PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,815 episodes — Page 45 of 57

Innkastið - Stórleikur, vont VAR og Ofurdeild

Elvar og Daníel gera upp fótboltahelgina og er af nægu að taka. Meðal efnis: Jafntefli í stórleiknum, flautumörkin gefa og taka, gult fyrir minningarfagn, furðuleg stytta, Íslendingar heitir, Alfreð heitur janúarbiti, Morata vaknaður, Pochettino næsti stjóri Real Madrid, fyrsti sigur Newcastle, Úlfavonbrigði, VAR notað illa, vond hugmynd um Ofurdeild.

Nov 4, 2018

Rússagull á Skaganum og Gummi Magg í Eyjum

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað var um tíðindin af íslenska félagaskiptamarkaðnum, þar á meðal leikmennina sem Skagamenn hafa fengið til sín. Þá var Guðmundur Magnússon á línunni en hann gekk í raðir ÍBV frá Fram. Einnig er rætt við Kristin Björgúlfsson, formann leikmannasamtaka Íslands.

Nov 3, 2018

Bjössi Hreiðars ræddi um Val, íslenska boltann og landsliðið

Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Vals, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Hann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um liðið tímabil Valsmanna, leikmannakaup, samkeppnina í Pepsi-deildinni og einnig um íslenska landsliðið. Þá kom Liverpool aðeins við sögu.

Nov 3, 2018

Miðjan - Hvað er í gangi hjá Real Madrid?

Október 2018 er einhver versti mánuðurinn í glæstri sögu spænska stórveldisins Real Madrid en liðið tapaði 5-1 gegn erkifjendunum í Barcelona um síðustu helgi.

Oct 31, 2018

Innkastið - Harmleikur og þjálfaraspark

Tíðindamikil helgi að baki í boltanum. Manchester City og Liverpool halda áfram að leiðast hönd í hönd á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, harmleikur í Leicester og Evrópumeistararnir spörkuðu stjóranum. Elvar og Daníel fengu félagsskap Halldórs Marteinssonar af raududjoflarnir.is í Innkastinu að þessu sinni. Skoðaðir voru leikir helgarinnar í enska boltanum, Arsenal og Tottenham misstu af stigum en Manchester United lagði Gylfa og félaga.

Oct 29, 2018

Enska hringborðið - Fyrsta fjórðungsuppgjörið

Toppbaráttan var að sjálfsögðu í aðalhlutverki við enska hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Benedikt Bóas ræddu við Kristján Atla um fyrsta fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin.

Oct 27, 2018

Arnar Gunnlaugs og hans fótboltapælingar

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Arnar Gunnlaugsson er tekinn við sem aðalþjálfari Víkings í Reykjavík en hann var gestur þáttarins. Hann ræðir þar sínar hugmyndir um fótbolta, hvað hann vill gera með Víkinga og hvert þjálfarinn Arnar sækir sinn innblástur. Elvar Geir og Benedikt Bóas spjölluðu við hann.

Oct 27, 2018

Innkastið - Skautað yfir fótboltahelgina í Evrópu

Fótboltadeildirnar í Evrópu fóru aftur á fulla ferð um helgina og þeir Elvar og Daníel skoðuðu allt það helsta. Eins og vanalega var enski boltinn í aðahlutverki. Meðal efnis: Lætin á Stamford Bridge, tíu í röð hjá Arsenal, frábær tölfræði Lamela, Shaqiri gerði gæfumun í heppnissigri Liverpool, hörmulegur varnarleikur hjá fokdýru Fulham, Gæði í Everton, stærsta áskorun Benítez, staðnaður Donnarumma, kæruleysi hjá Juve, erfitt ár Lopetegui, Meistaradeildin og færeyskur bjór.

Oct 22, 2018

Miðjan - Nýtt þjálfarateymi kvennalandsliðsins

Miðjan er að þessu sinni send út frá Laugardalsvelli. Jón Þór Hauksson var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennalandsliðsins en hann tekur við af Frey Alexanderssyni. Aðstoðarmaður Jóns verður Ian Jeffs, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum þjálfari kvennaliðs ÍBV. Elvar Geir Magnússon fékk sér sæti með Jóni og Ian Jeffs eftir fréttamannafund í dag og við leyfum hlustendum að kynnast þeim tveimur betur í Miðju vikunnar.

Oct 22, 2018

Hringborðsumræða - Stærstu mál íslenska fótboltans

Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 og var rætt um helstu mál íslenska boltans, innan vallar sem utan. Þórir ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór en meðal umræðuefna var: Viðar Örn Kjartansson leggur skóna á hilluna, fjárhagsmál íslenskra félaga, leikmannastefna, óboðlegur Laugardalsvöllur, ÍTF, komandi ársþing, möguleg mótframboð sem Guðni Bergs gæti fengið og lenging á Íslandsmótinu. Í klippunni hér að ofan er einnig viðtal við Þóri Guðjónsson, sem í gær gekk í raðir Breiðabliks frá Fjölni.

Oct 20, 2018

Jóhann Már um Chelsea - Man Utd: Mourinho fékk ósanngjarnar móttökur

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var á línunni eftir dramatískt 2-2 jafntefli Chelsea og Manchester United. Mikil læti sköpuðust í uppbótartíma leiksins. Í upptökunni er einnig umræða um furðulegan fréttamannafund Bayern München í gær. Jóhann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um titilvonir Chelsea, Sarri og þeirra helstu leikmenn

Oct 20, 2018

Miðjan - Grétar Rafn yfirmaður fótboltamála

Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður, menntaði sig í fótboltafræðunum eftir að skórnir fóru á hilluna og er í dag yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood í ensku C-deildinni. Félagið á sér það markmið að komast upp í Championship-deildina og fer vel af stað á þessu tímabili. Grétar var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni og Fótbolti.net fékk hann í spjall. Hann sagði frá starfi sínu hjá Fleetwood og færði rök fyrir því að staða yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ gæti hjálpað íslenskum fótbolta. Íslenska landsliðið, framtíðarpælingar og Joey Barton var meðal þess sem rætt var um í Miðjunni að þessu sinni.

Oct 16, 2018

Innkast úr Laugardal - Ekki allir sem stóðust próf kvöldsins

Komið er glænýtt Innkast frá Laugardalsvelli þar sem rýnt var í leik kvöldsins í Þjóðadeildinni, viðureignina gegn Sviss. Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson ræddu um leikinn en með þeim var Tómas Þór Þórðarson. Sviss vann 2-1 útisigur. Rýnt var í frammistöðu leikmanna og allt sem tengist leiknum. Hvað á að leggja áherslu á í næsta landsleikjaglugga? Mikilvægi boltastráka, enska landsliðið og fleira bar á góma.

Oct 15, 2018

Björn Berg Bryde og fréttir vikunnar í íslenska boltanum

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum. Björn Berg Bryde var á línunni en þessi hrikalega öflugi miðvörður yfirgaf Grindavík og gekk í raðir bikarmeistara Stjörnunnar. Hann er ekki eini lykilmaður Grindavíkur sem hefur horfið á braut. Elvar og Tómas ræddu meðal annars um stöðu Grindavíkur, fáa spennandi bita Inkasso-deildarinnar og þjálfaramál í þættinum í dag.

Oct 13, 2018

Landsliðsumræða - Frakklandsförin og upphitun fyrir Sviss

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Farið var yfir jafnteflið gegn heimsmeisturum Frakka og frábæra frammistöðu Íslands. Elvar er nýlentur frá Frakklandi og Tómas lýsti leiknum á Stöð 2 Sport. Leikurinn gegn Sviss á mánudag er mikilvægari en margan grunar. Hvernig verður byrjunarlið Íslands?

Oct 13, 2018

Innkast frá Frakklandi - Pogba skaut út á bílastæði

Komið er nýtt Innkast frá Frakklandi, þar sem Ísland leikur vináttulandsleik gegn heimsmeisturunum annað kvöld. Elvar Geir Magnússon, Daníel Rúnarsson og Henry Birgir Gunnarsson hituðu upp fyrir leikinn. Rætt var um sýningaræfingu Frakka, líklegt byrjunarlið Íslands, gagnrýni á Þjóðadeildina og fleira.

Oct 10, 2018

Nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um knattspyrnu kvenna

Kominn er í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður um íslenska knattspyrnu kvenna. Fyrsti þáttur varð aðgengilegur í gær en í honum fara þáttastjórnendurnir, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, yfir gang mála í Pepsi-deild kvenna í sumar. Ræða tímabilið og velja bestu leikmenn hvers liðs í deildinni.

Oct 10, 2018

Innkastið: Stórleiksvonbrigði en margir sáttir í hlé

Evrópu-Innkastið fór yfir málin og hvort liðin gangi sátt inn í landsleikjahlé. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon stýrðu þættinum.

Oct 7, 2018

Íslenskar leigubílasögur - Heimir til Vancouver?

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir slúðursögur úr íslenska fótboltanum og einhverjar staðfestar fréttir. Úr því spunnust ýmsar vangaveltur. Báðir höfðu þeir heyrt, úr ólíkum áttum, að Heimir Hallgrímsson fyrrum landsliðsþjálfari sé á óskalista kanadíska félagsins Vancouver Whitecaps sem spilar í MLS-deildinni bandarísku. Sagan segir að Heimir sé í Vancouver en þjálfari liðsins var rekinn í lok september. Leigubílasögur úr Pepsi-deildinni voru einnig til umræðu og kíkt í neðri deildir. Er Arnar Gunnlaugs rétti maðurinn fyrir Víkinga? Er Guðjón Þórðarson að fara að þjálfa í 3. deildinni næsta sumar?

Oct 6, 2018

Landsliðsumræða - Margt áhugavert í vali Hamren

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það var margt áhugavert í vali Erik Hamren á landsliðshóp fyrir komandi leiki, vináttulandsleiknum gegn heimsmeisturum Frakklands og Þjóðadeildarleiknum gegn Sviss (11. og 15. okt). Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um valið, fréttamannafundinn og verkefnið framundan. Kristján Guðmundsson kom með sitt álit. Átti að velja Arnór Sigurðsson? Færði leikbann Jóni Degi sæti í landsliðinu? Er þriggja miðvarða kerfi málið? Er rétt að velja Kolbein? Hvaða væntingar getum við gert?

Oct 6, 2018

Enski boltinn - Staða Mourinho og hitað upp fyrir Liverpool - Man City

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um enska boltann. Frétt Mirror um að búið væri að ákveða að reka Jose Mourinho og upphitun fyrir stórleik Liverpool og Manchester City. Kristján Atli Ragnarsson, talsmaður Liverpool á Íslandi, var á línunni.

Oct 6, 2018

Innkastið - Evrópuhrærigrautur með smá Liverpool lægð

Evrópu-Innkastið stóð svo sannarlega undir nafni í kvöld hjá þeim Daníel Geir Moritz og Elvari Geir Magnússyni. Meistaradeildinni var blandað saman við Evrópudeildirnar í ferskri umræðu og staðan í hinum og þessum deildum gerð upp. Meðal efni þáttarins: Krísa í Liverpool? Edin Hazard, nú er nóg komið hjá Mourinho, topp 10 bestu hingað til í enska, spenna í Þýskalandi, Gylfi og Jóhann Berg á eldi o.fl. o.fl.

Oct 3, 2018

Miðjan - Óskar Hrafn og Arnar Halls gera upp geggjaða deild

Í Miðjunni þessa vikuna ætlum við að gera upp stórskemmtilegt sumar í 2. deild karla. Deildin var æsispennandi og margir eygðu möguleika á að komast upp. Elvar Geir Magnússon fékk til sín þjálfarana tvo sem komust upp í Inkasso-deildina, Arnar Hallsson hjá Aftureldingu og Óskar Hrafn Þorvaldsson hjá Gróttu, og þeir gerðu upp tímabilið á afar hreinskilinn hátt. Báðir staðfestu að þeir verði áfram við stjórnvölinn hjá sínum félögum. Rætt var um deildina í sumar og vonir og væntingar hjá Aftureldingu og Gróttu. Þá voru fréttamál úr deildinni til umræðu, þar á meðal eitt umtalaðasta málið á kaffistofum landsins: Mál Hugins og Völsungs.

Oct 2, 2018

Einlægur Eiður Aron: Stoltur að hafa sigrast á spilafíkn

Eiður Aron Sigurbjörnsson, varnarmaður Vals, mætti í langt og gott spjall við Innkastið eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í dag. Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson ræddu við hann á Hlíðarenda með Íslandsmeistarabikarinn sjálfan. Eiður Aron var á einlægu nótunum í spjallinu og opnaði sig meðal annars um það að hann hafi verið kominn í skuldir vegna spilafíknar á tíma sínum í atvinnumennsku erlendis. Eiður spilaði póker fram á nótt og það hafði áhrif á frammistöðu hans á vellinum.

Sep 29, 2018

Innkastið - Lokahóf á Hlíðarenda

Það er vel við hæfi að síðasta Pepsi-Innkast tímabilsins var tekið upp á Hlíðarenda, eftir að Valsmenn lyftu Íslandsmeistarabikarnum. Elvar Geir, Maggi og Gunni Birgis gerðu upp tímabilið eftir lokaumferðina. Þeir opinberuðu val Fótbolta.net á bestu mönnum mótsins og völdu sjálfir besta leikmanninn í hverju liði deildarinnar. Innkastið þakkar fyrir hlustunina í sumar!

Sep 29, 2018

Inkasso-verðlaun og Jói Kalli í viðtali

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Lokahóf Inkasso-deildarinnar fór fram á föstudag þar sem opinberað var lið ársins og bestu menn. Elvar Geir og Benedikt Bóas fóru yfir valið í útvarpsþættinum Fótbolti.net og ræddu við Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfara ÍA. ÍA og HK komust upp úr deildinni.

Sep 29, 2018

Tryggvi Páll ræddi um vandræði Man Utd

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net. Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is ræddi við Elvar Geir og Benedikt Bóas fljótlega eftir 3-1 tap Manchester United gegn West Ham. United er í miklum vandræðum og spurning hvort Jose Mourinho sé rétti maðurinn til að koma liðinu úr þeim?

Sep 29, 2018

Miðjan - Einstök þjálfarasaga Heimis Þorsteinssonar

Miðjan er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem rætt er við skemmtilega viðmælendur sem tengjast boltanum. Viðmælandinn að þessu sinni er hinn grjótharði en manneskjulegi Heimir Þorsteinsson. Heimir er fæddur 1966 og ólst upp á Stöðvarfirði. Hann er hvað þekktastur fyrir að hafa þjálfað Fjarðabyggð, fyrst 2004 og 2005 og síðan frá 2008 - 2012. Hann var hársbreidd frá því að koma Fjarðabyggð í deild þeirra bestu en upplifði einnig brösótta tíma við stjórnartaumana. Oft og tíðum snerist þjálfaraferill Heimis um eitthvað allt annað en fótbolta og er saga hans einstök. Daníel Geir Moritz ræddi við Heimi í bíl við afleggjarann í Seldal, inn við Neskaupstað.

Sep 26, 2018

Innkastið: Chelsea feðgar á ferðinni

Evrópu-Innkastið gerði upp 6. umferð enska boltans í þætti kvöldsins. Þáttastjórnandi var Daníel Geir Moritz en Elvar Geir Magnússon var fjarri góðu gamni, þar sem hann er í hópeflisferð í Ungverjalandi.

Sep 24, 2018

Innkastið: Úrslitastund og skemmtilegar sögur

Næstsíðasta umferðin í Pepsi-deild karla fór fram í gær og í Innkasti dagsins er farið vel yfir hana. Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson fóru yfir leikina ásamt skemmtikraftinum Hjálmari Erni Jóhannssyni.

Sep 24, 2018

Málstofa Pepsi-deildarinnar úr útvarpsþættinum

Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson voru með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu milli klukkan 12 og 16:00 á laugardaginn en Elvar Geir Magnússon er staddur erlendis.

Sep 24, 2018

Miðjan - Brynjar Björn og Leifur ræða um árangur HK

HK tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni um síðustu helgi og leikur því á meðal þeirra bestu næsta sumar eftir tíu ár í næstefstu og þriðju efstu deild.

Sep 19, 2018

Innkastið - Samkvæmisleikur og Evrópubolti

Evrópu-Innkastið heilsar á þessu fallega mánudagskvöldi. Elvar Geir og Daníel Geir Moritz rýndu í síðustu umferð í enska, litu til Ítalíu og skoðuðu komandi keppni í Meistaradeildinni. Þá fóru þeir í samkvæmisleik og gáfu þeim leikmönnum sem Liverpool hefur keypt frá Southampton einkunn. Rætt í þættinum: Hazard í sínu besta formi, Liverpool og City einu kandídatarnir, afleit byrjun Burnley og Everton, hvað er í gangi með Ryan Fraiser? Zaha að væla í fjölmiðlum, Wolves með skemmtibolta, Ronaldo vaknaður, Meistaradeildin að fara af stað, o.fl.

Sep 17, 2018

Innkastið - Leigubílasögur og bikar á loft

Það var nóg að gerast í íslenska boltanum um helgina og Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis bjóða upp á langt og öflugt Innkast að þessu sinni. Bikarúrslitaleikurinn, Pepsi-deildin, þjálfarasögur og Inkasso-deildin voru til umræðu. Meðal efnis: Markverðirnir og dómarinn bestir í bikarúrslitaleiknum, aðhlaup Olivers, rauð spjöld og dúfur í Víkinni, er verið að byggja upp lið hjá FH?, löng innköst, Binni bolti bekkjaður, Pedersen langbesta nían, Gunni giskar, þjálfarasögurnar, Eiður Smári í þjálfun?, HK og ÍA upp, lífsbaráttuleikur framundan í Breiðholti.

Sep 17, 2018

Tilfinningaþrunginn viðskilnaður á Akureyri

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræddi við útvarpsþáttinn Fótbolti.net um stærstu fréttirnar á Akureyri. Tufa hættir sem þjálfari liðsins eftir tímabilið en það var staðfest í vikunni. Með hvaða hætti var viðskilnaðurinn og hvað tekur við hjá KA?

Sep 15, 2018

Landsliðsumræða - Viljum ekki vondu tímana aftur

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða um landsleikina tvo hjá körlunum sem að töpuðust gegn Sviss og Belgíu. Lesin er viðhorfsgrein Ívars Benediktssonar, blaðamanns Morgunblaðsins en hann gagnrýnir þar landsliðsfyrirliða fyrir að mæta ekki í viðtöl. Þá er rætt um komandi verkefni og hvað menn vilja sjá í síðustu fjórum landsleikjum ársins.

Sep 15, 2018

Elvar og Tómas hituðu upp fyrir úrslitaleikinn

Elvar Geir og Tómas Þór tóku veglega upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Stjarnan og Breiðablik mætast og var slegið á þráðinn til aðstoðarþjálfara liðanna. Jón Þór Hauksson og Guðmundur Steinarsson voru á línunni. Hvernig væri sameiginlegt lið hjá þessum tveimur félögum? Þá var spjallað við Kára Ársælsson sem var fyrirliði Breiðabliks þegar liðið varð bikarmeistari 2009.

Sep 15, 2018

Miðjan - Óli Stefán fer yfir víðan völl

Miðjan er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net. Þátturinn fer á fulla ferð í vetur en í hverjum þætti fáum við til okkar góðan gest. Við tökum forskot á sæluna í dag með ítarlegu viðtali við Óla Stefán Flóventsson. Tilkynnt var á dögunum að Óli Stefán muni hætta sem þjálfari Grindvíkinga eftir tímabilið eftir magnaðan árangur undanfarin þrjú ár.

Sep 12, 2018

Innkastið - Hrist upp eftir sjokk í landsleikjahléi

Á að nýta þá landsleiki sem eftir eru á árinu í að hrista upp í landsliðshópnum? Elvar Geir, Magnús Már og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti eftir 0-3 tapið gegn Belgíu á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland er að fara að falla úr Þjóðadeildinni og rætt var um hvort ekki ætti að nýta þá leiki sem eftir eru á árinu, tvo Þjóðadeildarleiki og tvo vináttulandsleiki, í að yngja upp í liðinu. Einnig var að sjálfsögðu talað um leikinn í kvöld og frammistöðu íslenska liðsins.

Sep 11, 2018

Innkastið - Djúp sár sleikt eftir Sviss og horft til Belgíuleiksins

Á meðan íslenska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í dag spjölluðu Elvar Geir og Magnús Már við Hörð Snævar, ritstjóra 433.is, um landsliðið. Rætt var um hamfarirnar í Sviss og komandi landsleikur gegn Belgíu var til skoðunar. Meðal efnis: Allt fór úrskeiðis í Sviss, hverjar eru helstu orsakirnar fyrir skellinum, hefði Hamren getað gert betur?, hvaða breytingar verða gerðar á byrjunarliðinu, öflugur mótherji morgundagsins.

Sep 10, 2018

Landsliðsumræða frá Sviss - Elvar og Tómas ræða um leikinn

Á morgun mætast Sviss og Ísland í Þjóðadeildinni en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Sviss. Þeir fengu sér sæti á varamannabekk á keppnisvellinum í St. Gallen, þar sem leikurinn fer fram, og spáðu í spilin. Stemningin í Sviss, líklegt byrjunarlið Íslands, úrvalslið leikmanna sem ekki eru í hópnum og ýmislegt fleira.

Sep 7, 2018

Innkast frá Austurríki - Jón Daði og Viðar Örn gestir

Íslenska landsliðið í fótbolta býr sig undir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Liðið er við æfingar í Austurríki, í fögrum fjallabæ sem heitir Schruns, og heldur svo yfir til Sviss á morgun. Elvar Geir Magnússon er í Austurríki og fékk sér sæti með Selfyssingunum Jóni Daða Böðvarssyni og Viðari Erni Kjartanssyni. Það var nóg að ræða við þá tvo, ekki bara um komandi landsliðsverkefni heldur einnig um félagsliðaferil þeirra. Viðar gekk á dögunum í raðir Rostov í Rússlandi.

Sep 5, 2018

Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi lokabarátta framundan í 2. deild

Það eru þrjár umferðir eftir í 2. deildinni og spennan mikil. Enn eru fimm lið sem eiga möguleika á að komast upp. Afturelding er í fínum málum eftir sigur á Gróttu í toppslagnum í síðustu umferð en þessi lið verma tvö efstu sætin. Ingólfur Sigurðsson mætti í kaffi til Elvars Geirs Magnússonar og rýnt var í gang mála fyrir lokasprettinn. Í lokin var rætt um 3. deildina þar sem einnig er líf og fjör.

Sep 4, 2018

Innkastið - Í misjöfnu skapi inn í landsleikjahlé

Heil umferð var leikin í enska boltanum um helgina og af því tilefni hlóðu þeir Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon í spánýtt Innkast. Um var að ræða 4. umferðina og vekur athygli að enn eru þrjú lið með fullt hús stiga. Þá var rýnt í dráttinn í Meistaradeildinni. Meðal þess sem rætt var í þættinum var: Rashford í gildru, Alisson sprell, frábær byrjun Chelsea, mat á byrjun Arsenal, markaþurrð hjá Ronaldo, draumalið Guardiola, vonbrigði Everton, hörmung West Ham og er Mourinho á réttri leið?

Sep 3, 2018

Innkastið - Spennustigið magnast og þjálfarasögum fjölgar

Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis eru á sínum stað í Innkastinu en þar var 19. umferð Pepsi-deildarinnar skoðuð. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildinni og Valsmenn með eins stigs forystu eftir umferðina. Meðal efnis: Engar lausnir finnast í Grafarvoginum, hungur Stjörnunnar eykst, áföll dynja á KA, hugur Guðmanns leitar til Reykjavíkur, flautumark Birkis gæti reynst dýrmætt, þunnskipaður dómarahópur, FH-ingar sýndu loks alvöru vilja, handbragð Rúnars Kristins, Blikar bíða eftir bikarúrslitum, Óli Stefán virðist fara annað, Shahab á Pizza 67, Castillion skorar bara fyrir Víking, spjallfélagarnir Kristján Guðmunds og Daníel Geir, auðvelt að dæma á Keflavík, kjaftæði um erfiðan útivöll og Gunni giskar á bikarúrslitaleikinn.

Sep 3, 2018

Óskar Hrafn talaði umbúðalaust um íslenska boltann

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum en hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um íslenska boltann. Óskar er núverandi þjálfari Gróttu og fyrrum íþróttafréttamaður og sérfræðingur Pepsi-markanna, um íslenska fótboltann. Ýmislegt mætti betur fara í íslenska boltanum eins og fram kemur í spjalli hans við Elvar Geir og Magnús Má.

Sep 1, 2018

Mikið undir í Pepsi-deildinni - Áhugaverðir leikir framundan

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir komandi leiki Pepsi-deildarinnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Leikir 19. umferðar voru skoðaðir og Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var á línunni og ræddi um komandi leik gegn FH.

Sep 1, 2018

Ástríðan í neðri deildunum - Rosaleg úrslitakeppni í 4. deild

Úrslitakeppnin í 4. deildinni hefst á laugardaginn þegar flautað verður til leiks í 8-liða úrslitum. Magnús Már Einarsson, Magnús Valur Böðvarsson og Haraldur Árni Hróðmarsson settust niður og fóru yfir riðlakeppnina og viðureignirnar sem eru framundan í úrslitakeppninni.

Aug 29, 2018

Innkastið - Geggjaður leikur framundan í Garðabæ

18. umferð Pepsi-deildar karla er að baki en umferðin var gerð upp í Innkastinu að vanda. Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis voru á sínum stað og hituðu meðal annars upp fyrir stórleik Stjörnunnar og Vals sem verður á miðvikudagskvöld. Meðal efnis: Mikilvægur sigur Fylkis, varnarsinnaðir Grindvíkingar, sanngjarn Stjörnusigur, Blikar að falla á prófum, varnarvandræði Fjölnis, Siggi Lár lætur til sín taka, KA missti unninn leik úr höndunum, KR með yfirburði gegn ÍBV, skyldusigur FH.

Aug 28, 2018

Innkastið - Fyrirsjáanleg vandræði á Old Trafford

Innkastið heilsar með nýjum þætti og var farið yfir 3. umferðina í enska og einnig komið við á Ítalíu. Þættinum stjórnuðu Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon en þeir ræddust við á sitt hvorri eyjunni. Meðal þess sem rætt var í þættinum var ótrúlega dapurt gengi Man Utd, Liverpool vörnin, Arsenal sigur, Watford nær í Evrópu, Son og herskydan, Everton leikir bjóða upp á fjör, hanskinn tekinn upp fyrir Newcastle og Alexander Mitrovic.

Aug 27, 2018