PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,936 episodes — Page 46 of 59

Innkastið - Liverpool svarar gagnrýni með markaflóði

Sex efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar voru öll í eldlínunni í kvöld í 28. umferð. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir umferðina í Evrópu-Innkastinu. Meðal efnis: Margir áttu stórleik hjá Liverpool, sterkur sigur hjá City, sem betur fer fyrir Sarri vann hann, Kane að skemma fyrir Tottenham?, Gylfi skákar mörgum stórum nöfnum, gaman í Newcastle, El Clasico og úrvalslið Riise. Ölver býður upp á Evrópu-Innkastið.

Feb 27, 2019

Miðjan - Óvæntir spádómar og þrumustuð í Championship

Ástríðan er við völd í ensku Championship deildinni en fjölmargir Íslendingar hafa taugar til félaga sem spila í þessari stórskemmtilegu deild.

Feb 27, 2019

Innkastið - Stórleikirnir og besta miðja sögunnar

Það var nóg um að vera í Innkasti dagsins hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Stóru liðin voru í brennidepli en til gamans má geta að leikir þeirra allra eru sýndir hjá samstarfsaðila Innkastsins, Ölveri í Glæsibæ.

Feb 24, 2019

Hlustaðu á afmælisþáttinn - Gulli Gull gestur

Elvar Geir og Tómas Þór héldu upp á tíu ára afmæli útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 í dag. Farið var yfir sögu þáttarins og einnig hitað upp fyrir Pepsi Max-deildina og farið yfir tíu leikmenn sem þáttastjórnendur eru virkilega spenntir fyrir að sjá í deildinni í sumar. Gestur var Gunnleifur Gunnleifsson sem var einlægur og skemmtilegur.

Feb 23, 2019

Hitað upp fyrir stórleik Man Utd og Liverpool

Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolta.net um Liverpool, var á línunni í þættinum í dag þegar hitað var upp fyrir stórleik Manchester United og Liverpool. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján.

Feb 23, 2019

Miðjan - Baráttan við matarfíkn

Lára Kristín Pedersen, leikmaður Þórs/KA, hefur undanfarin ár verið einn besti miðjumaðurinn í Pepsi-deild kvenna. Hin 24 ára gamla Lára hefur tvíveigs orðið íslandsmeistari og tvívegis bikarmeistari með Stjörrnunni á ferli sínum. Lára hefur á sama tíma glímt við matarfíkn og meðal annars misst af landsleik og Evrópuleik af þeim sökum. Í miðju dagsins ræðir Lára meðal annars um matarfíknina, hvernig hún hefur unnið gegn fíkninni, hvernig áhrif matarfíknin hefur haft á fótboltann og hvernig fíknin hefur lýst sér í gegnum tíðina.

Feb 20, 2019

Innkastið - Blóraböggull skein skært á Anfield

Þrátt fyrir markaleysi í Meistaradeildinni í kvöld var slatti af fjöri og útlit fyrir spennandi og skemmtilegan seinni leik milli Bayern München og Liverpool. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz tóku upp nýtt Evrópu-Innkast eftir leiki kvöldsins. Í þættinum var meðal annars rætt um blóraböggla í boltanum, stöðu Sarri, könnun um hvort Solskjær eða Pochettino yrði betri ráðning, óvinsælustu konu Ítalíu og fróðlegan konudag sem er framundan. Ölver í Glæsibæ býður upp á Innkastið.

Feb 19, 2019

Blikar hrannast til útlanda - Hvað verður gert í Kópavogi?

Úr útvarpsþættinum á X977. Eysteinn Lárusson, framkvæmdastjóri hjá Breiðabliki, mætti í þáttinn. Í vikunni seldu Blikar tvo lykilmenn út í atvinnumennsku en alveg ótrúlegt magn af ungum leikmönnum félagsins hefur haldið út fyrir landsteinana. Breiðablik hafnaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra. Hvernig ætlar félagið að fylla í skörðin? Eysteinn svaraði því og sagði frá umhverfinu sem Breiðablik hefur búið til. Gervigras og ýmislegt fleira kom við sögu í spjalli hans við Elvar Geir og Benedikt Bóas.

Feb 16, 2019

Bjarni Ólafur og Vals draumaliðið

Bjarni Ólafur Eiríksson var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í efstu deild í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni tíu ára afmælis þáttarins. Bjarni kom í heimsókn í þáttinn og sagði meðal annars frá þeirri ákvörðun sinni að leggja skóna á hilluna... í bili allavega! Bjarni verður 37 ára á árinu og hefur verið lykilmaður hjá Valsmönnum. Hann fékk það heimaverkefni í þættinum að velja úrvalslið leikmanna sem hann hefur spilað með hjá Val. Elvar Geir og fyrrum samherji Bjarna hjá Val, Benedikt Bóas, tóku viðtalið.

Feb 16, 2019

Boltapólitíkin - Margt gott en líka eitthvað slæmt á ársþingi

Þórir Hákonarson hjá ÍTF er sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net í fótboltapólitíkinni. Hann mætti í þáttinn og gerði upp ársþing KSÍ. Hann telur að fótboltahreyfingin þurfi að íhuga með hvaða hætti formannsslagurinn var og segir að Ceferin málinu sé ekki lokið. Hann segir að ársþingið hafi skilið eftir sig margt jákvætt en þó séu einni neikvæðir punktar. Rætt var um með hvaða hætti nýr varaformaður verður valinn, skort á konum, umsvif ÍTF, gengisfellingu 2. deildar, leikjaniðurröðin Pepsi-deildarinnar og fleira. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Þóri.

Feb 16, 2019

Heimavöllurinn: Vetrarmótin og fleira með góðum gesti

Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir þáttastýrur Heimavallarins taka stöðuna á boltanum ásamt Báru Kristbjörgu Rúnarsdóttur, þjálfara og fyrrum leikmanns, í nýjasta þætti Heimavallarins.

Feb 15, 2019

Miðjan - Gulli Jóns opnar sig um sjúkdóm sinn

Gunnlaugur Jónsson er gestur Hafliða Breiðfjörð í aukaþætti af Miðjunni á Fótbolta.net í dag.

Feb 14, 2019

Innkastið - Hæðir og hægðir í Evrópuboltanum

Elvar og Daníel eru mættir með Evrópu-Innkast vikunnar. Það er Ölver í Glæsibæ sem býður upp á Innkastið. Meistaradeildin var plássfrek í þættinum en ungar stjörnur skinu skært. Mögnuð úrslit hjá Tottenham og franskir yfirburðir á Old Trafford. Stjörnuframmistaða Angel Di Maria, hörmungarframmistaða Alexis Sanchez og fleira. Er Mbappe kominn að hlið Ronaldo og Messi? Einnig var rætt um ferð til Brighton, ósanngirni í garð Gylfa og hver sé besti stjórinn sem hafi ekki unnið Meistaradeildina... svo eitthvað sé nefnt!

Feb 14, 2019

Miðjan - Skemmtilegur ferill Hemma Hreiðars

Hermann Hreiðarsson er gestur vikunnar hjá Magnúsi Má Einarssyni í Miðjunni. Í þættinum kemur hann með margar skemmtilegar sögur frá áhugaverðum ferli sínum. Hemmi spilaði í enska boltanum í fimmtán ár en hann er einnig næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Eftir ferilinn hefur Hemmi þjálfað ÍBV og Fylki auk þess sem hann var síðast aðstoðarþjálfari Kerala Blasters í Indlandi.

Feb 12, 2019

Fjörugt viðtal við Björgvin Stefáns

Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 á laugardaginn þar sem hann ræddi við Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson. Björgvin er skemmtilegur karakter og óhætt er að mæla með spjallinu við hann.

Feb 11, 2019

Hlustaðu á útvarpsþáttinn - Bjöggi Stef, úrvalslið og ársþing

Það var líf og fjör í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag þar sem Tómas Þór Þórðarson, Benedikt Bóas Hinriksson og Magnús Már Einarsson voru við stjórnvölinn. Björgvin Stefánsson, framherji KR, var gestur þáttarins að þessu sinni og farið var yfir víðan völl í stórskemmtilegu spjalli við hann. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir og fram á vor verður valið úrvalslið áratugarsins (2009-2019). Davíð Þór Viðarsson, miðjumaður FH, var fyrsti leikmaðurinn til að vera valinn í úrvalslið áratugarins í Pepsi-deildinni og hann var í viðtali. Ársþing KSÍ fer fram í dag og rætt var um formannskjörið þar og tillögur á þinginu. Hlustaðu á þáttinn í heild sinni.

Feb 9, 2019

Miðjan - Rýnt í formannsslaginn og ársþingið

73. ársþing KSÍ fer fram á laugardaginn en þar berjast Guðni Bergsson og Geir Þorsteinsson um formannsstólinn. Á þinginu fer einnig fram stjórnarkjör auk þess sem tillögur verða teknar fyrir. Í Miðju vikunnar var rætt um þingið en þeir Lúðvík Arnarson, fyrrum varaformaður knattspyrnudeildar FH, og Þórður Guðjónsson, fyrrum framkvæmdastjóri ÍA, fóru yfir stöðuna.

Feb 7, 2019

Innkastið - Klopp á móti sápukúlum en Liverpool líklegast

Evrópu-Innkastið var tekið upp strax eftir að Man City skaust á toppinn í ensku úrvalsdeildinni og fóru þeir Elvar Geir og Daníel Geir yfir toppbaráttuna.

Feb 6, 2019

Björn Daníel í skemmtilegu spjalli

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Björn Daníel Sverrisson var gestur þáttarins og ræddi við Tómas Þór og Elvar Geir. Björn er kominn aftur í FH-búninginn og miklar væntingar eru gerðar til hans.

Feb 2, 2019

Íslenski boltinn - Brjáluð breidd Vals og þing framundan

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska boltann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Úrslitaleikir undirbúningsmóta, möguleg heimkoma Hannesar, útlitið hjá KR, brjáluð breidd Vals, leikmenn að færa sig um set, Guðjón Þórðarson og formannsslagurinn koma við sögu. Hvar myndi varalið Vals enda í Pepsi-deildinni? Auk þess er viðtal við Þorstein Gunnarsson sem er í framboði til stjórnar KSÍ.

Feb 2, 2019

Heimavöllurinn: Vildi nýja áskorun eftir erfiða mánuði

Sandra María Jessen er nýjasta atvinnukonan okkar í knattspyrnu en hún skrifaði nýlega undir samning við þýska liðið Bayer 04 Leverkusen. Þangað fer hún frá Þór/KA þar sem hún hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil eftir að hafa alist upp hjá Þór.

Jan 31, 2019

Innkastið - Ótrúleg umferð að baki!

Dramatíkin var allsráðandi í 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og fóru þeir Daníel Geir og Elvar Geir yfir úrslitin og umdeild atvik. Þá spáðu þeir félagar því hvaða lið kæmust í Meistaradeildina.

Jan 30, 2019

Miðjan - Guðni vs Geir

Tíu dagar eru í ársþing KSÍ þar sem kosið verður um formann til næstu tveggja ára. Geir Þorsteinsson, heiðursformaður, ákvað á dögunum að bjóða sig fram gegn Guðna Bergssyni sem er núverandi formaður. Guðni og Geir eru í formannsslag þessa dagana en þeir mættu í dag í spjall hjá Elvari Geir Magnússyni og Magnúsi Má Einarssyni ritstjórum Fótbolta.net. Rætt var um helstu málefni fyrir ársþingið og á köflum var heitt í kolunum!

Jan 30, 2019

Innkastið - Lúxus útgáfa með góðum gestum

Daníel Geir Moritz fór í bæjarferð en hann og Elvar Geir fengu til sín góða gesti í höfuðstöðvar Fótbolta.net að þessu sinni. Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Martin Sindri, stuðningsmaður Liverpool, voru með þeim í Innkastinu. Rætt var um toppliðin og farið í tvo skemmtilega samkvæmisleiki. Meðal annars voru valdir bestu leikmenn Arsenal, Manchester United, Chelsea og Liverpool frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar. Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ.

Jan 27, 2019

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Pepsi-deildina

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór komu með fyrstu ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þeir skoðuðu félagaskiptin í vetur og felldu dóma!

Jan 27, 2019

Ole Gunnar er meira en skemmtanastjóri

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór spjölluðu við Manchester United sérfræðinginn og fréttamanninn Tryggva Pál Tryggvason. Rætt var um gengi United undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.

Jan 27, 2019

Miðjan - Bransasögur úr litríkum ferli Gary Martin

Enski framherjinn Gary Martin skrifaði á dögunum undir samning hjá Íslandsmeisturum Vals. Gary er mættur aftur í Pepsi-deildina eftir dvöl hjá Lokeren og Lilleström. Gary vakti mikla athygli í íslenska boltanum á árunum 2010 til 2016 þegar hann skoraði mikið með ÍA, KR og Víkingi. Í Miðju vikunnar tók Magnús Már Einarsson langt viðtal við Gary þar sem farið var yfir feril hans, allt frá barnæsku í Darlington þar til dagsins í dag.

Jan 23, 2019

Innkastið - Dýfur og besta vörnin í sögunni

23. umferðin í ensku úrvalsdeildinni kláraðist rétt áðan og hlóðu Elvar Geir og Daníel Geir Moritz í nýtt Innkast að því tilefni. Rétt áður en hætt var að taka upp sá Elvar frétt um að Hannes Þór Halldórsson væri á leið í Val og kom það sem þruma úr heiðskýru lofti í þáttinn. Þá var einnig farið í samkvæmisleik og völdu þeir bestu vörnina í sögu deildarinnar, fjagra manna varnarlínu, og er góð vörn ekki neitt án góðs markvarðar. Meðal efni þáttarins: Dýfa Salah, sterkur sigur Liverpool, Speroni grínkarl, glæsilegt sjálfsmark Digne, Arsenal mikið betra en Chelsea, slakasti leikur United undir stjórn Solskjær en öllum sama, Gylfi jafnar met Eiðs Smára, liðin í fallsætunum falla og gríðarleg barátta um Meistaradeildarsæti.

Jan 20, 2019

Útvarpsþátturinn 19. janúar - Orri gestur

Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 19. janúar. Elvar Geir Magnússon var einn í hljóðverinu að þessu sinni en hann hringdi í Tómas Þór Þórðarson sem er í Þýskalandi að fylgjast með strákunum okkar í handboltalandsliðinu. Enski boltinn var til umfjöllunar og valdir voru fimm bestu markverðir heims í dag. Gestur þáttarins var Orri Sigurður Ómarsson sem er kominn aftur í herbúðir Vals.

Jan 19, 2019

Heimavöllurinn: Óvænt U-beygja eftir sjö stóra titla í Garðabæ

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hefur verið áberandi í íslenskum fótbolta í rúman áratug. Hún ólst upp hjá Breiðablik en skipti yfir í Stjörnuna fyrir tímabilið 2005. Þar tók hún þátt í ótrúlegum uppgangi félagsins. Spilaði 271 meistaraflokksleiki, flesta með fyrirliðabandið, og vann fjóra Íslandsmeistaratitla og þrjá bikarmeistaratitla. Á þeim tíma spilaði Adda einnig 10 A-landsleiki og fór á láni til Kristianstad í Svíþjóð. Í haust bárust svo óvænt tíðindi úr Garðabænum þegar tilkynnt var um að fyrirliðinn myndi róa á önnur mið. Stuttu síðar var penninn á lofti á Hlíðarenda og Adda er í dag leikmaður Vals.

Jan 17, 2019

Miðjan - Öskubuskusaga Andra Rúnars

Andri Rúnar Bjarnason, framherji Helsingborg, hefur klifið metorðastigann hratt undanfarin ár. Hinn 28 ára gamli Andri jafnaði markametið í Pepsi-deildinni 2017 og í fyrra varð hann markakóngur í sænsku B-deildinni með Helsingborg. Þá hefur hann einnig leikið sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd.

Jan 16, 2019

Innkastið - Arsenal þema og sól hjá Solskjær

Evrópu-Innkastið var eingöngu innan ensku úrvalsdeildarinnar að þessu sinni þegar 22. umferðin var gerð upp.

Jan 15, 2019

Innkast frá Katar - Steikt upplifun

Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, hafa undanfarna viku dvalið í Katar.

Jan 14, 2019

Útvarpsþátturinn með Benna og Mána

Þrátt fyrir að Elvar Geir Magnússon sé í Katar og Tómas Þór Þórðarson í Þýskalandi þá var útvarpsþátturinn Fótbolti.net á sínum stað á X977. Benedikt Bóas Hinriksson og Þorkell Máni Pétursson leystu af í laugardagsþættinum.

Jan 13, 2019

Miðjan - Heimir Hallgríms fer yfir málin í Katar

Mánuður er síðan Heimir Hallgrímsson var ráðinn sem þjálfari Al Arabi í Katar. Heimir hefur verið að taka til í leikmannahópnum að undanförnu og koma sínum hugmyndum að.

Jan 9, 2019

Miðjan - Guðni Bergs ræðir mótframboð og fleira

Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku mætti Guðni Bergsson formaður KSÍ í ítarlegt spjall. Guðni er að ljúka tveggja ára kjörtímabili sínu og þarf að sækja nýtt umboð á ársþingi í febrúar þar sem honum mætir mótframboð frá Geir Þorsteinssyni forvera hans í embætti. Hafliði Breiðfjörð ræddi við Guðna á mánudaginn og spjallið má heyra í spilaranum að ofan og öllum helstu Podcast þjónustum.

Jan 9, 2019

Innkastið - Inn og út um gluggann

Janúarglugginn er fyrirferðarmikill í fyrsta Evrópu-Innkastinu á nýju ári. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz skoðuðu hvað efstu sex liðin ættu að gera í vetrarglugganum. Bikarkeppnin, eigendur í enska boltanum, komandi leikir í úrvalsdeildinni, bestu mennirnir á almanaksárinu 2018 og titilmöguleikarnir koma einnig við sögu í spjalli þeirra. Evrópu-Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ þar sem hægt er að sjá alla helstu boltaleikina í Evrópu!

Jan 6, 2019

Enska hringborðið - Uppgjör númer tvö

oppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Alisson; Aspilucueta, Van Dijk, Maguire, Robertson, Torreira, Son, Shaqiri, Aubameyang, Kane, Salah. Besti leikmaður: Van Dijk.

Jan 5, 2019

Hlustaðu á viðtalið við Geir Þorsteins

Geir Þorsteinsson, heiðursformaður KSÍ, tilkynnti í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann býður sig fram sem formaður KSÍ en ársþing KSÍ fer fram 9. febrúar. Geir býður sig því fram gegn sitjandi formanni, Guðna Bergssyni, sem tók við af Geir fyrir tveimur árum eftir spennandi formannsslag við Björn Einarsson. Geir ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas um framboð sitt í útvarpsþættinum Fótbolti.net.

Jan 5, 2019

Áramótakæfan - Fótboltaárið 2018 gert upp

Veglegur áramótaþáttur þar sem fótboltaárið 2017 var gert upp á X977. Umsjónarmenn: Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson. Veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum og gleðin var við völd.

Dec 29, 2018

Heimavöllurinn - Áramótauppgjör

Í síðasta þætti ársins af Heimavellinum stikla þáttastýrur á stóru og renna yfir fótboltaárið sem er að líða. Farið verður yfir hvað gerðist í deildum og bikar hér heima og eftirminnileg atvik rifjuð upp. Þá er litið yfir árangur landsliðanna okkar á árinu auk þess sem fjallað verður um atvinnukonurnar okkar.

Dec 29, 2018

Innkastið: Rauð jól og bestu í enska

Það var nóg um að vera í þætti dagsins í Innkastinu hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Báðir voru í jólastuði og fóru um víðan völl.

Dec 27, 2018

Heimavöllurinn - Ingibjörg Sigurðardóttir í ítarlegu spjalli

Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir er gestur þeirra Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins.

Dec 23, 2018

Hvað kemur Solskjær með til Man Utd?

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Manchester United var til umræðu. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Tryggva Pál Tryggvason, blaðamann og sérfræðing um Manchester United. Ráðning Ole Gunnar Solskjær var helsta umræðuefnið.

Dec 22, 2018

Miðjan - Lífleg Leeds umræða með Mána og Árna

Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er lífleg umræða um Leeds United sem er á toppnum í ensku Championship deildinni. Magnús Már Einarsson ræddi við Árna Þór Birgisson formann Leeds klúbbsins á Íslandi og útvarpsmanninn Mána Pétursson.

Dec 19, 2018

Óli Kristjáns heimsótti útvarpsþáttinn

Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi um gang mála hjá Hafnarfjarðarliðinu, síðasta tímabil og fleira. Einnig var rætt um stöðu íslenska boltans og málefni tengd honum.

Dec 17, 2018

Innkastið: Risaslagurinn gerður upp og Balotelli horn

Innkastsbræðurnir Elvar Geir og Daníel Geir ýttu á upptöku strax eftir leik Liverpool og Man Utd. Hafa þeir félagar oft mætt keikari í þáttinn og fór Elvar mikinn í greiningu sinni á liðinu sem hann heldur með.

Dec 16, 2018

Miðjan - Draumabyrjun Liverpool og vikur sem ráða úrslitum

Í hlaðvarpsþættinum Miðjunni í þessari viku er Liverpool til umfjöllunar. Félagarnir Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson af kop.is mættu í spjall og ræddu allt sem tengist Liverpool.

Dec 12, 2018

Innkastið - Ensk sveifla í Meistaradeildinni

Liverpool og Tottenham verða bæði í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar næsta mánudag. Eftir spennandi Evrópukvöld tóku Elvar og Daníel upp Evrópu-Innkast vikunnar. Riðlar Meistaradeildarinnar voru skoðaðir, rætt um síðustu helgi í ensku deildinni og Katar-ævintýri Heimis. Einnig var hitað upp fyrir Liverpool - Manchester United og reynt að stilla upp sameiginlegu liði úr hópum þessara félaga.

Dec 11, 2018

Stóru fótboltamálin með Gumma Ben

Guðmundur Benediktsson kom í stórskemmtilega heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977. Stóru fótboltamálin voru tekin fyrir og var víða komið við í spjalli hans við Elvar Geir og Tómas Þór. Enski og íslenski boltinn, landsliðið og fleira var í umræðunni og þá valdi Gummi úrvalslið samherja sinna á ferlinum. Gummi er búinn að gefa út bók sem kallast Stóra fótboltabókin.

Dec 8, 2018