
Fotbolti.net
2,815 episodes — Page 40 of 57

Fantabrögð 7. umferð - Gylfi snýr aftur
Gylfi Tryggvason snýr aftur eftir vel heppnaða ferð til Bandaríkjanna og nær að rífa sig aðeins upp meðan Aron átti erfiða umferð. Aubameyang heldur áfram að skora, sóknarmenn Liverpool klikkuðu á meðan einhverjir nældu sér í heimskuleg rauð spjöld. Þáttastjórnendur gerðu mikið af breytingum og munu sennilega halda því áfram.

Innkastið - Gestagangur í hátíðarútgáfu
Lokaþáttur Innkastsins í beinni frá Dúllubar í Garðabæ! Góðir gestir og mikið stuð í lokaþætti Innkastsins þetta árið. Magnús Már og Gunni Birgis fengu til sín gullskóhafann Gary Martin, Josip Zeba varnarmann Grindavíkur og Harald Björnsson markvörð Stjörnunnar. Þá komu Benedikt Bóas og Tómas Þór í lokauppgjör.

Útvarpsþátturinn - Öðruvísi verðlaun í Pepsi Max
Það var öðruvísi uppgjörsþáttur á X977. Pepsi Max-deildin gerð upp og spjallað við góða menn. Tómas Þór, Benedikt Bóas, Magnús Már og Elvar Geir voru í hljóðveri. Góða skemmtun!

Miðjan - Rúnar Kristins í meistaraspjalli
Rúnar Kristinsson stýrði KR-ingum örugglega til sigurs í Pepsi Max-deildinni í sumar og varð um leið í þriðja skipti Íslandsmeistari sem þjálfari liðsins. Rúnar er gestur vikunnar í Miðjunni þar sem hann fer yfir tímabilið og stóru málin tengd því. Meðal efnis: Lykillinn að titlinum, ummælin um Beiti, aldursumræðan, bakvörðurinn Kennie Chopart, leikbann Björgvins Stefáns, besti liðsandinn, skemmtilegar sögur í byrjunarliðinu, óvænt leikmannakaup, skellurinn gegn Molde, breytt mótafyrirkomulag, gras eða gervigras, sögusagnir um Noreg og margt fleira.

Fantabrögð - Umferð 6 - Hjammi kíkir í spjall um Sterling, skin og skúri
Gylfi Tryggva var enn fjarverandi svo Aron fékk góða gesti í hús til að fara yfir sjöttu umferðina í Fantasy. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Vignir Már Eiðsson, harðasti Arsenal maður landsins, kíktu í hús. Hins vegar var lesin upp yfirlýsing frá Gylfa vegna gengi hans í síðustu umferð. Umferðin markaðist að stærstu leyti til af fjarveru vinsælasta fyrirliðans, Raheem Sterling, með tilheyrandi varafyrirliðabombum. Liverpool hélt áfram að vinna án þess að halda hreinu og City skoraði 8 (einni umferð of seint). Við mælum með hlustun!

Innkastið - Þeir bestu verðlaunaðir og afrek á Nesinu
Tómas Þór, Magnús Már og Elvar Geir í Innkastinu. Fjallað um íslenska boltann, Pepsi Max-deildina og Inkasso-deildina. Úrvalslið tímabilsins var opinberað, besti þjálfarinn, besti leikmaðurinn, besti ungi leikmaðurinn, besti dómarinn og allur pakkinn.

Heimavöllurinn: Úrvalslið og flugeldasýning á Hlíðarenda
Íslandsmótinu eru lokið og það eru Valskonur sem standa uppi sem Íslandsmeistarar. Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir deildina í sumar, opinbera úrvalslið Heimavallarins og velja besta og efnilegasta leikmann mótsins. Þær fá svo til sín góða gesti úr nýbökuðu Íslandsmeistaraliði Vals, þær Elínu Mettu Jensen og Hlín Eiríksdóttur.

Miðvarðapar Íslandsmeistaranna - Finnur og Arnór
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 21. september. Elvar Geir og Tómas Þór fengu til sín góða gesti. Miðvarðapar Íslandsmeistara KR mætti í hljóðver X977. Finnur Tómas Pálmason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson eru ólíkir en skemmtilegir karakterar. Þeir gáfu vel af sér í þættinum. Í upptökunni má einnig heyra viðtal við Júlíus Magnússon, leikmann Víkings, en hann var maður leiksins í bikarúrslitaleiknum.

Inkasso-hornið - Hitað upp fyrir spennuþrungna lokaumferð
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum lokaþætti er farið yfir stöðuna á toppi og botni deildarinnar þar sem spennan er mikil fyrir lokaumferðina sem fram fer á laugardaginn klukkan 14:00. Fjölnismenn eru búnir að tryggja sér sæti í Pepsi Max-deildinni en það kemur í ljós á laugardaginn hvort nýliðar Gróttu eða Leiknis fylgja þeim upp í Pepsi Max-deildina. Á botninum situr Njarðvík sem er fallið. Hinsvegar eru fjögur lið enn að berjast við það að forðast fall. Þróttur R. er í fallsæti fyrir lokaumferðina en liðið mætir Aftureldingu í lokaumferðinni sem er jafnframt í fallbaráttunni. Þá geta Magni og Haukar einnig fallið en Haukar mæta Gróttu í mikilvægum leik fyrir bæði lið. Í lokþáttarins völdu sérfræðingarnir, Baldvin Már Borgarson og Úlfur Blandon sitt úrvalslið fyrir Inkasso-deildina í sumar.

Innkastið - Meistaraþáttur og þjálfaraslúður
KR-ingar eru orðnir Íslandsmeistarar og Víkingar bikarmeistarar. Það vantar bara (Staðfest) á að Grindvíkingar fari niður með Eyjamönnum. Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Gunnar Birgis fara yfir íslenska boltann í Innkastinu. Úrslitaleikur bikarsins, Pepsi Max-deildin, þjálfaraslúður, Inkasso-hornið og ýmislegt fleira!

Miðjan - Víkingar í bikarsigurvímu
Víkingur R. vann sinn fyrsta stóra titil í 28 ár þegar liðið lagði FH 1-0 í úrslitum Mjólkurbikarsins á laugardaginn.

Innkastið - Liverpool eini hesturinn í hlaupinu?
Evrópu-Innkastið þessa vikuna er mætt í hús! Elvar og Daníel fóru yfir það helsta sem gerðist í ensku úrvalsdeildinni um helgina og skoðuðu einnig aðrar Evrópudeildir. Það er verið að hóta spennu víða! Gæti Liverpool rúllað yfir ensku deildina á þessu tímabili?

Fantabrögð - Umferð 5 - Pep-rotation byrjar
Þrátt fyrir að einn leikur væri eftir í umferðinni ákváðu Fantabrögð að henda í uppgjör á sunnudagskvöldi. Gylfi Tryggva ákvað að draga sig í hlé frá þættinum þar sem hann var of reiður til að mæta. Þess í stað ákvað Aron að fá til liðs við sig góðan gest og það var heldur betur ýmislegt til að tala um. Ein óvæntustu úrslit enska boltans frá upphafi, KDB byrjaði á bekknum, Son komst í gang og liðin hata að halda hreinu.

Heimavöllurinn: Hvert fer Íslandsmeistaratitillinn?
Það eru jólin á Heimavellinum um helgina. Stórleikur ársins er á Kópavogsvelli á morgun þegar Breiðablik tekur á móti Val. Tvö bestu liðin. Val dugir jafntefli. Breiðablik verður að vinna. Það er ekki seinna vænna að rýna í leikinn. Daði Rafnsson mætir á Heimavöllinn og rýnir með okkur í leikinn og Pepsi Max deildina. 2.deild er lokið og Völsungur eru meistarar. Við heyrum í fyrirliða Húsavíkurliðsins Hörpu Ásgeirsdóttur. Við förum yfir sumarið með henni, óvænta uppsögn John Andrews og allt annað sem skiptir máli.

Útvarpsþátturinn - Bikarúrslit og þjálfarakapall
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 14. september. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu um íslenska boltann og hituðu upp fyrir bikarúrslitaleik Víkings og FH. Púlsinn var tekinn á aðstoðarþjálfurunum Guðlaugi Baldurssyni hjá FH og Einari Guðnasyni hjá Víkingi.

Innkastið - Leitað að blóraböggli
Í þættinum er íslenska landsliðið í aðalhlutverki og við gerum upp þennan 4-2 tapleik gegn Albaníu í gær. Skoðum m.a. frammistöðu einstakra leikmann og möguleika okkar í riðlinum. Elvar Geir, Magnús Már og Tómas Þór eru í Innkasti dagsins. Meðal umræðuefna: Vonin enn góð þrátt fyrir úrslitin, Albanía betra lið en margir virðast halda, samfélagsmiðlar grimmir, Hjörtur fær að heyra það, Birkir Már í kuldanum, innkoma Kolbeins, meiðsli Kára, aldur liðsins, frammistaða Willums með U21 landsliðinu og komandi bikarúrslitaleikur.

Innkastið - Uppgjör með Freysa eftir skyldusigur í Laugardal
Innkastið var tekið upp á Laugardalsvelli strax eftir sigur Íslands gegn Moldóvu í undankeppni EM. Magnús Már, Gunni Birgis og Elvar Geir gerðu upp leikinn. Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari mætti í spjall. Meðal umræðuefna: Mark Kolbeins, samkeppnin um markvarðarstöðuna, staða Birkis Más, breyttar aðstæður Arons Einars, frábær frammistaða Ara Freys, óþægilegar fyrstu mínútur leiksins, tóm sæti á Laugardalsvelli, Davíð Snorri í talstöðinni, sundlaugaspjall og komandi leikur gegn Albaníu.

Boltamálin með Gumma Ben - Sögur af Atla og landsliðið
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Guðmundur Benediktsson kom í heimsókn í þáttinn og ræddi um helstu fótboltamálin við Elvar Geir og Benedikt Bóas. Minning Atla Eðvaldssonar var heiðruð en Guðmundur þekkti hann vel. Þá var hitað upp fyrir landsliðið. Pepsi Max-deildin og enski boltinn koma einnig við sögu.

Endurvekja lokahófið eftir tímabilið
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Kristinn Björgúlfsson frá Leikmannasamtökunum kom í þáttinn og ræddi meðal annars um aðalfund samtakanna sem var haldinn á dögunum. Einnig sagði hann frá endurvakningu á lokahófi eftir tímabilið. Í upptökunni fylgir einnig umfjöllun um leitina að vítaskyttu Íslands og þá var Benedikt Bóas Hinriksson í beinni frá Ölveri.

Heimavöllurinn: Leiðin til Englands er hafin
Það er heldur betur komin tími á að gera fyrstu tvo landsleiki Íslands í Undankeppni EM 2021 upp. Leiðin til Englands er hafin og komu 6 stig í hús. Hulda Mýrdal þáttastjórnandi Heimavallarins fær til sín Báru Kristbjörgu og Anítu Lísu og þær fara yfir landsleikina frá a-ö. Að sjálfsögðu kíkjum við líka á íslensku deildirnar. Þetta og allt annað sem skiptir máli á Heimavellinum í dag.

Innkastið - Keppinautar opinbera kosti og galla
Elvar og Daníel fóru yfir málin í Evrópu-Innkastinu þar sem 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar var gerð upp. Meðal efnis: Arsenal og Tottenham afhjúpuðu kosti sína og galla, Mane missti stjórn á skapi sínu, Laporte meiddist, Pogba reyndi, Chelsea er brothætt, Stig flautað af Aston Villa, Vardy rosalegur, Yarmolenko minnti á sig, Gylfi í stuði. Evrópudrátturinn, óvænt úrslit í Þýskalandi og gluggatíðindi.

Fantabrögð - Allt gengur eins og í sögu... hryllingssögu
Gylfi er kominn á 2. stig sorgarferlisins á meðan Aron hefur enn trú þrátt fyrir brösugt gengi. Lúxusleikmenn halda áfram að gera þeim erfitt fyrir, komið mynstur á hreinu lökin og ákveðnir leikmenn minntu á sig fyrir komandi umferðir. Nóg er að hugsa um í þessu landsleikjahléi en strákarnir þakka fyrir að komast í frí frá hörmungunum - í bili.

Innkastið - Hliðarheimur Gary Martin
Tómas Þór, Gunni Birgis og Elvar Geir gera upp 19. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Innkastinu. Meðal efnis: Fyrstu þrennurnar, furðulegur leikur í Kópavogi, hliðarheimur Gary Martin, Hannes og landsliðið, tveir sem koma til greina sem leikmaður ársins, brunaboð í Kórnum, Grindavík á ekki möguleika, landsliðið, kjúklingahlaup í Inkasso og ýmislegt fleira.

Útvarpsþátturinn - Landsliðsvalið og þeir bestu í Pepsi Max
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í þættinum: Í byrjun: Landsliðsval Erik Hamren fyrir komandi landsleiki gegn Moldóvu og Albaníu í undankeppni EM. 19:45 Pepsi Max-deildin. Val hlustenda á bestu leikmönnum deildarinnar. 48:20 Kristján Atli Ragnarsson ræðir um enska boltann.

Ástríðan í neðri deildunum - Lokaspretturinn í 2 og 3. deild
Einungis fjórar umferðir eru eftir í sumar í 2 og 3. deild karla og spennan fer að magnast. Í 2. deildinni er baráttan hörð um sæti í Inkasso-deildinni að ári og fallbaráttan er ekki ennþá ljós. Í 3. deild eru Kórdrengir og KF komin með annan fótinn upp um deild en þessi lið mætast í stórleik um helgina. Ennþá er hart barist á botninum þar.

Heimavöllurinn: Partý í Laugardalnum og stelpurnar okkar
Stútfull dagskrá í dag. Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín Þróttarana Álfhildi Rósu og Lindu Líf sem flugu upp í Pepsi Max deildina á dögunum. Knattspyrnusérfræðingurinn Daði Rafnsson spáir í landsleikina sem framundan eru og farið verður yfir allt það helsta í Pepsi Max og Inkasso deildunum.

Ástríðan í neðri deildunum - Spennandi úrslitakeppni í 4. deild
Úrslitakeppnin í 4. deild karla hefst á föstudaginn þegar fyrri leikirnir í 8-liða úrslitum er á dagskrá. Ótrúleg dramatík var í B-riðlinum í lok riðlakeppninar og spennan er mikil fyrir úrslitakeppnina.

Inkasso-hornið - Mikil spenna bæði á toppi og botni deildarinnar
Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar. Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins. Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á toppi og botni deildarinnar þar sem spennan er mikil. Farið er yfir síðustu leiki liðanna og spáð í spilin fyrir síðustu fjórar umferðirnar. Þá fengu sérfræðingarnir það verkefni að spá fyrir um síðustu umferðirnar sem framundan eru. Sérfræðingarnir eru þeir Baldvin Már Borgarson, fréttaritari Fótbolta.net og Úlfur Blandon þjálfari Þróttar Vogum í 2. deildinni.

Innkastið - Lögreglumál, sirkusdómgæsla og flöskukast
18. umferð Pepsi Max-deildarinnar var ótrúlega fjörug, nóg af mörkum, umdeild atvik og dramatík. Fullmannaður þáttur í Innkastinu að þessu sinni, Elvar Geir, Tómas Þór, Gunnar Birgis og Magnús Már fóru yfir hlutina. Meðal efnis: Eitt af atvikum tímabilsins á Hlíðarenda, lögreglan kölluð til, viðsnúningur Blika í Krikanum, Gústi Gylfa og sögusagnirnar, lið færast úr fallbaráttu yfir í Evróṕubaráttu, hvernig ætlar Grindavík að skora?, steindautt á Akureyri, rautt og læti í Árbænum, flösku kastað í átt að dómara, umdeilt rautt spjald á Þórsvelli og margt fleira.

Innkastið - Óvænt úrslit og rýr uppskera Solskjær
Evrópu-Innkastið eftir þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Elvar Geir og Magnús Már halda um stjórnartaumana að þessu sinni en gestur er Runólfur Trausti, stuðningsmaður Manchester United. Runólfur sagði meðal annars sína skoðun á byrjun United í deildinni. Miðað við nýliðna umferð er ekkert lið að fara að ógna Liverpool og Manchester City. Það var nóg af óvæntum úrslitum og umdeildum VAR atvikum!

Framtíðarsýn yfirmanns knattspyrnumála
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Yfirmaður knattspyrnumála KSÍ í ítarlegu viðtali um framtíð íslenska boltans allt frá innköstum í 7. flokki upp í bestu leikmenn þjóðarinnar. Arnar Þór Viðarsson talaði hreint út við Tómas Þór og Benedikt Bóas.

Fantabrögð - Salah stríddi sorgmæddum sérfræðingum
Mönnum var heitt í hamsi þegar þriðja umferð enska boltans var gerð upp af Fantabrögðum. Pukki heldur áfram að refsa, Salah þakkaði traustið en Kane gerði Aroni og Gylfa lífið leitt. Óvænt úrslit gerðu spilurum erfitt fyrir og aftur héldu fá lið hreinu.

Ítalski boltinn - Upphitunarþáttur tímabilsins
Björn Már Ólafsson, sérfræðingur um ítölsku A-deildina, hitar upp fyrir tímabilið í þessum sérstaka upphitunarþætti. Boltinn byrjar að rúlla á Ítalíu um helgina. Elvar Geir ræddi við Björn um það hvernig landið liggur í ítalska boltanum. Áhugaverðar þjálfarabreytingar, stór nöfn mætt í deildina, koma Balotelli, sumarið hjá Napoli og Inter, óvænt sala á Moise Kean, Sarri hjá Juventus og baráttan um gullskóinn eru meðal umræðuefna. Björn fer yfir spá sína fyrir deildina.

Heimavöllurinn: Bikarsturlun á brúnni
Það er mikið um dýrðir á Heimavellinum að þessu sinni. Þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín nýkrýnda bikarmeistara, þær Önnu Maríu Friðgeirsdóttur og Þóru Jónsdóttur.

Fantabrögð - Þáttur 3
Fantabrögð gerðu upp aðra umferðina í Fantasy Premier League. Fá lið héldu hreinu, Teemu Pukki gerði þrennu og Aron og Gylfi ræddu breytingar fyrir næstu umferð. Er of snemmt að taka Wildcard?

Innkastið - Keppst við að stimpla sig í fallbaráttu
17. umferð Pepsi Max-deildarinnar er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis standa vaktina. Meðal efnis: Valsmenn kasta aftur frá sér forystu, Brynjólfur Darri vs Mikkelsen, KR kæfði Víkinga, Skagamenn sjá ekki til sólar, Smalinn í miðverðinum, svekktir Fylkismenn, Brandur Olsen á flugi, Zeba fær aftur á sig víti, Halldór Páll á trúnó, rándýrt vítaklúður og rosaleg Inkasso-umferð.

Innkastið - Miðjumoð og varsjá í Manchester
Boðið var upp á nett Manchester United þema í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni er Einar Kristinn Kárason var gestur í stofu Daníels Geirs Moritz.

Hjálparhönd, brjálæði í bikarnum og Davíð Viðars
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór ræða um undanúrslitaleikina í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Pepsi Max-deildinni og spjalla við Davíð Þór Viðarsson, fyrirliða FH. Meðal efnis: Hvað var Óli Kristjáns að meina í viðtali vikunnar? Víkingar voru í vígahug gegn Blikum, Óskar Hrafn og Heimir Guðjóns orðaðir við starfið hjá Gústa Gylfa, yfirvofandi leikbann Elfars, engar kröfur á grasvelli landsins og fleira.

Inkasso-hornið - Gróttugestir og æsispennandi barátta um að fara upp
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla í samvinnu við Inkasso. Óliver Dagur Thorlacius og Arnar Þór Helgason, leikmenn Gróttu, eru gestir þáttarins. Það er æsileg spenna í baráttunni um að komast upp en aðeins fimm umferðir eru eftir af Inkasso-deildinni.

Bransasögur frá Anfield - Eiður vinsæll
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Rætt um Evrópuboltann og Tómas Þór Þórðarson segir frá heimsókn sinni á opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar þegar Liverpool og Norwich áttust við fyrir rúmri viku. Tómas fór á leikinn ásamt Eiði Smára Guðjohnsen fyrir hönd sjónvarps Símans.

Heimavöllurinn: Ætlum við að dragast endalaust aftur úr?
Það er veisla á Heimavellinum að þessu sinni. Hulda Mýrdal fær þau Anítu Lísu Svansdóttur og Guðmund Guðjónsson til sín og fer yfir allt það sem skiptir máli. Þau fara yfir landsliðshópinn sem var tilkynntur á dögunum, Pepsi Max deildina, Inkasso deildina, þær bestu í umferðum 7-12, leiðina á Laugardalsvöll og miklu miklu meira.

Fantabrögð - Fyrsta umferð gerð upp
Enska hófst með látum á föstudaginn. Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson gerðu upp fyrstu umferðina í Fantasy en mörg stór nöfn skiluðu fullt af stigum um helgina. Hægt er að taka þátt í umræðunni með því að fylgja Fantabrögðum á samfélagsmiðlum.

Innkastið - Enski mættur aftur með hvelli
Evrópu-Innkastið er mætt á nýju tímabili! Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Manchester City heldur áfram að trompa Liverpool, Lampard steinlá á Old Trafford, Eriksen breytti öllu hjá Tottenham, krakkarnir fengu tækifæri hjá Arsenal, óvænt Balotelli horn, nýjar stjörnur og ýmislegt fleira.

Innkastið - Gufurugluð Pepsi Max-deild
Fimm af sex leikjum 16. umferðar Pepsi Max-deildarinnar fóru fram í dag og voru úrslitin það áhugaverð að ekki var annað hægt en að blása samstundis í upptöku á Innkastinu. Elvar Geir, Gunni Birgis og Magnús Már sátu við hljóðnemana. Meðal efnis: Erfitt að fara inn í Kórinn, Brynjar Björn þjálfari ársins, vítaspyrnukeppni á Hlíðarenda, FH-ingar sýna karakter, Euro-Vikes, Miðjumaðurinn Kári, Eyjamenn mæta af skyldurækni í leiki, Skagamenn nálgast fallsæti, Jói Kalli viðurkennir mistök, Gústi finnur liðið sitt, vont veður á Akureyri, Gunni giskar á bikarúrslitin og Inkasso-hornið.

Útvarpsþátturinn - Enski boltinn, Pepsi Max og Inkasso
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 10. ágúst. Elvar Geir og Benedikt Bóas sáu um þátt dagsins. Í upphafi þáttar var fjallað um Inkasso-deildina. Baldvin Már Borgarsson var á línunni. Eftir það var rætt um enska boltann og félagaskiptagluggann við Daníel Geir Moritz. Að lokum var komandi umferð í Pepsi Max-deildinni skoðuð með Magnúsi Má Einarssyni.

Enska upphitunin - Manchester City getur unnið alla titlana
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Manchester City.

Enska upphitunin - Lokað á skrifstofu Liverpool
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Liverpool. Sigursteinn Brynjólfsson og skólastjórinn Magnús Þór Jónsson af kop.is ræddu við Elvar Geir Magnússon um komandi tímabil hjá Evrópumeisturunum og fleira! Meðal umfjöllunar: Rólegur gluggi hjá Liverpool, álagið á sóknarmönnum liðsins, Van Dijk og gullknötturinn, endurkoma Uxans, Firmino gleymist, besta byrjunarliðið, samkeppnin frá Man City, Everton blæs í herlúðra, spáin á kop.is.

Enska upphitunin - Spennandi sumargluggi hjá Arsenal
Innkastið hitar upp fyrir komandi tímabil í enska boltanum. Í þessum þætti er fjallað um Arsenal. Sumarglugginn er að enda fjörlega hjá Arsenal og þeir Einar Guðnason og Jón Kaldal fóru yfir stöðuna hjá Skyttunum.

Innkastið - Brekka eftir brekkusöng
15. umferð Pepsi Max-deildarinnar er að baki en Innkastið fer yfir umferðina og skoðar gang mála. Elvar Geir, Gunni Birgis, Tómas Þór og Magnús Már eru allir á sínum stað. Í þættinum eru meðal annars tilnefndir þeir fjórir leikmenn sem geta orðið besti leikmaður annars þriðjungs, Inkasso-horn og Gunni giskar.

Fantabrögð - Góð ráð fyrir Fantasy tímabilið
Fantabrögð er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem farið er yfir Fantasy deildina í ensku úrvalsdeildinni. Þáttastjórnendur eru þeir Gylfi Tryggvason og Engilbert Aron Kristjánsson. Enska úrvalsdeildin hefst á föstudaginn en stefnan er sett á að vera með hlaðvarpsþáttinn reglulega í kringum tímabilið.