
Audio is streamed directly from the publisher (utvarp.fotbolti.net) as published in their RSS feed. Play Podcasts does not host this file. Rights-holders can request removal through the copyright & takedown page.
Show Notes
Það var ekki amalegur gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 en Heimir Guðjónsson kom í heimsókn.
Það var víða komið við í spjalli við Heimi sem fór yfir ótrúlega blómlegan tíma hans í Kaplakrikanum og ræddi um næsta verkefni hans sem er að koma HB aftur á toppinn í Færeyjum.
Heimir var rekinn frá FH eftir síðasta tímabil þegar liðið endaði í þriðja sæti. Eftir tímabilið talaði Heimir um að þjálffræðilegt afrek hafi verið að ná FH í Evrópusæti.