PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,815 episodes — Page 51 of 57

Liverpool innkastið - Skype fundur Klopp og Van Dijk frá Dalvík

Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið. Næstu dagana verður enska innkastið á dagskrá hér á Fótbolta.net en þar er rætt við stuðningsmenn liðanna sem enduðu í topp sex á síðasta tímabili.

Aug 8, 2017

Tottenham innkastið - Nýr Walker í bakverðinum

Boltinn byrjar að rúlla á nýjan leik í ensku úrvalsdeildinni á föstudagskvöldið. Næstu dagana verður enska innkastið á dagskrá hér á Fótbolta.net en þar er rætt við stuðningsmenn liðanna sem enduðu í topp sex á síðasta tímabili.

Aug 8, 2017

4. deildar Innkastið - Línur farnar að skýrast

Það er komið að fjórða þætti af 4. deildar Innkastinu þetta tímabilið. Ingólfur Sigurðsson og Runólfur Trausti fara yfir málin. Nú styttist í úrslitakeppnina og línur í riðlunum farnar að skýrast. Þá er vika síðan félagaskiptaglugganum var lokið og nóg að ræða!

Aug 8, 2017

Fótboltafréttir vikunnar - Neymar, Gylfi, enski boltinn og fleira

Farið var yfir helstu fótboltamálin í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Ofurleikurinn í Laugardal, Neymar, Gylfi, FH, enska úrvalsdeildin, Samfélagsskjöldurinn og fleira ber á góma. Elvar Geir Magnússon, Benedikt Bóas Hinriksson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir málin í hljóðveri.

Aug 5, 2017

Innkastið - Stúkulæti, Skagakrísa og KR sýning

Innkastið er á sínum stað eftir allar umferðir í Pepsi-deild karla. Þeir Magnús Már Einarsson og Elvar Geir Magnússon fóru yfir 13. umferðina en fimm leikjum er lokið þar. Umferðinni lýkur síðan á laugardag þegar FH heimsækir KA á Akureyri.

Aug 1, 2017

Halló Akureyri - Rígur KA og Þórs lifir

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn var rætt við þjálfara Akureyrarliðanna Þórs og KA. Þórsarar hafa verið á flottu skriði í Inkasso-deildinni eftir erfiða byrjun og eru nú þremur stigum frá öðru sætinu. KA-menn fóru af stað í Pepsi-deildinni með miklum látum en stigasöfnunin hefur ekki verið eins góð upp á síðkastið og liðið er um miðja deild.

Jul 31, 2017

GunnInga: Það er enginn krísufundur

„Laugardagurinn var erfiðastur. Maður var ekki undir það búin að vera úr leik eftir tvo leiki," Guðrún Inga Sívertsen, GunnInga varaformaður KSÍ, í viðtali í Útvarpsþættinum Fótbolta.net í dag. GunnInga var ásamt fjölmörgum starfsmönnum KSÍ á EM í Hollandi og fylgdist með íslenska kvennalandsliðinu. Hún sá um undirbúning fyrir mótið og sinnti fleiri verkefnum. „Maður lærir af þessu, þetta er dýrmæt reynsla í reynslubankann."

Jul 29, 2017

Pepsi-yfirferð - Gluggafréttir og leikirnir framundan

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Magnús Má Einarsson um umferðina framundan í Pepsi-deildinni. Skoðað hvað hefur gerst í deildinni að undanförnu og hvernig liðunum hefur gengið að styrkja sig.

Jul 29, 2017

EM Innkastið - Mót sem skráist sem vonbrigði

Síðasta EM Innkastið frá Hollandi er sent út frá hóteli íslensku fjölmiðlamannana, Hof van Putten. Elvar Geir Magnússon, Arnar Daði Arnarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir málin, sirka sólarhring eftir að Ísland tapaði fyrir Sviss. Ljóst er að stelpurnar okkar eru úr leik fyrir lokaumferð riðilsins.

Jul 23, 2017

Alex Freyr: Þetta var eins og hjónaband sem var búið

Alex Freyr Hilmarsson hefur verið mjög öflugur í liði Víkings R. í Pepsi-deildinni í sumar. Alex var valinn í úrvalslið umferða 1-11 hjá Fótbolta.net. Alex var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í gær.

Jul 23, 2017

Bestu mennirnir í Pepsi og þeir sem þurfa að stíga upp

Magnús Már Einarsson fékk Magnús Þór Jónsson, fréttaritara Fótbolta.net, í heimsókn í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag. Þeir nafnar fóru þá yfir fyrri umferðina í Pepsi-deildinni og skoðuðu hvert lið fyrir sig.

Jul 22, 2017

EM Innkastið - Emmsjé, svekkelsi og Amazing Race

EM Innkastið að þessu sinni er frá hóteli íslensku fjölmiðlamannana, Hof van Putten. Elvar Geir Magnússon, Arnar Daði Arnarsson og Guðmundur Marinó Ingvarsson fengu sér sæti í hótelgarðinum, létu renna í bjóra og spjölluðu um lífið í Hollandi. Aðalmálið er náttúrulega leikurinn gegn Frakklandi í gær sem tapaðist á ansi svekkjandi hátt.

Jul 19, 2017

Innkastið - Óútreiknanleg Pepsi-deild

Innkastið er á sínum stað eftir allar umferðir í Pepsi-deild karla. Þeir Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir 11. umferðina í dag en Elvar Geir Magnússon var fjarri góðu gamni þar sem hann er staddur á EM í Hollandi. Í Innkasti dagsins var farið vel yfir 11. umferðina og staðan í deildinni skoðuð eftir hálft mót.

Jul 18, 2017

EM Innkastið - Frá Konungsvelli í Tilburg

EM Innkastið er sent út frá Hollandi meðan Ísland er með á Evrópumótinu. Fyrsti leikur stelpnanna okkar er gegn Frakklandi á morgun og er hitað upp fyrir leikinn í fyrsta þætti. Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson fóru yfir málin ásamt Hauki Harðarsyni, íþróttafréttamanni á RÚV, sem lýsir leiknum. Innkastið var tekið upp á hinum konunglega Willem II leikvangi í Tilburg þar sem leikurinn á morgun fer fram.

Jul 17, 2017

Ítalski boltinn - Calcio Femminile

Í tilefni af EM kvenna kemur út þessi sérstaki þáttur af Ítalska boltanum. Í þetta sinn er fjallað um ítalska kvennaknattspyrnu og lið Ítalíu á EM 2017. Er staða kvennaknattspyrnunnar og kvenréttina í landinu skoðuð og að lokum auðvitað farið yfir leikmannahóp liðsins og hvaða leikmenn það eru sem eiga að draga vagninn á mótinu.

Jul 17, 2017

Þeir bestu í umferðum 1-11 í Inkasso-deildinni

Það var veglegt Inkasso-hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Úrvalslið umferða 1-11 var opinberað ásamt besta leikmanninum og besta þjálfaranum. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Davíð Snorri Jónasson sátu við hringborðið.

Jul 15, 2017

Innkastið - Gleðiferð til Grindavíkur og óvæntustu úrslit sumarsins

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson voru svo spenntir fyrir nýju Innkasti að þeir gátu ekki beðið eftir því að 10. umferðin myndi klárast. Í Innkasti vikunnar er rætt um þá fjóra leiki sem eru að baki í umferðinni. Einnig koma Evrópuleikirnir framundan við sögu.

Jul 10, 2017

Eiður Aron: Fínt að prófa að búa í bænum einu sinni

Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur komið sterkur inn í lið Vals síðan hann kom frá þýska liðinu Holstein Kiel í maí. Hann hefur byrjað undanfarna leiki og spilað virkilega vel. „Þetta hefur verið skemmtilegt. Það er búið að ganga vel og það eru allir sáttir," sagði Eiður Aron þegar heyrt var í honum í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í hádeginu.

Jul 8, 2017

Davíð Þór og Beggi um tapið óvænta og Meistaradeildarleikinn

Leikmenn FH, Bergsveinn Ólafsson og fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson, voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Tómas Þór Þórðarson ræddi við þá um tímabilið, tapið óvænta gegn Víkingi Ólafsvík og komandi Meistaradeildarleik.

Jul 8, 2017

Rætt við Jörund Áka um Pepsi-deildina

Jörundur Áki Sveinsson fótboltaþjálfari ræddi við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson um Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rætt var um óvæntan sigur FH gegn Víkingi Ólafsvík í gær og þá leiki sem framundan eru.

Jul 8, 2017

Innkastið - Innflytjendur í íslenskum fótbolta

Það er sérstök aukaaútgáfa af Innkastinu, hljóðvarpsþætti Fótbolta.net, þessa vikuna. Rætt er um innflytjendur í íslenskum fótbolta. Elvar Geir Magnússon stýrði þættinum en hann ræddi við Þórð Einarsson, yfirþjálfara yngri flokka Leiknis í Breiðholti, og Hjalta Ómarsson, framkvæmdastjóra Retor Fræðslu, en hann hefur verið að starfa með liði Stál-úlfs sem stofnað var af innflytjendum.

Jul 4, 2017

Þórir Hákonar ræðir hugmyndir um þjóðarleikvanginn

Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um hugmyndir varðandi nýjan þjóðarleikvang. Nú styttist óðum í hina nýju Þjóðadeild en hætta er á því að Ísland neyðist til að spila heimaleiki erlendis þar sem leikið er um vetrartímann.

Jul 2, 2017

Inkasso-umræða og Eyjó um skoðun sína á sameinuðu Breiðholti

Inkasso-deildin var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, ræddi gang mála í deildinni. Þá var rætt við leikmann Stjörnunnar, Eyjólf Héðinsson, um umræðu um sameiningu Leiknis og ÍR. Eyjólfur er uppalinn ÍR-ingur og er með sterkar skoðanir á sameiningarmálum í Breiðholti. Hann vill sjá félögin sameina knattspyrnudeildir sínar undir nafni Breiðholts.

Jul 1, 2017

Helstu fótboltamálin rædd með Helga Sig

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu Helga Sigurðsson, þjálfara Fylkis, í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu. Rætt var um Fylkismenn og allar helstu fótboltamál vikunnar í íslenska boltanum. Meðal annars var rætt um það hvernig Íslandsmeistarar FH hafa verið að spila í sumar, hugsanlega komu Sölva Geirs Ottesen til FH, Evrópuframmistöðu íslensku liðanna, hrikalegan júnímánuð Stjörnunnar, 8-liða úrslit bikarsins og Sverri Inga í Rússlandi.

Jul 1, 2017

4. deildar Innkastið - Runólfur og Maggi Bö skoða Passion League

Það er komið að þriðja þætti af 4. deildar Innkastinu en að þessu sinni er Ingólfur Sigurðsson fjarri góðu gamni. Runólfur Trausti og Magnús Valur Böðvarsson, sem hefur verið helsti sérfræðingur um neðstu deild í mörg ár, ræða málin. Að sjálfsögðu er Afríka í brennidepli en liðið hefur verið mikið í fréttunum í vikunni eftir að það neitaði að spila leik gegn KFR vegna þess dómara sem KSÍ setti á leikinn.

Jun 30, 2017

Innkastið - Guðni Bergs í ítarlegu viðtali

Guðni Bergsson, formaður KSÍ, er gestur í Innkastinu á Fótbolta.net í dag. Guðni var kjörinn formaður KSÍ í febrúar og í Innkastinu ræðir hann fyrstu mánuðina í starfi.

Jun 30, 2017

Innkastið - Rifist um framherjamál Vals

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu um 9. umferð deildarinnar. Einnig ræddu þeir um 8-lið úrslit bikarsins.

Jun 27, 2017

Hreiðar Haralds: Andleg nálgun ætti að vera fastur liður í ferlinu

Íþróttasálfræðiráðgjafinn Hreiðar Haraldsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardaginn. Hreiðar ræddi þar við Elvar Geir Magnússon um andlega þáttinn í fótboltanum og hvort félög á Íslandi hugsi nægilega mikið um hann varðandi leikmenn sína.

Jun 26, 2017

EM kvenna hringborð - Íslenski hópurinn og stórmótið framundan

Þann 14. júlí heldur íslenska kvennalandsliðið til Hollands á Evrópumótið í Hollandi þar sem fyrsti leikurinn verður gegn stórliði Frakklands þann 18. júlí. Arnar Daði Arnarsson, fréttaritari Fótbolta.net og sérfræðingur um kvennaboltann, ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon um mótið framundan og íslenska hópinn sem valinn var á dögunum.

Jun 26, 2017

Freysi skoðar leikina í 9. umferð Pepsi-deildarinnar

Freyr Alexandersson þjálfari kvennalandsliðsins fór yfir leiki 9. umferðar Pepsi-deildar karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Elvar Geir Magnússon ræddi við hann, örstutt um kvennalandsliðið, og svo var komið að því að fara yfir leikina framundan í Pepsi-deildinni.

Jun 24, 2017

Innkastið - Stórveldi í djúpri lægð á meðan aðrir koma á óvart

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Magnús Már Einarsson er í sumarfríi en Elvar Geir Magnússon fékk til sín tvo góða menn til að fara yfir 8. umferðina. Ingólfur Sigurðsson og Daníel Geir Moritz tóku upp hnífinn til að kryfja leikina. Einnig er fjallað aðeins um Inkasso-deildina og brottrekstur Ásmundar Arnarssonar.

Jun 20, 2017

Pepsi-hringborðið - Vegleg upphitun fyrir 8. umferðina

Rætt var ítarlega um komandi umferð í Pepsi-deildinni í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Farið var yfir alla leikina og ýmsum spurningum velt fram. Getur Fjölnir fallið? Hverjar eru líkurnar á því að Valur verði meistari? Er rétta lausnin að reka Willum? og fleiri spurningar flugu. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu um allt það helsta. Einnig var Inkasso-deildin skoðuð.

Jun 17, 2017

Kristján Guðmunds um ÍBV og Álfukeppnina

Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, ræddi við Elvar og Tómas í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Rætt var um byrjun ÍBV á mótinu, síðasta leik gegn KR, lífið í Vestmannaeyjum og komandi leik gegn Grindavík. Þá var einnig rætt um Álfukeppnina í fótbolta sem mun lífga upp á boltaumræðuna næstu daga. Kristján er mikill aðdáandi Álfukeppninnar.

Jun 17, 2017

Elvar og Tómas ræða um Ronaldo, Færeyjar og landsliðið

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru mættir aftur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Fyrsti hluti þáttarins fór í að ræða um helstu mál fótboltans. Cristiano Ronaldo vill yfirgefa Spán, sagt er frá Færeyjarferð útvarpsþáttarins og loks rætt um íslenska landsliðið. Opinberað er hvaða leikmenn eru hæstir í einkunnagjöf Íslands í riðlinum.

Jun 17, 2017

Viðar: Menn í kringum liðið segja mér að ég eigi að kæra þá

Viðar Örn Kjartansson endaði sem markakóngur í Ísrael á fyrsta tímabili sínu þar en hann skoraði 24 mörk með Maccabi Tel Aviv. Viðar var gestur í útvarpsþætti Fóbolta.net um helgina þar sem hann ræddi tímabilið í Ísrael.

Jun 13, 2017

Innkastið - 65% líkur á sæti á HM

Ísland komst upp að hlið Króatíu á toppi riðilsins með 1-0 sigri í uppgjöri toppliðanna í kvöld. Hörður Björgvin Magnússon skoraði eina markið undir lokin eftir hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur Fótbolta.net, og Magnús Már Einarsson settust niður á Laugardalsvelli eftir leik og fóru yfir leikinn. Í þættinum.... Frábær varnarleikur Íslands, öxlin hans Harðar, likurnar á sæti á HM, betri blanda en malt og appelsín, Modric hvarf og var síðan afklæddur, stemningin í Laugardalnum, fjör í Finnlandi í september og margt fleira!

Jun 11, 2017

Einar Örn og Sigurbjörn Hreiðars rýna í leik Íslands og Króatíu

Ísland og Króatía mætast í toppslag í I-riðli í undankeppni HM á Laugardalsvelli á sunnudagskvöld klukkan 18:45.

Jun 9, 2017

Viðar Örn: Þessi umræða truflaði mig

Viðar Örn Kjartansson, framherji Maccabi Tel Aviv, er ekki í íslenska landsliðshópnum sem mætir Króatíu á sunnudaginn. Viðar byrjaði gegn Kósóvó í mars en hann var síðan ekki valinn í hópinn fyrir stórleikinn á sunnudaginn.

Jun 8, 2017

Grindvíkingar í spjalli - „Fuck you Tómas" uppi á vegg í klefanum

Grindavík er heitasta liðið í Pepsi-deildinni í dag en nýliðarnir eru jafnir og Stjörnunni og Val á toppnum. Andri Rúnar Bjarnason og Gunnar Þorsteinsson, leikmenn liðsins, kíktu í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net um helgina.

Jun 7, 2017

Innkastið - KR þarf að skipta um taktík

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar.

Jun 6, 2017

Landsliðshópurinn gegn Króatíu til umræðu

Á föstudaginn tilkynnti Heimir Hallgrímsson landsliðshópinn sem mætir Króatíu í stórleik á Laugardalsvelli næstkomandi sunnudag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um hópinn í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn. Fjarvera Theódórs Elmars Bjarnasonar og Viðars Arnar Kjartanssonar var meðal annars til umræðu.

Jun 6, 2017

Pepsi-hringborðið - Hitað upp fyrir 6. umferð með Grétari

Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson hituðu upp fyrir 6. umferð Pepsi-deildar karla i útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7.

Jun 4, 2017

Innkastið - Stig sem litlu breytir og Grindavíkurgleði

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum.

May 29, 2017

Davíð Kristján: Fékk að heyra það eftir Cheerios-auglýsinguna

Davíð Kristján Ólafsson, leikmaður Breiðabliks, var í viðtali sem tók óvænta stefnu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu.

May 28, 2017

Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 5. umferðina

Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Grétar um helstu tíðindi deildarinnar og spáðu í spilin fyrir komandi umferð.

May 27, 2017

Inkasso-yfirferð: Fjörug byrjun á deildinni

Inkasso-deildin, 1. deild karla, fer ákaflega skemmtilega af stað en fjórða umferðin er í fullum gangi.

May 27, 2017

Innkastið - Lokahóf ensku deildarinnar

Það er komið að Evrópu-Innkastinu en í þessum þætti er rætt um sigur Manchester United í Evrópudeildinni og enska úrvalsdeildin gerð upp. Farið er lauslega yfir tímabil allra liða í deildinni.

May 25, 2017

Innkastið - Samsæriskenningar og meistarar að elta

Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina og bikarkeppnina.

May 23, 2017

4. umferð Pepsi skoðuð og rætt um stórtíðindin úr Víkinni

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir 4. umferð Pepsi-deildarinnar á X-inu í dag. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur þáttarins, var á línunni. Rætt var um stóru fréttirnar úr Fossvoginum en Milos Milojevic varð í gær annar þjálfarinn í deildinni sem hverfur á braut.

May 20, 2017

Enska hringborðið - Tímabilið gert upp með Tryggva og Kristjáni

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson héldu að vanda um stjórnartaumana í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Enska hringborðið var dregið fram. Komin er inn upptaka af hringborðinu en sérfræðingar þáttarins, Tryggvi Páll Tryggvason af raududjoflarnir.is og Kristján Atli Ragnarsson af kop.is fóru yfir tímabilið og völdu úrvalslið tímabilsins og fleira.

May 20, 2017