundan og þeir Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson skoðuðu leikina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Risaleikur í kvöld - Hanna Sím í beinni frá Kænugarði
Það er glimrandi stemning í Kænugarði þar sem Real Madrid og Liverpool eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um leikinn og heyrðu í fréttaritara þáttarins í Kænugarði. Hanna Símonardóttir verður á vellinum og sagði frá stuðinu í Úkraínu.

4. deildar Innkastið - Ástríðudeildin loksins farin af stað
4. deild karla, neðsta deild Íslandsmótsins, er farin á fulla ferð og í tilefni þess sendum við hér út sérstakan þátt um deildina. Það má kalla þetta upphitunarþátt þrátt fyrir að boltinn sé vissulega farinn að rúlla! Runólfur Trausti Þórhallsson er umsjónarmaður þáttarins en með honum eru Einar Guðnason og Grétar Óskarsson.

Innkastið - Lof og last eftir 5. umferð Pepsi-deildarinnar
5. umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með þremur leikjum. Pakkinn þéttist enn frekar í efri hluta deildarinnar.

Pepsi yfirferð - 4. umferðin gerð upp með Grétari Sigfinni
Fjórða umferð Pepsi-deildarinnar var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Grétar Sigfinnur Sigurðarson voru í hljóðverinu og var nóg að ræða. Stórleikir voru á dagskrá, dómaraskandalar og áhorfandi fékk að líta rauða spjaldið. Leikir 4. umferðarinnar: Keflavík - Fjölnir 1-2 KR - Breiðablik 1-1 Víkingur R. -Grindavík 0-1 Valur - Stjarnan 2-2 Fylkir - ÍBV 2-1 FH - KA 3-1

Enska hringborðið - Lokauppgjör og upphitun fyrir risaleiki
Síðasta enska hringborð tímabilsins! Úrvalsdeildin var gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Einnig var hitað upp fyrir tvo stórleiki; bikarúrslitaleik Chelsea og Manchester United og sjálfan úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, viðureign Real Madrid og Liverpool. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stýrðu umræðum. Góðvinir þáttarins, Kristján Atli Ragnarsson (sérfræðingur um Liverpool) og Tryggvi Páll Tryggvason (sérfræðingur um Manchester United) mæta.

Innkastið - Blikar geta unnið mótið
Þrátt fyrir að einum leik sé ólokið í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar var Innkast umferðarinnar tekið upp í dag. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.

Logi Ólafs: Myndi aldrei fara í þetta félag ef ég væri markmaður
Víkingur Reykjavík hefur komið á óvart með frammistöðu sinni í fyrstu tveimur leikjum Pepsi-deildarinnar. Liðið er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina. Liðið gerði markalaust jafntefli við Íslandsmeistara Vals í síðustu umferð. „Ég er mjög ánægður með framlagið og niðurstöðuna," sagði Logi Ólafsson, þjálfari Víkinga, í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær.

Landsliðshringborð - Rýnt í landsliðsvalið fyrir HM
Á föstudag var opinberað hvaða 23 leikmenn fara með íslenska landsliðinu á HM í Rússlandi. Mikil spenna var fyrir valinu og ýmsir leikmenn hafa verið gríðarlega svekktir. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson ræddu um valið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 og fengu Sigurbjörn Hreiðarsson til að leggja sitt mat.

Þriðja umferð Pepsi skoðuð með Davíð Snorra
Komandi leikir í Pepsi-deild karla voru til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Magnús Már fengu Davíð Snorra Jónasson til að rýna í leiki umferðarinnar.

Innkastið - Fergie bati og spádómar
Daníel Geir Moritz hélt um stjórnartaumana í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Hann fékk til sín tvo góða gesti, Runólf Trausta Þórhallsson og Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is. Spáð var í spilin fyrir tvo stórleiki sem eru framundan; úrslitaleik FA Cup þar sem Manchester United leikur gegn Chelsea og svo viðureign Real Madrid og Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.

Innkastið - Spjaldað fyrir að sýna ástríðu
Önnur umferð Pepsi-deildarinnar er að baki. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.

Landsliðshringborð - Spáð í valið stóra sem tilkynnt verður á föstudag
Næsta föstudag, 11. maí, mun Heimir Hallgrímsson opinbera landsliðshóp Íslands sem fer á HM í Rússlandi. 23 manna hópur verður valinn og er hart barist um flugmiðana. Hjörvar Hafliðason var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þar sem spáð var í valið og mótið framundan. Tómas Þór og Elvar Geir voru á sínum stað.

Upphitun - 2. umferð Pepsi skoðuð með Tryggva Guðmunds
Ítarlega er fjallað um Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardögum. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu í dag við markakónginn Tryggva Guðmundsson sem var í beinni frá Vestmannaeyjum og fór yfir 2. umferðina sem leikin er á sunnudag og mánudag. Þá fór Tómas yfir samantekt sína yfir framlag ungra leikmanna í markaskorun í 1. umferð deildarinnar.

Innkastið - Liverpool draumur og Arsenal martröð
Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon eru mættir með Evrópu- Innkastið þessa vikuna. Daníel mættur úr fríi og endurnærður eftir að hafa skoðað landsbyggðina. Vonbrigði Arsenal voru auðvitað til umfjöllunar og frammistaða Liverpool sem hefur tryggt sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fram fer í Kænugarði.

Innkastið - Flugeldasýning í fyrstu umferð Pepsi
Pepsi-Innkastið er mætt aftur. Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina. Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki. <b>Meðal efnis:</b> Iðnaðarsigur Víkinga í kartöflugarðinum, sérstakur leikur í Egilshöll, Lennon gerir gæfumuninn, umræðan um Andra Rúnar strax byrjuð, Sveinn Aron þakkaði traustið, furðuleg verkaskipting Eyjamanna, óvænt atburðarás í Garðabæ og hádramatískur leikur á Hlíðarenda.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. apríl - Pepsi og Inkasso
Komin er inn upptaka af nýjasta útvarpsþætti Fótbolta.net í heild sinni. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson ræddu um íslenska boltann. Pepsi-deildin fór af stað með hvelli. Dramatískur sigur Vals á KR, endurkoma Keflavíkur gegn Stjörnunni og hitað upp fyrir aðra leiki. Einnig var spáð í spilin fyrir Inkasso-deildina sem fer af stað eftir viku.

Innkastið - Salah stoppar ekki
Það er komið að sjóðheitum þætti af Innkastinu. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson ræddu um boltann. Aðalmálið var áhugaverður leikur Liverpool og Roma í Meistaradeildinni í kvöld en hann endaði með 5-2 sigri Liverpool. Daníel Geir Moritz var í fríi en lesið var upp skeyti frá honum þar sem hann valdi úrvalslið leikmanna sem hafa spilað undir stjórn Arsene Wenger hjá Arsenal. Hvað þurfa lið að gera til að veita Manchester City samkeppni á næsta ári? Þýski boltinn, spenna á Ítalíu og stöðutjekk í Championship koma líka við sögu.

Eiður Aron og Birkir Már - Ekki hægt að mæta Messi skjálfandi á beinunum
Tveir af bestu varnarmönnum Pepsi-deildarinnar mættu á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða tímabilið framundan. Eiður Aron Sigurbjörnsson og Birkir Már Sævarsson, leikmenn Vals, spjölluðu við Elvar Geir Magnússon en ríkjandi Íslandsmeisturum er spáð efsta sætinu í sumar. Birkir Már, sem er 33 ára, á fast sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins en er kominn heim í Val.

Gummi Kristjáns og Davíð Þór - Fyrirliðinn er sem betur fer ekki á Twitter
Guðmundur Kristjánsson og Davíð Þór Viðarsson, miðjumenn FH, voru brattir þegar þeir heimsóttu skrifstofu Fótbolta.net og ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil í Pepsi-deildinni. Guðmundur gekk í raðir FH í vetur eftir sex ára dvöl hjá Start í Noregi en Davíð er fyrirliði FH-liðsins og hefur verið einn allra öflugasti leikmaður íslenska boltans undanfarin ár.

Brynjar Gauti og Jói Lax: Menn misharðir í grillveislum í sveitinni
Brynjar Gauti Guðjónsson og Jóhann Laxdal, varnarmenn Stjörnunnar, segja að liðið geti haft betur gegn núverandi meisturum í Val í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í sumar. „Við erum með lið í það. Valur er the team to beat. Það er erfiðara að verja titilinn en að sækja hann. Valur er mjög vel mannað og það verður mikið verkefni að kljást við þetta lið í sumar," sagði Jóhann við Fótbolta.net. Stjörnumenn enduðu í 2. sæti í Pepsi-deildinni annað árið í röð á síðasta tímabili. Garðbæingar mæta með svipðað lið til leiks en þeir hafa verið rólegri á leikmannamarkaðinum en mörg önnur lið.

Pepsi-hringborðið - Rýnt í öll liðin og spáð í spilin fyrir mót
Í veglegu Pepsi-hringborði var rýnt í öll lið deildarinnar fyrir komandi tímabil en sparkað verður til leiks á föstudagskvöld. Skoðuð var spá Fótbolta.net fyrir deildina og rætt um möguleika liðanna í mótinu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson fóru yfir málin en með þeim var Davíð Snorri Jónasson sem var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í fyrra og þjálfaði Leikni í deildinni fyrir nokkrum árum.

Elfar Árni og Hrannar - Bjuggust aldrei við að spila með KA
„Miðað við veturinn kemur þetta ekkert sérstaklega á óvart en það kemur á óvart að eitt af stóru liðunum er fyrir neðan okkur," segir Hrannar Björn Steingrímsson bakvörður KA um að Fótbolti.net spái liðinu 4. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.

Óskar og Aron - Breytingar hjá KR, karfan og Peter Crouch
Óskar Örn Hauksson og Aron Bjarki Jósepsson komu báðir ungir til KR og hafa leikið með liðinu í áraraðir. Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í gær og ræddu meðal annars um spá Fótbolta.net en KR er spáð 5. sæti í Pepsi-deildinni.

Gísli Eyjólfs og Arnþór Ari - Vissir um að geta endað ofar en Valur
Fótbolti.net spáir Breiðabliki sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. Liðið myndi ekki sætta sig við þá niðurstöðu enda segir Ágúst Gylfason, þjálfari Blika, að stefnan sé sett á topp þrjá. Fótbolti.net ræddi við tvo leikmenn Kópavogsliðsins, Gísla Eyjólfsson og Arnþór Ara Atlason, í dag og bar æfingaferð liðsins til Spánar og aukin virkni á samfélagsmiðlum snemma á góma í því spjalli.

Brynjar Ásgeir og Gunnar - Lofa að Grindavík skorar meira í sumar
Grindavík var spútnikliðið í Pepsi-deildinni í fyrra en nýliðarnir enduðu þá í 5. sæti. Grindavík hefur ekkert gefið eftir í vetur en liðið fór í úrslit bæði í Fótbolta.net mótinu og í Lengjubikarnum. Andri Rúnar Bjarnason skoraði 19 af 31 marki Grindvíkinga í fyrra en liðið hefur haldið sjó í vetur þó að hann sé horfinn á braut. Gunnar Þorsteinsson og Brynjar Ásgeir Guðmundsson leikmenn Grindavíkur telja að liðið geti fundið mörk frá öðrum stöðum eftir brotthvarf Andra.

Beggi og Gummi Kalli - Golf, fyrirlestrar og viðskilnaðurinn við FH
Bergsveinn Ólafsson og Guðmundur Karl Guðmundsson gengu til liðs við Fjölni á nýjan leik í vetur eftir dvöl hjá FH. Þeir komu báðir til Fjölnis á sama degi í febrúar síðastliðnum en þeir sáu ekki fram á að fá mörg tækifæri í liði FH. Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, tilkynnti Bergsveini að hann væri ekki ofarlega í röðinni hjá sér.

Atli og Sindri í Eyjum - Enginn veit hvað mun koma frá okkur
Atli Arnarson og Sindri Snær Magnússon, miðjumenn ÍBV, heimsóttu útvarpsþátt Fótbolta.net. Eyjaliðinu er spáð 9. sæti í Pepsi-deildinni og þegar Atli og Sindri voru spurðir að því hvort þeir myndu taka því sæti fyrir tímabilið var svarið einfaldlega nei.

Albert og Ragnar fara yfir víðan völl - Fylkishjartað, tölvuleikir og hestar
Fótbolti.net spáir Fylki 10. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Fylkismenn komu í gær heim frá Spáni þar sem þeir voru í æfingaferð en liðið gerði markalaust jafntefli við KR í æfingaleik á laugardag. Albert Brynjar Ingason og Ragnar Bragi Sveinsson kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í dag en sá síðarnefndi fékk rauða spjaldið í leiknum á laugardag.

Innkastið - Sófameistaratitill og Liverpool gestur
Innkastið er mætt aftur eftir stutt hlé. Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var gestur Elvars og Daníels í þætti dagsins. Enska úrvalsdeildin, sófameistarar Manchester City, Meistaradeildin, Zlatan og fleira var til umræðu.

Gústi Gylfa kom í útvarpið - Stefnan sett á topp þrjá
Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Tómas Þór og Elvar Geir um komandi tímabil en Blikar eru nýkomnir úr æfingaferð á Spáni. Gústi er augljóslega mjög bjartsýnn fyrir því sem framundan er og segir að Blikar setji stefnuna ótrauðir á að enda í einu af þremur efstu sætum Pepsi-deildarinnar.

Fótboltafréttir vikunnar - Ísland, Færeyjar og Meistaradeildin
Hér má nálgast fyrri hluta útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 þann 14. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir allt það helsta sem er að frétta úr boltanum. Það styttist í Pepsi-deildina og Þróttarar skiptu um þjálfara rétt áður en átökin hefjast í Inkasso-deildinni. Þá sagði Elvar Geir frá ferð sinni til Færeyja en hann sá tvo leiki með HB, liði Heimis Guðjónssonar og Brynjars Hlöðverssonar, í færeysku deildinni. Einnig var fjallað um undanúrslitadráttinn í Meistaradeild Evrópu, Framunan er viðureign Liverpool og Roma. Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann og stuðningsmaður Roma, var á línunni.