PLAY PODCASTS
Fotbolti.net

Fotbolti.net

2,831 episodes — Page 43 of 57

Upphitunarþáttur Pepsi Max-deildarinnar - Öll liðin skoðuð

Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon hituðu upp fyrir Pepsi Max-deildina sem fer af stað á föstudaginn. Spáin fyrir deildina var skoðuð og rætt um öll tólf liðin í deildinni. Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, var á línunni og einnig var rætt við Pétur Viðarsson, varnarmann FH.

Apr 20, 2019

Hvernig fóru Úlfarnir að því að rúlla yfir Víkinga?

Haka fór í gólf hjá mörgum þegar Úlfarnir, lið í 4. deildinni, rúllaði yfir Inkasso-lið Víkings í Ólafsvík í Mjólkurbikarnum. 6-2 urðu lokatölur. Úlfarnir hafa verið til í tvö ár og ekki gert mjög merkilega hluti í 4. deildinni. Ólafsvíkurliðið var hinsvegar hársbreidd frá því að komast í úrslit Mjólkurbikarsins í fyrra. Birgir Theodór Ásmundsson, spilandi formaður Úlfanna, var í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Birgir sagði meðal annars frá tengingu félagsins við Fram og sagði frá óskadrætti liðsins fyrir 32-liða úrslitin.

Apr 20, 2019

Innkastið - Evrópudrama og Solskjær gæti klúðrað sumrinu

Evrópu-Innkastið hjálpar þér að stytta föstudaginn langa. Elvar og Daníel fóru yfir ótrúlega dramatík Meistaradeildarinnar í vikunni, afrek Ajax og Tottenham, vonbrigði Manchester City, öruggan sigur Liverpool og af hverju stuðningsmenn Manchester United ættu að kvíða sumrinu. Spáð var í spilin fyrir undanúrslitin, bæði í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Þá var skoðuð spá fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni og hvað hefur komið mest á óvart.

Apr 19, 2019

Niðurtalningin: Valur - Orri og Ívar

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Orra Sigurð Ómarsson og Ívar Örn Jónsson leikmenn Vals. Valur er Íslandsmeistari síðustu tveggja ára og þeim er spáð Íslandsmeistaratitli í spá Fótbolta.net fyrir sumarið.

Apr 19, 2019

Niðurtalningin: KR - Bjöggi Stef og Ægir Jarl

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn úr KR en KR-ingum er spáð 2. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Björgvin Stefánsson og Ægir Jarl Jónasson.

Apr 19, 2019

Niðurtalningin: FH - Brynjar Ásgeir og Björn Daníel

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Hafnfirðinga sem eru komnir aftur heim í FH fyrir tímabilið en FH-ingum er spáð 3. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Brynjar Ásgeir Guðmundsson og Björn Daníel Sverrisson.

Apr 18, 2019

Niðurtalningin - Breiðablik: Brynjólfur og Gulli Gull

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn úr Breiðablik en Blikum er spáð 4. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Gunnleifur Vignir Gunnleifsson og Brynjólfur Darri Willumsson.

Apr 17, 2019

Niðurtalningin - Stjarnan: Eyjó og Halli Björns

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Bikarmeisturum Stjörnunnar er spáð 5. sæti deildarinnar en Eyjólfur Héðinsson og markvörðurinn Haraldur Björnsson eru gestirnir úr Garðabænum.

Apr 17, 2019

Niðurtalningin: ÍA - Viktor Jóns og Hörður Ingi

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Viktor Jónsson og Hörð Inga Gunnarsson leikmenn ÍA. ÍA er nýliði í Pepsi Max-deildinni en Skagamönnum er spáð 6. sæti í spá Fótbolta.net fyrir sumarið.

Apr 16, 2019

Niðurtalningin: KA - Torfi Tímoteus og Almarr

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn KA en liðinu er spáð 7. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Torfi Tímoteus Gunnarsson og Almarr Ormarson.

Apr 16, 2019

Innkastið - Bestir í Evrópu og Barton skýring

Topplið Englands vinna alla fótboltaleiki og nú er komið að lokaspretti deildarinnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir allt það helsta í enska boltanum, skoðuðu Meistaradeildina og völdu úrvalslið tímabilsins í Evrópuboltanum. Þá var Daníel með sérstaka fréttaskýringu um hinn snælduvitlausa Joey Barton.

Apr 15, 2019

Niðurtalningin: Fylkir - Aron Snær og Ragnar Bragi

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Aron Snæ Friðriksson og Ragnar Braga Sveinsson leikmenn Fylkis. Fylki er spáð 8. sætinu í spá Fótbolta.net fyrir Pepsi Max-deildina.

Apr 15, 2019

Niðurtalningin: Grindavík - Gunnar Þorsteins og Alexander Veigar

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Alexander Veigar Þórarinsson og Gunnar Þorsteinsson leikmenn Grindavíkur. Grindavík er spáð 9. sæti af Fótbolta.net.

Apr 15, 2019

Hannes fór yfir málin í hljóðveri X977

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson mætti í hljóðver X977 og ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór. Umtöluð skipti hans í Val, staða landsliðsins og margt fleira var til umræðu í skemmtilegu spjalli.

Apr 13, 2019

Bjarni Guðjóns tekinn inn í úrvalslið áratugarins

Bjarni Guðjónsson, fyrrum leikmaður KR, var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni af tíu ára afmæli þáttarins á X977. Bjarni er aðstoðarþjálfari KR í dag en hann var lykilmaður hjá liðinu og Íslandsmeistari 2011 og 2013. Bjarni heimsótti þáttinn.

Apr 13, 2019

Vetrarverðlaunin - Tobias valinn bestur

Annað árið í röð var haldin sérstök vetrarverðlaunahátíð til að krydda hið ótrúlega langa undirbúningstímabil á Íslandi. Til gamans var haldin sérstök vetrarverðlaunahátíð og þeir bestu á undirbúningstímabilinu heiðraðir.

Apr 13, 2019

Niðurtalningin: ÍBV - Gummi og Felix

Niðurtalning Fótbolta.net. Daníel Geir Moritz, fréttaritari Fótbolta.net í Vestmannaeyjum, fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn ÍBV en liðinu er spáð 10. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Guðmundur Magnússon og Felix Örn Friðriksson.

Apr 12, 2019

Niðurtalningin: Víkingur - Dofri Snorra og Davíð Atla

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við Víkingana, Dofra Snorrason og Davíð Örn Atlason. Víkingum er spáð 11. sæti í Pepsi Max-deildinni.

Apr 11, 2019

Innkastið - Miði er smá Man Utd möguleiki

Það er rosalegur sumargluggi framundan í Evrópuboltanum, Barcelona er líklegast til að vinna Meistaradeildina og einvígi Manchester City og Liverpool heldur áfram. Eftir leiki kvöldsins tóku Elvar og Daníel upp Evrópu-Innkastið í boði Ölvers. Meðal annars var rætt um bikarkeppnina, kynþáttafordóma og bestu sigurvegara Meistaradeildarinnar.

Apr 10, 2019

Niðurtalningin: HK - Leifur Andri og Hörður Árna

Niðurtalning Fótbolta.net. Arnar Daði fær til sín góða gesti og við teljum niður í Pepsi-Max deildina. Í dag er komið að því að ræða við tvo leikmenn úr HK en HK-ingum er spáð 12. sæti í Pepsi Max-deildinni. Þetta eru þeir Leifur Andri Leifsson og Hörður Árnason.

Apr 10, 2019

Atlarnir í FH í viðtali - Teknir inn í áratugarliðið

FH-goðsagnirnar Atli Viðar Björnsson og Atli Guðnason voru teknir inn í áratugarliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Þessir mögnuðu leikmenn mættu í viðtal og fóru yfir málin á áhugaverðan og skemmtilegan hátt. Atli Viðar er búinn að leggja skóna á hilluna og verður í sérfræðingateymi Pepsi Max-markaþáttarins í sumar en Atli Guðna setur stefnuna á að slá stoðsendingamet áður en hann hættir.

Apr 6, 2019

Berger og Smicer í spjalli um Liverpool

Það var létt yfir tékknesku Liverpool goðsögnunum Patrik Berger og Vladimir Smicer í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Þeir eru hér á landi á vegum Liverpool klúbbsins. Tómas Þór Þórðarson ræddi við þá félaga.

Apr 6, 2019

Fótboltafréttirnar - Hannes á heimleið

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu fótboltafréttir vikunnar. Rætt var um tíðindin af Hannesi Þór Halldórssyni, valið á besta þjálfara Íslands í dag og úrslitaleik Lengjubikarsins.

Apr 6, 2019

Innkastið - Sterk meistaralykt af Liverpool

Liverpool er með meistaralið en þó er alls ekki víst að liðið muni standa uppi sem sigurvegari þetta tímabilið. Elvar og Daníel mæta með Evrópu-Innkastið á nýjan leik. Farið er yfir gang mála í ensku úrvalsdeildinni og slaginn framundan um Evrópusætin, titilinn og að halda sæti í deildinni. Meðal efnis: Hræðileg mistök Lloris, ráðning Solskjær, reiði Warnock, gæði og vinnusemi Bernardo Silva, ókeypos bjór hjá Leicester, spennandi strákur í Burnley, enginn saknar Huddersfield, stórleikur framundan í Þýskalandi.

Apr 1, 2019

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir neðri deildirnar

Í síðasta þætti Heimavallarins fóru þáttastýrur yfir ótímabæra spá sína fyrir Pepsi-Max deildina. Í þætti dagsins spreyta þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir sig aftur í spádómum en í þetta skiptið spá þær í spilin fyrir 2. deild og Inkasso-deildina en keppni í deildunum hefst eftir 6 vikur.

Apr 1, 2019

Davíð Snorri um leið U17 á EM

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 þann 30. mars. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um landsliðið og þá kom Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U17 landsliðsins, í heimsókn. U17 landsliðið komst tryggði sér sæti í úrslitakeppni EM á dögunum. Viðtalið við Davíð byrjar eftir 24:30 í upptökunni.

Mar 30, 2019

Hræringar í síðustu ótímabæru spánni

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977. Það eru 27 dagar í að flautað verði til leiks í Pepsi Max-deildinni og síðasta ótímabæra spáin fyrir deildina var opinberuð í útvarpsþættinum. Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már skoðuðu málin. Það er nóg af hræringum í spánni. Einnig var Daníel Laxdal tekinn inn í úrvalslið áratugarins.

Mar 30, 2019

Miðjan - Landsliðsumræða með Einari Erni og Kristjáni Guðmunds

Íslenska landsliðið hefur leikið fyrstu tvo leiki sína í Undankeppni fyrir EM2020. Í Andorra á föstudaginn vann íslenska landsliðið 2-0 sigur á heimamönnum og í gærkvöldi voru það heimsmeistararar Frakka sem unnu Íslendinga 4-0 á Stade de France í París. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður á RÚV og Kristján Guðmundsson knattspyrnuþjálfari voru gestir Miðjunnar að þessu sinni. Þeir fóru yfir þessa tvo leiki og spáðu í spilin fyrir næstu leiki landsliðsins sem fara fram í júní gegn Albaníu og Tyrklandi á Laugardalsvelli.

Mar 26, 2019

Hversu mikill er áhuginn á íslenska boltanum?

Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 23. mars. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson fjölluðu um rannsókn á áhuga almennings á Pepsi Max-deildunum. Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitík, kíkti í heimsókn.

Mar 23, 2019

Landsliðsumræða - Þrjú stig komin í hús

Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 23. mars. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um landsliðið og sigurleikinn gegn Andorra í fyrsta leik undankeppni EM. Rýnt var í frammistöðuna og komandi leikur gegn Frakklandi skoðaður. Elvar Geir Magnússon var á línunni en hann er að fylgja íslenska landsliðinu.

Mar 23, 2019

Miðjan - Bjarni Jó fer yfir rúmlega 30 ára þjálfaraferil

Bjarni Jóhannsson er einn reynslumesti meistaraflokksþjálfari á Íslandi frá upphafi og hann er enn að. Bjarni er þjálfari Vestra í 2. deildinni í dag. Þjálfaraferill Bjarna spannar rúmlega 30 ár og hefur hann þjálfað á öllum landshornum. Bjarni er gestur Miðjunnar í þessari viku og fer hann yfir þjálfaraferilinn frá upphafi til dagsins í dag.

Mar 21, 2019

Landsliðsumræða - Skylda að vinna Andorra

Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Komandi leikir Íslands, þeir fyrstu í undankeppni EM, voru til umræðu. Sérstaklega var rætt um leikinn gegn Andorra sem verður næsta föstudag. Hópurinn sem Erik Hamren valdi var skoðaður og stillt upp líklegu byrjunarliði. Sigurbjörn Hreiðarsson sagði sitt álit á því sem framundan er.

Mar 16, 2019

Baldur Sigurðsson tekinn inn í úrvalslið áratugarins

Sjötti leikmaðurinn var tekinn inn í úrvalslið áratugarins í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Liðið er valið í tilefni af tíu ára afmæli þáttarins á X977 og samanstendur af leikmönnum í efstu deild 2009-2019. Baldur Sigurðsson, miðjumaður Stjörnunnar og fyrrum leikmaður KR, var tekinn inn í liðið en í spilaranum má heyra viðtal við hann.

Mar 16, 2019

Meistaradeildin - Spáð í spilin fyrir 8-liða úrslit

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu dráttinn í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar en dregið var á föstudag. Ajax - Juventus Liverpool - Porto Tottenham - Man City Man Utd - Barcelona

Mar 16, 2019

Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir Pepsi Max

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Heimavallarins spá þáttastýrurnar í spilin fyrir komandi tímabil. Nú eru 7 vikur í að keppni hefjist í Pepsi Max-deildinni og af því tilefni skella þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir í ótímabæra spá fyrir deildina.

Mar 15, 2019

Innkastið - Hin fjögur ensku og fræknu

Í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni var dregið til gamans í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu! Fjögur ensk lið voru í pottinum en ekkert pláss var fyrir fulltrúa frá Þýskalandi. Í þættinum er rætt um Meistaradeildina, endurkomu Zidane, kaflaskil hjá Bayern og Real, Balotelli og fleira. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz sjá um Innkastið sem er í samvinnu við Ölver.

Mar 13, 2019

Miðjan - Frakklandsævintýrið með Rikka og Rúnari

Gestir Miðjunnar í þessari viku eru fyrrum landsliðsmennirnir Ríkharður Daðason og Rúnar Kristinsson. Í þættinum var farið aftur til 5. september 1998 og rifjaður upp leikur Íslands og Frakklands á Laugardalsvellinum. Seinna í þættinum var rifjaður upp leikur Frakklands og Íslands í París 1999 í sömu keppni. Einnig var rætt um leikinn þegar þessar sömu þjóðir mættust á EM í Frakklandi 2016 og í lok þáttar var aðeins farið yfir landsliðið í dag en á morgun velur Erik Hamrén landsliðsþjálfari landsliðshóp fyrir fyrstu leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins 2020. Ísland mætir heimsmeisturum Frakklands 25. mars en nokkrum dögum áður er leikur gegn Andorra.

Mar 13, 2019

Innkastið - Margir gerðu mistök og bestu kaup Klopp

Evrópu-Innkastið er í samstarfi við Ölver í Glæsibæ. Elvar og Daníel fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni, skoðuðu stórleikinn í London og fóru yfir áhugaverða helgi þar sem markverðir og dómarar gerðu mörg mistök! Einnig valdi Daníel bestu kaup Jurgen Klopp eftir áskorun frá hlustanda. Championship-deildin var líka til umræðu, árásin á Jack Grealish og Íslendingurinn sem spilaði sinn fyrsta leik í deildinni um helgina. Þá var rætt um furðulega heimsókn Joachim Löw til Bæjaralands og næstu leikir Meistaradeildarinnar skoðaðir.

Mar 10, 2019

Íslenski boltinn - Óskar Örn gestur þáttarins

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 í dag. Elvar Geir og Tómas Þór fengu Óskar Örn Hauksson, leikmann KR, í heimsókn í útvarpsþáttinn. Óskar var tekinn inn í úrvalsliðið áratugarins í Pepsi-deildinni. Viðtalið við Óskar kemur eftir um 18 mínútu í upptökunni. Fyrst er umræða um Kolbein Sigþórsson og viðtal við Eið Aron Sigurbjörnsson, varnarmann Vals, sem einnig var tekinn inn í úrvalsliðið.

Mar 9, 2019

Meistaradeildin - Gummi Ben sá kraftaverkasigur Man Utd í París

Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fjallað um Meistaradeild Evrópu. Guðmundur Benediktsson var staddur í París þegar Manchester United vann sögulegan sigur gegn PSG. Hann heimsótti Elvar Geir og Tómas Þór. Einnig var rætt um stöðu mála hjá Real Madrid. Mikaael Marinó Rivera er stuðningsmaður Madrídarliðsins og var á línunni.

Mar 9, 2019

Miðjan - Fatastíll litla frænda, babyshower og sveindómsmissirinn

Knattspyrnumaðurinn, Albert Brynjar Ingason er gestur Miðjunnar í þessari viku. Albert gekk á dögunum í raðir Fjölnis frá uppeldisfélagi sínu Fylki. Albert hefur á ferli sínum leikið með Fylki, Þór, Val, FH og nú Fjölni. Hann varð til að mynda Íslandsmeistari með FH sumarið 2012. Undanfarin ár hefur hann vakið mikla athygli á Twitter og þá sérstaklega undanfarnar vikur. Í miðjunni í dag ræðum við, við Albert um sögurnar á bakvið nokkrar af vinsælustu twitter færslum hans og meira til.

Mar 8, 2019

Innkastið - Klopp farinn að hegða sér furðulega

Einvígi Manchester City og Liverpool um Englandsmeistaratitilinn heldur áfram og nú er City komið skrefinu á undan. Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í Evrópu-Innkastinu en Elvar og Daníel skoðuðu leiki helgarinnar. Einnig var horft til Þýskalands, Ítalíu og komandi leikja í Meistaradeildinni. Balotelli horn, er Klopp að fara á taugum?, Norður-Lundúnaslagurinn og margt fleira til umræðu. Innkastið er í samstarfi við Ölver í Glæsibæ.

Mar 4, 2019

Ótímabæra spáin - Tíðindi á toppnum

Elvar Geir og Tómas Þór komu með aðra ótímabæru spá ársins fyrir Pepsi-Max deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það hafa orðið nokkrar tilfæringar síðan fyrsta spáin var birt fyrir rúmum mánuði. Á toppnum eru stórtíðindi! Liðin tólf voru skoðuð og kostir og gallar þeirra ræddir.

Mar 2, 2019

Enska hringborðið - Þriðja fjórðungsuppgjör

Þriðja fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var á dagskrá útvarpsþáttarins Fótbolti.net. Elvar Geir og Tómas ræddu við sérfræðing þáttarins, Kristján Atla Ragnarsson, um þriðja fjórðung ensku úrvalsdeildarinnar og hann valdi úrvalsliðið, besta leikmanninn, besta stjórann og mestu vonbrigðin. Úrvalsliðið: Dubravka; Young, Van Dijk, Shaw; Ward-Prowse, Pogba, Bernardo Silva, Son; Aubameyang, Mane, Aguero. Besti leikmaður: Sergio Aguero. Besti þjálfari: Ole Gunnar Solskjær. Mestu vonbrigði: Chelsea.

Mar 2, 2019

Heimavöllurinn - Algarve og yngri landsliðin

Þær Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir eru gestir Heimavallarins í dag og ræða við Mist Rúnarsdóttur um landsliðin okkar og þau verkefni sem eru í gangi um þessar mundir.

Mar 2, 2019

Innkastið - Liverpool svarar gagnrýni með markaflóði

Sex efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar voru öll í eldlínunni í kvöld í 28. umferð. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir umferðina í Evrópu-Innkastinu. Meðal efnis: Margir áttu stórleik hjá Liverpool, sterkur sigur hjá City, sem betur fer fyrir Sarri vann hann, Kane að skemma fyrir Tottenham?, Gylfi skákar mörgum stórum nöfnum, gaman í Newcastle, El Clasico og úrvalslið Riise. Ölver býður upp á Evrópu-Innkastið.

Feb 27, 2019

Miðjan - Óvæntir spádómar og þrumustuð í Championship

Ástríðan er við völd í ensku Championship deildinni en fjölmargir Íslendingar hafa taugar til félaga sem spila í þessari stórskemmtilegu deild.

Feb 27, 2019

Innkastið - Stórleikirnir og besta miðja sögunnar

Það var nóg um að vera í Innkasti dagsins hjá þeim Elvari Geir og Daníel Geir. Stóru liðin voru í brennidepli en til gamans má geta að leikir þeirra allra eru sýndir hjá samstarfsaðila Innkastsins, Ölveri í Glæsibæ.

Feb 24, 2019

Hlustaðu á afmælisþáttinn - Gulli Gull gestur

Elvar Geir og Tómas Þór héldu upp á tíu ára afmæli útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 í dag. Farið var yfir sögu þáttarins og einnig hitað upp fyrir Pepsi Max-deildina og farið yfir tíu leikmenn sem þáttastjórnendur eru virkilega spenntir fyrir að sjá í deildinni í sumar. Gestur var Gunnleifur Gunnleifsson sem var einlægur og skemmtilegur.

Feb 23, 2019

Hitað upp fyrir stórleik Man Utd og Liverpool

Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolta.net um Liverpool, var á línunni í þættinum í dag þegar hitað var upp fyrir stórleik Manchester United og Liverpool. Elvar Geir og Tómas Þór ræddu við Kristján.

Feb 23, 2019