
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 50 of 57

Ray Parlour: Sé Arsenal ekki skáka Manchester
Ray Parlour, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Parlour varð þrívegis Englandsmeistari með Arsenal og fjórum sinnum bikarmeistari. Hann lék alls 339 leiki fyrir félagið á árunum 1992–2004. Eftir ferilinn hefur Parlour unnið við fjölmiðlastörf og í spjallinu var talað um Arsenal í dag og baráttuna í ensku úrvalsdeildinni, horft var til baka á gömlu og góðu tímana þegar hann var að spila og íslenska landsliðið kom auðvitað til tals.

Tryggvi Páll um Liverpool - Man Utd: Tveir tímar sem maður fær ekki aftur
Markalaust jafntefli var niðurstaðan í leik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Tryggva Pál Tryggvason blaðamann og stuðningsmann Manchester United og gerðu upp leikinn.

Innkastið - Við erum á leiðinni Rússland!
Gleðivíman er allsráðandi í Innkastinu í kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti strax og leik Íslands og Kosóvó lauk. Það verður að viðurkennast að það hafi verið farið hingað og þangað í Innkastinu að þessu sinni enda erfitt að halda skipulagi þegar gleðin er svona mikið við völd. Ísland er á leiðinni til Rússlands!

Þjálfarakapallinn í Pepsi-deildinni skoðaður
Það hefur verið fréttaflóð varðandi þjálfaramálin í Pepsi-deildinni að undanförnu. Tvö lið hafa skipt um þjálfara, tvö lið eru án þjálfara og sæti einhverra þjálfara eru í óvissu. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um þær hræringar sem eru í gangi í þjálfaramálunum og fóru yfir ýmsar sögusagnir sem hafa verið í gangi.

Veglegt landsliðshringborð - Addi Grétars gestur
Það var boðið upp á landsliðsveislu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson mættu í gasklefann með stigin þrjú sem unnust í Tyrklandi. Þeir þrír voru á leiknum gegn Tyrklandi en mættu í þáttinn örfáum klukkustundum eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli. Góður gestur mætti til þeirra, sjálfur Arnar Grétarsson þjálfari og fyrrum landsliðsmaður. Einnig var hringt í sjálfan Pyry Soiri, nýjustu þjóðhetju Íslendinga!

Innkastið - Rýnt í risaleikinn í Eskisehir
Eftir að hafa skoðað leikvanginn í Eskisehir og fylgst með æfingu íslenska landsliðsins fengu Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson sér sæti fyrir utan hótelið og tóku upp nýtt Innkast. Rýnt er í komandi leik, líklegt byrjunarlið, helstu stjörnur Tyrkja og ýmislegt fleira. Tyrklandsforseti, bænaköll og skordýr koma meðal annars við sögu!

Innkastið - Tyrkland í dag frá Antalya
Innkastið að þessu sinni er sent út frá Antalya í Tyrklandi þar sem íslenska landsliðið býr sig undir risaleikinn gegn heimamönnum sem fram fer á föstudagskvöld. Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri 433.is, var með Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni í Innkastinu. Rætt var um æfingu íslenska liðsins í dag, meiðslaáhyggjurnar, möguleika varðandi byrjunarliðið, stöðuna í riðlinum og fleira.

Matti Villa: Ég er enginn lúxus leikmaður
Matthías Vilhjálmsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann er staddur hér á landi um þessar mundir en þar heldur hann áfram að vinna í að koma sterkur til baka eftir meiðsli, þau fyrstu alvarlegu á hans ferli. Matti er þrítugur og hafði leikið glimrandi vel með norska stórliðinu Rosenborg þegar hann meiddist í æfingaleik. Hann byrjaði viðtalið á að segja frá aðdraganda meiðslana.

Býst við ærandi hávaða
„Það verður 100% hávaði. Það er mjög gott að við spiluðum í Tyrklandi fyrir tveimur árum og það er gott að búa að þeirri reynslu. Það var ærandi hávaði í þeim leik og ég býst við svipuðu andrúmslofti núna," sagði Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaðurinn reyndi, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Pepsi-Partí: Öðruvísi uppgjör og verðlaun veitt
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson héldu Pepsi-partí í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Það má segja að sérstakt lokahóf deildarinnar hafi verið haldið og óhefðbundin verðlaun veitt á færibandi! Þetta var allt á léttu nótunum. Hver var vallarþulur ársins? Aðstoðarþjálfari ársins? Vonbrigði ársins? Furðulegasta atvik ársins?... og svo mætti áfram telja!

Innkastið - Púlsinn tekinn á Liverpool
Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var gestur í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Þetta er síðasti þáttur fyrir landsleikjahlé. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon ræddu við Martin um Liverpool og þá var einnig farið yfir önnur helstu tíðindi úr enska boltanum og komandi leikir í Meistaradeildinni skoðaðir.

Innkastið - Víða þörf á naflaskoðun eftir sumarið
Næstsíðasta umferð Pepsi-deildarinnar fór fram í gær. KR mistókst að vinna Fjölni og því ljóst að FH og Stjarnan fara í Evrópukeppnina. ÍBV og Víkingur Ólafsvík eru í fallhættu fyrir lokaumferð. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir leikina í Innkastinu.

Börkur: Fleiri en bara ég og Óli í félaginu
Börkur Edvardsson, formaður Vals, ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Börkur er að sjálfsögðu í skýjunum eftir að Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn síðasta sunnudag og býst Börkur við því að partí aldarinnar verði á Hlíðarenda um næstu helgi þegar titlinum verður fagnað.

Haukur Páll og Gaui Lýðs gefa skemmtilega innsýn í lífið í Val
Íslandsmeistararnir Haukur Páll Sigurðsson og Guðjón Pétur Lýðsson voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þessir mögnuðu miðjumenn gáfu skemmtilega innsýn inn í lífið í Val. Sögðu frá samsetningu hópsins, hvernig titlinum var fagnað og opinberuðu að það er oft mikill hiti á æfingum liðsins!

Jón Þór: Skelfileg tilfinning að upplifa þetta í faðmi fjölskyldunnar
Skagamenn féllu úr Pepsi-deildinni á fimmtudaginn án þess að spila. Þar sem Fjölnir vann FH varð ljóst að ÍA leikur í Inkasso-deildinni á næsta ári. Jón Þór Hauksson tók við þjálfun ÍA í síðasta mánuði og vonast til þess að fá traustið til að halda áfram með liðið eftir tímabilið.

Elvar og Tómas hita upp fyrir næstsíðustu umferð Pepsi
Næstsíðasta umferð Pepsi-deildar karla verður leikin á morgun sunnudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu leikina og baráttuna framundan. Enn er ekki ljóst hvaða lið fellur með ÍA og Evrópubaráttan er opin. Þá er spurning hvort Andri Rúnar Bjarnason slái markametið?

Ítalski boltinn - Lazio
Í dag verður fjallað um bláhvíta höfuðborgarliðið Lazio. Fjallað verður um hina margrómuðu tengingu við fasismann, byssuóða ítalíumeistara og svo að sjálfsögðu goðsagnir sem allir kannast við. Sérstaklega einn lágvaxinn framherja með sínu einkennandi stutta tilhlaupi í vítaspyrnum.

Innkastið - Leiðast hönd í hönd í Manchester
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann í Evrópu-Innkastinu. Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is var sérstakur gestur og Manchester United sérstaklega til umfjöllunar.

Innkastið - Óli veit og leigubílasögum fjölgar
20. umferð Pepsi-deildarinnar fór að mestu fram í gær. Þar bar helst til tíðinda að Valur stóð uppi sem Íslandsmeistari þegar tvær umferðir eru eftir. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu saman í Innkastinu.

Íslenskt hringborð - Pepsi, Eiður og ungir leikmenn með Arnari Grétars
Arnar Grétarsson var gestur við hringborðið á X977 og ræddi við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson um íslenska fótboltann. Pepsi-deild karla, Eiður Smári Guðjohnsen og ungir leikmenn voru meðal umræðuefna.

Hnitmiðuð yfirferð yfir neðri deildirnar
Hvaða lið hafa náð að klifra upp um deild og hvaða lið færast neðar? Magnús Már Einarsson skoðaði neðri deildirnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Magnús.

Innkastið - Rauða spjaldið sem klauf heiminn
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann og líta víðar um Evrópu í Innkastinu. Riðlakeppni Meistaradeildarinnar fer af stað á morgun og var sú keppni auðvitað einnig í sviðsljósinu.

Innkastið - Þjálfaraslúður og pirraðir stuðningsmenn
18. umferðin í Pepsi-deildinni fór fram um helgina og er nóg að ræða eftir hana. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir málin í Innkastinu.

Einkunnir leikmanna Íslands í undankeppni HM
Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson gerðu upp liðna landsliðstörn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir fóru meðal annars yfir meðaleinkunnir leikmanna Íslands nú þegar riðlakeppnin í undankeppni HM er hálfnuð.

Bestur í 16. umferð: Mitt langbesta tímabil
Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur átt frábært sumar með Valsmönnum. Hann vann sér inn byrjunarliðssæti fyrir tímabilið og hefur leikið gríðarlega vel. Einar, sem er fæddur 1993, skoraði bæði mörk Valsmanna í 2-0 sigri gegn Grindavík þann 21. ágúst og hefur verið valinn leikmaður 16. umferðar. Einar var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Stórsigur Man City á Liverpool gerður upp af Kristjáni Atla
Manchester City vann 5-0 sigur gegn Liverpool í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar eftir landsleikjahlé. Leroy Sane og Gabriel Jesus skoruðu báðir tvívegis og Sergio Aguero skoraði eitt. Stóra málið í leiknum var þó rauða spjaldið sem Sadio Mane í liði Liverpool fékk.

Hitað upp fyrir Pepsi-umferðina með Jörundi Áka
18. umferð Pepsi-deildar karla fer fram um helgina. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Jörund Áka Sveinsson um leikina framundan. Einnig var rætt um goðsögnina Marco van Basten sem sat við hlið Jörundar á landsleik Íslands og Úkraínu.

Innkastið - Ofdekraðir af geggjuðu landsliði
Allt er galopið í riðli Íslands eftir sigurinn frábæra gegn Úkraína. Tryggvi Guðmundsson var heillaður af frammistöðu íslenska liðsins í seinni hálfleiknum. Tryggvi fór yfir leikinn með Elvari Geir Magnússyni og Daníel Moritz í kjallara Laugardalsvallar.

Gluggayfirferð með Tómasi og Kristjáni Atla
Sumarglugganum var skellt í lás í liðinni viku. Háum fjárhæðum var eytt í leikmenn og nóg af hræringum á lokadegi gluggans Tómas Þór Þórðarson og Kristján Atli Ragnarsson gerðu gluggann upp og fóru yfir helstu fréttir gluggadagsins í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Hitað upp fyrir landsleikinn með Kristjáni Guðmunds
Klukkan 16 hefst leikur Finnlands og Íslands í undankeppni HM en leikið er í Tampere. Tómas Þór Þórðarson og Kristján Guðmundsson hituðu upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hlustaðu á upphitunina í spilaranum hér að ofan.

Innkastið - Miður sín vegna Arsenal
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann og líta víðar um Evrópu í Innkastinu. Daníel er stuðningsmaður Arsenal og var lítill í sér í þætti dagsins. Elvar lagði sitt mat á leikmannahópi Arsenal.

Innkastið - Glaðir Valsarar og fáránleg hegðun þjálfara
17. umferðin í Pepsi-deildinni fór fram í gær og þar var líf og fjör. Elvar Geir Magnússon, Gunnar Birgisson og Magnús Már Einarsson fóru yfir málin í Innkastinu.

Landsliðsumræða úr útvarpsþættinum
Á föstudag var landsliðshópur Íslands sem mætir Finnlandi og Úkraínu í undankeppni HM opinberaður. Leikurinn gegn Finnum fer fram í Tampere laugardaginn 2. september og hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma en leikurinn gegn Úkraínu verður á Laugardalsvelli þriðjudaginn 5. september kl. 18:45. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um landsliðsvalið og leikinn gegn Finnum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Enska hringborðið - Gylfi, Coutinho og Liverpool
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Kristján Atla Ragnarsson á kop.is við enska hringborðið. Aðaláherslan var á umræðu um Liverpool. Coutinho, Meistaradeildin og komandi leikur við Arsenal koma við sögu. Einnig var rætt um Gylfa og ýmislegt annað.

Pepsi-yfirferð - Heil umferð leikin á morgun
Heil umferð verður leikin í Pepsi-deild karla á morgun. Þar á meðal er stórleikur Stjörnunnar og FH. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Hörð Snævar Jónsson á 433.is um komandi leiki.

Innlit í Inkasso - Bara Keflavík og Fylkir eiga erindi upp
Rætt var um Inkasso-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Magnús Má Einarsson. Fallbaráttunni er lokið en það er enn spenna í toppbaráttunni. Keflavík og Fylkir eru einu liðin sem eiga erindi upp. Varnarmaður Keflavíkur kemur til greina sem leikmaður mótsins.

Innkastið - Gamanferð og rauður her í Meistaradeildinni
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann og líta víðar um Evrópu í Innkastinu. Þátturinn þessa vikuna var tekinn upp strax eftir að Liverpool hafði tryggt sér Meistaradeildarsæti með því að leggja Hoffenheim. Elvar sagði frá ferð sinni með Gaman Ferðum á Tottenham - Chelsea og Man City - Everton.

Innkastið - Fellur lið með metfjölda stiga?
Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir 16. umferð Pepsi-deildarinnar í Innkastinu í dag

Ítalski boltinn - Upphitunarþáttur
Í þessum upphitunarþætti beint frá Flórens á Ítalíu verður farið yfir breytingarnar á liðunum í ítölsku deildinni sem hefst nú um helgina. Bonucci fór frá Juventus til AC Milan, Napoli er með óbreytt lið og brunaútsala virðist vera hjá Fiorentina. Hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari Serie-A í lok tímabilsins?

Pepsi-yfirferð - Fólkið í landinu valdi þá bestu
Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Tómas Þór Þórðarson tóku góða yfirferð um Pepsi-deildina á X977. Farið var yfir val fólksins í stúkunni á bestu leikmönnum deildarinnar og einnig rýnt í komandi leiki.

Enska hringborðið - Everton og Gylfi í brennidepli
Kaup Everton á Gylfa Sigurðssyni voru að sjálfsögðu fyrirferðamikil í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson voru í gasklefanum. Magnús Már Einarsson var í Liverpool þegar gengið var frá kaupunum og sagði frá heimsókn sinni þangað og spjalli sínu við Gylfa og enska sérfræðinga. Blaðamaðurinn Magnús Geir Eyjólfsson var einnig á línunni alla leið frá Georgíu en hann er granítharður stuðningsmaður Everton.

Innkastið - Blásið til leiks í skemmtilegustu deild heims
Evrópu-Innkastið snýr aftur eftir sumarfrí. Vikulega á tímabilinu munu Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir það helsta í Evrópufótboltanum. Sérstök áhersla er á enska boltann og Meistaradeildina. Reglulega koma góðir gestir til þeirra en í fyrsta þættinum voru þeir tveir að fara yfir málin. Þátturinn var tekinn upp strax eftir 2-1 sigur Liverpool gegn Hoffenheim í umspili fyrir Meistaradeildina.

Innkastið - Óverðskuldað dómaradrull, Eyjastuð og falldraugur yfir Kópavogi
Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræða um íslenska fótboltann í Innkastinu. Óvæntur sigur ÍBV í bikarnum, fjórir leikir í Pepsi-deildinni og Evrópuverkefni FH eru til umræðu.

Hjörvar Hafliða ræðir tímabilið í enska boltanum
13 mörk hafa litið dagsins ljós í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Hjörvar Hafliðason kíkti í heimsókn í útvarpsþátt Fótbolta.net á X-inu í dag.

Hitað upp fyrir bikarúrslitin með Tryggva Guðmunds
FH og ÍBV mætast í úrslitum í Borgunarbikar karla klukkan 16:00 í dag.

Chelsea innkastið- Þunnskipaðasti hópurinn í deildinni
Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Í þessari viku hefur enska innkastið verið á dagskrá hér á Fótbolta.net en þar er rætt við stuðningsmenn liðanna sem enduðu í topp sex á síðasta tímabili.

Manchester United Innkastið - Vilja sjá 4-4-2 á heimavelli
Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Í þessari viku er enska innkastið á dagskrá hér á Fótbolta.net en þar er rætt við stuðningsmenn liðanna sem enduðu í topp sex á síðasta tímabili.

Innkastið - Baráttan harðnar á toppi og botni Pepsi-deildarinnar
Innkastið er á sínum stað eftir allar umferðir í Pepsi-deild karla. Þeir Magnús Már Einarsson, Elvar Geir Magnússon og Gunnar Birgisson fóru yfir 14. umferðina. Íslandsmeistarar FH héldu lífi í toppbaráttu deildarinnar með því að vinna Val, Stjarnan var í stuði gegn Breiðabliki, Ólsarar unnu Grindvíkinga sem eru að hrapa niður töfluna, jafntefli í veðravíti á Skaganum, jafntefli var niðurstaðan í Grafarvogi og í Fossvogi.

Arsenal Innkastið - Stendur upp í hárinu á Wenger
Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld þegar Arsenal mætir Leicester. Í þessari viku er enska innkastið á dagskrá hér á Fótbolta.net en þar er rætt við stuðningsmenn liðanna sem enduðu í topp sex á síðasta tímabili.

Manchester City innkastið - Bakverðir eins og Usain Bolt
Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið. Næstu dagana verður enska innkastið á dagskrá hér á Fótbolta.net en þar er rætt við stuðningsmenn liðanna sem enduðu í topp sex á síðasta tímabili.