
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 48 of 57

Arnþór og Davíð Atla: Treysta á að Rikki T hrökkvi í gang
Arnþór Ingi Kristinsson og Davíð Örn Atlason segja að leikmenn Víkings R. séu staðráðnir í að blása á hrakspár fyrir Pepsi-deildina í sumar. Fótbolti.net spáir Víkingi ellefta sæti í deildinni.

Bræðurnir í Keflavík: Liggur við að við förum í slag á æfingum
Bræðurnir Sindri Kristinn Ólafsson og Ísak Ólafsson eru fastamenn í liði Keflavíkur en liðið er komið upp í Pepsi-deildina á nýjan leik eftir tveggja ára fjarveru. Fótbolti.net spáir Keflavík 12. sæti í sumar en Sindri og Ísak kíktu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net í vikunni og ræddu um hitt og þetta.

Návígi - Óli Þórðar
Ólafur Þórðarson er gestur Gunnlaugs Jónssonar í hlaðvarpsþáttunum vinsælu Návígi í þessari viku.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 7. apríl
Komin er inn upptaka af nýjasta útvarpsþætti Fótbolta.net í heild sinni. Tómas Þór Þórðarson var einn við stjórnvölinn í fjarveru meðstjórnanda síns, Elvars Geirs Magnússonar sem er að fylgja íslenska kvennalandsliðinu. Þó var hringt í Elvar og staðan tekin. Þrjár vikur eru í að Pepsi-deildin hefjist og Baldur Sigurðsson miðjumaður Stjörnunnar var í viðtali. Þrjár vikur eru í að Pepsi-deildin hefjist og Baldur Sigurðsson miðjumaður Stjörnunnar var í viðtali. Kristinn Jakobsson formaður dómaranefndar KSÍ var á línunni en dómarar voru að ganga frá nýjum samningi við KSÍ. Þá var einnig fylgst með grannaslag Everton og Liverpool sem endaði markalaus. Magnús Þór Jónsson á Kop.is fékk símtal að leik loknum.

Innkastið - Nóg að frétta þrátt fyrir spennuleysi á toppnum
Innkastið er mætt aftur eftir landsleikjahlé. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoða það sem var í gangi í Evrópufótboltanum um páskahelgina. Enski boltinn er í aðalhlutverki að vanda en einnig kemur spænski og þýski boltinn til tals. Farið var yfir lista yfir bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar sem léku færri en 100 leiki og hitað upp fyrir Meistaradeildina.

Vetrarverðlaunin - Þeir bestu á íslenska undirbúningstímabilinu
Vetrarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn! Elvar Geir og Tómas Þór völdu þá leikmenn sem skarað hafa fram úr á undirbúningstímabilinu hér á Íslandi. Horft var til Reykjavíkurmótsins, Kjarnafæðismótsins, Fótbolta.net mótsins og Lengjubikarsins. Valinn var besti leikmaðurinn, besti þjálfarinn og besti ungi leikmaðurinn. Einnig besti markvörðurinn, besti varnarmaðurinn, besti miðjumaðurinn, besti sóknarmaðurinn og bestu kaupin í vetur!

Landsliðsvalið fyrir HM - Reynt að lesa hugsanir Heimis
Það er erfitt verkefni sem bíður Heimis Hallgrímssonar landsliðsþjálfara þegar kemur að því að velja HM hópinn þann 11. maí. Elvar Geir og Tómas Þór reyndu að lesa hugsanir Heimis í útvarpsþættinum og settu saman 23 manna hóp. Þeir pældu einnig í líklegu byrjunarliði gegn Argentínu þann 16. júní. Elvar var í Bandaríkjunum þar sem Ísland tapaði samtals 6-1 fyrir Mexíkó og Perú og sagði frá ferð sinni þangað.

Blikar spýta í lófana og skýrsla úr sigri Liverpool
Hlustaðu á klippu úr útvarpsþættinum Fótbolti.net sem var á X977. Í fyrri hluta klippunnar er rætt við Sigmar Inga Sigurðarson sem er kominn í nýtt starf sem Breiðablik setti á laggirnar. Sigmar er markaðs- og viðburðastjóri félagsins. Í seinni hlutanum gefur Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool, skýrslu eftir leik Crystal Palace og Liverpool sem Liverpool vann eftir að hafa lent undir.

Návígi - Veigar Páll
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Veigar Páll Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar. Veigar er nýfarinn að snúa sér að þjálfun en í samtali við Gunnlaug fer hann yfir feril sinn sem var heldur betur tíðindamikill, bæði með félagsliðum hér heima og erlendis og einnig landsliðinu.

Ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag var í þriðja skipti í vetur birt ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina í sumar. Benedikt Bóas Hinriksson, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir öll liðin. Mánuður er í að keppni í Pepsi-deildinni hefjist og spennan er að magnast.

Landsliðshringborð - Mexíkó leikurinn krufinn
Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson sáu um útvarpsþátt Fótbolta.net á X-inu í dag.

Návígi - Rúnar Kristins
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Rúnar Kristinsson, þjálfari KR. Rúnar tók við KR síðastliðið haust eftir að hafa undanfarin ár þjálfað Lokeren í Belgíu og Lilleström í Noregi. Á ferli sínum sem leikmaður spilaði Rúnar með öllum þessum félögum. Í viðtalinu er farið ítarlega yfir feril Rúnars, bæði sem leikmaður og þjálfari. Rúnar er leikjahæsti landsliðsmaður í sögu Íslands og einn af fáum íslenskum þjálfurum sem hafa þjálfað erlendis.

Magnaðir Magnamenn - „Ævintýri að koma út á Grenivík"
Magni Grenivík leikur í Inkasso-deildinni í sumar eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni síðastliðið haust. Rúmlega 350 manns búa á Grenivík en fótboltaáhuginn þar er mikill. Magni komst síðast upp í næstefstu deild árið 1978 og mikil spenna er fyrir sumrinu á Grenivík. Hjörtur Geir Heimisson, markvörður og fyrirliði Magna, kíkti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu á laugardag ásamt föður sínum Heimi Ásgeirssyni, eiganda Eyjabita, sem er einn af styrktaraðilum Magna.

Arnþór Ari um rannsókn á mætingu á leiki og KA TV
Arnþór Ari Atlason, miðjumaður Breiðabliks, og Ágúst Stefánsson hjá KA TV voru á meðal viðmælenda í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardaginn.

Landsliðshringborð - Rætt um hópinn og treyjuna
Góð landsliðsumræða var tekin í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag. Tómas Þór Þórðarson og Magnús Már Einarsson ræddu um hópinn fyrir komandi leiki gegn Mexíkó og Perú. Staðan var einnig tekin á möguleikum leikmanna fyrir sjálfan HM hópinn.

Innkastið - Harkaleg brotlending Mourinho
Síðasta Innkast marsmánaðar (vegna landsleikjahlés) var tekið upp fljótlega eftir að Manchester United féll óvænt úr leik gegn Sevilla í Meistaradeildinni. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræddu um þessa hrikalegu brotlendingu Jose Mourinho. Meiðsli Gylfa, brjálæði West Ham stuðningsmanna, Dele Alli, bikarleikir, stjörnuleikur, Balotelli og margt fleira kemur við sögu.

Fjolla komst á rétta braut í lífinu með hjálp fótboltans
Fjolla Shala, leikmaður Breiðabliks, er einn harðasti leikmaður kvennaboltans. Hún er fædd í Kosóvó en flutti ung til Íslands þar sem hún æfði með Leikni í Breiðholti. Í dag spilar hún fyrir landslið Kosóvó og er nýkomin úr landsliðsverkefni. Hún mætti í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Í viðtalinu fór hún yfir leið sína í landslið Kosóvó og sagði frá því hversu erfið hún hafi verið í æsku. Fjolla var komin inn á vafasamar brautir í lífinu en með hjálp fótboltans náði hún að beygja af þeim.

Hjálmar Örn kom í spjall um Spurs og húliganisma
Skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Hjálmar er mikill stuðningsmaður Tottenham og kom það lið mikið við sögu í spjallinu. Þá er hann mikill áhugamaður um fótboltabullur, húliganisma, og var sú sturlaða menning einnig rædd.

Geta íslensk félagslið lært af Gnúpverjum?
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hefur undanfarnar vikur fjallað mikið um markaðsmál í íslenskum fótbolta. í þættinum í dag var nýr vinkill, heyrt var í Mate Dalmay, formanni og þjálfara körfuboltaliðs Gnúpverja sem leika í 1. deild karla. Mate og hans menn hafa náð að skapa stórskemmtilega stemningu í kringum lið sitt með því að fara óhefðbundnar leiðir.

Innkastið - Guðjón Baldvins og indverska ævintýrið
Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður Stjörnunnar, er nýkominn frá Indlandi þar sem hann var á lánssamningi hjá Kerala Blasters í indversku Ofurdeildinni. Guðjón lék þar undir stjórn David James og með leikmönnum á borð við Wes Brown og Dimitar Berbatov. Í þessum aukaþætti af Innkastinu ræðir Elvar Geir Magnússon við Guðjón um þetta óvænta ævintýri sem óhætt er að segja að hann hafi notið til botns.

Návígi - Óli Kristjáns
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH. Ólafur er mættur aftur í íslenska boltann eftir að hafa starfað í Danmörku undanfarin ár. Í viðtalinu eru ýmsar áhugaverðar pælingar varðandi fótboltann og farið yfir feril Ólafs, bæði sem leikmaður og þjálfari. Farið er yfir hæðir og lægðir.

Innkastið - Langt Innkast og enskt landsliðsval
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz bjóða upp á lengsta Innkastið til þessa enda gósentíð í Evrópuboltanum. Halldór Marteinsson af raududjoflarnir.is er gestur. Flautumark Manchester United, Maggi frá Liverpool, Meistaradeildin, neikvæð umræða um Allegri utan vallar, Son í Suður-Kóreu, Arsenal endurtekningar, hreinskilni Gylfa, Balotelli horn og fleira!

Gulli Jóns um Návígi og umræðu um að lengja Íslandsmótið
Gunnlaugur Jónsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Hann ræddi við Elvar og Tómas um hlaðvarpsþáttinn Návígi sem hefur slegið í gegn og um íslenska boltann. Er kominn tími til að lengja Íslandsmótið í fótbolta?

Björn Berg ræddi um peninga- og markaðsmál fótboltans
Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson um fjármál og markaðssetningu í fótboltanum. Í fyrri hluta spjallsins var rætt um sjónvarpssamninga og peningaflæði enskra úrvalsdeildarfélaga. Í seinni hlutanum var rætt um hvað íslenska deildin getur lært af þeirri norsku.

Návígi - Óli Jó
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er Ólafur Jóhannesson, þjálfari Íslandsmeistara Vals. Ólafur hefur átt skemmtilegan feril en hann er einn reyndasti fótboltaþjálfari Íslandssögunnar. Í viðtalinu er farið yfir ferilinn, sagðar skemmtilegar sögur og rifjaður upp eftirminnilegur tími hans sem landsliðsþjálfari.

Innkastið - Liverpool gestur, Manchester ferð og Arsenal vesen
Það var víða komið við í Innkasti vikunnar. Daníel Geir Moritz blaðraði sig í gegnum veikindi en hann og Elvar fengu til sín góðan gest, Martin Sindra Rosenthal sem er stuðningsmaður Liverpool. Fjallað var um vandræðaganginn hjá Arsenal sem steinlá fyrir Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins og ferð Elvars á leik Manchester United og Chelsea. Þá voru önnur tíðindi rædd og farið yfir tíu bestu leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar sem hafa ekki unnið titil.

Enska hringborðið - Þriðja fjórðungsuppgjör
Þriðja fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar var við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu til sín góðvini þáttarins. Kristján Atli Ragnarsson, talsmaður Liverpool á Íslandi, og Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is mættu í hljóðver. Farið var yfir stöðu mála og þeir Kristján og Tryggvi völdu sín úrvalslið eftir þriðja fjórðunginn og veittu fleiri verðlaun.

Návígi - Heimir Hallgríms
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Viðmælandi Gulla að þessu sinni er enginn annar en landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson. Í þættinum er farið yfir feril Heimis og leiðina í landsliðsþjálfarastólinn. Rætt er um starf hans hjá KSÍ og hvert hugur hans leitar eftir að HM lýkur.

Innkastið - Meistaradeildarstuð og bikarrómantík
Innkast vikunnar er að þessu sinni á miðvikudagskvöldi þar sem fyrri leikir 16-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu eru að baki. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir leikina og ræddu meðal annars leik Sevilla og Manchester United sem fram fór í kvöld.

Ítalska deildin sú eina með spennu í titilbaráttunni
Af stærstu deildum Evrópu er ítalska deildin sú eina sem er með alvöru spennu í titilbaráttunni. Þar eru Napoli og Juventus að slást um titilinn. Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítalska boltann, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag.

Þórir Hákonar - Hvernig fáum við fleira fólk á vellina?
ÍTF, hagsmunasamtök félaga í efstu tveimur deildum karla, hafa boðist til þess að sjá um markaðsmál fyrir Pepsi-deildina í sumar. Þetta kom fram í samtali við Þóri Hákonarson hjá ÍTF í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. KSÍ hefur ekki svarað beiðni ÍTF. Þórir mætti í þáttinn til að ræða um hvað þurfi að gera til að bæta aðsókn á Pepsi-deildina.

Magnús Þór um magnaða upplifun á leik Liverpool í Portúgal
Magnús Þór Jónsson á kop.is hafði ekki farið á útileik hjá Liverpool í Evrópukeppni áður en hann ákvað að skella sér á leik Porto og Liverpool á dögunum. Elvar og Tómas heyrðu í Magnúsi í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.

Ási Haralds: Freysi og Óli að mörgu leyti ekki ólíkir
Ásmundur Haraldsson er aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins og var í haust einnig ráðinn sem aðstoðarþjálfari Ólafs Kristjánssonar hjá FH. Ásmundur er á leið til Algarve ásamt kvennalandsliðinu en hann mun stýra lokaleik Íslands á mótinu þar sem Freyr Alexandersson verður á þjálfaranámskeiði hjá UEFA.

Návígi - Heimir Guðjóns II
Návígi er hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net sem Gunnlaugur Jónsson stýrir. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Þetta er seinni hluti viðtals Gulla við Heimi Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum. Í seinni hlutanum er fjallað um tíma Heimis sem aðalþjálfari FH og hæðir og lægðir á þeim kafla. Rætt er um brottrekstur hans frá FH og lauslega um framtíðina.

Návígi - Heimir Guðjóns I
Návígi er nýr hljóðvarpsþáttur á Fótbolta.net en umsjónarmaður er Gunnlaugur Jónsson. Í þáttunum ræðir hann við þekkta aðila úr íslenska fótboltanum og umræðan er tekin á annað plan. Fyrsti viðmælandi Gulla er Heimir Guðjónsson, þjálfari HB í Færeyjum. Viðtalið er í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er rætt um nýtt verkefni í Færeyjum, leikmannaferil Heimis og fyrstu skrefin í þjálfun.

Innkastið - Hitnar í kolum og Conte á förum
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fengu góðan gest í Innkasti vikunnar. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, fór yfir öll helstu málin tengd félaginu. Er Conte vinsæll hjá stuðningsmönnum og hvenær yfirgefur hann félagið? Getur Chelsea slegið út Barcelona í Meistaradeildinni? Myndi Jóhann skipta út Eden Hazard fyrir Kevin De Bruyne í dag? Einnig voru aðrir leikir helgarinnar skoðaðir, þar á meðal tap Arsenal gegn Tottenham, tap Man United gegn Newcastle og flott frammistaða Firmino fyrir Liverpool.

Halli Björns mætti í stórskemmtilegt spjall
Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, er einn skemmtilegasti viðmælandinn í íslenskum fótbolta. Hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um boltann, Stjörnuna, gervigras og fleira. Þá var spjallað um hans gömlu félaga í Östersund í Svíþjóð sem eru að fara að mæta Arsenal í Evrópudeildinni næsta fimmtudag.

Fyrrum enskur landsliðsmaður ræðir um Guðjón og indverska boltann
Russell Osman lék á sínum tíma ellefu landsleiki fyrir England en þessi fyrrum leikmaður Ipswich, Leicester og Southampton starfar nú sem sparkspekingur í indverska sjónvarpinu. Þar fjallar hann um indversku Ofurdeildina og allt sem að henni snýr. Rætt var við Osman í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Augu íslenskra fótboltaáhugamanna hafa beinst frekar að indverska boltanum eftir að Guðjón Baldvinsson var lánaður í Kerala Blasters en þar leikur hann með Dimitar Berbatov.

Frábær Fjölnisvika gerð upp
Fjölnismenn urðu Reykjavíkurmeistarar í fótbolta í vikunni þegar þeir unnu sigur á Fylki í úrslitaleik. Þá endurheimti félagið Bergsvein Ólafsson og Guðmund Karl Guðmundsson sem eiga vafalítið eftir að styrkja hóp þeirra vel. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már gerðu Fjölnisvikuna upp í útvarpsþættinum og ræddu meðal annars við Herra Fjölni, Gunnar Már Guðmundsson sem nú er aðstoðarþjálfari.

Boltaspjall - Hvar er peningunum best varið í íslenskum fótbolta?
Tómas Þór Þórðarson, Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson spjölluðu um íslenskan fótbolta í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Rætt var um Lengjubikarinn, hvernig má bæta undirbúningstímabilið og hvernig er peningunum best varið í íslenskum kvennafótbolta? Tómas Þór sagði frá pælingum sínum og í lokin var heyrt í Bjarna Jóhannssyni, þjálfara Vestra, varðandi fyrirkomulag undirbúningsmóta.

Innkastið - Spurs gestur og Liverpool drama
Enski boltinn er helsta umræðuefnið í Evrópu-Innkastinu. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir helstu tíðindin og leiki úrvalsdeildarinnar. Jóhann Ólafsson, fréttamaður mbl.is og stuðningsmaður Tottenham, er gestur vikunnar.

Ítalski boltinn - Napoli
Eftir hlé er Björn Már Ólafsson mættur aftur með podcast þættina um ítalska boltann sem slógu í gegn á síðasta tímabili.

Rasmus ræddi um samkeppnina í Val og lífið á Íslandi
Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Þessi geðþekki leikmaður varð Íslandsmeistari með Val í fyrra. Hann ræddi við Elvar og Tómas um samkeppnina í Valsliðinu og lífið innan sem utan vallar.

Gunnar Jarl og bransasögur úr dómgæslunni
Gunnar Jarl Jónsson kom í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og spjallaði við Elvar og Tómas. Gunnar hefur ákveðið að leggja flautuna á hilluna og telur líklegra en ekki að hún muni verða þar áfram. Hann hefur verið einn allra besti dómari Íslands um margra ára skeið.

Innkastið - Farsakenndur janúargluggi
Evrópu-Innkastið þessa vikuna er með gluggaþema! Farið er yfir félagaskiptagluggann og helstu tíðindin. Einnig var nýliðin umferð í ensku úrvalsdeildinni til umræðu þar, bikarinn, myndbandsdómgæsla, vandræði Dortmund og fleira. Spennan magnast í slagnum um Meistaradeildarsæti og i fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru umsjónarmenn þáttarins.

Rúnar Kristins ræddi um KR, þjálfarabransann og Belgíu
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rúnar ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Belgíska landsliðið, endurkoman til KR, tímabilið framundan á Íslandi og möguleikar íslenskra þjálfara var meðal þess sem kom til tals.

Fótboltafréttir vikunnar - Þjóðadeild, Indland og Alexis Sanchez
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson skoðuðu helstu fótboltafréttir vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hjörvar Hafliðason var á línunni og skoðaði viðskipti Manchester United og Arsenal sem skiptu á Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan.

Innkastið - Magnaður skiptidíll og dæmigert Liverpool
Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Benedikt Bóas Hinriksson eru ferskir í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Skiptidíllinn með Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan var að sjálfsögðu ræddur.

Ótímabær spá fyrir Pepsi-deildina
Er glórulaust að spá fyrir um deildina í janúar? Já vissulega en það er skemmtilegt og því var opinberuð janúarspá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Hvernig er spáin miðað við leikmannahópa liðanna í dag? Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu stöðu mála. Þá var haldið áfram að taka púlsinn á liðum Pepsi-deildarinnar. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var á línunni.

Landsliðshringborð - Kennsla í Þjóðadeildinni og leikmenn á faraldsfæti
Landsliðshringborðið var dregið fram í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Á miðvikudaginn verður dregið í Þjóðadeildina en ljóst er að Ísland verður þar með stórþjóðum í riðli enda í efsta styrkleikaflokki eftir magnaðan árangur síðustu ár. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Gunnar Gylfason, starfsmann KSÍ, sem er helsti sérfræðingur Íslands um þetta nýja mót. Gunnar útskýrði fyrirkomulagið.