PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,815 episodes — Page 52 of 57

Innkastið - Jóhann Már fer yfir meistaratímabil Chelsea

Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, er sérstakur gestur í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Chelsea hefur tryggt sér enska meistaratitilinn og því blásum við til Meistara-Innkasts.

May 16, 2017

Innkastið - Þrumustuð og stórslagur í þriðju umferð

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina og bikarkeppnina.

May 16, 2017

Siggi Lár: Óli og Bjössi stærsta ástæðan fyrir því að ég var áfram

Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Vals, kom í ítarlegt viðtal í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardaginn. Valsmenn hafa farið virkilega vel af stað í Pepsi-deildinni og unnið báða leiki sína af öryggi.

May 15, 2017

4. deildar Innkastið - Spáin fyrir sumarið og lið ársins 2016

Sjálftitluðu 4. deildar sérfræðingarnir Ingólfur Sigurðsson og Runólfur Trausti snúa hér aftur í þætti tvö af 4. deildar Innkastinu.

May 15, 2017

Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 3. umferðina

Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon ræddu helstu tíðindi deildarinnar og spáðu í spilin fyrir komandi umferð.

May 13, 2017

Inkasso-yfirferð með Davíð Snorra

Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, er útvarpsþættinum Fótbolti.net til halds og trausts þegar kemur að því að fylgjast með Inkasso-deildinni. Annarri umferð deildarinnar er að ljúka og var farið yfir málin í þættinum í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Davíð og er hægt að heyra umræðuna í spilaranum hér að ofan.

May 13, 2017

Ítalski boltinn - Juventus

Í vikunni komst Juventus í úrslitaleik meistaradeildarinnar og er því við hæfi að podcast vikunnar fjalli um la vecchia signora - Gömlu dömuna. Liðið er sigursælasta félagslið Ítalíu frá upphafi og hefur unnið ítölsku deildina síðastliðin fimm ár. Í þættinum verður fjallað um skrautlegu eigendafjölskyldu liðsins, Danina tvo sem léku með Juventus og hétu sama nafni, stórkostlega markmannssögu félagsins og auðvitað einn besta leikmann félagsins frá upphafi sem var einmitt frá Wales, þar sem úrslitaleikur meistaradeildarinnar fer fram í júní.

May 12, 2017

Innkastið - Vinavellir hrópa á Ajax og Man Utd

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir dramatískt Evrópudeildarkvöld og ræddu ýmislegt fleira í Evrópu-Innkasti kvöldsins. Daníel var með fréttaskýringu varðandi baráttuna um að enda í topp fjórum í ensku úrvalsdeildinni og Elvar fór yfir uppgang Ajax og ferð sína til Englands.

May 11, 2017

Championship-Innkastið - Áhugaverðir eigendur og stórveldi með peninga

Keppni í ensku Championship deildinni lauk um helgina eftir maraþon tímabil. Newcastle og Brighton eru komin upp í ensku úrvalsdeildina en framundan er umspil hjá Reading, Sheffield Wednesday, Huddersfield og Fulham um síðasta lausa sætið. Gunnar Sigurðarson, Gunnar á völlum, og Viðar Ingi Pétursson fylgjast með hverju sparki í Championship deildinni. Magnús Már Einarsson settist niður með þeim og fór yfir tímabilið í ástríðunni í Championship.

May 11, 2017

Skotarnir í FH mættu í gott spjall í útvarpsþættinum

Skotarnir í FH, Steven Lennon og Robbie Crawford, voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardaginn og ræddu þar við Tómas Þór Þórðarson.

May 11, 2017

Innkastið - Fyrsta stígvélið kom snemma í Kópavogi

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina líka.

May 10, 2017

Gummi Tóta vonast til að geta gefið út fleiri lög

Guðmundur Þórarinsson var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardaginn. Þar ræddi hann meðal annars frabært mark sem hann skoraði í 3-3 jafntefli Norrköping og Djurgarden í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum. Guðmundur telur að markið sé það flottasta á ferlinum hingað til.

May 8, 2017

Upptaka - Tryggvi skoðar aðra umferðina í Pepsi

Tryggvi Guðmundsson var á línunni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í gær. Tryggvi skoðaði þar aðra umferðina í Pepsi-deildinni sem er framundan.

May 7, 2017

Ítalski boltinn - Calcio, trequartista, regista, metronome

Ítalski boltinn er Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti er fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Farið er yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.

May 5, 2017

Innkastið - Lambabaka, markaleysi, fall og dýfur

Daníel Geir Moritz reif sig upp úr veikindum til að fara yfir boltann með Elvari Geir Magnússyni í Evrópu-Innkasti vikunnar. Daníel var um helgina á leik Crystal Palace og Burnley og kom með skýrslu frá þeirri ferð þar sem hann smakkaði meðal annars lambaböku.

May 3, 2017

Innkastið - Stig fuku í óvæntar áttir í fyrstu umferð

Íslenska útgáfan af Innkastinu verður á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina líka. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum. Í dag eru allir leikir fyrstu umferðar skoðaðir og er Brynjar Ingi Erluson með þeim en hann skrifaði um viðureign KR og Víkings R. þar sem óvæntustu úrslitin litu dagsins ljós.

May 2, 2017

Inkasso-hringborðið - Hitað upp fyrir deildina

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru á sínum stað í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Þar var veglegt hringborð þar sem hitað var upp fyrir Inkasso-deildina, 1. deild karla. Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, og Magnús Már Einarsson voru sérstakir sérfræðingar.

Apr 30, 2017

Pepsi-hringborðið - Grétar Sigfinnur nýr sérfræðingur

Pepsi-deildin er að hefjast og það var heljarinnar Pepsi-hringborð á X-inu FM 97,7 þar sem hitað var upp í átökin. Nýr sérfræðingur útvarpsþáttarins, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, mætti stúdíó. Grétar spilar í dag fyrir Þrótt og er gríðarlega sigursæll í íslenska boltanum og þekkir vel inn í félög Pepsi-deildarinnar.

Apr 29, 2017

Ítalski boltinn - Crotone

Í þessari viku heimsækjum við fallbaráttuliðið Crotone sem kemur úr dýpsta mafíulandi Suður-Ítalíu. Þar finnum við forseta sem þurfti að segja af sér vegna of náinna tengsla við 'Ndrangheta mafíuna, heimavöll sem er byggður á fornminjasvæði og stuðningsmannasveit sem er nefnd í höfuðið á stærðfræðingnum og heimspekingnum Pýþagorasi. Ítalski boltinn er Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti er fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Farið er yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.

Apr 28, 2017

Innkastið - Jákvætt og neikvætt af Messi og Ronaldo

Það er komið að Evrópu-Innkasti vikunnar en aðra vikuna í röð er það á fimmtudagskvöldi. Rætt er um leik Manchester United og Manchester City í kvöld sem endaði með markalausu jafntefli.

Apr 27, 2017

Heimir Guðjóns: Höfum reynt að laga sóknarleikinn

„Það er ljóst að það verður erfiður róður að verja þennan titil því það eru mörg lið sem gera tilkall og hafa verið að spila mjög vel á undirbúningstímabilinu," segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH, í viðtali við Fótbolta.net fyrir komandi tímabil.

Apr 27, 2017

Óli Jó: Samkeppnisfærir um að vinna þetta mót

Valsmenn hafa litið vel út á undirbúningstímabilinu og er þeim spáð 2. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Ólafur Jóhannesson, þjálfari liðsins, fékk sér kaffibolla á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi komandi tímabil.

Apr 26, 2017

Willum: Synirnir mínir hörðustu gagnrýnendur

Willum Þór Þórsson var valinn þjálfari ársins af Fótbolta.net í fyrra en hann tók við KR þegar liðið var í fallhættu en skilaði því í Evrópukeppni. Hann gerði áframhaldandi samning eftir tímabilið og er KR-ingum er spáð þriðja sætinu í Pepsi-deildinni í fyrra.

Apr 25, 2017

Rúnar Páll: Bærinn fer á hliðina við þetta

„Ég held að ekkert lið eigi eftir að stinga af eins og gerðist með FH í lokaumferðunum í fyrra. Þó að við höfum hafnað fjórum stigum frá þeim þá voru þeir búnir að vinna þetta þegar tvær umferðir voru eftir. Ég held að mótið verði jafnara núna. Það getur ekkert lið farið inn í leik með öruggan sigur," segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, um Pepsi-deildina sem er framundan í sumar. Garðbæingar enduðu í 2. sæti í fyrra og vilja ná að gera atlögu að titlinum í ár.

Apr 24, 2017

Höddi Magg um Pepsi-mörkin og deildina framundan

Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær. Flautað verður til leiks í Pepsi-deildinni sunnudaginn 29. apríl. Í fyrri hluta spjallsins við Hörð sagði hann frá því með hvaða hætti Pepsi-deildinni verður gerð skil í sjónvarpinu í sumar en veislan hefst með upphitunarþætti næsta föstudagskvöld.

Apr 23, 2017

Tryggvi færir ÍBV og KR - Veðbanki Elvars og Tómasar

Þegar rúm vika er í Pepsi-deildina var hitað vel upp fyrir komandi átök í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson spáðu í spilin með sérfræðingnum Tryggva Guðmundssyni.

Apr 22, 2017

Tryggvi Páll: Væri 'game over' hjá öðrum en Zlatan

„Það bendir til þess að hann hafi slitið allt í hnénu í drasl. Við erum að tala um einhverja 8-9 mánuði frá. Þetta lítur illa út," sagði Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is um meiðsli Zlatan Ibrahimovic, sóknarmanns Manchester United. Þessi 35 ára Svíi meiddist illa í sigri United gegn Anderlecht í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöld.

Apr 22, 2017

Arnar Grétars: Reynum að gera atlögu að titlum

„Ég átti alveg eins von á þessu. Undirbúningstímabilið hefur ekki verið frábært og þetta kemur ekki á óvart," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, um spá Fótbolta.net en liðinu er spáð 5. sæti.

Apr 21, 2017

Ítalski boltinn - Atalanta

Í þessari viku heimsækjum við kannski bestu unglingaakademíu Ítalíu, síðhærða glaumgosa sem fengu bönn vegna fíkniefnanotkunar og veðmálasvindls en fyrst og fremst heimsækjum við borgina Bergamo við Alparætur, spútniklið Serie-A í ár: Atalanta. Ítalski boltinn er Podcast í umsjón <b>Björns Más Ólafssonar</b>. Í hverjum þætti er fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Farið er yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.

Apr 21, 2017

Innkastið - Bestur í vörn og mest á bekk

Eftir nauman sigur Manchester United gegn Anderlecht í kvöld var Evrópu-Innkast vikunnar tekið upp. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir allt það helsta.

Apr 20, 2017

Gústi Gylfa: Það er ekki fyrsta summan sem skiptir öllu máli

„Þetta er kannski raunhæft miðað við það sem hefur gert frá því í fyrra. Við vorum í 4. sæti þá og grátlega nálægt því að komast í Evrópukeppnina," segir Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, en liðinu er spáð 6. sæti í sumar af Fótbolta.net.

Apr 20, 2017

Túfa: Umræðan um okkur hefur bara snúist um peninga

Srdjan Tufegdzic, eða Túfa eins hann er kallaður, er þjálfari nýliða KA í Pepsi-deildinni en KA er spáð 7. sæti. Túfa kom hingað til lands upphaflega sem leikmaður í KA árið 2006. Í viðtali við Fótbolta.net fyrir komandi tímabil segir Túfa frá aðdragandandanum að því að hann hingað til lands.

Apr 19, 2017

Milos: Ekki eðlilegt að leikmenn fari á skíði eða snjóbretti

„Við höfum bætt okkur síðustu fjögur ár í stigastöfnun, stöðugleika og spilamennsku. Við ætlum að gera það líka í ár og ég og leikmenn verðum ekki sáttir ef við endum í 8. sæti," segir Milos Milojevic en Fótbolti.net spáir liðinu 8. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Milos setur markið hærra.

Apr 18, 2017

Kristján Guðmunds: Allt annar veruleiki en liðin á höfuðborgarsvæðinu upplifa

„Liðinu er spáð sama gengi og undanfarin ár. Sérfræðingar telja að við höfum ekki bætt okkur nógu mikið í vetur og við þurfum að taka þessu," segir Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, um spá Fótbolta.net fyrir Pepsi-deildina en Eyjamönnum er spáð níunda sætinu í sumar.

Apr 17, 2017

Evrópurúntur með Magga og Elvari - Meistaradeildin og þeir bestu í enska

Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson ræddu um Evrópufótboltann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.

Apr 15, 2017

Ítalski boltinn - Sampdoria

Í dag heimsækjum við Sampdoria. Þar finnum við framherja sem skorar bara flott mörk og glímdi við eltihrelli í mörg ár, skallaörninn frá Genoa sem er vinsæll í Crystal Palace og Roberto Mancini sem stjórnaði öllu jafnvel þótt hann væri bara leikmaður. Og hvað er málið með að framherjar í dag eru hættur að sóla markvörðinn?

Apr 14, 2017

Gulli Jóns: Veturinn erfiður varðandi áföll

„Við ætlum okkur að vera ofar," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, við Fótbolta.net. Skagamenn eru í tíunda sæti í spá okkar fyrir Pepsi-deildina en liðið hafnaði í því áttunda í fyrra.

Apr 14, 2017

Óli Stefán: Horfði til Conte hjá Juventus þegar ég pældi í 3-5-2

„Það er ljóst að okkar fyrsta markmið er að forðast fallsætin tvö," segir Óli Stefán Flóventsson, þjálfari nýliða Grindavíkur. Grindvíkingum er spáð 11. sæti og þar með falli í spá Fótbolta.net. Óli segir að hópurinn sé í góðum málum varðandi líkamlegt form og taktík nú þegar styttist í mót en hann vill ná að bæta við hópinn áður en flautað verður til leiks.

Apr 13, 2017

Ejub: Spyr stundum hvort það sé í lagi með þetta fólk?

„Við endum ekki í fallsæti. Trúin og vonin deyr síðast. Ég hef alltaf trú á sjálfum mér, liðinu og fólkinu í kringum mig. Ég finn einhverja leið til að berjast og halda Víkingi í efstu deild í allavega eitt ár í viðbót," segir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur, en Fótbolti.net spáir liðinu botnsætinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Apr 12, 2017

Innkastið - Enginn hræddur við Arsenal

Meistaradeildin og enski boltinn taka mikið pláss í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en við kíkjum einnig til Spánar, Þýskalands, Ítalíu, Noregs og Ísafjarðar svo eitthvað sé nefnt. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz horfðu á Arsenal tapa gegn Crystal Palace og ræddu síðan málin.

Apr 10, 2017

Eyjamenn gestir í útvarpinu: Höfum ekki áhuga á fallbaráttu

Tveir leikmenn ÍBV voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardaginn, miðvörðurinn Hafsteinn Briem og færeyski landsliðsbakvörðurinn Jónas Þór Næs. Hafsteinn var besti leikmaður ÍBV í fyrra en Jónas, sem lék með Val 2011-2013, gekk í raðir Eyjamanna í vetur eftir að hafa leikið heima í Færeyjum síðustu ár.

Apr 10, 2017

Þrjár vikur í Pepsi-deildina - Hvað eigum við í vændum?

Pepsi-deildin hefst 30. apríl en hitað var upp fyrir deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Elvar Geir Magnússon ræddi við Loga Ólafsson um það hvað við eigum í vændum í sumar. Þá fór Tómas Þór Þórðarson yfir það hvar liðin í deildinni þurfa að styrkja sig.

Apr 9, 2017

Ekki hægt að segja að tímabilið sé ásættanlegt hjá Man City

„Ég held að það sé ekki hægt að segja að þetta tímabil sé ásættanlegt," segir Þórgnýr Einar Albertsson, blaðamaður á Fréttablaðinu og stuðningsmaður Manchester City. Þórgnýr var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag.

Apr 8, 2017

Ítalski boltinn - Torino

Í þessari viku heimsækjum við Joe Hart og félaga í vínrauða hluta Tórínóborgar. Félagið Torino vann eitt sinn ítölsku deildina fjögur ár í röð og var á þeim tima eitt besta félagslið heims, ef ekki það besta. En flugslys batt enda þá sigurgöngu. Fjallað verður um fyrirliðann sem spilaði fyrst fyrir bílaframleiðandann Alfa Romeo. Við heimsækjum líka enskumælandi markvörð sem ætlaði að læra ítölsku og Juventus-forsetann Alfred Dick, sem síðar stofnaði erkifjendurna Torino.

Apr 7, 2017

Innkastið - Aukaþáttur: Viðurðarík vika í enska

Evrópu-Innkastið er með aukaþátt þessa vikuna enda nóg um að vera. Leikið var í ensku úrvalsdeildinni núna í miðri viku en þar bar hæst stórleikur Chelsea og Manchester City. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fóru yfir umræðuna í þessum aukaþætti.

Apr 6, 2017

Innkastið - Skálað fyrir örnunum

Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru komnir úr landsleikjafríi og fara yfir enska boltann í Evrópu-Innkastinu. Einnig er horft til helstu tíðinda úr stærstu deildum Evrópu. Það er áhugaverð helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni og margt að ræða!

Apr 3, 2017

Rúnar Alex: Gaf ekki tækifæri á að setja mig á bekkinn

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið að standa sig mjög vel hjá danska úrvalsdeildarliðinu Nordsjælland. Liðið hefur verið á flottu skriði með Íslendinginn sjóðheitan í markinu.

Apr 3, 2017

Landsliðshringborð - Meðaleinkunnir leikmanna Íslands

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson gerðu upp liðna landsliðstörn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Þeir fóru meðal annars yfir meðaleinkunnir leikmanna Íslands nú þegar riðlakeppnin í undankeppni HM er hálfnuð.

Apr 2, 2017

Kristján Atli sótillur þrátt fyrir sigur Liverpool

Kristján Atli Ragnarsson, ritstjóri á kop.is, fór yfir 3-1 sigur Liverpool gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag. Þrátt fyrir sigurinn var Kristján sótillur út í leikplan Everton og frammistöðu dómarans.

Apr 1, 2017

Norski boltinn byrjar að rúlla í dag

Keppni í norsku úrvalsdeildinni fer af stað en opnunarleikurinn er viðureign Kristiansund og Molde. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Andra Júlíusson, sérfræðing um norska boltann, í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Skoðuð var spá fyrir deildina og rætt um Íslendingana sem þar spila. Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.

Apr 1, 2017